Björn Valur Gíslason

Björn Valur Gíslason skipar þriðja sæti í Norðausturkjördæmi

Björn Valur Gíslason

 

 

Björn Valur Gíslason býr á Ólafsfirði þar sem hann fæddist og ólst upp. Hann lauk þriðja stigs prófi frá Stýrimannaskólanum vorið 1984 og hefur starfað lengi starfað sem sjómaður, stýrimaður og skipstjóri á bátum og togurum. Hafði svo yfirumsjón með fyrsta stigs námi við Stýrimannaskólann sem kennt var í Ólafsfirði veturna 1986 - 1988.

Auk þess er Björn Valur með grunnmenntun í gítarleik frá Tónskólanum í Ólafsfirði og hefur verið hljóðfæraleikari í hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust um árabil, haldið fjölda tónleika út um allt land og gefið út þrjá geisladiska með sveitinni.

Var bæjarfulltrúi Vinstrimanna og óháðra og síðar Ólafsfjarðarlistans og nefndarmaður í ýmsum nefndum fyrir Ólafsfjarðarbæ á árunum 1986-1998. Var formaður fræðslunefndar Ólafsfjarðarbæjar kjörtímabilið 2002-2006.

Vefsíða: http://www.bvg.is/

Tölvupóstur: bjoval@nett.is




 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica