ESB umræða

ESB - umræða

Fundaröð haustið 2009

VG - UMRÆÐUFUNDIR UM ESB


Haustið 2009 ákvað grasrótarhópur innan VG að efna til fundaraðar um málefni er varða Ísland og ESB og þá einkum út frá sjónarhóli Vinstri grænna. Fundirnir hafa verið haldnir í Kragakaffi, Hamraborg 1-3 í Kópavogi. Samhliða því var ákveðið að safna efni í tengslum við fundina á einn stað á vef VG. Þannig mætti nýta efnið fyrir þá félaga okkar víða um land sem ekki áttu þess kost að sækja fundina.

CIMG5387

Fyrsti fundurinn í fundaröðinni var haldinn laugardaginn 3. október og bar yfirskriftina:

BARÁTTAN FYRIR ALMANNAÞJÓNUSTUNNI

 

Páll H. Hannesson félagsfræðingur og alþjóðafulltrúi BSRB fjallaði um ,,Markað eða samfélag? - Baráttuna fyrir almannaþjónustunni". Páll tók fyrir almannaþjónustuna og ESB, m.a. tilskipanir eins og þjónustutilskipunina og tilskipun um veitingu heilbrigðisþjónustu yfir landamæri. Fyrirlestur Páls er væntanlegur á síðuna og mun þá birtast hér.

Annar fundurinn í fundaröðinni var haldinn þriðjudaginn 13. október og bar yfirskriftina:

ESB OG SJÁVARÚTVEGUR - VINSTRI GRÆNAR ÁHERSLUR

Frummælandi var Ragnar Arnalds formaður Heimssýnar og fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Ragnar dreifði á fundinum nokkrum árhersluatriðum og er þau að finna í tengli hér að neðan.

Minnispunktar um ESB og Sjávarútveg frá Ragnari Arnalds.

Þriðji fundurinn í fundaröðinni var haldinn þriðjudaginn 20. október og bar yfirskriftina:

ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR OG ESB - HAGSMUNIR BÆNDA OG NEYTENDA 


Frummælandi var dr. Ólafur Dýrmundsson ráðunautur í lífrænum búskap og landnýtingu hjá Bændasamtökum Íslands. Ólafur jafnframt formaður dýraverndunarsambands Íslands og fulltrúi Íslands í Evrópusamtökum lífrænna bændasamtaka (IFOAM) og í stjórn Búfjárræktarsambands Evrópu (EAAP).


Minnispunktar um Landbúnað og ESB frá Ólafi Dýrmundssyni.

Ítarefni frá Ólafi Dýrmundssyni um skilyrði fyrir lífrænan landbúnað.

Fjórði fundurinn í fundaröðinni var haldinn þriðjudaginn 27. október og bar yfirskriftina:

STAÐA ÍSLANDS UTAN EVRÓPUSAMBANDSINS

Frummælandi var Hjörleifur Guttormsson fv. alþingismaður og ráðherra.

Glærur um stöðu Íslands utan ESB frá Hjörleifi Guttormssyni.

Hjörleifur vísaði einnig á sérlega áhugaverðan tengil af vef The Independent í máli sínu (á ensku en með fróðlegu korti um hlýnun jarðar):





 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica