Lög fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð
I. Heiti og markmið
1. grein
Vinstrihreyfingin – grænt framboð (VG) er stjórnmálaflokkur með heimili og varnarþing í Reykjavík.
2. grein
Markmið flokksins er að berjast fyrir jafnrétti, jöfnuði, réttlæti, kvenfrelsi, umhverfis- og náttúruvernd, lýðræði, sjálfstæði þjóðarinnar og friðsamlegri sambúð þjóða.
3. grein
Við val í trúnaðarstörf innan og á vegum flokksins og í starfi hans í hvívetna skal gætt jöfnuðar milli kynja.
II. Flokksaðild
4. grein
Félagar í flokknum geta þeir orðið sem styðja markmið hans og eru ekki í öðrum stjórnmálaflokkum á Íslandi.
5. grein
Inntökubeiðnir í flokkinn og úrsagnir úr honum skulu tilkynntar skriflega eða með rafrænum hætti til viðkomandi svæðisfélags eða skrifstofu flokksins. Skrifstofan hefur yfirumsjón með félagatali í samræmi við reglur sem stjórn flokksins gerir tillögu um og eru staðfestar af flokksráði.
III. Skipulag
6. grein
Grunneiningar í skipulagi flokksins eru svæðisfélög. Þau taka til eins eða fleiri sveitarfélaga eftir ákvörðun félaga VG, en félagssvæðið má þó aldrei vera minna en eitt sveitarfélag. Heimilt er að stofna smærri undirfélög sem miðast við hverfi eða byggðakjarna innan sveitarfélaga. Stjórn svæðisfélagsins fer þá með málefni deildanna. Þar sem svo háttar til að svæðisfélag tekur til fleiri en eins sveitarfélags teljast skráðir félagar innan hvers sveitarfélags vera deild innan félagsins sem fer með staðbundin verkefni, þar með talið framboð til sveitarstjórna.
7. grein
Félagar geta aðeins verið í því svæðisfélagi sem lögheimili þeirra eða heimilisfesti segir til um en er heimilt að sækja fundi í hvaða svæðisfélagi sem er og njóta þar málfrelsis og tillöguréttar. Félagar sem hafa annað heimilisfesti en lögheimili segir til um tilkynni skrifstofu hvoru svæðisfélaginu þeir kjósa að tilheyra. Búi félagi þar sem ekki er starfandi svæðisfélag skal hann tilgreina það svæðisfélag sem hann kýs að eiga aðild að við skrifstofu flokksins.
8. grein
Svæðisfélög skulu setja sér lög sem eru í samræmi við lög flokksins. Þau skulu halda aðalfundi sína árlega og skulu slíkir fundir boðaðir með a.m.k. sjö sólarhringa fyrirvara.
Árlega skulu svæðisfélög senda skrifstofu flokksins upplýsingar um stjórn félagsins, um innheimt félagsgjöld, ársreikninga og starfsemina á liðnu ári. Um meðferð fjármuna og reikningsskil skal farið í samræmi við landslög.
Svæðisfélög ráða fjárhag sínum og málefnum sjálf að öðru leyti, en þó í samræmi við lög þessi.
9. grein
Þar sem fleiri en eitt svæðisfélag starfar innan kjördæmis skulu svæðisfélögin mynda með sér kjördæmisráð. Hvert svæðisfélag kýs fulltrúa í kjördæmisráð sem nemur einum fyrir hverja fimm félaga eða brot úr þeirri tölu.
Kjördæmisráð kýs sér stjórn sem skipuð skal a.m.k. þremur mönnum og skal formaður kosinn sérstaklega.
Kjördæmisráð fer með önnur verkefni á sínu starfssvæði samkvæmt ákvörðun svæðisfélaganna eða flokksstjórnar.
10. grein
Svæðisfélög eða kjördæmisráð samkvæmt samkomulagi þar um, innheimta árgjöld af félögum sínum samkvæmt ákvörðunum landsfundar um lágmarks viðmiðunarárgjald. Svæðisfélög og kjördæmisráð það sem þau eiga aðild að sbr. 9. gr. skipta með sér tekjum af árgjöldum þannig að 20% að lágmarki komi í hlut kjördæmisráðs.
11. grein
Samtök ungs fólks, yngra en 31 árs (Ung vinstri græn) og samtök eldra fólks, eldra en 60 ára (Eldri vinstri græn) eru flokkseiningar sem þó teljast ekki til grunneininga flokksins sbr. 6. gr. Félagar í þeim flokkseiningum skulu þó vera félagar í svæðisfélögum með réttindi og skyldur sbr. 4. gr.
Flokkseiningar þessar hafa sjálfstæðan fjárhag, og skipa málum sínum sjálfar í samræmi við lög flokksins og landslög.
IV. Framboð
12. grein
Svæðisfélög eða deildir innan þeirra sbr. 6. gr. skulu sjá um framboð til sveitarstjórna í nafni flokksins eða í samstarfi við aðra. Kjördæmisráð eða svæðisfélag, ef starfssvæði þess fellur saman við kjördæmamörk, sér um framboð til Alþingis.
13. grein
Við val á frambjóðendum á lista flokksins sbr. 12. gr. skal viðhafa uppstillingu eða forval. Uppstilling skal samþykkt annað hvort á félagsfundi eða með póstkosningu en forval má fara fram í einni eða tveimur umferðum á kjörfundi eða með póstkosningu.
14. grein
Stjórn flokksins gerir tillögu um samræmdar lágmarksreglur sem staðfestar eru af flokksráði um meðferð kjörskrár og um val á frambjóðendum skv. 13. gr. eigi síðar en 6 mánuðum fyrir reglulegar kosningar til Alþingis eða sveitarstjórna. Reglurnar gildi í öllum kjördæmum og öllum sveitarfélögum.
V. Þingflokkur
15. grein
Þingflokkur VG kýs sér stjórn, skipuleggur störf sín og mótar afstöðu til mála á þingi í samræmi við stefnu flokksins og samþykktir landsfunda. Veigamiklar ákvarðanir um samstarf við aðra flokka, ríkisstjórnarþátttöku eða slit á slíku samstarfi tekur þingflokkurinn í samráði við flokksráð.
VI. Sveitastjórnarráð
16. grein
Sveitarstjórnarráð er samstarfsvettvangur kjörinna fulltrúa flokksins í sveitarstjórnum og er öðrum stofnunum flokksins til ráðuneytis um sveitarstjórnarmál. Sveitarstjórnarráð fjallar um sameiginlega stefnumótun í málefnum sveitarfélaga á grundvelli stefnuyfirlýsingar flokksins og landsfundarsamþykkta.
17. grein
Sveitarstjórnarráð er skipað öllum aðal- og varafulltrúum í sveitarstjórnum sem eru félagsbundnir í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, óháð því hvort þeir eru kjörnir af flokkslistum, sameiginlegum listum eða óhlutbundinni kosningu. Oddvitar framboðslista flokksins sem ekki ná kjöri í sveitarstjórn eiga ennfremur rétt til setu í sveitarstjórnarráði og hið sama á við um ráðna sveitarstjóra sem eru félagar í flokknum. Fulltrúum í flokksráði er heimilt að sitja fundi sveitarstjórnarráðs með málfrelsi og tillögurétt þótt þeir séu ekki fulltrúar í sveitarstjórn.
18. grein
Stjórn flokksins boðar til fyrsta fundar sveitarstjórnarráðs að loknum sveitarstjórnarkosningum. Sveitarstjórnarráðið kýs sér stjórn, mótar sér starfsreglur og skipuleggur störf sín. Ráðið skal koma saman að minnsta kosti einu sinni á ári. Stjórnin boðar til funda í sveitarstjórnarráði og skipuleggur starf þess að öðru leyti.
VII. Landsfundur
19. grein
Landsfund skal halda annað hvert ár, og ákveður flokksstjórn fundarstað og fundartíma.
20. grein
Landsfundur hefur æðsta vald í öllum málum VG. Hann er lögmætur, ef löglega er til hans boðað.
21. grein
Boða skal landsfund með skriflegri tilkynningu til svæðisfélaganna með að minnsta kosti tveggja mánaða fyrirvara.
22. grein
Landsfundur samþykkir fundarsköp og skal fundinum stjórnað samkvæmt þeim.
23. grein
Mál þau og tillögur sem einstakir félagar, félög eða kjördæmisráð óska eftir að tekin verði fyrir á fundinum, skal senda flokksstjórn sex vikum fyrir landsfund. Álit og ályktanir er flokksstjórn hyggst leggja fyrir landsfund, sem og þau mál og tillögur sem borist hafa innan tilskilins tímafrests, skulu liggja frammi á skrifstofu flokksins og birt á heimasíðu hans eigi síðar en þremur vikum fyrir landsfund.
Ekki er hægt að leggja fram tillögu eftir að tímafrestur rennur út nema landsfundur samþykki að taka hana á dagskrá, sbr. þó grein 35 um lagabreytingar.
24. grein
Í öllum málum ræður einfaldur meirihluti, ef ekki er öðruvísi ákveðið í lögum þessum.
25. grein
Kjörgengi og kosningarétt í starfi flokksins hafa félagar sem greitt hafa lágmarks viðmiðunarárgjald skv. ákvörðun landsfundar fyrir yfirstandandi ár.
26. grein
Flokksstjórn getur kvatt saman aukalandsfund þegar nauðsyn krefur. Fulltrúar á aukalandsfundi eru þeir sömu og kosnir voru til síðasta reglulegs landsfundar.
27. grein
Svæðisfélögum er skylt að láta fara fram kosningu fulltrúa á landsfund úr hópi félaga sinna. Hvert svæðisfélag á rétt á einum fulltrúa á landsfundi fyrir hverja 5 félaga eða brot af þeirri tölu upp að félagatölunni 30 og einum fulltrúa fyrir hverja 15 félaga eða brot af þeirri tölu yfir félagatölunni 30. Hvert félag má kjósa allt að jafnmarga til vara.
28. grein
Kjörbréf fulltrúa á landsfund skulu send skrifstofu flokksins í síðasta lagi 14 dögum áður en landsfundur hefst og skal flokksstjórn þá skipa þriggja manna kjörbréfanefnd og setja henni starfsreglur.
VIII. Flokksráð
29. grein
Flokksráð mynda aðalmenn í flokksstjórn, þingflokkur og sveitarstjórnarfulltrúar flokksins, formenn kjördæmisráða, formenn svæðisfélaga og formaður ungliðahreyfingar flokksins. Í forföllum taka varamenn í viðkomandi trúnaðarstörfum sæti.
Auk þess eru 40 flokksráðsfulltrúar og 10 til vara kjörnir sérstaklega á landsfundi. Varamenn í flokksráði taka sæti í forföllum aðalmanna í þeirri röð sem þeir eru kjörnir. Varaformaður flokksstjórnar er jafnframt formaður flokksráðs.
Tillögur sem leggja skal fyrir flokksráð skal skila til flokksstjórnar viku fyrir fund, verði því við komið. Fundir flokksráðs skulu vera opnir öllum félögum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Almennir félagar skulu hafa málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt.
30. grein
Flokksráð hefur æðsta vald í öllum málefnum VG á milli landsfunda.
31. grein
Fundir flokksráðs og flokksstjórnar eru lögmætir þegar meirihluti fulltrúa er viðstaddur. Flokksráðsfundi skal halda eigi sjaldnar en tvisvar á ári. Flokksráð setur sér fundarsköp og skal fundum þess stjórnað samkvæmt þeim.
Óski 25 flokksráðsfulltrúar eftir fundi skal hann boðaður svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan þriggja vikna frá því að skrifleg beiðni þar um er send formanni flokksráðs.
32. grein
Á síðasta fundi flokksráðs fyrir landsfund gerir flokksstjórn grein fyrir afdrifum ályktana síðasta landsfundar.
IX. Flokksstjórn
33. grein
Flokksstjórn stjórnar daglegri starfsemi flokksins í samræmi við lög þessi og samþykktir landsfunda.
Flokksstjórn skal kosin á landsfundi. Formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega og að auki skulu kosnir sjö meðstjórnendur. Þessir ellefu mynda flokksstjórn VG. Auk þess skal kjósa fjóra varamenn.
Einnig skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
Formenn Ungra vinstri grænna, Eldri vinstri grænna, þingflokks og sveitarstjórnarráðs hafa seturétt, málfrelsi og tillögurétt á fundum flokksstjórnar en eigi atkvæðisrétt, nema þá að viðkomandi sé í flokkstjórn.
X. Fjárreiður
34. grein
Ár hvert skal gjaldkeri flokksins í samráði við formann, varaformann og framkvæmdastjóra/-stýru leggja fram á fundi flokksstjórnar fjárhagsáætlun fyrir komandi almanaksár. Flokksstjórn skal staðfesta fjárhagsáætlun flokksins.
Reikningsár flokksins er almanaksárið. Á haustfundi flokksráðs ár hvert skulu stjórn og framkvæmdastjóri/stýra leggja fram ársreikninga fyrir liðið ár. Þeir skulu jafnframt lagðir fram til kynningar og umræðu á landsfundi.
Framkvæmdastjóri/stýra hefur yfirumsjón með styrktarmannakerfi sem flokkurinn rekur á landsvísu. Tekjur frá styrktarmönnum skulu renna í sérstakan sjóð til að standa straum af útgjöldum til kosninga og til eflingar útgáfustarfsemi. Þá skulu samtök ungs fólks í flokknum, sbr. 11. grein, fá árlegan styrk til starfsemi sinnar sem nemur a.m.k. fjórðungi tekna af styrktarmannakerfinu.
Um meðferð fjármuna og reikningsskil skal að öðru leyti farið í samræmi við landslög.
XII. Lagabreytingar
35. grein
Lögum flokksins má aðeins breyta á landsfundi. Skulu jafnan hafðar tvær umræður um lagabreytingar og telst breyting samþykkt ef hún hlýtur 2/3 greiddra atkvæða á landsfundi.
Tillögur til breytinga á lögunum skulu sendar flokksstjórn eigi síðar en 6 vikum fyrir landsfund. Með þær skal farið eftir því sem segir í 23. grein.
XIII. Ýmis ákvæði
36. grein
Ákvörðun um að leggja flokkinn niður skal tekin af tveimur landsfundum í röð og samþykkt af 2/3 hluta landsfundarfulltrúa á báðum. Um ráðstöfun eigna verður farið samkvæmt samþykkt seinni fundar.

