Ályktun um kynbundinn launamun og baráttukveðjur landsfundar
Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs, haldinn í Reykjavík 21.-23. október 2005, sendir konum baráttukveðjur í tilefni 24. október. Jafnframt hvetja Vinstri græn konur til að leggja niður störf klukkan 14:08, til að sýna með táknrænum hætti mun á atvinnutekjum karla og kvenna, og sömuleiðis til þátttöku í viðburðum dagsins. Þrátt fyrir að þrjátíu ár séu liðin frá því að íslenskar konur vöktu heimsathygli fyrir baráttuhug og samstöðu, er enn langt í land. Stórátak þarf til að rétta hlut kvenna hvort sem er á vinnumarkaðinum, í stjórnmálum eða inni á heimilunum.
Vinstri-græn hafa lagt fram fjölmörg mál á síðustu árum til að þoka samfélaginu í átt til jafnréttis. Má þar nefna frumvarp um fórnarlamba- og vitnavernd til að vinna gegn mansali, frumvarp um brottvísun og heimsóknarbann á ofbeldismenn til að vinna gegn heimilisofbeldi, frumvarp um að kaup á vændi verði refsiverð, frumvarp um undanþágu á skilyrðingu dvalarleyfis við maka þegar ofbeldi er undirrót skilnaðar, tillögu um bætt starfsumhverfi fyrir kvennahreyfinguna á Íslandi og frumvarp sem veitti Jafnréttisstofu heimild til að leita í gögnum fyrirtækja og beita refsingum ef kynjunum er mismunað í launum.
Ein háværasta krafan á baráttufundinum 24. október verður um að útrýma kynbundnum launamun. Undir þessa kröfu tekur landsfundur Vinstri ? grænna og leggur jafnframt áherslu á nauðsyn þess að endurmeta og hækka laun þeirra sem gegna umönnunarstörfum, en það eru nánast alfarið konur. Krafan er endurmat á gildi umönnunarstarfa og laun í samræmi við mikilvægi þeirra. Landsfundurinn minnir á að í 65. gr. stjórnarskrárinnar er kveðið á um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis og að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna. Engu að síður nemur kynbundinn launamunur 14 ? 18%. Sú staðreynd misbýður réttlætiskennd fólks. Það er ekki hægt að sætta sig við að heildaratvinnutekjur kvenna séu aðeins 64,5% af atvinnutekjum karla. Það er ekki hægt að sætta sig við að 30% einstæðra mæðra hafi framfærslu af tekjum undir fátæktarmörkum. Það er ekki hægt að sætta sig við að störf karla séu meira metin en störf kvenna. Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa hundsað þessar staðreyndir og ekkert aðhafst þrátt fyrir fjálglega orðaðar jafnréttisáætlanir og yfirlýsingar.
Landsfundur Vinstri-grænna krefst beinskeyttra aðgerða gegn kynbundnum launamun, kynbundnu ofbeldi og allri mismunum kynjanna og fordæmir aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar.
Baráttunni má aldrei linna fyrr en fullu jafnrétti er náð.
Baráttukveðjur á kvennafrídegi 2005
Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, haldinn í Reykjavík 21.-23. október 2005, sendir konum baráttukveðjur í tilefni 24. október.
Þrátt fyrir að þrjátíu ár séu liðin frá því að íslenskar konur vöktu heimsathygli fyrir baráttuhug og samstöðu er enn langt í land. Stórátak þarf til að rétta hlut kvenna hvort sem er á vinnumarkaðinum, í stjórnmálum eða inni á heimilinum. Sérstaklega þarf að endurmeta og hækka laun þeirra sem gegna umönnunar- og uppaldisstörfum, en það eru nánast alfarið konur.
Landsfundur Vinstri grænna krefst beinskeyttra aðgerða gegn kynbundnum launamun, kynbundnu ofbeldi og allri mismunun kynjanna. Baráttunni má aldrei linna fyrr en fullu kvenfrelsi er náð.

