Ályktanir

Ályktun landsfundar um sveitarstjórnarmál

Sveitarfélögin í landinu gegna þýðingarmiklu hlutverki og hefur mikilvægi þeirra farið vaxandi á undanförnum árum. Verkefni sveitarstjórnanna er m.a. að tryggja mikilvæga samfélagslega þjónustu við íbúa á fjölmörgum sviðum, [s.s. í menntamálum, félagsmálum, umhverfismálum, æskulýðsmálum, forvarnarmálum, orkumálum, menningarmálum, skipulagsmálum o.fl.] Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur mikilvægt að efla og styrkja sveitarfélögin í landinu. Það verður best gert með því að auka lýðræðislegt og efnahagslegt sjálfstæði þeirra og tryggja þeim næga tekjustofna til að sinna þeim fjölbreyttu verkefnum sem þau hafa nú þegar með höndum. Frumskilyrði fyrir því að sveitarfélögin taki að sér og geti staðið undir fleiri verkefnum er að öruggir tekjustofnar fylgi með þeim.

Mikilvægur liður í eflingu sveitarstjórnarstigsins er aukin þátttaka íbúanna í ákvörðunum og í þeim verkefnum sem sveitarfélögunum er falið að sinna. Raunverulegir möguleikar til að leysa þau verkefni vel af hendi verða hins vegar ekki til staðar fyrr en ríkisvaldið ákveður að axla þann hluta ábyrgðarinnar sem fólgin er í tryggum tekjustofnum, þetta á jafnt við um þá málaflokka sem sveitarfélögin hafa þegar tekið yfir og hina sem enn hafa ekki haft vistaskipti. Ennfremur felst efling sveitarstjórnarstigsins í sterkri stöðu sveitarstjórnanna sjálfra, því að sveitarstjórnirnar endurspegli þau ólíku viðhorf sem eru í samfélaginu og að þær hafi burði til að taka sjálfstæðar ákvarðanir á grundvelli pólitískrar stefnumörkunar og lýðræðislegs samráðs við íbúa og aðra hagsmunaaðila. VG er andvígt því að sveitarfélög séu þvinguð til að sameinast og vill að skoðað verði hvort heimila eigi að sameining sveitarfélaga geti gengið til baka ef vilji íbúa stendur til þess. Nýafstaðnar kosningar um sameiningu sveitarfélaga sem ekki byggðu á frumkvæði eða hugmyndum heimamanna sjálfra , tóku því miður ekki mið af því að efla sveitarstjórnarstigið sem slíkt, heldur snerust þær fyrst og fremst um það að fækka sveitarfélögum og stækka þau. Framganga og aðferðir stjórnarvalda í aðdraganda þeirra kosninga voru ámælisverðar. Slíkar aðgerðir einar og sér hafa ekkert með eflingu sveitarstjórnarstigsins að gera og voru því dæmdar til að mistakast.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð mun beita sér af krafti fyrir raunverulegri eflingu sveitarfélaganna þar sem áhersla verður lögð á innihald en ekki umbúðir. Öflug og sterk sveitarfélög, sem hafa burði til að bjóða íbúum sínum góða þjónustu, er ein meginforsenda fyrir blómlegri byggð um allt land.

Sveitarstjórnarkosningarnar næsta vor eru aðrar kosningar til sveitarstjórna síðan Vinstrihreyfingin - grænt framboð var stofnuð. Flokkurinn stefnir að því að bjóða sem víðast fram og í öllum stærstu sveitarfélögunum, ýmist eigin lista eða í samstarfi við aðra, allt eftir aðstæðum á hverjum stað. Enda þótt áherslur í málefnum sveitarfélaganna kunni að vera mismunandi frá einum stað til annars, mun grundvallarstefna VG endurspeglast í öllum framboðum á vegum flokksins. Megináhersla verður lögð á:

  • öflugt velferðarkerfi, sem byggir á hugmyndum félagshyggju, jafnrétti til þjónustu óháð samfélagsstöðu og búsetu, en sérhyggju er hafnað
  • metnaðarfullt skólastarf sem tryggir jafnrétti til náms þar sem grunnmenntun í leik- og grunnskólum er nemendum að kostnaðarlausu enda verði tekjustofnar tryggðir
  • að sveitarfélög móti sér fjölskyldustefnu, styttingu vinnuviku, og öll börn eigi kost á þátttöku í íþrótta og æskulýðsstarfi
  • vistvænt atvinnulíf sem byggir á fjölbreytni og tækifærum fyrir alla
    sjálfbæra orkustefnu, sem hvetur til varúðar við nýtingu orkulinda og hafnar frekari virkjunum í þágu mengandi stóriðju en býr í haginn fyrir aukinni notkun vistvænna orkugjafa, dregur úr orkusóun og losun gróðurhúsalofttegunda
  • virðingu fyrir umhverfi og náttúru í anda markmiða Staðardagskrár 21
  • jafnrétti óháð kyni, þjóðfélagsstöðu eða uppruna þar sem tryggt er að allir njóti virðingar og eigi möguleika til virkrar þátttöku í samfélaginu
  • kvenfrelsi þar sem aðkoma og áhrif kvenna verði tryggð til jafns við karla og gripið verður til aðgerða eins og afnáms launaleyndar til að útrýma kynbundnum launamun
  • gott aðgengi fyrir alla að opinberum stöðum
  • vel skipulagðar, öruggar og ódýrar almenningssamgöngur og stóraukinn hlutur gangandi og hjólandi vegfarenda
  • sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga verði tryggður
  • virkara lýðræði og samráð við íbúa þar sem lögð er áhersla á að taka tillit til radda allra samfélagshópa og svæða innan sveitarfélaga, sérstaklega varðandi stærri mál eða málefni einstakra svæða
  • að aukinn réttur íbúa til þátttöku í ákvarðanatöku um málefni sem þá varðar verði tryggður með löggjöf
  • auðugt menningarlíf er taki mið af menningarlegri fjölbreytni og virðingu fyrir svæðisbundnum menningararfi
  • að tekið sé mið af forsendum sjálfbærrar þróunar við stefnumótun og starfsemi sveitarfélaga



 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica