Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Þeir sem af einhverjum ástæðum komast ekki á kjörfund 25. apríl í sínu kjördæmi geta kosið utan kjörfundar til og með kjördags. Vinstri græn geta aðstoðað við að leita upplýsinga og koma atkvæðinu til skila. Hafið samband við Birnu Þórðardóttur á utankjörfundaskrifstofu VG: birna@vg.is, s: 840 6868
Munið að listabókstafur Vinstri grænna er V.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á eftirtöldum stöðum (sjá http://www.kosning.is/kjosendur/utankjorfundar/):
1. Hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla á aðsetri embættis fari fram á sérstökum stað utan aðalskrifstofu svo og að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stað í umdæmi hans. Lista yfir sýslumenn og upplýsingar um þá er að finna hér.
2. Hjá hreppstjórum, á skrifstofu eða heimili hreppstjóra.
3. Erlendis, á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnun, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur þó ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið auglýsir einnig hvar og hvenær atkvæðagreiðsla geti farið fram erlendis. Sjá lista hér á vef utanríkisráðuneytisins.
4. Sjúkrahúsum, fangelsum, dvalar- og vistheimilum. Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um vistmann fangelsis. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Hún má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag. Sjá nánar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra.
5. Heimahúsi. Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, sbr. framangreint. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag. Sjá nánar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra. Umsóknareyðublað um að fá að greiða atkvæði í heimahúsi (PDF). Í Reykjavík er hægt að hafa samband við umsjónarmann utankjörfundaratkvæðagreiðslu (Birnu Þórðardóttur, símanúmer 840 6868 og 862 8031) vegna atkvæðagreiðslu í heimahúsi.
Að koma atkvæðinu til skila:
Ef atkvæðið er greitt hjá kjörstjóra í umdæmi þar sem kjósandi er á kjörskrá þá skilur kjósandi þar eftir bréf með atkvæði sínu og skal sjálfur láta bréfið í venjulegan atkvæðakassa. Atkvæðakassinn skal svo innsiglaður af kjörstjóra ásamt hlutaðeigandi kjörstjórn og er umboðsmönnum lista heimilt að setja á hann innsigli sín.
Ef atkvæðið er greitt hjá kjörstjóra í öðru umdæmi en því sem kjósandi er á kjörskrá, þá annast og kostar ber kjósandi sjálfur ábyrgð á því að koma atkvæðinu til skila. Vinstri græn hjálpa endilega til við að koma atkvæðinu á réttan stað, en þá þarf kjósandi að koma atkvæðinu á einhverja kosningamiðstöð eða kosningaskrifstofu VG eða hafa samband við umsjónarmann utankjörfundaratkvæðagreiðslu (Birna Þórðardóttir, símanúmer 840 6868 og 862 8031).
Athugið: Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag svo að hægt sé að taka það til greina við kosninguna. Kjósendur sem kjósa utan kjörfundar á kjördag þurfa því að koma atkvæðinu sem allra fyrst á einhverja kosningamiðstöð VG svo að hægt sé að koma atkvæðinu samdægurs til skila.
Kjósendur erlendis þurfa að senda atkvæðið í pósti (betra að senda í ábyrgðarpósti) á kosningamiðstöð VG að Tryggvagötu 11, 101 Reykjavík. Athugið að bréf geta verið marga daga og jafnvel vikur á leiðinni. Ef kjósandi sér ekki fram á að atkvæðið skili sér fyrir kjördag er best að hafa samband við umsjónarmann utankjörfundaratkvæðagreiðslu (Birna Þórðardóttir, símanúmer 840 6868 og 862 8031) sem athugar hvort hægt sé að koma atkvæðinu fyrr til landsins (t.d. með flugvél).
