Ályktanir
Ályktun um Náttúruminjasafn Íslands
Landsfundur Vinstrhreyfingarinnar - græns framboðs ályktar að mikilvægt sé að hraða áformum um byggingu Náttúruminjasafns. Samkvæmt safnalögum frá 2001 á Náttúruminjasafn Íslands að vera höfuðsafn á sviði náttúrufræða og eitt af þremur höfuðsöfnum landsins ásamt Listasafni Íslands og Þjóðminjasafninu.

