Guðmundur Magnússon
skipar fjórða sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður

Guðmundur Magnússon er lærður leikari og lék fyrst hjá LR og síðar Þjóðleikhúsinu. Árið 1975 varð hann fyrir slysi í Frakklandi og hefur síðan verið lamaður og notast við hjólastól. Guðmundur starfar nú sem ráðgjafi í aðgengismálum fyrir Aðgengi ehf.
Guðmundur hefur setið í stjórnum og nefndum í Sjálfsbjörgu og lagt áherslu á aðgengismál og er í stjórn Sjálfsbjargarheimilisins. Guðmundur er formaður ferlinefndar Öryrkjabandalags Íslands og fulltrúi bandalagsins í bakhópi umhverfisráðuneytisins um ný skipulags- og byggingarlög. Guðmundur er í stjórn SEM, situr í aðalstjórn ÖBÍ og framkvæmdastjórn bandalagsins.
Guðmundur var einn af stofnendum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og í fyrstu stjórn Reykjavíkurfélagsins. Guðmundur hefur lengst af setið í stjórn flokksins á landsvísu, tekið þátt í stefnumótun, eiknum í málum er varða almannatryggingakerfið, málefni fatlaðra og velferðarkerfið í heild. Guðmundur sat á Alþingi sem varamaður í þrjár vikur árið 2005.
