Landsfundur 2011
Sjöundi landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn að Hofi á Akureyri helgina 28. - 30. október 2011. Boðað verður til landsfundarins skriflega til formanna svæðisfélaga í lok ágúst. Boð á landsfund
Landsfundafulltrúar
Allir fulltrúar á landsfundinum eru kjörnir af sínu svæðisfélagi - enginn er sjálfkjörinn á landsfund. Svæðisfélögin skila inn kjörbréfum til skrifstofu VG fyrir 14. október en boðað er til funda í öllum svæðisfélögum í aðdraganda landsfundarins. Samkvæmt lögum flokksins á hvert svæðisfélag rétt á einum fulltrúa á landsfundi fyrir hverja 5 félagsmenn eða brot af þeirri tölu upp að félagatölunni 30 og einum fulltrúa fyrir hverja 9 félagsmenn eða brot af þeirri tölu yfir félagatölunni 30. Hvert félag skal kjósa jafnmarga til vara. Kjörbréf
Stjórn hefur samþykkt að hafa sama landsfundargjald og síðast þ.e. 2000 kr. Landsfundargjaldið er greitt í upphafi fundar um leið og fundargögn eru afhent.
Dagskrá
Skráning í mat og á landsfundargleði
Matur í Hofi: Fyrir fólk sem vill snæða í Hofi á meðan á fundi stendur er nauðsynlegt að skrá sig hér. Athugið að hver og einn sér um að greiða fyrir sig að lokinni máltíð.
Landsfundargleði: Í gegnum sama skráningarform er einnig hægt að kaupa miða á Landsfundargleðina þar sem Halla Gunnarsdóttir og Þorsteinn Bergsson munu sjá um að halda uppi fjöri og fundargestir geta gætt sér á afar girnilegum kræsingum á hlaðborði. Athugið að greitt er fyrir miða á landsfundargleðina við upphaf fundar um leið og landsfundargjald.
Hlaðborðið á landsfundargleðinni samanstendur af:
Forréttir; Reykt bleikja, cous cous og sólseljukrem. Hráskinka, melónur, valhnetur og dalabrie Aðalréttir; Lamabalæri, kartöflugratin, blóðbergssósa og ristað grænmeti. Steinbítur að hætti katalóníbúa, bakaður í tómatsalsa og villikrydduð hrísgrjón.
Eftirréttir; Súkkulaðikaka með hinberjacoulis og ávaxtasalati
Ársreikningar
Á flokksráðsfundi í lok ágúst voru kynntir ársreikningar fyrir árið 2010. Þeir verða teknir fyrir á landsfundi og má sjá hér.
Skýrsla stjórnar
Á landsfundi verður kynnt skýrsla stjórnar og flokksráðs fyrir árin 2009-2011. Hana má sjá hér. Í viðauka 1 við skýrsluna má sjá ályktanir síðasta landsfundar og hér má sjá ályktanir flokksráðs á tímabilinu.
Ályktanir
Fjölmargar ályktanir bárust fyrir settan frest sem var 16. september. Ályktanirnar bárust frá einstaklingum, svæðisfélögum og öðrum stofnunum flokksins. Einnig voru haldnir opnir fundir á vegum ályktanahóps sem skiluðu frá sér fjölda ályktana. Ályktunum hefur verið skipt í 10 málefnahópa. Ályktanirnar má kynna sér hér. Hópaskipting er nokkurn veginn sú sama og skipting ályktanna í efnisflokka.
Lagabreytingar
Mikil vinna var lögð í tillögur að lagabreytingum fyrir landsfundinn. Skipuð var lagabreytnigarnefnd sem í sátu Sóley Tómasdóttur, Guðrún Hallgrímsdóttur, Sigurður Magnússon og Helgi Jóhannesson. Til nefndarinnar bárust tíu lagabreytingartillögur sem nefndin vann úr í samráði við tillöguflytjendur. Sátt náðist um all flestar þeirra og má sjá afrakstur þeirrar vinnu í tillögum stjórnar sem má sjá hér.
Núverandi lög með breytingartillögunum röktum
Tillaga að nýrri uppröðun lagakafla
Eftir standa fjórar tillögur sem lagðar verða fyrir landsfund í nafni tillöguflytjenda. Þær má sjá hér.
Breytingartillögur við lög frá öðrum en stjórn.
Gisting
Félagar bera ábyrgð á því að bóka og greiða gistingu sjálfir. Skrifstofa Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur saman upplýsingar og tilboð til félagsmanna um gistingu á Akureyri landsfundarhelgina. Skrifstofan hefur fengið tilboð í gistingu, allt frá íbúðum til svefnpokapláss. Hér eru upplýsingar um tilboðs-verð og húsakost. Einnig er hér kort af staðsetningu gistimöguleikanna.
Athygli er vakin á að í minni hótelum/gistihúsum/íbúðaleigum er nokkuð takmarkaður fjöldi gistirýma í boði, en samtals hafa vel á annað hundrað gistirými verið tekin frá fyrir fundinn. Skrifstofan hvetur því landsfundarfulltrúa sem og aðra félagsmenn sem ætla sér á fundinn eindregið til að tryggja sér gistingu sem fyrst.
Höfum það gott á Akureyri
Alveg upplagt er fyrir landsfundargesti að njóta þess sem Akureyri hefur uppá að bjóða og til dæmis skella sér í sund í hinni rómuðu Akureyrarlaug eða gæða sér á Brynjuís á milli funda. Hér má sjá kort af miðbæ Akureyrar með uppástungum að veitingastöðum, kaffihúsum og fleiru skemmtilegu.
Á landsfund í fyrsta sinn
Fyrir félaga sem eru að mæta í fyrsta skiptið á landsfund VG eru hér praktískar upplýsingar.
Sjálfboðaliðar
Landsfundur krefst margra handa og félagar eru hvattir til að gerast sjálfboðaliðar. Ef þú hefur áhuga á að leggja þitt af mörkum til að fundurinn gangi sem best má hafa samband við framkvæmdastýru flokksins, Auði Lilju Erlingsdóttur í netfang audurlilja@vg.is.

