Ályktun um vernd kóralsvæða og sjálfbæra nýtingu lífvera á hafsbotni
Stöðugt fjölgar vísbendingum um tjón sem orðið hafi á lífríki hafsbotnsins við hömlulitla notkun botnveiðarfæra. Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg um sjálfbæra þróun sumarið 2002 voru málefni hafsbotnsins á dagskrá og ályktaði ráðstefnan um gildi búsvæða hans, þar á meðal kóralsamfélaga, fyrir líffræðilegan fjölbreytileika lífríkis sjávar. Núna reyna Sameinuðu þjóðirnar að ná samkomulagi um tímabundið bann við botnvörpuveiðum á alþjóðlegu hafsvæði. Slík aðgerð myndi gefa tóm til að rannsaka og kortleggja líffræðilegan fjölbreytileika sjávarbotnsins á djúpsævi. Landsfundur Vinstri-grænna hvetur stjórnvöld til að gefa gaum að þessu starfi Sameinuðu þjóðanna og styðja það.
Þá vill landsfundurinn vekja athygli á því að þörf er kerfisbundinna rannsókna á þessu sviði hér við land og brýnt er að efla þær. Á meðan frekari þekkingar er aflað er nauðsynlegt að grípa til varúðarráðstafana og friða, a.m.k. fyrir botnlægum og hreyfanlegum veiðarfærum, þau svæði á hafsbotni sem brýnt er talið að vernda, þ.m.t. kóralsvæði. Landsfundur Vinstri grænna leggur til að gerð verði áætlun um frekari rannsóknir á áhrifum veiða og veiðarfæra á vistkerfi hafsbotnsins við landið og um aðgerðir til að draga úr skaðlegum áhrifum af þeirra völdum. Slíkar aðgerðir ættu að draga úr hættunni á rányrkju um leið og þær myndu bæta til muna uppvaxtarskilyrði nytjastofna og auka líkurnar á því að lífríkið sé nytjað með sjálfbærum hætti

