Ragnheiður Eiríksdóttir - SU

Ragnheiður Eiríksdóttir skipar þriðja sæti í Suðurkjördæmi

Ragnheiður Eiríksdóttir

Ragnheiður Eiríksdóttir er betur þekkt undir nafninu Heiða. Undir því nafni hefur hún komið fram í ýmsum hljómsveitum, þar á meðal Unun, sem margir muna eftir.

Ragnheiður er fædd í Hafnarfirði en ólst upp í Reykjavík, Keflavík og á Álftanesi. Hún býr nú á Reykjanesi með fjölskyldu sinni. Ragnheiður lærði heimspeki við Háskóla Íslands og tók svo eitt ár í Masternámi í Technische Universität í Berlín. Hún var auk þess eitt ár sem skiptinemi í Lycée Perrier í Marseille, og hefur 3. stig í klassískum gítarleik.

Ragnheiður hefur unnið ýmis störf um ævina. Hún hefur verið blaðamaður á Blaðinu og víðar, tónlistargagnrýnandi fyrir Rás 1 og 2. Þekktust er hún að sjálfsögðu fyrir tónlist sína.

Maki Ragnheiðar er Elvar Geir Sævarsson, tónlistarmaður. Þau eiga soninn Óliver, sem er leikskólastrákur og ofurhetja, fæddur 2001.

Vefsíða: http://skemmtilegt.blogspot.com/

Tölvupóstur: heida@ruv.is




 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica