Sigþrúður Jónsdóttir - SU

Sigþrúður Jónsdóttir

skipar fjórða sæti í Suðurkjördæmi

Sigþrúður Jónsdóttir

Sigþrúður Jónsdóttir, náttúrufræðingur, fæddist á Selfossi en ólst upp á Eystra-Geldingaholt í Gnúpverjahreppi.

Sigþrúður tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1983. Hún stundaði nám í líffræði við HÍ 1983-1984. Tók B.Sc. honours próf í landbúnaðarfræðum (Agriculture) frá Háskólanum í Wales 1988. Tók svo masterspróf í beitarfræðum frá Háskólanum í Wales 1994.

Sigþrúður hefur reynslu af almennum landbúnaðarstörfum á uppeldis- og námsárum. Var svo sérfræðingur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins 1988-1990. Hóf þá störf hjá Landgræðslu ríkisins 1994 og hef verið héraðsfulltrúi Landgræðslunnar í Árnesssýslu síðan 1997.

Sigþrúður er félagi í  Ungmennafélagi Gnúpverja frá unglingsaldri og var formaður þess um skeið. Hún var formaður foreldra- og kennarafélags Gnúpverjaskóla 1998-2001. Hún var í stjórn Náttúruverndarsamtaka Suðurlands frá 2005 og í Áhugahópi um verndun Þjórsárvera frá stofnun hans, 2001. Þá er hún félagi í Landvernd og Náttúruverndarsamtökum Íslands.

Maki Sigþrúðar er Axel Árnason sóknarprestur. Þau eiga tvö börn, Pálínu Axelsdóttur og Jón Karl Axelsson.

Netfang: gibba@pax.is


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica