Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Þau sem af einhverjum ástæðum komast ekki á kjörfund 29. maí í sínu kjördæmi geta kosið utan kjörfundar til og með kjördags. Vinstri græn geta aðstoðað við að leita upplýsinga og koma atkvæðinu til skila. Hafið samband við vg@vg.is eða síma 552-8872.

Munið að listabókstafur Vinstri grænna er V

 

Hér má nálgast lista yfir kjörstaði erlendis

Innanlands er utankjörfundaratkvæðagreiðsla á eftirtöldum stöðum:

  • Hjá sýslumönnum um land allt eða á öðrum stöðum sem hann ákveður í umdæmi hans. Í Reykjavík er utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Laugardalshöll og er opið þar kl 10:00-22:00 fram að kjördegi.

  • Erlendis á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnun, í sendiræðisskrifstofu eða á skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur og ákveðið að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla getur farið fram erlendis.

  • Á sjúkrahúsum, í fangelsum og á dvalar- og vistheimilum. Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um fangelsi og vistmenn þar. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar.

  • Heimahúsi, kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, sbr. framangreint. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag. Kjörstjóri auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla getur farið fram á þann hátt sem venja er á hverjum stað. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en klukkan 16.00 fjórum dögum fyrir kjördag.

Að koma atkvæðinu til skila:

Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á sendingu atkvæðisbréfs síns og því að það berist tímanlega í kjördeild hans. Kjörstjóra er þó skylt ef kjósandi óskar þess að koma bréfinu í ábyrgðarpóst gegn því að hann greiði burðagjaldið. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá.

Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur viðkomandi kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag svo unnt sé að taka það til greina við kosninguna.

Hægt er að koma atvkæðinu á kosningamiðstöðvar Vinstri grænna um allt land: upplýsingar um kosningamiðstöðvar má nálgast hér

Nánari upplýsingar má nálgast á síðunni www.kosning.is


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica