Ályktanir

Ályktun landsfundar um skerðingu á námi til stúdentsprófs

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýsir andstöðu við fyrirhugaða skerðingu á námi til stúdentsprófs.

Áform menntamálaráðherra um að skerða framhaldsskólanám úr fjórum árum í þrjú til að lækka stúdentsprófsaldur eru vanhugsuð. Hugmyndin er ekki komin frá neinum þeim hópi sem málið varðar helst: nemendum, kennurum, háskólamönnum eða foreldrum. Samtök bæði nemenda og kennara hafa andmælt henni. Rökin fyrir skerðingu hafa reynst léttvæg auk þess sem algjörlega hefur verið einblínt á eina leið, þá sem langerfiðast er að framkvæma án þess að gengisfella námið. Bent hefur verið á aðrar leiðir til að auðvelda þeim nemendum sem það kjósa að ljúka stúdentsprófi á skemmri tíma. Eftir sem áður ætlar ráðuneytið að skera niður einn fjórða af framhaldsskólanámi. Í skýrslum um efnið hefur því mistekist að sýna fram á að ekki verði um að ræða skerðingu á því námi sem stúdentsefnum býðst, sem mun bæði koma niður á fjölbreytni námsins og mikilvægum kjarnagreinum, s.s. íslensku, raungreinum og tungumálum.




 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica