Ályktanir

Stjórnmálaályktun landsfundar

Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur nú setið að völdum í tólf ár. Á þeim tíma hafa miklar breytingar orðið á íslensku samfélagi. Vissulega hefur landsmönnum gengið ýmislegt í haginn á þessum tíma og margir efnast vel og jafnvel komist yfir milljarða. Hitt er því miður einnig staðreynd að misskipting gæðanna hefur vaxið hröðum skrefum í samfélaginu og tilfinnanleg og sár fátækt finnst á þúsundum íslenskra heimila mitt í öllu Lesa meira
 

Efnahagsmál, fjármál ríkis og sveitarfélaga og skattar

Eitt mikilvægasta verkefnið íslenskra þjóðmála um þessar mundir er að endurheimta efnahagslegan stöðugleika. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur á undanförnum þingum flutt tillögu til þingsályktunar um aðgerðir í því skyni þar sem stöðvun frekari stóriðju- og virkjanaframkvæmda um langt árabil er lykilaðgerð sem fylgt yrði eftir með margþættum aðgerðum í samráði við heildarsamtök á vinnumarkaði og helstu hagsmunaaðila. Markmið Lesa meira
 

Sjávarútvegsmál

Núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi var komið á árið 1984. Meginmarkmið þess voru að stuðla að verndun, vexti og viðgangi fiskistofna við Ísland. Það dylst engum að kerfið hefur engan veginn náð þeim markmiðum og hefur sigið á ógæfuhliðina.

Lesa meira
 

Innflytjendamál

Allir sem búa á Íslandi eiga að vera jafnir fyrir lögum og hafa þar með sömu réttindi og skyldur. Innflytjendur eru manneskjur eins og Íslendingar og þeim ber að sýna sömu virðingu og hverjum öðrum íbúa þessa lands. Lesa meira
 

Efling lýðræðis

Lýðræði snýst í meginatriðum um þá grunnhugmynd að almenningur geti haft áhrif á ákvarðanir sem varða umhverfi og samfélag, réttindi og skyldur. Einnig um að hver þjóðfélagsþegn hafi jöfn tækifæri til að setja mark sitt á samfélagsumræðuna og nærumhverfi með því að leggja lóð sitt á vogarskálar þegar stórar ákvarðanir eru teknar. Lesa meira
 

Tímamót í menntun og vísindum

Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á nýja stefnu í menntamálum þar sem fjölbreytni og metnaður haldast í hendur. Mikilvægt er að efla hið almenna skólakerfi þannig að innan þess blómstri faglegt frelsi og frumkvæði.

Lesa meira
 

Landbúnaðarmál

Vinstrihreyfingin – grænt framboð lítur svo á að kraftmikill landbúnaður sé brýnt samfélags- og umhverfismál. Framtíð þessa atvinnuvegar á Íslandi veltur á því að víðtæk sátt ríki um starfsskilyrði landbúnaðarins og það fjölþætta hlutverk sem hann gegnir í landinu, þar á meðal að framleiða holl matvæli á viðráðanlegu verði, treysta búsetu í dreifbýli, viðhalda umhverfisgæðum, tryggja matvælaöryggi, styðja ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar.

Lesa meira
 

Utanríkis- og alþjóðamál

Landsfundur VG leggur áherslu á sjálfstæða utanríkisstefnu sem feli í sér þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi sem fullvalda ríki. Meginstoðir þeirrar stefnu eru sjálfstæði og hlutleysi Íslands, alþjóðleg umhverfisvernd, frumkvæði að og stuðningur við alla viðleitni til afvopnunar og friðsamlegrar sambúðar þjóða, samstaða með kúguðum þjóðum og þjóðarbrotum, barátta fyrir mannréttindum og alþjóðleg samvinna á grundvelli jafnréttis og virðingar fyrir ólíkum viðhorfum og menningu. Lesa meira
 

Þróunarsamvinna og verslun við þróunarlönd

Landsfundur VG fagnar aukningu í fjárveitingum til þróunarmála á Íslandi. Í ljósi aukinna tekna ríkissjóðs má þó telja að betur mætti gera til þess að ná settu marki um að veita a.m.k. 0,7% af vergri landsframleiðslu til þróunaraðstoðar í fátækari ríkjum heimsins. Framlag til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands nemur um 1200 milljónum fyrir árið 2007, eða 0,22% af vergri landsframleiðslu, en áætlað er að framlagið verði 0,35% árið 2009.

Lesa meira
 

Frelsum ástina - höfnum klámi!

Vinstrihreyfingin grænt framboð fagnar þeirri einörðu samstöðu sem í ljós kom þegar klámframleiðendur hugðust standa fyrir ráðstefnu á Íslandi dagana 7.-11. mars 2007. Samstöðu sem hafin var yfir pólitíska flokkadrætti, bandalög, vinahópa og hugmyndafræðileg átök. Samstöðu samfélags sem tók undir með kvennahreyfingu undanfarinna alda, reis upp og mótmælti klámvæðingu af krafti. Samstöðu sem leiddi til þess að þinginu var aflýst. Lesa meira
 

Samgöngumál

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs haldinn í Reykjavík 23. – 25. febrúar 2007 telur að líta beri á siglingaleiðina milli Vestmannaeyja og lands sem þjóðveg og þess vegna eigi ekki að skattleggja umferð á þeim þjóðvegi umfram það sem gert er á öðrum þjóðvegum landsins. Lesa meira
 

Meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 2007 telur brýnt að hið opinbera viðurkenni skýlausan rétt áfengis- og vímuefnasjúklinga til meðferðar og heilbrigðisþjónustu á við aðra sjúklinga. Meðferðarstarf skal skilyrðislaust vera í höndum fagfólks með formlega faglega menntun. Virða skal rétt áfengis- og vímuefnasjúklinga til stjórnmála- og trúarskoðana. Lesa meira
 

Fangelsismál

Það er mikilvægt verkefni nýrrar ríkisstjórnar að tryggja fjármagn til að framfylgja þeirri stefnu sem mótuð hefur verið af fangelsismályfirvöldum þar sem lögð er rík áhersla á meðferðarúrræði og menntun í afplánun fanga, og opna þeim þannig ný tækifæri í lífinu. Með þessu móti má rjúfa þann vítahring sem verður hlutskipti margra einstaklinga og þannig draga úr tíðni síbrota. Um það bil 50% þeirra sem hafna í fangelsi koma þangað oftar en einu sinni. Markmiðið með fangelsisvist ætti að vera endurhæfing en ekki einungis refsing með frelsisskerðingu. Lesa meira
 

Fjölbreytt atvinnulíf án álvers í Helguvík

Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs haldinn í Reykjavík 23. – 25. febrúar 2007 mótmælir áformum stjórnvalda um byggingu álvers við Helguvík. Í stað stóriðjuframkvæmda á Reykjanesskaga viljum við... Lesa meira
 

Hugsum á heimsvísu - tökum til heima:

Um kynjafræði, fjölmenningu og menntun til sjálfbærrar þróunar á öllum skólastigum

Gerð verði sérstök áætlun um kynjafræðikennslu, fræðslu um fjölmenningu og menntun til sjálfbærrar þróunar. Áætlunin feli í sér þá grundvallarbreytingu á aðalnámskrá/réttindaskrá barna að þessir málaflokkar verði ekki aukamál heldur hvorttveggja í senn nýjar námsgreinar og fléttist inn í eldri námsgreinar sem hluti af fræðslu um lýðræði og lýðræðisleg vinnubrögð. Sjá þarf kennurum og kennaranemum fyrir betri menntun á öllum þessum sviðum, bæði um málefnin og í vinnubrögðunum, en þó sérstaklega í því að takast á við viðkvæm og eldfim málefni.

Lesa meira
 

Loftslagsmál

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs telur að Íslendingar eigi að vera í fararbroddi á sviði náttúru- og umhverfisverndar. Hér þarf að taka upp sjálfbæra orkustefnu, draga markvisst úr orkusóun og gera marktækar áætlanir um samdrátt stig af stigi í losun gróðurhúsalofttegunda. Stóriðja og stórvirkjanir í þágu mengandi iðnaðar samrýmast ekki sjálfbærum orkubúskap. Íslendingar þurfa að axla ábyrgð í loftslagsmálum og leggja sitt af mörkum til að hægja á yfirstandandi loftslagsbreytingum af mannavöldum. Þegar horfið hefur verið frá stóriðjustefnunni er raunsætt að stefna að því að Ísland verði til fyrirmyndar í loftslagsmálum, bæði á sviði rannsókna og lausna og taki aukinn þátt í alþjóðasamstarfi um loftslagsvernd. Lesa meira
 

Réttur sjúklinga, persónuvernd og heilsufarsupplýsingar

Auðvelda ber heilbrigðisstofnunum að hagnýta sem best hraðstígar framfarir í upplýsingatækni í þágu þeirra sem njóta heilbrigðisþjónustu og þess heilbrigðisstarfsfólks sem þjónustuna veitir.

Lesa meira
 

Stórátak í geðheilbrigðismálum

Stórauka þarf áherslu á geðheilbrigðismál og koma á heildrænni stefnu þar að lútandi. Mannréttindasjónarmið, jafnrétti, og sjálfsefling notenda og aðstandenda skulu höfð að leiðarljósi. Brýnt er að vinna gegn fordómum og útskúfun. Lesa meira
 

Stöðvun stóriðjuframkvæmda

Vinstrihreyfingin - grænt framboð bendir á að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gefst nú síðasta tækifærið til að hverfa frá stóriðjustefnunni. Ekkert annað dugar en afdráttarlaus yfirlýsing um að fallið verði frá áformuðum stóriðjuframkvæmdum.. Allt tal um þjóðarsátt samtímis því að undirbúin er af krafti bygging 3-4 álvera í viðbót með tilheyrandi stórvirkjunum og áframhaldandi hervirkjum í náttúru landsins er út í hött og móðgun við kjósendur. Stóriðjustopp er alger forsenda þess að tryggja megi á nýjan leik efnahagslegan og félagslegan stöðugleika, auk þess sem þá skapast svigrúm til að vinna heildstæða náttúruverndaráætlun, sem setur frekari raforkuvinnslu með vatnsafli og jarðvarma fastmótaðar skorður. Þar til slík áætlun liggur fyrir, samþykkt af Alþingi, eru frekari áform um uppbyggingu stóriðju útilokaðar. Lesa meira
 

Táknmál

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs haldinn að Grand hóteli 23.-25.febrúar gerir kröfu til þess að íslenska táknmálið verði viðurkennt af stjórnvöldum sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra. Í samræmi við viðurkenningu táknmálsins verða stjórnvöld að tryggja réttindi heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra til að njóta aðstoðar táknmálstúlks við að sinna sínum daglegu félagslegu þörfum með því að stórefla túlkaþjónustu. Lesa meira
 

Trúfrelsi

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, haldinn að Grand Hótel 23-25. febrúar, ályktar að fullt trúfrelsi og jöfn staða trúar- og lífsskoðunarfélaga sé grundvallaratriði. Öll löggjöf og stjórnsýsla þarf að miðast við það. Lesa meira
 

Um stækkun álbræðslunnar í Straumsvík og virkjanir í neðri hluta Þjórsár

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs skorar á Hafnfirðinga að hafna stækkun álbræðslunnar í Straumsvík í atkvæðagreiðslu 31. mars næstkomandi. Alcan ráðgerir að nær þrefalda framleiðslugetu verksmiðjunnar sem yrði að því búnu fjórða stærsta álbræðsla í Evrópu. Ljóst er að stækkun álbræðslunnar mun draga úr lífsgæðum Hafnfirðinga í bráð og lengd. Lesa meira
 

Ályktanir landsfundar

Hér á eftir fylgja ályktanir fimmta reglulega landsfundar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
 

Táknmál

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs haldinn að Grand hóteli 23.-25.febrúar gerir kröfu til þess að íslenska táknmálið verði viðurkennt af stjórnvöldum sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra. Lesa meira
 

Heilbrigðisstefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs

Jafnrétti til heilbrigðisþjónustu eru grundvallarmannréttindi. Samkvæmt hugmyndafræði norræna velferðarkerfisins eru heilbrigðiskerfi og menntakerfi án gjaldtöku grunnstoðir velferðar sem skapar öllum tækifæri til að lifa með reisn og njóta hæfileika sinna. Um leið og heilsusamlegt umhverfi og góður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu eru meðal mikilvægustu réttinda einstaklinga er það er hagur hvers samfélags að stuðla að góðri heilsu almennings og hlúa vel að þeim ef heilsan brestur.

Lesa meira
 

Að eldast með reisn

Stefna VG í öldrunarmálum byggist á félagslegum gildum og gjaldfrjálsri opinberri grunnþjónustu. Við leggjum áherslu á forvarnir og góða nærþjónustu.

Lesa meira

 

Hækkum lægstu laun, styttum vinnutíma og útrýmum fátækt

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs haldinn í Reykjavík helgina 23.–25. febrúar bendir á að lægstu laun í landinu eru langt undir þeim mörkum að þau dugi til framfærslu og það er brýnt að þau verði stórhækkuð. Landsfundurinn lýsir yfir stuðningi við baráttu launafólks fyrir bættum kjörum og hvetur til þess að sérstök áhersla verði lögð á að bæta afkomu þeirra sem hafa lægst launin og jafna kjörin í landinu. Efnahafslegur jöfnuður og góð afkoma allra er forsenda velmegunar og almennrar velferðar í landinu. Sérstaklega þarf að tryggja réttindi erlends launafólks hér á landi. Kjaramisrétti verður ekki útrýmt nema með samstöðu og baráttu fyrir stórbættri afkomu láglaunafólks óháð þjóðerni.

Lesa meira
 

Velferðarmál og almannaþjónusta hins opinbera

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs haldinn í Reykjavík helgina 23.–25. febrúar leggur áherslu á öfluga velferðar- og almannaþjónustu og telur að opinberum aðilum beri skylda til að annast og ábyrgjast heilbrigðis-, mennta-, og öryggismál, opinbert eftirlit og vernd, alla grunnþætti á sviði fjarskipta- og samgöngumála svo og veitustarfsemi, hvort sem er rafmagns- eða vatnsveitur. Reynslan sýnir að þetta er ekki aðeins hagkvæmasta fyrirkomulagið heldur tryggir það best að landsmönnum öllum verði tryggð sambærileg þjónusta á sömu kjörum. Lesa meira
 

EINSTAKLINGURINN - HEIMILIÐ - FJÖLSKYLDAN

VG byggir stefnu sýna í fjölskyldumálum á fjórum grunngildum: Valfrelsi, öryggi, þátttöku og margbreytileika.
Fólk býr við mismunandi fjölskyldu- og heimilisform. Mikilvægt er að virða valfrelsi hvers og eins og að samfélagið kappkosti að laga sig að þörfum og óskum fólks hvað varðar samfélagsleg úrræði.
Allir eiga rétt á því að búa við öryggi í samskiptum við fjölskyldu sína og inni á heimilum, jafnt sem á opinberum vettvangi.

Lesa meira

 

Börnin í öndvegi

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 23.–25. febrúar 2007 telur löngu tímabært að íslensk stjórnvöld móti markvissa stefnu í málefnum barna og fylgi þar fordæmi annarra Norðurlanda. Það skiptir börnin okkar miklu að við eflum velferðarkerfið og mótum markvissa stefnu í málefnum barna því að börnin eru viðkvæmt fólk sem þarf að gæta vel að. Þau eru valdalítil í samfélaginu og þurfa að reiða sig á fullorðna fólkið um velferð sína. Lesa meira
 

Meðferðarúrræði fyrir átröskunarsjúklinga á landsbyggðinni

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs haldinn í Reykjavík helgina 23.–25. febrúar telur það brýnt að koma á laggirnar meðferðarúrræðum fyrir átröskunarsjúklinga víðar en í Reykjavík. Lesa meira
 

Ályktun um lækkun lyfjakostnaðar

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs haldinn í Reykjavík helgina 23.–25. febrúar telur að skoða eigi leiðir til að lækka lyfjakostnað sjúklinga. Lesa meira
 

Húsnæðismál

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs haldinn í Reykjavík helgina 23.–25. febrúar leggur áherslu á að húsnæðislöggjöfin verði endurskoðuð á komandi kjörtímabili með samráði við hagsmunaaðila, s.s. sveitarfélög, samtök launafólks og lífeyrissjóðina, með það að markmiði að bæta kjör leigjenda og auðvelda tekjulágu fólki að eignast húsnæði. Lesa meira
 

Aðgerðaáætlun í atvinnumálum

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn í Reykjavík 23.–25. febrúar 2007 vísar til aðgerðaætlunar í byggðamálum og ályktana um málefni sjávarútvegs og landbúnaðar, fjármál sveitarfélaga og annað það sem segir í ályktunum fundarins um aðgerðir á sviði atvinnu- og byggðamála en leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði sem brýnustu þættina í aðgerðaáætlun í atvinnumálum komandi mánaða og ára á þessu sviði. Lesa meira
 

Efling byggða landsins

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 23.–25. febrúar 2007, telur að grípa eigi til eftirfarandi aðgerða til efla byggðir landsins:

Lesa meira

 

Stórsókn í ferðaþjónustu

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs leggur til að hafin verði stórsókn til áframhaldandi uppbyggingar ferðaþjónustu í landinu. Í þeirri vinnu verði lögð höfuðáhersla á að styðja frumkvæði heimamanna á hverjum stað ásamt því að efla og treysta grunnstoðir ferðaþjónustunnar.

Lesa meira

 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica