Ávörp

Í afkima liggur berserkur og bíður

Tórbjörn Jacobsen þingmaður og fyrrum menntamálaráðherra í Færeyjum sá til þess að við fengum vænan skammt af færeysku andrúmslofti og baráttuanda á landsfundinn okkar. Vinstri grænir kunnu vel að meta kraftmikla ræðu og framgöngu Tórbjörns og samþykktu einróma ályktun um fyllsta stuðning við baráttu Færeyinga fyrir fullveldi. Fundurinn sendi hugheilar baráttukveðjur til félaga okkar í Þjóðveldisflokknum. Ræða Tórbjörns fer hér á eftir:

Lesa meira
 

Ræða Stellans á landsfundi VG 2003

Stellan Hermansson, framkvæmdastjóri Nordic-Green Left hópsins á Evrópuþinginu, var sérstakur gestur á landsfundi Vinstri grænna. Stellan er frá Svíþjóð og hefur lengi tekið þátt í stjórnmálum á vinstri væng sænskra stjórnmála og hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Vänsterpartiet í Svíþjóð. Frá árinu 1999 hefur hann síðan verið einn af forsvarsmönnum vinstri-grænna afla á Evrópuþinginu og er nú framkvæmdastjóri Nordic-Green Left (NGL) sem eru öflug samtök vinstri- og umhverfisverndarsinnaðra þingmanna á Evrópuþinginu. Hann flutti erindi á landsfundi Vinstri grænna laugardaginn 8. nóvember og fer það hér á eftir í íslenskri þýðingu.

Lesa meira
 

"Fórnum aldrei því fjöreggi sem okkur var trúað fyrir"

Þóra Sigurþórsdóttir ávarpaði gesti á léttum nótum með alvarlegum undirtóni við setningu landsfundar Vinstri grænna 7. nóvember sl. Menn hlógu dátt þegar hún lýsti því hvað læra mætti af íslensku landnámshænunni, en skildu að auðvitað væri sannleikskorn í þeim orðum hennar. Ávarp Þóru fer hér á eftir:

Lesa meira
 

Ávarp Sverris Jakobssonar á landsfundi VG í Hveragerði 7. nóvember 2003

"Ég vil auka frelsi og möguleika þeirra sem nú lifa, en ekki takmarka valfrelsi komandi kynslóða", sagði Sverrir Jakobsson m.a. í ávarpi sínu við setningu landsfundar Vinstri grænna 7. nóvember sl. Þar svaraði hann fyrir sitt leyti spurningunni: Hvers vegna er ég vinstrigrænn? Ávarp hans varð mörgum umhugsunarefni og fylgir það í heild sinni hér á eftir: Lesa meira
 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica