Allt annað líf

Allt annað líf

Polski Русский Espanol THAI English tiếng Việt Íslenska

Félagslegt réttlæti

Í öflugu velferðarsamfélagi er grunnþjónusta gjaldfrjáls. Afnemum gjaldtöku í menntakerfinu, frá leikskólum upp í framhaldsskóla og leggjum niður komugjöld í heilbrigðiskerfinu. Heildstætt heilbrigðis- og menntakerfi, ásamt öflugum almannatryggingum, eru undirstaða jafnréttis og félagslegs réttlætis í sönnu velferðarsamfélagi. Réttlátt
og skilvirkt skattkerfi verði traustur burðarás samneyslunnar og virki um leið sem tæki til tekjujöfnunar og dragi úr misskiptingu. Tryggjum kjör aldraðra og öryrkja. Sköpum samfélag þar sem allir geta lifað með reisn alla ævi.

Græn framtíð

Hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar á að vera undirstaða allrar stefnumótunar, ekki síst í atvinnumálum. Gefum náttúrunni grið og forgangsröðum í þágu náttúruverndar. Stöðvum áform um frekari stóriðju og veitum efnahags- og atvinnulífi svigrúm til að jafna sig eftir þenslu undanfarinna ára. Stuðlum að fjölbreyttri atvinnuuppbyggingu í sátt við umhverfi og náttúru og leggjum stóraukna áherslu á þjóðgarða og friðlýst svæði, menningarlíf og minjavernd. Öxlum ábyrgð í loftslagsmálum með því að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Aukum veg umhverfis- og náttúruverndar í stjórnkerfinu með því að stórefla umhverfisráðuneytið.

forsiduboxKvenfrelsi

Jöfn staða kynjanna er forsenda fyrir farsælu samfélagi. Það er forgangsmál að afnema kynbundinn launamun og bæta kjör láglaunastétta þar sem konur eru fjölmennar. Styrkjum Jafnréttisstofu og umbunum fyrirtækjum sem ná árangri í jafnréttismálum. Brjótum upp kynjakerfið og leiðréttum kynbundið misrétti. Tryggjum með löggjöf að kynfrelsi kvenna verði virt, kaupendur kynlífsþjónustu sæti ábyrgð og þeir sem beita heimilisofbeldi verði fjarlægðir af heimilum í stað fórnarlambanna. Virkjum karla í kvenfrelsisbaráttunni, því kvenfrelsi er sameiginlegt verkefni beggja kynja.

Menntun fyrir alla

Jafn aðgangur að menntun er eitt öflugasta tækið til að jafna kjör og vinna gegn mismunun og stéttaskiptingu. Leggjum áherslu á að frumkvæði einstaklinganna blómstri í skólum landsins og að fjölbreytni og jöfnuður haldist í hendur í öflugu opinberu skólakerfi. Lækkum strax bókakostnað framhaldsskólanema og gerum átak í að bæta aðstöðu og aðgengi nemenda með sérþarfir að menntun á öllum skólastigum. Afnemum samræmd próf í núverandi mynd og eflum fjölbreytni í skólastarfi.

Öflugar byggðir

Blómlegar byggðir eiga ríkan þátt í að þjóðinni vegni vel. Frumkvæði einstaklinga og sköpunarkraftur þarf að njóta sín. Sköpum hagstæðari rekstrarskilyrði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Byggjum upp hátækni- og þekkingargreinar með því að styrkja rannsóknir og nám á háskólastigi um land allt og eflum samkeppnissjóði. Eflum sveitarfélögin með auknum tekjum á undan nýjum verkefnum. Bætum samgöngur, komum á strandsiglingum og tryggjum nútíma fjarskipti í dreifðum byggðum. Þannig leggjum við grunn að nýjum tímum í atvinnu- og byggðaþróun.
mosi

Efnahagslegur stöðugleiki

Innleiðum ábyrga efnahagsstjórn að nýju og komum á jafnvægi í íslensku hagkerfi. Slá þarf á þensluna með því að stöðva frekari stóriðjuframkvæmdir og erlenda skuldasöfnun, ná niður viðskiptahallanum, lækka vexti, draga úr verðbólgu og jafna gengissveiflur. Markmiðið er að bæta kjör almennings og skapa á nýjan leik hagstæð skilyrði til nýsköpunar og þróunar í atvinnulífi. Bætt afkoma sveitarfélaganna og áframhaldandi sterk staða ríkissjóðs verður nýtt til að styrkja innviði samfélagsins og bæta þróunarskilyrði mannlífs, atvinnulífs og byggðar um allt land.

Lýðræði, þátttaka og menning

Til að skapa samfélag þar sem lýðræði er í öndvegi þarf að tryggja aðgengi allra að samfélaginu. Aðgengi er forsenda þátttöku og þátttaka tryggir lýðræði. Aukum möguleika barna, kvenna, karla, innflytjenda, aldraðra og fatlaðra til að hafa áhrif og láta til sín taka. Gerum öllum kleift að hafa áhrif á ákvarðanir er varða umhverfismál. Stöndum vörð um kraftmiklar menningarstofnanir þjóðarinnar og örvum samskipti þeirra og samstarf við almenning. Færum þjóðinni aftur Ríkisútvarpið og hlúum að gróskumiklu og litríku menningarlífi.

Ný utanríkisstefna

Nauðsynlegt er að marka nýja utanríkisstefnu sem byggist á sjálfstæðu mati, þekkingu og skilningi á ástandi alþjóðamála, lýðræðislegri nálgun, friðsamlegri alþjóðasamvinnu og félagslegri alþjóðahyggju. Höfnum áframhaldandi þjónkun við hernaðarhyggju eins og þá sem birtist í stuðningi stjórnarflokkanna við stríðið í Írak. Leggjum okkar af mörkum svo horfið verði frá ósjálfbærum mengandi framleiðsluháttum og berjumst fyrir því að bæta kjör hinna fátækustu í heiminum. Beitum okkur fyrir því að settar verði alþjóðlegar reglur um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, sem aukið geta félagslegar framfarir og tryggt réttindi vinnandi fólks.

Tækifærið er í vor




 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica