Ályktanir

Réttlæti án landamæra - stjórnmálaályktun

Mikið starf var unnið í öllum málefnahópum á landsfundi VG og ályktað um fjölmörg mál. Sérstakur hópur var að störfum fyrir fundinn og gerði hann hvort tveggja að móta rammann um starfið í málefnahópunum og leggja drög að aðalályktun í anda yfirskriftar landsfundarins og nokkrum ályktunum um sérstök málefni. Þessi drög fengu góðar viðtökur og viðbætur á landsfundinum sem auk þess samþykkti fjölda annarra sem verða smám saman birtar hér á síðunni. Hér á eftir fer aðalályktunin og hinar verða mjög bráðlega einnig birtar hér á síðunni.   Lesa meira
 

Um Palestínu, Írak og Miðnesheiði

Utanríkismál komu mikið við sögu á landsfundi Vinstri grænna, bæði í ræðum og í umræðuhópum. Sérstakur hópur starfaði undir yfirskriftinni "Suðurnes án hers" þar sem rætt var fram og aftur hvað við tekur á Suðurnesjum þegar herinn hverfur þaðan eins og vonir standa til. Samþykktar voru ályktanir um átökin milli Ísraels og Palestínu og um lokun bandarísku NATO-herstöðvarinnar á Miðnesheiði. Lesa meira
 

Ályktað um kjör og aðbúnað launafólks

Mjög mikið var rætt um málefni launafólks á landsfundinum um síðustu helgi og margt sem nauðsynlegt þótti að álykta um. Áform ríkisstjórnarinnar um skerðingu atvinnuleysisbóta voru þar ofarlega á blaði, einnig kynbundið launamisrétti, kjör og aðbúnaður erlends verkafólks og krafan um verulega hækkun lægstu launa. Ályktanir um þessi atriði fara hér á eftir. Lesa meira
 

Ályktað um náttúruvernd og umhverfismál

Málefni umhverfis- og náttúruverndar eru vinstri grænum mikið hjartans mál og var að mörgu að huga í sérstökum hópi um umhverfismál sem starfaði á landsfundinum undir yfirskriftinni "Hver á sér fegra föðurland og hversu lengi?" Auk þess sem fram kemur um þennan málaflokk í aðalályktun fundarins lagði starfshópurinn fram eigin ályktun sem hér fer á eftir. Málefnahópurinn sem starfaði í aðdraganda landsfundar lagði fram drög að sérályktun um verndun Langasjávar sem samþykkt var lítið breytt. Lesa meira
 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica