Morgunpósturinn
Grenndarstefna
Hið nokkuð svo óljósa fyrirbæri hnattvæðing hefur verið gagnrýnt mjög og jafnvel vakið upp miklar mótmælaaðgerðir víða um heim og alþjóðlega andófshreyfingu á undanförnum áratug. Hverju eru menn að mótmæla? Hvað er svona neikvætt við hnattvæðinguna?
Andstæðingar hnattvæðingar þrengja hugtakið gjarnan með því að tala um kapítalíska hnattvæðingu eða hnattvæðingu á forsendum nýfrjálshyggjunnar eða stórfyrirtækjanna (corporate globalization). Ýmsar viðskiptahömlur hafa verið afnumdar, einkum gegnum samningaferli á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, þannig að stórfyrirtæki fá frjálsari hendur til að stunda viðskipti hvarvetna og flytja fjármagn og starfsemi hvert á land sem þeim hentar best. Efnahagskerfi heimsins er miðað við hagsmuni stórfyrirtækjanna og hámarksgróði þeirra verður markmiðið. Þetta veldur oft því að staðbundinn framleiðsla, bæði í landbúnaði og iðnaði, verður undir, afkoma einstakra byggðarlaga verður háð ákvörðunum sem jafnvel eru teknar á skrifstofum stórfyrirtækja hinum megin á hnettinum, framleiðsla, neysla og ýmsir menningarþættir verða einsleitari. Þess vegna hafa t.d. smábændur og frumbyggjar í þróunarlöndunum verið áberandi í andófshreyfingunni ásamt menntamönnum í þróuðu löndunum auk ýmissa annarra hópa.
Þessi hreyfing er ekki bara á móti. Æ meiri umræður hafa orðið á undanförnum árum um hvaða valkosti við eigum við kapítalíska hnattvæðingu og nýfrjálshyggju. Meðal annars hefur verið rætt um svokallaða lókalíseringu (localization). Mér er ekki alveg ljóst hvaða íslenskt orð hentar best fyrir þetta, kannski ?grenndarvæðing? eða ?grenndarstefna?. Í örstuttu máli má segja að inntak þessarar stefnu sé að hvert byggðarlag eða hver minnsta eining samfélagsins hafi sem mest um sín mál að segja. Það fer svo eftir atvikum hversu víðtækar þessar einingar eru, þær geta verið einstaklingurinn, fjölskyldan, hverfi, sveitarfélag, mismunandi stór byggðarlög, héruð, einstök ríki, ríkjahópur eða heimssvæði. Hugsun í þessa átt er víða að finna, svo sem í því sem kallast nálægðarregla og felst í að sérhver ákvörðun skuli tekin eins nærri þeim sem málið varðar og unnt er. En grenndarstefnan er bæði víðtækari og róttækari, einkum vegna þess að hún nær líka til framleiðslunnar. Þannig yrði leitast við að varan yrði framleidd sem næst neytandanum ? eða neytt sem næst framleiðandanum. Hver samfélagseining leitist þannig við að vera sem mest sjálfri sér næg og framleiði fyrir sig það sem hægt er og hagkvæmt. Og þegar við segjum hagkvæmt, þá skoðum við það í víðu samhengi þar sem bæði umhverfisleg og samfélagsleg sjónarmið eru tekin inn í dæmið. Við getum kannski fengið ódýrara lambakjöt frá Nýja Sjálandi ef við skoðum dæmið þröngt. Útkoman breytist hins vegar ef við tökum inn í dæmið umhverfislegan kostnað, svo sem vegna þeirrar mengunar sem flutningur yfir hálfan hnöttinn kostar, eða samfélagslegan kostnað vegna þeirra starfa sem tapast hér í landbúnaði og matvælaiðnaði, sem og vegna og byggðaröskunar og annarra samfélagslegra áhrifa.
Grenndarstefnan tengist líka hugmyndum um fæðuöryggi (food security eða food sovereignty) þar sem mikið er lagt upp úr að lönd eða landshlutar séu sem mest sjálfbjarga varðandi grundvallarfæðuöflun. Sú stefna beinist m.a. gegn viðleitni yfirþjóðlegra landbúnaðarfyrirtækja til að sölsa undir sig stór landsvæði í þróunarlöndunum, oft með geigvænlegum afleiðingum fyrir smábændur.
Grenndarvæðingin mundi krefjast allt annarskonar viðskiptareglna og samninga en Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) stendur fyrir og reyndar hefur verið stungið upp á að sú stofnun víki fyrir Alþjóðlegu grenndarvæðingarstofnuninni (World Localization Organization ? WLO) og GATT-samningurinn (Almennt samkomulag um um tolla og viðskipti) víki fyrir GAST-samningi sem stendur fyrir Almennt samkomulag um sjálfbær viðskipti (General Agreement on Sustainable Trade).
Með grenndarvæðingu er ekki átt við að hvert samfélag eigi að einangra sig. Þvert á móti leggja talsmenn hennar áherslu á að tengja hana alþjóðahyggju. Heimsviðskipti halda áfram, en þau mundu minnka talsvert þar sem fyrst og fremst yrðu fluttar inn vörur sem ekki er hægt eða hagkvæmt að framleiða heima fyrir. Hins vegar er lögð mikil áhersla á að menn skiptist á upplýsingum og kunnáttu og vinni þannig saman að aukinni hagsæld. Svona hagkerfi mundi að sjálfsögðu ekki byggjast á samkeppni nema þá að takmörkuðu leyti og því mundi einstaklingum eða fyrirtækjum ekki vera það sama hagsmunamál og nú að halda upplýsingum og kunnáttu fyrir sig.
Ekki eru allir, sem andæft hafa hnattvæðingunni, jafn hrifnir af þessum hugmyndum. Þannig hefur t.d. breski blaðamaðurinn George Monbiot gagnrýnt þær bæði í bók sinni The Age of Consent og blaðagreinum (t.d. ?I Was Wrong About Trade?, Guardian 24.6.03, sjá www.monbiot.com), en hann óttast að slíkar takmarkanir á heimsviðskiptum gætu dregið úr velmegun og framförum og þær mundu festa hin vanþróaðri lönd í áframhaldandi vanþróun.
Sjá nánar:
Colin Hines, Localization. A Global Manifesto, Earthscan 2000.
Colin Hines, ?Understanding and Explaining Localization?, www.sovereignty.org.uk/features/footnmouth/local11.html.
www.peoplesfoodsovereignty.org
www.foodfirst.org
www.foodsecurity.org
Einar Ólafsson

