Árni Þór Sigurðsson
skipar annað sæti í Reykjavík norður
Árni Þór Sigurðsson er fæddur í Reykjavík 1960 og ólst þar upp. Hann lauk cand.mag. prófi í hagfræði og málvísindum frá Oslóarháskóla og stundaði framhaldsnám í háskólunum í Stokkhólmi og Moskvu. Hann starfaði að námi loknu við fjölmiðla, m.a. við Ríkisútvarpið og Þjóðviljann en síðan um árabil við kjara- og félagsmál hjá Kennarasambandi Íslands.
Árni Þór hefur langa reynslu af sveitarstjórnarmálum sem borgarfulltrúi í Reykjavík og stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga og var forseti borgarstjórnar Reykjavíkur á síðasta kjörtímabili. Hann hefur stýrt mikilvægum málaflokkum á vettvangi borgarstjórnar, s.s. leikskólamálum, skipulagsmálum og umhverfismálum. Þá hefur hann víðtæka reynslu af alþjóðasamstarfi á sviði sveitarstjórnarmála.
Árni Þór er kvæntur Sigurbjörgu Þorsteinsdóttur ónæmisfræðingi og eiga þau þrjú börn á aldrinum 12-20 ára, Sigurð, Arnbjörgu og Ragnar.
Vefur: http://arnith.blog.is/blog/arnith/
Tölvupóstur: arni.thor.sigurdsson@reykjavik.is

