Fréttir

3.2.2012 : Fjölþætt áætlun um efnahagslegt öryggi

Forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndum skrifuðu grein fyrir skemmstu þar sem þeir listuðu hugmyndir sínar um bættar reglur um fjármálamarkaði sem koma eiga í veg fyrir að skattborgarar borgi reikninginn þegar bjarga á bönkunum.  Hægt er að lesa alla greinina með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

2.2.2012 : Þrjú ár í ríkisstjórn

„Verkefni okkar í þágu almennings og framtíðarheilla landsmanna virtust í fyrstu nær óyfirstíganleg og sá möguleiki var raunverulega fyrir hendi að þjóðin yrði gjaldþrota ef ekki yrði hið bráðasta og af einurð tekist á við vandann,“ segir í grein eftir Steingrím J. Sigfússon og Jóhönnu Sigurðardóttur sem birt var 1. febrúar en þrjú ár voru þá liðin frá því minnihlutastjórn VG og Samfylkingar tók við. Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að ýta á lesa meira. 
Lesa meira
 
fundur-a-sudurnesjum

30.1.2012 : Sjávarútvegsmál í forgrunni

„Fyrst var farið yfir stöðuna eins og hún er og reynt að gera grein fyrir þeim mikla árangri sem hefur náðst,“ segir Þráinn Bertelsson um fundi þingmanna með íbúum á Suðurnesjum síðastliðinn laugardag og bætir við að næst hafi verið rætt um verkefnin framundan. „Þetta eru sjávarpláss og þá vakti mesta eftirvæntingu og umræðu nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp sem er í smíðum og mun koma fram ekki seinna en um mánaðamótin febrúar – mars, til að hægt sé að afgreiða það og ný fiskveiðistjórnunarlög geti tekið gildi 1. September.“ Nánari upplýsingar má fá með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

Eldri fréttir


Á döfinni

25.1.2012 : Fundahöld framundan

Á næstu dögum munu þingmennfundir_2x97_END_ny Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs efna til opinna stjórnmálafunda með víðsvegar um landið. Fundahöld þingflokks með félagsmönnum og almenningi hófust í síðustu viku janúarmánaðar með fundahöldum í Borgarnesi, Grundarfirði, Grindavík og Reykjanesbæ. Framundan eru fundir á höfuðborgarsvæðinu, Húsavík, Ísafirði, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum og Hornafirði frá laugardegi til miðvikudags. Í tengslum við fundina er jafnan efnt til félagsfunda með viðkomandi svæðisfélögum. Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

26.1.2012 : Hver verður framtíð Ingólfstorgs?

Vinstri græn í Reykjavík efna til laugardagsfundar þ. 4. febrúar kl. 11 um málefni Ingólfstorgs. Á fundinn koma Torfi Hjartarson fulltrúi VG í skipulagsráði Reykjavíkur og Helgi Þorláksson, forsvarsmaður samtakanna Björgum Ingólfstorgi og Nasa.

Við lofum fróðlegum og skemmtilegum umræðum á Suðurgötunni.

Fjölmennum!

Stjórnin. 

Lesa meira
 

26.1.2012 : Félagsfundur með þingmönnum - VG Kópavogi

Boðað er til félagsfundar í kragakaffi Hamraborg laugardaginn 4. febrúar.

Fundurinn er tvískiptur.

11:00 - Lokaður fundur með þingmönnum fyrir félagsmenn.

12:30 - Gert er hlé og boðið upp á súpu og brauð (lágmarksgjald þegið eða 500 kr.)

13:00 - Opinn fundur  stendur til 15:00.

Gestir fundarinns verða Ögmundur Jónasson, Davíð Stefánsson og Þuríður Backmann.

Félagar hvattir til þess að fjölmenna.

Stjórnin.

Lesa meira
 

27.1.2012 : Félagsfundur í Svæðisfélagi VG á Héraði, Borgarfirði og Seyðisfirði

Almennur félagsfundur verður haldinn í húsnæði svæðisfélagsins að Kaupvangi 5 á Egilsstöðum mánudaginn 6. febrúar og hefst fundurinn kl. 17:00.

Á fundinn mæta Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Þuríður Backman alþingismaður.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og nýta þetta tækifæri til að ræða milliliðalaust við kjörna fulltrúa flokksins.

Lesa meira
 

29.1.2012 : Flokkur á gelgjunni – fundur í Köben

Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Kaupmannahöfn og Suður Svíþjóð boðar til fundar í tilefni 13. ára afmælis hreyfingarinnar. Fundurinn verður haldinn þann 9. febrúar 2012 í Jónshúsi í Kaupmannahöfn klukkan 20. Yfirskrift fundarins er “flokkur á gelgjuskeiði” og verður fjallað um stöðu og erindi VG í íslenskum stjórnmálum og ekki síst verkefnin framundan. Félagar eru hvattir til að mæta enda starf grasrótarinnar sjaldan mikilvægara en nú. Drífa Snædal, fyrrverandi framkvæmdastýra VG, hefur fundinn með framsögu.

Lesa meira
 




Tungumála val


head-box
 

Fólkið í vg

steingrimur

Fólkið í vg - Steingrímur

Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur stækkað ört á þeim ellefu árum sem hreyfingin hefur verið starfandi. Nú skipta kjörnir fulltrúar tugum og svæðisfélögin eru 33 talsins.

 

Fólkið í VG




Þetta vefsvæði byggir á Eplica