Kristín Tómasdóttir
skipar fimmta sæti í Reykjavík norður
Kristín Tómasdóttir gekk í Hlíðaskóla og Menntaskólann við Hamrahlíð og hefur af þeim sökum kennt sig við Hlíðasvæðið. Aftur á móti hefur hún lengst af búið í Noregi og Kópavogi. Kristín er að leggja lokahönd á BA próf í sál- og kynjafræði við Háskóla Íslands en með skólanum hefur hún tekið virkan þátt í Stúdentapólitíkinni.
Hún hefur setið í Stúdentaráði sem og nefndum á vegum ráðsins. Einnig hefur Kristín tekið þátt í störfum Femínistafélagsins og setið í ritstjórn Stúdetnablaðsins og Sellunnar.
Kristín er í sambúð með Garðari Stefánssyni Hagfræðinema
Vefsíða: http://www.kristintomasdottir.blogspot.com/
Tölvupóstur: kristto@hi.is

