Ályktanir

Ályktun um fyrirhugaða einkavæðingu Landsvirkjunar

Raforkuframleiðsla fyrir almennan markað á áfram að vera samfélagslegt verkefni. Vatnsaflið og jarðhitinn eru auðlindir sem eiga áfram að vera í sameign þjóðarinnar og nýting þeirra á höndum sveitarfélaga og ríkisins. Aðeins þannig er hægt að tryggja jöfnuð í verðlagningu á þessari grunnþjónustu í nútíma samfélagi. Aðeins þannig er hægt að tryggja að nýting auðlindanna verði sjálfbær og byggist á virðingu fyrir náttúrunni.   Lesa meira
 

Ályktun um rannsókn á orsökum og áhrifum náttúrufarsbreytinga

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hvetur til þess að heildstæð rannsókn verði gerð á orsökum og áhrifum náttúrufarsbreytingar í vistkerfi lands og sjávar. Lesa meira
 

Ályktun landsfundar um umhverfisvænar samgöngur

Mikilvægt er að almenningur hafi val um vistvænar og heilbrigðar samgöngur. Greiðar og öruggar almenningssamgöngur, hjólreiðarbrautir, og notkun vistvænna orkugjafa í samgögnum munu draga úr hávaða- og loftmengun og bæta lýðheilsu. Lesa meira
 

Ályktunartillaga um málefni tónlistarskólanna

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn á Grand hótel í Reykjavík 21.-23. október 2005 felur stjórn flokksins að skipa nefnd til að gera tillögu um stefnu flokksins í málefnum tónlistarskóla. Lesa meira
 

Ályktun landsfundar um trúfrelsi og rétt til trúleysis

Landsfundur VG haldinn í Reykjavík 21.-23. október 2005 ályktar að fullt trúfrelsi og jöfn staða trúar- og lífsskoðunarfélaga sé grundvallaratriði. Öll löggjöf og stjórnsýsla þarf að miðast við það. Eðlilegt er að taka mið af því að kristin trú er samofin menningu og sögu þjóðarinnar sem einnig enduspeglast í íslenskri löggjöf. Lesa meira
 

Ályktun um áform Landsvirkjunar um samkeppni í grunnskólum

Landsfundur Vinstrhreyfingarinnar - græns framboðs mótmælir harðlega þeim áformum Landsvirkjunar að efna til samkeppni í grunnskólum landsins um orkumál og Kárahnjúkavirkjun. Lesa meira
 

Ályktun landsfundar um geðheilbrigðismál

Góð geðheilsa er grundvöllur góðs heilsufars og undirstöðuatriði varðandi mannauð, félagslega og efnahagslega innistæðu þjóða. Þörf er á heildrænni stefnumótun í geðheilbrigðismálum og aðgerðum sem auka velferð og draga úr geðrænum vanda, með áherslu á að notendur þjónustunnar séu ábyrgir þátttakendur í meðferð og ákvarðanatöku sem þá varðar. Auka þarf aðkomu notenda, ábyrgð þeirra, val og völd. Heilbrigðisþjónustan byggist á réttindum notenda og að þeir séu með í ákvarðanatöku. Setja þarf gæðastaðla á alla þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Lesa meira
 

Ályktun um aðild Íslands að árásinni á Afganistan

Landsfundurinn skorar á ríkisstjórn Íslands að leggja fram þau sönnunargögn um meinta ábyrgð aðila í Afganistan á hryðjuverkunum 11. september 2001, sem hún lagði til grundvallar ákvörðun sinni að styðja loftárásir Bandaríkjanna á Afganistan og hernám landsins. Fundurinn hvetur þingflokk VG til að beita sér í þessu máli. Lesa meira
 

Ályktun gegn samræmdum stúdentsprófum

Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggst gegn samræmdum stúdentsprófum í framhaldsskólum. Eins og orðalagið gefur til kynna gera samræmd próf námið í framhaldsskólunum einsleitara auk þess sem aðeins er prófað í fáum greinum sem fá þá aukið vægi á kostnað annarra. Lesa meira
 

Ályktun landsfundar um skerðingu á námi til stúdentsprófs

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýsir andstöðu við fyrirhugaða skerðingu á námi til stúdentsprófs. Lesa meira
 

Ályktun um Náttúruminjasafn Íslands

Landsfundur Vinstrhreyfingarinnar - græns framboðs ályktar að mikilvægt sé að hraða áformum um byggingu Náttúruminjasafns. Samkvæmt safnalögum frá 2001 á Náttúruminjasafn Íslands að vera höfuðsafn á sviði náttúrufræða og eitt af þremur höfuðsöfnum landsins ásamt Listasafni Íslands og Þjóðminjasafninu. Lesa meira
 

Ályktun landsfundar um sveitarstjórnarmál

Sveitarfélögin í landinu gegna þýðingarmiklu hlutverki og hefur mikilvægi þeirra farið vaxandi á undanförnum árum. Verkefni sveitarstjórnanna er m.a. að tryggja mikilvæga samfélagslega þjónustu við íbúa á fjölmörgum sviðum, [s.s. í menntamálum, félagsmálum, umhverfismálum, æskulýðsmálum, forvarnarmálum, orkumálum, menningarmálum, skipulagsmálum o.fl.] Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur mikilvægt að efla og styrkja sveitarfélögin í landinu. Lesa meira
 

Stefnuyfirlýsing samþykkt á landsfundi 2005

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill beita sér fyrir róttækum þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra, sem vilja útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í samfélaginu. Lesa meira
 

Ályktun landsfundar um heilbrigðismál

Góð lýðheilsa byggir á góðri heilbrigðisþjónustu, jöfnuði í samfélaginu og góðri undirstöðu­menntun þjóðarinnar. Alla þessa grunnþætti ber að styrkja og efla. Lesa meira
 

Ályktun um vernd kóralsvæða og sjálfbæra nýtingu lífvera á hafsbotni

Stöðugt fjölgar vísbendingum um tjón sem orðið hafi á lífríki hafsbotnsins við hömlulitla notkun botnveiðarfæra. Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg um sjálfbæra þróun sumarið 2002 voru málefni hafsbotnsins á dagskrá og ályktaði ráðstefnan um gildi búsvæða hans, þar á meðal kóralsamfélaga, fyrir líffræðilegan fjölbreytileika lífríkis sjávar. Lesa meira
 

Ályktun landsfundar um náttúruvernd og friðlýsingu

Landsfundur Vinstri grænna haldinn 21. - 23. október 2005 minnir á þá staðreynd að ósnortið land, víðerni og villt náttúra er auðlind sem virða ber og varðveita á eigin forsendum. Sérstaða Íslands í samfélagi þjóðanna felst fyrst og fremst í einstæðri náttúru landsins, fjölbreytileika landslags, víðernum og víðsýni og óvíða í heiminum sjást landmótunaröfl náttúrunnar jafn greinilega og í íslenskri víðáttu. Þessi sérstaða er stærsti þátturinn í þeirri ímynd sem við flest viljum að landið hafi. Til þess að vernda þessa auðlind og treysta ímynd Íslands sem óspillts lands með óspillta náttúru þarf að takmarka alla mannvirkjagerð og röskun á verðmætustu svæðum, friðlýsa þau og tryggja að hægt sé að njóta þeirra án þess að spilla þeim. Landsfundurinn leggur áherslu á friðun eftirtalinna svæða:   Lesa meira
 

Ályktun um kynbundinn launamun og baráttukveðjur landsfundar

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs, haldinn í Reykjavík 21.-23. október 2005, sendir konum baráttukveðjur í tilefni 24. október. Jafnframt hvetja Vinstri græn konur til að leggja niður störf klukkan 14:08, til að sýna með táknrænum hætti mun á atvinnutekjum karla og kvenna, og sömuleiðis til þátttöku í viðburðum dagsins. Þrátt fyrir að þrjátíu ár séu liðin frá því að íslenskar konur vöktu heimsathygli fyrir baráttuhug og samstöðu, er enn langt í land. Stórátak þarf til að rétta hlut kvenna hvort sem er á vinnumarkaðinum, í stjórnmálum eða inni á heimilunum. Lesa meira
 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica