Seltjarnarnes, úrslit: Árni Einarsson var kjörinn með 15,7% atkvæða.
Vinstri græn taka þátt í starfi Neslistans á Seltjarnarnesi fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2010. Heimasíðu Neslistans má nálgast hér.
Kosningamiðstöð Neslistans á Seltjarnarnesi var formlega opnuð föstudaginn 23. apríl. Um leið var haldið upp á 20 ára afmæli Bæjarmálafélags Seltjarnarness.
Kosningamiðstöðin er í Blómastofunni við Eiðistorg. Hún er opin gestum og gangandi alla virka daga kl. 18 – 20 og um helgar kl. 14 – 18.
Framboðslistinn er eftirfarandi:
1. Árni Einarsson, framkvæmdastjóri; uppeldis- og menntunarfræðingur
2. Brynjúlfur Halldórsson, matreiðslumeistari
3. Hildigunnur Gunnarsdóttir, námsráðgjafi og framhaldsskólakennari
4. Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir, fjármálastjóri
5. Felix Ragnarsson, matreiðslumaður
6. Unnur Pálsdóttir, grunnskólakennari
7. Ragnhildur Ingólfsdóttir, arkitekt
8. Jens Andrésson, öryggisfulltrúi
9. Kristín Ólafsdóttir, sérfræðingur í eiturefnafræði og dósent v/HÍ
10. Oddur Jónas Jónasson, verslunarmaður og þýðandi
11. Helga Charlotte Reynisdóttir, leikskólakennari
12. Halldóra Jóhannesdóttir Sanko, stuðningsfulltrúi
13. Lára Pálsdóttir, félagsráðgjafi og sagnfræðingur
14. Kristín Halldórsdóttir, fyrrverandi alþingiskona.

