Vegur til framtíðar
VELFERÐ
–vegur til framtíðar
Velferð barna, aldraðra og öryrkja á að vera í forgangi við ráðstöfun fjármuna. Sveitarfélög og ríki þurfa að stórefla samstarf sitt, m.a. þannig að öll opinber þjónusta verði aðgengileg á einum stað.
Grunn- og leikskólar eru grunneiningar hvers samfélags. Vinstri græn stefna að því að skóladagur leik- og grunnskóla verði gjaldfrjáls.
Við munum þróa þjónustu við einstaka hópa, svo sem fatlaða og aldraða, þannig að þeir notendur sem vilja geti stýrt þjónustunni sjálfir. Jafnframt er nauðsynlegt að standa vörð um fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna sem öryggisnet samfélagsins. Sveitarfélögin eiga í samvinnu við ríki og félagasamtök að stuðla að félagslegum leigu- og kaupleigumarkaði.
LÝÐRÆÐI
–vegur til framtíðar
Við viljum koma í veg fyrir spillingu og hagsmunapólitík með opnum sveitarstjórnarfundum, öflugu samráði og aðgengi að öllum gögnum á netinu.
Hverfisráð í þéttbýli og íbúaráð í dreifbýli eiga að fá aukið vald til að taka ákvarðanir. Bættar samgöngur og sameining sveitarfélaga að ósk íbúa á hverjum stað skapa stærri einingar þar sem nauðsynlegt er að efla lýðræðisleg vinnubrögð. Með sama hætti krefst flutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga þess að tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga verði endurskoðuð og kostir rafrænnar stjórnsýslu séu nýttir.
Þjónustan er samvinnuverkefni okkar allra – fyrir okkur öll.
ATVINNA
–vegur til framtíðar
Sveitarfélögin eru stórir atvinnurekendur og verða að axla ábyrgð á tímum atvinnuleysis. Við viljum byggja á frumkvæði íbúa og skapa jarðveg fyrir traust og heilbrigt atvinnulíf. Jafnframt þurfa sveitarfélögin að leggja sitt af mörkum, t.d. með auknum viðhaldsframkvæmdum og ýta undir eflingu ferðaþjónustu.
Umhverfi fyrir sprotafyrirtæki og smærri atvinnustarfsemi hefur stórbatnað fyrir tilstuðlan ríkisstjórnarinnar. Meta þarf félagsleg og hagræn áhrif og gæta að kynja- og umhverfissjónarmiðum við allar stjórnvaldsákvarðanir hvað varðar atvinnulíf og tryggja fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í stað einsleitra skammtímalausna.
Atvinnumál og velferð eru samofin enda velferðarkerfið stórt vinnusvæði og grundvöllur lífvænlegs samfélags.
UMHVERFI
–vegur til framtíðar
Nú er einstakt tækifæri til að byggja upp sjálfbært samfélag. Þar er áhersla á stöðugan og samfelldan vöxt með jafnvægi samfélags, efnahags og umhverfis – án þess að gengið sé á möguleika komandi kynslóða.
Við viljum gera umhverfisvænan lífstíl að eftirsóknarverðum valkosti og efla menntun til sjálfbærni. Stíga þarf róttæk skref í flokkun sorps og umbuna einstaklingum og fyrirtækjum sem velja umhverfisvænar lausnir.
Sveitarfélögin gegna mikilvægu hlutverki við að vernda strandlínu, reka öflugar almenningssamgöngur, endurheimta votlendissvæði, rækta græn svæði og vernda vatnsból.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð undirbýr nú sveitastjórnarkosningar þann 29. maí 2010 af miklu kappi. Forvöl voru haldin á fjórum stöðum, á Akranesi. á Akureyri, í Kópavogi og í Reykjavík. Auk þess hafa félagar í VG tekið þátt í forvölum sameiginlegra lista á Seltjarnarnesi og á Ísafirði. Hér til hliðar má nálgast upplýsingar um framboð, úrslit forvala og framboðslista þegar þeir eru tilbúnir.

