Fréttir

18.5.2012 : Ríkisstjórn samþykkir fjárfestingaáætlun

Ný fjárfestingaráætlun fyrir Ísland var samþykkt í ríkisstjórn í morgun. Markmið fjárfestingaáætlunar er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi segir í frétt á vef stjórnarráðsins. Áætlunin er liður í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og er ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt. Hún er sett fram á grunni þess að ríkissjóður endurheimti stóran hluta af þeim fjármunum sem lagðir voru fram til að endurfjármagna bankakerfið og að með nýjum lögum um fiskveiðistjórnun og veiðigjöld fái þjóðin aukna hlutdeild af arði sjávarauðlinda. Hægt er að lesa fréttina á vef stjórnarráðsins eða með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 
gegn-nato

18.5.2012 : Ísland standi utan hernaðarbandalaga

„Ísland, sem er herlaus þjóð og friðelskandi í orði kveðnu, [á] ekki að vera hluti af NATÓ og þátttakandi í hernaðaraðgerðum á vegum þess þar sem óbreyttir borgarar eru myrtir.“ Þetta er meðal þess sem segir í ályktun stjórnar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík í tilefni 40 ára afmælis Samtaka hernaðarandstæðinga þann 16. maí síðastliðinn. Hægt er að lesa ályktunina með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 
Katrín Jakobsdóttir

18.5.2012 : Stefnumót að vori

"Listir, í sínum fjölbreyttu myndum, geta þegar best lætur höfðað bæði til hjarta og heila. Fyrir marga brjóta þær upp daginn, koma róti á hugann, hrífa menn eða hneyksla, kæta eða græta, reita jafnvel til reiði. Listir eru hluti af þekkingarleit mannsins sem ekki er alltaf hægt að fella undir hagvaxtarmælikvarða eða bræða í mæliker vísindamanna þó að flestir telji þær ómissandi hluta mannlegs samfélags," segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra í grein í Fréttablaðið í morgun í tilefni af því að Listahátíð í Reykjavík er sett í dag. Hægt er að lesa alla greinina með því að ýta á lesa meira. 

Lesa meira
 

18.5.2012 : Munar um vaxtaniðurgreiðslur

"Vaxtabætur og umræddar sérstakar vaxtaniðurgreiðslur, sem greiddar voru út að helmingi nú um síðastliðin mánaðamót, eru því í fullkomnu samræmi við yfirlýst markmið núverandi ríkisstjórnar um að styðja við heimilin í landinu. Þær eru hluti víðtækra aðgerða sem óumdeilanlega skipta máli og hafa hjálpað í glímunni við þann þungbæra vanda sem hrunið skóp skuldsettum heimilum." Þetta segja Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra í grein í Fréttablaðið fyrir skömmu. Hægt er að lesa greinina alla með því að ýta á lesa meira.
Lesa meira
 
lundi

15.5.2012 : Náttúran njóti vafans

„Um aldir hefur þjóðin haft sitt lifibrauð af náttúrunni og þeim gæðum sem hún hefur upp á að bjóða. Þekking á lögmálum hennar og samspili við manninn er hluti af sögu og menningu sem ber að varðveita og halda til haga. Þegar ráðum er ráðið og ákvarðanir teknar þarf meðal annars að gæta að þessari sögu," segir Svandísar Svavarsdóttir í greininni „Ábyrgar veiðar og vernd" sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar fjallar hún um villidýralögin, vernd veiðistofna og sjálfbæra nýtingu. Hægt er að lesa alla greinina með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

14.5.2012 : Vernd og nýting ekki andstæður

„Áhersla á stundargróða í fiskveiðum á kostnað lífríkisins er bein ógn við efnahag og samfélag Íslendinga til lengri tíma.“ Þetta segir Svandís Svavarsdóttir í greininni „Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands“ sem birtist í Fréttablaðið síðastliðinn laugardag. Hún segir samþættingu umhverfisverndar og sjálfbærrar nýtingar lykilinn að árangri í stefnumótun um auðlindir hafsins og bætir við: „Það er rangt og skaðlegt að líta á vernd og nýtingu sem andstæður.“ Hægt er að lesa grein Svandísar með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

11.5.2012 : Fækkun ráðuneyta samþykkt

Alþingi samþykkti í dag þingsályktunartillögu um breytingar á stjórnarráðinu með 28 atkvæðum gegn 21 en 1 þingmaður sat hjá. Breytingarnar fela í sér að í stað iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Hægt er að fá nánari fréttir af breytingunum með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

8.5.2012 : Ályktanir sveitarstjórnaráðstefnu

Fundargerð Sveitarstjórnaráðstefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sem haldin var í Kópavogi síðastliðna helgi er komin á vefinn. Á ráðstefnunni voru samþykktar ályktanir um notendastýrða persónulega aðstoð við fatlað fólk, nýja námskrá fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla,  ályktun um innanlandsflug, bættar almenningssamgöngur og kynjaða fjárhagsáætlanagerð.

Þá var ákveðið að flokkurinn stæði fyrir málþingi um umhverfis- og skipulagsmál í manngerðu umhverfi með sérstakri áherslu á almenningssamgöngur. 

Lesa meira
 
Sveitarstjórnaráð 5

4.5.2012 : Sveitarstjórnaráðstefna stendur yfir

Sveitarstjórnaráðstefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var sett í Kópavogi seinni partinn í dag, föstudaginn 4. maí. Félagar víðs vegar af landinu eru þar samankomnir til að ræða um málefni sveitarfélaganna, áherslur og helstu áskoranir framundan. Ólafur Þór Gunnarsson setti ráðstefnuna og bauð gesti velkomna í Kópavog og fór yfir breytta stöðu í stjórnmálum bæjarfélagsins. Að því loknu voru flutt eftirfarandi erindi:

Lesa meira
 
Illgresi2012

3.5.2012 : Fjölbreytt Íllgresi komið út

„Segjum okkur úr Nató, hættum þessu rugli og eyðum 248,3 milljónum í að byggja upp samfélög, þjóðir og lönd svo misskipting auðs minnki og jafnvægi komist á í heiminum.“ Þetta segir í leiðara nýs tölublaðs Íllgresis, málgagns Ungra vinstri grænna sem kom út fyrir skemmstu. Ritstjóri Íllgresis er Snærós Sindradóttir og í ritnefnd sátu þau Björn Reynir Halldórsson, Eva Hrund Hlynsdóttir, Sindri Geir Óskarsson og Una Hildardóttir. Í blaðinu er meðal annars fjallað um Landsdóm, olíuleit á Drekasvæðinu, rússneska femíníska pönk gjörningahópinn og hljómsveitina Pussy riot, viðtal við formann Trans Ísland, grein um arabíska vorið, forsjármál og fleira auk þess sem í blaðinu má sjá veggspjald sem deilt er á staðalmyndir útlitsdýrkunar í fjölmiðlum á Íslandi. Blaðið hefur verið sent á alla félaga UVG auk þess sem hægt er að nálgast blaðið á skrifstofu flokksins á Suðurgötu 3 eða lesa það hér. 

Lesa meira
 

3.5.2012 : Norðurstjarnan komin út

„Þó karlar í dag taki virkari þátt í heimilislífinu en forfeður þeirranordurstjarnan-2012 er árangur Íslands á alþjóðlegum jafnréttisstuðlum fyrst  og fremst fólginn í því hversu ósérhlífnar íslenskar konur eru.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein Andreu Hjálmsdóttur „Jafnrétti í raun?“ í Norðurstjörnunni sem út kom 1. maí síðastliðinn. Í blaðinu er einnig að finna greinar eftir Steingrím J. Sigfússon og Björn Val Gíslason en hægt er að lesa allt blaðið á þessari slóð.

Lesa meira
 

30.4.2012 : Bundinn er sá er barnsins gætir

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir,undirritun mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrituðu á föstudag samning til þriggja ára um vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Undirritunin fór fram við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík.

Halla Gunnarsdóttir, formaður verkefnisstjórnar og aðstoðarmaður innanríkisráðherra, kynnti samninginn í upphafi athafnarinnar og síðan sögðu ráðherrarnir nokkur orð. Börn af Ægisborg sungu nokkur lög og í lokin undirrituðu ráðherrarnir samninginn.

Hægt er að lesa nánari fréttir af fundinum og lesa erindi Höllu Gunnarsdóttur með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

27.4.2012 : Heimild til að rifta samningum við Norðurál

,,Það er staðföst trú fulltrúa Vinstri grænna í stjórn Orkuveitu Bitruferd-056Reykjavíkur að nú verði að horfast í augu við staðreyndir og rifta samningnum við Norðurál,” segir Sóley Tómasdóttir sem bókaði harðorð mótmæli á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur á miðvikudag þegar samþykkt var að heimila forstjóra fyrirtækisins að ganga til samninga við lífeyrissjóðina um fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar til að standa við gerða samninga við Norðurál. Þetta kemur fram í frétt á Smugunni á miðvikudag. Hægt er að lesa bókun Sóleyjar með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

27.4.2012 : Öfgalaus umræða á sjávarútvegsfundum

Þingmenn Vinstri grænna eru nú að funda um landið um fundur-a-kea-1sjávarútvegsfrumvörpin tvö sem þingið er með til umfjöllunar. Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra var á báðum fundunum, sem og þingmennirnir Björn Valur Gíslason og Lilja Rafney magnúsdóttir. Í fyrrakvöld var haldin ágætur fundur í Stykkishólmi sem sóttur var af um 60 manns og í gærkvöldi komu hátt í hundrað manns á fund á Hótel KEA á Akureyri til að ræða þessi mál.

Björn Valur segir það hafa vakið athygli á þessum fundum hvað öfgalaus en um leið hreinskiptin umræðan hefur verið um þessi mál í ljósi þeirra stóryrða sem fyllt hafa fjölmiðlana að undanförnu.

„Það breytir ekki því að skiptar skoðanir eru um málin enda um gríðarlegt hagsmunamál að ræða fyrir okkur öll," segir hann.

Lesa meira
 
VG_Vestfjordum

18.4.2012 : Fjörugur fundur VG á Vestfjörðum

Fullt var út úr dyrum á fundi þingmanna og ráðherra Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Ísafirði á mánudagskvöld. Fundinn sátu Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra og Ögmundur Jónasson samgönguráðherra ásamt þingmönnunum Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, Jóni Bjarnasyni og Lilju Rafney Magnúsdóttur en auk þeirra var á fundinum saman kominn þorri stærstu útgerðarmanna á Vestfjörðum. 

Lesa meira
 

11.4.2012 : Vinsældir og árangur; hugleiðingar bak páskum !

„Stjórnmál eru ekki í tísku“ segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í grein sem birtist á Smugunni nýverið. Í greininni rifjar hann upp þær aðstæður sem ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hefur glímt við síðan 1. febrúar 2009 og fer yfir stöðuna eins og hún er í dag. Hann bendir á að nú er ár til kosninga og veltir því upp hvort verkalaun ríkisstjórnarinnar verði þau að afhenda hrunvöldunum aftur keflið. Steingrímur segir ennfremur „...menn fá það sem þeir kjósa og nú styttist í valið og tími til að fara að hugsa sig um“.

 

Lesa meira
 

4.4.2012 : Ferðaþjónustan á fljúgandi siglingu

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam aukningin í komu erlendra ferðamanna 22% frá fyrra ári. Aukningin í mars einum mældist 26%." Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein sem Steingrímur J. Sigfússon skrifar í Fréttablaðið í dag undir fyrirsögninni Ferðaþjónustan á fjúgandi siglingu. Hann bætir við: „Kynning á Íslandi sem ferðamannalandi á erlendum mörkuðum hefur gengið vel. Þar hefur farið saman gott samstarf fyrirtækja í greininni og stjórnvalda. Þar ber einna hæst markaðsátakið „Inspired by Iceland". Ferðaþjónustuaðilar eru einnig sammála um mikinn árangur nú þegar af sameiginlegu átaki stjórnvalda og greinarinnar í vetrarferðamennskuátakinu „Ísland allt árið."" Hægt er að lesa alla greinina með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

2.4.2012 : Borgin axli ábyrgð á heimilislausum

Yfirgnæfandi meirihluti utangarðsfólks, útigangsmanna og heimilislausra í Reykjavík eiga  ýmist við alvarlega fíkn að stríða eða alvarlega geðsjúkdóma, og margir hverjir hvort tveggja og teljast þannig tvígreindir. Fjallað var um aðbúnað og þjónustu við þetta fólk á fundi VGR síðasta fimmtudag. Á fundinum kom skýrt fram sú skoðun félagsmanna VG í Reykjavík að óþolandi sé að fólk sem er alvarlega veikt búi við ófullnægjandi aðstæður eða eigi ekki í nein hús að vernda, og að slíkt eigi ekki að líðast í velferðarsamfélagi.

Lesa meira
 
Sjomadur

27.3.2012 : Þjóðin nýtur auðlindarentunnar

„Með frumvarpinu eru forsendur til að ná sátt. Skýlaus ákvæði um þjóðareign, að auðlindarentan komi til þjóðarinnar og opnun kerfisins fyrir nýja aðila skipta í þessu samhengi miklu máli. Svigrúm stjórnvalda til að mæta hagsmunum byggðaralaganna er aukið um leið og sjávarútveginum er tryggður stöðugleiki,“ segir Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp. Hægt er að fá nánari upplýsingar um frumvarpið með því að ýta á lesa meira

Lesa meira
 

26.3.2012 : Stjórn VG í Skagafirði vill Jökulsárnar í Skagafirði í verndarflokk

Á fundi stjórnar svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Skagafirði sem haldinn var í gær var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Stjórn svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði skorar á þingflokk VG að tryggja að Jökulsárnar í Skagafirði verði í verndarflokki í tillögum að verndar- og orkunýtingaráætlun landssvæða.

Stjórnin minnir á að verndun Jökulsánna hefur verið eitt stærsta baráttumál VG og hafa þingmenn flokksins flutt tillögur á Alþingi um friðlýsingu ánna, sbr. meðfylgjandi þingsályktunartillögu. Ennfremur minnir stjórn svæðisfélagsins á að verndun Jökulsánna er í fullu samræmi við stefnu beggja stjórnarflokkanna og gefin fyrirheit.

Lesa meira
 

23.3.2012 : Orkuveitan þjóni almenningi

Forsenda framkvæmdanna við Hverahlíðarvirkjun orkar tvímælis, í fjárhagslegu jafnt sem umhverfislegu tilliti, og nauðsynlegt er að ákvarðani mótist af siðferðilegri ábyrgð í anda sjálfbærrar þróunar. Þetta segir meðal annars í ályktun sem Vinstri græn í Reykjavík sendu frá sér í gær og hægt er að lesa alla með því að ýta á lesa meira

Lesa meira
 

22.3.2012 : Íbúar ráði málefnum Norðurslóða

Umhverfisvernd, friður og aðkoma íbúa eru mikilvægustu málin nordurslodirþegar rætt er um málefni Norðurslóða. Þetta er meðal þess sem fram kom á sameiginlegum fundið Vinstri-grænu flokkanna á  Norðurlöndunum en fjallað er um Norðurskautið á fyrsta árlega þemafundi Norðurlandaráðs sem nú fer fram í Reykjavík. Hægt er að fá nánari fréttir af fundinum með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

19.3.2012 : Ofnýting forsenda Hverahlíðarvirkjunar?

„Við verðum að vera meðvituð um áhættuna sem við erum að taka og gera okkur grein fyrir rétti komandi kynslóða og þeim afleiðingum sem framkvæmdir samtímans geta haft á þær,“ segir Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sem lagði fram fyrirspurn um orkuöflun og nýtingu á Hengilssvæðinu á síðasta fundi stjórnar.Bitruferd-056

Þar spurði hún hvaða upplýsingar lægju fyrir hjá fyrirtækinu sem réttlættu áform um frekari virkjanir. Sóley vísaði í skýrslu Orkustofnunar um mat á vinnslugetu háhitasvæða, en þar er gert ráð fyrir að hægt sé að nýta u.þ.b. 425 MW af rafafli í 100 ár á svæðinu, 213 MW í 200 ár og 142 MW í 300 ár.

Orkuveitan framleiðir nú þegar 423 MW samtals í Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun og hefur þar með fullnýtt það sem hægt er miðað við 100 ára nýtingartíma samkvæmt skýrslu Orkustofnunar. Ef af Hverahlíðarvirkjun verður myndu bætast við 90 MW og þannig yrðu virkjuð samtals 513 MW á svæðinu eða umtalsvert meira en skýrslan gefur tilefni til.

Því var spurt:

1. Hvaða upplýsingar liggja fyrir hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem réttlæta áform um að byggja Hverahlíðarvirkjun?

2. Hafa komið fram einhverjar áreiðanlegar upplýsingar eftir tiltölulega skamman rekstur orkuvera á Nesjavöllum og Hellisheiði sem réttlæta áform um frekari orkuvinnslu á Hengilssvæðinu?

3. Liggur fyrir áætlun um það hvernig Orkuveitan hyggst uppfylla heitavatnsþörf höfuðborgarsvæðisins næstu aldirnar? 

„100 ár eru ekkert endilega rétta viðmiðið, enda erum við stutt á veg komin í rannsóknum á endurnýjanleika jarðhitans og því er aldrei of varlega farið,“ segir Sóley.

Lesa meira
 

16.3.2012 : Hersetan og dreifibréfsmálið hjá EVG - myndir

Í dagskrá EVG miðvikudaginn 7. mars síðastliðinn voru rifjaðir upp atburðir sem gerðust árið 1941 og höfðu mikil áhrif á afstöðu manna varðandi hersetu og verkalýðsmál. Þá hefur saga barnanna sem hermennirnir skildu eftir á Íslandi og afskipti opinberra aðila af þeim ekki farið hátt en á fundinum sagði Magnea J. Rivera Svipm.-ur-sal-(184)Reinaldsdóttir þroskaþjálfi  frá því hvernig hún hafði upp á föður sínum sem var bandarískur hermaður, en litla hjálp var að hafa til þess frá íslenskum yfirvöldum.
Þá var tónlistaratriði þar sem nemandi úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar kom í heimsókn ásamt kennara sínum auk þess sem Björgvin Gíslason (gítar) og Reynir Jónasson (harmonikka), Árni Björnsson og Gunnar Guttormsson  rifjuðu upp revýusöngva og önnur lög frá þessum árum á milli atriða.
Þá sagði Þórhallur Sigurðsson leikstjóri frá handtöku föður síns, Sigurðar Guðmundssonar, ritstjóra Þjóðviljans og samstarfsmanna hans og dvöl þeirra í fangelsi í Bretlandi. og Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur dó upp ramma atburðanna.
Næsti fundur EVG verður miðvikudagskvöldið 11. apríl 2012.
Hægt er að skoða myndir af kvöldinu með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

15.3.2012 : Útlendingamál til umræðu

Samráðshópur VG í málefnum innanríkisráðuneytis kom saman í gær, þriðjudag, en að þessu sinni var fjallað sérstaklega um mótun stefnu í málefnum útlendinga utan EES. Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, hefur skipað starfshóp til að móta slíka stefnu en auk innanríkisráðuneytis taka velferðarráðuneyti og utanríkisráðuneyti þátt í starfinu. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarkona Ögmundar, leiðir starf nefndarinnar en hún heldur jafnframt utan um hina reglubundnu fundi samráðshópsins. Í stefnumótunarvinnunni er einkum fjallað um aðgengi útlendinga sem búsettir eru utan EES-svæðinu að Íslandi. Þannig er bæði fjallað um möguleika á vegabréfsáritunum og um möguleika til að setjast að á landinu í lengri eða skemmri tíma. Samspil dvalar- og atvinnuleyfa er sérstaklega skoðað en um þau er fjallað í tveimur lagabálkum, þ.e. annars vegar lögum um útlendinga og hins vegar lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Hópurinn fjallar einnig sérstaklega um flóttafólk og hælisleitendur sem koma til Íslands og óska eftir vernd. Hópurinn áætlar að skila skýrslu með vorinu og komi til lagabreytinga ætti frumvarp að liggja fyrir í haust.

Lesa meira
 

6.3.2012 : Trúfrelsi til umræðu hjá innanríkisráðuneyti

Fjallað verður um trúfrelsi á mánaðarlegum fundi innanríkisráðuneytisins í fyrramálið miðvikudag en þar verður meðal annars fjallað um frumvarp sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur lagt fram og er nú hjá alstherjarnefnd, sem jafnar stöðu lífsskoðunarfélaga og trúfélaga.423px-Minerva_als_Symbol_der_Toleranz

Halla Gunnarsdóttir aðstoðarmaður innanríkisráðherra segir frumvarpið fela mikilvæga breytingu í sér. „Með lífsskoðunarfélögum er átt við félög sem aðhyllast lífsspeki án þess að hún byggi á hugmyndum til dæmis um æðri máttarvöld, þetta er fólk sem kýs að stunda sína mannrækt innan samtaka sem eru ekki eins og hin hefðbundnu trúfélög en eru engu að síður að fjalla um tilvistarspurningar og samfélag fólks,“ segir hún. „En það eru ekki bara réttindi sem fylgja þessari srkáningu heldur líka skildur, það er því misskilningur sem heyrst hefur að til dæmis íþróttafélög og stjórnmálasamtök geti skráð sig sem lífsskoðunarfélög en það er ekki svo, ekki frekar en þau hafi geta skráð sig sem trúfélög hingað til.“Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

5.3.2012 : Rauður og grænn uppáhaldslitir kjósenda VG

Kjósendur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs eru þeir einu sem eiga annan uppáhaldslit en bláan samkvæ461px-Red_and_green_traffic_signals,_Stamford_Road,_Singapore_-_20111210mt nýlegri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir sviðslistahópinn 16 elskendur árið 2011 og hópurinn hefur nú unnið Sýningu ársins upp úr.

Af þeim sem sögðust myndu kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð sögðu 27% að uppáhalds litur þeirra væri rauður, en 24% nefndu grænan eða túrkís. Uppáhalds litur kjósenda Sjálfstæðisflokksins var blár en 46% þeirra nefndu bláan. Athygli vekur að blár er einnig uppáhaldslitur kjósenda Framsóknarflokksins, Samfylkingar og Hreyfingarinnar eða annarra og einnig þeirra sem segjast myndu skila auðu.

Könnunin fjallaði þó mest um leikhús og þar kom fram að kjósendur Vinstri-Grænna vilja frekar sjá leikrit á litlu sviði og eru líklegastir til að vilja upplifa samviskubit í leikhúsi á meðan kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks voru þeir sem helst vildu sjá létta og skemmtilega sýningu. Þá vekur athygli að Framsóknarmenn eru áberandi hlynntastir því að leikarar séu fáklæddir eða naktir á sviði.

Lesa meira
 

2.3.2012 : Ofbeldisorðræða er þaggandi

„Það kom mér mjög á óvart að albúmið væri umdeilt, að það væru ekki allir sammála mér um að þetta væru hatursfull ummæli sem þar birtust,“ sagði Hildur Lilliendahl Viggósdóttir internetaktívisti á fundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík sem fram fór í gær. Hildur hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir albúm á facebook þar sem hún birtir ummæli ýmissa karla um konur og ofbeldi gegn konum undir titlinum „Karlar sem hata konur.“

Yfirskrift fundarins var „Femínismi, andfemínismi og kvenhatur í netheimum“ en auk Hildar talaði Ingólfur Gíslason, stærðfræðingur og skáld á fundinum.

Hægt er að lesa nánari fréttir af fundinum með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 
800px-Bhutan_Gross_National_Happiness

1.3.2012 : Önnur leið er möguleg

Nauðsynlegt er að þjóðnýta og félagsvæða fjármálakerfið þannig að eðli þess og tilgangur verði stokkuð upp. Eigin hagnaður verði ekki markmið fjármálafyrirtækja heldur verði þau hluti af félagslegri þjónustu við almenning og fyrirtæki. Þetta kom fram í máli Þorvalds Þorvaldssonar á málþingi VG um fjármál og fjármálastarfsemi sem haldið var 25. febrúar síðastliðinn. Á málþinginu talaði líka Katín Anna Guðmundsdóttir um kynjaða fjárlagagerð en hún segir fjárlög geta viðhaldið óbreyttu ástandi, aukið misrétti kynjanna eða bætt úr því. Svandís Svavarsdóttir var síðust á mælendaskrá og ræddi um mikilvægi þess að skoða fleiri aðferðir við að mæla velsæld þjóða en einungis hagvöxt. Hægt er að fá nánari upplýsingar um ráðstefnunameð því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 
Flokksradsfundur_feb_2012_SS

25.2.2012 : Flokksráðsfundi lokið - ályktanir fundarins

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lauk rétt fyrir hádegi í dag. Fundurinn hófst klukkan fimm í gær og var vel sóttur af félögum víðsvegar af landinu.

Í gær fóru ráðherrar flokksins yfir helstu verkefni sín og áherslur framundan. Um kvöldið fóru fram almennar stjórnmálaumræður þar sem 40 félagar tjáðu sig um margvísleg málefni, enda er sá dagskrárliður yfirleitt sá fjörugasti á flokksráðsfundum. Mikill hugur var í félagsmönnum og fram kom einlægur vilji til að nýta þau tækifæri sem framundan eru til að bæta samfélagið í samræmi við stefnu flokksins.

Hér má sjá glærurnar sem Steingrímur studdist við í máli sínu.

Í dag fór fram afgreiðsla ályktana. Hægt er að sjá allar þær ályktanir sem fundurinn samþykkti með því að velja lesa meira.

Lesa meira
 
svandis

23.2.2012 : Kyn og loftslagsbreytingar, verkefni í Úganda

„Áhrif loftslagsbreytinga verða líklega meiri á konur en karla, ekki síst í fátækari ríkjum heims. Í þeim löndum bera konur yfirleitt ábyrgð á vinnu við ræktun matvæla, söfnun eldiviðar og vatnsöflun til heimilisins, til viðbótar öðrum verkum. Það eru því konur sem finna mest fyrir áhrifum loftslagsbreytinga sem valda þurrkum og lélegri uppskeru, lengja leiðina að vatnsbólum eða gera aðgengi erfiðara að eldiviði.
Konur búa líka yfir mikilvægu afli til breytinga. Aukin völd og menntun kvenna er ein áhrifaríkasta leiðin til bættrar framtíðar mannkyns alls. Það má til sanns vegar færa í loftslagsmálum.“ Þetta segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra í grein sem hún skrifaði í Fréttablaðið í dag. Hægt er að lesa alla greinina með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 
Katrín Jakobsdóttir

14.2.2012 : Menningarstefna í mótun

Í Mennta- og menningarmálaráðuneytinu er unnið er að ritun menningarstefnu stjórnvalda sem áætlað er að verði lögð fram sem þingsályktunartillaga á haustþingi. Lengi hefur verið kallað eftir heildstæðri stefnumótun ríkisins í menningarmálum en viðkvæðið hefur þá oft verið að stefna stjórnvalda birtist í lagasetningu, fjárlögum, reglugerðum og ýmsum öðrum ákvörðunum á sviði menningarmála. Slík rök hafa þó ekki slegið á óskir um mótaða stefnu, en í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er nefnt að vinna eigi að mótun hennar. Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 
Konurisogunni

13.2.2012 : Kúgunarsaga og menningarstefna hjá VGR

Vænlegra væri að kenna annars konar sögu, heldur en að sáldra konum yfir þá hefðbundu pólitísku valdasögu þjóðar sem kennd hefur verið í grunn- og framhaldsskólum hingað til. Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi VGR sem haldinn var í Suðurgötu miðvikudaginn 8. febrúar síðastliðinn en starfsemi félagsins hefur verið með líflegra móti það sem af er ári. Síðastliðinn laugardag mætti svo Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra á fund félagsins og ræddi menningarmál og gerð menntastefnu. Hægt er að fá nánari fréttir af fundinum með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

9.2.2012 : Fjölmennur fundur í Vestmannaeyjum

Fjölmennt var á fundi þingmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar í Vestmannaeyjum á þriðjudag en milli 80 og 90 manns voru á staðnum.  Frá VG komu Steingrímur J. Sigfússon, Björn Valur Gíslason og frá Samfylkingu Róbert Marshall og Björgvin G. Sigurðsson.

Jórunn Einarsdóttir var á fundinum. Hún segir samgöngumál, skuldamál heimilanna og sjávarútveg hafa verið fyrirferðarmest í umræðum á fundinum. Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

6.2.2012 : Hún á afmæli í dag - myndir

Vinstrihreyfingin – grænt framboð afmaeli1er 13 ára í dag. Í tilefni þess boðar Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Kaupmannahöfn og Suður Svíþjóð til fundar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn næstkomandi fimmtudag þar sem Drífa Snædal stofnfélagi í hreyfingunni og fyrrum framkvæmdastýra heldur erindi.
Hægt er að lesa viðtal við Drífu ásamt því að skoða valdar yndir úr starfinu með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

6.2.2012 : Fundur Evg um Sigurð Þórarinsson - myndir

Það voru hátt í 100 manns á 00-Sed-yfir-sal-(2)fundi Eldri vinstri grænna í Stangarhyl 4, 1. febrúar s.l. Dagskráin var helguð minningu Sigurðar Þórarinssonar, jarðfræðings, náttúruverndarmanns og vísnaskálds, en 8. janúar s.l. voru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Nánari fréttir af fundinum og myndir má sjá með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

3.2.2012 : Fjölþætt áætlun um efnahagslegt öryggi

Forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndum skrifuðu grein fyrir skemmstu þar sem þeir listuðu hugmyndir sínar um bættar reglur um fjármálamarkaði sem koma eiga í veg fyrir að skattborgarar borgi reikninginn þegar bjarga á bönkunum.  Hægt er að lesa alla greinina með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

2.2.2012 : Þrjú ár í ríkisstjórn

„Verkefni okkar í þágu almennings og framtíðarheilla landsmanna virtust í fyrstu nær óyfirstíganleg og sá möguleiki var raunverulega fyrir hendi að þjóðin yrði gjaldþrota ef ekki yrði hið bráðasta og af einurð tekist á við vandann,“ segir í grein eftir Steingrím J. Sigfússon og Jóhönnu Sigurðardóttur sem birt var 1. febrúar en þrjú ár voru þá liðin frá því minnihlutastjórn VG og Samfylkingar tók við. Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að ýta á lesa meira. 
Lesa meira
 
fundur-a-sudurnesjum

30.1.2012 : Sjávarútvegsmál í forgrunni

„Fyrst var farið yfir stöðuna eins og hún er og reynt að gera grein fyrir þeim mikla árangri sem hefur náðst,“ segir Þráinn Bertelsson um fundi þingmanna með íbúum á Suðurnesjum síðastliðinn laugardag og bætir við að næst hafi verið rætt um verkefnin framundan. „Þetta eru sjávarpláss og þá vakti mesta eftirvæntingu og umræðu nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp sem er í smíðum og mun koma fram ekki seinna en um mánaðamótin febrúar – mars, til að hægt sé að afgreiða það og ný fiskveiðistjórnunarlög geti tekið gildi 1. September.“ Nánari upplýsingar má fá með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 
fundur-i-borgarnesi

25.1.2012 : Hitamálin atvinna og lífsskilyrði

„Það kemur alltaf í ljós þegar fundað er með félögum að fólk vill oftast að ræða annað en hitamálin við Austurvöll,“ segir Björn Valur Gíslason formaður þingflokks Vinstri grænna en eftir þingflokksfund í Borgarnesi í fyrradag voru haldnir opnir fundir bæði í Borgarnesi og Grundarfirði. Framundan eru fleiri fundir þingmanna um landið en boðað er til funda á Suðurnesjum laugardaginn 28. janúar næstkomandi.

Lesa meira
 
Lilja Rafney

20.1.2012 : Góður árangur

"Okkur hættir oft til að draga fyrst upp allt það neikvæða og það sem miður fer en gleyma að það eru góðu hlutirnir sem eru hvatning til að gera enn betur. Á þeim þarf að byggja ef við ætlum að komast eitthvað áfram en ekki hjakka í svartsýnisgírnum og spóla okkur þar föst niður í bölsýni og bölmóði og láta úrtöluraddirnar ráða ferð" segir Lilja Rafney Magnúsdóttir í grein sinni sem birtist á Smugunni fyrir skemmstu hægt er að lesa í heild sinni með því að velja lesa meira.

Lesa meira
 
Halla-Gunnarsdottir

19.1.2012 : Úrbætur dómskerfisins ræddar

„Upphafið má rekja til þess að Innanríkisráðuneytið stóð siðastliðinn vetur fyrir mjög víðtæku samráði um meðferð nauðgunarmála í réttarvörslukerfinu og kallaði saman alla sem að þeim koma, lögreglu, saksóknara, dómara, neyðarmóttöku vegna naugðana, samtök þolenda og frjáls félagasamtök,“ segir Halla Gunnarsdóttir aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar Innanríkisráðherra um ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu sem fram fer í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð á morgun.

Lesa meira
 

17.1.2012 : Ályktanir sem vísað var til stjórnar af landsfundi

Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var tekin ákvörðun um að vísa eftirfarandi ályktunum til stjórnar:

Erfðabreytt ræktun, vistvænar samgöngur, ályktun um ferðaþjónustu og ályktun um atvinnustefnu.

Að auki var ákveðið að senda skýrslu skipulagsnefndar VG til umfjöllunar í svæðisfélögum flokksins sem hefur þegar verið gert. Ályktun um þjóðnýtingu fjármálastarfssemi á Íslandi og fyrri hluta ályktunar um stöðu skuldara var vísað til málefnaþings um fjármálastarfssemi sem fyrirhugað er að halda í lok febrúar.  Jafnframt var ákveðið var að setja á fót hóp um mótun lýðræðisstefnu VG sem hefur m.a. það hlutverk að taka fyrir þær tvær ályktanir sem lágu fyrir fundinum um lýðræðisstefnu og lýðræðisumbætur.

Á fundi stjórnar síðastaliðinn föstudag var farið yfir þessar fjórar ályktanir sem eftir standa. Niðurstaða var að samþykkja ályktun um vistvænar samgöngur og ályktun um ferðaþjónustu. Ályktun um erfðabreytta ræktun ákvað stjórn að vísa til þingflokks og í starf við mótun landbúnaðarstefnu VG. Ályktun um atvinnustefnu var ákveðið að fara betur yfir og mun niðurstaða úr þeirri vinnu verða birt þegar hún liggur fyrir.

Með því að velja lesa meira má sjá ályktanirnar tvær sem stjórn samþykkti.

Lesa meira
 

10.1.2012 : Breytingar á ríkisstjórn

Steingrímur J. Sigfússon tók við embætti efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þann 31. desember síðastliðinn. Þá létu af störfum Jón Bjarnason sem áður gegndi embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra. Steingrímur lét þá af embætti fjármálaráðherra en við tók Oddný G. Harðardóttir.

Þessar breytingar á stjórnarráðinu eru í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar frá því í maí 2009. Þar segir:

„Nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti tekur til allra atvinnugreina (utan opinbera geirans og fjármálamarkaðarins), nýsköpunar og þróunar innan þeirra. Þar verða teknar ákvarðanir um nýtingu auðlinda á grundvelli rannsókna og ráðgjafar frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Nýtt umhverfis- og auðlindaráðuneyti fær auk þeirra verkefna sem fyrir eru lykilhlutverk varðandi rannsóknir, nýtingarstefnu, ráðgjöf og verndun á sviði auðlindamála. Þangað flyst ennfremur umsýsla Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.“

Ráðherrar í ríkisstjórn eru nú: Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra.

Lesa meira
 
steingrimur-toppur

27.12.2011 : Jóla- og áramótakveðja til félaga og stuðningsmanna VG

Ársins 2011 verður tæpast minnst með söknuði í Evrópu almennt séð. Á efnahagssviðinu hafa hrannast upp óveðursský og fátt bendir til annars en áframhaldandi glímu við mikla efnahagserfiðleika álfunnar sem í vaxandi mæli smita yfir á heimsbúskapinn. Ekki er lengur eingöngu rætt einangrað um vandamál ríkja eins og Grikklands, Portúgals, Írlands, Ítalíu og Spánar. Nú er spurt hvaða ríki kunni næst að lenda í vandræðum, hver verði framtíð Evrunnar og hverju þurfi til að kosta efnahagslega og pólitískt, eigi að takast að bjarga henni. Fyrir Ísland, sem og heimsbyggðina alla, eru þetta alvarlegir atburðir, en það vill gleymast að Evrópa er lang mikilvægasti markaðurinn fyrir útflutningsafurðir okkar. Vandi margra þjóða í Evrópu og fremur dauflegar horfur sýnir að það er hægara sagt en gert að sigrast á djúpstæðum efnahagserfiðleikum, hvað þá hruni eins og hér varð í október 2008.

Á heimsvísu var árið 2011 ár bæði vona og vonbrigða. Vonir um aukið lýðræði og manneskjulegra stjórnarfar vöknuðu í nokkrum löndum Arabaheimsins, en í baráttunni við loftslagsbreytingar tókst með naumindum að afstýra algerri uppgjöf. Fjölmiðlar fluttu sinn venjulega skammt af fréttum um átök, hungur og náttúruhamfarir í bland við glansmynda- og hneykslismál ríka og fræga fólksins. Hvernig hinum venjulegu meðal Jónum og Gunnum heimsins vegnar er erfiðara að segja. Svo mikið er víst að sameiginlega bíða mannkynsins gríðarleg úrlausnarefni og tíminn til að takast á við þau gengur hratt til þurrðar.

Ef við lítum okkur nær og reynum að svar spurningunni; hvernig stendur Ísland að vígi undir lok árs 2011, þá er svarið í mínum huga nokkuð ljóst. Íslandi hefur tekist það sem í mörgum öðrum Evrópulöndum ríkir tvísýna um, þ.e. að ná tökum á erfiðleikum sínum með trúverðugum hætti.

Lesa meira
 
jola-vg-logo

23.12.2011 : Hátíðakveðjur

Kæru félagar

Við óskum ykkur gleðilegra jóla. Megi komandi ár færa frið og gæfu.

Við þökkum fyrir stuðninginn á árinu. Sérstakar þakkir fá þau sem lagt hafa hönd á plóg við verkefni ársins sem senn er liðið.

Lesa meira
 
steingrimur-toppur

9.12.2011 : Ótvíræður árangur: Steingrímur J. Sigfússon fjallar um fjárlögin

Steingrímur J. Sigfússon fjallar um fjárlög ársins 2012 og þann mikla árangur sem náðst hefur í ríkisrekstrinum í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag og ber titilinn Ótvíræður árangur. Í greininni segir að með fjárlögum ársins 2012 hafi verið stigið mikilvægt skref í átt að hallalausum ríkisrekstri. Á næsta ári verður hallinn tífalt minni en þegar núverandi ríkisstjórn tók við og þróunin sýnir hversu stutt er í að ríkisfjármálin verði komin á sjálfbæran grunn. Sú umbylting hefur þó ekki orðið án fórna og hefur ríkisstjórnin þurft að grípa til mikilla aðhalds- og tekjuöflungaraðgerða sem reynt hafa á almenning. Steingrímur segir að ríkisstjórnin, og reyndar Alþingi allt, hafi lagt ríka áherslu á að verja velferðarsamfélagið í gegnum þessa erfiðu tíma. Í ár líkt og undanfarin ár, var forgangsraðað í þágu velferðar og almannaþjónustu en ekki beitt flötum niðurskurði. Krafa um hagræðingu var 3% í almennum rekstri og stjórnsýslu, en 1,5% í velferðarmálum, s.s. heilbrigðisþjónustu, skólamálum, löggæslu, bótakerfum og sjúkratryggingum. Við meðferð Alþingis á frumvarpinu var ákveðið að ganga enn lengra í þessa átt og var dregið úr aðhaldskröfu á heilbrigðiskerfið sérstaklega líkt og gert var árið 2010. Greinina í heild sinni má lesa með því að velja lesa meira.

Lesa meira
 

30.11.2011 : Stjórn VGR ályktar um málefni Palestínu

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík lýsir yfir mikilli ánægju með framgöngu ríkisstjórnarinnar og formanns utanríkisnefndar, Árna Þórs Sigurðssonar, í málefnum Palestínu. Fagnar stjórnin þeim merka áfanga að Íslendingar hafi viðurkennt sjálfstæði Palestínu. Næsta skref er að tryggja rétt palestínsku þjóðarinnar til vatns og annarra auðlinda, ferðafrelsis, búsetu, atvinnu og mannréttinda. Það er von stjórnar VGR að alþingismenn beiti sér fyrir því í störfum sínum. 

Lesa meira
 

29.11.2011 : Ályktun frá VGR

Stjórn Vinstri-grænna í Reykjavík lýsir yfir létti og ánægju með þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar, að synja Huang Nubo leyfis til uppkaupa á íslensku landi. Megi þetta verða vísir þess sem koma skal, að eignarhald á jarðnæði verði úr höndum auðmanna, hverrar þjóðar sem þeir eru, og að einkaeignarhald á jarðnæði heyri almennt sögunni til.

Lesa meira
 

3.11.2011 : Myndir frá landsfundi

Að sitja sem landsfundarfulltrúi getur verið mikil vinna en aldrei má gleyma þeim tilgangi fundarins að félagar hittist, ræði málin inni í fundasalnum og utan hans og hafi gaman af félagsskap hvers annars. Á meðfylgjandi myndum má sjá að mikil gleði ríkti á landsfundi, á fundinum sem og á skemmtuninni.

Lesa meira
 

3.11.2011 : Lög VG með samþykktum breytingum af landsfundi

Nú eru aðgengileg á heimasíðu VG lög Vinstri grænna með breytingum sem á þeim voru gerðar á landsfundi á Akureyri dagana 28.-30. október sl. Helstu breytingar á lögunum má kynna sér hér.

Lesa meira
 

31.10.2011 : Ályktanir samþykktar á landsfundi

Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fór fram öflugt málefnastarf. Margar ályktanir lágu fyrir fundinum og komu þær víða að, frá einstaklingum, svæðisfélögum, ungliðahreyfingunni og kjördæmisráðum. Fyrir fundinn voru einnig haldnir opnir fundir á vegum ályktanahóps sem leiddu til að fjölda ályktana var skilað inn í nafni hópsins. 

Ályktunum var raðað niður í málefnahópa sem hittust á landsfundi. Í hópunum var farið yfir allar ályktanirnar, þær ræddar ítarlega, sameinaðar eða lagðar til breytingar og/eða málsmeðferð eftir atvikum. Á síðasta degi landsfundar var afgreiðsla ályktana.

Hægt er að lesa allar þær ályktanir sem landsfundurinn samþykkti á þessari vefslóð.

Lesa meira
 

30.10.2011 : Landsfundi lokið

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sleit landsfundi flokksins í Hofi á Akureyri á sjöunda tímanum í kvöld. Auk hefðbundinna landsfundarstarfa, svo sem kosninga í stjórn og flokksráð og ítarlegra lagabreytinga, var unnið öflugt málefnastarf þar sem ályktanir um stefnu flokksins voru mótaðar. Þá samþykkti flokkurinn stefnu í húsnæðismálum, Sjálfbær húsnæðisstefna, og hóf vinnu við mótun stefnu í lýðræðismálum.

Lesa meira
 

30.10.2011 : Úrslit kosninga í flokksráð

Í dag var kosið í flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á landsfundi. Hægt er að nálgast úrslit kjörsins með því að velja lesa meira.

Lesa meira
 

30.10.2011 : Landsfundi slitið

Sjöunda landsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur verið slitið. Dagskráin í dag einkenndist af umræðum um þær fjölmörgu ályktanir sem lágu fyrir fundinum.  Samþykktar ályktanir fundarins koma inn á heimasíðu flokksins á morgun.

Lesa meira
 

30.10.2011 : Ný stjórn kjörin á landsfundi

Niðurstaða kosninga til stjórnar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var kynnt í morgun. Í gær var tillkynnt um niðurstöðu kosningar til formanns, varaformanns, ritara og gjaldkera.

Lesa meira
 

29.10.2011 : Steingrímur kjörinn formaður

Steingrímur J. Sigfússon var endurkjörinn formaður á landsfundi í dag með 76,7% greiddra atkvæða.

Lesa meira
 

29.10.2011 : Ræða formanns UVG við setningu landsfundar

Ég biðla til forystu flokksins jafnt sem almennra flokksfélaga að halda áfram baráttunni, gleymið ekki hvað það var sem fékk ykkur til að taka þátt í starfinu í upphafi, sama hvort það var baráttan fyrir kvenfrelsi, Nallinn, NATO. Því um leið og við gleymum hugsjóninni þá er tilgangurinn horfinn. Lesa meira
 

28.10.2011 : Setningarræða Steingríms J. Sigfússonar

Sjöundi reglulegur landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs var settur í Hofi á Akureyri í dag. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, lauk opnunarhátíð landsfundar með setningarræðu.

Lesa meira
 

28.10.2011 : Landsfundur hafinn á Akureyri

Sjöundi reglulegi landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs var settur í Hofi á Akureyri klukkan 16:00.

Lesa meira
 

24.10.2011 : Landsfundargleði Vinstri grænna

Við vekjum athygli á að loka-frestur til að skrá sig á landsfundargleði Vinstri grænna í Hofi laugardagskvöldið 29. október nk., rennur út á miðnætti í kvöld, 24. október. Í kvöld rennur einnig út frestur til að skrá sig í máltíðir á veitingastaðnum 1862 í Hofi, á milli dagskrárliða landsfundarins.

Hægt er að skrá sig hér.

Lesa meira
 

14.10.2011 : Nýr formaður VG í Kaupmannahöfn og Suður - Svíþjóð

Vinstri græn í Kaupmannahöfn og Suður - Svíþjóð héldu aðalfund í Jónshúsi í gær.  Á fundinum var Héðinn Björnsson kjörinn formaður og Drífa Snædal ritar. Eftirfarandi ályktun var samþykkt.

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í Kaupmannahöfn og Suður Svíþjóð lýsir yfir stuðningi við mótmælin á Wall St. sem breiðast nú út um hin vestræna heim og beinast gegn gífurlegri misskiptingu auðs og valds. Hvetur fundurinn félaga til þátttöku í mótmælunum þann 15. október í sinni heimabyggð.

Lesa meira
 
3lifmagneud

12.10.2011 : Ný stjórn VGR

Ný stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík var kjörin á aðalfundi 29. september síðastliðinn. Líf Magneudóttir var kjörin formaður en aðrir aðalmenn í stjórn eru: Birna Magnúsdóttir, Claudia Overesch, Friðrik Atlason, Kolbeinn Stefánsson, Sólveig Anna Jónsdóttir, Vésteinn Valgarðsson. Varamenn í stjórn eru: Brynja Halldórsdóttir og Magnús Sveinn Helgason.

Lesa meira
 

7.10.2011 : Þrjár vikur í landsfund

Kæru félagar. Í dag eru þrjár vikur í landsfund en landsfundurinn mun fara fram á Akureyri helgina 28.-30. október næstkomandi.

Á síðu landsfundarins eru komin inn ný gögn og eru félagar eindregið hvattir til að kynna sér þau. Þar má nú nálgast ályktanir sem teknar verða fyrir á fundinum, lagabreytingartillögur og drög að dagskrá fundarins.

Fjölmargar ályktanir bárust fyrir settan frest sem var 16. september. Ályktanirnar bárust frá einstaklingum, svæðisfélögum og öðrum stofnunum flokksins. Einnig voru haldnir opnir  fundir á vegum ályktanahóps sem skiluðu frá sér fjölda ályktana.  Ályktanirnar má kynna sér hér.

Mikil vinna var lögð í tillögur að lagabreytingum fyrir landsfundinn. Skipuð var lagabreytnigarnefnd sem í sátu Sóley Tómasdóttur, Guðrún Hallgrímsdóttur, Sigurður Magnússon og Helgi Jóhannesson. Til nefndarinnar bárust tíu lagabreytingartillögur sem nefndin vann úr í samráði við tillöguflytjendur. Sátt náðist um allflestar þeirra og má sjá afrakstur þeirrar vinnu í tillögum stjórnar sem á sjá með því að velja lesa meira.

Lesa meira
 

5.10.2011 : Gisting og sjálfboðaliðar á landsfundi

 

Ágætu félagar

Senn líður að landsfundi  og er undirbúningur fundarins í fullum gangi. Skrifstofa VG vill minna félaga sem ætla sér á fundinn og eiga ekki heima á Akureyri eða í nágrenni, á að tryggja sér gistingu. Á vefsíðu VG hafa verið teknar saman upplýsingar um gistimöguleika í nágrenni fundar og verðtilboð, og má nálgast þær upplýsingar hér: http://www.vg.is/landsfundir/landsfundur-2011/

Ljóst er að sameiginlegt átak og góða samvinnu þarf til þess að fundurinn geti gengið sem best fyrir sig. Af því tilefni auglýsir framkvæmdastýra eftir sjálfboðaliðum á landsfundi og geta þeir sem ólmir vilja leggja sitt af mörkum, sent línu þess efnis á vg@vg.is.

Lesa meira
 

4.10.2011 : Upplýsingar um fjárlög fyrir árið 2012

Umræða um fjárlög fyrir árið 2012 stendur nú á Alþingi. Fjárlagafrumvarpið markar ákveðin tímamót í ríkisfjármálum. Eftir erfið ár að baki í ríkisfjármálum stefnir í verulegan afgang á frumjöfnuði árið 2012. Á þessari slóð má nálgast samantekt á helstu niðurstöðum fjárlagafrumvarpsins.

Eftir nær tveggja ára samdrátt í þjóðarbúskapnum í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 er hagkerfið farið að vaxa á ný. Einkaneysla og fjárfesting hefur aukist, atvinnuleysi fer lækkandi og kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur aukist. Allt útlit er fyrir að á næsta ári fari hagkerfið að taka vel við sér eftir djúpa lægð í kjölfar fjármálakreppunnar.

Samhliða fjárlagafrumvarpi 2012 gefur ráðuneytið út skýrslu um áætlun í ríkisfjármálum fyrir árin 2012-2015. Þar kemur fram að árangurinn í ríkisfjármálum til þessa og hagstæðari skuldastaða ríkissjóðs en áætlað var geri það að verkum að aðlögun ríkisfjármálanna þarf ekki að verða jafn mikil og ganga jafn hratt fram og gert var ráð fyrir þegar áætlunin var gerð sumarið 2009. Á þessari slóð má nálgast samantekt á helstu atriðum í áætlun í ríkisfjármálum. 

Frekari upplýsingar um fjárlagafrumvarpið og áætlun í ríkisfjármálum má einnig nálgast á vef fjármálaráðuneytisins og  í gegnum glærukynningu fjármálaráðherra.

Lesa meira
 
Thora_Geirlaug

3.10.2011 : Nýr formaður kjörinn á landsfundi UVG

Þóra Geirlaug  Bjartmarsdóttir var kjörin formaður Ungra vinstri grænna á ellefta reglulega landsfundi UVG sem fram fór á Suðureyri síðastliðna helgi. Fráfarandi formaður, Snærós Sindradóttir, gaf ekki kost á sér áfram.

Fjölmargar ályktanir voru samþykktar á fundinum, meðal annars um trúfrelsi, hernaðarbrölt og forseta Íslands. Upplýsingar um nýkjörna stjórn sem og allar samþykktar ályktanir fundarins má nálgast hér á heimasíðu Ungra vinstri grænna.

Lesa meira
 

19.9.2011 : Rauða blokkin sigraði í þingkosningunum í Danmörkuk

Helle Thorning- Schmidt, leiðtogi danskra jafnaðarmanna, fékk fyrir helgi umboð til að leiða stjórnarmyndunarviðræður hjá Margréti Þórhildi Danadrottingu eftir sigur Rauðu blokkarinnar í þingkosningum í Danmörku. Helle sagði við það tilefni að verkefnið sé stórt, en hún hlakki til að hefja viðræðurnar.

Svokölluð Rauða blokk hafði betur í þingkosningum í Danmörku í gær og ljóst að Helle Thorning-Schmidt leiðtogi jafnaðarmanna verður fyrsti kvenforsætisráðherra Danmerkur. Mjótt var á munum og spenna til loka talningar en niðurstaðan varð sú að rauða blokk Jafnaðarmanna, Radikale Venstre, Enhedslisten og Socialistik Folkeparti fengu samtals 89 þingsæti en bláa bandalag hægri manna 86 þingsæti. Þess má geta að SF, systurflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, fékk 9,2% atkvæða og Enhedslisten fékk 6,7%. Með úrslitum þingkosninganna er bundið enda á 10 ára valdatíð hægrimanna í Danmörku.

Lesa meira
 

8.9.2011 : Upplýsingar fyrir landsfund - gistimöguleikar

Skrifstofa Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur tekið saman upplýsingar og tilboð til félagsmanna um gistingu á Akureyri landsfundarhelgina 28.-30. október næstkomandi. Þær upplýsingar má nálgast á þessari slóð.  

 

Athygli er vakin á að í minni hótelum/gistihúsum/íbúðaleigum er nokkuð takmarkaður fjöldi gistirýma í boði, en samtals hafa vel á annað hundrað gistirými verið tekin frá fyrir fundinn.  Skrifstofan hvetur því landsfundarfulltrúa sem og aðra félagsmenn sem ætla sér á fundinn eindregið til að tryggja sér gistingu sem fyrst.

Lesa meira
 
1-soleytomasdottir

7.9.2011 : Nýtt skóla- og frístundasvið án ábyrgðar, skipurits eða stefnu

Stofnun nýs skóla- og frístundasviðs var samþykkt af meirihluta Besta flokks og Samfylkingar á fundi borgarstjórnar í dag án þess að fyrir liggi hvernig farið verði með málaflokkinn á vettvangi stjórnmálanna, enda liggja ekki fyrir samþykktir fyrir ný ráð. Ekkert skipurit er til fyrir nýtt svið og starfshópur um stefnumótun nýs skóla- og frístundasviðs hefur ekki enn hafið störf. Meirihlutinn hefur sumsé samþykkt stofnun nýs sviðs sem tekur strax til starfa, án pólitískrar ábyrgðar, án skipurits og án stefnu.

Þessi vinnubrögð koma því miður ekki á óvart segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG í Reykjavík. Hún segir meirihlutann virðast ætla að halda uppteknum hætti við samþykkt og framkvæmd á skyndihugdettum án stefnumótunar, án umræðna, án samráðs og án þess að áhrif þeirra séu metin hverju sinni. Þannig grefur núverandi meirihluti ítrekað undan mikilvægri grunnþjónustu í stað þess að styrkja hana, efla eða í það minnsta standa um hana vörð.

Á sama fundi var samþykkt tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um að fela Innri endurskoðanda borgarinnar að framkvæma úttekt á sameiningarferli leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila, sem og stofnun skóla- og frístundasviðs. Niðurstaða úttektarinnar mun vonandi varpa ljósi á það sem betur mátti fara – og vonandi mun meirihlutinn taka sér taki og bæta stjórnarhætti og samráð í kjölfarið.

Lesa meira
 

6.9.2011 : Hvítbók um náttúruvernd komin út

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra kynnti í morgun hvítbók um endurskoðun náttúruverndarlaga. Í hvítbókinni er gerð heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi, með hliðsjón af þeim lögum og reglum sem tíðkast erlendis, í því skyni að leggja grunn að smíði nýrrar og vandaðrar löggjafar. Er þetta í samræmi við vinnubrögð sem tíðkast við lagasmíði á Norðurlöndunum, en telst nýmæli hér á landi.

Kveðið er á um endurskoðun náttúruverndarlaganna í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna. Bent hefur verið á að ekki hafi miðað sem skyldi í náttúruvernd hér á landi, sem megi að nokkru leyti rekja til þess að lög séu óskýr og ómarkviss.

Hvítbókin verður til umfjöllunar á Umhverfisþingi sem umhverfisráðuneytið efnir til 14. október. Í framhaldinu hefst opið umsagnarferli um bókina sem lýkur 1. desember. Að því loknu hefst vinna við gerð frumvarps um breytingar á náttúruverndarlögum þar sem umræðan á umhverfisþingi og framkomnar athugasemdir verða hafðar til hliðsjónar. Er gert ráð fyrir því að nýtt frumvarp til breytinga á náttúruverndarlögum komi til kasta Alþingis í vor.

Hægt er að  nálgast rafræna útgáfu af hvítbókinni á heimasíðu umhverfisráðuneytisins: http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1876

Lesa meira
 

27.8.2011 : Ályktanir samþykktar á flokksráðsfundi

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lauk um ellefu í dag. Til afgreiðslu á fundinum voru 18 ályktanir en hluta þeirra var vísað til stjórnar, þingflokks eða til frekari vinnslu í ályktanahóp fyrir landsfund sem verður síðustu helgina í október. Hægt er að lesa allar ályktanir sem samþykktar voru á fundinum með því að velja lesa meira.

Lesa meira
 

26.8.2011 : Flokksráðsfundur VG stendur yfir

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs stendur yfir á Hótel Loftleiðum. Fundurinn er að vanda öllum félögum opinn.

Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksráðs, setti fundinn klukkan fimm og fór yfir tillögur að ályktunum og starf málefnahópa sem þegar hafa tekið til starfa til undirbúnings landsfundar. Hildur Traustadóttir, gjaldkeri VG, kynnti svo ársreikninga sem verða lagðir fyrir landsfund til samþykktar. Flokksráðsfundurinn einkennist mjög af umræðu um innra starf og undirbúningi landsfundar en Auður Lilja Erlingsdóttir, framkvæmdastýra flokksins, fór yfir helstu dagssetningar í aðdragana landsfundar og skipulag fundarins almennt.  

Að lokinni kynningu á ályktunum og innra starfi fyrir landsfund kynnti Salvör Nordal tillögur Stjórnlagaráðs fyrir flokksráðsfundinum.

Nú standa yfir almennar stjórnmálaumræður og munu þær standa langt fram á kvöld enda hafa fundargestir um margvísleg málefni að ræða. Margir fagna brottför Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mjög. Í ræðum hafa félagar bæði fagnað nýrri rammaáætlun en á sama tíma lýst áhyggjum af því að hún gangi ekki nógu langt. Í almennum stjórnmálaumræðum hefur einnig verið lögð áhersla á vernd náttúruauðlinda, varað við auknum niðurskurði í velferðarkerfinu, lögð áhersla á að ljúka endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins og margt margt fleira.

Fundinum verður frestað klukkan hálf ellefu en hefst aftur klukkan tíu í fyrramálið. Þá tekur við afgreiðsla ályktana. Fyrir fundinum liggja 18 ályktanir um fjölbreytt málefni en að honum loknum hefst árleg sumarferð VG um slóðir hersetu og náttúruperla á Reykjanesi.

Lesa meira
 

24.8.2011 : Lagabreytinganefnd tekin til starfa

Nú hefur lagabreytinganefnd tekið til starfa. Í nefndinni sitja Guðrún Hallgrímsdóttir, Sóley Tómasdóttir, Sigurður Magnússon og Helgi Jóhannesson. Hlutverk nefndarinnar verður að halda utan um og vinna tillögur að breytingum á lögum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir landsfund sem haldinn verður á Akureyri 28.-30. október.

Allir félagar eru eindregið hvattir til að koma öllum ábendingum og tillögum um lagabreytingar til nefndarinnar. Best er að senda erindi á netfangið vg@vg.is. Samkvæmt lögum þurfa breytingartillögur á lögunum að berast í síðasta lagi 6 vikum fyrir landsfund, þ.e. 16. september.

Lög Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs má nálgast hér.

Lesa meira
 

24.8.2011 : Ályktun frá þingflokk VG

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs samþykkti eftirfarandi ályktun samhljóða á fundi sínum í gær.

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs gagnrýnir harðlega þá ákvörðun iðnaðarráðherra að setja stjórn Byggðastofnunar af og skipa nýja í hennar stað þvert á óskir VG. Jafnframt lýsir þingflokkurinn stuðningi við fráfarandi fulltrúa VG í stjórninni og þakkar þeim fyrir vel unnin störf.

Lesa meira
 
SteinunnogFifa

23.8.2011 : Steinunn og Fífa mættar til vinnu

Vegna fyrirsjáanlegs álags á skrifstofu flokksins í aðdraganda landsfundar sem og þingsetu framkvæmdastýru var tekin ákvörðun á síðasta fundi stjórnar VG að ráða starfsmann tímabundið fram yfir landsfund. Í gær mættu svo Steinunn Rögnvaldsdóttir og Auður Alfífa Ketilsdóttir (Fífa) til vinnu. Þær munu deila stöðunni með sér og aðstoða framkvæmdastýru við undirbúning landsfundar ásamt því að sinna fleiri verkefnum á skrifstofu flokksins. Þær eru hér með boðnar  velkomnar til starfa.

Steinunn er með netfangið steinunn@vg.is og síma 847-5601.

Steinunn er félagsfræðingur og meistaranemi í kynjafræði.

Fífa er með netfangið fifa@vg.is og síma 697-6782.

Fífa er bókmenntafræðingur og meistaranemi í hagnýtri menningarmiðlun.

Lesa meira
 

23.8.2011 : Flokksráðsfundur og sumarferð um helgina

Flokksráðsfund VG fer fram á Hótel Loftleiðum næstu helgi. Fundurinn hefst á föstudaginn kl. 17:00 og stefnt er að fundarslitum á laugardaginn kl. 12:00. Örlitlar breytingar hafa verið gerðar á áður boðaðri dagskrá en dagskrána í heild má sjá með því að velja lesa meira. Frestur til að skila inn ályktunum rennur út á miðnætti í kvöld 23. ágúst.

Að loknum flokksráðsfundi, kl. 14:00,  verður haldið í sumarferð VG. Rútan fer kl. 14:00 frá Hótel Loftleiðum. Nauðsynlegt er að þeir sem hafa hug á að mæta í sumarferðina en hafa ekki þegar skráð sig geri það sem allra fyrst í gegnum netfangið vg@vg.is. Nokkur sæti eru enn laus.

Lesa meira
 

29.7.2011 : Breytt staðsetning á flokksráðsfundi og sumarferð

Við könnun starfsmanna flokksins á aðstæðum á Stykkishólmi fyrir flokksráðsfund kom því miður í ljós að hótelið býður ekki upp á ásættanlegt aðgengi fyrir fatlaða þrátt fyrir upplýsingar þar um. Aðgengi hefur alltaf verið ein af meginforsendum að baki vali á fundarstað fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð enda ekki hægt að halda því fram að allir félagar séu velkomnir ef svo er ekki.

Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að flytja fundinn. Fundurinn verður því haldinn á áður auglýstum tíma, 26.-27. ágúst næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Formlegt fundarboð með dagskrá verður sent til flokksráðsfulltrúa strax eftir helgi.

Eftir flokksráðsfundinn verður svo haldið í sumarferðina sem var einnig breytt vegna aðstæðna.

Eftir sem áður þarf að skrá sig í hvoru tveggja fyrir 10. ágúst. Skráning fer fram í gegnum netið.

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

30.6.2011 : Rauðgrænir formenn funduðu á Grænlandi

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og fjármálaráðherra, sat um helgina landsfund Inuit Ataqatigiits (IA), systurflokks VG í Grænlandi, ásamt fleiri formönnum Rauðgrænu flokkanna á Norðurlöndunum. Á landsfundinum voru málefni Norðurslóða sett í öndvegi. Steingrímur hélt erindi á fundinum þar sem hann rakti aðdraganda kreppunnar á Íslandi, ræddi ríkisstjórnarsamstarfið og kynnti nokkur mikilvæg mál sem náðst hafa í gegn vegna þátttöku VG í fyrstu vinstri ríkisstjórninni á Íslandi.

Lesa meira
 
Lilja Rafney

15.6.2011 : Litla frumvarpið með stóra hjartað

Breytt lög um stjórn fiskveiða  voru samþykkt 11. júní síðastliðinn. Samþykkt frumvarpsins, sem í daglegu tali var nefnt litla fiskveiðistjórnunarfrumvarpið, leiðir til þess að hægt er að ráðstafa aflaaukningu með öðrum hætti en áður, þ.e. á annað máta en að hún renni sjálfkrafa á núverandi handhafa veiðiheimilda. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, fer hér þær breytingar sem gerðar voru á stjórn fiskveiða.  

Lesa meira
 
Ögmundur Jónasson

11.6.2011 : Austurríska leiðin samþykkt á Alþingi

Frumvarp Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um nálgunarbann og brottvísun af heimili, í daglegu tali nefnt austurríska leiðin, var samþykkt á Alþingi í gær.

Með austurrísku leiðinni er lögreglu veitt heimild til að fjarlægja ofbeldismann af heimili og banna honum heimsóknir þangað í tiltekinn tíma. Með þessu móti er viðurkennt að réttur þeirra er verða fyrir ofbeldi á heimili sínu hljóti að vega þyngra en þess er beitir ofbeldi.

Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi þingkona VG, lagði frumvarp þessa efnis fram árlega frá árinu 2003 til ársins 2008 en málið hlaut loks samþykki nú.   

Ögmundur Jónasson fagnaði við afgreiðslu málsins og sagði undarlegt að það væri fyrst nú sem þetta mikla framfaraskref væri tekið. Hann sagði að það hefði hins vegar ekki verið sjálfsagt mál þegar að Kolbrún Halldórsdóttir hóf þessa baráttu í þingsölum ásamt meðflutningsmönnum.

Lesa meira
 
steingrimur

9.6.2011 : Eldhúsdagsumræður á Alþingi

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, var fyrsti ræðumaður VG í eldhúsdagsumræðum á Alþingi 8. júní. Auk hans töluðu Auður Lilja Erlingsdóttir og Álfheiður Ingadóttir í umræðunum.

Steingrímur J. Sigfússon fór í ræðu sinni yfir þann árangur sem náðst hefur í ríkisfjármálum á þeim rúmu tveimur árum sem Vinstri Græn og Samfylking hafa setið í ríkisstjórn. Hann sagði þjóðina standa á efnahagslegum tímamótum og bjartara væri framundan. Steingrímur sagði umræðuna um stjórnmál og þjóðmál á Íslandi athyglisverða. Annars vegar væri fullkomlega eðlilegt að ræða þá erfiðleika sem við er að kljást, þeir væru til staðar og enginn vandi að fjalla um þá með gagnrýnum hætti. Hins vegar væri verra þegar ákveðin öfl beittu kröftum sínum til að rífa líka niður það sem þó gengi vel. Hann sagði Ísland hafa allt sem til þarf; Við erum ung, vel menntuð þjóð og eigum sterkt lífeyrissjóðakerfi þannig að aldurssamsetning okkar og lífeyrismál eru í góðum horfum til frambúðar. Við eigum mat, við eigum orku, við eigum vatn, við eigum landrými, við eigum öll þau gæði sem mannkynið mun mest þurfa á að halda á komandi áratugum. Það er bjart fram undan.

Auður Lilja Erlingsdóttir fór yfir þau réttlætismál sem náð hafa fram að ganga á yfirstandandi þingi og setti í samhengi við áralanga baráttu hugsjónafólks innan þings sem utan fyrir umhverfisvernd, femínisma og réttindum samkynhneigðra. Um leið gagnrýndi hún stuðning við aðgerðir NATO í Líbíu og lagði til nokkrar aðgerðir um næstu skref ríkisstjórnarinnar til að styðja við frið og afvopnun.

Álfheiður Ingadóttir sagði í ræðu sinni að á þessu kalda vori værum við óþyrmilega minnt á náttúruöflin sem móta landið okkar og okkur sjálf. Hún sagði náttúruöflin hafa kennt okkur að samstaða og samhjálp, þolgæði og bjartsýni sigra mótlæti. Það væri hins vegar annað mál þegar að hamfarirnar sem á okkur skella væri af mannavöldum líkt og hrunið sem skall á okkur haustið 2008. Þegar menn misstu vinnuna, töpuðu eignum, tækifærum til náms og þroska, jafnvel lönguninni til að taka þátt í að byggja upp nýtt samfélag á rústum hins gamla tóku reiði og vonbrigði völdin, eðlilega. Hún sagði þó orðið gullfiskaminni kvikna undir umræðum stjórnarandstæðunnar og bað fólk um að rugla ekki saman orsök og afleiðingu.

Hlusta má á ræður þingmannanna hér:
Steingrímur J. Sigfússon, Auður Lilja Erlingsdóttir og Álfheiður Ingadóttir.

Lesa meira
 

26.5.2011 : Fréttir úr umhverfisráðuneytinu

Á þessu vormisseri hefur í ráðuneyti umhverfismála verið unnið að ýmsum verkefnum. Er hér aðeins stiklað á því helsta sem verið hefur á döfinni en nálgast má ítar-legri upplýsingar á heimasíðu umhverfisráðuneytisins.

Mikilvægir áfangar hafa náðst í friðlýsingum svæða og tegunda. Umhverfisráðherra hefur sett náttúruverndarmál í forgang innan ráðuneytisins og var af því tilefni fengin að láni starfsmaður frá Umhverfisstofnun til að sinna sérstaklega friðlýsingum sem eru m.a. á náttúruverndaráætlun.

Lesa meira
 

21.5.2011 : Samþykktar ályktanir af flokksráðsfundi

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var slitið á hádegi. Fyrir hádegi fóru fram miklar og góðar umræður um þær ályktanir sem lágu fyrir fundinum. Fimm ályktanir voru samþykktar. Hægt er að lesa ályktanirnar með því að velja lesa meira. 

Lesa meira
 
Flokksráðsfundur1

20.5.2011 : Flokksráðsfundur hafinn

Flokksráðsfundur VInstrihreyfingarinnar - græns framboðs var settur á Grand Hóteli kl. 16:00 í dag. Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksráðs, setti fundinn, fór yfir dagskrána og kynnti umræður af málefnaþingum. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, hélt svo ræðu þar sem hann fór yfir stjórnmálaástandið. Steingrímur sagðist líta björtum augum á seinni hálfleik kjörtímabilsins, þar sem ríkisstjórnin færi loks að uppskera árangur þess erfiðis sem fylgt hefur tiltektinni eftir efnahagshrunið haustið 2008. Að því loknu tók við afar frjótt og skemmtileg hópastarf þar sem fundargestum gafst færi á að dýpa þá umræðu sem fram fór á málefnaþingum undanfarna mánuði. Nú standa yfir almennar stjórnmálaumræður þar sem sextán félagar hafa þegar tekið til máls um hin margvíslegustu efni. Góður andi og mikil samstaða ríkir á fundinum.

Lesa meira
 
katrin-toppur

20.5.2011 : Ný menntastefna og fleiri fréttir úr mennta- og menningarmálaráðuneyti

Að undanförnu hefur mikið hefur gengið á í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, sem stýrt er af Katrínu Jakobsdóttur, varaformanni Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Hefur fjölda mála sem lengi hafa verið í vinnslu verið lokið að undanförnu.

Þann 19. maí staðfesti Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra nýjar aðalnámskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Í þeim birtist ný menntastefna í anda Vinstri grænna og hefur það meginmarkmið að rækta með markvissum hætti þá þekkingu, leikni og viðhorf sem styrkir getu einstaklinga í framtíðinni til að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Kjarni menntastefnunnar er settur saman úr sex grunnþáttum: læsi, sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun.

Föstudaginn 13. maí sl. var gengið frá samkomulagi á milli mennta- og menningarmálaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms í landinu.

Markmið samkomulagsins er að efla tónlistarnám og gera tónlistarnemendum kleift að stunda nám sitt óháð búsetu. Með samkomulaginu tekur ríkissjóður yfir kostnað að fjárhæð 480 m.kr. vegna kennslu í söngnámi á mið- og framhaldsstigi og hljóðfæranámi á framhaldsstigi. Felur aðkoma ríkisins í sér að framlög til málaflokksins aukast um allt að 250 m.kr. á ári og að sveitarfélögin tryggja að nemendur geti stundað nám sitt án tillits til búsetu. 

 

Lesa meira
 

10.5.2011 : Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi

Aðalfundur kjördæmisráð VG í Suðurkjördæmi var haldinn laugardaginn 7. maí síðastliðinn. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hélt erindi á fundinum og svaraði fyrirspurnum fundargesta.

Stjórn kjördæmisráðs var endurkjörin en hana skipa Þórunn Friðriksdóttir, Úlfur Björnsson, Þorsteinn Ólafsson, Sigþrúður Jónsdóttir, Arndís Soffía Sigurðardóttir, Jórunn Einarsdóttir og Steinarr Bjarni Guðmundsson. Kjartan Ágústsson var endurkjörinn formaður. Fjöldi ályktana voru afgreiddar á fundinum, á honum ríkti góður andi og líf í tuskunum. Hægt er að lesa þær ályktanir sem fundurinn samþykkti með því að velja lesa meira.  

Lesa meira
 

29.4.2011 : Aðalfundur VG í Skagafirði ályktar

Á aðalfundi Vinstri grænna í Skagafirði sem fram fór í gær, 28. apríl, var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Aðalfundur svæðisfélags Vinstri-Grænna í Skagafirði, haldinn á Sauðárkróki 28.apríl 2011, harmar þá stöðu sem upp er komin meðal þingmanna og þingflokks VG en lýsir yfir fullum stuðningi við þá þingmenn sem standa við stefnumál flokksins hvort sem þau sitja innan þingflokks eða utan. 

Fundurinn hvetur því þingmenn flokksins til að leysa úr ágreiningsmálum, taka höndum saman og veita Samfylkingunni meira aðhald í stjórnarsamstarfinu á grundvelli stefnu flokksins og þá sérstaklega í velferðar og  utanríkismálum. 

Mörg stór mál bíða úrlausnar og mikilvægt er að VG hafi forustu um að leiða stjórn landsins áfram.  Nægur stuðningur er við ríkisstjórnina á Alþingi til að koma góðum málum áfram og standa vörð um velferð, réttlæti, jöfnuð, verndun náttúrunnar og þær auðlindir sem við eigum til sjávar og sveita.

 

Lesa meira
 

26.4.2011 : Ályktanir frá sameiginlegum fundi svæðisfélaga VG í Grunarfirði og Stykkishólmi

Á sameiginlegum fundi svæðisfélaga VG í Grundarfirði og Stykkishólmi voru samþykktar eftirfarandi ályktanir.

1. Vinstri græn í Grundarfirði og Stykkishólmi skora á stjórnvöld að leggja fram hið fyrsta tillögu að breytingum í sjávarútvegsmálum eins og báðir flokkar ríkisstjórnarinnar voru kosnir til.

2. Vinstri græn í Grundarfirði og Stykkishólmi lýsa vanþóknun á vinnubrögðum Samtaka atvinnulífsins að tengja saman pólitíska stjórnun og ákvarðanatöku á fiskveiðistjórn landsins og kjörum og kjarabótum launafólks.  Vinnubrögð og hagsmunagæsla af þessu tagi undirstrikar þá nauðsyn að þeir sem aðhyllast vinstristefnu og félagshyggju standi saman í þeirri baráttu sem stendur yfir um auðlindir Íslands og um framtíðarmöguleika komandi kynslóða til lífsviðurværis, jöfnuðar og tækifæra.    

3. Vinstri græn í Grundarfirði og Stykkishólmi krefjast þess að Ásmundur Einar Daðason segi af sér þingmennsku og hleypi á þing fulltrúa Vg sem styður ríkisstjórnina og er tilbúinn að vinna að stefnu Vg í víðu samhengi. 

Þar sem Ásmundur Einar tók þá ákvörðun að styðja ekki sitjandi ríkisstjórn sem Vg er aðili að heldur samþykkja vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins teljum við eðlilegt og sanngjant að Ásmundur Einar víki af þingi. 

Ákvörðun Ásmundar Einars er tekin án alls samráðs og án vitneskju félagsmanna Vg á áðurnefndu svæði enda hafa tengsl Ásmundar við félagsmenn Vg í Grundarfirði og Stykkishólmi verið í lágmarki frá kosningum.    

Við þær erfiðu aðstæður sem þjóðin stendur frammi fyrir og til að verja þann góða árangur sem þegar hefur náðst í endurreisn landsins eftir hrun frjálshyggjunnar er mikilvægt að alþingismenn horfi til framtíðar.  Eins máls málflutningur alþingismanna er ekki vænlegur til árangurs. 

Svæðisfélög Vg í Grundarfirði og Stykkishólmi lýsa yfir fullum stuðningi við ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Samfylkingarinnar.

 

Lesa meira
 

19.4.2011 : Félagsfundur VG á Akranesi

Vinstrihreyfingin - grænt framboð á Akranesi hélt félagsfund í gær, 18. apríl. Vel var mætt á fundinn og voru umræður líflegar. Fundurinn samþykkti að fela stjórn að boða sem fyrst til fundar með öllum þingmönnum í kjördæminu til að fara yfir þá stöðu sem nú er komin upp. Einnig samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun:  

Félagsfundur VG á Akranesi, haldinn  18. apríl 2011, harmar þá afstöðu sem þrír þingmenn flokksins hafa tekið með því að greiða atkvæði með vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins á ríkistjórn sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð á aðild að,  jafnframt því að segja sig úr þingflokki VG og stilla sér upp sem andstæðingum stjórnarinnar með þeim stjórnmálaflokkunum sem bera höfuðábyrgð á hruninu, það er Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum.

Félagsfundurinn skorar á Ásmund  Einar Daðason,  3.þingmann VG  og jafnframt 9. þingmann Norðvesturkjördæmis,  að segja nú þegar af sér sem  þingmaður þar sem hann hefur fyrirgert trausti þeirra sem kusu lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs við síðustu þingkosningar.

Lesa meira
 

19.4.2011 : Vinstri græn í Reykjavík skora á borgarbúa að mæta á palla borgarstjórnar í dag

Meirihluti borgarstjórnar áformar nú grófa aðför að náms og uppeldisumhverfi barna með sameiningum í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum. Vinnubrögð meirihlutans hafa verið fumkennd og einkennst af hraða og samráðsleysi og nú stefnir í að breytingunum verði komið á með valdboði í óþökk flestra þeirra sem málið snertir.  Ekki hefur með óyggjandi hætti verið sýnt fram á fjárhagslegan ávinning af þessum áætlunum og alls ekki faglegan ávinning. Farsælast væri ef meirihlutinn hefði kjark til að falla frá áformum sínum, enda má teljast líklegt að sökum samráðsleysis og flumbrugangs felist í breytingunum stórkostleg áhætta fyrir allt skólasamfélagið.


Stjórn Reykjavíkurfélags Vinstri grænna skorar á borgarbúa að mæta á palla borgarstjórnar í dag og standa með börnunum í borginni. Gerum okkar ítrasta til að sannfæra borgarfulltrúa Besta flokks og Samfylkingar. Stöndum vörð um hið mikla og góða starf sem unnið er með börnum Reykjavíkur. Það er okkar allra hagur.

Lesa meira
 

18.4.2011 : Ályktun af félagsfundi VG í Borgarbyggð

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á félagsfundi VG í Borgarbyggð sem haldinn var á Hvanneyri þann 17. apríl 2011:

Ríkisstjórnin tekst nú á við gríðarlega mikið og erfitt verk, hreinsunarstarf og skítmokstur eftir gegndarlausa óstjórn hægriflokkanna um langt árabil. Stefna VG miðar að því að byggja hér upp samfélag á grunni félagslegs jafnréttis og umhverfisverndar. Til þess að þessi uppbygging geti haldið áfram ríður á að þingmenn flokksins starfi í samræmi við stefnu hans og vinni saman að framkvæmd stefnunnar. Fundur VG í Borgarbyggð haldinn 17. apríl, lýsir yfir fullum stuðningi við ríkisstjórnina og harmar ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar, að starfa utan þingflokks Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs. Við teljum kröftum hans betur varið innan þingflokksins en utan. Kjósendur hans treystu á að hann myndi vinna með flokknum og þykir einnig miður að hann hafi ekki reifað þessa ákvörðun sína við sitt bakland í NV- kjördæmi.

Lesa meira
 

15.4.2011 : Aðalfundur svæðisfélags VG á Mið-Suðurlandi

Aðalfundur svæðisfélags VG á Mið-Suðurlandi var haldinn að Kaffi Langbrók í Fljótshlíð hinn 4. apríl 2011. Stjórn og varastjórn svæðisfélagsins var þar endurkjörin. Á aðalfundinum, undir liðnum önnur mál, fóru framumræður um landsmálin og einnig sveitarstjórnarmál almennt en líkt og í Vestmannaeyjum situr nú í fyrsta skipi fulltrúi Vg og óháðra í sveitarstjórn Rangárþings eystra. Umræður voru góðar og málefnalegar og snérust að miklu leyti um stöðu helstu atvinnugreinar í héraði, landbúnaðinn. Stjórninni var falið að semja ályktun þess efnis að áform um sameiningu einstakra ráðuneyta í eitt avinnuvegaráðuneyti bíði þar til þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur farið fram.

Stjórn svæðisfélagsins fundaði í dag, þann 14. apríl og skipti með sér verkum. Formaður er Ragnheiður Jónasdóttir, gjaldkeri er Ólafía Jakobsdóttir og ritari er Arndís Soffía Sigurðardóttir. Stjórnin samþykkti eftirfarandi ályktun:

Lesa meira
 
Arni Tor Sigurdsson NET

13.4.2011 : Yfirlýsing frá Árna Þór Sigurðssyni

Samkvæmt samþykktum þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er stjórn þingflokksins kjörin til eins árs í senn við upphaf haustþings.  Á fundi þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hinn 10. apríl sl. var kjörin ný stjórn í þingflokknum.  Fór kjörið fram í samræmi við samþykkt aðalfundar þingflokksins þann 4. október sl. en þar var eftirfarandi samþykkt gerð:

„Þingflokkurinn samþykkir, vegna sérstakra aðstæðna, að framlengja umboð fráfarandi stjórnar og fresta kosningu nýrrar stjórnar fyrir starfsárið 2010 – 2011 þar til núverandi formaður tekur á ný sæti á Alþingi að loknu fæðingarorlofi. Þangað til gegnir Árni Þór Sigurðsson formennsku í þingflokknum, Þuríður Backman varaformennsku, Lilja Rafney Magnúsdóttir gegnir starfi ritara þingflokksins og Atli Gíslason er varamaður.“

Tillagan var einróma samþykkt.

Í ljósi þessa lá fyrir þegar í haust að kosning stjórnar þingflokks færi fram þegar þáverandi formaður snéri úr fæðingarorlofi.  Það sem af er þessu þingi, og raunar gott betur, hefur undirritaður verið starfandi formaður þingflokksins og varð það niðurstaða aukins meirihluta þingflokksins að halda þeirri skipan til loka þingsins, en þá yrði kjörin ný stjórn í samræmi við samþykktir þingflokksins. 

Aldrei hefur hvarflað að mér að taka að mér starf sem ég nýt ekki stuðnings til eða skilyrða störf fyrir flokkinn eða stuðning minn við ríkisstjórn því að ég hefði með höndum tiltekin embætti.  Það kom mér í opna skjöldu að löngu ákveðinni kosningu um það eitt að ákveða skipan stjórnar þingflokksins þá fáu mánuði sem eftir lifa yfirstandandi þings yrði tekið með þeim hætti sem raun ber vitni.  Mér þykir miður að  það mál hefur að ósekju verið persónugert og tengt bæði kvenfrelsisstefnu flokksins og lögum um fæðingarorlof.  Sú umræða er skaðleg okkar flokki og þar með óásættanleg.

Kjör mitt í starf formanns þingflokksins hefur vakið mikla umræðu og reynst  umdeilt, enda þótt um 2/3 hlutar þingmanna flokksins hafi greitt mér atkvæði.  Í ljósi þessa og annarra aðstæðna, hef ég ákveðið að víkja úr starfi þingflokksformanns og vona að sú ákvörðun  verði til þess að sætta ólík sjónarmið innan þingflokksins.

Er það einlæg ósk mín að þingflokkurinn geti sameinast um öfluga og samhenta stjórn í þeim vandasömu og krefjandi störfum sem bíða þings og þjóðar á næstunni.

Lesa meira
 

13.4.2011 : Aðalfundur VG í Borgarbyggð

Aðalfundur VG í Borgarbyggð var haldinn á Hvanneyri þann 5. apríl síðastliðinn. Ný stjórn var kjörin en í henni sitja Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir formaður, Friðrik Aspelund ritari og Ingibjörg Jónasdóttir gjaldkeri, en hún situr áfram frá fyrra ári. Einnig voru endurkjörnar varamennirnir Hildur Traustadóttir og Anna Berg Samúelsdóttir. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa voru málefni sveitarfélagsins rædd m.a. í sambandi við eignarhlut í Orkuveitu Reykjavíkur auk þess sem starf UVG á svæðinu var kynnt.

Lesa meira
 
Ogmundur Jonasson NET

12.4.2011 : Frétt úr innanríkisráðuneyti: Mannréttindi fá aukið vægi

Mannréttindamál hafa fengið aukið vægi í innanríkisráðuneytinu en við stofnun þess um áramótin var ákveðið að einn sérfræðingur helgaði sig eingöngu þeim málaflokki. María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur hefur tekið við þessu sérfræðingsstarfi en hún sinnti áður verkefnum á sviði fjarskiptamála.

Mannréttindamál snerta nánast öll svið samfélagsins og því er um yfirgripsmikinn og vaxandi málaflokk að ræða. Með því að einn starfsmaður sinni málaflokknum í fullu starfi leggur ráðuneytið áherslu á að vel sé fylgst með allri umræðu og þróun á sviði mannréttindamála – á landsvísu jafnt sem heimsvísu – og að ráðuneytið hafi jafnan skýra stefnu í málaflokknum.

Mannréttindamál heyra undir skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga sem er ein af sex skrifstofum ráðuneytisins. Meðal verkefna á sviði mannréttinda má nefna að ráðuneytið hefur umsjón með lagabreytingum þegar þeirra er þörf vegna þjóðréttarlegra skuldbindinga og skýrslugjöf til nefnda um framkvæmd þeirra mannréttindasamninga sem Ísland er aðili að. Þá ber ráðuneytið ábyrgð vegna mála sem rekin eru gegn Íslandi fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu.

Þá má nefna að innanríkisráðherra hefur nýlega skipað vinnuhóp til að annast skýrslugerð vegna úttektar á stöðu mannréttindamála hér á landi og tekur hann til starfa á næstunni. Tilefnið er almenn endurskoðun á stöðu mannréttindamála í aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.

Tilgangurinn með þessari tilhögun er eins og áður segir að málefni er snerta hin ýmsu svið mannréttinda fái aukið vægi innan ráðuneytisins.

Lesa meira
 

10.4.2011 : Aðalfundur Vinstri grænna í Vestmannaeyjum

Aðalfundur VG í Vestmannaeyjum var haldinn 29. mars s.l. Auk venjulegra aðalfundarstarfa voru bæjarmál og landsmál rædd. Í fyrsta skipti í sögu hreyfingarinnar á VG bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum og sér þess þegar merki í umræðum og störfum  í bæjarstjórn.

Ný stjórn var kjörin og er hún þannig skipuð:

Jóhanna Njálsdóttir formaður

Margrét Lilja Magnúsdóttir gjaldkeri

Jórunn Einarsdóttir ritari

Auk bæjarmála voru landsmálin rædd og þar með úrsögn Atla Gíslasonar alþingismanns úr þingflokki VG. Í framhaldi af því var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða:

Lesa meira
 

8.4.2011 : Frétt frá Vinstri grænum á Akureyri

Samfylkingin og Vinstri grænn á Akureyri héldu í gær sameiginlegan fund á Hótel KEA um Icesave-málið. Segja má að um sögulega stund hafi verið að ræða þar sem þetta var í fyrsta sinn sem félögin funda saman með þessum hætti. Öðrum flokkum var boðið að taka þátt í fundinum sem þeir þáðu ekki.

Þingmenn kjördæmisins og fjárlaganefndarmennirnir Björn Valur Gíslason og Sigmundur Ernir Rúnarsson voru frummælendur á fundinum og kynntu Icesave-samninginn og röktu málið allt frá upphafi einkavæðingar bankanna til dagsins í dag.

Fjárlaganefndarmenn eru án efa þeir sem mest hafa um málið fjallað frá upphafi og hafa yfir bestu upplýsingum um það að ráða. Það vakti því athygli þegar 9 af 11 fjárlaganefndarmönnum komust að sameiginlegri niðurstöðu um þetta erfiða mál eftir ítarlega umfjöllun í nefndinni og samþykktu málið síðan í atkvæðagreiðslu um það á Alþingi. Niðurstaða þeirra var að best væri að ljúka málinu með þeim hætti sem nú er lagt til og felst í grunninn í því að nota eignir Landsbanka Íslands til að greiða innstæðueigendum það sem þeim ber, frekar en að valda meiri óvissu um málið til framtíðar með því að fella málið.

Lesa meira
 

2.4.2011 : Ávarp frá formanni og varaformanni flokksins

Ágætu félagar,

Undanfarið hefur staðið yfir fundarherferð forystu og þingmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um land allt. Þegar hafa verið heimsótt yfir 20 byggðarlög, haldnir um 40 fundir og fleiri munu bætast við fyrir vorið. Yfirskrift fundarherferðarinnar er ár uppbyggingar og tilefnið að ræða í okkar hópi á fundum í svæðisfélögum og hins vegar á almennum stjórnmálafundum vítt og breitt um landið um þau tvö ár sem Vinstri græn hafa setið í ríkisstjórn. Almennt hefur verið vel mætt á fundina, umræður hreinskiptnar og góðar og langflestir hvatt til þess að flokkurinn haldi ótrauður áfram því mikilvæga verkefni sem hann tók að sér með þátttöku í ríkisstjórn.

Lesa meira
 

31.3.2011 : Ályktun frá stjórn svæðisfélags VG á Hornafirði

Eftirfarandi ályktun var samþykkt af stjórn Vinstri grænna á Hornafirði. Félagar í Vinstrihreyfingunni Grænu framboði á Hornafirði harma þann ágreining innan þingflokks VG sem varð til þess að Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir sögðu skilið við þingflokkinn og takmörkuðu stuðning sinn við ríkisstjórnina. Við vitum það að sjaldan veldur einn er tveir deila. Einnig teljum við að starfskröftum Atla og Lilju hefði verið betur varið innan þingflokksins og sem formenn nefnda.

Við teljum ekki rétt að krefjast þess að Atli segi af sér þingmennsku, eða gera hann brottrækann úr flokknum. Þegar þingmaður tekur sæti er það í umboði sinna kjósenda en hvernig hann nýtir sitt umboð á hann eingöngu við sjálfan sig og sína samvisku, hvort sem okkur líkar það betur eða verr.  Ályktunina í heild sinni má sjá með að velja lesa meira.

Lesa meira
 

25.3.2011 : Ályktun frá Stjórn VG

Eftirfarandi ályktun var samþykkt af stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í dag. Stjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fordæmir allar aðgerðir í Líbíu sem ekki eru í samræmi við samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.  Umboð Sameinuðu þjóðanna til íhlutunar lýtur aðeins að flugbanni og aðgerðum til að verja óbreytta borgara.  Það er staðföst skoðun stjórnar VG að stríðsrekstur leysi engan vanda, heldur auki aðeins neyð og vanlíðan þeirra þjóða sem í hlut eiga. Íslendingar eiga aldrei að taka þátt í eða styðja aðgerðir af þessum toga, heldur stuðla að friðarumleitunum með öðrum hætti.  Stjórn VG lýsir stuðningi við baráttu almennra borgara í Arabalöndum fyrir lýðræði og mannréttindum og gegn kúgun og ánauð.

Lesa meira
 
Arni Tor Sigurdsson NET

25.3.2011 : Líbía og ábyrgð alþjóðasamfélagsins - Grein eftir Árna Þór Sigurðsson

Í grein í Fréttablaðinu í dag fer Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, yfir átökin í Líbíu og ábyrgð alþjóðasamfélagins hvað þau varðar. Þar segir hann m.a. "Átökin í Líbíu og hernaðarleg íhlutun nokkurra vestrænna ríkja í landið vekja miður góðar tilfinningar.  Vandinn sem við blasir er ekki auðleystur, ekki frekar en annars staðar þar sem stríðsátök af hvaða rótum sem er geysa.  Þeir sem berjast fyrir friði, mannréttindum og lýðræði, hafa ævinlega mótmælt hvers konar hernaðarhyggju og hernaðarlegri íhlutun enda sanna dæmin mýmörg að slíkt er sjaldnast til þess fallið að leysa þann vanda sem þeim er í orði kveðnu ætlað að leysa.  Á hinn bóginn eru einnig dæmi um hitt, að óð stjórnvöld hafi komist upp með þjóðarmorð og skelfilega stríðsglæpi meðan alþjóðasamfélagið aðhafðist ekkert til að afstýra slíkum hörmungum." Árni segir ennfremur að allar aðgerðir af hálfu alþjóðasamfélagsins verði að byggjast á víðtækri samstöðu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og í umboði þeirra og að löngu tímabært að gerðar séu gagngerar breytingar á skipan þessara mála innan SÞ." Greinina er hægt að nálgast í heild sinni með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

25.3.2011 : Ríkisstjórnin hefur ekki lýst yfir stuðningi við loftárásir á Líbíu

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir það misskilning að ríkisstjórnin, hvað þá Vinstri græn, hafi lýst yfir stuðningi við loftárásir á Líbíu. ,,Það eina sem ríkisstjórnin ræddi í þessu sambandi var sjálf ályktun öryggisráðsins og fjárstuðningur bæði við Líbíu og Japan í samstarfi við Rauða krossinn. Í stuttum umræðum í ríkisstjórn var samhljómur hvað það snertir að flugbann og aðgerðir sem eingöngu miðuðu að því að vernda óbreytta borgara, eins og ályktunin gengur út á, væri það besta sem hægt væri að gera í stöðunni. Það þýðir að sjálfsögðu ekki að ríkisstjórnin, og enn síður Vinstri græn, styðji loftárásir sem kosti óbreytta borgara lífið.“

Steingrímur segir að því miður bendi margt til þess að einstök ríki séu þegar komin út fyrir það sem eðlilegt geti talist í aðgerðum sínum til að framfylgja flugbanni. Hann telji óverjandi að gerðar séu loftárásir á byggingar inn í borgum, slíkt eigi til að snúast upp í andhverfu sína og kosta óbreytta og saklausa borgara lífið og aðgerðirnar séu þar með farnar að valda því sem þær áttu að afstýra.

Von manna hafi verið og sé enn sú að svipuð þróun gæti orðið í Líbíu og í Egyptalandi að með sem minnstum mannfórnum losnaði líbíska þjóðin undan harðstjórn og manneskjulegra stjórnarfar kæmist á. Sama gildi um Jemen, Bahrein og fleiri lönd í miðausturlöndum þar sem undirokaður almenningur hafi risið upp að undanförnu og krafist umbóta.     

Þetta kemur fram í frétt á Smugunni. Hægt að nálgast fréttina í heild sinni á þessari slóð á vefritinu smugan.is.


 

Lesa meira
 

24.3.2011 : Ályktun frá stjórn kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördmæmi

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi skorar á þingmenn og ráðherra flokksins að halda ótrauðir áfram við endurreisn íslensks samfélags á grundvelli samstarfssamnings ríkisstjórnarflokkanna.

Ríkisstjórnin fékk í fangið risavaxin verkefni vorið 2009 og nú þegar hillir undir árangur af hinu erfiða starfi er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að halda hægriflokkunum utan Stjórnarráðsins. Margt hefur áunnist á síðastliðnum tveimur árum þrátt fyrir þær gríðarlega erfiðu aðstæður sem ríkt hafa í landinu frá hruni frjálshyggjunnar.

Kjördæmisráðið hvetur þingflokk VG til að standa einarðlega saman um að stefna áfram að settu marki.

Lesa meira
 

23.3.2011 : Ályktun frá stjórn Vg í Árborg

Stjórn Vg í Árborg harmar úrsögn Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki Vg.

Stjórnin væntir jafnframt góðs samstarfs við þingmann sinn, sem ætlar að starfa áfram innan Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og fylgja stefnu hreyfingarinnar.

Stjórnin telur mikilvægt að þingmaður Vg í kjördæminu taki virkan þátt í þeirri mikilvægu stefnumótun og vinnu sem fram þarf að fara í þingflokki Vg við úrlausn vandasamra verkefna, bæði heima í héraði og á landsvísu.

Stjórn Vg í Árborg lýsir yfir stuðningi við sitjandi ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar.

Lesa meira
 

22.3.2011 : Ályktun frá stjórn VG á Mið-Suðurlandi

Stjórn svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Mið- Suðurlandi lýsir yfir vonbrigðum með úrsögn Atla Gíslasonar úr þingflokki VG. Með úrsögn hans úr þingflokknum hafa kjósendur Suðurkjördæmis ekki lengur aðgang að stjórnarþingmanni úr röðum VG og slík staða veikir verulega málefnabaráttu VG í kjördæminu. Aukið fylgi við VG í undangengnum kosningum í  Suðurkjördæmi hefur ekki verið Atla Gíslasyni einum að þakka heldur einnig óeigingjörnu félagsstarfi grasrótar flokksins í kjördæminu. Stjórn svæðisfélags VG á Mið-Suðurlandi telur rétt að Atli Gíslason víki sæti á Alþingi þannig að afrakstur þeirrar vinnu tapist ekki.

Stjórn svæðisfélagsins lýsir yfir fullum stuðningi við ríkistjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Samfylkingarinnar og óskar henni velfarnaðar við endurreisn landsins.

Lesa meira
 

22.3.2011 : Vinstri græn á Akureyri funda um málefni Norðurslóða

Á málefnaþingum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um umhverfismál og utanríkismál í haust kom fram skýr vilji félaga til að málefni Norðurslóða yrðu tekin sérstaklega fyrir í flokknum.  Eftir umræður í stjórn flokksins var ákveðið að fela Vinstri grænum á Akureyri að halda utan um starfið. Mikil þekking og reynsla á málefnum Norðurslóða hefur þegar skapast á Norðurlandi bæði meðal opinberra stofnanna, félagasamtaka og í einkageiranum. Háskólinn á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Caff og Pame, NRF  eru þar í lykilhlutverki.

Myndaður var hópur fólks fyrir norðan og hefur verið fundað nokkrum sinnum. Auk þess hafa verið haldnir opnir um málið m.a. einn þar sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra,  mætti og fór yfir málefni Norðurslóða út frá stöðunni í sínu ráðuneyti.  Á næstunni verða haldnir fleiri opnir fundir en endanlegt markmið hópsins er að móta áherslur varðandi málefni Norðurslóða fyrir landsfund í haust.

Þann 17. mars síðastliðinn hélt Embla Eir Oddsdóttir verkefnisstýra erindi um málefni Norðurslóða á opnum fundi VG á Akureyri. Fundurinn sendi frá sér meðfylgjandi ályktun:

Lesa meira
 

22.3.2011 : Ályktun frá stjórn VG á Suðurnesjum

Stjórnarfundur VG á Suðurnesjum haldinn í Reykjanesbæ  21. mars 2011 lýsir yfir stuðningi við ríkisstjórnina í þeim mikilvægu málum og erfiðu verkefnum sem hún stendur frammi fyrir eftir að hægriöflin rústuðu efnahag þjóðarinnar með taumlausri frjálshyggju. Fundurinn treystir þingflokki VG til að fylgja fast eftir stefnumálum flokksins og standa vörð um vinstri gildi í stjórnarsamstarfinu.

Stjórnin harmar deilur innan þingflokks VG og lýsir yfir vonbrigðum með úrsögn  Atla Gíslasonar, þingmanns okkar, úr þingflokknum, en hann hefur unnið kjördæmi sínu vel. Fundurinn hvetur þingmanninn til að stíga til hliðar og heypa að Arndísi Soffíu Sigurðardóttur, varaþingmanni okkar, sem við berum fullt traust  til.

Lesa meira
 

21.3.2011 : Ályktun frá stjórn kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi

Stjórn kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi harmar úrsögn Atla Gíslasonar, þingmanns, úr þingflokki VG og lýsir yfir vonbrigðum með að þingmaðurinn skuli ekki hafa rætt fyrirætlanir sínar við stofnanir og grasrót flokksins í kjördæminu. Þrátt fyrir yfirlýsingar Atla um að starfa á Alþingi eftir stefnu VG, telur stjórnin að um trúnaðarbrest sé að ræða þannig að Atla Gíslasyni sé ekki lengur sætt í umboði kjósenda VG á Suðurlandi.

Ennfremur lýsir stjórn kjördæmisráðs yfir stuðningi við ríkisstjórn VG og Samfylkingar.

Lesa meira
 

21.3.2011 : Ályktun frá stjórn VG í Vestmannaeyjum

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Vestmannaeyjum lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun Atla Gíslasonar þingmanns hreyfingarinnar í Suðurkjördæmi að segja sig úr þingflokki VG.  Með úrsögninni telur stjórnin að Atli sitji ekki lengur á Alþingi í umboði kjósenda VG í kjördæminu.

Þess vegna skorar stjórnin á Atla að segja af sér þingmennsku svo varamaður hans geti tekið sæti á Alþingi.

Stjórn VG í Vestmannaeyjum ítrekar fullan stuðning sinn við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar og lýsir yfir ánægju með þann árangur sem náðst hefur á fjölmörgum sviðum þjóðmála við einar erfiðustu aðstæður sem nokkur ríkisstjórn hefur þurft að glíma við. Afar mikilvægt er að ríkisstjórnin geti áfram starfað við að leysa þau mikilvægu og erfiðu verkefni sem fram undan eru á sviði efnahags- og atvinnumála, jafnaðar, jafnréttis, umhverfis- og auðlindamála.

Lesa meira
 

21.3.2011 : Yfirlýsing frá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir vonbrigðum með að þingmennirnir Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafi ákveðið að segja skilið við þingflokkinn.  Þingflokkurinn þakkar þeim samstarfið og óskar þeim velfarnaðar.  Í tengslum við ákvörðun þeirra hefur þingflokkurinn gengið frá breytingum á skipan í þingnefndir.

Það er von þingmanna Vinstri grænna að þrátt fyrir ákvörðun Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur um að yfirgefa þingflokkinn styðji þau áfram ríkisstjórnina og uppbyggingu landsins úr rústum nýfrjálshyggju- og einkavæðingarstefnunnar.

Þingflokkurinn mun halda starfi sínu ótrauður áfram og þátttöku í ríkisstjórninni sem hefur náð miklum árangri nú þegar við erfiðar aðstæður við að endurreisa efnahag landsins. Þingmenn VG munu hér eftir sem hingað til vinna í anda stefnu flokksins, samþykkta landsfunda og flokksráðsfunda.

Lesa meira
 

20.3.2011 : Yfirlýsing Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar 21. mars 2011

Á fundi þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í dag skýrðum við frá þeirri ákvörðun okkar að segja skilið við þingflokkinn. Þessa ákvörðun tökum við að vel yfirveguðu ráði. Þótt við eigum marga góða samherja innan þingflokks VG treystum við okkur ekki lengur til að styðja skilyrðislaust núverandi ríkisstjórn eða bera ábyrgð á þeirri stefnu og þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið allt frá því hún tók til starfa. Við lítum ekki svo á að við séum að bregðast kjósendum okkar. Þvert á móti hefur þingflokkurinn og forysta VG orðið viðskila við kosningaloforð sín og grundvallarstefnu í veigamiklum atriðum. Eftirfarandi atriði viljum við nefna í þessu samhengi:

Lesa meira
 

19.3.2011 : Ályktanir aðalfundar svæðisfélags VG á Suðurnesjum 17. mars 2011

Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á aðalfundi VG á Suðurnesjum þann 17. mars síðastliðinn. 

Auðlindina aftur til þjóðarinnar: Fundurinn brýnir ríkisstjórnina til þess að tryggja sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum með því að „leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka“, eins og segir í stjórnarsáttmálanum. Brugðist verði við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og atvinnufrelsi tryggt með því að gera vistvænar handfæraveiðar frjálsar. Jafnframt verði þegar í stað komið í veg fyrir frjálst framsal á veiðiheimildum.

Starfsemi Landhelgisgæslunnar og fangelsi til Suðurnesja: Í ljósi atvinnuástands á Suðurnesjum beinir aðalfundur VG á Suðurnesjum því til stjórnvalda að taka þegar í stað ákvörðun um að flytja til Suðurnesja Landhelgisgæsluna og starfsemi sem henni tengist. Jafnframt að aukinni þörf á fangaklefum verði mætt með því að nýta húsnæði sem er fyrir hendi á Ásbrú.

Lesa meira
 

10.3.2011 : Þingflokkur VG ályktar

Þingflokkur VG sendi frá sér eftirfarandi ályktun í gær. Þingflokkur Vg ályktar að vinna gegn því að ofurlaunastefna sú sem hér geisaði fyrir bankahrun verði endurvakin.  Launajöfnuður og réttlát tekjuskipting eru baráttumál íslensks félagshyggjufólks sem krefst þess að ofurlaunum verði mætt með viðeigandi sköttum.

Lesa meira
 
svandis

20.2.2011 : Flækjur í Flóanum

Hæstiréttur hefur eins og alþjóð er kunnugt dæmt ákvörðun mína um að synja staðfestingu þess hluta aðalskipulags Flóahrepps sem varðaði Urriðafossvirkjun ógilda. Margir hafa haft uppi stór orð af þessu tilefni og hætt er við að mikilvæg lagarök og efnisatriði hafi fallið í skuggann af þeim fyrirgangi í umfjöllun fjölmiðla um þetta mál.

Í umræddu dómsmáli var fyrst og fremst deilt um heimild framkvæmdaaðila til að standa straum af kostnaði við gerð aðalskipulags. Ég taldi aðkomu Landsvirkjunar að skipulagi Flóahrepps ekki standast lög enda enga orðaða heimild að finna í lögunum. Þá hafði samgönguráðherra áður úrskurðað að 6. gr. samnings þessara aðila um greiðslu fyrir gerð skipulags væri ólögmæt. Þegar til þess úrskurðar samgönguráðherra kom hafði umboðsmaður Alþingis fjallað um málið.

Lesa meira
 

18.2.2011 : Samkomulag um friðlýsingu á Langasjó og hluta Eldgjár

Umhverfisráðuneytið og sveitarstjórn Skaftárhrepps hafa náð samkomulagi um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs innan lögsögu sveitarfélagsins. Samkvæmt samkomulaginu mun verða unnið að friðlýsingu á Langasjó, hluta Eldgjár og nágrennis eins og lagt er til í Náttúruverndaráætlun 2009-2013. Innan þessa svæðis eru náttúruminjar sem taldar eru hafa mikið gildi á heimsvísu, auk hins háa útivistar, fræðslu og vísindagildis svæðisins.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir samkomulagið tímamótaáfanga í náttúruvernd hér á landi. Langisjór og nágrenni sé einstök náttúruperla sem verði vernduð fyrir komandi kynslóðir samkvæmt þessari ákvörðun. Hún segir mjög ánægjulegt að samkomulag hafi náðst um þetta við sveitarstjórn Skaftárhrepps.

Lesa meira
 

14.2.2011 : Vinstri græn í Vestmannaeyjum styðja ríkisstjórnina

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á félagsfundi VG í Vestmannaeyjum um helgina:

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Vestmannaeyjum haldinn 12. febrúar 2011 lýsir yfir fullum stuðningi við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar og ánægju með þann árangur sem náðst hefur á fjölmörgum sviðum þjóðmála við afar erfiðar aðstæður. Það sýnir að ríkisstjórnin er á réttri leið í vinnu sinni við hin mikilvægu verkefna á sviði efnahags- og atvinnumála, jafnaðar, jafnréttis, umhverfis- og auðlindamála. Fundurinn hvetur þingflokk Vinstri grænna og aðrar stofnanir flokksins til að vinna af eindrægni að lausn þeirra mikilvægu verkefna sem við blasa.

Lesa meira
 

8.2.2011 : Opinn stjórnmálafundur á Dalvík

Fundarröð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs „Ár uppbyggingar“ heldur áfram í þessari viku en til þessa hafa þingmenn og forysta flokksins heimsótt um 20 staði og haldið opna fundi. Fundurinn í kvöld var á Dalvík með þingmönnum VG í kjördæminu Steingrími J., Þuríði Backman og Birni Val Gíslasyni. Fjölmenni var á fundinum á Dalvík og miklar umræður.
 
Á fundinum á Dalvík rakti Steingrímur J. stöðu þjóðarbúskapsins nú rúmlega tveimur árum eftir hrun. Benti hann á að miðað við fyrstu spár eftir hrun væri staðan nú mun betri en nokkur þorði að vona. Hrunið á Íslandi var eitt það stærsta sem nokkur þjóð sem nú glímir við kreppuerfiðleika hefur þurft að standa frammi fyrir. Engu síður væri staðan sú að rúmlega tveimur síðar er merkjanlegur viðsnúningur hafinn í hagkerfinu.

Lesa meira
 
Ogmundur Jonasson NET

28.1.2011 : Greinargerð innanríkisráðherra um framkvæmd kosninga til stjórnlagaþings

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra flutti Alþingi í gær munnlega skýrslu um framkvæmd kosninga til stjórnlagaþings. Þar segir Ögmundur að lýðræðislegar kosningar séu vandasamt verk, allt frá löggjöf til framkvæmdar í einstaka sveitarfélögum. Hann segir "Stjórnlagaþingskosningarnar voru verkefni sem enginn hafði staðið frammi fyrir áður hér á landi. Þar var ekki einungis kosið persónukosningu í fyrsta sinn heldur var fjöldi frambjóðenda slíkur að ófyrirséð vandamál komu upp nánast á degi hverjum. Unnið var samkvæmt nýju fyrirkomulagi og við gerð laganna sem um það giltu hafði ekki verið séð við öllum þeim tilvikum sem upp gætu komið við framkvæmdina. Af hálfu þeirra sem stóðu að framkvæmdinni var unnið að heilindum og það var skilningur allra sem að því starfi komu að ákvarðanir sem teknar voru hefðu verið í fullu samræmi við lagabókstafinn. Nú hefur Hæstiréttur Íslands komist að annarri niðurstöðu. Sú niðurstaða er tekin alvarlega og varðar veginn fram á við." Greinargerðina má lesa í heild sinni hér.

Lesa meira
 

28.1.2011 : Trúnaðarbrestur í Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur

1-soleytomasdottir,,Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur hefur nú sagt með afar skýrum hætti að hann telji æskilegt að einkavæða fyrirtækið,” segir Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi VG sem ætlar að fara fram á að eigendurfundur veði boðaður hið fyrsta enda hafi spurningar vaknað um hvort stjórnarformaðurinn njóti nægilegs trausts til að halda áfram. ,,Hann sagðist ekki sjá hvaða yfirburði orkufyrirtæki í opinberum rekstri hafi framyfir þau sem eru í einkaeigu, að lögboðin þjónusta og samkeppnisrekstur fari illa saman og að fyrirtækinu væri almennt betur borgið í höndum einkaaðila en sveitarfélaga,” segir Sóley og segir að þarna hjóti að vera um trúnaðarbrest að ræða.

Lesa meira
 

27.1.2011 : Ný stjórn VG í Kópavogi kosin á aðalfundi

VG-KopNý stjórn Vinstri grænna í Kópavogi var kjörin sam-hljóða á fjölmennum aðalfundi félagsins.

Í stjórninni sitja:

Arnþór Sigurðsson, formaður

Þóra Elfa Björnsson

Helga Reinardsdóttir

Svava Hrönn Guðmundsdóttir

Þorleifur Friðriksson

Guðný Dóra Gestsdóttir, varamaður

Einar Ólafsson, varamaður

Lesa meira
 

21.1.2011 : Stuðningur við ríkisstjórnina

Í gær, fimmtudaginn 20. janúar var haldinn opinn stjórnmálafundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík. Fundurinn var vel sóttur og fóru þar fram líflegar og góðar umræður. Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun til stuðnings ríkisstjórnarinnar.

 

Fundur Vinstri grænna í Reykjavík haldinn þann 20. janúar 2011 lýsir yfir stuðningi við ríkisstjórn VG og Samfylkingar.

Ennfremur fagnar fundurinn þeim árangri sem náðst hefur síðast liðin tvö ár. Gengið hefur styrkst, verðbólga lækkað, vöruskiptajöfnuður er orðinn jákvæður og stýrivextir hafa verið lækkaðir svo um munar.

Fundurinn beinir því til ríkisstjórnarinnar að halda áfram sínu góða verki og byggja hér samfélag sjálfbærni, jöfnuðar og jafnréttis.

 

Lesa meira
 
1-soleytomasdottir

20.1.2011 : Tillaga til að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu strætó felld

Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar felldi tillögu Vinstri grænna um að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu Strætó bs á borgarráðsfundi í dag þrátt fyrir að allmargir fulltrúar Besta flokksins, þ.m.t. borgarstjórinn sjálfur hefðu fullyrt að þeir myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að tryggja óbreytta þjónustu. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrú VG, lagði fram bókun þar sem kemur fram að ákvörðunin sé í andstöðu við stefnu Umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar  í málaflokknum og rýrir því ekki aðeins trúverðugleika flokkanna tveggja, heldur einnig stjórnkerfis borgarinnar og hlutverk fagráða..

Lesa meira
 
Picture-113

20.1.2011 : Ályktun til stuðnings ríkisstjórnarinnar frá VG í Kópavogi

Á fjölmennum félagsfundi VG í Kópavogi var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Félagsfundur Vinstri grænna í Kópavogi haldinn 19. janúar 2011 lýsir yfir fullum stuðningi við ríkisstjórnina og ánægju með árangur sem náðst hefur á mörgum sviðum þjóðmála við erfiðar aðstæður. Fundurinn treystir því að þingflokkur Vinstri grænna og aðrar stofnanir flokksins vinni af eindrægni að lausn þeirra mikilvægu verkefna á sviði efnahags- og atvinnumála, jöfnuðar, jafnréttis, umhverfis- og auðlindamála sem við blasa.

 

Lesa meira
 
Ár uppbyggingar_fél.fundur_Hafnarfjörður

19.1.2011 : Einarður stuðningur við stjórn VG og ríkisstjórnina

Á félagsfundi VG í Hafnarfirði sem var liður í fundaröð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um land allt var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Fundur svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs, VG í Hafnarfirði, haldinn 18. janúar 2011, lýsir yfir eindregnum stuðningi við lýðræðislegar meirihlutaákvarðanir landsfunda, flokksráðs, stjórnar og þingflokks VG. Fundurinn minnir sérstaklega á samþykkt flokksráðsfundar frá 20. nóvember sl. hvað varðar fullan stuðning við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Fundurinn hvetur til fyllstu samstöðu og einingar allra vinstri- og umhverfisverndarsinna til stuðnings ríkisstjórninni í ötulli baráttu hennar fyrir betra samfélagi á erfiðum tímum.

Vinstrihreyfingin Grænt framboð er opinn lýðræðislegur stjórnmálaflokkur þar sem ákvarðanir eru teknar á lýðræðislegum forsendum af þar til lýðræðislega kjörnum stofnunum flokksins. Allir flokksmenn skulu jafnir og skulu hafa sömu möguleika hvað það varðar að koma skoðunum sínum á framfæri innan flokksins. Ákvörðunum teknum af stofnunum flokksins skulu allir þeir hlýta sem telja sig fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs og þar með kjósenda flokksins. Samskipti flokksmanna VG skulu einkennast af gagnkvæmri virðingu, ást og kærleika. Slíkt er forsenda þess að okkur muni takast að byggja réttlátt þjóðfélag.

Lesa meira
 
Ár uppbyggingar fundaröð

18.1.2011 : Það er að liðkast til

„Það er að liðkast til“ sagði einn gesta á stjórnmálafundi sem Vinstri græn héldu á Sauðárkróki síðastliðinn föstudag. Eru þessi ummæli lýsandi fyrir þann anda sem verið hefur á fundum í fundaröð sem hreyfingin hefur haldið víða um land undanfarna viku undir yfirskriftinni Ár uppbygggingar.

Undanfarna viku hefur Steingrímur J. Sigússon, formaður hreyfingarinnar og fjármálaráðherra,  ásamt fjölda þingmanna og ráðherra hreyfingarinnar heimsótt Egilsstaði, Akureyri, Sauðárkrók, Borgarnes, Akranes, Árborg og Reykjanesbæ. Auk þess að standa fyrir stjórnmálafundum á hverjum stað hafa sveitastjórnir, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir verið heimsóttar þar sem færi hefur gefist til.

Lesa meira
 

18.1.2011 : Stuðningsyfirlýsing við ríkisstjórnina frá Árborg

Ár uppbyggingar_alm.fundur_SelfossÁ fjölmennum félagsfundi VG í Árborg sem var liður í fundaröð VG um land allt var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Almennur stjórnmálafundur á vegum VG í Árborg haldin í Hótel Selfoss, 16. janúar 2011, lýsir yfir áframhaldandi stuðningi við starfandi ríkistjórn VG og Samfylkingar.

Lesa meira
 

9.1.2011 : Ár uppbyggingar!

Lógó VG grænt rauttVið upphaf nýs árs boðar Vinstrihreyfingin - grænt framboð til félagsfunda og almennra stjórnmálafunda. Forystufólk VG mætir á fundi um allt land í janúar til að hitta félagsmenn.

 

Á fundunum verður rætt um flokksstarfið, stöðu VG og farið verður í málefnavinnu og undirbúning landsfundar. Sveitastjórnir, vinnustaðir, stofnanir og félagasamtök viðkomandi byggðarlaga verða heimsótt eftir því sem tími leyfir.

 

Í kjölfar félagsfundanna verða almennir stjórnmálafundir sem opnir eru öllum þeim sem hafa áhuga á stöðunni í íslenskum stjórnmálum og ekki síst þeim krefjandi og áhugaverðu verkefnum sem framundan eru.

Lesa meira
 

4.1.2011 : Vinstri græn í Reykjavík álykta um úttekt á stjórnsýslu Reykjavíkurborgar

Á fundi borgarstjórnar í dag, þriðjudag, verður lögð fram tillaga meirihluta borgarráðs um úttekt á stjórnsýslu borgarinnar. Tillagan er í veigamiklum atriðum ósamhljóða tillögu sem borgarráð samþykkti 6. maí sl. Í tilefni þessa sendir stjórn VGR frá sér ályktun þar sem skorað er á borgarstjórn Reykjavíkur að standa við samhljóða samþykkt borgarráðs frá 6. maí, 2010, um skipan nefndar þriggja óháðra sérfræðinga sem hafi það verkefni að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Stjórn VGR telur nauðsynlegt að raunverulegt uppgjör í anda skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis fari fram til þess að stjórnsýslan endurheimti traust almennings.

Lesa meira
 

31.12.2010 : Áramótakveðja

Vinstrihreyfingin - grænt framboð óskar landsmönnum öllum farsældar á nýju ári og þakkar stuðninginn á árinu sem er að líða. Megi hið nýja ár boða gæfu og frið. 

Lesa meira
 
jola-vg-logo

23.12.2010 : Jóla- og áramótakveðja til félaga og stuðningsmanna 

Viðburðaríkt ár er senn að baki. Sagan mun sýna að þegar upp var staðið skilaði árið 2010 Íslendingum heilmikið áleiðis í glímunni við erfiðleikana sem hér börðu harkalega að dyrum í októberbyrjun 2008. Margt hefur áunnist en öðru miðað hægar en skyldi, eins og gengur. Við þurfum að sjálfsögðu að líta í eigin barm og spyrja okkur, hvar hefðum við átt að geta gert betur? Af hverju hefur t.d. gengið eins hægt og raun ber vitni að vinna úr skuldamálum heimila og fyrirtækja þó nú sé loks sannanlega kominn aukinn skriðþungi í þau mál?

Önnur nærtæk spurning er hvort við séum að reyna að gera of margt og of mikið í einu? Ættu einhver umbótaverkefni, stefnumótunarverkefni, stjórnkerfisbreytingar og fleira þvíumlíkt að mæta meiri afgangi meðan kröftunum er beint meira einvörðungu að úrvinnslu hrunsins sjálfs og endurreisninni? Við slíku er erfitt að gefa einhlít svör. Aðstæðurnar eru einfaldlega þannig að gera verður margt í senn. Ríkisstjórn og Alþingi hafa aldrei í sögu lýðveldisins glímt við jafn erfið, stór og krefjandi verkefni og þau hafa gert að undanförnu.

Lesa meira
 

10.12.2010 : Sóley Tómasdóttir skrifar um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar

1-soleytomasdottir

Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík gagnrýnir forgangsröðun Besta flokksins og Samfylkingarinnar í meðfylgjandi grein. Í greininni sýnir hún fram á ósanngirni gjaldskrárhækkana þegar útsvarsheimildir eru ekki fullnýttar.

Lesa meira
 

3.12.2010 : Aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna skulda- og greiðsluvanda heimilanna

Ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi við lánastofnanir og lífeyrissjóði um víðtækar aðgerðir vegna skulda- og greiðsluvanda heimilanna. Aðgerðirnar byggja á umfangsmiklu samráði við hagsmunaaðila og sameiginlegri greiningu þeirra á umfangi vandans og mögulegum úrræðum til lausnar. Meginefni samkomulagsins er eftirfarandi:

Lesa meira
 

20.11.2010 : Ályktanir af flokksráðsfundi

Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur lokið flokksráðsfundi sínum sem fram fór í Hagaskóla í Reykjavík um helgina. Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fundinum.

Lesa meira
 

19.11.2010 : Flokksráðsfundur hafinn

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hófst um fimmleytið í dag. Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksráðs, setti fund og fór yfir vinnu í hópum og þau málefnaþing sem haldin hafa verið í haust, þ.e. starfshóp um vinnulag innan flokksins, málefnaþing um umhverfismál og málefnaþing um utanríkismál. Þessi málefnaþing eru tvö þau fyrstu af fimm fyrirhuguðum málefnaþingum um stefnustoðir flokksins, vettvangur fyrir félaga til umræðna og upptaktur fyrir landsfund.

Lesa meira
 
Katrín jakobsdóttir

18.11.2010 : Fréttir úr menntamálaráðuneyti: samstarf um uppbyggingu framhaldsskóla í Reykjavík.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaðherra, og Jón Gnarr, borgarstjóri, skrifuðu nýverið undir yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf ríkis og borgar í húsnæðismálum framhaldsskóla í Reykjavík til ársins 2014. Samkomulagið tryggir að leyst verður úr húsnæðisvanda þriggja skóla á tímabilinu 2011 til 2014. Skólarnir sem um ræðir eru Kvennskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautaskólinn við Ármúla. Við undirritun yfirlýsingarinnar sagði Katrín Jakobsdóttir það vera „mjög mikilvægt að samstarfi ríkis og borgar við uppbyggingu framhaldsskóla í borginni sé haldið áfram, en með því er leyst  úr aðkallandi húsnæðisvanda þriggja skóla á næstu árum. Sérstaklega gleðilegt þykir mér að um leið og framtíð Kvennaskólans í miðborginni er tryggð fær hús gamla Miðbæjarskólans aftur sitt upprunalega hluverk – að hýsa skólastarfsemi.“

Lesa meira
 
Ögmundur Jónasson

18.11.2010 : Fréttir úr dómsmálaráðuneyti: Fundur um meðferð nauðgunarmála í réttarvörslukerfinu

Um fjörtíu manns mættu til umræðufundar um meðferð nauðgunarmála í réttarvörslukerfinu sem dómsmála- og mannréttindaráðherra boðaði til föstudaginn 12. nóvember síðastliðinn. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, flutti erindi á fundinum og vakti máls á því að á síðustu árum hafa á árlega á milli 200 og 250 manns, mest konur, leitað sér aðstoðar hjá Neyðarmóttöku eða Stígamótum vegna nauðgunar eða nauðgunartilrauna. Á sama tíma hefur verið sakfellt í 5-16 málum á ári. Tilgangur fundarins var að ræða ástæður þess að aðeins hluti mála ratar inn til réttarvörslukerfisins og afar fá enda með sakfellingu.

Lesa meira
 
Kjördæmisþing Norðausturkjördæmis 2010

9.11.2010 : Kjördæmisþing VG í Norðausturkjördæmi

Kjördæmisþing Vinstri grænna  í Norðausturkjördæmi var haldið um síðustu helgi. Fundurinn, sem haldinn var í Vogafjósi í Mývatnsveit, var afar vel sóttur. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa ávörpuðu Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Björn Valur Gíslason, þingmaður, fundinn og svöruðu spurningum frá fundargestum.

Lesa meira
 

5.11.2010 : Af málefnaþingi um utanríkismál

Helgina 22-23. október sl. hélt Vinstrihreyfingin – grænt framboð málefnaþing um utanríkismál í Hagaskóla. Málefnaþingið var annað í röð fleiri fyrirhugaðra málefnaþinga sem halda á um grunnstoðir stefnu flokksins. Auk þess að vera vettvangur umræðna fyrir félaga flokksins eru málefnaþingin liður í undirbúningi fyrir landsfund sem haldinn verður á næsta ári.

Lesa meira
 

3.11.2010 : Fréttir úr umhverfisráðuneytinu

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, kom nýverið heim af afar árangursríkum ársfundi aðildarríkja samnings um líffræðilega fjölbreytni sem haldinn var í Nagoya í Japan dagana 18. til 29. október. Fundinum lauk á föstudag með samkomulagi um framkvæmd samningsins til ársins 2020 og um réttláta skiptingu hagnaðar af nýtingu erfðaauðlinda

Lesa meira
 

2.11.2010 : Ályktun frá aðalfundi VG á Akureyri

Á aðalfundi svæðisfélag Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri og nágrenni, þann 7. október, var eftirfarandi ályktun samþykkt: Aðalfundur í svæðisfélagi Vinstri hreyfingarinnar Græns Framboðs á Akureyri og nágrenni, haldin 7. október 2010 mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á fjárveitingum til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni.

Lesa meira
 

2.11.2010 : Áskorun frá svæðisfélagi VG í Skagafirði

 

Á fundi svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Skagafirði var samþykkt áskorun á ráðherra VG og þingmenn að endurskoða niðurskurð í heilbrigðisþjónustu landsmanna. Í áskoruninni segir meðal annars fundurinn mótmæli harðlega áformum um 30% niðurskurð hjá Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, sem boðaður er í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011. "Verði af slíkum niðurskurði, mun stofnunin ekki geta haldið uppi óbreyttri þjónustu, frá því sem nú er, stöðugildum mun fækka um 35 – 40 og sjúkrasvið nánast leggjast af, auk þess sem niðurskurðurinn mun koma niður á nær allri starfsemi stofnunarinnar. Slíkt mun hafa í för með sér skert öryggi fyrir íbúa héraðsins, sem munu verða að sækja læknisþjónustu í vaxandi mæli út fyrir héraðið með tilheyrandi óhagræði og kostnaðarauka fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra."

Lesa meira
 

16.10.2010 : Ályktun VG á Suðurnesjum um eflingu atvinnulífs

Á félagsfundi VG á Suðurnesjum var nýtilkomnum vaxtarsamningi, þar sem ríkið leggur fram fé til að efla samvinnu fyrirtækja á Suðurnesjum til að þróa ný atvinnutækifæri, fagnað. Fundurinn sendi frá sér ályktun þessa efnis þar sem atvinnurekendur á Suðurnesjum eru jafnframt hvattir til að taka höndum saman til að efla atvinnulífið þar.

Lesa meira
 
Ogmundur Jonasson NET

14.10.2010 : Fréttir frá dóms- og mannréttindamálaráðuneyti: Sendingar hælisleitenda til Grikklands stöðvaðar að svo stöddu

Dóms- og mannnéttindamálaráðherra hefur ákveðið að stöðva að svo stöddu endursendingar hælisleitenda til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi nýrra tilmæla Mannréttindadómstóls Evrópu til Noregs og breytinga á afstöðu norskra stjórnvalda í kjölfar þeirra. Umsóknir um hæli, sem ella bæri að taka  til efnismeðferðar í  Grikklandi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, verða því afgreiddar hér á landi þar til annað verður ákveðið.

Lesa meira
 

14.10.2010 : Málefnaþing um utanríkismál

Málefnaþing Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um utanríkismál verður haldið í Hagaskóla 22.-23. október næstkomandi. Félagar eru beðnir um að skrá sig á þingið til að auðvelda skipulagningu en skráning fer fram í gegnum netfangið vg@vg.is

Lesa meira
 

14.10.2010 : Ályktun frá stjórn svæðisfélags VG á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði

Stjórn Svæðisfélags Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði leggst eindregið gegn þeim harkalega niðurskurði sem boðaður er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar á þjónustu Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA).

Lesa meira
 
Svandis Svavarsd NET

12.10.2010 : Fréttir úr umhverfisráðuneytinu

Málefnaþing Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um umhverfismál fór fram síðustu helgi. Þar kynnti Svandís Svavarsdóttir, umhverfismála-ráðherra, þá vinnu sem þegar hefur farið fram og er framundan í ráðuneyti hennar.

 Svandís segir stöðu náttúrunnar í íslenskri löggjöf lengst af verið veika og því full þörf á því að styrkja stöðu hennar. Auk veikrar löggjafar hefur náttúran alla jafna ekki verði látin njóta vafans við ákvarðanir. Nú leggur umhverfisráðherra áhersla á að snúa þessari nálgun við.

Lesa meira
 

11.10.2010 : Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, vill Liu Xiaobo lausan úr haldi

Arni Tor Sigurdsson NETÁrni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar, vill að Íslendingar krefjist þess að kínversk stjórnvöld láti Nóbelsverðlaunahafann, Liu Xiaobo, tafarlaust lausan. Málið verður tekið fyrir á fundi Utanríkismálanefndar í næstu viku.

Lesa meira
 
umhverfisþing

9.10.2010 : Málefnaþing um umhverfismál í Borgarnesi

Málefnaþing um umhverfis-mál fór fram í Borgarnesi í dag. Þetta er fyrsta málefnaþingið af fjórum sem er fyrirhugað á næstu mánuðum þar sem félagar fá tækifæri til að koma saman, ræða stefnu hreyfingarinnar og skipu-leggja starfið.

Næsta málefnaþing verður um utanríkismál en það verður haldið 22-23. október næstkomandi á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira
 

7.10.2010 : Fréttir úr dómsmála- og mannréttindaráðuneyti

Ögmundur JónassonVinna er hafin við breytingu á hegningarlögum sem miða að fullgildingu samnings Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misneytingu og misnotkun á börnum. Sömuleiðis á að kanna mögulegar breytingar á lögunum svo að refsivert verði að klámvæða barnæsku, endurskoða refsiramma vegna kynferðisbrota gegn börnum og einnig vegna mansals. Það er Ögmundur Jónason dómsmála- og mannréttindaráðherra sem hefur ýtt starfinu úr vör.

Lesa meira
 

5.10.2010 : Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra: Ræða Steingríms J. Sigfússonar

Steingrímur J. SigfússonÞó ýmislegt hafi áunnist í tíð núverandi ríkisstjórnar, þá er síður en svo að allt hafi gengið eins og á væri kosið. Þetta er meðal þess sem kom fram í ræðu Steingríms J. Sigfússonar um stefnuræðu forsætisráðherra 4. október 2010. Sagði hann skiljanlegt að mikill órói væri í samfélaginu. Framundan væri erfiður vetur, en með samhentu átaki myndi vora á ný. Mikilvægast væri að hlúa að voninni - hlúa að trúnni á framtíðina.

Lesa meira
 

28.9.2010 : Nýr formaður VGR kjörinn á aðalfundi

Sólveig Anna Jónsdóttir, var kjörin formaður VGR á fjölmennum aðalfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík í gærkvöldi.

Aðrir stjórnarmenn voru kosnir: Birna Magnúsdóttir, Ellen Kristjánsdóttir, Hermann Valsson, Friðrik Dagur Arnarson, Garðar Mýrdal og Brynja Björg Halldórsdóttir. Varamenn eru: Steinþór Steingrímsson og Björg Eva Erlendsdóttir.

 

Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktanir:

Lesa meira
 

22.9.2010 : Samþykkt frá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, 21. september 2010

Á þingflokksfundi Vinstrihreyfingarinna - græns framboðs þann 21. september var samþykkt eftirfarandi samþykkt:

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs minnir á að Alþingi samþykkti samhljóða lög um skipan rannsóknarnefndar Alþingis og þingmannanefnd sem tæki við niðurstöðum hennar. Þverpólitísk samstaða hefur fram til þessa verið um störf beggja nefndanna. Þingflokkurinn þakkar þingmannannefndinni fyrir vel unnin störf, ber fullt traust til hennar og lýsir ánægju með vönduð vinnubrögð. Alþingi stendur frammi fyrir þeirri staðreynd að sjö af níu nefndarmönnum leggja til að mál verði höfðað gegn fyrrverandi ráðherrum og verður nú að axla sína ábyrgð í málinu. Trúverðugleiki Alþingis er í húfi að málið verði leitt til lykta á málefnalegan og lýðræðislegan hátt, án óþarfa tafa og undanbragða.

Lesa meira
 

8.9.2010 : Þráinn Bertelsson gengur til liðs við Vinstri græn

Þrátinn Bertelsson, alþingismaður, er genginn í Vinstrihreyfinguna - grænt framboð og þingflokk hennar.

Lesa meira
 

2.9.2010 : Ekki samkomulag um skráningu herþotna

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem komið er á framfæri leiðréttingu við fréttir af málefnum hollenska fyrirtækisins ECA. Í yfirlýsingunni eru bornar til baka fréttir af því að náðst hafi samkomulag í ríkisstjórn um að samgöngu- og sveitastjórnarráðherra veitti Flugmálastjórn heimild til að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ekkert slíkt samkomulag er til staðar.

Lesa meira
 

27.8.2010 : Sóley segir hagsmuni borgarbúa ekki hafða að leiðarljósi

1-soleytomasdottir

Fulltrúi Vinstri grænna lagði fram tillögu í stjórn Orkuveitunnar í dag um að leitað verði eftir viðræðum við Norðurál um þær viljayfirlýsingar og raforkusölusamninga sem fyrirliggjandi eru með það að markmiði að auka tekjur fyrirtækisins. Tillögunni var frestað til næsta fundar.

 

Tillaga forstjóra um gjaldskrárhækkanir og hagræðingaraðgerðir eru þarfar og góðra gjalda verðar en hefðu þurft talsverða pólítíska rýningu af hálfu stjórnar fyrir fundinn. Þær aðgerðir sem þarna voru samþykktar koma við hvert einasta heimili í borginni og stóran hluta starfsfólks og því með öllu óboðlegt að ekki skuli liggja fyrir pólitísk útfærsla á aðgerðunum heldur séu hráar prósentutölur afgreiddar með bókhaldið eitt í forgrunni.

Lesa meira
 

27.8.2010 : Nýr formaður UVGh

15claudiaovereschUng vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu héldu aðalfund sinn að kvöldi þess 26. ágúst. Á fundinum var nýr formaður kosinn en það var Claudia Overesch sem tók við embætti af Snærós Sindradóttur. Aðrir í stjórn eru; Eva Hrund Hlynsdóttir, Gísli Garðarsson, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, Hlöðver Sigurðsson, Helgi Hrafn Ólafsson og Kolbrún Ýrr Rolandsdóttir.

 

Vinstri græn óska nýrri stjórn góðs gengis á komandi starfsári

 

Lesa meira
 

19.8.2010 : Landið tekur að rísa !

 

Steingrímur J. SigfússonSteingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, skrifar í dag á Smuguna fyrstu grein í greinaflokki um orsakir og afleiðingar bankahrunsins.

Steingrímur segir vandann djúpstæðari en svo að hægt sé að velta allri ábyrgðinni af hruninu yfir á hegðun bankaforkólfa og viðskiptajörva því hrunið eigi rætur sínar að rekja til hugmyndafræðilegra þátta. „Hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar náði með lúmskum hætti að hreiðra um sig í íslenskum stjórnmálum og setja viðmið í opinberri umræðu. Er það einkum þrennt sem veldur því að sú skýring á við þegar litið er til orsaka bankahrunsins. Í fyrsta lagi sá áróður að einkaaðilar gerðu yfirleitt allt betur en ríkið og því væri þeim best treystandi fyrir flestum hlutum. Í öðru lagi að til væri einhver ósýnileg hönd sem stýrði markaðsgangvirkinu og það sæi um að  leiðrétta sig sjálft. Og í þriðja lagi að sökum þessarar sjálfgefnu innbyggðu skynsemi markaðarins þyrfti ekki að hafa eftirlit með honum eða að slíkt ætti að a.m.k. að vera í algjöru lágmarki. Allar þessar þrjár forsendur höfum við nú séð að eru rangar.“

 

Lesa meira
 

12.8.2010 : Besti flokkurinn gengur til liðs við stóriðjuarm Samfylkingarinnar

Á fundi borgarráðs í dag var samþykkt umsögn borgarlögmanns um frumvarp iðnaðarráðherra til laga um verdnar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða. Meirihluti Samfylkingar og Besta flokks samþykktu umsögnina þar sem fram kom talsverður ákafi gagnvart rannsóknum og orkunýtingu á friðlýstum svæðum, þvert á áform ríkisstjórnarinnar.

Lesa meira
 

30.7.2010 : Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna orku- og auðlindamála

Stjórnarflokkarnir eru sammála um mikilvægi þess að standa vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum í samræmi við ákvæði samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og sérstaka yfirlýsingu hennar um orkumál frá 18. maí 2010 (sjá fylgiskjal 2) þar sem m.a. kemur fram að ekki verði á starfstíma ríkisstjórnarinnar hróflað við eignarhaldi ríkisins á orkufyrirtækjum og unnið að því að ákvæði um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum verði tekið upp í stjórnarskrá. Ríkisstjórnin einsetur sér að stöðva það einkavæðingarferli á orkufyrirtækjum landsins sem hafið var í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og tryggja samfélagslegt forræði á auðlindum og orkufyrirtækjum. Í samræmi við þessa markmiðssetningu hefur ríkisstjórnin ákveðið að sérstaklega skuli rannsaka tildrög þess að HS Orka sé komin í meirihlutaeigu einkaaðila með það fyrir augum að hægt sé að vinda ofan af þeirri niðurstöðu.

 

Lesa meira
 

22.7.2010 : Ámælisvert að ákvarðanir æðstu stofnana borgarinnar séu hunsaðar

Á fundi borgarráðs Reykjavíkur í dag fékk Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi VG, tekna  á dagskrá tillögu sína frá 6. maí síðastliðnum þar sem samþykkt var að skipuð yrði nefnd  þriggja óháðra sérfræðinga til að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Þorleifur lagði til að nú þegar yrði hafist handa við að skipa í nefndina. Borgarráð varð ekki við því og var tillögunni frestað. Af þessu tilefni bókaði Þorleifur:

 

 

Lesa meira
 

7.7.2010 : Tillaga Þorleifs Gunnlaugssonar um sérstakan sumarstyrk samþykkt

2thorleifurgunnlVelferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti nú fyrir stundu tillögu Þorleifs Gunnlaugssonar fulltrúa VG í ráðinu um sérstakan sumarstyrk til fólks sem nýtur fjárhagsaðstoðar frá borginni og barna þeirra. Veittur verður styrkur að upphæð 15.000 krónur til hvers einstaklings sem nýtur fjárhagsaðstoðar og 5000 krónur til hvers barns. Þannig mun einstæð móðir með 2. börn sem nýtur fjárhagsaðstoðar frá borginni fá 25.000 króna sumarstyrk svo dæmi sé tekið.  

Lesa meira
 

1.7.2010 : Auður Lilja mætt til starfa

Auður Lilja Erlingsdóttir er mætt til starfa á skrifstofu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurgötu 3. Netfang hennar er audurlilja@vg.is og sími 694 9996. Auður er þar með tekin við starfi Drífu Snædal.

Skrifstofan verður stopult opin í júlímánuði en ávallt er hægt að senda póst á Auði Lilju eða beint á vg@vg.is. Vinstri græn óska félögum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars – sjáumst í starfinu í haust.

Lesa meira
 

26.6.2010 : Samþykktar tillögur af flokksráðsfundi Vinstri grænna

Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur lokið flokksráðsfundi sínum á Grand hóteli í Reykjavík og var fjöldi ályktana samþykktar að venju. Einhverjum var þó vísað áfram til málefnaþings sem halda skal í haust. Samþykktar ályktanir eru svo:

Lesa meira
 
Audur Lilja Erlingsd NET

26.6.2010 : Ný framkvæmdastýra Vinstri grænna

Við upphaf flokksráðsfundar Vinstrihreyfingar-innar græns framboðs var tilkynnt um ráðningu Auðar Lilju Erlingsdóttur í stað Drífu Snædal sem framkvæmdastýru flokksins. Um leið og Vinstri græn bjóða Auði Lilju velkomna til starfa eru Drífu færðar ómældar þakkir fyrir framlag sitt til flokksins undanfarin fjögur ár. Auður Lilja er stjórnmálafræðingur, útskrifuð með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá Háskóla Íslands. Auður Lilja hefur starfað lengi innan VG, sem formaður Ungra Vinstri grænna, fulltrúi í aðalstjórn flokksins og sem varaþingkona. Auður Lilja er gift Frey Rögnvaldssyni og eiga þau tvö börn saman. Auður hefur störf á flokksskrifstofunni 1. júlí.

Lesa meira
 
090127 flokksradsfundur

24.6.2010 : Flokksráðsfundur í Reykjavík og GOSI 2010

Vinstrihreyfingin – grænt framboð boðar til flokksráðsfundar í Reykjavík á föstudag og laugardag og hefst fundurinn klukkan 17 á Grand Hóteli. Fundurinn er sá fyrsti eftir sveitastjórnarkosningarnar og því verður farið vel yfir þær auk alls annars sem félögum liggur á hjarta. Flokksráðsfundir eru æðstu fundir á milli landsfunda og eru opnir öllum félögum í VG. Atkvæðisrétt á fundinum hafa félagar í flokksráðinu en þeir eru: Allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaalþingismenn, formaður Ungra Vinstri Grænna, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmisráða auk þrjátíu landsfundakjörinna fulltrúa.

Lesa meira
 
090110 island og evropa

21.6.2010 : Málefnaþing VG á haustmánuðum

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur ákveðið að haldið verði málefnaþing á haustmánuðum 2010. Landsfundur VG er haldinn á tveggja ára fresti og því verður næsti landsfundur ekki haldinn fyrr en haustið 2011. Nánari útfærsla þessa fyrirhugaða málefnaþings verður auglýst síðar.

Lesa meira
 
Gudrun-Agusta-Gudmundsdottir

8.6.2010 : Meirihlutasamstarf Samfylkingar og Vinstri grænna í Hafnarfirði staðfest

Samkomulag um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar milli Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs var staðfest á fundum flokkanna í kvöld, 7. júní 2010. Jafnframt var samþykktur málefnasamningur flokkanna og ítarleg verkefnaskrá til næstu fjögurra ára auk samkomulags um skipan í kjörin embætti á kjörtímabilinu. Yfirskrift málefnasamnings Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Hafnarfirði er:  Velferð, lýðræði, atvinna og umhverfi fyrir fólkið í Firðinum.

Lesa meira
 
island_palestina

1.6.2010 : Yfirlýsing frá Steingrími J. Sigfússyni vegna voðaverka Ísraelshers

Þarsíðustu nótt gerðist sá hörmulegi og sorglegi atburður að ráðist var á forystuskip í 6 skipa flota sem lagði upp frá Kýpur og hélt áleiðis til Palestínu. Skipið var mannað friðarsinnum og bar um 10.000 tonn af hjálpargögnum til íbúa á Gazasvæðinu. Árásin var gerð með hervaldi og átti sér stað á alþjóðlegu hafsvæði. Árásaraðilinn var Ísraelsher. Hermenn úr einum öflugasta her í heimi réðust á hóp friðarsinna en á meðal þeirra voru margir Norðurlandabúar, þingmenn Evrópuþingsins sem og fulltrúar friðarhreyfinga.

Lesa meira
 

31.5.2010 : Fjölgar í sveitastjórnarhópi VG

Vinstrihreyfingin – grænt framboð bauð fram til sveitastjórnarkosninga í þriðja sinn um helgina og urðu úrslitin ánægjuleg þó að vonbrigði hafi fylgt því að missa fulltrúa bæði í Reykjavík og á Akureyri. Á mörgum stöðum efldist hópurinn og til að mynda voru VG listar boðnir fram í fyrsta sinn á Seyðisfirði, Grindavík, Rangárþingi Eystra, Strandabyggð og á Höfn. Þá komust margir félagar í VG inn í sveitastjórnir í óhlutbundnum kosningum og af blönduðum listum. Þegar á heildina er litið stækkaði sveitastjórnarhópur flokksins um þriðjung. Þrátt fyrir úrslitin í Reykjavík og á Akureyri má því segja að VG hafi fest sig í sessi á sveitastjórnarstiginu um allt land í þessum kosningum. Öllum þeim sem lögðu hönd á plóg síðustu vikur eru færðar bestu þakkir.

Lesa meira
 
Kata og Steingrímur

29.5.2010 : Ágæti kjósandi

í dag göngum við til atkvæða og kjósum sveitarstjórnir um land allt.

Á síðustu misserum höfum við í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði sýnt kjark til að takast á við erfið verkefni og vilja til að vinna með öðrum að úrlausn flókinna mála. Við höfum komið okkar málstað á framfæri og leggjum áherslu á málefnalegar umræður og heiðarlega stjórnmálabaráttu. Við hvetjum þig til að kynna þér áherslur okkar, t.d. hér á heimasíðunni.

Lesa meira
 

28.5.2010 : Málefnaskrá VG í Reykjavík

Málefnaskrá Vinstri grænna í Reykjavík hefur lengi verið aðgengileg á vef svæðisfélagsins www.vgr.is. Nú er hún einnig að gengileg hér. Málelfnaskrá VGR.

Lesa meira
 
blodrur

27.5.2010 : Verið velkomin á kosningamiðstöðvar VG á kjördag um allt land   X-V

Á kjördag verða kosningamiðstöðvar okkar opnar um allt land. Einnig munu kosningavökur setja svip sinn á mannlífið.

Akureyri:

Kosningakaffi í gamla Alþýðuhúsinu (Pengs) kl. 12-17 og kosningavaka á sama stað kl. 21
sími 693 2190
netfang: katabessa@gmail.com

Akranes:

Kosningakaffi Stillholti 16-18 kl. 10 og fram eftir degi, hið víðfræga hlaðborð kl. 15. Kosningavaka á sama stað kl. 22 ...

Lesa meira
 
hafnarfjordur

26.5.2010 : Frá stjórnmálaflokkum í Hafnarfirði

Stjórnmálaflokkarnir, sem bjóða fram til bæjarstjórnar í Hafnarfirði ætla að svara kalli bæjarbúa og hafa boðað til sameiginlegs framboðsfundar í Hafnarborg, fimmtudags-kvöldið 27. maí n.k. Fundurinn hefst kl. 20:00. Fundarstjórar verða Svavar Halldórsson fréttamaður hjá RUV og Guðrún Helga Sigurðardóttir blaðamaður. Sú takmarkaða umfjöllun, sem ríkisfjölmiðlarnir bjóða uppá fyrir bæjarstjórnarkosningarnar

Lesa meira
 
28424_449501313437_587918437_5787533_3577782_s

25.5.2010 : Frambjóðendur í Reykjavík fegra borgina

Í sumarblíðunni í gær tók hópur frambjóðenda VG í Reykjavík, auk framkvæmdastýru hreyfingarinnar, sig til og hreinsuðu gróðurreit á horni Suðurgötu og Túngötu, undir dyggri stjórn Heimis Janusarsonar og Kristínar Þorleifsdóttur frambjóðenda. Eftir að hafa hreinsað reitinn auk óvirks niðurfalls á svæðinu, gróðursetti hópurinn fjölda sumarblóma og er það samdóma álit þeirra sem leið eiga um hornið, að hér hafi þarft verk verið unnið.

Lesa meira
 
OlafurThorGunnarssonNET

20.5.2010 : Bæjarstjórn Kópavogsbæjar treystir sér ekki í rannsókn

Bæjarráð Kópavogs treysti sér ekki til að samþykkja tillögu VG um rannsóknarskýrslu í Kópavogi á fundi sínum í dag.  VG lagði fram tillögu um málsmeðferð. Tillaga meirihlutans um að vísa málinu til endurskoðunar fjárhagsáætlunar var samþykkt. Aftan við þá tillögu var hnýtt að oddvitar flokkanna í bæjarstjórn fundi „hið fyrsta“ til að koma sér saman um úrvinnslu. Bæjarráð velur því að draga lappirnar, væntanlega í þeim tilgangi að svæfa málið.

Lesa meira
 
steingrimur

20.5.2010 : Á mótum hruns og endurreisnar

Eftir Steingrím J. Sigfússon 

Íslenskt samfélag stendur á miklum tímamótum. Við erum stödd á mótum hruns og endurreisnar jafnt í efnahagslegum sem hugmyndafræðilegum skilningi. Verkefnin eru ærin og snúa að því að gera upp við og lifa með hinu liðna, rannsaka og upplýsa það sem gerðist, leiða sannleikann í ljós og láta þá axla ábyrð og svara til saka sem það verða að gera. Þessi þáttur er mikilvægur og óumflýjanlegur og hann er hluti af því að skapa réttu skilyrðin fyrir endurreisnarstarfið. Án heiðarlegs og einarðs uppgjörs við atburði undangenginna ára náum við aldrei sáttum og samstöðu og færum með of mörg lík í lestinni inn í framtíðina.

Lesa meira
 
skyringamynd-med-VGR-grein

20.5.2010 : Engar blekkingar í borgarstjórn!

Öll framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur segjast ætla að verja grunnþjónustu borgarinnar eins og hún er í dag, án þess þó að segja hvernig eigi að fjármagna hana. Vinstri græn sjá enga ástæðu til að fela fyrirætlanir sínar, við tölum um hlutina eins og þeir eru og gerum það sem þarf.

Sameiginlegir sjóðir almennings hafa verið rýrðir til muna af frjálshyggjuöflunum sem stýrt hafa samfélaginu undanfarin ár. Því er ljóst að annað hvort verður að skera niður hjá Reykjavíkurborg eða auka tekjur hennar. Allt annað er blekking. Niðurskurður undanfarinna ára hefur gengið allt of nærri grunnþjónustunni og því ekkert annað í stöðunni en að afla meiri tekna. Til þess eru tvær leiðir: Að fullnýta útsvarið eða hækka gjaldskrár fyrir þjónustu. Vinstri græn ætla að fullnýta útsvarið.

Lesa meira
 

19.5.2010 : Fjölbreytt blaðaútgáfa í aðdraganda kosninga

Vinstri græn um allt land standa fyrir blaðaútgáfu í aðdraganda kosninga og eru hér aðgengileg tvö blöð á pdf-formi:

Vinstri græn í Hafnarfirði

Norðurstjarnan: Vinstri græn í Norðausturkjördæmi

Njótið vel!

Lesa meira
 
2thorleifurgunnl

18.5.2010 : Borgarstjórn auglýsir eftir sérfræðingum í rannsóknarnefnd

Borgarstjórn Reykjavíkurborgar ákvað það í dag að auglýsa eftir sérfræðingum í þriggja manna nefnd til að gera rannsókn  á stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og fól borgarráði að skipa í nefndina á fundi sínum 27. maí nk.

Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi VG talaði fyrir tillögunni en borgarráð samþykkti nýlega tillögu hans um viðamikla rannsókn á stjórnsýslu, stjórnkerfi, og aðkomu stjórnmálafólks,að fjárhagslegum ákvörðunum á undanförnum árum.

Lesa meira
 
1-soleytomasdottir

18.5.2010 : Borgarstjórn samþykkir lýðræðisumbótahugmynd Vinstri grænna

Borgarstjórn samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna um árlega opna borgarafundi á vegum Reykjavíkurborgar þar sem kjörnir fulltrúar sitja fyrir svörum. Markmiðið með tillögunni er að bregðast við kröfu samfélagsins um lýðræðislegri stjórnunarhætti, að hvetja borgarbúa til aukinna áhrifa og þátttöku í stjórnmálaumræðunni og að styrkja samband kjörinna fulltrúa við umbjóðendur sína. Fundirnir eru fyrst og fremst vettvangur fyrir beint samtal milli borgarbúa og kjörinna fulltrúa, um hvers kyns mál sem kunna að koma upp. Gert er ráð fyrir að þeir verði undirbúnir af hverfisráðum í samráði við íbúasamtök og þjónustumiðstöðvar. Tillagan er liður í því að bæta þjónustu og tryggja áhrif borgarbúa á hana.

Lesa meira
 
vg_krusir

18.5.2010 :  

Krúsir til sölu

Þessar fallegu kaffikrúsir eru til sölu á öllum kosningamiðstöðvum Vinstri grænna. Þær eru seldar til fjármögnunar kosningabaráttunnar og kosta 1.500 krónur stykkið. Upplýsingar um kosningamiðstöðvar fást hér.

Lesa meira
 
althingi

17.5.2010 : Yfirlýsing frá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ítrekar þá grundvallarstefnu  sína að allar auðlindir þjóðarinnar eigi að vera í sameign hennar.  Þingflokkurinn beinir því til ríkisstjórnarinnar að skoða alla möguleika til að vinda ofan af einkavæðingu HS Orku og tryggja orkuauðlindirnar og orkufyrirtækin varanlega í almannaeign.

Lesa meira
 
magma-logo

17.5.2010 : Magma samningur fari fyrir dómstóla

Yfirlýsing frá framboði VG í Reykjanesbæ:

Svo virðist sem nú verði stigið stórt skref í einkavæðingu á Hitaveitu Suðurnesja. Ferlinu var komið af stað í mars 2007 þegar framkvæmdanefnd um einkavæðingu, undir merkjum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hófst handa við útboð á 15,2% hlut ríkisins.  Var orkufyrirtækjum í almannaeigu meinuð þátttaka í útboðinu og fór svo að nýstofnað spútnik fyrirtæki, Geysir Green Energy, sem var í eigu FL group, Glitnis og Atorku keypti hlutinn. Síðar kom til sænskt skúffufyrirtæki, dótturfélag Magma Energy í Canada, sem vildi kaupa hlut OR í HS-orku. Tekist var á um þann gjörning í nefnd um erlendar fjárfestingar sem var falið að kanna lögmæti samningsins. Nefndin fékk ráðherravald í málinu og hefði getað komið í veg fyrir framvindu þess ef pólitískur vilji hefði verið fyrir hendi. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar féllust hinsvegar á söluna en fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs greiddi atkvæði gegn samningnum.

Lesa meira
 

15.5.2010 : Tilkynning um starf

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs tilkynnir að í vændum er að ráða í stöðu framkvæmdastýru / -stjóra flokksins. Umsóknir skulu berast bréflega Vinstri Grænum, phólf 175, 121 Reykjavík eða á tölvupósti til drifa@vg.is fyrir 10. júní 2010. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í júlí.

Meðal þess sem er á starfssviðinu er umsjón með daglegum rekstri flokksins, þ.m.t. fjármálum, umsjón með félagatalinu, samskipti við kjördæmaráð og svæðisfélög, umsjón funda, stjórnun heimasíðu og samskipti við fjölmiðla.

Lesa meira
 

14.5.2010 : Allt á fullu í Reykjanesbæ

VG í Reykjanesbæ verður með kvöldfundi öll virk kvöld fram að kosningum þar sem frambjóðendur fá til sín góða gesti og ræða pólitík. Fundirnir hefjast klukkan 20. Fyrsti fundurinn verður á mánudaginn undir yfirskriftinni menntamál. Menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir og fulltrúi frá menntasviði Reykjanesbæjar munu fara yfir sviðið og hefja umræðuna.

Á þriðjudag verður menningar kvöld og þar munu rithöfundarnir Einar Már Guðmundsson og Sigurjón Vikarsson lesa úr verkum sínum og Stjáni Meik les ljóð.

Miðvikudagur 19. Maí koma þeir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Atli Gíslason, alþingismaður til þess að ræða sjávarútveg, atvinnu og byggðamál.

Verið öll velkomin.

Lesa meira
 
frambjodendur-kop

13.5.2010 : VG er lykillinn að nýjum vinnubrögðum í Kópavogi

Í vor gefst fólki kostur á að velja á milli stefnu þar sem áherslan er á fólk, félagsleg gildi og jöfnuð eða þeirrar verktakavæðing og gróðahyggju sem ríkt hefur í Kópavogi undanfarin 20 ár. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er niðurlútum kominn.

Við í Vinstrihreyfingunni grænu framboði erum tilbúin til að taka við því búi sem
hrunflokkarnir skilja eftir sig. Skuldastaða bæjarins er skelfileg. Vinstri græn vilja standa vörð um grunnþjónustuna; leik- og grunnskóla og þétta velferðarnetið. Áherslan verður að vera á fólk og velferð þess. Atvinna og menntun eru velferðarmál.

Lesa meira
 

11.5.2010 : Enginn frambjóðandi yfir 300 þúsund

Í aðdraganda Sveitarstjórnarkosninganna voru haldin fjögur forvöl á vegum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í Reykjavík, á Akureyri, á Akranesi og í Kópavogi. Alls tóku 41 frambjóðandi þátt í forvölunum og hafa allir skilað upplýsingum til Ríkisenduskoðanda og staðfest að umsvifin fóru ekki yfir 300 þúsund krónur.

Lesa meira
 
head-box

11.5.2010 : Utankjörfundarskilaboð frá framkvæmdastýru VG

Ég vil minna þig á að utankjörfundur er hafinn þannig að nú þegar er hægt að setja X við V. Ef þú verður að heiman á kjördag er mikilvægt að skila atkvæðinu og eins að hvetja fólk í kringum þig til að kjósa ef það verður að heiman.

Hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt, í Laugardalshöllinni og einnig hjá sendiráðum og ræðismönnum erlendis. Nánari upplýsingar

Lesa meira
 
skyrsla1

10.5.2010 : Ályktun umræðufundar VGR um rannsóknarskýslu Alþingis

Rannsóknarskýrsla Alþingis er vönduð, trúverðug og óvægin og hún afhjúpar spillta sambúð stjórnmála, stjórnsýslu og viðskiptalífs. Hún varpar ennfremur ljósi á einsleitni viðskiptalífsins, andvaraleysi þjóðarinnar á árunum fyrir efnahagshrunið og vanmáttugt eftirlitskerfi stjórnvalda með vafasömu sýndarhagkerfi.

Skýrslan er sjúkdómsgreining sem kallar á þjóðfélag sem setur manneskjuna ofar peningum; hún kallar á aukna siðgæðis- og borgaravitund á öllum sviðum samfélagsins og krefur alla Íslendinga um svör við því hvernig þjóðfélag við viljum byggja upp til framtíðar.

Með ríkisstjórnarsamstarfi við Samfylkinguna ber VG ábyrgð á stöðu mála í dag og leiðum til úrbóta í anda þess sem fram kemur í skýrslunni.

Lesa meira
 
Sóley Tómasdóttir

9.5.2010 : Kosningarnar í vor snúast um hugmyndafræði

Öruggur leigu- og kaupleigumarkaður, fjölbreytt atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónusta og sorpflokkun við heimili fólks eru meðal þeirra málefna sem Vinstrihreyfingin grænt framboð setur á oddinn fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Efnt var til blaðamannafundar í kosningamiðstöð hreyfingarinnar við Suðurgötu 10 í dag, sunnudag.

Lesa meira
 

8.5.2010 : Vinstri græn bjóða fram í fyrsta sinn í Strandabyggð

Birtur hefur verið framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Strandabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar þann 29. maí 2010. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Vinstri græn bjóða fram sérstakan lista til sveitarstjórnar á Ströndum og fylgir hann með hér að neðan.

Lesa meira
 
kjorkassi

8.5.2010 : Vinstri græn sækja í sig veðrið í sveitarstjórnarkosningum

Enn á ný eru komnar kosningar og hefur Vinstri grænum heldur vaxið ásmegin síðan síðast. Boðið verður fram í 14 sveitarfélögum í eigin nafni, tvö framboð undir hatti Vinstri grænna og óháðra auk þess sem svæðisfélög Vinstri grænna taka þátt í 9 blönduðum framboðum. Alls verður boðið upp á Vinstri grænar áherslur í 25 sveitarfélögum auk þess sem félagar í VG eiga víða sæti á óflokksbundnum listum.

Lesa meira
 
Thorleifur_Gunnlaugsson

6.5.2010 : Samþykkt að rannsaka stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar

Tillaga Þorleifs Gunnlaugssonar borgarráðsfulltrúa VG um rannsókn á  stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var samþykkt í borgarráði í dag.

Þorleifur lagði aðra tillögu  fram í borgarráði fyrir viku en  breytti hennii lítilega með tilliti til athugasemda sem borist hafa:

Lesa meira
 
althingi

6.5.2010 : Ályktun um fjárstyrki til stjórnmálamanna

Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði, sem haldinn var 5. maí 2010, samþykkir svohljóðandi ályktun:

Stjórn Svæðisfélags Vinstri grænna á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði krefst þess að þeir alþingismenn sem þáðu háa styrki frá einkaaðilum í aðdraganda kosninga til sveitarstjórna árið 2006 og til Alþingis árið 2007 víki sæti. Þó gerðir viðkomandi alþingismanna kunni að hafa rúmast innan marka þeirra laga sem þá giltu um styrki til stjórnmálamanna eru þeir algerlega á skjön við það siðferðismat sem nú er uppi...

Lesa meira
 

6.5.2010 : Eitthvað mun rotið í Reykjavíkurborg

Ályktun stjórnar VGR um rannsóknarskýrslu fyrir Reykjavík:

Rannsóknarskýrslan um hrun íslensku bankanna leiddi í ljós alvarlega annmarka á starfsháttum vissra stjórnmálaflokka, embættismanna og þeirra viðskiptajöfra sem í daglegu tali eru nefndir útrásarvíkingar. Skýrslan leiddi ennfremur í ljós óeðlileg tengsl á milli þessara sömu hópa.

Vinstrihreyfingin-grænt framboð hefur alla tíð sneitt hjá beinum hagsmunatengslum við atvinnulífið og gagnrýnt ofurstyrkjastefnu þá sem talin hefur verið eðlileg í öðrum flokkum. Ýmsar ákvarðanir stjórnvalda undanfarin ár hafa orkað tvímælis og gefið vísbendingar um að þar hafi ráðið þröngir hagsmunir auðmanna, umfram almannahagsmuni.

Lesa meira
 
saudarkrokur

5.5.2010 : Framboðslisti Vinstri grænna í Skagafirði samþykktur

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Skagafirði hefur samþykkt framboðslista til komandi sveitastjórnarkosninga. Fyrsta sætið skipar Bjarni Jónsson fiskifræðingur en hann hefur verið starfandi bæjarfulltrúi undanfarið kjörtímabil. Listinn var samþykktur svo:

Lesa meira
 
VG-i-Borgarbyggd,-Ragnar,-Halldora,-Jon,-Ingibjorg-og-Asmundur-vid-Varmalandsskola,-3.mai.

4.5.2010 : Ráðherra og þingmaður riðu um Borgarbyggð

Riðið var um Borgarbyggð í fylgd Jóns Bjarnasonar ráðherra og Ásmundar Einars Daðasonar alþingismanns um Borgarbyggð. Heimsóttir voru á annan tug vinnustaða. Myndin er tekin við Varmalandsskóla, með þrem af fjórum frambjóðendum á lista VG í Borgarbyggð, Ragnari Frank, Halldóru Lóu og Ingibjörgu Daníelsdóttur.

 

Lesa meira
 
RangarthingEystra

3.5.2010 : Framboðslisti VG og óháðra í Rangárþingi eystra samþykktur

Á opnum fundi, sem haldinn var 2. maí, um lýðræðismál þar sem Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi hélt tölu, var framboðslisti Vg og óháðra í Rangárþingi eystra samþykktur. Listinn var samþykkur samhljóða. Svona er listinn:

1. Guðmundur Ólafsson, bóndi

2. Ingibjörg Erlingsdóttir, tónmenntakennari

3. Gyða Björgvinsdóttir, kennaranemi

4. Óskar Jónsson, bílasmiður

Lesa meira
 
HrafnkellLarusson

2.5.2010 : Ný stjórn í VG í Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði

Á aukaaðalfundi svæðisfélags VG á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði, sem haldinn var 28. apríl voru eftirtaldir kjörnir í stjórn félagsins:
Árni Kristinsson, Hrafnkell Lárusson og Þórunn Hrund Óladóttir.
Í varastjórn voru kjörnir:
Ásmundur Þórarinsson og Guðsteinn Hallgrímsson.
Ný stjórn hittist á fundi 30. apríl og skipti með sér verkum sem hér segir:
Hrafnkell Lárusson, formaður
Þórunn Hrund Óladóttir, gjaldkeri
Árni Kristinsson, ritari
Lesa meira
 
JorunnEinarsdottir_NET_1

30.4.2010 : Framboðslisti í Vestmannaeyjum tilbúinn

Framboðslisti Vestmannaeyjalistans við bæjarstjórnarkosningarnar 29. maí 2010 hefur verið ákveðinn. Listinn er boðinn fram af Samfylkingu, Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og óháðum kjósendum. Jórunn Einarsdóttir, sem tók þátt í framboði VG í síðustu Alþingiskosningum skipar annað sætið. Listinner þannig skipaður:

1. Páll Scheving Ingvarsson, verksmiðjustjóri   

2. Jórunn Einarsdóttir, grunnskólakennari        

3. Guðlaugur Friðþórsson, vél- og viðhaldsstjóri  

Lesa meira
 
althingi

30.4.2010 : Rannsóknarnefndir í Reykjavík og í Kópavogi

Bæjarfulltrúar Reykjavíkur og Kópavogs, þeir Þorleifur Gunnlaugsson og Ólafur Þór Gunnarsson, hafa lagt fram tillögur um að bæði í Reykjavík og í Kópavogi verði komið á rannsóknarnefndum.
Í Kópavogi leggur Ólafur Þór til að bæjarráð komi á laggirnar sérstakri rannsóknarnefnd um efnahagshrunið eins og það snýr að bænum.

Lesa meira
 
frikirkjuvegur_11

29.4.2010 : Barnamenningarhús að Fríkirkjuvegi 11

Vinstri græn í borgarstjórn standa enn föst á þeirri skoðun að húsið við Fríkirkjuveg 11 eigi að þjóna almenningi. Húsið er enn til staðar og á sér sögu sem bætir upp þau dapurlegu þrjú ár sem nú eru liðin frá sölunni. Þetta hús er kjörið til að nýta í þágu barna í Reykjavíkurborg og borgarfulltrúar vinstri grænna munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að það nái fram að ganga - hér eftir sem hingað til.

Lesa meira
 
kjorkassi

28.4.2010 : Stjórnmálaflokkarnir gera samkomulag um takmörkun á auglýsingakostnaði fyrir sveitarstjórnarkosningar

Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða fram til sveitarstjórna um land allt, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafa gert samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 29. maí nk.

Samkomulagið felur í sér að flokkarnir skuldbinda sig til að takmarka kostnað við auglýsingabirtingar í dagblöðum, netfjölmiðlum og ljósvakamiðlum á landsvísu. Heildarkostnaður hvers flokks vegna auglýsingabirtinga í þessum fjölmiðlum verði ekki hærri en 11 milljónir króna að meðtöldum virðisaukaskatti á tímabilinu  29. apríl til og með 29. maí nk.

Lesa meira
 
reykjanesbaer-logo

23.4.2010 : Framboðslisti í Reykjanesbæ samþykktur

Á fundi Vinstrihreyfingar - græns framboðs á Suðurnesjum, sem haldinn var í Reykjanesbæ 16. apríl, var eftirfarandi framboðslisti fyrir sveitastjórnarkosningar í Reykjanesbæ 29. maí samþykktur:

1. Gunnar Marel Eggertsson

2. Þormóður Logi Björnsson

3. Þórunn Friðriksdóttir

4. Ragnheiður Eiríksdóttir

Lesa meira
 
thjorsa

23.4.2010 : Aðalfundur þakkar almannavörnum, björgunarsveitum og fleirum

Aðalfundur Kjördæmaráðs Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi haldinn á Hótel Heklu, á Skeiðum laugardaginn 17. apríl 2010 þakkar teymi almannavarna, lögreglu, björgunarsveita, fjölda sjálfboðaliða, sveitarstjórnum og fleiri aðilum sem hafa unnið ómetanlegt starf í þágu öryggis íbúa í kringum gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli. Þeirra góða starf hefur vakið öryggiskennd fólks sem annars býr við mikla óvissu. Heimilið er griðarstaður... Lesa meira
 

21.4.2010 : Framboðslisti VG á Seyðisfirði samþykktur

Síðastliðinn sunnudag samþykkti fundur í VG deildinni á Seyðsifirði framboð V-lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs til sveitastjórnarkosninganna á Seyðisfirði 29. maí n.k. 

Listinn er eftirfarandi:

1. Cecil  Haraldsson, sóknarprestur
2. Þórunn Hrund Óladóttir, kennari
3. Halla Dröfn Þorsteinsdóttir,  hjúkrunarfræðingur.
Lesa meira
 
blodrur

20.4.2010 : Kosningamiðstöðvar opna á sumardaginn fyrsta um allt land!

Mikið er um að vera hjá framboðum Vinstri grænna á sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl. Kosningamiðstöðvar á Akureyri, í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík opna þann dag. Sjá nánar hér til hægri á síðunni, þar sem tímasetningar og dagskrár eru sundurliðaðar. Lesa meira
 
akranes

19.4.2010 : Framboðslisti VG á Akranesi samþykktur

Á félagsfundi VG á Akranesi, miðvikudaginn 14. apríl, var eftirfarandi framboðslisti vegna sveitastjórnarkosninganna 29. maí samþykktur:

1.      Þröstur Þór Ólafsson     Vélfræðingur       

2.      Hjördís Garðarsdóttir                        Neyðarvörður        

3.      Reynir Þór Eyvindsson                     Verkfræðingur         

4.     Guðrún Margrét Jónsdóttir               Tölfræðingur        




Lesa meira
 

14.4.2010 : Ályktun félagsfundar VG á Suðurnesjum

Þriðjudaginn 13. apríl 2010 ályktaði VG á Suðurnesjum eftirfarandi:

Við skoðun á málefnum ECA hefur komið í ljós að upplýsingar sem reiddar voru fram af tengiliðum fyrirtækisins hafa í veigamiklum atriðum verið rangar og til þess fallnar að byggja upp óraunhæfar væntingar um atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Þátttaka í hagkerfi hernaðarbölts, í hvaða formi sem hún er, brýtur gegn grunnstoðum í stefnu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, sem er yfirlýstur friðar-flokkur. Þrátt fyrir leit margra aðila er enn skortur á upplýsingum um grundvallar þætti, s.s. eignarhald og viðskiptaáætlun ECA. Í ljósi þessa varar félagsfundur VG á Suðurnesjum íbúa svæðisins við því að taka þessa töfralausn trúanlega.

Lesa meira
 
isafjordur

13.4.2010 : Ný stjórn og ályktun VG á Vestfjörðum

Á aðalfundi VG Vestfjörðum, sem var haldinn í gær í Rögnvaldarsal í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, var ný stjórn kjörin. Í henni sitja:


Guðný Hildur Magnúsdóttir formaður

Jóna Benediktsdóttir ritari

Ágústa Guðmundsdóttir gjaldkeri

Svava Rán Valgeirsdóttir meðstjórnandi

Gígja Tómasdóttir meðstjórnandi

Lesa meira
 

11.4.2010 : Vinstri græn um allt land

Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður nú fram í þriðja sinn til sveitastjórnarkosninga og hafa V-listarnir aldrei verið fleiri.

Nú þegar hafa verið samþykktir listar:

Lesa meira
 
gudrun agusta gudmundsdottir

9.4.2010 : Framboðslisti í Hafnarfirði samþykktur

Á félagsfundi VG í Hafnarfirði, 8. apríl, var eftirfarandi listi til sveitastjórnakosninga 29. maí, samþykktur.

1.    Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir      kennari/bæjarfulltrúi

2.    Jón Páll Hallgrímsson                       smiður/varabæjarfulltrúi

3.    Jóhanna Marín Jónsdóttir                 sjúkraþjálfari

4.    Gestur Svavarsson                           verkefnastjóri

5.    Birna Ólafsdóttir                                skrifstofustjóri

6.    Árni St. Jónsson                                formaður SFR-stéttarfélags

Lesa meira
 
kjorkassi

8.4.2010 : Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hafin

Opnað hefur verið fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu bæði hér heima og erlendis. Á heimasíðu okkar má finna upplýsingar á http://www.vg.is/utankjorfundur en allar upplýsingar um Sveitastjórnarkosningarnar sem haldnar verða þann 29. maí, er að finna á opinbera vefnum http://www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar

Lesa meira
 
paskaegg.jpg

31.3.2010 : Gleðilega páska!

VG óskar öllum lesendum heimasíðunnar gleðilegra páska. Það er ósk okkar að þau sem eru í framboði nýti fríið til að safna kröftum fyrir þær spennandi vikur sem framundan eru í málefnavinnu og kosningabaráttu, en að hin sem ekki koma beint að listum safni einnig kröftum, því nú sem aldrei fyrr er þörfin á sjálboðaliðum mikil. Hægt er að láta vita af sér sem sjálfboðaliði á vg@vg.is eða að hringja á skrifstofuna á milli níu og tólf virka daga. Einnig er upplýsingar um stjórnir svæðisfélaga á slóðinni: http://www.vg.is/folkid/formenn-svaedisfelaga
Lesa meira
 

31.3.2010 : Framboðslisti í Kópavogi tilbúinn

Á félagsfundiVinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi, sem haldinn var 30. mars, var eftirfarandi framboðslisti fyrir sveitastjórnarkosningar 29.maí 2010 samþykktur:

                                                                               

1      Ólafur Þór Gunnarsson        Læknir og bæjarfulltrúi     

2      Guðný Dóra Gestsdóttir        Ferðamálafræðingur

Lesa meira
 
Forvalsmynd Stykkisholmur

30.3.2010 : Lárus Ástmar Hannesson leiðir L-listann í Stykkishólmi

Í Stykkishólmi tekur VG þátt í sameiginlegu framboði til bæjarstjórnar vorið 2010. Listinn ber heitið L-listinn og er listi félagshyggjufólks í Stykkishólmi. Haldið var opið forval laugardaginn 27. mars.Kosningarþátttaka var með ágætum.

Frambjóðendur voru 22  og urðu niðurstöður í sjö efstu sætin sem hér segir:

Lesa meira
 
kopavogur

24.3.2010 : VG Kópavogi fagnar banni á nektardansi

Á fundi stjórnar VG í Kópavogi sem haldinn var þann 23. mars, var eftirfarandi ályktun samþykkt:

Stjórn VG í Kópavogi fagnar breytingu á lögum um rekstur veitingahúsa sem banna nektardans í eitt skipti fyrir öll. VG í Kópavogi hefur lengi barist fyrir því að slík starfsemi eigi ekki skjól í bænum. Það er því sérstakt fagnaðarefni að þessum stóra áfanga í mannréttindamálum á Íslandi hafi verið náð.

Lesa meira
 
frambodslisti-mosfellsbaer-2010

23.3.2010 : Framboðslisti VG í Mosfellsbæ samþykktur

Framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórakosningarnar í vor var samþykktur á félagsfundi sunnudaginn 14 mars síðastliðinn. Listinn lítur svona út:
1. Karl Tómasson.

2. Bryndís Brynjarsdóttir.

3. Steinþór Hróar Steinþórsson.

4. Sigurlaug Ragnarsdóttir.

Lesa meira
 
thordis eyglo sigurdardottir

22.3.2010 : Þórdís Eygló í fyrsta sæti hjá VG í Árborg

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Árborg samþykkti framboðslista sinn til sveitarstjórnarkosninganna og skipar Þórdís Eygló Sigurðardóttir, forstöðumaður fyrsta sætið en Bjarni Harðarson, bóksali annað sætið. Listinn er svo:

Lesa meira
 

20.3.2010 : Stjórn VG andvíg einkaher

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 19. mars 2010: Ályktun vegna umræðu um einkaflugher Stjórn Vinstri grænna tekur undir ályktanir Ungra Vinstri grænna og Vinstri grænna í Reykjavík þar sem því er hafnað að einkaflugher fái aðstöðu á Íslandi. Stjórnin telur óásættanlegt með öllu að hér fari fram hernaðarstarfsemi undir yfirvarpi atvinnusköpunar og skorar á ríkisstjórn VG og Samfylkingar að hafna slíku fortakslaust nú þegar.

Lesa meira
 
herflugvelar

18.3.2010 : Ályktum VGR gegn einkaflugher

Á félagsfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík, var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Félagsfundur VG í Reykjavík haldinn 17. mars 2010 að Vesturgötu 7 í Reykjavík, tekur undir ályktanir Ungra vinstri grænna og Samtaka hernaðarandstæðinga þar sem því er hafnað að hér á landi fái einkaflugher aðstöðu. Eftir því hefur hið vafasama fyrirtæki E.C.A. Program nú falast. Félagsfundur VGR fordæmir alla slíka tilburði og skorar á ríkisstjórn VG og Samfylkingar að hafna slíku fortakslaust, og það nú þegar.

Lesa meira
 
Sóley Tómasdóttir

17.3.2010 : Framboðslisti VG í Reykjavík samþykktur

Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Reykjavík hefur samþykkt framboðslista til sveitastjórnarkosninga í maí. Efstu sex sætin réðust í forvali sem fram fór í byrjun febrúar en listinn í heild sinni var samþykktur samhljóða á félagsfundi 17. mars. 2010 og er svo:

Lesa meira
 

16.3.2010 : Af aðalfundi VG í Vestmannaeyjum

Aðalfundur VG í Vestmannaeyjum var haldinn mánudaginn 22. feb. Auk venjulegra aðalfundastarfa var rætt um starfið framundan og þá einkanlega um væntanlegar bæjarstjórnarkosningar  í maí n.k.  Mikill hugur er á því í Vestmannaeyjum að Vinstri græn verði áberandi  öflug í bæjarmálapólitík á komandi árum og er þegar hafinn undirbúningur þess.
        Stjórn félagsins var þannig kosin: Lesa meira
 

11.3.2010 : Ný stjórn í VG á Akureyri

Auka aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri var haldinn 10. mars síðastliðinn og var þar kjörinn formaður Drengur Óla Þorsteinsson. Aðrir í stjórn eru Guðrún Þórsdóttir, Kolbeinn Stefánsson, Drengur Óla Þorsteinsson, Kristín Sigfúsdóttir og Klara Sigurðardóttir. Varamenn eru þau Helga Einarsdóttir, Hildur Friðriksdóttir og Bjarni Þórodsson.

Lesa meira
 
throstur-thor-olafsson

10.3.2010 : Úrslit póstkosninga á Akranesi

Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi stóð fyrir póstkosningu til að stilla upp á lista fyrir komandi sveitastjórnarkosnignar, kjörsókn var 50%. 

Niðurstaða forvalsins varð eftirfarandi:

1. Þröstur Þór Ólafsson, vélfræðingur

2. Hjördís Garðarsdóttir, neyðarvörður            

3. Reynir Þór Eyvindsson, rafmagnsverkfræðingur       

4. Guðrún Margrét Jónsdóttir, eðlisfræðingur

5. Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir, guðfræðinemi     

6. Örn Arnarson, grunnskólakennari          

7. Samúel Þorsteinsson, kennari og vélvirki

Lesa meira
 
radstefna-i-koben-8-mars-2010

8.3.2010 : Konur og kreppa

Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars héldu vinstriflokkarnir í Evrópu ráðstefnu um kvenfrelsi í Kaupmannahöfn um helgina. Framkvæmdastýra Vinstri grænna, Drífa Snædal, hélt þar erindi um konur og kreppu og fylgir erindið hér í heild sinni á ensku.

Lesa meira
 
kvennamerkid_med_hnefa

8.3.2010 : Til hamingju með daginn

Vinstri græn óska öllu baráttufólki fyrir kvenfrelsi til hamingju með 8. mars, alþjóðlegan barátttudag kvenna. Eitt hundrað ár eru liðin síðan Clara Zetkin, þýsk baráttukona fyrir kvenfrelsi og sósíalisma, fékk samþykkt á alþjóðlegri ráðstefnu að 8. mars skyldi helgaður baráttu kvenna. Nánari upplýsingar um tilurð dagsins, sögu hans og viðburði má nálgast á vef Kvennasögusafnsins.

Lesa meira
 
smugan-ny

2.3.2010 : Smugan á netinu á ný

Smugan.is hefur hafið göngu sína á ný en vefritið er umræðu og fréttavettvangur fyrir vinstra fólk og umhverfis og jafnréttissinna. Nýr ritstjóri Smugunnar er Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Ásgeir H. Ingólfsson sér um menningarumfjöllun og Ingólfur V. Júlíusson um ljósmyndir. Fjöldi landsþekktra pistlahöfunda leggur vefritinu lið. Þráinn Bertelsson og Lilja Mósesdóttir eru pistlahöfundar dagsins, Þráinn fer yfir vikuna í dagbókarstíl eins og honum er einum lagið, Lilja vekur athygli á grunsemdum um að auðmenn noti  fé úr eignarhaldsfélögum sem skiptastjórar hafa ekki enn sett í þrot til að fjármagna yfirtökur skuldsettra félaga. Þá er hin baneitraða steinsmuga á sínum stað.

Lesa meira
 
Olafur Thor Gunnarsson NET

27.2.2010 : Ólafur Þór leiðir listann

Þegar öll atkvæði í forvali Vinstri grænna í Kópavogi hafa verið talin eru úrslitin þau að Ólafur Þór Gunnarsson er í fyrsta sæti, Guðný Dóra Gestsdóttir er í öðru sæti, Karólína Einarsdóttir í því þriðja, Guðbjörg Sveinsdóttir í fjórða sæti, Arnþór Sigurðsson í því fimmta og að lokum hlaut Hreggviður Norðdahl það sjötta. Kjörsókn var góð eða 42,36%. Ólafur var mjög afgerandi í fyrsta sæti.

Lesa meira
 
Olafur Thor Gunnarsson NET

27.2.2010 : Ólafur Þór í fyrsta sæti

Þegar um þriðjungur atkv. hefur verið talinn er Ólafur Þór með ótvíræða forystu í fyrsta sæti en Karólína Einarsdóttir næst.  Guðný Dóra Gestsdóttir hefur forystu í 2. sæti en Karólína Einarsdóttir fylgir fast á eftir. Guðbjörg Sveinsdóttir hefur forystu í 3. sæti en Karólína er skammt á eftir. Í 4. sæti Arnþór Sigurðsson efstur en Karólína er enn rétt fyrir neðan. Í 5. sæti er Karólína efst og á hæla hennar er Hreggviður Norðdahl sem er svo með flest atkvæðií 6. sæti.

Úrslit verða tilkynnt á kosningavöku sem hefst kl. 19.30 í húsnæði Vinstri grænna í Hamraborg 1

Lesa meira
 
akranes

27.2.2010 : Sjö gefa kost á sér í forvali VG á Akranesi

Félagsfundur á Akranesi ákvað að nota póstkosningu við uppröðun á lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar og rennur framboðsfrestur út 26. febrúar. Allir félagar í VG sem skráðir eru til heimilis á Akranesi 26. febrúar næstkomandi fá sendan kjörseðil í pósti sem þeir svo senda aftur til kjörstjórnar skv. leiðbeiningum. Atkvæði þurfa að hafa borist fyrir 8. mars. Nánari upplýsingar um framkvæmd forvalsins og frambjóðendur má nálgast hér.

Lesa meira
 
gudfridur-toppur

26.2.2010 : Upplýstverði um eignarhald banka og annarra fyrirtækja

Hlutaskrár bæði hlutafélaga og einkahlutafélaga verða öllum opnar og aðgengilegar, nái frumvarp sem þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram á Alþingi. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sem gerir ráð fyrir því að Fjármálaeftirlitinu verði skylt að birta skrá yfir hluthafa í bönkum og öðrum fyrirtækjum, sem varðveita eignarhluti sína á safnreikningum fyrirtækja í verðbréfaþjónustu.

Lesa meira
 

25.2.2010 : Tilkynning frá félögum í VG á Fljótsdalshéraði

Tilkynning frá félögum í VG á Fljótsdalshéraði sem taka þátt í vinnu Héraðslistans við að undirbúa komandi sveitarstjórnarkosningar 

Héraðslistinn er samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði og mun bjóða fram við sveitastjórnarkosningarnar í maímánuði næstkomandi.

Lesa meira
 
Ragnar-Frank-Kristjansson

24.2.2010 : Framboðslistinn í Borgarbyggð

Framboðslisti Vinstri grænna í Borgarbyggð var samþykktur á félagsfundi svæðisfélagsins 22. febrúar 2010. Hann er svo skipaður:  

1.     Ragnar Frank Kristjánsson lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri

2.     Ingibjörg Daníelsdóttir kennari og bóndi í Hvítársíðu

Lesa meira
 
spilaviti

24.2.2010 : Akureyringar hafna spilavíti

Stjórn svæðisfélags VG á Akureyri og nágrenni lýsir furðu sinni á hugmyndum tveggja athafnamanna með liðsinni Icelandair um að á Íslandi verði starfrækt spilavíti. Ísland hefur þurft að þola ýmsar skuggahliðar mannlegra athafna síðustu misserin og ekki er á þær bætandi. Spilavíti gera út á mannlega veikleika og hversu mikið sem fagurgalinn og hugtakaruglingurinn fær athygli fjölmiðla þá stendur eftir sú staðreynd að enginn akkur er í slíku fólginn; einungis aukið álag á hinu félagslega stoðkerfi og nóg er nú þegar. Ekki þarf að fjölyrða um hina siðferðislegu uppgjöf sem fælist í því að lögleiða spilavíti.

Lesa meira
 
Gunnar.Sigurdsson

24.2.2010 : Gunnar Sigurðsson dregur framboð sitt til baka við forval fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Kópavogi

Kjörstjórn vegna forvals fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Kópavogi 2010 hefur borist eftirfarandi tilkynning frá frambjóðandanum Gunnari Sigurðssyni: "Skjótt skipast veður í lofti en nú er svo komið að ég neyðist til að draga framboð mitt til baka. Ástæður þess liggja í því að fjölskyldan flytur búferlum úr landi næstu mánuði og því ljóst að ég geti í engan stað komið að bæjarmálum VG í Kópavogi, nema þá á rafrænan hátt. Mér þykir þetta afar miður og biðst innilegrar afsökunar á þessum óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér, en fjölskyldan hefur komist að því að ekki er unnt að sleppa þessu tækifæri sem búferlaflutningurinn kann að bjóða uppá. "

Lesa meira
 

23.2.2010 : Aðalfundur VG í Vestmannaeyjum

Aðalfundur VG í Vestmannaeyjum var haldinn mánudaginn 22. feb. Auk venjulegra aðalfundastarfa var rætt um starfið framundan og þá einkanlega um væntanlegar bæjarstjórnarkosningar  í maí n.k.

Lesa meira
 

22.2.2010 : Auka-aðalfundur VG á Akureyri og nágrenni

VG á Akureyri og nágrenni boðar auka-aðalfund sem haldin verður í Brekkukoti (Brekkugötu 7a), miðvikudaginn 10. mars kl. 20.00.

Lesa meira
 
andrea-hjalmsdottir

19.2.2010 : Framboðslistinn á Akureyri samþykktur

Tillaga uppstillingarnefndar um skipan framboðslista Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akureyri var samþykktur einróma á félagsfundi flokksins í gærkvöldi. Efstu 6 frambjóðendur voru valdir í forvali félagsmanna. Baldvin H. Sigurðsson þáði ekki þriðja sæti listans í samræmi við úrslit forvals og gerði uppstillingarnefnd tillögu um Jón Erlendsson í fjórða sæti.  Listann leiðir Andrea Hjálmsdóttir gullsmiður og félagsfræðingur og Edward H. Huijbens forstöðumaður er í öðru sæti. Vinstri-græn fengju tvo fulltrúa kjörna í síðustu bæjarstjórnarkosningum.

Lesa meira
 
isafjordur

19.2.2010 : Prófkjör Í-listans á Ísafirði 27. febrúar næstkomandi

Vinstri græn taka að venju þátt í starfi Í-listans á Ísafirði en valið verður á listann þann 27. febrúar næstkomandi. Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa allir þeir sem kosningarrétt eiga til sveitarstjórnar í Ísafjarðarbæ í vor og eru ekki flokksbundnir í aðra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í bæjarfélaginu í vor. Í prófkjörinu verða kjörstaðir á Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og Ísafirði. Hægt er að nálgast upplýsingar um frambjóðendur og framkvæmd forvalsins á heimasíðu þess.

Lesa meira
 
seltjarnarnes-logo

19.2.2010 : Prófkjör Bæjarmálafélagsins á Seltjarnarnesi 20. febrúar

Laugardaginn 20. febrúar verður prófkjör Bæjarmálafélags Seltjarnarness vegna vals frambjóðenda á Neslistann í sveitarstjórnarkosningunum að vori. Prófkjörið fer fram í Valhúsaskóla kl. 10 – 16 á laugardaginnog er opið öllum Nesbúum sem hafa öðlast kosningarétt 29. maí 2010.

Átta frambjóðendur keppa um sæti á Neslistanum. Meðal frambjóðenda eru tveir félagar í VG, þau Brynjúlfur Halldórsson og Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir. Brynjúlfur býður sig fram í 2.- 4. sæti og Hafdís Ósk stefnir á 4.–5. sæti.

Lesa meira
 
akranes

17.2.2010 : Póstkosning á Akranesi

Félagsfundur á Akranesi ákvað að nota póstkosningu við uppröðun á lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar og rennur framboðsfrestur út 26. febrúar. Allir félagar í VG sem skráðir eru til heimilis á Akranesi 26. febrúar næstkomandi fá sendan kjörseðil í pósti sem þeir svo senda aftur til kjörstjórnar skv. leiðbeiningum. Atkvæði þurfa að hafa borist fyrir 8. mars.

Lesa meira
 
kjorkassi

16.2.2010 : Endurtalning bréflega greiddra atkvæða í Reykjavík

Að lokinni endurtalningu þeirra atkvæða sem greidd voru bréflega í forvali VGR þann 6. febrúar síðastliðinn, er ljóst að niðurstöður talningar eru þær sömu og á kjördag.

Lesa meira
 
run halldors

15.2.2010 : Rún Halldórsdóttir nýr formaður á Akranesi

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Akranesi og nágrenni var haldinn sl. laugardag. Þar urðu formannsskipti...

Lesa meira
 
VG_logo_slagord

11.2.2010 : Yfirlýsing frá stjórn VGR - frambjóðendur snúa bökum saman

Niðurstaða hefur náðst um þann ágreining sem ríkt hefur um framkvæmd forvals Vinstri grænna í Reykjavík milli stjórnar og efstu frambjóðenda.

Fram hefur komið að frambjóðendur fengu misvísandi upplýsingar um túlkun forvalsreglnanna frá kjörstjórn. Því er ljóst að enginn frambjóðenda braut reglur enda störfuðu þeir í góðri trú. Kjörstjórn hefur í framhaldinu ákveðið að víkja og segja af sér embætti. Við tekur ný uppstillingarnefnd enda ljóst að milli uppstillingarnefndar og þeirra sem skipa efstu sæti listans þarf að ríkja fullur trúnaður.

Lesa meira
 

11.2.2010 : Dagskrá sveitastjórnarráðstefnu

Sveitastjórnarráðstefna Vinstri grænna verður haldin í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ um helgina og hefs á föstudaginn klukkan fimm. Dagskráin verður blanda af fyrirlestrum og hópavinnu og lýkur klukkan 15 laugardaginn 13. febrúar. Allir félagar eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá sig til leiks hjá Hermanni Valssyni, hermann.valsson@reykjavik.is. Dagskrá ráðstefnunnar er svohljóðandi:

Lesa meira
 
hafnarfjordur

10.2.2010 : Ellefu efstu í Hafnarfirði

Á félagsfundi VG í Hafnarfirði var samþykkt uppröðun ellefu efstu á lista fyrir sveitastjórnarkosningar.  

Oddviti listans er Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir núverandi bæjarfulltrúi, en í öðru sæti er Jón Páll Hallgrímsson, smiður. Listinn í heild sinni er svohljóðandi:

 

Lesa meira
 

9.2.2010 : Reglum forvals var fylgt

Í ljósi fjölmiðlaumræðu dagsins um forval VGR fyrir borgarstjórnarkosningar 2010, þar sem látið er að því liggja að kosningasvindl hafi verið framin, áréttar kjörstjórn VGR þá niðurstöðu sína að framkvæmd forvalsins hafi verið í samræmi við reglur þess.

Lesa meira
 
kjorkassi

8.2.2010 : Niðurstaða kjörstjórnar

Frestur til að gera athugasemdir við framkvæmd forvals VGR fyrir borgarstjórnarkosningar í vor leið í kvöld kl. 22. Kjörstjórn barst ein athugasemd frá frambjóðanda. Hún var afgreidd og var niðurstaða kjörstjórnar sú að úrslit þau sem voru kynnt að kvöldi 6. febrúar 2010 standi óbreytt.

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

8.2.2010 : Steingrímur, Þuríður og Björn Valur á ferð um kjördæmið

Þau Steingrímur J. Sigfússon, Þuríður Backman og Björn Valur Gíslason verða á ferð um Norðausturkjördæmi næstu daga og halda fundi sem hér segir:

Hótel Framtíð á Djúpavogi klukkan 12 þriðjudaginn 9. febrúar.

Egilsbúð á Neskaupstað klukkan 20 þriðjudaginn 9. febrúar.

Hótel Aldan á Seyðisfirði klukan 12 miðvikudaginn 10. febrúar.

Hótel Héraði á Egilsstöðum klukkan 20 miðvikudaginn 10. febrúar.

Höllin á Ólafsfirði kl. 12:00 fimmtudaginn 11. febrúar.

Allir velkomnir!

Lesa meira
 
andrea-hjalmsdottir

6.2.2010 : 71% kjörsókn á Akureyri - nýjar tölur

Talin hafa verið 415 atkvæði en eftir er að telja þau atkvæði sem eru í pósti. Kjörsókn er 71%. Atkvæði skiptast þannig:

1. sæti - Andrea Hjálmsdóttir  249

2. sæti - Edward Huijbens       235

3. sæti - Baldvin H Sigurðsson  188

4. sæti - Sóley Björk Stefánsdóttir  185          

5. sæti - Daði Arnar Sigmarsson  237

6 sæti - Kristín Sigfúsdóttir 326 

Lesa meira
 
soley_tomasdottir_1

6.2.2010 : Lokatölur frá forvali VG í Reykjavík

Þegar öll atkvæðin 1062 hafa verið talin í forvali VG í Reykjavík eru úrslitin svo

Sóley Tómasdóttir með 439 atkvæði í fyrsta sætið

Þorleifur Gunnlaugsson með 493 atkvæði í fyrsta til annað sæti

Líf Magneudóttir með 518 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti

Elín Sigurðardóttir með 366 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti

Davíð Stefánsson með 354 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti

Hermann Valsson með 369 atkvæði í fyrsta til sjötta sæti

Lesa meira
 
andrea-hjalmsdottir

6.2.2010 : Fyrstu tölur frá Akureyri

Talin hafa verið 223 atkvæði á Akureyri af 434. Enn geta atkvæði átt eftir að berast í póstkosningu og verða lokatölur ekki kynntar fyrr en á þriðjudag. Staðan núna er hins vegar svo:

 

1. sæti:  Andrea Hjálmsdóttir  124

2. sæti.  Edward Huijbens       123

3. sæti    Baldvin H Sigurðsson  115

4. sæti    Dýrleif Skjóldal           96

5. sæti    Kristín Sigfúsdóttir      135

6. sæti     Sóley Björk Stefánsdóttir   140

Lesa meira
 
soley_tomasdottir

6.2.2010 : Fyrstu tölur í forvali VGR

Um þúsund atkvæði hafa verið greidd á kjörstað í forvali VG í Reykjavík og nokkrir tugir utankjörfundaratkvæða með póstkosningu. Eftir að 300 atkvæði hafa verið talin er staðan í efstu sætunum þessi:

 

Sóley Tómasdóttir með 140 atkvæði í fyrsta sætið

Þorleifur Gunnlaugsson með 155 atkvæði í fyrsta til annað sæti

Líf Magneudóttir með 137 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti

Elín Sigurðardóttir með 108 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti

Hermann Valsson með 111 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti

Davíð Stefánsson með 105 atkvæði í fyrsta til sjötta sæti

Lesa meira
 
kjorkassi

6.2.2010 : Forvöl hafa gengið vel

Kjörfundur hefur staðið yfir á Akureyri og í Reykjavík í dag og gengið vel að sögn kjörstjórna en kjörfundi lýkur á báðum stöðum klukkan 18. Á Akureyri stefnir í mjög góða kjörsókn en lokatölur úr því forvali verða ekki tilbúnar fyrr en á þriðjudag þar sem fólki gafst kostur á því að póstleggja atkvæði í dag. Fyrstu tölur verða vonandi kynntar upp úr klukkan sjö.

Í Reykjavík hefur kjörsókn verið jöfn allan daginn og allt gengið að óskum. Talning hófst klukkan 16 og gengur vel. Fyrstu tölur verða kynntar upp úr klukkan sjö en óvíst er hvenær talningu lýkur í kvöld. Frambjóðendur og aðrir félagar ætla að hittast í safnaheimili Fríkirkjunnar við Laufásveg 13 í kvöld og fá fréttir af talningu jafn óðum og þær berast.

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

6.2.2010 : Fjölmenni á fundi í Dalabúð

Jón Bjarnason og Ásmundur Einar Daðason voru með opinn fund í Dalabúð, Búðardal fimmtudaginn 4. febrúar sl. Fundurinn var mjög fjölmennur þar sem 40-50 manns mætti. Góður andi var í fundarmönnum og mikið var spurt. Fundargestir spurðu einkum út í ESB umsóknarferlið og lýsti fólk einnig yfir mikilli andstöðu við þær hugmyndir að leggja niður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið. Þingmenn VG stefna á fleiri fundi í Norðvesturkjördæmi nú í vikunni og verða þeir boðaðir hérna á vefnum.

Lesa meira
 
blodrur

6.2.2010 : Vinstrihreyfingin – grænt framboð 11 ára í dag

Til hamingju með afmælið!
 
vg-i-kopavogi

4.2.2010 : Ný heimasíða VG í Kópavogi

Nú hefur heimasíða VG í Kópavogi verið formlega opnuð eftir að hafa legið niðri um nokkurt skeið vegna breytinga. Síðan hefur heldur betur tekið breytingum og er orðin öll hin glæsilegasta. Á síðunni má finna upplýsingar um félagið ásamt greinum, fréttum og upplýsingum um viðburði sem verða uppfærð reglulega. Þá má finna allar helstu upplýsingar um forval VG í Kópavogi og í framhaldinu verður útbúinn vettvangur á síðunni sem verður algjörlega helgaður kosningunum. Á síðunni er hægt að skrá sig á póstlista VG í Kópavogi en með þeim hætti geta félagar fengið allar upplýsingar um fréttir og viðburði á vegum VG í Kópavogi sendar í tölvupósti.

Lesa meira
 
laknar

4.2.2010 : Tryggja verður aðkomu heimafólks að ákvörðunum um heilbrigðisþjónustu

Fundur Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs haldinn í Varmahlíð 30. janúar 2010 skorar á þingmenn flokksins og heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir beinni aðkomu heimamanna að ákvörðunum sem teknar eru um heilbrigðisþjónustu.  Slík aðkoma er mjög mikilvæg nú þegar ljóst er að standa þarf fyrir sársaukafullum aðgerðum.  Þess er krafist að látið verði af miðstýringaráráttu í heilbrigðisþjónustu sem beinist ekki síst gegn heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni.  Framkvæmd niðurskurðar er varasöm og getur hæglega snúist upp í andhverfu sína, ógnað öryggi íbúa viðkomandi svæða og haft neikvæð áhrif á búsetuþróun.  Hvatt er til þess að endurreistar verði stjórnir heilbrigðisstofanna til að veita heilbrigðisyfirvöldum aðhald og vera jafnframt ráðgefandi í stefnumörkun og forgangsröðun verkefna hjá viðkomandi heilbrigðisstofnun.

Lesa meira
 

1.2.2010 : Aðalfundur vinstri græna norðurlandasamstarfsins

Mánudaginn 1. febrúar 2010 var haldinn aðalfundur NGLA (Nordic Green Left Alliance) í Kaupmannahöfn. Í NGLA sitja vinstri grænu flokkarnir á Norðurlöndum, VG á Íslandi, Vänsterpartiet í Svíþjóð, SV í Noregi, SF í Danmörku og Vänsterförbundet í Finnlandi. Á síðasta ári gengu einnig Tjodvelid í Færeyjum og IA í Grænlandi til liðs við félagsskapinn. Formenn allra flokkanna voru á staðnum og framkvæmdastjórar og –stýrur flestra flokkanna einnig. Farið var yfir pólitíkina í hverju landi fyrir sig og ljóst að flokkarnir eiga margt sameiginlegt. Kreppan leggst mishart á löndin en flest horfa þau upp á atvinnuleysi í kringum 10%, nema Noregur þar sem atvinnuleysið er í sögulegu lágmarki. Markmið allra flokkanna er að styrkja Norrænt velferðarkerfi í sessi við erfiðar efnahagslegar aðstæður.

Lesa meira
 
kopavogur

1.2.2010 : Átta gefa kost á sér í forvali í Kópavogi

Forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Kópavogi fyrir bæjarsstjórnarkosningarnar í vor verður haldið laugardaginn 27. febrúar n.k. Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og er kjörið opið öllum félagsmönnum í VG í Kópavogi, en kjörskrá verður lokað 16. febrúar. Eftirtaldir gefa kost á sér:

Lesa meira
 
forvalsbaekl_Reykjavik_fors

29.1.2010 : Forvalsbæklingur Reykjavíkur kominn á vefinn

Forvalsbæklingur Vinstri grænna í Reykjavík er kominn á vefinn en þar má nálgast upplýsingar um þá 18 félaga sem bjóða sig fram. Forvalið fer fram laugardaginn 6. febrúar næstkomandi. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér.

Lesa meira
 
handboltalandslidid

29.1.2010 : VG keppir ekki við handboltalandsliðið!

Hádegisfundur frambjóðenda í forvali VG í Reykjavík verður fluttur til kl. 15 á morgun, laugardag. Kaffi og með því að Vesturgötu 7.

Áfram Ísland!
Vinstri-græn í Reykjavík.

Lesa meira
 
kjorkassi

29.1.2010 : Framboðsfrestur í Kópavogi

Framboðsfrestur til forvals Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi rennur út á miðnætti laugardaginn 30. janúar. Kosið verður um 6 efstu sætin. Framboð er hægt að tilkynna með tölvupósti í netfang kjörstjórnar forval.kopavogur@vg.is. Í kjörstjórn eru Þóra Elfa Björnsson, Lára Jóna Þorsteinsdóttir og Einar Ólafsson. Forvalið fer fram laugardaginn 27. febrúar.

Lesa meira
 

28.1.2010 : Allt að gerast í Reykjavík

Nú er allt komið á fullt í Reykjavík, enda stutt í forval fyrir borgarstjórnarkosningar. Vakin er athygli á eftirfarandi fundum og fréttum:

Lesa meira
 
icesave

26.1.2010 : Ályktun um icesave frá stjórn svæðisfélags Vinstri Grænna á Akureyri og nágrenni

Stjórn svæðisfélags VG á Akureyri og nágrenni beinir því til þingflokksins að vinna saman að úrlausn hins gríðarlega vanda sem skapaðist í kjölfar efnahagshrunsins og láta icesave málið ekki þvælast þar fyrir. Þegar tveir deila er það sjaldnast aðeins annars sök og þessi vandasama milliríkjadeila verður ekki leyst öðruvísi en með samningum sem báðir aðilar sætta sig við. Um málið verður einfaldlega að semja sem fyrst á hvora leið sem þjóðaratkvæðagreiðsla fer. Mikilvægi þess að ljúka málinu getur engum dulist þar sem neikvæð efnahagsleg áhrif vegna óleystrar deilunnar munu aðeins bitna á þeim sem síst skyldi. Okkar er að draga þá til ábyrgðar sem fyrir málinu stóðu og er það skylda stjórnarinnar að fylgja þeim málum eftir. Goðgá væri að hleypa flokkunum sem stóðu fyrir hruninu að stjórnborðinu til að spilla fyrir málalyktum.

Lesa meira
 
kvennamerkid_med_hnefa

25.1.2010 : Stjórn Kvenréttindafélagsins fagnar forvalsreglum VG

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands fagnar því ákvæði í forvalsreglum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, sem kveður á um að ef hallar á konur í niðurstöðum forvals á sex fyrstu sætum lista, skuli uppröðun leiðrétt með fléttulista.

Ákvæði þetta er í samræmi við kvenfrelsisstefnu VG og er til þess fallið að leiðrétta kynjahallann sem hefur verið við lýði í gegnum tíðina. Þótt einungis eigi þetta við um VG í Reykjavík er innborgun hreyfingarinnar á hina sögulegu skuld kærkomið skref í átt að meira jafnræði kynjanna á sveitarstjórnarstigi.

Lesa meira
 
kopavogur

25.1.2010 : Ríkisstjórnin stendur ekki og fellur með Icesave

Aðalfundur svæðisfélags VG í Kópavogi var haldinn 21. janúar síðastliðinn og var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Meginverkefni núverandi ríkisstjórnar er uppgjör vegna hrunsins og endurmótun íslenska efnahagskerfisins með velferðarsamfélag í anda hinna norrænu velferðarsamfélaga að leiðarljósi. Ríkisstjórnin stendur og fellur með þessu verkefni. Þótt vandamálið vegna Icesave-samninganna sé mikið og alvarlegt, og þótt það verði ekki slitið úr samhengi við hið kapítalíska brask undanfarinna ára, þá er það eigi að síður afmarkaður þáttur þeirra vandamála sem ríkisstjórnin tók við. Brýnt er að leita þverpólitískrar sáttar um að leysa málið sem fyrst. Ríkisstjórnin stendur ekki og fellur með úrslitum þessa máls en það má ekki verða til að hleypa þeim meginverkefnum í uppnám sem ríkisstjórnin var kosin til að leysa.

Lesa meira
 
forvalsbaekl_Akureyri_2010_forsida

22.1.2010 : Forvalsbæklingur frá Akureyri

Bæklingur með upplýsingum um frambjóðendur í forvali VG á Akureyri er nú kominn út. Honum verður dreift á næstunni til allra félaga í Akureyrarfélaginu en einnig má nálgast bæklinginn hér.

Lesa meira
 

20.1.2010 : Borgarstjórn samþykkti tillögu VG um að veita 100 kr. á hvern íbúa Reykjavíkur til hjálparstarfs á Haítí

Á borgarstjórnarfundi 19. febrúar 2010 var tillaga VG um aðstoð við íbúa Haítí samþykkt. Tillagan er svona: "Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að veita sem samsvarar 100 kr. á hvern íbúa í  Reykjavík til hjálparstarfs vegna náttúruhamfara og yfirstandandi hörmunga á Haítí.Verði Rauða krossi Íslands falin ráðstöfun fjárins. Fjármagnið komi af liðnum ófyrirséð í fjárhagsáætlun." Hér á eftri fylgir ræða Þorleifs Gunnlaugssonar um málið:

Lesa meira
 
kjorkassi

20.1.2010 : Auglýsing um forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi 2010

Forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi í vor verður haldið laugardaginn 27. febrúar. Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og er kjörið opið öllum félagsmönnum í VG í Kópavogi, en kjörskrá verður lokað á miðnætti þann 17. febrúar.

Framboðsfrestur fyrir forvalið rennur út á miðnætti þann 30. janúar. Framboð skal tilkynna skriflega til kjörstjórnar. Það má gera rafrænt með tilkynningu á netfang kjörstjórnar forval.kopavogur@vg.is.

Frestur til að stinga upp á frambjóðendum  rennur út á miðnætti þann 24. janúar. Uppástungur skulu vera skriflegar og má senda þær rafrænt á netfang kjörstjórnar.

Lesa meira
 

17.1.2010 : Frambjóðendur á Akureyri

Forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fyrir bæjarstjórnar-kosningarnar á Akureyri í vor, verður haldið laugardaginn 6. febrúar n.k. Kjörið opið öllum félagsmönnum í VG á Akureyri, en kjörskrá verður lokað þann 27. janúar.

Lesa meira
 

17.1.2010 : 19 gefa kost á sér í forvali VG í Reykjavík

Forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fyrir borgarstjórnar-kosningarnar í vor, verður haldið laugardaginn 6. febrúar n.k. Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og er kjörið opið öllum félagsmönnum í VG í Reykjavík, en kjörskrá verður lokað þann 27. janúar.

Á næstu dögum mun flokksfélag Vinstri grænna í Reykjavík standa fyrir kynningu á frambjóðendunum, en þeir eru í stafrófsröð:

Lesa meira
 

16.1.2010 : Ályktanir samþykktar á flokksráðsfundi VG á Akureyri 16. janúar 2010

Um 130 manns sátu flokksráðsfund Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs dagana 15.-16. janúar. Miklar umræður voru á fundinum og barst fjöldinn allur af ályktunum fyrir helgina. Þeim var skipt upp í málefnahóopa sem störfuðu innan fundarins. Allar ályktanir sem afgreiddar voru, voru samþykktar með miklum meirihluta og langflestar samhljóða.

Lesa meira
 

15.1.2010 : Flokksráðsfundur hafinn

Félagar í Vinstri grænum á Akureyri tóku vel á móti flokksmönnum af öllum landshornum þegar flokksráðsfundur var settur á hótel KEA síðdegis í dag. Vel á fimmta tug ályktana liggur fyrir og er ljóst að mikið starf verður unnið næsta sólarhringinn en fundinum verður slitið klukkan þrjú á morgun.

Lesa meira
 

15.1.2010 : Forvalsreglur Akureyrarfélagsins

Forval fyrir sveitastjórnarkosningarnar á Akureyri fer fram 6. febrúar næstkomandi en framboðsfrestur rennur út laugardaginn 16. janúar. Frestur til að skrá sig í flokkinn og taka þátt í prófkjörinu rennur út tíu dögum fyrir forvalið. Reglurnar má nálgast í heild sinni hér.

Lesa meira
 

13.1.2010 : Uppstilling hjá Vinstri grænum í Hafnarfirði

Á félagsfundi Vinstri grænna í Hafnarfirði var einróma samþykkt að stilla upp framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarskosningar.  Á fundinum var kosin uppstillingarnefnd sem mun bera upp tillögu að sex efstu frambjóðendum listans á fundi sem er áætlaður þann 1. febrúar næstkomandi.

Formaður uppstillingarnefndarinnar er Árni Stefán Jónsson.

Lesa meira
 

11.1.2010 : Ályktanasmiðja fyrir flokksráðsfund

Þriðjudaginn 12. janúar klukkan 20 í Suðurgötu verður haldin vinnusmiðja um ályktanatillagnagerð fyrir flokksráðsfundinn þar sem þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í að skrifa ályktanatillögur geta hist og unnið saman og sitt í hvoru lagi að tillögum. Komið og takið þátt í að móta stefnu flokksins. Tillögum að ályktunum þarf að skila inn til skrifstofu VG tveim dögum fyrir flokksráðsfundinn, eða í síðasta lagi miðvikudaginn 13. janúar.

Lesa meira
 

8.1.2010 : Frestur til að stinga upp á fólki í framboð rennur út á morgun

Ákveðið hefur verið að halda forval í allavega þrem svæðisfélögum VG; á Akureyri, í Reykjavík og í Kópavogi. Frestur til að stinga upp á fólki í framboð í Reykjavík og á Akureyri rennur út á morgun, laugardaginn 9. janúar.

Lesa meira
 

6.1.2010 : Allir félagar velkomnir á flokksráðsfund VG á Akureyri 15.-16. janúar

Flokksráðsfundur VG verður haldinn á Akureyri dagana 15. og 16. febrúar. Allir skráðir félagar í VG er velkomnir. Sjá nánar um flokksráð hér: /folkid/flokksrad/ og fundinn hér: /frettir/a-dofinni//nr/4379
Lesa meira
 
frost

24.12.2009 : Þegar dag tekur að lengja!

Þrátt fyrir skammdegismyrkur og veðragang eru vetrarsólstöður, jól og áramót kærkominn tíma á sinn hátt. Þá gefst örlítið næði frá hversdags amstrinu, til samveru með fjölskyldu og vinum, til þess að horfa yfir farinn veg sem og að huga að framtíðinni. Þegar horft er til baka yfir árið sem nú er að renna sitt skeið á enda verður seint annað sagt en það hafi verið bæði viðburða- og afdrifaríkt. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hlaut eldskírn sína í ríkisstjórn, kom fyrirvaralítið að stjórn landsins við einhverjar erfiðustu aðstæður sem nokkur ríkisstjórn lýðveldisins hefur glímt við. Í kjölfarið fóru fram kosningar og þar hlutum við sterkt umboð frá kjósendum. Aðrar kosningarnar í röð urðum við Vinstri græn helsti sigurvegarinn, fórum úr tæplega 9% fylgi í rúm 14% í kosningum vorið 2007 og síðan í tæp 22% sl. vor. Þingmannafjöldinn rúmlega tvöfaldaðist, úr 5 í 14. Saga íslenskra flokkastjórnmála geymir enga hliðstæðu við sögu okkar Vinstri grænna og það segir líka sína sögu að þrátt fyrir allt sem gengið hefur á skulum við þó vera stödd þar sem við erum í dag. Það endurspeglar mikinn styrk og hversu gott starf liðsmenn VG hafi unnið á þeim 10 árum sem liðin eru frá því hreyfingin var stofnuð.

Lesa meira
 
VG_logo_slagord

24.12.2009 : Gleðileg jól

Vinstri græn óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Við þökkum stuðninginn á árinu sem er að líða og munum ekki láta okkar eftir liggja í því stóra verkefni sem þjóðin glímir við, hvort sem er á landsvísu eða í sveitastjórnarmálum á komandi ári.

Lesa meira
 

17.12.2009 : Forval á Akureyri

Á félagafundi svæðisfélags VG á Akureyri og nágrenni var samþykkt að forval yrði fyrir sveitarstjórnarkosningar á Akureyri laugardaginn 6. febrúar á 11 ára afmæli flokksins. Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og verður jafn hlutur kynja tryggður við endanlega uppröðun ef þörf krefur, gegnum paraðan fléttulista. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn 16. janúar. Félagsmönnum heimilt að koma með ábendingar um vænlega frambjóðendur til 9. janúar. Framboðum og ábendingum skal komið á netfang kjörstjórnar: jer@akureyri.is

Lesa meira
 

14.12.2009 : Lýst eftir framboðum

Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík lýsir eftir framboðum í forvali flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Forvalið verður haldið þann sjötta febrúar n.k. í samræmi við reglur sem samþykktar hafa verið á félagsfundi.

Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og verður jafn hlutur kvenna tryggður við endanlega uppröðun ef þörf krefur. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn sextánda janúar. Jafnframt er félagsmönnum heimilt að koma með ábendingar um vænlega frambjóðendur eigi síðar en til níunda janúar.

Lesa meira
 

10.12.2009 : Ítarlegar tillögur Vinstri grænna til að bæta aðbúnað barna og tekjulágra í Reykjavíkurborg

Þessar tillögur lagði Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi fram í borgarráði í dag. Þeirra á meðal eru tillögur um að nýta hækkun útsvars til hækkunar fjárhagsaðstoðar og fræðslumála, systkynaafslátt á skólamáltíðir og svo mætti áfram telja. Hér að neðan má sjá hvernig VG vill forgangsraða upp á nýtt í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2010

Lesa meira
 

4.12.2009 : Starfskraftur óskast í Suðurgötuna

Óskað er eftir manneskju til starfa fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Starfsviðið er hefðbundin skrifstofustörf, símavarsla, móttaka gesta, félagaskráning og annað sem til fellur í stórum flokki. Viðkomandi mun vinna með framkvæmdastýru flokksins á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi sé þjónustulundaður, greiðvikinn, sveigjanlegur, hafi þekkingu á flokknum, búi yfir tölvukunnáttu og hugsjónum til góðra verka. Nánari upplýsingar um starfið veitir Drífa Snædal í netfangi drifa@vg.is. Umsóknir skulu berast: Vinstrihreyfingin – grænt framboð, pósthólf 175, 121 Reykjavík, fyrir 15. desember. Æskilegt er að nýr starfskraftur geti tekið til starfa fljótlega á nýju ári.

Lesa meira
 

25.11.2009 : Hagræðing í skólum verður að vera í samráði við starfsfólk

Fulltrúi Vinstri grænna í menntaráði getur ekki fallist á þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010. Ber þar hæst óbreytt útsvarsprósenta þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og minni tekjur borgarinnar. Tilgangur útsvars er að fjármagna sameiginlegan rekstur borgarbúa og því eðlilegt að þegar harðnar í ári dreifist kostnaðurinn með sanngjörnum hætti á borgarbúa. Fullnýtt útsvarsprósenta gæti skapað borginni 630 – 700 miljónir króna í tekjur árið 2010. Niðurskurðurinn er því enn meiri en nauðsyn krefur að mati Vinstri grænna. Þess má geta að ef sveitarfélög fengju aukna heimild til að hækka útsvarsprósentu t.d. um 1% til viðbótar myndi það gjörbreyta rekstrarforsendum borgarinnar, en myndi aðeins hækka útsvar um 6.250 krónur á mánuði hjá manni með 500 þúsund kr. í laun á mánuði.

Lesa meira
 

24.11.2009 : Hart tekist á um fjárlagagerð hjá borginni

Verið er að leggja lokahönd á fjárlögin hjá borginni þessa dagana og forgangsröðun meirihlutans kemur skýrt í ljós. Miskunnarlaus niðurskurður í menntamálum og velferðarmálum á meðan enn er gælt við framkvæmdir sem mega bíða betri tíma. Á fundi velferðarráðs í dag bókaði fulltrú VG, Drífa Snædal, eftirfarandi:

 

Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði Reykjavíkurborgar getur ekki fallist á þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010. Ber þar hæst óbreytt útsvarsprósenta þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og minni tekjur borgarinnar. Tilgangur útsvars er að fjármagna sameiginlegan rekstur borgarbúa og því eðlilegt að þegar harðnar í ári dreifist kostnaðurinn með sanngjörnum hætti á borgarbúa. Fullnýtt útsvarsprósenta gæti skapað borginni 630 miljónir króna í tekjur árið 2010. Niðurskurðurinn er því enn meiri en nauðsyn krefur að mati Vinstri grænna.

Lesa meira
 

23.11.2009 : Fundagerðir sveitastjórnarráðs komnar á vefinn

Sveitastjórnarráð VG hefur óskað eftir því að fundagerðir þess verði settar á vef VG líkt og fundagerðir stjórnar flokksins. Þetta er því allt aðgengilegt á síðunni undir Um VG/Fundagerðir. Njótið vel.

Lesa meira
 

20.11.2009 : Benedikt Davíðsson - minning

Með Benedikt Davíðssyni er fallinn frá einhver traustasti og eljusamasti forystumaður verkalýðsbaráttunnar undanfarna áratugi. Benedikt átti ekki langt að sækja skilning sinn og samúð með kjarabaráttu launafólks, kominn af vestfirsku alþýðufólki og alinn upp við sjómennsku og fiskvinnslu á Patreksfirði. Hann stóð traustum fótum í lífsbaráttu alþýðufólks á Íslandi. Benedikt sótti sér síðan iðnmenntun til Reykjavíkur og helgaði upp úr því stóran hluta starfsævi sinnar félagsstörfum og kjarabaráttu fyrir sína félaga á því sviði. Hann skipaði sér í raðir sósíalista og tilheyrði róttækustu stjórnamálsamtökum landsins á hverjum tíma upp frá því. Forystustörfum hans fyrir Trésmíðafélag Reykjavíkur, Alþýðusamband Íslands og Samband byggingarmanna verða ugglaust gerð betri skil af þeim sem til þess eru færari en ég. Okkar leiðir lágu fyrst og fremst saman í gegnum stjórnmálastarfið, innan Alþýðubandalagsins og síðan Vinstri grænna.

Lesa meira
 

17.11.2009 : ESB-vefur VG

Vert er að benda á að fréttir af fundum um Evrópusambandið sem haldnir hafa verið undanfarið er að finna hér á vefnum undir "Stefna VG" og "ESB umræða". Njótið vel.
Lesa meira
 

13.11.2009 : Tíu hollráð fyrir þig sem hyggur á þátttöku í stjórnmálum

Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu. Höfundar eru fulltrúar kvenna úr öllum flokkum, Drífa Hjartardóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Kolbrún Stefánsdóttir, varaformaður Frjálslynda flokksins, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og Þórey A. Matthíasdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna.

Lesa meira
 

12.11.2009 : VGR vill að breytingar á kosningalögum fari fyrir stjórnlagaþing

Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík haldinn 12. nóvember 2009 telur best fara á því ef stjórnlagaþingi yrði falið að móta tillögur um ný kosningalög sem tekið gætu gildi fyrir næstu Alþingiskosningar. Mikil þörf er á rækilegri endurskoðun kosningalaga, en fundurinn getur ekki fallist á frumvarp sem kemur í veg fyrir að flokkar geti tryggt jafnræði frambjóðenda með tilliti til kyns, aldurs og aðgangs að fjármagni. Jafn viðamikla breytingar og verið er að ræða nú um mundir verða að vera vandlega ígrundaðar og unnar í sátt við kjósendur.

Lesa meira
 

12.11.2009 : Vinstri græn í Reykjavík samþykkja forval 6. febrúar

Vinstri græn í Reykjavík héldu félagsfund í kvöld þar sem ákveðið var að boða til forvals þann 6. febrúar 2010 vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Á fundinum var ákveðið að kjörstjórn skipi þau Ármann Jakobsson, Helga Björg Ragnarsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Sigríður Kristinsdóttir og Stefán Pálsson. Þá var gengið frá forvalsreglum sem eru svohljóðandi:

Lesa meira
 

5.11.2009 : Stjórnarformaður OR fer með rangt mál

Yfirlýsing frá Þorleifi Gunnlaugssyni, fulltrúa VG í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vegna ummæla Guðlaugs Sverrissonar stjórnarformanns Orkuveitunnar um að Orkuveitan sjái fram á hundruð milljóna króna kostnaðarauka vegna tafa á Helguvíkurverkefninu, óvissu um Suðvesturlínur og orkuskatta sem valdi því að Orkuveitan geti ekki staðfest pöntun á Mitzubishi-aflvélum frá Japan og reyni nú að mæta tafakostnaði með hærra orkuverði frá Norðuráli.

Lesa meira
 

5.11.2009 : Meirihlutinn í Reykjavík stingur athugasemdum um vatnsverndarsvæðin undir stól

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík átelur að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn Reykjavíkur stingi undir stól athugasemdum nefnda borgarinnar um möguleg áhrif Suðvesturlínu á vatnsverndarsvæði borgarinnar.

Það vekur upp spurningar um hverra hagsmuna meirihluti borgarráðs er að gæta þegar hann metur fjárhagslega hagsmuni Orkuveitu Reykjavíkur ríkari en vatnsverndarsvæði borgarbúa. Afar veigamiklar athugasemdir umhverfis- og samgöngusviðs og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur um möguleg áhrif Suðvesturlínu á vatnsverndarsvæðin eru ekki nefndar eða þeirra getið í bréfi borgarráðs til Skipulagsstofnunar þann 22. október varðandi mat á Suðvesturlínum.

Lesa meira
 

4.11.2009 : Enginn frambjóðandi eyddi meiru en 300 þúsund í forvali

Í dag birti Ríkisendurskoðandi upplýsingar um uppgjörsskil frambjóðenda í prófkjörum flokkanna fyrir síðustu kosningar. Af því tilefni er rétt að taka það fram að samkvæmt lögum Vinstri grænna er lagt bann við auglýsingum frambjóðenda og enginn af þeim 103 sem buðu sig fram í forvölum á vegum hreyfingarinnar fór yfir 300 þúsund króna markið í kostnaði. Þrátt fyrir þetta var gerð krafa um skil hvers einasta frambjóðanda um vottorð þessa efnis.  Við hvetjum þá frambjóðendur sem eiga eftir að skila að gera það sem fyrst.

Lesa meira
 
Bergur Sigurdsson NET

3.11.2009 : Nýr framkvæmdastjóri þingflokksins

Nýr framkvæmdastjóri, Bergur Sigurðsson, hefur verið ráðin til starfa hjá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Bergur nam umhverfisefnafræði við Háskólann í Osló á árunum 1994-2000 og starfaði í framhaldi af því við heilbrigðiseftirlit á Suðurnesjum í sex ár. Síðastliðin þrjú ár gegndi hann starfi framkvæmdastjóra hjá Landvernd en fram að því sat hann í stjórn Náttúruverndarsamtaka Íslands. Í aukastörfum hefur Bergur tekið að sér leiðsögn fyrir erlenda ferðamenn, jafnt ofansjávar sem neðan, og kennt sportköfun við Sportköfunarskóla Íslands. Bergur tekur við starfinu af Drífu Snædal sem hefur frá síðustu kosningum haldið utan um störf þingflokksins auk þess að vera framkvæmdastýra flokksins en hún heldur þeim störfum áfram. Bergur hóf störf síðustu mánaðamót.

Lesa meira
 

3.11.2009 : VG á Akureyri varar við einkavæddu hermangi

Stjórn Svæðisfélags Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri fordæmir þær fyrirætlanir að hefja útleigu á orrustuþotum á Íslandi. Ísland á í miklum efnahagsvanda og atvinnuleysi meira en boðlegt er. Þrátt fyrir það mega Íslendingar ekki tapa sjálfsvirðingu sinni og þurfa nú sem aldrei fyrr á öllu sínu siðferðisþreki að halda. Hluti af því er að taka ekki öllum uppástungum um atvinnustarfssemi gagnrýnilaust. Atvinnustarfssemi byggð á einkareknu hermangi er ekki boðleg leið til endurreisnar atvinnustarfsemi á Íslandi.

Lesa meira
 
atli-toppur

29.10.2009 : Góður fundur í Vestmannaeyjum

Atli Gíslason þingmaður og svæðisfélag Vinstri- grænna í Vestmannaeyjum stóðu fyrir opnum almennum fundi í Vestmannaeyjum  í gærkvöldi ( miðvikudag). Fundurinn var vel sóttur, málefnalegur og afar gagnlegur. Landsmálin almennt voru trædd, farið yfir þróun stjórnmála á Íslandi frá því fyrir efnahagshruðið á síðasta ári og hvað síðan hefur gerst. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Alþingis voru ræddar hugað að framtíðarhorfum þjóðarinnar eftir þau gjörningaveður sem hún hefur og er að ganga í gegn um.  Þá voru tekin til umræðu þau mál sem helst brenna á Vestmannaeyingum og öðru landsbyggðarfólki nú um þessar mundir.

Lesa meira
 

28.10.2009 : VG leggur til 18.000 króna hækkun á fjárhagsaðstoð

Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði Reykjavíkurborgar, Drífa Snædal, lagði til að fjárhagsaðstoðin yrði hækkuð um 18.000 krónur. Þetta er í takt við það sem Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi hefur talað fyrir og í samræmi við þær hækkanir sem launafólk hefur fengið síðustu mánuði og væntanlegar eru. Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar er nú 115.000 krónur á mánuði og því engin ofrausn að hækka hana um 18.000 og má ekki minna vera.

Lesa meira
 

23.10.2009 : Öflugur fundur á Suðurnesjum með Atla, Svandísi og Sigmundi Einarssyni

Um 60 manns mættu á fund VG á Flughóteli í Reykjanesbæ í kvöld, fimmtud. 22. okt. Þar höfðu framsögu Atli Gíslason alþingismaður, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Sigmundur Einarsson jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun.

Lesa meira
 

21.10.2009 : Opnir fundir næstu daga

Þingmennirnir okkar ætla að nýta næstu daga fundahalda og eru allir hvattir til að nýta tækifærið og eiga orðastað við okkar kjörnu fulltrúa. Fundirnir eru að sjálfsögðu öllum opnir. Þeir fundir sem þegar hafa verið ákveðnir eru:

Lesa meira
 

17.10.2009 : Sveitastjórnarfólk undirbýr kosningar

Sveitastjórnarráð Vinstri grænna stóð fyrir fjölmennri ráðstefnu í Fjölbrautaskóla Akraness um helgina þar sem fólk kom sér í stuð fyrir komandi vetur og kosningabaráttu. Margir hópar voru starfandi sem fjalla um sveitastjórnarmál frá öllum hliðum, þjónustu, fjármál, skipulag og svo framvegis. Auk þess var starfandi hópur um kosningabaráttuna og upplegg hennar. Ein ályktun var samþykkt á fundinum og er hún svohljóðandi:

Fundur Sveitastjórnarráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn á Akranesi 16. október 2009, telur áríðandi að heimildir sveitarfélaga til aukinnar tekjuöflunar verði rýmkaðar.

Lesa meira
 
belja

16.10.2009 : Góður fundur á Hvolsvelli um landbúnaðarmál

Fundur um málefni landbúnaðarins og stöðu bænda var haldinn á Hvolsvelli 14. október. Atli Gíslason, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra héldu framsögur á fundinum og að þeim loknum hófust góðar umræður.  Vítt og breitt var farið í umræðunum og þó fundarefnið væri landbúnaðarmál og staða bænda þá snérust umræður þar að auki um Icesave, samstarfið við AGS, Evrópusambandið, málefni lífeyrissjóðanna, fjárlögin, virkjanir og álver svo fátt eitt sé nefnt. Fundargestum var sérstaklega hugleikið hátt raforkuverð og auðvitað skuldastaða bænda. Á fundinum kom líka fram mikill áhugi bænda fyrir lífrænni ræktun og voru þeir Jón og Atli sérstaklega hvattir til að beita sér fyrir því að gera áhugasömum bændum kleift að færa sig yfir í lífrænan búskap.

Lesa meira
 

13.10.2009 : Einhugur um ráðherrana í NA-kjördæmi

Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi haldinn í Mývatnssveit 11. október 2009 lýsir yfir ánægju sinni með að flokkurinn skyldi ganga til stjórnarsamstarfs við Samfylkinguna eftir alþingiskosningar á síðasta vori.  Jafnframt lýsir fundurinn yfir fyllsta stuðningi við störf ráðherra flokksins.  Fundurinn beinir þeim eindregnu tilmælum til þingflokks Vinstri grænna að hann standi einhuga að baki ráðherranna við erfið verkefni þeirra.

Lesa meira
 

13.10.2009 : Ný stjórn og ályktun frá svæðisfélagi VG á Akureyri

Aðalfundur Svæðisfélags Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri og nágrenni fór fram 1.október og var þar ný stjórn kosin: Formaður er Guðbergur Egill Eyjólfsson, ritari Edward H. Huijbens, gjaldkeri Kristín Sigfúsdóttir og meðstjórnendur Drengur Óla Þorsteinsson og Klara S. Sigurðardóttir.

 

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Lesa meira
 

12.10.2009 : VG boðar til sveitastjórnarráðstefnu

Vinstri græn eru farin að huga að sveitastjórnarkosningum og um helgina blæs sveitastjórnarráð flokksins til ráðstefnu í Fjölbrautarskólanum á Akranesi. Ráðstefnan er öllum opin en fulltrúar svæðisfélaga, sveitastjórnarfulltrúar og fólk sem hugar að þátttöku í sveitastjórnarmálum á næsta kjörtímabili er sérstaklega boðið velkomið. Nauðsynlegt er að skrá sig til leiks hjá hermann.valsson@reykjavik.is

Lesa meira
 
Ogmundur Jonasson NET

10.10.2009 : Ögmundi verði boðið aftur sæti í ríkisstjórn

Húsfyllir var á fundi félagsmanna VG með Ögmundi Jónassyni í Kragakaffi í Kópavogi í dag. Fundurinn hófst með ávarpi frá Ögmundi þar sem hann skýrði aðdragandann og ástæður fyrir brotthvarfi   sínu úr ríkisstjórn Íslands. Ögmundur sagðist fara frá með miklum trega en að hann hefði ekki átt annarra kosta völ, enda hefðu honum verið settir afarkostir með hótunum um að ríkisstjórnin spryngi ef ráðherrar hennar yrðu ekki allir á einu máli um Icesave. Hann hefði viljað að ríkisstjórnin starfaði áfram og þess vegna sagt af sér embætti heilbrigðisráðherra. Ögmundur sagðist hafa lagt þunga áherslu á að Alþingi ætti að fá Icesave-málið skuldbindingarlaust til meðferðar og að leitast ætti við að ná um það breiðri samstöðu.

Lesa meira
 

7.10.2009 : Sóknaráætlun gegn landsbyggðinni mótmælt

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Skagafirði sendir frá sér svohljóðandi ályktun:

Svæðisfélög Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Húnavatnssýslum og Skagafirði harma framgöngu forystumanna stjórnarflokkanna gagnvart landsbyggðinni og Norðurlandi vestra sérstaklega. Um leið og það er viðurkennt að allir þurfi að taka á sig auknar byrðar nú er því mótmælt að vegið sé að einum landshluta umfram aðra með þeim tillögum að niðurskurði sem kynntar hafa verið.

Lesa meira
 

1.10.2009 : Ályktanir VG í Borgarbyggð

Á fundi svæðisfélags VG í Borgarbyggð 29. október voru samþykktar tvær ályktanir svohljóðandi:

Lesa meira
 
alfheidur ingadottir 2

1.10.2009 : Álfheiður Ingadóttir nýr heilbrigðisráðherra

Álfheiður Ingadóttir tók við embætti heilbrigðisráðherra á ríkisráðsfundi fyrir stundu af Ögmundi Jónassyni sem óskaði lausnar í gær. Álfheiður hefur verið virk í stjórnmálum um áratuga skeið og tók sæti á þingi eftir kosningar 2007. Á þingferlinum hefur hún setið í heilbrigðisnefnd ásamt allsherjarnefnd, kjörbréfanefnd, efnahags- og skattanefnd og Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009. Þá hefur hún gegnt formennsku í viðskiptanefnd frá ríkisstjórnarskiptum í febrúar.

Lesa meira
 

30.9.2009 : Eindreginn stuðningur við ríkisstjórnina innan þingflokks VG

Á þingflokksfundi sem haldinn var klukkan 14-16 í dag kom fram eindreginn stuðningur við ríkisstjórnina. Hún á mörg verk óunnin og þingmenn Vinstri grænna eru tilbúin í þau verk á þingi og í ríkisstjórn. Þá var rætt um Icesave-samninginn og stöðu hans og ákveðið að halda þeim umræðum áfram í kvöld.

Lesa meira
 
Ogmundur Jonasson NET

30.9.2009 : Mikilvægt að ríkisstjórnin haldi velli

Ögmundur Jónasson sagði af sér sem heilbrigðisráðherra í dag. Ástæða afsagnarinnar var misjafnar skoðanir á Icesave-málinu innan ríkisstjórnarinnar. Ögmundur mun áfram sitja sem þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og lýsir yfir fullum stuðningi við ríkisstjórnina.

Lesa meira
 
svandis

29.9.2009 : Úrskurður umhverfisráðherra um Suðvesturlínu

Umhverfisráðherra hefur fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmda vegna Suðvesturlínu og öðrum tengdum framkvæmdum. Málinu hefur verið vísað aftur til Skipulagsstofnunar til efnilegrar meðferðar og úrlausnar.

Lesa meira
 

29.9.2009 : Ályktun aðalfundar VGR

Aðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík, haldinn í Reykjavík 28. September 2009 lýsir þungum áhyggjum vegna þess ástands sem blasir við í samfélaginu eftir allt of langa setu hægristjórnar í stjórnarráðinu.

Fundurinn fagnar því að loksins sé á landinu vinstristjórn og lýsir fullum stuðningi við hana og krefst þess að sú endurmótun sem fram þarf að fara í samfélaginu verði í anda kvenfrelsis, félagslegs réttlætis, friðar og umhverfisverndar.

Lesa meira
 
David Stefansson NET

28.9.2009 : Ný stjórn Vinstri grænna í Reykjavík

Aðalfundur VGR var haldinn 28. september og var ný stjórn kjörin. Formaður eru Davíð Stefánsson en aðalstjórn ásamt honum skipa: Anna Friðriksdóttir, Ása Björk Ólafsdóttir, Guðlaug Teitsdóttir, Heimir Björn Janusarson, Hermann Valsson og Þorgerður Agla Magnúsdóttir. Í varastjórn voru kjörnir þeir Kristján Ketill Stefánsson og Friðrik Dagur Arnarson.

Lesa meira
 

28.9.2009 : Áskorun úr Skagafirði

Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði skorar á ráðherra í ríkisstjórn Íslands, að sjá til þess að allar upplýsingar og öll gögn er varða umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði birt opinberlega á íslensku, þjóðtungu landsins.

Þannig verði  tryggt að allir hafi möguleika á að kynna sér þau gögn er umsóknina varða, óháð tungumálakunnáttu.

Lesa meira
 
Jan Eric Jessen

28.9.2009 : Ný stjórn Ungra vinstri grænna

Landsfundur Ungra vinstri grænna var haldinn á Hvolsvelli um helgina og lét Steinunn Rögnvaldsdóttir af embætti formanns og við tók Jan Eric Jessen. Aðrir fulltrúar í stjórn eru: Guðrún Axfjörð Elínardóttir varaformaður, Tómas Gabríel Benjamin ritari og Þórunn Rögnvaldsdóttir gjaldkeri. Meðstjórnendur voru kjörin þau: Andrés Ingi Jónsson, Bjarni Þóroddsson, Elín Sigurðardóttir, Kolbrún Ýrr Rolandsdóttir og Þórir Ingvarsson. Varamenn eru Katrín Pálmadóttir, Daniel Haukur Arnarsson og Rúna Vala Þorgrímsdóttir.

Lesa meira
 
jon_hjartarson

24.9.2009 : Að sá í akur óvinar síns

Eftir Jón Hjartarson bæjarfulltrúa í Árborg:

Í þrjátíu kynslóðir og nokkrum betur hafa íslenskar kotungsfjölskyldur borið uppi líf og dauða þessarar þjóðar og haft betur. Flutt hafurtask sitt innar í heiðina þegar harðnar á dalnum og þraukað af harðindi með sauðkindinni og landinu. Þolgæði og þrautseigja hefur einkennt fólkið þar sem saman fór þvermóðska sauðkindarinnar og lífsvilji.

Umliðin veltiár voru ár ókunnra gilda sem óvænt höfðu haldið innreið sína í íslenskst samfélag. Í krafti þeirra skrúfaði hver annan áfram í stöðugri viðleitni til að eignast meira, gera meira, græða meira og byggja stærra.

Lesa meira
 

15.9.2009 : Áfram rauðgræn ríkisstjórn í Noregi

Eftir úrslit kosninganna í Noregi í gær var sent svohljóðandi skeyti til systurflokks Vinstri grænna, SV:

 

Kjære alle sammen!

Gratulerer hjertelig med resultatet etter Stortingsvalget i går.  Vi vet at det er en hard kamp, men vi jubler over fortsatt rödgrönn regjering som jo var det viktigste.

Våre beste lykkeönskninger fra  venner og partifeller  i den islandske rödgrönne regjering.

Lesa meira
 
katrin-toppur

9.9.2009 : Mikilvægt skref til að hvetja fólk til náms

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu félags- og tryggingamálaráðherra og menntamálaráðherra um að hækka grunnframfærslu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 20%, samhliða ýmsum aðgerðum sem ætlað er að tryggja sparnað í námslánakerfinu og atvinnuleysistryggingakerfinu sem þessari hækkun svarar.

Lesa meira
 

8.9.2009 : Borgarstjórn hafni samningi um sölu HS orku

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á Félagsfundi VGR um Orkumál sem haldinn var mánudaginn 7. september kl. 20.00 að Vesturgötu 7, Reykjavík:

Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík fordæmir fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Það er eindregin skoðun fundarins eins og þorra þjóðarinnar að orkufyrirtæki eigi að vera í almannaeigu. Nú þegar þjóðin stendur frammi fyrir tímabundnum erfiðleikum er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að standa vörð um auðlindir okkar og nýtingu þeirra til framtíðar. Sala orkufyrirtækja til einkaaðila undir þessum kringumstæðum er glapræði.

Lesa meira
 

7.9.2009 : Áskorun frá VG í Skagafirði: Komum í veg fyrir erlent eignarhald á orkuauðlindum þjóðarinnar

Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði skorar á þingmenn og ráðherra flokksins, sérstaklega formann flokksins og fjármálaráðherra, að koma í veg fyrir erlent eignarhald á orkuauðlindum þjóðarinnar.

Lesa meira
 

4.9.2009 : Ályktun um afnám verðtryggingar á flokksráðsfundi

Þegar ályktanir af flokksráðsfundi Vinstri grænna 28.-29. ágúst voru birtar á vefnum láðist að birta eina ályktun sem var samþykkt á fundinum, en hún varðar afnám verðtryggingar og er svohljóðandi:

Flokksráð Vinstri grænna beinir því til ríkisstjórnarinnar að verðtrygging lána verði afnumin hið fyrsta og forsendur við endurgreiðslu allra lána verði leiðréttar með jafnréttis- og réttlætissjónarmið að leiðarljósi. Til að koma í veg fyrir að önnur eins kollsteypa endurtaki sig, þarf að gera upp við þá efnahagslegu og félagslegu hugmyndafræði sem byggði upp það kerfi sem hrundi og sem fól í sér hrun þess.

Lesa meira
 

4.9.2009 : Yfirlýsing frá borgarfulltrúa vegna tillögu VG um sölu bilastæðahúsa

Tillaga Borgarráðsfulltrúa  Vinstri grænna um að borgarráð feli Umhverfis og samgöngusviði að kanna kosti þess að bílastæðahús borgarinnar verði seld hefur vakið athygli en hún var samþykkt í borgarráði í dag. Af þessu tilefni vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri.

Lesa meira
 
Arndis Soffia Sigurdard NET

1.9.2009 : Áhættusafnt að velja Njáluslóð sem fundarstað VG

Varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Suðurlandi, Arndís Soffía Sigurðardóttir, flutti upphafsávarpið á flokksráðsfundinum sem hófst á föstudaginn síðasta og stóð fram á laugardag. Ræða hennar er birt hér með góðfúslegu leyfi:

Lesa meira
 

1.9.2009 : Fundagerðir stjórnar á vefnum

Vegna áskorunar frá félaga tók stjórn þá ákvörðun á fundi sínum 21. ágúst síðastliðinn að birta fundagerðir stjórnar hér á vefnum. Héðan í frá má því lesa þær undir flokkinum "um vg". Lesa meira
 

29.8.2009 : Samþykktar tillögur af flokksráðsfundi Vinstri grænna á Hvolsvelli

Flokksráðsfundi Vinstri grænna var slitið upp úr hádegi 29. ágúst og voru fjölda ályktana samþykktar og fleirum vísað áfram til stjórnar, sveitastjórnarhóps og næsta flokksráðsfundar til frekari umfjöllunar. Þær ályktanir sem samþykktar voru eru svohljóðandi:

Lesa meira
 

28.8.2009 : Flokksráðsfundur hafinn

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hófst á Hvolsvelli í dag og stendur til hádegis á morgun. Arndís Soffía Sigurðardóttir varaþingkona Vinstri grænna á Suðurlandi bauð fólk velkomið og þótti flokkurinn hugaður að halda fund á Njáluslóðum eftir hið mikla átakasumar. Hún þótti þess hins vegar fullviss að fundagestir slíðri sverðin og eigi góðan fund.

Lesa meira
 

26.8.2009 : Stjórn VG vill stöðva framsal auðlinda

Á fundi stjórnar VG síðastliðinn föstudag var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs mótmælir harðlega áformum um varanlegt framsal á jarðvarmaauðlindum. Á erfiðleikatímum er freistandi að afla erlends gjaldeyris á kostnað auðlindanna en jafnframt hefur það sjaldnar verið mikilvægara að standa vörð um verðmæti þjóðarinnar og eignir landsins. Þjóðin er þegar skaðbrennd af ábyrgðalausri frjálshyggju og einkavæðingu mörg undanfarin ár og nú er tími til kominn að snúa við blaðinu. Skorar stjórn VG á ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að gera allt í sínu valdi til að stöðva áform um framsal auðlindanna þegar í stað.

Lesa meira
 

24.8.2009 : Danir ræða skyldur Íslands í Kristjánsborg

 Þingkona Enhedslisten, í Danmörku, Line Barfod hefur lagt fram fyrirspurn á þinginu um hvort forsætisráðherra Danmerkur telji að Ísland eigi að fá stuðning  frá alþjóðasamfélaginu til að komast  í gegnum kreppuna án þess að velferðarsamfélaginu sé stefnt í voða?

Lesa meira
 
or_logo

21.8.2009 : Stöðvum varanlegt framsal auðlinda

Vinstri græn héldu opinn fund í Grindavík í gærkveldi um málefni Hitaveitu Suðurnesja. Fundurinn var fjölsóttur og höfðu framsögu þau Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík og Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi í Reykjavík og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur. Fundurinn ályktaði svo:

Lesa meira
 

19.8.2009 : Dagskrá flokksráðsfundar - verkefni vetrarins

Föstudaginn 28. ágúst hefst flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Hvolsvelli, en hefð er fyrir því að starf vetrarins hefjist á flokksráðsfundi í lok ágúst utan höfuðborgarsvæðisins. Allir félagar í VG hafa seturétt á fundinum. Eins og kom fram fyrr í sumar er skráningu lokið en félagar eru að sjálfsögðu velkomnir á fundinn þó að of seint sé að skrá sig í mat og gistingu á hótelinu.

Nú þegar stefnir í fjölmennasta flokksráðsfund VG frá upphafi en gríðarlegur áhugi er fyrir starfinu og því verður gefinn góður tími til almennra umræða. Horft verður til vetrarins og þeirra verkefna sem okkar bíða jafnt í sveitastjórnarmálum sem landsmálum en dagskráin er sem hér segir:

Lesa meira
 
or_logo

16.8.2009 : Yfirlýsing frá fulltrúum VG í Reykjavík í stjórn OR vegna tilboðs Magma Energy í hlut OR í Hitaveitu Suðurnesja

Fulltrúi VG í Reykjavík í Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur greiddi atkvæði gegn því að haldið yrði áfram viðræðum við Magma Energy um kaup þess á hlut OR í HS Orku.

Það var ljóst á sínum tíma að með ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á hlutafé Grindavíkurkaupstaðar og Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja var Orkuveita Reykjavíkur að gæta samfélagslegra hagsmuna. Kaupin áttu sér stað að frumkvæði umræddra sveitarstjórna sem töldu„veitustarfsemi á Suðurnesjum betur komna á vegum Orkuveitunnar en annarra sem gert hafa tilboð í hlutafé félagsins.“  eins og segir í bókun stjórnar OR 2. Júlí 2007.

Lesa meira
 
Þuríður Backman

27.7.2009 : Viðtal við Þuríði Backman í Austurglugganum: Við ætlum að standa vaktina

Félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði hittust í miðstöð sinni á Egilsstöðum fyrir viku til að ræða helstu álita málin í íslenskum stjórnmálum um þessar mundir við  þingmanninn Þuríði Backman. Meðal flokksfélaga í kjördæminu hefur verið mikil óánægja með að þingmenn flokksins skyldu styðja þingsályktunartillögu um að hefja viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Nú vofir yfir næsta stóra mál, ríkisábyrgð fyrir Icesave skuldbindingunum. Austurglugginn hitti Þuríði á heimili hennar um seinustu helgi og ræddi við hana um ESB, kosningaloforðin, Icesave og heilbrigðismál. „Þetta var meira en spjall,“ segir Þuríður um fundinn sem stóð í á fjórða tíma. „Það var mjög nauðsynlegt að við félagarnir gætum sest niður og talað hreint út.“

Lesa meira
 

27.7.2009 : Ályktun frá VG Hornafirði um efnahagslega stöðu Íslands

Stjórn Vinstrihreifinginarinnar Græns framboðs á Hornafirði harmar þá stöðu sem íslenskt efnahagslíf er komið í. Við vitum að orsakarinnar er að leita í gengdarlausri græðgisstefnu þeirra sem fengu að stjórna landinu frá 1991 til 2009. Nú skal almenningur á Íslandi borga brúsann. 

Við treystum því að þeir glæpamenn sem gengu á lagið, mokuðu sparifé okkar í skattaskjól sín og hafa nú flestir flúið land verði  sóttir til saka og látnir bera ábyrgð á gjörðum sínum.

Lesa meira
 

16.7.2009 : Ávarp frá Steingrími J. Sigfússyni

Ágætu félagar,

 

Alþingi hefur nú samþykkt að Ísland óski eftir því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið og að möguleg niðurstaða þeirra verði lögð í dóm kjósenda. Höfum það þó í huga að enn hefur engin ákvörðun verið tekin um að ganga í Evrópusambandið, hún verður ekki tekin fyrr en öll spil hafa verið lögð á borðið og það verður þjóðin sem mun taka hana komi til þess. Þannig er þessi niðurstaða vel samrýmanleg landfundarályktun í mars síðastliðnum sem lögð var fram í kjölfar mikils starfs innan flokksins sem allir flokksmenn gátu tekið þátt í.

Lesa meira
 

16.7.2009 : Stuðnings- og baráttukveðjur til þingflokks

Óskað hefur verið eftir því að eftirfarandi kveðja til þingflokks VG yrði birt á heimasíðunni: „Nú þegar þingflokkur Vinstri grænna stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun um stórt og viðamikið þingmál vilja undirrituð koma eftirfarandi á framfæri til sinna kjörnu fulltrúa: Vorið 2009 gerðist sá sögulegi atburður að vinstri stjórn tveggja flokka var mynduð á Alþingi Íslendinga. Margir höfðu beðið þeirrar stundar lengi eftir áratuga eyðimerkurgöngu með samsuðustjórnum til hægri eða vinstristjórnum með þátttöku Framsóknarflokksins...“

Lesa meira
 

15.7.2009 : Áskorun til þingmanna VG og bréf til Steingríms

Sérstaklega hefur verið óskað eftir því birt sé á heimasíðu flokksins eftirfarandi áskorun til þingmanna VG og bréf til Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins. Smellið á "Lesa meira" til að lesa áskorunina og bréfið.

Lesa meira
 

14.7.2009 : Ályktun stjórnar VG á Héraði

Á stjórnarfundi Félags Vinstri grænna á Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði eystra, sem haldinn var á skrifstofu félagsins á Egilsstöðum mánudaginn 13. júlí 2009, var eftirfarandi samþykkt gerð:

“Stjórn Félags Vinstri grænna á Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði eystra skorar á þingmenn Vinstri grænna að greiða atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu...

Lesa meira
 

13.7.2009 : Skráning á flokksráðsfund

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs verður haldinn að Hvolsvelli 28. – 29. ágúst næstkomandi. Flokksráðsfundurinn er opinn öllum félögum í VG en atkvæðisrétt hafa landsfundakjörnir fulltrúar í flokksráði, allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaalþingismenn, formaður Ungra Vinstri Grænna, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmisráða.

Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku á fundinum FYRIR 20. JÚLÍ næstkomandi með því að fylla út skráningareyðublað.

Lesa meira
 

9.7.2009 : Ályktun frá VG í Borgarbyggð

Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í Borgarbyggð hefur samþykkt eftirfarandi ályktun og sent þingmönnum VG:

Stjórn svæðisfélags VG í Borgarbyggð vill minna forystu og þingmenn flokksins á landsfundarályktun VG um ESB frá því í mars síðastliðnum. Mikil umræða undanfarin misseri um aðild Íslands að Evrópusambandinu hlýtur að kalla á að hugur þings og þjóðar til málsins sé kannaður. Umræðan ein má þó ekki verða til þess að menn hverfi frá sannfæringu sinni eða hætti að ræða neikvæðar hliðar aðildarinnar...

Lesa meira
 

8.7.2009 : Skráning í sumarferð hafin

Vinstri græn boða til sumarferðar síðustu helgina í ágúst í Þórsmörk. Að vanda er hún farin í tengslum við flokksráðsfund en hann hefst á Hvolsvelli 28. ágúst og stendur fram að hádegi laugardaginn 29. ágúst, að sjálfsögðu er hann öllum félögum opinn.

Lesa meira
 

24.6.2009 : Hagsmunir Kópavogsbúa virtir að vettugi

Stjórn VG í Kópavogi hefur sent frá sér svohljóðandi ályktun:

Stjórn VG í Kópavogi fordæmir áframhaldandi samstarf Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Kópavogi og telur það sýna vilja til að viðhalda þeirri spillingu og eiginhagsmunapoti sem hefur fengið að viðgangast í bæjarpólitíkinni undanfarin ár og að hagsmunir bæjarbúa séu virtir að vettugi. Þá undrast stjórnin að meirihlutinn ætli að sitja áfram þrátt fyrir skýrar kröfur um breytingar innan beggja flokka. Vegna Lífeyrissjóðsmálsins(LSK) telur stjórn VG í Kópavogi réttast að allir þeir kjörnu fulltrúar er sátu í fráfarandi stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogs víki úr sæti sínu í bæjarstjórn á meðan lögreglurannsókn fer fram.

Lesa meira
 

24.6.2009 : Ályktun frá svæðisfélagi VG í Hveragerði og Ölfusi

Svæðafélag Vinstrihreyfingarinnar græns framboð í Hveragerði og Ölfusi tekur undir ályktun svæðafélags VG í Skagafirði sem birt var í morgunblaðinu þann 15.06.2009 en þar segir meðal annars:

  Félag vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði minnir á samþykktir flokksins og yfirlýsingar fyrir nýliðnar alþingiskosningar þar sem alfarið er hafnað Evrópusambandsaðild og ítrekað að hagsmunum Íslendinga sé best borgið utan sambandsins.

Lesa meira
 

18.6.2009 : Upplýsingar um Icesave-samkomulagið

Mikið hefur verið rætt og skrifað um Icesave-samningana svokölluðu að undanförnu. Meginábyrgðin á Icesave-málinu liggur að sjálfsögðu hjá þeim stjórnvöldum sem leyfðu Icesave-reikningana að safnast upp á ábyrgð íslenska innlánstryggingakerfisins án þess að aðhafast nokkuð í málinu þrátt fyrir mörg hættumerki. Ríkisstjórnin sem nú situr, með aðild Vinstri grænna, fékk það erfiða verkefni að leysa úr vandanum og lágmarka skaðann sem af málinu hlýst.

Lesa meira
 

4.6.2009 : Dregið í happdrætti VG

Dregið hefur verið í happdrætti Vinstri grænna. Ef þú ert svo heppin/n að hafa fengið hafðu þá samband við skrifstofu VG í síma 552 8872 eða á netfangi vg@vg.is. Vinningsnúmerin eru þessi:

Lesa meira
 

2.6.2009 : Vinningar í happdrætti tilkynntir á fimmtudaginn

Vinningsnúmer í kosningahappdrætti VG verða tilkynnt fimmtudaginn 4. júní hér á síðunni. Lesa meira
 

28.5.2009 : Tekjur, eignir og hagsmunatengls þingmanna

Á þessari síðu hafa verið uppfærðar upplýsingar um tekjur, eignir og hagsmunatengsl þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þessar upplýsingar má nálgast hér.

Lesa meira
 
andres ingi jonsson

25.5.2009 : Nýr fulltrúi VG í stjórn Kvenréttindafélags Íslands

Á fundi stjórnar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, föstudaginn 22. maí síðastliðinn var ákveðið að Andrés Ingi Jónsson verði fulltrúi VG í aðalstjórn Kvenréttindafélags Íslands í stað Silju Báru Ómarsdóttur, varakona er sem fyrr Svanhildur Kaaber.

Lesa meira
 

25.5.2009 : Ályktun frá VG í Kópavogi

Aðalfundur Svæðisfélags VG í Kópavogi fagnar því að fyrsta hreina vinstri stjórn Íslands skuli vera orðin að veruleika og vonar að samstarf Vinstri grænna og Samfylkingar eigi eftir að verða langt og farsælt.

Vegna þeirrar niðurstöðu sem fékkst í ESB-málinu skorar félagið á þingmenn sína í Kraganum að greiða atkvæði gegn tillögu um aðildarumsókn að ESB.

Lesa meira
 

20.5.2009 : Svandís leggur til miðstöð fyrir ungt fólk í atvinnuleit

Á fundi borgarstjórnar í gær var samþykkt tillaga Svandísar Svavarsdóttur um miðstöð fyrir ungt fólk í atvinnuleit. Þannig var samþykkt að leita eftir samstarfi við Lýðheilsustöð, Rauða krossinn og menntamálaráðuneytið með það að markmiði að fá Austurbæjarbíó að láni og starfrækja þar mistöð fyrir ungt fólk í atvinnuleit. Húsið verður opið í sumar en mögulega lengur ef vel gengur.

Markmiðið með þessu er að virkja frumkvæði og sköpunarkraft ungmenna í Reykjavík með því að skapa þeim vettvang til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Þannig fá ungmennin tækifæri til að blása lífi í Austurbæjarbíó og byggja upp starfsemi þar út frá eigin hugðarefnum og áhugamálum. Þar geta jafnframt sprottið upp hugmyndir sem ekki endilega þarf að vinna í húsinu, möguleg atvinnusköpun, sjálfboðaliðaverkefni, stofnun grasrótarhópa, hljómsveita, leik- og danshópa og fleira.

Lesa meira
 

13.5.2009 : Guðfríður Lilja formaður þingflokks

Gudfridur Lilja NETÁ þingflokksfundi í dag var kjörin ný stjórn þingflokksins, en í stjórn þingflokksins eru formaður, varaformaður og ritari.

Nýr formaður þingflokksins er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir er áfram varaformaður en Björn Valur Gíslason ritari.

Lesa meira
 

12.5.2009 : Ályktun sveitarstjórnarráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi sveitarstjórnarráðs VG um helgina. Sveitarstjórnarráð er skipað öllum aðal- og varafulltrúum í sveitarstjórnum sem eru félagsbundnir í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði.

"Sveitarstjórnarráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fagnar því að tekin skuli til  starfa velferðarstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs  og Samfylkingarinnar sem leggur áherslu á að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika og þjóðarsamstöðu.

Lesa meira
 

11.5.2009 : Ríkisstjórnarsáttmáli og 100 daga áætlun

Söguleg meirihlutastjórn vinstriflokkanna er nú tekin við og eru verkefnin þau erfiðustu sem ríkisstjórn síðari tíma hefur þurft að glíma við hér á landi. Metnaður var lagður í ríkisstjórnarsáttmálann en auk hans er lögð fram áætlun fyrstu 100 daga nýrrar ríkisstjórnar. Listann í heild má finna hér:

Lesa meira
 

10.5.2009 : Ályktanir flokksráðsfundar

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er nýlokið. Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktanir með þorra atkvæða:

Flokksráð VG mælir með því að mynduð verði ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingarinnar á grundvelli þeirrar samstarfsyfirlýsingar sem fyrir liggur.

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs beinir þeim tilmælum til formanns flokksins að tryggja jöfn kynjahlutföll í nýrri ríkisstjórn. Lesa meira
 

6.5.2009 : Blaðaútgáfa hjá VG í miklum blóma

Nokkur félög innan Vinstri grænna hafa til margra ára gefið út blöð í tilefni baráttudags verkalýðsins og var sami háttur á  nú þrátt fyrir annasamar kosningar. Við getum boðið upp á vefútgáfu af 1. maí blaði svæðisfélagsins í Vestmannaeyjum og blaði norðanmanna Norðurstjörnunni. Njótið vel.

Lesa meira
 

5.5.2009 : Hamingjuóskir streyma inn

Vinstri grænum hafa borist hamingjuóskir frá ýmsum löndum og greinilegt að systurflokkar okkar fylgjast náið með framvindu mála hér á landi. Þegar við gengum til kosninga héldu SF í Danmörku landsfundinn sinn og sendu okkur myndband með kveðju. Enhedslisten þar í landi sendi sömuleiðis hamingjuóskir:

Lesa meira
 
Steingrimur J Sigfusson NET

4.5.2009 : VG, ævintýri seinni tíma stjórnmála á Íslandi

Vinstrihreyfingin – grænt framboð varð til í febrúar árið 1999. Ýmsir töldu þá að þessi nýja hreyfingin ætti sér litlar lífslíkur og stjórnmálaskýrendur kepptust við að reyna að sanna að Vinstri græn myndu ekki ná manni á þing. Hrakspárnar reyndust rangar og urðu höfundum og fræðimannsheiðri þeirra til skammar. VG hlaut 9,1% atkvæða og sex þingmenn í kosningunum 1999, þar af 22% í Norðurlandskjördæmi eystra. Eftir að hafa misst einn mann í kosningum árið 2003 þrátt fyrir að hafa fengið 8,8% fylgi unnum við svo stórsigur árið 2007 með 14,3% atkvæða og níu þingmenn – og urðum þriðji stærsti flokkurinn á Alþingi. Þar með varð Vinstrihreyfingin – grænt framboð að einum stærsta alvöru vinstri flokki og græna flokki í Evrópu og það svo athygli vakti á hinum Norðurlöndunum, í Evrópu og víðar.

Lesa meira
 

30.4.2009 : 1. maí kaffi

Vg Í Reykjavík býður alþýðu borgarinnar til kaffisamsætis og baráttufundar 1. maí að Vesturgötu 7. Lesa meira
 

26.4.2009 : Glæsilegur sigur

Vinstri græn unnu enn einn kosningasigurinn í nótt þegar ljóst var að við bættum við okkur 52% fylgi og fimm þingmönnum. Sigurinn varð til þess að vinstristjórnin heldur velli og næsta skref eru stjórnarmyndunarviðræður við Samfylkingu. Við bjóðum nýja þingmenn hjartanlega velkomin í hópinn, þau Ásmund Einar Daðason, Lilju Mósesdóttur, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, Svandísi Svavarsdóttur, Lilju Rafney Magnúsdóttur og Björn Val Gíslason. Þeim félögum sem lögðu hönd á plóginn bera að þakka sérstaklega – sigurinn er okkar!

Lesa meira
 

25.4.2009 : Á fjórða þúsund manns í kosningakaffi

kosnkaffi2

Á sjöunda tímanum höfðu á fjórða þúsund manns komið í kosningakaffi hjá Vinstri grænum í Reykjavík. Minnugir félagar telja að um sé að ræða fjölmennasta kosningakaffi VG frá upphafi! Ljóst er að það stefnir í spennandi kosninganótt, en kosningavakan í Reykjavík hefst kl. 21 á Kaffi Reykjavík.

Lesa meira
 

25.4.2009 : Fullt út úr dyrum á kosningakaffi í Reykjavík

Kosningakaffi2009Rífandi stemmning er í kosningakaffi Vinstri grænna á kosningamiðstöðinni í Reykjavík. Mikill stuðningur er meðal gesta og gangandi og frambjóðendur eru á staðnum að spjalla við óákveðna kjósendur og stuðningsfólk VG. Greinilegt er að Reykvíkingar vilja skapa norrænt velferðarsamfélag með Vinstri grænum í vor! Enginn hörgull er á kaffi, kökum og öðru góðgæti og allir velkomnir svo lengi sem kjörfundur stendur yfir.

Lesa meira
 

25.4.2009 : Norrænt velferðarsamfélag

Kata og SteingrímurÍ kosningunum í dag veljum við nýja framtíð fyrir Ísland. Við Vinstri græn höfum boðið upp á skýran valkost við þá hugmyndafræði sem beið skipbrot síðastliðið haust. Sá valkostur er norrænt velferðarsamfélag. Í því felst að forgangsraða í þágu velferðar fjölskyldna og einstaklinga líkt og best hefur tekist til á hinum Norðurlöndunum. Þessari stefnu höfum við reynt að fylgja í þá 80 daga sem eru liðnir síðan Vinstri græn tóku sæti í ríkisstjórn og endurreisn íslensks samfélags hófst. Þessari stefnu – norræna velferðarstefnu – viljum við fá tækifæri til að koma í verk strax á morgun.

Lesa meira
 

24.4.2009 : Lokasprettur kosningabaráttunnar hafinn

Í dag verða frambjóðendur Vinstri grænna um allt land að tala við kjósendur og kynna stefnumálin. Hægt er að kíkja í kaffi á kosningamiðstöðvar um allt land í dag og á morgun, upplýsingar um þær er að finna í síðum kjördæmanna hér: http://www.vg.is/kjordaemi/ . Fram til baráttu! Allir að kjósa! X-V!

Lesa meira
 
Grimsey SJS 090423

23.4.2009 : Nyrsti kosningafundur á Íslandi

Fjölmenni var á kosningafundi Steingríms Sigfússonar í Grímsey í morgun, Sumardaginn fyrsta. Alls komu 23 kosningabæir íbúar eyjunnar á fundinn, nærri helmingur kosningabærra Grímseyinga. Um er að ræða fyrsti kosningafundur nokkurs stjórnmálaflokks í í Grímsey í vor. Bátar voru nokkrir á sjó en lengstur tími fundarins fór í umræður um sjávarútvegsmálin þar sem Steingrímur skýrði út fyrir heimamönnum stefnu og markmið VG í sjávarútvegsmálum. Heimamenn þökkuðu Steingrími fyrir komuna og voru ánægðir með að fá tækifæri til að ræða málin við formann Vinstri grænna.
Lesa meira
 
Bjorg_Eva_Erlendsdottir

23.4.2009 : Björg Eva Erlendsdóttir ráðin framkvæmdastýra Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum

Björg Eva Erlendsdóttir tekur við framkvæmdastjórn samstarfsvettvangs Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum í sumar. Starfið snýr aðallega að skipulagningu samstarfsins og miðlun upplýsinga á milli systurflokkanna sem eru: Vänsterpartiet í Svíþjóð, Socialistisk Folkeparti og Enhedslisten í Danmörku, Sosialistisk Vensterparti í Noregi, Vaxemmistoliitto í Finnlandi, Inuit Ataqatigiit í Grænlandi og Tjoðveldisflokkurinn í Færeyjum.

Þetta er í fyrsta sinn sem starfið fellur í skaut Íslendinga og fögnum við því sérstaklega enda verður miðstöð samstarfsins rekin hér á landi. Vinstri græn hafa ávallt lagt mikla áherslu á gott norrænt samstarf og óskum við Björgu Evu hjartanlega til hamingju með nýja starfið.

Lesa meira
 

22.4.2009 : Vinstri græn leggjast ekki gegn olíuleit á Drekasvæðinu

Vinstrihreyfingin – grænt framboð áréttar að flokkurinn hefur ekki lagst gegn olíuleit á Drekasvæðinu. Þingmenn Vinstri grænna studdu málið á Alþingi 2001 og sátu hjá ásamt Samfylkingunni við breytingar á lögunum 2007 og aftur fyrir jól 2008, vegna breytinga á skipulagslögum og mengunarvarnarreglugerð.

Lesa meira
 

21.4.2009 : Engin áform um eignaskatt

Það eru engin áform uppi hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði um að taka aftur upp eignaskatt í fyrri mynd. Sú hugmynd hefur hins vegar eðlilega komið upp í grasrót hreyfingarinnar að skoða hvort einhver tegund skattlagningar á mjög tekjuhátt stóreignafólk komi til greina til að mæta þeim mikla fjárlagahalla ríkisins sem fyrirsjáanlegur er á næstu árum. Slíka skattlagningu þyrfti að samræma fjármagnstekjuskatti og annarri skattheimtu sem óhjákvæmilegt er að gera einhverjar breytingar á til að borga þær gríðarlegu skuldir sem landsmenn sitja uppi með eftir efnahagsóstjórn Sjálfstæðisflokksins. Við segjum það hins vegar fullum fetum að ekki stendur til að leggja eignarskatt á venjulegt fólk og þeirra eðlilegu eignir.

Lesa meira
 
isafjordur fundur

21.4.2009 : Gríðarlega góður fundur á Ísafirði

Rífandi stemming var á fundinum með Steingrími og Lilju Rafney á Ísafirði í gærkvöldi. 150 manns sóttu fundinn. Allir stólar í tvöföldum sal hótelsins fylltust svo sækja þurfti stóla á kosningamiðstöðina, en dugði ekki til svo sumir þurftu að standa. Eftir framsögur Lilju og Steingríms voru fjölmargar fyrirspurnir og stóð fundurinn í tvo og hálfan tíma. Það var mál fundargesta að fundurinn hafi verið mjög málefnalegur. Fjölmargir skráðu sig í flokkinn eftir fundinn.

Lesa meira
 
arborg opnun

18.4.2009 : Stuð í Árborg

Kosningaskrifstofa VG á Selfossi var opnuð í Selinu við Engjaveg. Þar var fjölmenni og góð stemning. Einar Már rithöfundur las upp og Atli og Jórunn ávörpuðu gesti. Arndís mætti á fund um landbúnaðarmál á sama tíma á hótelinu.

Lesa meira
 

17.4.2009 : Sjálfstæðismenn koma í veg fyrir að valdið farið til þjóðarinnar

Eftir margra vikna þrautseiga baráttu hefur Sjálfstæðismönnum tekist að koma í veg fyrir að náttúruauðlindir séu sameign okkar allra, að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mál sem varða almannahag og  að stjórnarskráin verði endurskoðuð á stjórnlagaþingi.

Nefnd hefur verið að störfum á Alþingi til að reyna að ná málamiðlun en með tillöguflutningi eins og hann var kynntur í nefndinni staðfestir minni hluti Sjálfstæðisflokksins í fyrsta lagi andstöðu sína við að náttúruauðlindir séu í þjóðareign og verði ekki látnar varanlega af hendi og setur í öðru lagi fótinn fyrir tillögur sem auðvelda breytingar á stjórnarskrá. Í þriðja lagi gerir minni hlutinn ekki ráð fyrir því að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mál er varða almannahag og í fjórða lagi, eins og fram hefur komið, hafnar minni hlutinn því að almenningur geti valið fulltrúa sína á stjórnlagaþing til að endurskoða stjórnarskrána. Með tillögunum hefur minni hluti Sjálfstæðisflokksins í raun slegið á útrétta sáttahönd meiri hluta nefndarmanna í sérnefnd um stjórnarskrármál.

Lesa meira
 
vestmannaeyjar kj og j

16.4.2009 : Kata í Eyjum

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra heimsótti Vestmannaeyjar í gær, miðvikudag.  Hún fór í fylgd bæjarstjórans Elliða Vignissonar um bæinn, heimsótti framhaldsskólann, fékk golfkennslu, skoðaði þekkingarsetrið og safnhúsið sem hýsir bókasafn sem og minjasafn staðarins. Eyjarnar skörtuðu sínu fegursta í blíðskapar vorveðri.

Katrín kom að sjálfsögðu við á kosningamiðstöð VG við Skólaveg og sést hér á spjalli við Jórunni Einarsdóttur frá Vestmannaeyjum, en Jórunn skipar þriðja sæti á framboðslista VG í Suðurkjördæmi.

Lesa meira
 
happdraettismidinn_net

16.4.2009 : HAPPDRÆTTI!

Nú hefur kosningahappdrætti Vinstri grænna verið hrundið af stað. Eins og endranær er eftir miklu að slægjast enda vinningarnir ekki af verri sortinni

Með því að festa kaup á miða gætir þú átt von á því að:

-bergja á sagnabrunni Ármanns Jakobssonar um Vonarstræti 12

-fara í skoðunarferð um húsið hennar Birnu Þórðardóttur í boði hennar sjálfrar og gæða þér á portkonupasta og víni hússins

-dvelja í viku með fjölskyldunni í gestahúsi að Gunnarsstöðum, sigla um á trillu og þeysast um á hestbaki í boði Steingríms J. Sigfússonar

-gista á hótelinu í Flatey, borða dýrindis kvöldverð og fara í bátsferð um Breiðafjörð í boði Álfheiðar Ingadóttur

-stunda golf- og grillæfingar í Grímsnesinu í boði Atla Gíslasonar

Lesa meira
 
Kolbrun Halldors NET

16.4.2009 : Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs í dag

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri í dag um kl. 16:45. Gestastofan verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum.Við þetta tækifæri mun umhverfisráðherra jafnframt undirrita reglugerð um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs til norðurs og verður þá Trölladyngja í heild, Askja og stór hluti Ódáðahrauns hluti af þjóðgarðinum.

Í ferð sinni austur mun umhverfisráðherra einnig þiggja heimboð Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Sambandið sendi umhverfisráðherra heimboð í febrúar og óskaði eftir að fá að kynna fyrir henni þau áhrif sem stóriðja hefur haft á landsfjórðunginn. Umhverfisráðherra mun því snæða hádegisverð með fulltrúum Fjarðarbyggðar í Ráðhúsinu Reyðarfirði og fara síðan í skoðunarferð um Reyðarfjörð og nærsvæði.

Lesa meira
 
uvg blonduos 5

15.4.2009 : Góð stemmning hjá Vinstri grænum á Blönduósi

Ungir frambjóðendur á lista Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi voru í góðri stemmningu á Árbakkanum síðastliðið laugardagskvöld. Hljómsveitin Svörtu sauðirnir spiluðu og fólk dillaði sér í sætunum í takt við tónlistina. Ungir frambjóðendur eru í miklum meirihluta í efstu sætum listans, mætt voru Ásmundur Einar Daðason, Telma Magnúsdóttir og Páll Rúnar Heinesen Pálsson. Efsti maður listans, Jón Bjarnason kíkti við síðar um kvöldið.

Lesa meira
 

14.4.2009 : Stjórnarsetur þingmanna VG

Í Fréttablaðinu birtist grein um tengsl þingmanna við hlutafélög. Þar kom fram að innan þingflokks VG væru þrír varamenn og einn stjórnarmaður í stjórnum fyrirtækja og einn endurskoðandi. Ekki kom fram í fréttinni um hvaða þingmenn ræðir en allar upplýsingar um þá er að finna hér.

Hið rétta er að Álfheiður Ingadóttir er varamaður í stjórn Plássins ehf. og Árni Þór Sigurðsson er stjórnarmaður Sjóminjasafnins í Reykjavík þar sem hann gegnir stöðu varaformanns. Sjóminjasafnið er sjálfseignarstofnun. Enginn annar þingmaður gegnir störfum í stjórnum fyrirtækja.

Lesa meira
 
opnun kosningamidstodvar i keflavik 2

13.4.2009 : Vinstri græn opna í Hafnargötu í Keflavík

Síðastliðinn fimmtudag 9. apríl opnaði kosningamiðstöð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs með pompi og prakt að Hafnargötu 36 a í Reykjanesbæ. Boðið var upp á pylsur, kaffi og meðlæti sem rann ljúflega í viðstadda. Atli Gíslason, fyrsti maður lista V.G. í Suðurkjördæmi,  ávarpaði samkunduna, ásamt Kolbrúnu Halldórsdóttur umhverfisráðherra og Bergi Sigurðssyni sem prýðir  4. sæti listans. Margt var um manninn og mikil stemmning í fólki fram eftir degi. Skrifstofan er opin daglega  frá klukkan 13.00 og eru lesendur hvattir til að heilsa upp á frambjóðendur þar og fá sér kaffisopa og spjall.

Lesa meira
 

10.4.2009 : Af gefnu tilefni

Undanfarna daga hafa fréttir af fjármálum flokkanna tröllriðið fjölmiðlum landsins. Í þeirri umræðu hafa flokkar verið hvattir til þess að opna bókhald sitt. Vegna þess vill VG koma eftirfarandi á framfæri:

VG hefur verið með opið bókhald frá upphafi, kynnt ítarlega reikninga á landsfundi, frá 2003 látið löggilta endurskoðendur árita reikninga flokksins og hefur birt þá á vefnum, sett kjörnum fulltrúum siðareglur og birt upplýsingar um öll fjárhagsleg tengsl kjörinna fulltrúa og nú einnig frambjóðenda.

Áður en lög um fjármála stjórnmálaflokka vor samþykkt unnu Vinstri græn eftir eigin reglum að öll fjárframlög yfir 500.000 skyldu birt í ársreikningi, þ.e. hver gaf og hversu mikið. Í einu tilfelli er um slíkt að ræða, árið 2006 fékk VG styrk frá Samvinnutryggingum að upphæð 1.000.000. Frá þessu er greint í áritun stjórnar í ársreikningi það ár.

Lesa meira
 
opnun_skagafirdi

10.4.2009 : Baráttuandi sveif yfir vötnum við opnun kosningamiðstöðvar VG á Sauðárkróki

Í dag var opnuð kosningamiðstöð VG á Sauðárkróki. Kristján Eldjárn Hjartarson og Kristjana Arngrímsdóttir fluttu baráttusöngva af sinni alkunnu snilld á meðan fólk gæddi sér á kaffibrauði og með því. Jón Bjarnason þingflokksformaður VG og leiðtogi hreyfingarinnar í NV kjördæmi fór yfir stöðu mála og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til og aðrar sem eru að koma til framkvæmda af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þá kynnti hann kosningaáherslur flokksins.

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

9.4.2009 : Fleiri störf með réttum skilyrðum

Tillögur Vinstri grænna í atvinnumálum voru kynntar blaðamönnum í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, kynnti þá greinargerð hreyfingarinnar fyrir því hvernig til geta orðið að minnsta kosti 16-18 þúsund störf á næstu árum með réttum skilyrðum og stuðningi stjórnvalda. Vinstir græn leggja hins vegar áherslu á að störf eru ekki sköpuð af stjórnmálaflokkunum sjálfum, og eftirfarandi tillögur eru því ekki loforð um ný störf, hvorki á vegum hins opinbera né annars staðar, heldur greinargerð um það hvernig störf geta orðið til með framsækinni stefnumótun og stuðningi stjórnvalda.

Lesa meira
 
opnun_isafirdi_1

8.4.2009 : Mikil stemming við opnun kosningamiðstöðvar á Ísafirði

VG opnaði í kvöld kosningamiðstöð á Ísafirði. Samkoman var vel sótt og mikil stemming. Formaður VG á Vestfjörðum, Guðný Hildur Magnúsdóttir setti samkomuna. Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir sem skipa 2, 3 og 4 sæti framboðslistans fluttu ávörp og Jóna Benediktsdóttir fór með sígild baráttuljóð.

Lesa meira
 

8.4.2009 : Alltaf opið bókhald hjá VG

Af gefnu tilefni skal tekið fram að bókhald Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur ávallt verið opið og ársreikningar frá því árið 2003 aðgengilegir hér á vefnum. Áður en lög um fjármál stjórnmálaflokka voru samþykkt hafði flokkurinn þær reglur að upplýsa í reikningum hvaðan öll fjárframlög umfram 500 þúsund væru fengin.

Lesa meira
 

7.4.2009 : Vinstri græn leggjast gegn Helguvík á Alþingi

Fulltrúar Vinstri-grænna í þremur nefndum Alþingis hafa lýst andstöðu sinni við frumvarp um fjárfestingarsamning um álver í Helguvík og telja óverjandi að samþykkja frumvarpið enda séu á því miklir annmarkar. 

Lesa meira
 
2009-04-05-vg_kosningamidstod kop

7.4.2009 : Fjölmenni, söngur og gleði hjá VG í Kópavogi

Vinstri græn opnuðu kosningaskrifstofu að Hamraborg 1-3 á sunnudaginn. Fjöldi fólks lagði leið sína á opnunina og hlýddi á ávarp Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur oddvita lista VG í Kragakjördæminu. Þá söng Guðrún Gunnarsdóttir söngkona nokkur lög fyrir gesti. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sem skipar annað sæti lista VG í kjördæminu og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG heilsuðu einnig upp á gesti.

Lesa meira
 
Kolbrun Halldors NET

6.4.2009 : Kolbrún fær samþykkta tillögu til atvinnusköpunar

Í kjölfar tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðherra sem samþykkt var í ríkisstjórn um að framkvæmdum við ofanflóðavarnir verði hraðað, hefur ofanflóðanefnd óskað eftir heimild fjármálaráðuneytisins til að bjóða út framkvæmdir við varnargarða í Neskaupstað og í Ólafsfirði. Umhverfisráðherra lagði til við ríkisstjórn að tæpum 1.100 milljónum króna yrði varið í ofanflóðavarnir til viðbótar við þær tæpar 700 milljónir sem ákveðið var að veita í málaflokkinn samkvæmt fjárlögum.

Lesa meira
 

6.4.2009 : Fjölmenni við opnun kosningaskrifstofu á Egilsstöðum

Kosningaskrifstofa Vinstri grænna í Kaupvangi 5 á Egilsstöðum var opnuð formlega síðastliðinn laugardag, 4. apríl og voru allir efstu frambjóðendur á lista flokksins í Norðausturkjördæmi viðstaddir opnunina.
Lesa meira
 
opnun_kosno

5.4.2009 : Uvg vígja kosningamiðstöðina

 

Ung vinstri græn hafa hertekið skrifstofur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að Suðurgötu 3 og reka þaðan sína eigin kosningaskrifstofu. Þar var opnað með pompi og prakt á laugardagskvöld og fjöldi fólks lagði leið sína um miðstöðina. Á Suðurgötunni verður opið alla daga frá 16 til 22.

Lesa meira
 

2.4.2009 : Vinstri græn mælast með 27,7% fylgi

Í Gallup-könnun sem birt var í dag mælast Vinstri græn með 27,7% fylgi á landsvísu. Athygli vekur sérstaklega sterk staða flokksins í Norðausturkjördæmi þar sem fylgið mælist 35,4% eða langmest allra flokka. Samkvæmt könnuninni myndu Vinstri græn telja 19 þingmenn eftir kosningar, vaska sveit til að fylgja eftir félagslegum umbótum samfélagsins.

Lesa meira
 

2.4.2009 : Fimm svæði friðlýst í Hafnarfirði

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar munu friðlýsa fimm svæði innan marka Hafnarfjarðar kl. 13:00 á morgun, föstudaginn 3. apríl. Athöfn fer fram við Hleina, skammt frá Hrafnistu í Hafnarfirði. Aldrei hafa svo mörg svæði verið friðlýst í sama sveitarfélaginu í einum vettvangi.

Þrír fólkvangar og tvö náttúruvætti verða friðlýst til útivistar og verndunar á lífríki og hraunmyndunum. Fólkvangar verða stofnaðir við Hvaleyrarlón, Hleina og í Stekkjahrauni. Litluborgir og hluti af Kaldárhrauni verða friðlýst sem náttúruvætti.

Lesa meira
 

2.4.2009 : Ályktun Kjördæmisráðs VG í Norðvesturkjördæmi

Fundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, haldinn í Borgarnesi 29. mars 2009, lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi við störf þingflokks VG, þingmanna og ráðherra VG, undanfarin misseri.

Þingflokkur VG hefur af elju og dugnaði haldið fram sjónarmiðum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og tryggt þeim brautargengi, sem skiptir máli ekki síst nú, þegar þjóðin stendur frammi fyrir gífurlegum efnahagserfiðleikum og álitshnekki erlendis, af völdum óheftrar græðgisvæðingar þjóðfélagsins undanfarin ár í skjóli fyrri ríkisstjórna

Lesa meira
 

1.4.2009 : Um skattatillögur Vinstri grænna

Nokkur umræða hefur farið fram um skattamál að undanförnu. Rétt er í því sambandi að benda á tillögur VG um skattamál eins og þau koma fram í kosningaáherslum flokksins sem samþykktar voru á landsfundi:

Lesa meira
 

31.3.2009 : Allir framboðslistar VG tilbúnir

Nú eru allir framboðslistar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs tilbúnir. Nýjasti framboðslistinn, í Norðvesturkjördæmi, var samþykktur í gær hjá fundi kjördæmaráðs í Borgarfirði.

Listana má nálgast hér á síðunni undir dálkinum Kosningar.

Lesa meira
 

29.3.2009 : Ríkisstjórnin samþykkir stefnu um vistvæn innkaup

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra undirrituðu stefnu um vistvæn innkaup síðastliðinn föstudag. Ríkisstjórnin samþykkti stefnuna á fundi sínum sama dag. Í stefnuninni er sagt fyrir um hvernig samþætta á umhverfissjónarmið innkaupum hjá ríkinu.

Lesa meira
 

29.3.2009 : Fundur um NATO á Akureyri

Mánudaginn 30. mars verða liðin sextíu ár síðan Alþingi samþykkti aðild Íslands að hernaðarbandalaginu NATO. Af því tilefni verður samkoma um kvöldið á kosningaskrifstofu VG á Akureyri, Geislagötu 7, kl. 20.00 þar sem áhersla verður lögð á kröfuna um að Ísland standi utan allra hernaðarbandalaga og að Nató verði lagt niður.

Lesa meira
 

28.3.2009 : Álag á há laun

Töluverðar umræður hafa skapast undanfarið um tillögur Vinstri grænna um álag á há laun. Starfsmenn flokksins hafa tekið saman stutta greinargerð um tillöguna. Við megum eiga von á því að verða spurð mikið um þetta tiltekna atriði og því gött að vera með skýr svör á reiðum höndum.

Lesa meira
 

25.3.2009 : Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Þeir sem af einhverjum ástæðum komast ekki á kjörfund 25. apríl í sínu kjördæmi geta kosið utan kjörfundar til og með kjördags. Vinstri græn geta aðstoðað við að leita upplýsinga og koma atkvæðinu til skila. Munið að listabókstafur Vinstri grænna er V. Lesa meira
 

24.3.2009 : Sjávarútvegsstefna VG

Sjávarútvegsstefna flokksins, Hafið bláa hafið - Áherslur og tillögur Vinstri grænna í sjávarútvegsmálum, er nú komin á vefinn. Lesa meira
 

23.3.2009 : Frestur til að kæra sig inn á kjörskrá rennur út á miðvikudaginn

Við minnum á fresturinn til að kæra sig inn á kjörskrá rennur út á miðvikudaginn næstkomandi (25. mars). Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili utan landsins síðustu átta ár eru hvattir til að kæra sig inn á kjörskrá því þeir gætu hafa misst kosningarétt sinn. Komið þessum skilaboðum til allra sem gætu verið í þessum aðstæðum svo að öll Vinstri græn atkvæði skili sér á kjördag!

Hægt er að kæra sig inn á kjörskrá hér: http://www.thjodskra.is/eydublod/kjorskra/

Lesa meira

 

22.3.2009 : Landsfundur: Vegur til framtíðar varðaður

Áherslur Vinstri grænna í lýðræðis-, velferðar-, atvinnu- og efnahagsmálum voru samþykktar nýlega á landsfundi.

Lesa meira
 

22.3.2009 : Landsfundur: Ályktun um Palestínu samþykkt

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn 20.-22. mars 2009 áréttar stefnu Íslands varðandi Ísrael og Palestínu sem samþykkt var einróma á Alþingi 18. maí 1989. Þar var lögð áhersla á að virða beri sjálfákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar, tilverurétt Ísraelsríkis og jafnframt rétt palestínskra flóttamanna til að snúa aftur til fyrri heimkynna sinna. Landsfundurinn ályktar að á grundvelli stefnu Íslands um sjálfsákvörðunarrétt þjóða beri Íslandi að viðurkenna þau stjórnvöld sem Palestínumenn kjósa sér.

Lesa meira
 

22.3.2009 : Landsfundur: Ályktun um utanríkismál samþykkt

Miklar og sögulegar breytingar hafa á undanförnum árum gengið yfir heiminn á sviði utanríkis- og öryggismála og viðskipta og stjórnmála. Eftir langt kyrrstöðutímabil kaldastríðsáranna þar sem kjarnorkuvígbúið ógnarjafnvægi hélt heiminum í helgreipum hafa hlutirnir verið á fleygiferð. Þessar breytingar lúta ekki aðeins að upplausn Sovétríkjanna og þar með gerbreyttum stjórnmálaaðstæðum í Evrópu, heldur einnig að hnattvæðingu á forsendum fjármagns og stórfyrirtækja, stríði um olíu og aðrar auðlindir.  Þá hafa hnattrænar umhverfisbreytingar af mannavöldum bæst við sem ógnvaldur og brýnt er að við þeim sé brugðist ef komast á hjá stórfelldum ófarnaði.  Í friðar- og öryggismálum eru áfram margar blikur á lofti. Árásarstríð Bandaríkjanna og NATO geisa enn í Afganistan og Írak og framferði Ísraelsstjórnar gegn palestínsku þjóðinni jaðrar við þjóðarmorð.  Í Afríku standa yfir átök og jafnvel hreinar kynþáttahreinsanir á fleiri en einum stað. Allt eru þetta ótvíræðar vísbendingar um að aðferðafræði hernaðarhyggjunnar, hnefaréttarins og hernaðar­bandalaganna er gjaldþrota sem leið til að tryggja öryggi.

Lesa meira
 

22.3.2009 : Landsfundur: Ályktun um félagshyggjustjórn eftir kosningar samþykkt

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn að Hótel Nordica 20.-22 mars 2009, ályktar að Vinstrihreyfingin – grænt framboð sækist eftir því að mynda félagshyggjustjórn að loknum kosningum í vor. Það er mjög mikilvægt á þeim erfiðu tímum sem við nú göngum í gegnum að ríkisstjórn landsins starfi í þágu jöfnuðar og réttlætis. Sjaldan hefur það verið jafn mikilvægt að standa vörð um og byggja upp öflugt velferðarkerfi, sem mismunar engum, sem gengur ekki á auðlindir barna okkar og sem hyglir ekki auðmönnum umfram almenning. Við viljum ríkisstjórn sem forgangsraðar í þágu fólks, ekki fjármagns, ríkisstjórn sem velur frið í stað hernaðaru

Lesa meira
 

22.3.2009 : Kosning í flokksráð - Úrslit

Kosning í flokksráð - Úrslit Lesa meira
 

22.3.2009 : Síðasti dagur landsfundar

Í dag er þriðji og síðasti dagur landsfundar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Nordica í Reykjavík.  Fundurinn hófst í morgun með kosningu til flokksráðs og nú skila málefnahópar af sér afrakstri vinnu sinnar. Eftir hádegi verða lagabreytingar afgreiddar og lýkur svo fundinum með afgreiðslu kosningaáherslna og ályktana. Blaðamannafundur með efstu frambjóðendum hefst klukkan 17:00.

Lesa meira

 

21.3.2009 : Kosningaúrslit

Kosning til stjórnar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fór fram í morgun. Embættin skipast þannig: Lesa meira
 

21.3.2009 : Framboðslisti V-lista í Suðurkjördæmi samþykktur

Kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi samþykkti framboðslista í gærkveldi. Hann er svo skipaður: Lesa meira
 

21.3.2009 : Annar dagur landsfundar

Í dag hefst annar dagur sjötta landsfundar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Nordica í Reykjavík. Gærdeginum lauk með almennum stjórnmálaumræðum þar sem fjölmargir tóku til máls. Fundurinn er vel sóttur og dagskráin í dag er þéttskipuð. Klukkan 10:00 fer fram kosning formanns, varaformanns, ritara, gjaldkera og annarra stjórnarmanna. Framboði til flokksráðs lýkur svo á hádegi. Eftir hádegishlé klukkan 14:00 taka málefnahópar til starfa og hópastarfinu lýkur klukkan 18:00. Í kvöld verður blásið til glæsilegrar veislu í Þjóðleikhúskjallaranum og hefst landsfundarballið klukkan 21:00.

Lesa meira
 

20.3.2009 : Setningarræða Steingríms J. Sigfússonar

Ég vil byrja á því að bjóða ykkur öll velkomin til sjötta reglulega landsfundar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Það hefur mikið vatn til sjávar runnið síðan við hittumst á sambærilegum vettvangi í febrúar 2007 í aðdraganda Alþingiskosninga. Í þeim kosningum vann Vinstrihreyfingin grænt framboð góðan sigur, við urðum helsti sigurvegari þeirra kosninga, bættum við okkur fjórum þingmönnum og fengum 14,3% atkvæða sem gerði okkur að stærsta vinstri eða vinstri græna flokknum á Norðurlöndunum, ef frá eru taldir systurflokkar okkar í Færeyjum og á Grænlandi.

Lesa meira
 

20.3.2009 : Fjölmennasti landsfundur frá upphafi

Í dag hefst sjötti landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Nordica í Reykjavík. Fundurinn verður sá og langfjölmennasti til þessa, enda hefur mikil fjölgun orðið í flokknum undanfarin misseri og eru félagar orðnir yfir 5000 talsins. Fulltrúarnir koma frá alls 32 svæðisfélögum víðs vegar um landið og meira að segja utan landsteinanna en nýjasta svæðisfélagið í Kaupmannahöfn og suður-Svíþjóð sendir fulltrúa.

Lesa meira
 

19.3.2009 : Framboðslisti V-lista í Suðvesturkjördæmi samþykktur

Á kjördæmisfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðvesturkjördæmi hinn 19. mars var framboðslisti V-lista samþykktur einróma. Hann er svona skipaður:

Lesa meira
 

19.3.2009 : Framboðslistar V-lisa í Reykjavíkurkjördæmunum samþykktir

Á kjördæmisfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík 19. mars voru framboðslistar V-lista samþykktir einróma. Þeir eru svona skipaðir:

Lesa meira
 

15.3.2009 : Framboðslisti V-lista í Norðausturkjördæmi samþykktur

Kjördæmisþing VG í Norðausturkjördæmi haldið 15. mars, samþykkti framboðslistann til Alþingiskosninga 25. apríl næstkomandi einróma. Listinn er svona:

Lesa meira
 
kvennamerkid

15.3.2009 : Jöfn kynjahlutföll hjá VG

Úrslit úr öllum forvölum Vinstri grænna liggja nú fyrir og ljóst að karlar og konur skipta með sér að leiða listana. Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir munu leiða listana í Reykjavík, Guðfríður Lilja er í fyrsta sæti í Suðvesturkjördæmi, Atli Gíslason í Suðurkjördæmi, Steingrímur J. Sigfússon í Norðausturkjördæmi og Jón Bjarnason í Norðvesturkjördæmi. Ef skoðað er hverjir lentu í fjórum efstu sætunum í öllum kjördæmum eru konur 13 af 24 eða 54% þeirra sem hlutu brautargengi. Á listunum blandast saman nýliðar og reynsluboltar en allir sitjandi þingmenn náðu kjöri meðal efstu frambjóðenda. Meðalaldur frambjóðendanna er 45 ár, sá yngsti er 26 ára og sá elsti 65 ára. Frekari upplýsingar um úrslit forvala má nálgast á vef hvers kjördæmis: /kjordaemi/

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

15.3.2009 : Úrslit í forvali VG í Norðvesturkjördæmi

Jón Bjarnason, þingmaður, sem skipaði hefur efsta sæti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi frá upphafi, sigraði með yfirburðum í nýafstöðnu forvali og fékk 254 atkvæði í fyrsta sætið. Atkvæði greiddu 375 en 524 voru á kjörskrá.

Í öðru sæti varð Lilja Rafney Magnúsdóttir á Suðureyri með 124 atkvæði í 1 - 2 sæti og í þriðja sæti Ásmundur Einar Daðason, Lambeyrum í Dölum, með 165 atkvæði í 1 - 3. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Reykholti hreppti annað sætið, Telma Magnúsdóttir Blönduósi varð í því fimmta og í sjötta sæti Grímur Atlason í Búðardal. Prófkjörið var framkvæmt með póstkosningu og eru niðurstöður birtar með fyrirvara um samþykki kjördæmisráðs.

Lesa meira
 

15.3.2009 : Úrslit í forvali VG í Suðvesturkjördæmi

Úrslit í forvali Vinstri grænna í Suðvesturkjödæmi lágu fyrir rétt eftir miðnætti og voru þessi:

Á kjörskrá voru 1178, 738 greiddu atkvæði og voru 31 seðil ógíldur.

Í fyrsta sæti með 478 atkvæði lenti Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, í öðru sæti með 526 atkvæði lenti Ögmundur Jónasson. Í þriðja sæti var Ólafur Þór Gunnarsson með 216 atkvæði, í þriðja var Andrés Magnússon með 261 atkvæði, í því fimmta lenti Margrét Pétursdóttir með 290 atkvæði og í því sjötta var Ása Björk Ólafsdóttir með 227 atkvæði.

Lesa meira
 

13.3.2009 : Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Álftanesi

Vinstrihreyfingin grænt framboð á Álftanesi hélt aðalfund sinn þann 18. febrúar sl. Formaður hreyfingarinnar var kjörin Anna Ólafsdóttir Björnsson og meðstjórnendur Gunnsteinn Ólafsson og Hrafnkell Tumi Kolbeinsson. Gestir fundarins voru þau Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varaþingmaður. Fundurinn samþykkti að senda frá sér eftirfarandi ályktanir:

Lesa meira
 

13.3.2009 : Fullt út úr dyrum hjá VG í Garðabæ.

Fullt var út úr dyrum hjá VG í Garðabæ í gærkvöldi þegar Félag VG í bænum var endurreist og stofnað. Mikil stemmning var á staðnum og hugur í fundarmönnum að mála Garðabæ í fleiri litum en þeim bláa. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur stýrði fundinum og rifjaði upp sögur úr Garðabæ. Hún sagði að sér hefði stundum fundist hún vera eins og "The only gay in Little Britain"  að vera vinstrigræn í Garðabæ, en nú væru bersýnilega að renna upp nýir tímar. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra flutti ávarp og talaði um nauðsyn þess fyrir íslenskt samfélag að aðrar og breyttar áherslur og nýtt gildismat réði hér ríkjum næstu misserin og því væri úrslitaatriði að góður kosningasigur ynnist í apríl. Það tæki ár en ekki bara vikur að endurreisa Íslands og til þess þyrfti félagshyggjufólk að vinna saman.

Lesa meira
 

12.3.2009 : Vinstri græn í Kaupmannahöfn álykta

Stjórn Vg í Kaupmannahöfn og suður Svíþjóð vill sjá róttækar breytingar í málefnum íslenskra námsmanna erlendis og hvetur menntamálaráðherra og stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til að umbylta því kerfi sem námsmenn lifa við í dag.

Það er óásættanlegt að LÍN hafi í mörg ár gefið bönkunum færi á að nýta sér stöðu námsmanna með því að greiða námslán ekki fyrirfram. Slíkt fyrirkomulag gerir bönkunum kleift að bjóða námsmönnum fyrirgreiðslu með svimandi háum vöxtum, enda eiga fæstir nemar um annað að velja. Stjórn Vg í Kaupmannahöfn og suður Svíþjóð hvetur til þess að LÍN bjóði upp á fyrirframgreiðslur til námsmanna.

Lesa meira
 

11.3.2009 : Forvalið í Suðvesturkjördæmi

Á laugardaginn, 14 mars, er haldið forval vinstri grænna í Suðvestur-kjördæmi, Kraganum, vegna alþingiskosninganna 2009. Alls eru 15 sem gefa kost á sér, en kjósa skal í allt að sex efstu sæti listans.

Lesa meira
 

10.3.2009 : Dagskrá landsfundar

Sjötti reglulegi landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn á Hótel Nordica helgina 20.-22. mars næstkomandi. Dagskrá liggur nú fyrir og lítur hún svona út:

Lesa meira
 

8.3.2009 : Ályktun af aðalfundi svæðisfélagi VG á Vestfjörðum

Aðalfundur svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum, haldinn 5. mars 2009, telur það forgangsverkefni fyrir samfélagið á Vestfjörðum að brugðist sé við vaxandi atvinnuleysi á svæðinu. Skipulagðar aðgerðir verða að stuðla að uppbyggingu bæði til skemmri og lengri tíma.  Mikilvægt er að þjónusta við atvinnulausa verði bætt og að fólk sem missir vinnuna geti haldið áfram að vera virkir þátttakendur í samfélaginu.  Mikilvægt er fyrir uppbyggingu atvinnulífsins til lengri tíma litið að grunnatvinnuvegir svæðisins, landbúnaður og sjávarútvegur, verði efldir.  Einnig að stuðlað verði að meiri fjölbreytni og nýsköpun í atvinnutækifærum og þróun í ferðaþjónustu verði samtvinnuð náttúru, menningu, mat og sögu Vestfjarða.

Lesa meira
 

8.3.2009 : Úrslit í Reykjavíkurfovali

Endanlega úrslit í forvali Vinstri grænna í Reykjavík liggja nú fyrir. Alls kusu 1101 félagi í fimm efstu sætin í tveim kjördæmum. Atkvæði skiptust þannig:

 

 

  • Katrín Jakobsdóttir, 856 atkvæði í 1. sæti
  • Svandís Svavarsdóttir, 616 atkvæði í 1. sæti
  • Lilja Mósesdóttir, 480 atkvæði í 2. sæti
  • Árni Þór Sigurðsson, 342 atkvæði í 2. sæti
  • Álfheiður Ingadóttir, 479 atkvæði í 3. sæti
  • Kolbrún Halldórsdóttir, 446 atkvæði í 3. sæti
  • Ari Matthíasson, 467 atkvæði í 4. sæti
  • Auður Lilja Erlingsdóttir, 376 atkvæði í 4. sæti
  • Davíð Stefánsson, 474 atkvæði í 5. sæti
  • Steinunn Þóra Árnadóttir, 447 atkvæði í 5. sæti
Lesa meira
 

8.3.2009 : Fyrstu tölur í forvali VG í Reykjavík

Þegar öll atkvæði fyrir utan þau atkvæði sem bárust utan kjörfundar hafa verið talin í Reykjavíkurkjördæmunum er atkvæðafjöldi í þessari röð:

1.       Katrín Jakobsdóttir

2.       Svandís Svavarsdóttir

3.       Lilja Mósesdóttir

4.       Árni Þór Sigurðsson

5.       Álfheiður Ingadóttir

6.       Kolbrún Halldórsdóttir

7.       Ari Mattíasson

8.       Auður Lilja Erlingsdóttir

9.       Davíð Stefánsson

10.   Steinunn Þóra Árnadóttir

Lesa meira
 

7.3.2009 : Úrslit úr póstkosningu Vinstri grænna í Suðurkjördæmi

Forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi er nú lokið en kosið var póstkosningu. Niðurstöður talningar eru svo:

1 .sæti Atli Gíslason, alþingismaður

2. sæti Arndís Soffía Sigurðardóttir, ferðaþjónustubóndi

3. sæti Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri

4. sæti Jórunn Einarsdóttir, kennari

5. sæti Þórbergur Torfason, veiðieftirlitsmaður

Vegna kynjaskiptingar færðust Bergur og Þórbergur upp um eitt sæti hvor. Endanleg ákvörðun um röðun á listanum verður tekin á fundi kjördæmisráðs.

Lesa meira
 

7.3.2009 : Kosningavaka á Tryggvagötunni

Úrslit úr forvali Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum verður tilkynnt í kvöld í kosningamiðstöð flokksins að Tryggvagötu 11. Kjörstaður að Suðurgötu 3 lokar klukkan tíu en stefnt er að því að tölur verði kynntar um miðnætti.

Lesa meira
 

5.3.2009 : Frambjóðendabæklingur fyrir SV kominn á netið

Bæklingur með upplýsingum um frambjóðendur í forvali Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi er kominn á vefinn. Hægt er að nálgast bæklinginn hér.

 

5.3.2009 : Ný stjórn VG á Vestfjörðum

Aðalfundur svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum var haldinn 5. mars síðastliðinn. Á fundinum var kjörin ný stjórn og rætt vítt og breitt um ástand mála og stjórnmál líðandi stundar. Atvinnumálin og orkumál og sjávarútvegsmál voru efst á baugi og voru líflegar umræður um lausnir VG í þessum málaflokkum. Guðný Hildur Magnúsdóttir var kjörin formaður en með henni í stjórn sitja Ágústa Guðmundsdóttir, Jóna Benediktsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Svava Rán Valgeirsdóttir. Varastjórn skipa Stefán Björgvin Guðmundsson og Halldóra Játvarðardóttir. Félagslegir endurskoðendur voru kjörnir Birkir Friðbertsson og Gígja Sigríður Tómasdóttir.

Lesa meira
 

5.3.2009 : Hægt að kæra sig inn á kjörskrá til 25. mars!

Vegna sérstakra aðstæðna við þingkosningar hefur Alþingi samþykkt lög um að heimilt sé að kæra sig inn á kjörskrá til 25. mars næstkomandi. Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili utan landsins síðustu átta ár eru hvattir til að kæra sig inn á kjörskrá. Það er hægt að gera hér: http://www.thjodskra.is/eydublod/kjorskra/. Látið berast!

Lesa meira
 

4.3.2009 : Úrslit úr forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi

Talningu í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi er lokið og var kjörsókn tæplega 63%. Einn kjörseðill var úrskurðaður ógildur. Alls gaf 21 félagi kost á sér í forvalinu. Steingrímur J. Sigfússon fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið en alls var kosið í átta sæti. Frambjóðendur raðast þannig:

Lesa meira
 

4.3.2009 : Fundur á Ísafirði

Aðalfundur í svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum verður haldinn á Ísafirði fimmtudagskvöldið 5. mars næstkomandi í sal Verkalýðsfélags Vestfirðinga Pólgötu 2 klukkan 20. Á fundinum verður kjörin ný stjórn og landsfundafulltrúar skipaðir.

Lesa meira
 

4.3.2009 : Úrslit úr forvali VG í Norðausturkjördæmi væntanleg í kvöld

Vegna tafa á póstsamgöngum verða úrslit í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi tilkynnt í kvöld, miðvikudagskvöld 4. mars. Lesa meira
 
forvalsbaekl_NV_forsida

2.3.2009 : Frambjóðendabæklingur NV-kjördæmis kominn á vefinn

Í tilefni forvals Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi var gefinn út bæklingur með kynningu á öllum frambjóðendunum. Þessi bæklingur er nú aðgengilegur hér á vefnum í pdf-formi. Aðrar upplýsingar má einnig nálgast hér.

Lesa meira
 

28.2.2009 : Hvað ber framtíðin í skauti sér hvað varðar húsnæðismál íbúa höfuðborgarsvæðisins?

Borgarstjórnarflokkur VG efnir til almenns fundar um húsnæðismál á höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhússins miðvikudaginn 4. mars kl. 20:00 og er öllum opinn.

Frummælendur verða þau Steingrímur J Sigfússon fjármálaráðherra, Ásta Rut Jónasdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, Guðmundur Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs og Páll Gunnlaugsson arkitekt og fyrrverandi formaður Búseta.

Lesa meira
 

28.2.2009 : 103 í framboði hjá Vinstrihreyfingunni - grænu framboði

Vinstri græn standa fyrir forvölum í öllum kjördæmum fyrir Alþingiskosningarnar 2009. Alls hafa 103 félagar gefið kost á sér og ljós að aldrei hefur verið jafn mikill áhugi á að starfa með flokknum og nú. Í Reykjavíkurkjördæm-unum verður sameiginlegt forval og hafa 32 félagar gefið kost á sér þar. Í Suðvesturkjördæmi eru 15 í framboði, 13 í Suðurkjördæmi. Í Norðausturkjördæmi er 21 félagi í framboði og í Norðvesturkjördæmi eru frambjóðendurnir 22. Upplýsingar um nöfn frambjóðenda og tilhögun kosninga má nálgast á vef Vinstri grænna.

Lesa meira
 

28.2.2009 : 22 frambjóðendur gefa kost á sér í forvali VG í Norðvesturkjördæmi

Framboðsfrestur í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi rann út föstudaginn 27. febrúar. Alls gáfu 22 félagar kost á sér. Þeir sem eru skráðir félagar í Vinstri grænum í kjördæminu fá sendan kynningarbækling með frambjóðendunum auk kjörseðils sem þarf að póstleggja í síðasta lagi 10. mars næstkomandi. Þau sem gáfu kost á sér eru:

Lesa meira
 

27.2.2009 : Fimmtán frambjóðendur í forvali VG í Kraganum

Framboðsfrestur í forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðvestur-kjördæmi vegna alþingiskosninganna í vor er nú liðinn.

Ákveðið var á fundi kjördæmisráðs VGSV að forvalið færi fram þann 14. mars næstkomandi að Hamraborg 1-3 í Kópavogi, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ kl. 10:00 – 22:00. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram kl. 16.00 – 21.00 að Hamraborg 1-3 í Kópavogi þann 12. og 13. mars 2009. Þeir félagsmenn sem eru erlendis eða úti á landi geta óskað eftir að taka þátt í forvalinu með póstkosningu.

Lesa meira
 
NGLA_logo

27.2.2009 : Norðurlandahópur Vinstri grænna auglýsir eftir framkvæmdastjóra/-stýru

Samstarfsvettvangur Vinstri grænna flokka á norðurlöndum auglýsir eftir nýjum framkvæmdastjóra/-stýru sem þarf að geta hafið störf 1. júní næstkomandi. Sama auglýsing birtist á öllum norðurlöndum (sjá neðan) en ég hvet íslenska félaga sérstaklega til að sækja um. Viðkomandi þarf að sjálfsögðu að hafa Norðurlandatungumál á valdi sínu og vera tilbúinn til ferðalaga milli landa. Aðsetur framkvæmdastjóra/-stýru fer eftir þjóðerni þess sem ráðin/n er.

Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri grænna

Lesa meira
 

26.2.2009 : Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst á laugardag!

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninganna sem boðaðar eru 25. apríl 2009 hefst við embætti sýslumannsins í Reykjavík þann 28. febrúar nk. og er opin á skrifstofutíma á milli kl. 9:00 – 15:30 virka daga. Um helgar er opið frá kl. 12:00 – 14:00.

Frá og með 1. apríl nk. fer atkvæðagreiðslan fram í Laugardalshöll og þá verður opið alla daga frá kl. 10:00 -22:00 en lokað á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum.

Sýslumaðurinn í Reykjavík

Lesa meira
 
FORSIDA_FRAMBODSBAEKL_RVK

25.2.2009 : Framboðsbæklingur Reykjavíkurkjördæmis kominn á netið

Bæklingur þar sem frambjóðendur í forvali Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum kynna sig, er kominn á vefinn. Bæklingurinn verður einnig sendur öllum félögum sem skráðir eru í Svæðisfélag Vinstri grænna í Reykjavík.

Lesa meira
 
forsida_frambodsbaeklingur_SU

24.2.2009 : Framboðsbæklingur Suðurkjördæmis kominn á netið

Bæklingur þar sem frambjóðendur í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi kynna sig, er kominn á vefinn. Bæklingurinn verður ekki prentaður heldur einungis aðgengilegur í rafrænu formi sem pdf-skjal.

Lesa meira
 
090223_vestmannaeyjar

24.2.2009 : Fjölmennur og góður fundur VG í Vestmannaeyjum

Frambjóðendur til efstu sæta VG í Suðurkjördæmi héldu opinn kynningarfund á Kaffi Kró í Vestmannaeyjum gærkvöldi (23. feb). Sex frambjóðendur sem gefið hafa kost á sér í sæti 2-5 komu til Eyja og kynntu sig og sín sjónarmið á fundinum.  Atli Gíslason þingmaður VG í Suðurkjördæmi átti því miður ekki heimangengt vegna anna á Alþingi en hann nýtur óskoraðs trausts til að leiða framboðslistann í kosningunum 25. apríl nk. 

Fundinn sóttu rúmlega 30 manns og voru umræður fjörugar, málefnalegar og sýna að mikill áhugi er meðal Eyjamanna á stefnu og framgangi Vinstri grænna.  Kynningarfundir frambjóðendanna hafa að undanförnu verið haldnir um Suðurkjördæmið vítt og breytt og í kjölfarið hefst síðan póstkosning um skipun efstu sætanna.

Lesa meira
 

23.2.2009 : 32 í framboði í forvali VG í Reykjavík

Framboðsfrestur í forval VGR vegna alþingiskosninganna í vor er nú liðinn. Eins og ákveðið var á félagsfundi VGR fer forvalið fram 7. mars næstkomandi í húsnæði VGR, Suðurgötu 3, en utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður 5. og 6. mars einnig í Suðurgötu 3. Þeir félagsmenn sem eru erlendis eða úti á landi geta óskað eftir að taka þátt í forvalinu með póstkosningu.

Í forvalinu á að raða fimm frambjóðendum í efstu sæti á listunum tveimur í Reykjavík, alls tíu nöfnum.

Unnið er að gerð kynningarbæklings um frambjóðendur. Bæklingurinn verður sendur til allra félagsmanna VGR.

Samkvæmt reglum um forvalið á að draga um hvaða nafn er efst á listanum og raða nöfnum frambjóðenda í starfrófsröð þar á eftir.

Lesa meira
 

22.2.2009 : Forval hjá Vinstri grænum í öllum kjördæmum

Í dag ákvað kjördæmisþing Norðvesturkjördæmis að nota póstkosningu til að velja á lista fyrir alþingiskosningarnar í vor. Þar með er orðið ljóst að forval verður hjá Vinstri grænum í öllum kjördæmum, ýmist með kjörfundi eða póstkosningu. Fréttir úr hverju kjördæmi um forvalsreglur, frambjóðendur og fleira má nálgast jafn óðum og þær berast á vef hvers kjördæmisfélags fyrir sig hér.

Lesa meira
 

21.2.2009 : Frá VG í Suðvesturkjördæmi

Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi ákvað á fundi sínum þann 21. febrúar 2009 að kjörfundur vegna forvals verði laugardaginn 14. mars 2009 en EKKI dagana 5. og 6. mars eins og áður hefur verið auglýst.
Framboðsfrestur er til kl. 24.00 fimmtudaginn 26. febrúar. Þeir sem vilja gefa kost skulu senda til kjörstsjórnar á netfangið kjorstjornvgsv@gmail.com .
Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það með sama hætti og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á.
Allir þeir sem hafa áhuga á því að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuði, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvattir til að gefa kost á sér.

Lesa meira
 
frambjodendabaekl_kapa

20.2.2009 : Kynningarbæklingur með frambjóðendum í forvali VG í NA-kjördæmi

Gefinn hefur verið út bæklingur með kynningu á öllum frambjóðendum í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi. Bæklinginn má nálgast á rafrænu formi hér að neðan en hann verður einnig sendur öllum skráðum félögum ásamt atkvæðaseðli. Nánar um tilhögun forvalsins má lesa í forvalsreglunum og reglum um póstkosningu.

Lesa meira
 

18.2.2009 : Framboð í forvali VG í NA

Eftirfarandi framboð hafa borist í forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi en framboðsfrestur er runninn út. Kosningarétt hafa allir félagsmenn í VGNA sem skráðir eru 23. febrúar 2009 en þá verður kjörskrá lokað.

Kjörfundur verður haldinn 28. febrúar 2009 en kjördæmisráð Norðausturkjördæmis mun annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni sem og standa fyrir fundum.

Lesa meira
 

17.2.2009 : Val á framboðslistum VG fyrir kosningarnar

Nú liggur fyrir í flestum kjördæmum hvernig valið verður á lista Vinstri grænna fyrir komandi alþingiskosningar. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vg.is jafn óðum og þær berast en fljótlega verður komið upp síðum fyrir hvert kjördæmi fyrir sig þar sem kynntar verða forvalsreglur og frambjóðendur.   Lesa meira
 

17.2.2009 : Forval Suðvesturkjördæmis

Stjórn kjördæmisráðs VG í Suð-vesturkjördæmi hefur ákveðið að efna til forvals vegna komandi alþingiskosninga. Skipuð hefur verið fimm manna kjörstjórn sem mun leggja til á almennum fulltrúaráðsfundi kjördæmisráðsins sem boðaður er þann 21. febrúar dagsetningar sem snerta fresti og forvalsdag. Tillagan hljóðar á þá leið að forvalið fari fram þann 5. og 6. mars. Auglýstur framboðsfrestur er til 23. febrúar.

Því er auglýst eftir fólki sem vill gefa kost á sér í eitt af efstu sex sætum á lista VG í SV-kjördæmi. Þeir sem það vilja sendi póst á kjorstjornvgsv@gmail.com.

Lesa meira

 

13.2.2009 : Forval VG í Reykjavík

Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík auglýsir eftir frambjóðendum í 5 efstu sæti á framboðslistunum tveim í kjördæmunum Reykjavík norður og Reykjavík suður.

Framboðsfrestur rennur út kl. 17:00 þann 19. febrúar 2009. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í pósthólf 175/121 Reykjavík.

Lesa meira
 
NGLA_logo

11.2.2009 : Ályktun Vinstri grænna á Norðurlöndum

Um helgina var haldinn aðalfundur NGLA sem er samstarfsvettvangur Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum. Ísland hefur farið með forystu í samstarfinu síðasta ár og af því tilefni var fundurinn haldinn í tengslum við tíu ára afmæli Vinstri grænna. Á fundinum var samþykkt sameiginleg yfirlýsing um áherslur flokkanna í efnahagsmálunum. Hún er svohljóðandi:

Lesa meira
 
nei_logo

11.2.2009 : Viðtal við Steingrím í vefritinu Nei

Við bendum á forsíðuviðtal við Steingrím J. Sigfússon í róttæka vefritinu Nei. Í viðtalinu er fjallað um nýfrjálshyggju, ábyrgð hugmyndafræðinnar sem Steingrímur segir mikla, ábyrgð fjölmiðla sem hann segir hafa tekið gagnrýnilaust þátt í gullæðinu auk þess sem farið er vítt og breitt yfir sviðið.

Lesa meira
 

10.2.2009 : Forval VG í Suðurkjördæmi

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Suðurkjördæmi auglýsir hér með eftir fólki sem vill bjóða sig fram í eitt af 5 efstu sætum á lista VG í Suðurkjördæmi í kosningum til Alþingis 25. apríl 2009.

Framboðsfrestur rennur út  kl 17:00 föstudaginn 19. febrúar.

Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til formanns kjörstjórnar Kjartans Ágústssonar, Löngumýri,  Skeiðum,  801 Selfoss eða í tölvupósti langamyri@uppsveitir.is og taka fram eftir hvaða sæti eða sætum þeir sækjast.

Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðendum skulu einnig gera það skriflega til formanns kjörstjórnar fyrir 16. febrúar.  Kjörstjórn mun þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á.

Allir þeir sem hafa áhuga á því að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuð, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvattir til að gefa kost á sér.

Kosningarétt hafa allir félagsmenn í VG í Suðurkjördæmi miðað við 19. febrúar 2009.

Lesa meira
 

8.2.2009 : Forval hjá vinstri grænum í Reykjavík

Ákveðið hefur verið að efna til forvals í hjá Vinstri grænum í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi alþingiskosningar. Fimm manna kjörstjórn leggur til að forvalið fari fram 6.mars nk. og framboðsfrestur sé til 19. febrúar. Tillaga að þessum dagsetningum verður lögð fyrir félagsfund VGR næstkomandi fimmtudag. Á fundinum verða einnig lagðar fyrir reglur sem kosið verður eftir jafnframt því að velja fulltrúa félagsins á landsfund flokksins sem fram fer 20.-22. mars. Fundurinn verður haldinn á Vesturgötu 7 fimmtudaginn 12. febrúar og hefst hann kl. 20.

Lesa meira
 

6.2.2009 : TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!

 
afmalislogo

5.2.2009 : Afmælisdagskráin

Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar tíu ára afmæli sínu um næstu helgi á Grand Hóteli í Reykjavík. Fjöldi félaga og gesta mun fagna þessum tímamótum og frá Norðurlöndum eru væntanlegir formenn systurflokka Vinstri grænna eða fulltrúar þeirra. Á laugardeginum verður haldinn aðalfundur Norðurlandasamstarfs Vinstri grænna flokka (NGLA) en VG hefur farið með formennsku í samstarfinu undanfarið ár.

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

3.2.2009 : Jón Bjarnason formaður þingflokks Vinstri grænna

Á nýloknum fundi þingflokks Vinstri grænna var Jón Bjarnason kjörinn formaður þingflokksins en hann tekur við af Ögmundi Jónassyni. Jón hefur setið á þingi fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð síðan hreyfingin bauð fyrst fram árið 1999. Hann er þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Lesa meira
 

3.2.2009 : Forval í Norðausturkjördæmi

Kjörstjórn auglýsir eftir frambjóðendum í átta efstu sæti á framboðslista VG í Norðausturkjördæmi.

Framboðsfrestur rennur út kl. 17:00 þann 16. febrúar 2009. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í tölvupósti á netfangið brell@simnet.is eða bréfleiðis í pósthólf 195, 602 Akureyri.

Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það einnig skriflega til kjörstjórnar fyrir 9. febrúar og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Lesa meira

 
afmalislogo

2.2.2009 : Vinstri græn 10 ára!

Tíu ár eru brátt liðin síðan við stofnuðum stjórnmálaafl um hugsjónir okkar í anda vinstristefnu, kvenfrelsis, náttúruverndar og sjálfstæðis - því ber að fagna. Við efnum til hátíðar, eigum saman skemmtilega stund í tali og tónum, rifjum upp baráttuna og skipuleggjum framtíðina helgina 6.-7. febrúar 2009 á Grand Hóteli í Reykjavík.

Lesa meira
 
090201 bladamannafundur

1.2.2009 : Verkefnaskrá ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna

Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs verður til við afar erfiðar aðstæður í íslensku samfélagi. Stjórnin er mynduð til að tryggja landinu starfhæfa ríkisstjórn sem hrindi í framkvæmd brýnum og mikilvægum aðgerðum, einkum í þágu heimila og atvinnulífs, til endurreisnar bankakerfisins, á sviði endurbóta í stjórnsýslu og aðgerðum í þágu aukins lýðræðis og opins og heiðarlegs samfélags.

Ríkisstjórnin tekur í arf gríðarlega erfiðleika vegna banka- og kerfishruns, einnig miklar og ört vaxandi erlendar skuldir og ábyrgðir þjóðarbúsins. Stjórnin byggir því á mjög aðhaldssamri og ábyrgri stefnu í efnahags- og ríkisfjármálum en mun jafnframt hafa í heiðri félagsleg gildi, hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsi, jöfnuð og réttlæti.

Ríkisstjórnarflokkarnir eru sammála um mikilvægi þess að efnt verði til kosninga eins fljótt og aðstæður leyfa svo mynda megi ríkisstjórn á grunni endurnýjaðs umboðs frá þjóðinni að þeim loknum.

 

Framsóknarflokkurinn mun verja stjórnina vantrausti. Einnig hefur verið haft samráð við formann Frjálslynda flokksins í stjórnarmyndunarviðræðunum.

Lesa meira
 
090201 thingflokkur

1.2.2009 : Vinstri græn taka sæti í ríkisstjórn

Tilkynnt var rétt í þessu að Vinstrihreyfingin - grænt framboð tekur í kvöld sæti í ríkisstjórn. Tilvonandi ráðherrar munu fara á fund forseta kl. 17:30 í kvöld og taka þá við embættum. Fjármálaráðherra og sjávarúvegs- og landbúnaðarráðherra verður Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. Heilbrigðisráðherra verður Ögmundur Jónasson. Menntamálaráðherra verður Katrín Jakobsdóttir. Umhverfisráðherra verður Kolbrún Halldórsdóttir.

Lesa meira
 

1.2.2009 : Ný ríkisstjórn kynnt í dag

Vinstri græn og Samfylking hafa boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur í dag í Gyllta sal Hótel Borgar til að kynna nýja ríkisstjórn. Lesa meira
 

29.1.2009 : Á döfinni

Fundi í lýðræðishópnum sem átti að vera í kvöld er frestað fram í næstu viku vegna breyttra aðstæðna. Þau sem vilja koma hugmyndum á framfæri og spinna áfram þær umræður sem hafa verið í hópnum hingað er bent á að hafa samband við Héðinn Björnsson; hedinn.bjornssonj@isor.is, sem heldur utan um starf hópsins.

Í kvöld verða Ungliðar með fund í Suðurgötunni ásamt borgarfulltrúum VG í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan átta og er yfirskrift hans „Forgangsröðun í borginni“

Í kvöld er einnig haldinn sameiginlegur aðalfundur í Ölfusi og Hveragerði í Kiwanishúsinu í Þorlákshöfn kl. 19:00. Opinn stjórnmálafundur hefst strax á eftir kl. 20:00. Frummælendur eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ásgeir Ingvi Jónsson fyrrum bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Ölfusi og Daníel Haukur Arnarsson formaður UVG á Suðurlandi.

Svo eru allir félagar hvattir til að fylgjast vel með næstu daga, muna eftir afmælisfagnaðinum 6. og 7. febrúar, vera tilbúin í landsfund í síðasta lagi í Mars og svo auðvitað KOSNINGAR!

Lesa meira
 
090124 stofnfundur í kaupmannahöfn

28.1.2009 : Vinstri græn í Köben

Stofnfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Kaupmannahöfn og Suður – Svíþjóð var haldinn í Jónshúsi laugardaginn 24. janúar 2009. Á fundinum voru samþykkt lög fyrir félagið og þrír félagar kosnir í stjórn, þau Gunnar Örn Heimisson, Dagur Snær Sævarsson og Svala Heiðberg. Drífa Snædal framkvæmdastýra Vinstri grænna stýrði fundinum en Kolbrún Halldórsdóttir þingkona fór yfir stöðu mála og ýtti úr vör líflegum umræðum á fundinum. Félagið er það fyrsta innan flokksins sem stofnað er utan landssteinanna.

Lesa meira
 

28.1.2009 : Stjórnmálaráðstefna Vg í Suðurkjördæmi

Vinstri græn á Suðurlandi boða til stjórnmálaráðstefnu næstkomandi laugardag í kjölfar aðalfundar kjördæmisráðsins. Ráðstefnan sem er öllum opin er haldin á Hótel Selfossi milli klukkan 13 og 16 undir yfirskriftinni Nú sækjum við fram - það er ekkert annað í boði!

Dagskráin er svohljóðandi:

Lesa meira
 

27.1.2009 : Ályktun flokksráðsins

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er nýlokið. Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktun einróma:

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn í Reykjavík 27. janúar 2009 lýsir yfir stuðningi við þátttöku þingflokksins í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum og vonar að þær verði leiddar til lykta með farsælum hætti.

Lesa meira
 
090127 flokksradsfundur

27.1.2009 : Húsfyllir á flokksráðsfundi

Nú stendur yfir flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs þar sem vel á annað hundrað félaga eru mættir. Í upphafi fundar gerði Steingrímur J. Sigfússon grein fyrir stöðunni í samningaviðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar með Samfylkingunni og með stuðningi Framsóknar. Þegar hann lauk máli sínu var mikið klappað og hafa umræðurnar í kjölfarið verið jákvæðar. Félagar hafa hvatt forystuna, brýnt og lagt fram hugmyndir í púkkið. Ekki er ljóst hvenær fundi lýkur.                

Lesa meira
 

27.1.2009 : Flokksráðsfundur á Grand Hóteli kl. 20:30 í kvöld

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn klukkan 20.30 í kvöld, þriðjudaginn 27. janúar. Fundurinn verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík.

Efni fundarins er umfjöllun um stöðu mála og framtíðarhorfur í landstjórninni, sbr. lög Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs þar sem kveðið er á um samráð þingflokks og flokksráðs komi til stjórnarmyndunar með þátttöku flokksins.

Lesa meira
 

25.1.2009 : Yfirlýsing frá þingflokki Vinstri grænna vegna ummæla Björns Bjarnasonar

Vegna órökstuddra ásakana af hálfu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra í garð einstakra þingmanna VG vill þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs koma eftirfarandi á framfæri: Þingflokkur Vinstri grænna fordæmir harðlega hvers kyns ofbeldi, sama hver í hlut á. Ofbeldi í garð lögreglunnar er aldrei og undir engum kringumstæðum réttlætanlegt. Lesa meira
 

25.1.2009 : Landsfundur 20.-22. mars

Á stjórnarfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs síðdegis var ákveðið að stefna að því að halda landsfund flokksins helgina 20.-22. mars. Dagsetning fundarins tekur mið af vilja Vinstri grænna til að gengið verði til kosninga laugardaginn 4. apríl, þ.e.a.s. helgina fyrir páska. Á undan kæmi stutt og snörp kosningabarátta en um það bil tveggja mánaða tímabil fram að henni ætti að tryggja framboðum nægan undirbúningstíma. Miðlæg kosningastjórn VG er þegar tekin til starfa og unnið er að því að koma upp staðbundnum kosningastjórnum í öllum kjördæmum. Opnir málefnahópar hafa verið að störfum og mun flokkurinn beita sér fyrir því að nýir og verðandi félagar taki virkan þátt í því starfi fyrir kosningar. Lesa meira
 

23.1.2009 : Vöfflukaffi kl. 3 á laugardag

Eins og undanfarna laugardaga verður vöfflukaffið á sínum stað í Suðurgötu 3 á morgun, laugardag, eftir kl. 15.00. Lesa meira
 

22.1.2009 : Kæri félagi

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna tók til máls á þingi í dag og hvatti fólk til að halda stillingu sinni. Vinstri græn hvetja til yfirvegaðra og friðsamra mótmæla og harma það að söguleg mótmæli Íslendinga, þar sem tugþúsundir nýta rétt sinn til að koma á framfæri óánægju sinni, hafi endað eins og raun bar vitni í nótt. Steingrímur tók skýrt fram að ríkisstjórnin hefði brugðist, hún hefði ekki mætt óskum samfélagsins um upplýsingar, gagnsæi og heiðarleg vinnubrögð og hafnað kröfum um að fólk sætti ábyrgð.

Við vitum að næstu daga getur dregið til tíðinda og Vinstri græn þurfa að vera viðbúin. Undanfarna mánuði hafa verið haldnir fundir í nafni Vinstri grænna vítt og breitt um landið og því verður fram haldið. Við hvetjum til áframhaldandi góðrar mætingar, hittumst, spjöllum saman, látum í okkur heyra og skipuleggjum endurmótun samfélagsins.

Á döfinni er: Lesa meira

 

19.1.2009 : Reykjavík: Ályktun um heilbrigðismál

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík mótmælir harðlega framkomnum tillögum ríkisstjórnarinnar um breytingar á skipan heilbrigðismála.

Lokun St. Jósepsspítala er stórt spor í átt til einkavæðingar í heilbrigðsþjónustu þegar fyrirhugað er að leggja farsæla starfsemi þar niður og færa starfsfólkið til einkarekinna skurðstofa í Keflavík í eigu „athafnamanns.” Jafnframt er gengið fram hjá áratuga langri faglegri vinnu starfsfólks spítalans sem hefur byggt upp heillavænlegt starf fyrir heilbrigðisþjónustuna.

Með því að sameina heilbrigðisstofnanir úti á landi er verið að skerða mjög þjónustu við fólk í dreifbýli, lokun stofnana eða niðurskurður á þjónustu dregur mjög úr öryggi fólks og stóreykur kostnað þeirra sem á heilbrigðisþjónstu þurfa að halda. Nú þarf fólk víða að sækja eftir þjónustu langa leið sem áður var veitt í heimabyggð. Afleiðing breytinganna er að velta bæði sjúkrakostnaði og ferðakostnaði yfir á sjúklinga. Ef af þessum breytingum verður þurfa sængurkonur úti á landi að sækja í eftirlit og til fæðinga í Reykjavík og eru þannig hraktar úr faðmi fjölskyldu sinnar á viðkvæmum augnablikum.

Jafnframt fordæmir stjórn Vinstri grænna í Reykjavík það pukur og leynimakk sem hefur einkennt alla vinnu við undirbúning þessara tillagna á vegum ríkisstjórnarinnar með Guðlaug Þór heilbrigðisráðherra í fararbroddi.

Lesa meira
 

19.1.2009 : Árborg: Ályktun vegna fyrirhugðarar þjónustuskerðingar á Heilbrigðisstofnum Suðurlands

Svæðisfélag Vg í Árborg mótmælir harðlega þeirri þjónustuskerðingu sem fyrirhuguð er  á Heilbrigðisstofnun Suðurlands samkvæmt tillögum heilbrigðisráðherra. Verði vaktir skurðlæknis, fæðingarlæknis og svæfingarlæknis lagðar af og skurðstofu HSu lokað utan dagvinnutíma og um helgar er verið að færa heilbrigðisþjónustu við Sunnlendinga marga áratugi aftur í tímann.

Með þessari ákvörðun er í raun verið að leggja niður fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem  óhugsandi er að starfrækja fæðingardeild sem ekki er studd af fæðingarlækni á vakt. Fæðingar á HSu voru um 200 árið 2008 auk allrar annarrar þjónustu sem fæðingardeildin veitir.  Það er með öllu óásættanlegt að þessa þjónusta verði færð til Landspítala Háskólasjúkrahúss í Reykjavík með öllu því óhagræði sem því fylgir fyrir notendur þjónustunnar og vandséð að sparnaður nást við slíka ráðstöfun. Lesa meira

 
090118 adalfundur NV

18.1.2009 : Fjölsóttur fundur kjördæmisráðs NV

Aðalfundur kjördæmisráðs Norðvesturkjördæmis var haldinn að Staðarflöt í Hrútafirði 18. janúar. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa voru fjörugar umræður um ástandið og stöðu og ábyrgð Vinstri grænna. Látins félaga Halldórs Brynjúlfssonar var minnst í upphafi fundar. Þórarinn Magnússon á Frostastöðum lét af embætti formanns og í stað hans var kjörinn Lárus Ástmar Hannesson. Með honum í stjórn sitja Hjördís Garðarsdóttir og Stefán Þórarinn Ólafsson. Varastjórn er skipuð í þessari röð: Anna Berg Samúelsdóttir, Jón Jónsson og Úlfar Sveinsson. Skoðunarmenn reikninga eru þau Helena María Jónsdóttir og Ragnar Elbergsson.

Lesa meira
 

17.1.2009 : Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza

Fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir mótmælafundi í Háskólabíói á sunnudaginn undir kjörorðinu: ÞJÓÐARSAMSTAÐA GEGN FJÖLDMORÐUNUM Á GAZA.

Fundarstjóri er Arnar Jónsson leikari og ræður flytja Guðfríður Lilja Grétarsdóttir stjórnmálafræðingur, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur. Össur Skarphéðinsson, starfandi utanríkisráðherra, ávarpar fundinn. Fjölbreytt tónlistardagskrá verður á fundinum: Trio Nordica, Barnakór Kársnes, Hulda Björg Garðarsdóttir, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Lay Low og fleira.

Eftirtaldir hafa nú þegar staðfest aðild að fundinum:
ASÍ, BSRB, Félagið Ísland-Palestína, Frjálslyndi flokkurinn, KÍ, Landssamband sjálfstæðiskvenna, SFR, Samiðn, Samfylkingin, Starfsgreinasambandið og Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Lesa meira
 

16.1.2009 : Þingflokkur Vinstri grænna á Akureyri 18.-19. janúar

Þingflokkur VG mun funda og sækja heim stofnanir á Akureyri 18.-19. janúar, meðal annars til að kynna sér áhrif fyrirhugaðra breytinga á heilbrigðiskerfinu fyrir heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. Rétt er í þessu samhengi að benda á ályktun þingflokks sem samþykkt var á þingflokksfundi í gær.

Á sunnudeginum fundar þingflokkurinn sjálfur en á mánudeginum verður m.a. farið í Heilsugæsluna og Fjórðungssjúkrahúsið (FSA). Um kvöldið verða svo opnir fundir með þingmönnum á Grenivík og á Dalvík til að ræða við heimamenn um stöðuna í efnahags- og atvinnumálum.

Lesa meira
 
laknar

15.1.2009 : Ályktun þingflokks VG vegna breytinga í heilbrigðisþjónustunni

Þingflokkur Vinstri grænna mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum í heilbrigðisþjónustunni. Það er mat þingflokksins að breytingarnar séu hvorki til þess fallnar að styrkja þjónustuna né auka öryggi hennar og að þær stefni í voða nærþjónustu í heimabyggð. Engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna að til lengri tíma litið leiði breytingarnar til þjóðhagslegs sparnaðar. Með breytingunum eru sveitarfélögin þvinguð til að taka yfir nærþjónustuna ellegar verði úr henni dregið. Skipulagsbreytingarnar virðast hafa verið undirbúnar löngu áður en yfirstandandi efnahagskreppa skall á þótt þær séu nú kynntar undir því yfirskini að þær séu óhjákvæmilegar.

Lesa meira
 

15.1.2009 : Vinstri græn á ferð og flugi

Sjaldan hefur flokksstarf Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs verið eins líflegt og nú og má finna fjölda funda og viðburða um allt land undir merkjum flokksins.

Í kvöld er opinn fundur á Hótel Stykkishólmi með Jóni Bjarnasyni og Steingrími J. Sigfússyni. Þá verða landbúnaðar- og evrópumál rædd á Egilsstöðum á laugardaginn auk þess sem Reykjavíkurfélagið ræðir heilbrigðismál sama dag.

Á sunnudaginn er aðalfundur kjördæmisráðs Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi og þá um helgin leggur þingflokkurinn upp í ferð um Norðurland með viðkomu í fyrirtækjum, stofnunum og hjá félagasamtökum. Ferðinni lýkur með fundum á Dalvík og Grenivík mánudaginn 19. janúar.

Lesa meira
 
090110 island og evropa

12.1.2009 : Ísland og Evrópa

Vinstri græn héldu málþing síðastiliðinn laugardag undir yfirskriftinni Ísland og Evrópa. Fjölmennt var á þinginu, eða tæplega 100 manns. Því miður varð að bregða út af auglýstri dagskrá þar sem Ågot Valle, þingkona og fyrrum varaformaður Nei til EU – hreyfingarinnar í Noregi forfallaðist á síðustu stundu, en í hennar stað hélt Dag Seierstad erindi. Aðrir fyrirlesarar voru Stefán Már Stefánsson, prófessor, Þórólfur Matthíasson, prófessor og Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar flytja erindi. Rástefnunni stýrði Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna.

Mikill áhugi var á að nálgast erindi fyrirlesaranna og má nálgast glærur við erindi Stefáns hér: Stjórnarskrá og Evrópusambandið og glærur við erindi Þórólfs Matthíassonar hér: Gjaldmiðillinn, fjármálastarfsemin og lífskjörin. Auk þess dreifði Dag Seierstad nokkrum punktum um af hverju hann teldi ekki þjóna hagsmunum Noregs að ganga inn í Evrópusambandið og má finna þá hér: Fjorten grunner til å si nei.

Lesa meira
 

12.1.2009 : Vinstri græn á Ströndum stofnað

Stofnfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Ströndum var haldinn sunnudaginn 11. janúar 2009 að Sævangi. Fjölmennt var á fundinum og gengu margir nýjir félagar til liðs við hreyfinguna. Eftir að félagið hafði verið formlega stofnað tóku margir til máls og brann helst á félögum samgöngumálin og fjarskipti við Strandir, enda er slíkt forsenda fyrir sjálfbærni samfélagsins og atvinnuuppbyggingu. Formaður var kjörinn Jón Jónsson, aðrir í stjórn eru Arnar Jónsson, Katla Kjartansdóttir, Kristinn Schram og Rósmundur Númason. Þau Viðar Guðmundsson og Viktoría Rán Ólafsdóttir voru kjörin varamenn. Skoðunarmenn reikninga eru Þórður Halldórsson og Eva Sigurbjörnsdóttir.

Lesa meira
 

10.1.2009 : Samstaða með St. Jósefsspítala

Stjórn Vinstri grænna í Hafnarfirði lýsir yfir samstöðu með St. Jósefsspítala og lýsir yfir furðu sinni á því hvernig ríkisstjórnin, með heilbrigðisráðherra í fararbroddi hyggst þvínga starfsfólk til þátttöku einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu. Það er ömurlegt að sjá að þetta sé afurð núverandi ríkisstjórnarsamstarfs. Það sést greinilega hvernig stjórnarsáttmáli núverandi ríkisstjórnar nær hér enn einu marmiði sínu sem snýst um frekari einkavæðingu, en í stjórnarsáttmála segir einmitt að hvetja eigi til fjölbreyttari rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu.

Samtímis lýsir stjórn Vinstri grænna í Hafnarfirði yfir stuðningi við megininntak stjórnar Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði, en ólíkt félögum sínum í ríkisstjórn, er andstaða við einkavæðingu heilbrigðiskerfisins ríkari í Hafnarfirði en á stjórnarheilmilinu. Vinstri græn munu í engu láta sitt eftir liggja að styðja við spítalann, sem hefur verið hluti af farsælu Hafnfirsku samfélagi. Fyrirætlanir ráðherra eru í hróplegri andstöðu við það nýja Ísland sem eðlilegt er að stefna að í kjölfar hruns einkavæðingar og frjálshyggju.

Lesa meira
 

9.1.2009 : Ályktun vegan Gaza

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík fordæmir grimmilegar og gengdarlausar árásir Ísraelshers á íbúa herteknu svæðanna á Gaza. Dag og nótt ausa orustuflugvélar sprengjum sínum yfir svæðið og myrða börn og aðra saklausa, varnarlausa íbúa sem eiga sér engrar undankomu auðið. Nýlegar fréttir af  ógnarverkum Ísraela lýsa þvílíkri grimmd að öllum hlýtur að ofbjóða.  Þessum voðaverkum verður að linna.  

Stjórn VGR hvetur  almenning til að sniðganga Ísraelskar vörur í verslunum og  skorar á ríkisstjórn Íslands að slíta nú þegar stjórnmálasamstarfi við Ísraelsstjórn þar til hún lætur af hinu hryllilega framferði sínu gagnvart íbúum Gaza. Lesa meira

 

8.1.2009 : Stjórnarflokkarnir bera báðir ábyrgð á að Íslendingar eigi kost á góðri heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag!

Félagsfundur Vinstri grænna í Borgarbyggð, haldinn 7. janúar 2009, lýsir yfir áhyggjum vegna órökstuddra skipulagsbreytinga í heilbrigðisgeiranum. Fundurinn telur vafasamt að nokkurs staðar fáist umtalsverð hagræðing af breytingunum, en víða verði hún til óhagræðis. Það hefur lengi verið ljóst að flokkur heilbrigðisráðherra vill rústa núverandi kerfi heilbrigðisþjónustu fyrir alla, en hinn stjórnarflokkurinn hefur í orði kveðnu verið annarrar skoðunar. Báðir stjórnarflokkarnir hljóta þó að teljast jafn ábyrgir fyrir afleiðingum þessara breytinga.

Vinstri græn í Borgarbyggð mótmæla sérstaklega nýrri og aukinni skattlagningu á sjúklinga í stað þess að sækja fé með hærri sköttum á hátekjufólk.

Lesa meira
 
icesave

7.1.2009 : Yfirlýsing frá þingflokki VG - vegna mistaka ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Icesave-málinu og þeirrar ákvörðunar hennar að höfða ekki mál gegn Bretum

Þingflokkur Vinstri grænna lýsir fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni vegna alvarlegra og dýrkeyptra mistaka við meðferð Icesave-deilunnar, bæði í aðdraganda og síðar úrvinnslu málsins. Kaflaskil eru í málinu kl. 16 í dag, þegar frestur rennur út til að kæra þá ákvörðun breska fjármálaráðuneytisins að beita hryðjuverkalögum til að frysta íslenskar eignir í Bretlandi. Enn og aftur bregst ríkisstjórnin þeirri skyldu sinni að gæta þjóðarhagsmuna á fullnægjandi hátt með því að nýta ekki möguleika til málshöfðunar fyrir breskum dómstólum til að rétta hlut Íslendinga.

Lesa meira
 
saudarkrokur

7.1.2009 : Vinstri græn í Skagafirði mótmæla harðlega skipulagsbreytingum og niðurskurði í heilbrigðisþjónustu

Vinstri græn í Skagafirði lýsa miklum vonbrigðum með þær einhliða skipulagsbreytingar sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag. Samráð við sveitarfélög, starfsfólk og íbúa er ekkert og vinnubrögðin við skipulagsbreytingarnar forkastanlegar. Ekkert liggur fyrir um að hagræðing náist með því að sameina stjórnun heilbrigðismála Norðurlands undir  Sjúkrahúsið á Akureyri sem  nú þegar verður að bera út fólk vegna fjársveltis. Sameining sem þessi  setur þjónustustig heilbrigðismála í Skagafirði í algert uppnám og sérfræðiþekking í héraði er gerð að engu. Minna má á að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki , sem nú á að svifta sjálfstæði sínu ,hefur fengið sérstaka viðurkenningu fyrir góðan rekstur og þjónustu.

Með yfirlýsingum heilbrigðisráðherra í dag gerir hann lítið úr starfsfólki, sérfræðingum og íbúum þeirra svæða sem nú missa sjálfræðið yfir staðbundinni heilbrigðisþjónustu. Vandséð er að skipulagsbreytingarnar skili hagræðingu og hætta er á að fjármagn og sérfræðiþekking færist úr héraði og kippi þar með grundvelli undan heilbrigðisþjónustu við íbúa heilla héraða.

Lesa meira
 

6.1.2009 : Vinstri græn: Ísland og Evrópa

Vinstri græn boða til málþings næstkomandi laugardag undir heitinu Ísland og Evrópa á Háskólatorgi, HT 103, kl. 13 til 16. Sérstakur gestur málþingsins er Ågot Valle, þingmaður SV í Noregi og fyrrverandi varaformaður Nei til EU og mun í erindinu svara spurningunni Af hverju sögðu Norðmenn nei? Aðrir fyrirlesarar verða Stefán Már Stefánsson, prófessor með erindið Stjórnarskrá og Evrópusambandið, Þórólfur Matthíasson, prófessor flytur erindið Gjaldmiðillinn, fjármálastarfsemin og lífskjörin og Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar fjallar um Hvað skiptir mestu máli fyrir Íslendinga?

Málþinginu stýrir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna en á eftir hverju erindi verður gefinn kostur á spurningum auk þess sem pallborðsumræðu verð í lok fundar.

Málþingið er opið öllu áhugafólki um Evrópumál.

Lesa meira
 
hafmeyjan

5.1.2009 : Vinstri græn í útrás

Vinstrihreyfingin – grænt framboð boðar til stofnfundar svæðisfélags VG í Kaupmannahöfn og Suður Svíþjóð laugardaginn 24. janúar 2009 klukkan fjögur í Jónshúsi, Øster Voldgade 12 í Kaupmannahöfn. Á fundinum verður félagið formlega stofnað, kosið verður í stjórn auk þess sem Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og Drífa Snædal framkvæmdastýra flokksins ávarpa fundinn.

Nýjir félagar, gamlir félagar og tilvonandi félagar eru hjartanlega velkomnir.

Lesa meira
 

2.1.2009 : GLEÐILEGT ÁR!

Vinstrihreyfingin - grænt framboð óskar öllum landsmönnum gleðilegs ár og þakkar samstarf og stuðning á nýliðnu ári. Nýtt ár ber í skauti sér mörg verkefni sem hreyfingin mun ekki skorast undan að takast á við með kvenfrelsi, félagshyggju, umhverfisvernd og friðarstefnu að leiðarljósi. Við hlökkum til gróskumikils starfs og frjórra lausna á nýju ári.

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

30.12.2008 : Steingrímur: Ríkisstjórnin fordæmi fjöldamorð Ísraelsstjórnar

Steingrímur J. Sigfússon hefur óskað eftir fundi í Utanríkismálanefnd svo fljótt sem því verður við komið vegna ástandsins á Gasa og til að fara yfir stöðu mála í deilunni vegna Icesave-reikninganna og hvar málarekstur gegn Bretum er á vegi staddur.  

Hvað varðar fjöldamorðin á Gasa leggur Steingrímur til að svohljóðandi ályktun verði samþykkt í utanríkismálanefnd: 

 „Utanríkismálnefnd Alþingis samþykkir að beina þeim eindregnu tilmælum til ríkisstjórnarinnar að hún fordæmi skilyrðislaust ólögmætar hernaðaraðgerðir og fjöldamorð Ísraelstjórnar  á hinu hertekna Gasasvæði. Nefndin leggur til að ríkisstjórnin tilkynni ísraelskum stjórnvöldum að láti þau ekki tafarlaust af aðgerðum sínum og komi á vopnahléi verði stjórnmálasambandi við Ísraelsríki slitið.“

Lesa meira
 

19.12.2008 : Áherslur Vinstri grænna í skatta- og ríkisfjármálum

Fjárlagafrumvarpið sem nú er til umfjöllunar á Alþingi, frumvarp ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, mun hafa í för með sér gríðarlega erfiðleika í rekstri hins opinbera, ekki síst í velferðarþjónustunni. Frumvarpið byggir í allt of miklum mæli á flötum niðurskurði sem kemur verst við þá sem síst skyldi í samfélaginu. Vinna við fjárlagagerðina er fjarri því að uppfylla kröfur vandaðra og þingræðislegra vinnubragða og enn er óupplýst um mikilvægar grunnforsendur frumvarpsins.

Við slíkar aðstæður og þegar undirstöðugögn vantar er erfitt að fjalla um málið, en megináherslur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs eru skýrar: Við krefjumst heildstæðrar og vandaðrar áætlunar um ríkisbúskapinn, sanngjarnrar tekjuöflunar, sparnaðar þar sem við verður komið, að almannatryggingakerfið sé varið fyrir niðurskurði og dregið úr honum eins og kostur er í heilbrigðis- og menntamálum. Tillögur VG í þessa veru eru meðal annars: Lesa meira

 

19.12.2008 : GLEÐILEG JÓL!

Vinstrihreyfingin – grænt framboð óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum samstarfið á árinu sem senn líður og hlökkum til framhaldsins. Það er mikil barátta framundan sem krefst krafta allra þeirra sem vilja jöfnuð, umhverfisvernd, kvenfrelsi og frið. Þeirri baráttu höldum við áfram á nýju ári og óskum okkur góðs lýðræðislegs árangurs.

Skrifstofa Vinstri grænna verður lokuð fram yfir áramót en hægt er að hafa samband á netfangi vg@vg.is. Lesa meira

 
leikskoli

17.12.2008 : Samþykkt að jafna tækifæri barna til frístundaiðkunar

Á fundi íþrótta- og tómstundaráðs var samþykkt tillaga fulltrúa Vinstri grænna um að breyta reglum um frístundakortið í þá veru að foreldrar gætu nýtt það til að greiða fyrir frístundaheimili ef þau svo kjósa.

Í frístundaheimilum ÍTR eru börn á aldrinum 6-9 ára kynnt fyrir fjölbreyttu og uppbyggjandi frístundastarfi, auk þess sem þar er markvisst unnið að því að þroska félags- og samskiptafærni barna. Starfið er faglegt og metnaðarfull og uppfyllir öll þau skilyrði sem sett hafa verið fyrir notkun kortsins frá upphafi. Á fyrstu árum í grunnskóla taka börn út mikinn þroska, sem m.a. felst í að þróa með sér áhugamál til framtíðar og skipta frístundaheimilin þá sköpum.

Megintilgangur frístundakortanna er að auðvelda börnum og unglingum í Reykjavík að sinna uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag foreldra. Vinstri græn hafa alla tíð lagt áherslu á að til að frístundakortin virki sem raunverulegt jöfnunartæki, verði frístundaheimilin að vera þar valkostur. Nú, þegar efnahagsástandið krefst endurskoðunar á útgjöldum margra fjölskyldna, er brýnna en nokkru sinni að foreldrar hafi fullt frelsi til að ráðstafa frístundakortinu í þær tómstundir sem þeir telja að nýtist börnum sínum best.

Það er því fagnaðarefni að tillagan hafi loksins verið samþykkt.

Lesa meira
 

17.12.2008 :

Kæri félagi. Nú ætlum við í jólafrí og því verður ekki „opið hús“ í Suðurgötunni fyrr en eftir áramót.

Við sendum þér og fjölskyldu þinni innilegar óskir um gleðilega jólahátíð,  þökkum þér samstarfið  og vonumst til að sjá þig á nýju ári.

fyrir hönd stjórnar VGR,

Sjöfn Ingólfsdóttir formaður

Lesa meira
 

17.12.2008 : Hópastarf Vinstri grænna

Innan VG eru nú starfandi hópar um landbúnaðarmál undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Jóns Bjarnasonar, velferðarhópur undir stjórn Katrínar, sjávarútvegshópur undir stjórn Atla Gíslasonar og hópur um aðgerðaráætlun til vors undir stjórn Héðins Björnssonar auk þess sem kvenfrelsishópur sem Sóley Tómasdóttir stýrir er að fara af stað og menntamálahópur undir stjórn Auðar Lilju Erlingsdóttur.

Á stjórnarfundi á föstudag var auk þess ákveðið að koma af stað hópum um atvinnumál, nýsköpunarmál, húsnæðismál og umhverfismál en meginviðfangsefni hópanna verður eðlilega að skoða málaflokkinn út frá efnahagsástandinu og þeim áherslum sem nú er rætt um í stjórnmálum. Nú er auglýst eftir hópstjórum og áhugasömu fólki til að taka þátt í þessu hópastarfi. Skrifstofan mun halda utan um skráningar í hópana og netfangalista þeim tengdum og má skrá sig á veffanginu vg@vg.is og í síma 552 8872. Allir ættu að geta tekið þátt hvar á landinu sem er með aðstoð tækninnar. Lesa meira

 

16.12.2008 : Hópur um aðgeraðáætlun

Á flokksráðsfundi Vinstri grænna þarsíðustu helgi kom fram mikill áhugi á að ræða næstu skref baráttunnar og búa til aðgerðaráætlun til vorsins með það að leiðarljósi að til kosninga komi í vor. Héðinn Björnsson reið á vaðið og boðar til fundar um þetta efni í dag, þriðjudaginn 16. desember frá kl. 16-18 á Suðurgötu 3. Allir félagar eru velkomnir, nokkrir hafa skráð sig á póstlista af þessu tilefni og fá sendar upplýsingar um framvindu mála eftir fundinn.

Lesa meira
 
kvennamerkid_med_hnefa

15.12.2008 : Kvennakvöld Vinstri grænna

Annað kvöld, þriðjudag klukkan átta boða Vinstri grænar konur til kvennakvölds í Suðurgötu 3 í Reykjavík. Allar konur, háar sem lágar eru hjartanlega velkomnar til að eiga góða stund með tónlist og upplestri, kakó og piparkökum. Guðrún Eva Mínervudóttir og Halla Gunnarsdóttir koma og lesa upp úr nýútgefnum bókum sínum og taka þátt í umræðum um efni bókanna. Þær sem hafa mætt á kvennasmiðjur undanfarinna ára vita að kvennakraftur Vinstri grænna er einstakur, skemmtilegur og ómissandi í baráttunni.

Fjölkvennum!

Lesa meira
 
kvennamerkid

11.12.2008 : Kvenfrelsishópur Vinstri grænna

Þá er kominn tími til að endurvekja kvenfrelsishóp Vinstri grænna til starfa fyrir næsta landsfund. Þau sem eru áhugasöm, endilega skráið ykkur á skrifstofunni hjá vg@vg.is. Lesa meira
 
belja

11.12.2008 : Landbúnaðarhópur Vinstri grænna

Landbúnaðarhópur Vg hélt fyrsta fund sinn í Búðardal í síðustu viku. Þeir sem er áhugasamir um að skrá sig í hópinn og taka þátt í málefnastarfi eru beðnir um að skrá sig í hópinn hjá Huginn Frey Þorsteinssyni (huginn@hi.is) eða Katrínu Jakobsdóttur (katrinja@althingi.is).

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

9.12.2008 : Bretar hefðu aldrei beitt hryðjuverkalögum gegn stórri þjóð

Í lok nóvember flutti Steingrímur J. Sigfússon ræðu fyrir stjórnarnefnd Evrópuráðsþingsins en í henna sitja landsdeildir, formenn flokkahópa og formenn málefnanefnda þingsins. Tilefni ræðunnar var aðgerðir breta gegn Íslendingum í Icesave-deilunni og skýrði Steingrímur málstað Íslands. Ræðan er svohljóðandi:

Lesa meira
 

9.12.2008 : Eldri vinstri græn koma saman á morgun

EVG: Þriðji fundur vetrarins verður miðvikudaginn 10. desember nk. kl. 20:00 í Stangarhyl 4, húsi eldri borgara í Reykjavík.

Dagskráin verður þessi:

  1. Annes og eyjar fyrir Austfjörðum   Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur bregður upp myndum frá óvæntu sjónarhorni og kryddar með frásögnum úr fortíð og nútíð.
  2. Róttæk samfélagsrýni Ármann Jakobsson rithöfundur kynnir stuttlega bókina „Múrbrot“ sem hefur að geyma greinar úr vefritinu Múrinn.
  3. Hvað gerist að tjaldabaki í brúðuleikhúsi? Hallveig Thorlacius brúðuleikari spjallar um heim þeirra sem halda í spottana á þessum leiksýningum.
  4. Nálgast jóla lífsglöð læti“ Lena Margrét Rist og forsöngvarar úr sal leiða fjöldasöng með lögum sem hæfa jólaföstu.     

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið. – Það er tilvalið að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir. – Fyrsti fundur á nýju ári verður miðvikudagskvöldið 4. febrúar 2009.   

Lesa meira
 

7.12.2008 : Góðum fundi lokið

Fundi flokksráðs Vinstri grænna er nýlokið og sóttu hann yfir 120 félagar. Mikil stemmning var á fundinum, tekist var á um áherslur en skjal stjórnar VG um endurmótun samfélagsins var samþykkt efnislega einróma og vísað til áframhaldandi úrvinnslu í grasrót flokksins - sjá hér

Ályktun um sveitastjórnarmál var samþykkt samhljóða en hún er svo: 

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs haldinn 7. desember 2008 á Grand hótel telur það vera sameiginlegt verkefni hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, að standa vörð um hag almennings. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í endurmótun samfélagsins og mikilvægi þeirra við uppbyggingu og endurmat er ótvírætt í samstarfi við íbúa, félagasamtök og hagsmunaaðila. Þau standa íbúunum næst og sinna verkefnum á sviði velferðar og menntunar. Sérstaklega þarf að styrkja og efla sveitarfélögin við þau skilyrði sem nú eru uppi.

Mikilvægt er að löggjafinn tryggi Lánasjóði sveitarfélaga og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga fé til að lána sveitarfélögum til rekstrar við þær sérstöku aðstæður sem nú ríkja. Þó verði jafnframt tryggt að rekstur sveitarfélaga verði lagaður að þeim aðstæðum sem skapast hafa þannig að Lánasjóðurinn komist ekki í þrot.

Það er skýlaus krafa sveitarstjórnarráðs Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að við mótun efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar verði hagsmunir sveitarfélaganna hafðir í forgangi.

Lesa meira
 
081207 flokksráð

7.12.2008 : Flokksráðsfundur settur - endurreisn kynnt

Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksráðs Vinstri grænna setti auka flokksráðsfund nú fyrir stundu. Fyrir fundinum liggja tillögur stjórnar Vinstri grænna um endurreisn í íslenskum þjóðarbúskap og framþróun samfélagsins. Hér má sjá útdrátt úr þeim tillögum sem er til umfjöllunnar hjá Vinstri grænum í dag

Lesa meira
 

4.12.2008 : Dagskrá flokksráðsfundar á sunnudaginn

Vinstri græn boða til auka flokksráðsfundar á sunnudaginn kemur á Grand hóteli í Reykjavík klukkan 14. Að vanda er fundurinn opinn öllum, félagar eru þó beðnir að láta skrifstofu vita af mætingu í síma 552 8872. Dagksrá fundarins er svo:

14.00 - Katrín Jakobsdóttir formaður flokksráðs setur fundinn og kynnir það efni sem fyrir liggur

14.15 - Steingrímur J. Sigfússon fer yfir aðgerðaáætlun VG um efnahagsmál

14.45 - Almennar umræður

16.00 - Kaffihlé

16.15 - Almennar umræður halda áfram

18.00 - Afgreiðsla mála

Lesa meira
 
torleifur_gunnlaugsson

3.12.2008 : Stórhættuleg tillaga að borgin leigi og framleigi

Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi segir það vel koma til greina að Félagsbústaðir kaupi íbúðir og leigja þær svo áfram til að leggja sitt af mörkum í því ástandi sem fasteignamarkaðurinn er núna. Þessi lausn er mun betri til langs tíma fyrir alla, leigjendur, íbúðaeigendur sem vilja losna við húsnæði og ekki síst skattgreiðendur. Þetta er mun ódýrari lausn fyrir borgina heldur en að leigja íbúðir og framleigja þær svo aftur innan félagslega kerfisins.

Lesa meira
 
vg_mos_adalfundur_2008

1.12.2008 : Aðalfundur VG í Mosfellsbæ

Aðalfundur var haldinn í svæðisfélagi Vinstri grænna í Mosfellsbæ 29. nóvember síðastliðinn. Ögmundur Jónasson, og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir voru sérstakir gestir og hédu bæði skemmtilega tölu á fundinum. Stjórnin var endurkjörin en í henni sitja Ólafur Gunnarsson, formaður, Einar Hólm Ólafsson, gjaldkeri, Jóhanna B. Magnúsdóttir, ritari, Högni Snær Hauksson og Bryndís Brynjarsdóttir. Varamenn voru kjörnir þau Gísli Ársæll Snorrason og Alma Lísa Jóhannsdóttir.

Lesa meira
 

1.12.2008 : Svara krafist um Icesave

Svohljóðandi bréf var sent á föstudaginn síðasta til forsætisráðherra, utanríkisráðherra, viðskiptaráðherra, formanns og nefndarmanna í allsherjarnefnd, efnahags- og skattanefnd, félags- og tryggingamálanefnd, utanríkismálanefnd og viðskiptanefnd Alþingis.  Bréfið undirrita fyrir hönd þingflokks VG, Ögmundur, Atli og Jón.

"Fram hefur komið í fréttum að Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra hafi á fundi með fjármálaráðherrum í Evrópu hinn 4. nóvember 2008 fengið afar kaldar móttökur vegna afstöðu ríkisstjórnarinnar til svonefndra Icesave-reikninga í Bretlandi og Hollandi. Þar mun jafnframt hafa verið ákveðið að skipa fimm manna nefnd sem miðlaði málum í deilunni sem hafi svo boðað fund til að birta niðurstöðu sína 7. nóvember 2008. Af því hafi þó ekki orðið þar sem niðurstöðurnar voru taldar með öllu óaðgengilegar fyrir Ísland. Þann 13. nóvember 2008 lýsti Árni M. Mathiesen því yfir að skilyrði Evrópuríkja (þar sem fulltrúar Breta, Þjóðverja, Hollendinga, Frakka og Austurríkismanna hafi farið fremstir í flokki, dyggilega studdir af Evrópusambandinu í heild sinni) væru með öllu óaðgengileg. Undir það tók forsætisráðherra. Fyrir liggur að afgreiðsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á lánafyrirgreiðslu til Íslands tafðist vegna þessarar deilu. Ríkisstjórnin gekk um síðir að kröfum um að ábyrgjast innistæður Icesave-reikninganna og þá fyrst gaf Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn grænt ljós á fyrirgreiðslu."

Lesa meira
 
gallup-flokkar-i-stjorn

1.12.2008 : 56,7% vilja sjá VG í nýrri ríkisstjórn

Samkvæmt könnun sem vefritið Smugan lét gera horfa kjósendur mjög á vinstristjórn. Fleiri nefna bæði Samfylkinguna og Vinstrihreyfinguna - grænt framboð heldur en Sjálfstæðisflokk þegar spurt er hvaða flokka vilt þú sjá í næstu ríkisstjórn. Könnunina má nálgast hér.

Lesa meira
 

28.11.2008 : Boðað til auka flokksráðsfundar

Kæri félagi,

Hér með er boðað til auka flokksráðsfundar 7. desember næstkomandi að Grand hóteli í Reykjavík. Hefst fundurinn klukkan 14 og er áætlað að honum ljúki um sjöleytið.

Ástæða fundarins er að sjálfsögðu sú staða sem upp er komin í þjóðarbúskapnum og viðbrögð Vinstri grænna við henni. Dagskráin er einföld; lögð verður fram áætlun VG um endurreisn þjóðarbúsins til kynningar, umræðu og afgreiðslu.

Þá þarf hreyfingin að vera undir allt búin næstu mánuði og því er nauðsynlegt að stilla saman strengi. Fundurinn er að vanda opinn öllum félögum en nauðsynlegt er að láta vita af mætingu á netfangi vg@vg.is eða í síma 552 8872.

Atkvæðisrétt á flokksráðsfundum eiga 30 landsfundakjörnir fulltrúar í flokksráði, allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaþingmenn, formaður Ungra Vinstri Grænna, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmisráða.



Lesa meira
 

27.11.2008 : Að loknum aðalfundi VG í Árborg

Vinstri græn í Árborg héldu aðalfund sinn í gærkveldi, 26. nóvember. Sædís Ósk var endurkjörin formaður félagsins en auk hennar sitja í stjórn Margrét Magnúsdóttir, Valgeir Bjarnason, Jón Hjartarson og Sigurður Ingi Andrésson. Á fundinum voru samþykktar þrjár álytkanir; um kosningar, um myntbandalag Evrópu og um atvinnumál. Ályktanirnar eru svohljóðandi:

Lesa meira
 
Ögmundur Jónasson

27.11.2008 : Styðjum Ögmund í kvöld!

Ögmundur mætir í kvöld Guðlaugi Þór heilbrigðisráðherra í kappræðum. Það má reikna með fjörugum fundi og smölun á báða bóga. Fundurinn er á vegum Varðar, fulltrúafélags sjálfstæðismanna í Reykjavík og er haldinn í Öskju, húsnæði náttúrufræðideildar Háskóla Íslands klukkan 20.

Það má reikna með að efnahagsástandið, IMF og Evrópusambandið beri á góma en einnig einkavæðing heilbrigðiskerfisins og velferðarmálin almennt – því eins og Sjálfstæðisflokkurinn sagði fyrir síðustu kosningar: „Þegar öllu er á botninn hvolft er traust efnahagsstjórn stærsta velferðarmálið“

Lesa meira
 

27.11.2008 : Gríðarlegur stuðningur á félagsfundi

Á þriðjudagskvöld var haldinn fjölmennur fundur á vegum VGR en frummælendur voru Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir. Eins og vænta mátti voru efnahagsmálin ofarlega á baugi og staða atvinnuveganna, alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og stjórnmálaumræða síðustu daga og vikna. Nítján kröftugar ræður voru fluttar eftir mál frummælenda og kom fram gríðarlegur stuðningur við stjórn og kjörna fulltrúa Vinstri grænna.

Lesa meira
 

26.11.2008 : ÖGMUNDUR OG GUÐLAUGUR ÞÓR Í KAPPRÆÐUM

Kappræður verða milli stjórnmálamannanna Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra og Ögmundar Jónassonar, þingflokksformanns VG, næstkomandi fimmtudagskvöld í Öskju, húsnæði náttúrufræðideildar Háskóla Íslands og hefst fundurinn kl.20

Þau mál verða tekin fyrir sem mest eru í umræðunni um þessar mundir. Til að mynda Evrópusambandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Icesave.

Fundurinn er haldinn á vegum Varðar, fulltrúafélags sjálfstæðismanna í Reykjavík.

Lesa meira
 

25.11.2008 : Dagskrá næstu tvo daga

Í kvöld eru opnir fundir í Reykjavík og á Ísafirði auk þess sem Ung vinstri græn á Suðurlandi halda sinn aðalfund. Á morgun eru svo aðalfundir í svæðisfélögum Árborgar og Mosfellsbæ. Dagskráin er sem hér segir: Lesa meira
 

24.11.2008 : Morgunverðarfundur í Árborg

Á laugardaginn stóð Vg í Árborg fyrir morgunverðarfundi. Fundurinn var vel sóttur og stóð í rúma tvo klukkutíma. Sérstakur gestur fundarins var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir en hún flutti gott ávarp þar sem hún ræddi m.a. um lýðræðið og þann lýðræðishalla sem einkenndi nútímann með velþóknun ríkjandi stjórnvalda. Hún ræddi um niðurlægingu Alþings, þessu aldagamla flaggskipi lýðræðis og löggjafar í veröldinni, þegar það lét yfirgang framkvæmdavaldsins neyða sig til þess að samþykkja lög í andstöðu við stjórnarskrána. Í máli sínu lagði hún áherslu á að það væri ekki einasta efnahagskreppan sem þyrfti að glíma við heldur samtímis að takast á við endurreisn lýðræðisins. Í raun stjórnar framkvæmdavaldið í dag með tilskipunum og notar Alþingi Íslendinga til að afgreiða tilskipanirnar til að reyna að blekkja framgangsmátann. Guðfríður Lilja kom víðar við og var gerður mjög góður rómur að máli hennar.

Lesa meira
 
althingi

23.11.2008 : Vantraust á ríkisstjórnina tekið fyrir

Mánudaginn 24. nóvember fer fram umræða um tillögu um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar að frumkvæði Vinstri grænna. Umræðan hefst klukkan hálf tvö og lýkur um hálf sjö með atkvæðagreiðslu. Félagar í Vinstri grænum eru hvattir til að fylgjast vel með umræðunum ýmist af þingpöllunum eða í beinni útsendingu sjónvarps og útvarps. Þá má minna á að alla virka daga nema föstudaga er opið hús að Suðurgötu 3 milli klukkan fjögur og sex.

Lesa meira
 
kvennamerkid

21.11.2008 : Gratulerer: Norðmenn gera kaup á vændi refsivert

Norska þingið samþykkti í gærkveldi að gera kaup á vændi refsiverð. Af því tilefni sendu Vinstri græn systurflokki sínum í Noregi svohljóðandi skeyti:

Vensterparitet – de grönne i Island önsker dere hjertelig til lykke med den etappe å gjöre kjöb av prostitusjon ulovlig. Vi har lenge kjempet for en tilsvarende lovgivning her i Island, men har ikke lyktes hittil, deres seier er en oppmuntring for oss til å forstsette vår kamp. Likestilling blir ikke oppnådd utan gjensidig respekt. Ett viktigt skridt i den retning er å forby kjöb av kvinners kropper og plassere ansvaret der det hörer hjemme.

Lesa meira
 

21.11.2008 : Stjórnarandstaðan lýsir vantrausti á ríkisstjórnina

Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa, að frumkvæði Vinstri grænna, lagt fram vantraust á ríkisstjórnina. Tillagan hljóðar svo: Alþingi ályktar að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. Alþingi lýsir þeim vilja sínum að þing verði rofið fyrir 31. desember og efnt verði til þingkosninga í framhaldinu. Vantrausttillaga er lögð fram sem þingsályktunartillaga og segir í þingsköpum "Umræða má eigi fara fram fyrr en í fyrsta lagi tveimur nóttum eftir að tillögunni var útbýtt". Vantrausttillaga er þó aðeins rædd við eina umræðu ólíkt öðrum þingskapartillögum. Það má því búast við að tillagan verði rædd á þingfundi á mánudaginn. Ennfremur segir í þingsköpum að umræðum um vantrausttillögu skuli útvarpað ef þingflokkur krefst þess.

Lesa meira
 

20.11.2008 : Smugan í loftið

Vefritið Smugan var opnað 19. nóvember en hún er vettvangur opinna skoðanaskipta og frétta í anda félagshyggju, kvenfrelsis, umhverfisverndar og friðarstefnu óháð markaðsöflunum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð tók frumkvæði að stofnun vefritsins en það er rekið sjálfstætt undir stjórn Bjargar Evu Erlendsdóttur og af fyrirtækinu Útgáfufélagið Smugan ehf. Eigendur félagsins eru auk Vinstri grænna fjöldi einstaklinga. Tilgangur Smugunnar er að leggja sitt af mörkum til lýðræðislegrar umræðu með því að veita þeim opinn vettvang sem ekki hafa átt greiðan aðgang að fjölmiðlum hingað til. Smugan vill vera róttækur málsvari fólksins í landinu þegar góð ráð eru dýr.

Lesa meira
 
atli_gislason

18.11.2008 : Réttarfarslegt slys í uppsiglingu

Vegna umræðu síðustu daga og fjölda áskoranna er rétt að benda á minnihlutaálit sem Atli Gíslason vann vegna nýsamþykktra laga um fjármálafyrirtæki. Varar Atli við að frumvarpið standist ekki stjórnarskrá og færir hann rök fyrir því í álitinu og tekur svo djúpt í árinni að telja frumvarpið „réttarfarslegt slys í uppsiglingu“.

Fyrir þau sem vilja kynna sér málið má nálgast lögin hér

Fyrra minnihlutaálitið má nálgast hér

Seinna minnihlutaálitið má nálgast hér

Lesa meira
 

18.11.2008 : Frumvarp VG lagt fram á Alþingi: Verðtryggð lán beri aldrei hærri vexti en 2%

Ögmundur Jónasson og aðrir þingmenn VG hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum þess efnis að verðtryggð lán beri aldrei hærri vexti en nemur 2%. Með framlagningu frumvarpsins er ríkisstjórnin hvött til að taka stærri og róttækari skref til að létta greiðslubyrði fólks heldur en gert er í þeim tillögum til greiðslujöfnunar sem lagðar voru fram á Alþingi í gær. Við þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í samfélaginu, óðaverðbólga og háir vextir, er það brýnt réttlætismál og raunverulegar kjarabætur fyrir lántakendur ef frumvarp VG nær fram að ganga.

Lesa meira
 

17.11.2008 : Allt upp á borðið!

Steingrímur J. Sigfússon óskaði í dag eftir fundi í utanríkismálanefnd og krefst þess, með vísan til 24. gr. laga um þingsköp Alþingis, að eftirgreind skjöl verði lögð fram og gerð opinber:

  1. Öll gögn vegna umsókar um lán til IMF
  2. Samkomulag við Hollendinga sem fjármálaráðherra undirritaði í Washington vegna Ice-save deilunnar.
  3. Skjöl vegna fundar fjármálaráðherra EES/ESB í Brussel 4. nóvember og skjöl sem tengjast vinnu embættismanna í framhaldinu undir forustu formennskulandsins Frakka.
  4. Bréf sem fjármálaráðherra ritaði 6. eða 7. nóvember þar sem Ísland sagði sig frá því vinnuferli sem ákveðið var í lok áður nefnds fjármálaráðherrafundar (sjá tölulið 3)
  5. Lagaálit, ef einhver eru til, hjá íslenskum stjórnvöldum vegna Ice-save deilunnar.
  6. Fundargerð, minnisblöð eða nótur frá fundi Björgvins G. Sigurðssonar og fjármálaráðherra Breta Alister Darlings 2. september sl.
  7. Öll önnur skjöl sem til eru hjá ráðuneytum og opinberum stofnunum, hvort sem þau eru bundin trúnaði eða ekki, og þessum ofangreindu málum og samskiptum við aðra um þau tengjast.
Lesa meira
 
New_Image

17.11.2008 : Ung Vinstri græn áberandi í mótmælunum

Mótmælin gegn stjórnvöldum magnast hvern laugardag og söfnuðust þúsundir manna saman á Austurvelli laugardaginn var. Að vanda voru Ung vinstri græn áberandi í mótmælunum, merki þeirra runnu út og skiltin vöktu athygli. Eftir mótmælin þáðu fleiri hundruð manns kaffi og vöfflur í húsnæði flokksins í Suðurgötu 3, en það er orðinn fastur liður að félagar komi í Suðurgötuna og ræði málin eftir mótmælin.

Lesa meira
 
fareyski_faninn

14.11.2008 : Kvøða flutt í Føroyum - Steingrímur J. Sigfússon

Æraði løgtingsformaður, æraðu løgtingsmenn, góðu vinir okkara í Føroyum, brøður okkara og systur

Eg skal bera tykkum eina heilsu frá íslendska Altinginum og tí íslendsku tjóðini. Tað er mær ein sonn fragd at vitja í Føroyum og ikki minst at vitja Føroya løgting, bróðurting íslendska Altingisins.

Høvuðsendamálið við vitjanini er at bera tykkum tøkk, eina stóra tøkk, frá íslendsku tjóðini, frá forsetanum, Altinginum, ríkisstjórnini og øllum íslendingum, fyri tær fjálgu kenslur og tann stórsinnaða atburð, ið tit hava víst. Íslendska tjóðin hámetur slíkt. Tað fløvaði og kveikti ljós hesa myrku tíðina at frætta, at føroyingar ætlaðu at rætta okkum eina hjálpandi hond í tí truplu støðu, vit eru komin í, og at tað varð gjørt á so stórslignan hátt. Lesa meira

 
fareyski_faninn

14.11.2008 : Ræða Steingríms á færeyska þinginu

Í dag, föstudag, flytur Steingrímur J. Sigfússon ræðu á færeyska þinginu og nýtir að sjálfsögðu tækifærið til að þakka stuðning Færeyinga við okkur. Ræðan fylgir hér á íslensku og færeysku:

Hæstvirtur formaður færeyska lögþingsins, háttvirtir lögþingsmenn, kæru vinir í Færeyjum, bræður og systur.

Ég flyt ykkur kveðjur frá Alþingi Íslendinga og íslensku þjóðinni. Það er mér sérstakt ánægjuefni að vera hér í Færeyjum og ekki síst að heimsækja færeyska lögþingið sem sannarlega má kalla systurstofnun Alþingis Íslendinga.

Lesa meira
 

13.11.2008 : Ályktun Vg á Akureyri um loftrýmiseftirlit Breta

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri átelur harðlega að ríkisstjórn Íslands skuli ekki skilyrðislaust hafna fyrirhuguðu loftrýmiseftirliti Bretlands yfir Íslandi. Slíkt loftrýmiseftirlit er ekki nauðsynlegt í ljósi þess að engar hernaðarhættur ógna Íslandi sem og er það algerlega óverjandi að í núverandi stöðu borgi íslenskir skattgreiðendur Bretum fyrir flug herflugvéla yfir Íslandi. Ríkisstjórn Bretlands hefur nú þegar  stórskaðað íslenska hagsmuni með því að beita hryðjuverkalöggjöf gagnvart Íslendingum og krefjast svo að íslenskur almenningur taki á sér skuldarbyrðar langt umfram þær ábyrgðir sem kveðið er á um í evrópskri löggjöf. Það er svo ástæða til að árétta vegna orða utanríkisráðherra þess efnis að hann hafi ákveðið að „leggja málið í hendur“ Bretum að það er ráðherrans að ákveða hvort hér sé loftrýmiseftirlit eða ekki.

Lesa meira
 

13.11.2008 : Meginstefna þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs varðandi málefni nýju ríkisbankanna

Nú þegar þrír nýir bankar í eigu ríkisins hefja störf og þeim verða skipuð varanleg bankaráð með fulltrúum m.a. tilnefndum af þingflokki Vinstri grænna leggur þingflokkurinn sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði:

Lesa meira
 
IMG_4380

12.11.2008 : Góður fundur í Vestmannaeyjum

Mánudaginn 10. nóv. boðaði Vinstrihreyfingin – grænt framboð til opins fundar á kaffi Kró Vestmannaeyjum. Fundurinn var haldinn undir yfirskriftinni Fortíð –Nútíð – Framtíð og var fjölsóttur. Frummælendur voru Steingrímur J. Sigfússon formaður VG, Atli Gíslason þingmaður í Suðurkjördæmi og Aldís Gunnarsdóttir varabæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum. Heiða (Ragnheiður Eiríksdóttir) varaþingmaður tók og lagið fyrir fundarmenn.

Lesa meira
 
Katrín jakobsdóttir

11.11.2008 : Umræða þýðir ekki sjálfkrafa kúvendingu

Katrín Jakobsdóttir er í forsvari fyrir Evrópuhóp Vinstri grænna sem hélt á dögunum Evrópusmiðju, hún segir: „Á Evrópusmiðjuna mættu margir sem höfðu áhuga á að koma sínum sjónarmiðum áfram og það er okkur sem flokki mjög hollt að skoða evrópumálin út frá ýmsum sjónarhornum rétt eins og öll önnur mál. Aðild að ESB er mjög stór spurning og eitthvað sem ekki er hlaupið í í flaustri í miðri efnahagslægð en hins vega hafa félagar okkar gjarnan viljað ræða evrópumálin og meta þau út frá núverandi aðstæðum. Stefna flokksins er hins vegar óbreytt þó fjölmiðlar hafi viljað leggja mikla merkingu í umræðuna. Eðli Evrópusambandsins er að vera alþjóðleg viðskiptablokk sem útilokar um leið þá sem standa utan við sambandið. Við höfum verið mjög gagnrýnin á slíkar blokkir og bent á að sambandið hefur miðast mjög við þarfir fjármagnsins. Það er kallað eftir umræðu um Evrópusambandið og að sjálfsögðu erum við til í þá umræðu og hyggjumst taka hana frá öllum sjónarmiðum.“

Lesa meira
 

11.11.2008 : Tillögur VG í Efnahagsmálum í gegnum tíðina

Mikil spurn hefur verið eftir tillögum Vinstri grænna í efnahagsmálum síðustu árin og var ráðist í það verk að safna saman tillögum og greinum frá árinu 2001. Í yfirlitinu sést að þingflokkur Vinstri grænna hefur verið ötull við að leggja til úrbætur á viðskiptaumhverfinu og eftirlitsstofnunum síðustu árin.

Lesa meira
 
stefnumot_vid_byggingamenn

7.11.2008 : Stefnumót við Byggingamenn

Fulltrúum Vinstri grænna var boðið að halda fund með Meistarasambandi byggingamanna í morgun. Góð mæting var á fundinum og margar hugmyndir komu upp til að bregðast við því alvarlega ástandi sem er í byggingariðnaðinum. Iðnaðurinn velti 256 milljörðum á síðasta ári og innan geirans starfa 16.000 manns.

Meðal þeirra hugmynda sem komu fram á fundinum er að rýmka reglur um sjálfstæða atvinnurekendur þegar þeir verða atvinnulausir og innkomu þeirra inn í starfið aftur, sömuleiðis að iðnnemar fái rétt til atvinnuleysisbóta ef þeir missa vinnuna. Á fundinum voru bæði þingmenn frá Vinstri grænum og borgarfulltrúar og var sérstaklega fjallað um ábyrgð sveitastjórna og möguleika þeirra til að fara af fullu afli í viðhaldsverkefni og aðrar mannaflsfrekar endurbætur. Þá er mikið verk enn óunnið til að gera opinberar byggingar aðgengilegar fyrir alla. Hörð gagnrýni kom fram á ríkisstjórnina og stjórn seðlabankans fyrir að hækka stýrivexti og þrengja þannig að atvinnurekstri.

Mikil ánægja var með fundinn á báða bóga og borgarfulltrúar og þingmenn fengu mikið af góðum ráðum í veganesti í hinum erfiðu verkefnum framundan.

Lesa meira
 
UVG_logo

7.11.2008 : Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu halda fjögur nýliðakvöld

Vilt þú hafa áhrif á samfélagið? Ef svarið er já, þá eru Ung Vinstri Græn vettvangur fyrir þig. Komdu á nýliðakvöld Ungra Vinstri Grænna á höfuðborgarsvæðinu (UVG-H) sem haldin verða í fjórum sveitarfélögum í nóvember. Ung vinstri græn teljast þau sem eru félagar í Vinstri grænum og eru 30 ára eða yngri.

1. Hafnarfjörður: Þriðjudaginn 11. nóvember kl. 20 á Súfistanum.

2. Kópavogur: Fimmtudaginn 13. nóvember kl. 21 í Hamraborg 1-3.

3. Mosfellsbær: Þriðjudaginn 18. nóvember kl. 20 á Draumakaffi.

4. Reykjavík: Fimmtudaginn 20. nóvember kl. 20 í Friðarhúsinu (á horni Snorrabrautar og Njálsgötu).

 

Öll velkomin!

Lesa meira
 

6.11.2008 : VG krefst launajöfnunar og afnáms eftirlaunalaga

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lagði í dag fram frumvarp á Alþingi sem afnemur öll sérákvæði um eftirlaun forseta, ráðherra, þingmanna og hæstaréttardómara frá og með 1. janúar næstkomandi. Með frumvarpinu er þessum hópi gert að greiða iðgjöld til lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og njóta frá og með þeim degi réttinda samkvæmt reglum A-deildar LSR. Í frumvarpinu er einnig lagt til að allar launagreiðslur til þessa hóps umfram 450 þúsund krónur skerðist um 20% í átt til launajöfnunar í landinu á erfiðum tímum.

Lesa meira
 

6.11.2008 : Nýliðakvöld Vinstri grænna

Mikil fjölgun hefur verið í hreyfingunni síðustu vikur og gríðarlegur áhugi á þátttöku í starfi Vinstri grænna. Af því tilefni er boðað til nýliðakvölds föstudaginn 14. nóvember næstkomandi þar sem nýjir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Dagksrá verður auglýst nánar síðar en eitt er víst að dagskráin verður létt og veitingarnar sömuleiðis.

Lesa meira
 

5.11.2008 : Dagskrá Eldri vinstri grænna í kvöld

Í kvöld, miðvikudag klukkan átta, verður haldinn annar fundur vetrarins í húsi eldri borgara, Stangarhyl 4 í Reykjavík

Dagskráin er fjölbreytt að vanda:

1. „Oft var þörf ?“ ––  Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrv. formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og nýkjörin formaður VG í Reykjavík, segir stuttlega frá því sem er á döfinni hjá félaginu. (Hún stýrir einnig fundi í fjarveru Guðrúnar Hallgrímsdóttur).              

2.  „Óábyrgir þankar um efnahagsmál“  –– Pétur Gunnarsson rithöfundur veltir fyrir sér spurningum á borð við: „Hvað ef vinnan hverfur? Böl eða blessun?“ *)

3.  Þín innsta þrá“  ––  Ingibjörg G. Guðmundsdóttir söngkona kemur í heimsókn með gítarinn og spjallar milli laga um þá gömlu góðu daga þegar hljómsveitin „B.G. og Ingibjörg“ gerðu garðinn frægan vestur á Ísafirði.        

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið. – Það er tilvalið að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.    Næsti fundur verður svo miðvikudagskvöldið 10. desember.   

Lesa meira
 
PB014775

4.11.2008 : Suðurgatan opnuð

Húsnæði Vinstri grænna að Suðurgötu 3 var opnað aftur eftir endurbætur á laugardaginn var. Handagangur var í öskjunni, boðið upp á vöfflur og kaffi sem fólk kunni vel að meta. Um 80 manns mættu í kaffið margir beint eftir mótmælin á Austurvelli. Suðurgatan verður opin milli klukkan 16 og 18 mánudaga til fimmtudaga næstu vikur.

Lesa meira
 
evropa

4.11.2008 : Evrópumál á dagskrá

Vinstri græn hafa lengi haft áhuga á því að víkka út umræðuna um Evrópumál og aðild Íslands að Evrópusambandinu. Á opinberum vettvangi er oftast rætt um þessi mál út frá efnahagslegum forsendum en Evrópusambandsaðild felur annað og meira í sér en myntbandalagið.

Áhugafólk um Evrópuumræðuna hefur úr ýmsu að moða hjá Vinstri grænum næstu daga:

Fimmtudaginn 6. nóvember halda Ung vinstri græn opinn fund um hvað felst í aðild að Evrópusambandinu, fundurinn er haldinn í húsnæði flokksins að Suðurgötu 3 klukkan 20 og framsögu hefur Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

 

Laugardaginn 8. nóvember verður Evrópusmiðja Vinstri grænna haldin að Suðurgötu 3 milli klukkan 11 og 13. Til máls taka Halldóra Friðjónsdóttir, meistaranemi í alþjóðasamskiptum og Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.

 

Miðvikudaginn 12. nóvember verður svo haldinn annar fundurinn í ESB - fundaröð Ungra vinstri grænna kl. 20:00 á Suðurgötu 3. Þá mun Ögmundur Jónasson kynna stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Evrópumálum.

 

Katrín Jakobsdóttir stýrir Evrópuhópi Vinstri grænna og er áhugasömum bent á að skrá sig með því að senda póst á netfangið katrinja@althingi.is Lesa meira

 
dr_gunni_og_born

3.11.2008 : Stöðugt fjölgar félögum

Síðasta mánuðinn hafa tæplega hundrað manns skráð sig í Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Yfirleitt eru nýskráningar mestar í kringum forvöl og kosningar og því er þetta mjög óvenjulegt en að sjálfsögðu í takt við þá sveiflu sem nú er í samfélaginu og kröfu um nýjar áherslur á jafnrétti og jöfnuð. Félagaskráin er að sjálfsögðu trúnaðarmál en margir eru ekkert að fela afstöðu sína og koma stoltir út úr skápnum: http://www.this.is/drgunni/gerast.html

Lesa meira
 
sjs_a_selfossi_30_okt

1.11.2008 : Fjölmenni á fundi á Selfossi

Mikið fjölmenni var á opnum stjórnmálafundi Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Árborg á Hótel Selfossi fimmtudagskvöldið 30.0któber,  með Steingrími J. Sigfússyni alþingismanni og formanni VG og Jóni Hjartarsyni bæjarfulltrúa VG í Árborg.

Lesa meira
 

31.10.2008 : Ísland á EM

Vinstrihreyfingin – grænt framboð óskar landsliðinu hjartanlega til hamingju með stórkostlegan árangur. Krafturinn og samheldnin í liðinu er frábær fyrirmynd og gaman að fylgjast með þegar settu marki náð. Við hvetjum ykkur áfram og óskum ykkur góðs gengis á Evrópumeistaramótinu næsta sumar.

Áfram Ísland!

Lesa meira
 

31.10.2008 : Suðurgatan opnuð

Húsnæði Vinstri grænna að Suðurgötu 3 í Reykjavík verður opnað að nýju eftir miklar endurbætur á morgun, laugardag. Þá verður opið hús frá klukkan 15:30 til 18 og tilvalið að koma í kaffi eftir mótmælin á Austurvelli. Á döfinni er að skipuleggja reglulega opnunartíma til að fólk hafi færi á að kíkja í kaffi og ræða málin við félaga.

Lesa meira
 

30.10.2008 : 27% fylgi

Vinstrihreyfingin – grænt framboð mælist nú með meira fylgi en nokkurn tíman áður eða 27% samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Þar með eru Vinstri græn komin með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn sem mælist með 26% fylgi. Niðurstöðurnar hlýtur að mega túlka sem svo að stór hluti þjóðarinnar vill að Vinstri græn komi að stjórn landsins með sínar áherslur í varfærinni efnahagsstefnu og jöfnuði. Hægri stefnan sem hefur verið svo áberandi síðustu ár hefur vonandi runnið sitt skeið með hruni hinnar takmarkalausu trúar á frjálsa markaðinn. Vinstri græn þakka stuðninginn.

Lesa meira
 

30.10.2008 : Tvær gátur

Vefnum bárust svohljóðandi gátur frá Huginn Frey Þorsteinssyni

Gáta 1:

Hver ákvað að hækka stýrivexti?

Össur segir að það hafi verið Seðlabankinn http://www.althingi.is/altext/raeda/136/rad20081028T133713.html

Ingibjörg segir að það hafi verið ríkisstjórnin http://www.visir.is/article/20081029/FRETTIR01/408109672/-1

Davíð og Árni Matt segja að það hafi verið Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item233719/

Gáta 2:

Er leynd yfir skilmálum IMF?

ISG segir já (hún sagði að blaðamannafundinum að það væri krafa stjórnar IMF)

IMF segir nei http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item234036/

Lesa meira
 
erindrekstur_KJ_og_JB

29.10.2008 : Vinstri græn um allt land

Þingmenn og aðrir kjörnir fulltrúar fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð eru á ferð og flugi þessa dagana. Síðastliðinn mánuð hafa verið haldnir 20 opnir fundir um allt land auk þess sem þingmenn og fleiri eru iðnir við að heimsækja fyrirtæki, hagsmunasamtök og vinnustaði til að heyra í fólki, fá hugmyndir og ræða málin í því ástandi sem nú ríkir. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Jón Bjarnason og Katrín Jakobsdóttir heimsóttu Hagþjónustu landbúnaðarins á Hvanneyri í síðustu viku, með þeim á myndinni er Ríkharð Brynjólfsson prófessor við Landbúnaðarháskólann og stjórnarmaður í Hagþjónustu landbúnaðarins.

Lesa meira
 
huginn_freyr

28.10.2008 : Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er leiðin til ánauðar

Nú hefur verið ákveðið að hækka stýrivexti um 6 prósentustig og má að öllum líkindum rekja það beint til ráðgjafar eða jafnvel skilyrða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Af því tilefni birtist hér grein eftir Huginn Frey Þorsteinsson, formann Vinstri grænna á Akureyri um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, en greinin birtist einnig í Morgunblaðinu í morgun:

Nánast hvar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) hefur stigið niður fæti síðastliðin þrjátíu ár hefur hann skilið eftir sig sviðna jörð. Í upphafi tíunda áratugarins tókst sjóðnum með ráðgjöf sinni og íhlutun að koma hlutum í Rússlandi í enn verra horf en viðskilnaður kommúnismans hafði gert. Í félags- og efnahagslegum skilningi stóð þetta volduga ríki á brauðfótum eftir að einkaðilum, svokölluðum ólígörkum, voru afhentar auðlindir landsins. Úthýsing velferðarkerfisins til einkaaðila endaði með því að lífslíkur fólks í Rússlandi drógust saman sem og jók enn á gríðarlega misskiptingu lífsgæða. Þessi misskipting lífsgæða virðist vera afleiðing sem fylgir sjóðnum hvert sem hann fer.

Lesa meira
 
Steingrimur_i_Oslo

27.10.2008 : Góður fundur í Osló

Smári Karlsson í Osló var svo vænn að senda síðunni fréttir af fundi laugardagsins í Osló:

Steingrímur J. Sigfússon hélt fund með Íslendingum búsettum í Osló og nágrenni laugardaginn var. Efni fundarins voru efnahagsmálin á Íslandi og atburðir síðustu vikna. Um 40 manns sóttu fundinn. Í framsögu Steingríms fór hann yfir atburðarásina frá allt frá því að Glitnir var þjóðnýttur og ekki síður atburðarás síðustu ára sem skilar þjóðarbúinu í þessu ástandi. Fjörugar umræður sköpuðust á fundinum og svaraði Steingrímur spurningum fundarmanna. Fundarmenn voru Steingrími þakklátir fyrir að gera stuttan stans í Osló á leið sinni á Norðurlandaráðsþing í Helsinki til að geta rætt málin við kjósendur.

Lesa meira
 
holar_i_hjaltadal

27.10.2008 : Eflum íslenskan landbúnað

Á aðalfundi Kjördæmisfélags Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Egilsstöðum í október 2008, skorar á Alþingi og stjórnvöld að beita öllum ráðum og valdi sínu til að styrkja og efla íslenskan landbúnað til þess að Íslendingar geti orðið sjálfum sér nægir um öll þau matvæli sem unnt er að framleiða hérlendis með góðu móti. Þá áréttar fundurinn þá afstöðu flokksins að hafna alfarið frumvarpi landbúnaðarráðherra um að leyfa innflutning á hráu kjöti.

Lesa meira
 

26.10.2008 : Steingrímur heldur fund með fjármálaráðherra Noregs

Á leið sinni á Norðurlandaráðsþing í Helsinki hélt Steingrímur J. Sigfússon stóran fund með Íslendingum búsettum í Osló þar sem rætt var um stöðu efnahagsmála á Íslandi. Fundur verður svo í kvöld kl. 20 í Jónshúsi í Kaupmannahöfn með Íslendingum á Kaupmannahafnarsvæðinu.

Í dag, sunnudag hélt Steingrímur fund með formanni SV og fjármálaráðherra Noregs Kristinu Halvorsen og nánum ráðgjafa hennar. Á fundinum kom fram skilningur frænda okkar og vilji þeirra til að aðstoða Íslendinga fjárhagslega og rædd var sú hugmynd að Norðurlöndin taki virkan þátt í fjárhagsaðstoð með Alþjóðagjaldeyrissjóðum.

Á þriðjudag mun Steingrímur taka þátt í umræðum forystumanna í Norrænum stjórnmálum á Norðurlandaráðsþinginu í Helsinki. Lesa meira

 
althingi

24.10.2008 : Opinn fund í efnahags- og skattanefnd strax

Ögmundur Jónasson hefur fyrir hönd þingflokks Vinstri grænna óskað eftir opnum fundi í efnahags- og skattanefnd Alþingis í kvöld eða á morgun til að fjalla um þá skilmála Alþjóða gjaldeyrissjóðsins:

Bréfið er svohljóðandi:

Pétur H. Blöndal,

formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis.

Í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að leita formlega til Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins og með hliðsón af því að hann hefur skýrt ríkisstjórninni frá sínum skilmálum er hér með óskað eftir að efnahags- og skattnefnd Alþingis komi saman til fundar í kvöld eða á morgun þar sem upplýst verði um umrædda skilmála, þeir skýrðir og um þá fjallað. Fundurinn verði opinn fjölmiðlum og almenningi. Fráleitt er að leita til IMF án þess að Alþingi fjalli áður um samningsforsendur Íslendinga.

Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks VG

Lesa meira
 
herflugvelar

24.10.2008 : Fellum niður loftrýmisgæslu Breta við ísland

Þingflokkur Vinstri grænna mun legga fram svohljóðandi þingsályktunartillögu á Alþingi við fyrsta tækifæri:

Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að tilkynna breskum stjórnvöldum og yfirstjórn NATO að fyrirhugað loftrýmiseftirlit Breta við Ísland í desember nk. falli niður. Jafnframt verði utanríkismálanefnd falið að endurskoða áætlun Atlantshafsbandalagsins um loftrýmisgæslu yfir Íslandi sem samþykkt var í júlí 2007, með það að markmiði að hætta öllu slíkum æfingum.

Lesa meira
 
frost

23.10.2008 : Þingflokkur VG: Leitað skuli leiða til að kyrrsetja eignir

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs samþykkti í morgun að leggja til að viðskiptanefnd Alþingis kanni þegar í stað lagalegar forsendur þess að hægt verði að kyrrsetja tímabundið allar eignir innlendra fjármálafyrirtækja sem komist hafa í þrot, eigenda þeirra og tengdra aðila hér á landi og setja bann við kvers kyns ráðstöfun, sölu, veðsetningu o.s.frv. Einnig að leggja hald á og eftir atvikum heimta til landsins eignir sömu aðila erlendis, allt í því skyni að gæta hagsmuna þjóðarbúsins. Slíkar tímabundnar frystingarheimildir er nærtækast að taka sem viðbótarákvæði inn í neyðarlögin frá mánudeginum 6. október og stefna að lögfestingu þeirra í næstu viku. Við lagasetninguna yrði sérstaklega höfð hliðsjón af þeirri opinberu rannsókn sem nú er að fara af stað á vegum sérskipaðs ríkissaksóknara. Leiki minnsti grunur á að eignum hafi með beinum hætti verið skotið undan á undangengum mánuðum og misserum ber að sjálfsögðu að meðhöndla slík mál tafarlaust sem sakamál.

Lesa meira
 
kvennamerkid

23.10.2008 : Jafnrétti ekki á dagskrá

Fréttir af frestun jafnréttisþings félagsmálaráðuneytisins drepur niður flestar væntingar um að ríkisstjórnin ætli að sinna kynjajafnrétti. Mikil orð hafa verið uppi um að nú eigi aldeilis að taka á málunum og átti jafnréttisþingið í nóvember að vera vettvangur stórkostlegra afreka ríkisstjórnarinnar á þessu sviði, enda er þingið lögbundið stefnumótunarvald. Ljóst er að með ákvörðun um að fresta jafnréttiþinginu fram í janúar eru jafnréttismálin lögð til hliðar í því ástandi sem nú ríkir. Fögur orð um kynjaða hagstjórn, samþættingu kynjasjónarmiða inn í alla ákvarðanatöku og stórátak í að leiðrétta kynbundinn launamun eru farin fyrir lítið hjá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.

Lesa meira
 

22.10.2008 : Vel sóttir fundir um allt land

Þingmenn og aðrir kjörnir fulltrúar Vinstri grænna hafa haldið fundi um allt land undanfarið. Í gærkveldi var fundur á Akureyri og kvöldið þar áður fundur í Kópavogi. Báðir voru fundirnir vel sóttir og ljóst að margt brennur á fólki um þessar mundir. Efnahagsmálin og afleiðingar þeirra eru vitaskuld í brennidepli og miklar væntingar gerðar til Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs að halda uppi merkjum félagshyggju, umhverfisverndar og kvenfrelsis í þeirri vinnu sem framundan er. Þá er fólki tíðrætt um ójfönuðinn í samfélaginu, hvernig hann hefur vaxið undanfarin ár og hvaða afleiðingar það hefur haft í för með sér. Það er sívaxandi krafa um að hverfa aftur til samfélags þar sem jöfnuður var sú forsenda sem unnið var út frá og græðgi þótti löstur fremur en kostur. Það er aldrei mikilvægara að vernda velferðarkerfið gegn þeirri vá sem nú steðjar að og halda grunneiningum samfélagsins virkum. Þar skipa sveitafélögin mikilvægt hlutverk en því miður eru þau skuldsett og þarfnast aðstoðar frá ríkinu.

Fundunum verður fram haldið næstu daga og vikur eftir því sem þörf er á og andinn blæs okkur í brjóst. Næstu tvo daga er dagskráin svona:

 

22. 10 - Aðalfundur UVG á Akureyri haldinn í aðstöðu Vinstri grænna á eftir hæð JMJ hússins klukkan 20

 

23.10 - Kaffi og spjall á Selfossi haldinn í Selinu klukkan 20, Atli Gíslason, Jón Hjartarson og Katrín Jakobsdóttir

 

23.10 - Smiðja UVG á Kaffi Hljómalind í Reykjavík klukkan 20

 

23.10. - Fundur á Hótel Ísafirði klukkan 20, Jón Bjarnason, Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

Lesa meira
 

21.10.2008 : Tölum saman um efnahagsmál

Opinn fundur um efnahagsmál með Steingrími J. Sigfússyni, fomanni Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í kvöld, þriðjudag kl. 20 á Hótel Kea. Hver er staðan í efnahagsmálum? Hvaða leiðir eru færar við þessar aðstæður? Allir sem hafa áhuga á stöðunni í efnahagslífi þjóðarinnar eru hvattir til að koma. 

Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Lesa meira
 

20.10.2008 : Opinn fundur í Kragakaffi í kvöld kl. 20

Vinstri græn í Reykjavík efna til umræðufundar um efnahagsmál í kvöld kl. 20 í Hamraborg 1-3 (Kragakaffi).

Þrjú stutt innlegg verða flutt í upphafi fundar og síðan verði orðið gefið laust. Erindin flytja alþingismaðurinn Katrín Jakobsdóttir, borgarfulltrúinn Svandís Svavarsdóttir og stjórnmálafræðingurinn Silja Bára Ómarsdóttir.

Öll velkomin.

Lesa meira

 
nordenlogo

20.10.2008 : Svíar setja stóraukið fé í rannsóknir og baráttuna gegn vændi

Á nýlokinni ráðstefnu um vændi á Norðurlöndum hélt dómsmálaráðherra Svíþjóðar Beatrice Ask erindi. Ráðstefnan var lokahnykkur samnorræns rannsóknarverkefnis og var haldin í Stokkhólmi dagana 16. og 17. október síðastliðinn. Í erindi sínu varð Beatrice tíðrætt um áhrif sænsku vændislaganna en fyrir tæpum tíu árum síðan gerðu Svíar kaup á vændi refsiverð. Ýmsar vísbendingar eru um jákvæð áhrif þessara laga. Manseljendur virðast sneiða hjá Svíþjóð og eftirspurn hefur minnkað. Þá hafa rannsóknir sýnt viðhorfsbreytingu hjá ungu fólki varðandi vændi, að það tekur skýrari afstöðu gegn því en eldra fólk. Uppeldisáhrif laganna virðast því ekki síðri en praktísk áhrif laganna.

Lesa meira
 

18.10.2008 : Sex áherslur VG í NA-kjördæmi í efnahagsmálum

Kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldið á Egilsstöðum 18. okt. 2008

Nýfrjálshyggju og einkavæðingarstefna ríkisstjórna Sjálfstæðisflokksins í rúm 17 ár, með Alþýðuflokknum, Framsóknarflokknum og Samfylkingunni, er nú hrunin með geigvænlegum afleiðingum fyrir samfélagið. Íslenska þjóðin stendur frammi fyrir því risavaxna verkefni að vinna sig út úr þrengingunum sem þessi stefna hefur leitt yfir hana og hefja endurmótun og uppbyggingu samfélagsins á nýjan leik. Nú þurfum við að læra af mistökunum og heita því að endurtaka þau aldrei aftur. Við þurfum að byggja nýtt Ísland á nýjum gildum þar sem hófsemi, jöfnuður, samhjálp og virðing fyrir fólki og náttúru eru í öndvegi. Við þessar aðstæður leggur kjördæmisþing VG í Norðausturkjördæmi sérstaka áherslu á eftirfarandi: Lesa meira

 
nordenlogo

18.10.2008 : Vændi eykst í efnahagskreppu

Vændi á Norðurlöndum var efni ráðstefnu sem er nýlokið í Stokkhólmi. Norræna rannsóknarmiðstöðin í kvenna- og kynjafræðum stóð fyrir henni og var hún lokahnykkurinn á samnorrænu rannsóknarverkefni sem leitaðist við að greina umfang vændis á Norðurlöndum, skoða lagaramma og úrræði auk þess að greina viðhorf almennings til vændis. Gestir ráðstefnunnar voru af ýmsum toga, stjórnmálamenn, fræðimenn og fólk sem hefur unnið með og fyrir fólk í vændi.

Í Finnsku rannsókninni er greint frá því að í efnahagskreppunni sem reið yfir Finnland í byrjun tíunda áratugarins hafi vændi aukist markvert. Þetta þurfum við að sjálfsögðu að hafa í huga nú þegar svipaðar aðstæður eru uppi í íslensku efnahagslífi og styrkja þekkingu okkar, úrræði og almenna umræðu um það kynbundna ofbeldi sem vændi er. Lesa meira

 

17.10.2008 : Af fundi í Grindavík í gærkvöldi

Fundur í GrindavíkVinstri græn funduðu um efnahagsmálin í Grindavík í gærkvöldi og komu um 20 manns.Agnar Sigurbjörnsson, fomaður VG á Suðurnesjum stjórnaði fundinum en framsögu höfðu Atli Gíslason og Steingrímur J. Sigfússon. Á eftir voru fjörugar og málefnalegar umræður og tókst með herkjum að slíta fundi eftir tæpar 3 klst.

Mönnum var tíðrætt um skipbrot frjálshyggjunnar og gríðarlegan sofandahátt ríkisstjórnarinnar - og reyndar meðvirkni og sofandahátt þjóðfélagsins alls og skort á gagnrýni, þannig að hægt var að skuldsetja þjóðarbúið svo gríðarlega á svo skömmum tíma. Ástandið væri grafalvarlegt og nú gildi það að standa saman og lágmarka skaðann. Skýrði Steingrímur m.a.hugmynd sína um þjóðstjórn í því samhengi. Þeirri hugmynd hefur verið tekið með tómlæti og ekki víst hve lengi VG bíður með útrétta sáttarhönd.

 

16.10.2008 : Sparnaðaráætlun UVG

Á landsfundi UVG um þarsíðustu helgi var ákveðið að ráðast í að búa til sparnaðaráætlun UVG fyrir fjárlagagerð næsta árs. Stjórn UVG gekk frá tillögunum í vikunni en þeim fylgir svohljóðandi greinargerð: "Ung vinstri græn leggja áherslu á ábyrga fjármálastefnu og hvetja stjórnvöld til að spara í fjárlagagerð næsta árs. Í sérstakri sparnaðaráætlun Ungra vinstri grænna sem samþykkt var á landsfundi UVG um þarsíðustu helgi eru tillögur til stjórnvalda um sparnað uppá tæpa 15 milljarða íslenskra króna, sem fæst með því að skera niður ýmis fjárútlát sem eru annaðhvort óþörf eða beinlínis skaðleg að mati UVG. Með þessu myndi fjárlagahalli á fjárlögum næsta árs minnka um rúmlega 25%. Lesa meira
 

16.10.2008 : Tölum saman - umræðufundur um efnahagsmál

Vinstri græn í Reykjavík efna til umræðufundar um efnahagsmál næstkomandi mánudag, 20. október, kl. 20 í Hamraborg 1-3 (Kragakaffi).

Þrjú stutt innlegg verða flutt í upphafi fundar og síðan verði orðið gefið laust. Erindin flytja alþingismaðurinn Katrín Jakobsdóttir, borgarfulltrúinn Svandís Svavarsdóttir og stjórnmálafræðingurinn Silja Bára Ómarsdóttir.

 
Steingrímur J. Sigfússon

14.10.2008 : Hið nýja Ísland

Þessi grein eftir Steingrím J. Sigfússon birtist í Morgunblaðinu 14. október 2008

Við lifum örlagatíma íslenskrar efnahags- og stjórnmálasögu. Ríkisstjórnum, efnahags- og eftirlitsstofnunum og ýmsum forustumönnum fjármála- og atvinnulífs hafa orðið á stórfelld og dýrkeypt mistök. Rótin er sambland af röngum ákvörðunum og vítaverðu andvara- og aðgerðaleysi undanfarin ár, undanfarna mánuði og jafnvel undanfarna daga. Skaðinn er að verða miklu meiri en hann hefði nokkurn tímann þurft að verða og sannast nú hið fornkveðna nær dag hvern að lengi getur vont versnað.

Lesa meira
 

14.10.2008 : Enn um kreppu - Nú úr kennarastofunni í Varmárskóla (höfundur óþekktur)

 

Á lítilli eyju við heimskautshjara

býr heimakær, vansvefta, auðtrúa þjóð.

Hún leit upp til ráðsmanna loðinna svara

sem loforðum öfugt í kok hennar tróð.

 

Þeir níddust á trausti og trúgirni okkar

-táldrógu sannlega helvítis til.

Og allt sem þeir gerðu, þeir gordrullusokkar

gerðu þeir flottræflum sínum í vil.

 

En frelsið er háðara boðum og bönnum

en bláeygðir frjálshugar ímynda sér.

Þjóð mín var notuð af nýríkum mönnum

og nauðgað af útrásarvíkingaher.

Lesa meira
 
spakaupmennska

14.10.2008 : Hvað mun Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn leggja til?

Sverrir Jakobsson sagnfræðingur veitti vg.is góðfúslegt leyfi til að birta bloggfærslu sína um Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn:

Maður heyrir það á mörgum sem vilja gefa Alþjóðagjaldeyrissjóðnum tækifæri að hugmyndir hans til að taka á vanda Íslands muni verða nánast óskrifað blað. Það er þó ekki alveg rétt því að sjóðurinn er nýbúinn að gefa ítarlega skýrslu um ástand efnahagsmála á Íslandi og þar koma tillögur hans skýrt fram:  

1. Vaxtastigi verði áfram haldið háu.

„Given prevailing inflationary pressures and external risks, the central bank should continue to pursue its tight policy stance to return inflation to target and shore up confidence in the króna.“

2. Íbúðalánasjóður verði einkavæddur að hluta til - sem er lykilatriði að mati sjóðsins.

„Promptly acting on the pledge to reform the publicly-owned HFF is crucial to increase the effectiveness of monetary policy.“

3. Niðurskurður ríkisútgjalda.

„To achieve a more balanced macroeconomic policy mix, the central and local governments will need to slow the planned sharp acceleration in public investment and resist pressures to boost spending, including on the wage bill and social benefits. Any further fiscal relaxation would only undermine the government’s stated commitment to fiscal prudence and the effectiveness of monetary policy, risking higher inflation and further króna depreciation.“ Lesa meira

 
bankahvelfing

13.10.2008 : Rannsókn á viðskiptum bankaeigenda krafist

Svohljóðandi bréf var í dag sent skilanefndum þjóðbankanna:

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð gerir kröfu til þess að skilanefndir Glitnis, Landsbanka íslands og Kaupþings beiti sér tafarlaust fyrir því að fram fari ítarleg rannsókn á öllum viðskiptum stærstu eigenda nefndra banka, bankaráðsmanna, bankastjóra og æðstu stjórnenda síðastliðna 12 mánuði, þar með töldum viðskiptum með hlutabréf. Sérstaklega verði skoðaðar hugsanlegar millifærslur til erlendra banka og annarra fjármálafyrirtækja. Einnig verði rannsökuð gjaldeyriskaup bankanna síðastliðna 12 mánuði, hvernig að þeim var staðið og þau fjármögnuð.  Loks fari fram sérstök athugun á því hvernig bankarnir hafa staðið að eignastýringu, ráðgjöf og flutningi peninga almennra viðskiptavina af bankareikningum yfir í sjóði, hlutabréfasöfn, peningamarkaðsreikninga og aðra ótryggari fjárvörslu og ávöxtun á umræddu tímabili.

F.h. þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Ögmundur Jónasson, formaður.

Lesa meira
 
stakkunargler

13.10.2008 : Verjum hagsmuni almennings með opinberu eftirliti

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur farið þess á leit við forseta Alþingis og forsætisnefnd að því erindi verði tafarlaust beint til Ríkisendurskoðunar að hafa frumkvæði að því að kanna með hvaða hætti stofnunin skuli nú koma sem endurskoðunar- og eftirlitsaðili að ráðstöfun þeirra miklu fjármuna sem nú eru komnir í ríkisins hendur með yfirtöku bankanna. Það er mat þingflokks VG að óumflýjanlegt sé að Ríkisendurskoðun komi þegar að þeim þáttum sem á hennar verksviði eru og verða í framhaldinu. Lýtur það bæði að endurskoðun þeirra banka sem stofnaðir hafa verið í eigu ríkisins sem og að endurskoðun þeirra móðurfélaga sem ríkið hefur yfirtekið og eru nú í höndum opinberra skilanefnda. Mikilvægt er að Alþingi búi þegar í stað þannig um hnúta að Ríkisendurskoðun geti sinnt þessu gríðarlega verkefni með fullnægjandi hætti og hafi eftir atvikum svigrúm til að ráða sér til aðstoðar virt alþjóðleg endurskoðunarfyrirtæki eða fá aðstoð annarra sérfræðinga á þessu sviði. Gríðarlegir almannahagsmunir eru í húfi og útilokað annað en að opinbert eftirlit og opinber endurskoðun komi til, þar með taldar eignayfirfærslur, milliuppgjör og fjárhagsleg skil við aðilaskiptin.

Lesa meira
 
hogni_hoydal

13.10.2008 : Kveðja frá Færeyjum

Vinir okkar í Færeyjum hugsa greinilega til okkar og í dag barst þessi kveðja frá systurflokknum:

Kæri Steingrímur!

Vil senda kveðju frá Tjóðveldi í Færeyjum og ynskja ykkur í Vinstrigrænum og íslendsku tjóðini stuðning í erfiðu støðu landsins.

Við vonum að þið eru að komast undan ringastu ódnum og að flokkurin verður að vinna áfram með hugmynd og politikki í teimum loysnum og breytingum, sem nú verða á Íslandi.

Við reynum að fylgjast með í fréttum á hvørju degi og hugsanir okkara eru með ykkur.

Bestu kvøður,

Høgni Hoydal

Lesa meira
 
saudarkrokur

13.10.2008 : Sveitarfélögin haldi að sér höndum í gjaldskrárhækkunum og setji sér aðgerðaáætlun til að bregðast við efnahagsþrengingum

VG í Skagafirði leggur áherslu á að við þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í íslensku samfélagi verði staðinn vörður um grunnþjónustu við íbúa héraðsins. Vegna áhrifa efnahagsþrenginga á fjárhag heimilanna verði gjaldskrár fyrir almenna grunnþjónustu og Skagafjarðarveitur ekki hækkaðar við núverandi aðstæður. Sjaldan hefur verið mikilvægara að sveitarfélög sýni ráðdeildarsemi og gæti aðhalds í rekstri, en samhliða sé gætt að því að mæta ekki hugsanlegum samdrætti með uppsögnum og fækkun starfsfólks. VG í Skagafirði leggur áherslu á að sveitarfélögin í héraðinu setji sér nú þegar aðgerðaáætlun um eflingu velferðarþjónustu og hvernig brugðist verði að öðru leiti við þeim efnahagsþrengingum sem framundan eru með velferð Skagfirðinga að leiðarljósi.

Ályktun fundar VG í Skagafirði 12. október á Sauðárkróki Lesa meira

 

11.10.2008 : Sveitarfélögin grundvöllur samfélagsins

Í gær, föstudag, var haldinn sameiginlegur fundur stjórnar, þingflokks og flokksráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þar fór fram mikil hugmyndafræðileg umræða og vangaveltur um næstu skref í því ástandi sem hefur skapast eftir óhefta markaðsvæðingu síðustu ára. Ein ályktun var samþykkt á fundinum og er hún svohljóðandi:

Lesa meira
 
Lógó vg - Rautt grænt 72 dpi

9.10.2008 : Sameiginlegur fundur stjórnar, þingflokks og flokksráðs VG

Boðað er til sameiginlegs fundar stjórnar, þingflokks og flokksráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á morgun 10. október í húsnæði flokksins í Kópavogi að Hamraborg 1-3 klukkan 16:30. Rætt verður mál málanna út frá vinstristefnu, kvenfrelsi, umhverfisvernd og sjálfstæði landsins. Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að móta framtíð í félagshyggju.

Lesa meira
 

9.10.2008 : Tölum saman!

Vinstri græn bjóða til umræðna um ástandið í efnahagsmálum í dag á Akranesi, í Reykjavík og á Akureyri:

Opið hús verður í Suðurgötunni á dag, 9. október milli kl. 15 og 17 með kjörnum fulltrúum.

Ögmundur, Rún og Jón verða með kvöldkaffi í Skrúðgarðinum á Akranesi í kvöld, 9. október klukkan átta.

Aðalfundur Akureyrarfélagsins verður haldinn á hóteli Kea klukkan 19 í kvöld, 9. október.

Umræða um efnahagsmál með Steingrími J. Sigfússyni verður haldinn í beinu framhaldi af aðalfundinum á hóteli Kea í kvöld.

Lesa meira
 

7.10.2008 : Kaffi og spjall Vinstri grænna

Vinstri græn í Reykjavík halda úti opnu húsi á miðvikudag og fimmtudag í þessari viku og næstu milli klukkan 15 og 17. Hellt verður upp á könnuna í húsnæði flokksins að Suðurgötu 3 í Reykjavík og kjörnir fulltrúar, bæði þingmenn og borgarfulltrúar verða á staðnum. Fjölmennum í kaffi og spjall!

Lesa meira
 

7.10.2008 : Ögmundur í Kragakaffi í dag klukkan fjögur

Ögmundur Jónasson þingmaður Suðvesturkjördæmis verður í opnu kaffi í húsnæði Vinstri grænna í Hamraborg 1-3, svokölluðu Kragakaffi klukkan fjögur í dag. Allir velkomnir!

Lesa meira
 
steinunn_rognvaldsdottir

5.10.2008 : Vel heppnaður landsfundur Ungra vinstri grænna

Landsfundur Ungra vinstri grænna fór fram á Akureyri um helgina.
Fundinn sátu ungliðar frá öllum landshornum sem tóku þátt líflegum og frjóum umræðum sem skiluðu sér í fjölda ályktanna, endurbættri stefnuyfirlýsingu og hugmyndum fyrir komandi starfsár.

Á fundinum var Steinunn Rögnvaldsdóttir kjörinn formaður nýrrar stjórnar í stað Auðar Lilju Erlingsdóttur sem gengt hefur því embætti undanfarin tvö starfsár en gaf ekki kost á sér áfram.

Fundurinn fór fram í skugga þeirrar óvissu og umbrota sem ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar og einkenndust umræður á fundinum mjög af þeirri staðreynd, sem og ályktanir fundarins. Meðal annars var ályktað um hrun heimskapítalismans og stöðuna í efnahagsmálum. Einnig samþykkti fundurinn að leggja fram sparnaðaráætlun sem felur í sér fyrir nokkurra tugmiljarða sparnað í óþörfum verkefnum ríkissjóðs. Áætlunin verður kynnt á næstu dögum.

Lesa meira
 
landsfundur_UVG_2008

4.10.2008 : Öryggi felst í öflugu velferðarkerfi - ekki heræfingum

Ung vinstri græn halda landsfund sinn um helgina á Akureyri. Fráfarandi formaður Auður Lilja Erlingsdóttir flutti setningarræðu fundarins:

Velkomin á landsfund Ungra vinstri grænna árið 2007

Mig langar að nýta tækifærið meðan ég hef orðið að ræða um nýtilkomna þjóðnýtingarstefnu íhaldsins.

Á mánudaginn veltu fréttamenn fyrir sér hvort Íslendingar myndu þyrpast í Glitni, skelfingu lostnir og taka út allt sitt reiðufé (sem er reyndar ekki mikið þessa dagana). Á meðan lagði ég á ráðinn um að flytja viðskipti mín til Glitnis enda hvergi öruggara að vera með sitt fé í ljósi sérlega virkrar og öruggrar efnhagsstefnu íslenskra stjórnvalda.

Ingibjörg Sólrún staðhæfði fyrir nokkrum vikum að hér ríkti engin kreppa. Ég veit ekki hvort hún sé búin að skipta um skoðun í dag en ég fullyrði að ef þingmenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hefðu beitt virkri hlustun undanfarin ár í stað þess að agnúast út í reiðu kommana hefði þessi þróun og þær aðstæður sem við búum við í dag ekki átt að koma á óvart.

Lesa meira
 

3.10.2008 : Eldri vinstri græn hefja vetrarstarfið

Eldri vinstri græn eru að hefja fjórða starfsárið – Undirbúningshópurinn hefur margt á prjónunum varðandi atriði á fundunum í vetur. Og sem fyrr er enginn skortur á fólki sem vill líta í kaffi og spjalla um sitthvað til fróðleiks og skemmtunar.

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

2.10.2008 : Við förum í gegn um þetta saman

Ræða Steingríms J. Sigfússonar eftir stefnuræðu forsætisráðherra:

Góðir landsmenn.

Vofa gengur nú ljósum logum um hinn kapítalíska heim. Það er ekki vofa kommúnismans sem skrifað var um á nítjándu öldinni, nei, það er vofa kapítalismans sjálfs.

Í flestum vestrænum löndum standa nú yfir neyðaraðgerðir, þar sem gripið er til gríðarlegra fjármuna úr almannasjóðum til að afstýra algjöru hruni nýfrjálshyggju-kapítalismanns. Hugmyndafræðin sem vildi færa nánast öll verkefni samfélagsins með einkavæðingu yfir til markaðarins, hataðist við alla reglusetningu frá hinu opinbera, vildi í raun ekkert af ríkisvaldinu hefur nú étið sjálfa sig upp innanfrá og skríður undir pilsfald hins opinbera. Nýfrjálshyggjubyltingin er að éta börnin sín, enda hefur Hannes Hólmsteinn ekki skrifað blaðagrein í margar vikur.

Lesa meira
 
UVG_logo

2.10.2008 : Landsfundur UVG á Akureyri helgina 4.-5. október

Landsfundur Ungra vinstri grænna verður haldin á Akureyri næstkomandi helgi. Landsfundur er kjörið tækifæri til að kynnast starfi hreyfingarinnar, taka þátt og hafa áhrif. Enginn róttæklingur ætti að láta sig vanta.

Lesa meira
 

1.10.2008 : "Þurfum nýjar, manneskjulegri og félagslegri áherslur"

Fjöldi manns sótti félagsfund VGR í gærkvöldi um þá alvarlegu stöðu sem uppi er í fjármálakerfi þjóðarinnar. Steingrímur J. Sigfússon formaður flokksins flutti erindi þar sem hann fór yfir gang mála.
Hann hvatti fólk til dáða og sagði aldrei mikilvægara en nú að sýna kjark og forystu til að koma þjóðinni í gegnum þessa erfiðu tíma. Hann benti á að ef hlustað hefði verið á varnaðarorð VG síðustu ár þá stæði þjóðin ekki frammi fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem nú væri uppi og hefði haldbetri varnir gegn áföllum. Tillögur þingflokks VG allt frá árinu 2004 til varnar hagsmunum almennings hefðu getað breytt miklu en ekkert hefði verið hlustað. Margítrekað hafi verið bent á hversu óvarlega var af stað farið með einkavæðingu bankanna, ofvaxnar stóriðjuframkvæmdir, skattalækkanir hátekjuhópum í hag og fleira í ætt við öfgastefnu nýfrjálshyggjunnar sem gerði ástandið enn alvarlegra. Nú riði á að standa vörð um sparifé almennings, velferðarþjónustuna og kjör þeirra sem lakast eru settir í þjóðfélaginu. Tryggja yrði að einkavæðingaröflin gætu ekki læst klóm sínum í velferðarþjónustu landsmanna enda stæði sviðin jörð eftir markaðsöflin í almannaþjónustu annarra landa. Það væri með ólíkindum að hlusta á ríkisstjórnina tala fyrir innrás markaðsaflanna í heilbrigðisþjónustuna og orkugeirann á sama tíma og brunarústirnar einar stæðu eftir á öðrum sviðum. Steingrímur sagði að VG mundi ekki unna sér hvíldar fyrr en árásarhrinu peningaaflanna inn í mikilvægustu innviði íslensks samfélags væri hrundið og hagur almennra borgara settur í forgang.
 
Hiti og baráttuhugur var í fundarmönnum yfir ástandinu og Steingrímur svaraði fjölda spurninga úr sal.

Lesa meira
 
Sjöfn Ingólfsdóttir

30.9.2008 : Sjöfn formaður VGR

Á aðalfundi Vinstri grænna í Reykjavík, höldnum 30. september 2008, var Sjöfn Ingólfsdóttir kjörin formaður félagsins. Með henni í stjórn sitja Elín Sigurðardóttir, Heimir Björn Janusarson, Hermann Valsson, Sigríður Kristinsdóttir, Guðlaug Teitsdóttir og Valgeir Jónasson. Í varastjórn sitja Friðrik Dagur Arnarson og Sigvarður Ari Huldarsson.

Lesa meira
 

30.9.2008 : Opinn fundur um efnahagsmálin í kvöld!

Minnt er á opinn fund um efnahagsástandið í kvöld að Vesturgötu 7. Framsögu hefur Steingrímur J. Sigfússon en fundurinn hefst klukkan 21, eða strax að loknum aðalfundi Reykjavíkurfélags Vinstri grænna sem hefst klukkan 20 á sama stað.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Lesa meira
 
UVG_logo

29.9.2008 : UVGR verður UVGH - ályktanir

Á aðalfundi Ungra vinstri grænna í Reykjavík var ákveðið að breyta nafni félagsins í Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu og sameina félög í nágrannasveitafélögum reykjavíkurdeild Ungra vinstri grænna. Nú eiga allir félagar í Vinstri grænum sem eru 30 ára og yngri og búa í Reykjavíkurkjördæmunum auk Suðvesturkjördæmis aðild að félaginu en áður áttu aðeins félagar í Reykjavík aðild. Stjórnarmeðlimum var einnig fjölgað úr fimm í sjö en varamenn verða tveir talsins eins og áður. Kosin í stjórn voru: Brynja Björg Halldórsdóttir formaður, Ísleifur Egill Hjaltason, Sunneva Ása Weisshappel, Olga Jenný Gunnarsdóttir, Þrúður Helgadóttir, Claudia Overesch, Ólafur Arason, Snærós Sindradóttir og Helgi Hrafn Ólafsson.

Á fundinum voru samþykktar ályktanir um nektardansstaði, heimgreiðslur, umhverfisvænan ferðamáta, meðhöndlun sorps og úrræði fyrir heimilislaust fólk. Ályktanirnar eru svo:

Lesa meira
 

29.9.2008 : Aðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík og OPINN FUNDUR UM EFNAHAGSMÁL

Vegna ástands þjóðarbúsins verður reynt að stytta aðalfund Reykjavíkurfélagsins annað kvöld eins og kostur er og hefja í beinu framhaldi opinn fund um efnahagsmálin.

Aðalfundurinn verður sem sagt haldinn á Vesturgötu 7 klukkan 20-21. Í framhaldinu verður haldinn umræðufundur um efnahagsmálin á sama stað. Allir velkomnir eftir klukkan 21!

Vinstrihreyfingin – grænt framboð Lesa meira

 
or_logo

26.9.2008 : Almenningur fjármagni umdeilda virkjanastefnu OR

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík fordæmir gjaldskrárhækkun OR sem virðist tilkomin vegna glórulausrar lántöku erlendis , sem efnt er til svo fyrirtækið geti fjármagnað innrás á óspjölluð hverasvæði og virkjað fyrir erlendar stóriðjur.  Almenningi er síðan ætlað að borga brúsann og niðurgreiða þannig umdeilda virkjana- og stóriðjustefnu fyrirtækisins.

Stórfelldar hækkanir á gjaldskrá OR eru hnefahögg í andlit almennings, sem þegar hefur  tekið á sig mikla kjaraskerðingu og hefur enga leið til að verjast  slíkum lífskjaraárásum .

Lesa meira
 
vanstergronagruppen_logo

23.9.2008 : Klimapolitik: Som at gå på vulkaner! - Málþing Vinstrigræna flokkahópsins á Norðurlöndunum um loftslagsmál

Mánudaginn 22. september stóðu Vinstri græn fyrir norrænu málþingi um loftslagsmál í Norræna húsinu. Þetta var gert í samstarfi við vinstrisósíalíska græna hópinn innan Norðurlandaráðs en í dag hefjast einmitt nefndardagar ráðsins hér í Reykjavík. Fyrir málþingið höfðu fulltrúar systurflokka Vinstri grænna í Norðurlandaráði heimsótt Hitaveitu Suðurnesja og Hellisheiðavirkjun. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, stjórnaði málþinginu. Hér á eftir fara örstuttir útdrættir af erindunum á málþinginu.

Lesa meira
 
skjalfandafljot

23.9.2008 : Friðum Skjálfandafljót

Áhugahópur um friðlýsingu Skjálfandafljóts hefur opnað heimasíðuna www.skjalfandafljot.is. Markmið hópsins er að vinna að friðlýsingu alls vatnasviðs Skjálfandafljóts, stuðla að friðun og varðveislu landslags þess, náttúrufars og menningarminja ásamt því að það verði notað til útivistar, ferðaþjónustu og hefðbundinna nytja. Á heimasíðunni segir að það sé ekki vitað hvort áform séu uppi um að virkja Skjálfandafljót en „það eitt vitum við fyrir víst, að við höfum ekki hugmynd um hverjar afleiðingar orkufrekja nútímans muni hafa í framtíðinni og þess vegna er nauðsynlegt að sporna við t.d. með því að vinna að verndun og friðlýsingu Skjálfandafljóts.“ Á heimasíðunni er safnað undirskriftum til stuðnings baráttunni.

Lesa meira
 
50_50_campaign

22.9.2008 : Ekkert lýðræði í Evrópu án þátttöku kvenna

European womens lobby stendur nú fyrir undirskriftasöfnun til að rétta hlut kvenna í stjórnkerfi Evrópu. Þær benda á að árið 2008 er hlutur karla á þjóðþingum 82% og að meðaltali er hlutfallið 77% innan Evrópusambandsins. Á næsta ári verður kosið til Evrópuþingsins og skipað á ný í framkvæmdastjórnina. Af þessu tilefni er 50/50 herferðinni hleypt af stokkunum. Allir eru hvattir til að undirrita áskorunina hér: http://www.womenlobby.org/site/form_3.asp

Lesa meira
 
vanstergronagruppen_logo

19.9.2008 : Klimapolitik: Som at gå på vulkaner !

Mánudaginn 22. september höldum við norrænt málþing um loftslagsmál í Norræna húsinu. Þetta er gert í samstarfi við vinstrisósíalíska græna hópinn innan Norðurlandaráðs en á þriðjudag hefjast einmitt nefndardagar ráðsins hér í Reykjavík. Til hagræðingar er fólk beðið um að skrá sig til þátttöku í málþinginu á vg@vg.is. Dagksráin er svo:

Lesa meira
 
uvg

19.9.2008 : Aðalfundur Ungra vinstri grænna í Reykjavík

Aðalfundur Ungra Vinstri grænna í Reykjavík verður laugardaginn 27.september næstkomandi. Fundur hefst kl. 16.00 og verður í húsnæði flokksins í Kragakaffi við Hamraborg.

Dagskrá fundarins verður þessi:

Lesa meira
 
Svandis

17.9.2008 : Að tillögu VG gerir borgin úttekt á kynbundnum launamuni

Tillaga Vinstri grænna um óháða úttekt á kynbundnum launamuni var samþykkt samhljóða í borgarstjórn Reykjavíkur í gær. Ljóst er að jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér og nauðsynlegt að borgin sýni fordæmi í að leiðrétta muninn. Nýleg launakönnun SFR sýndi bakslag í baráttunni fyrir sömu launum og að kynbundinn launamunur hjá hinu opinbera sé að aukast þrátt fyrir fögur loforð síðustu ára. Því er nauðsynlegt að borgaryfirvöld afli þeirra upplýsinga sem þarf til að hægt sé að vinna að útrýmingu kynbundins launamunar. Svandís Svavarsdóttir mælti fyrir tillögunni sem var vel tekið af fulltrúum allra flokka.

Lesa meira
 
UVG_logo

17.9.2008 : Landsfundur UVG á Akureyri helgina 4.-5. október

Ung vinstri græn halda sinn landsfund á Akureyri helgina 4.-5. október. Allir ungliðar eru velkomnir en til þeirra teljast félagar í Vinstri grænum sem eru þrjátíu ára og yngri.

Þar sem farið er í rútu til Akureyrar er nauðsynlegt að skrá þátttöku með því að senda póst á uvg@vinstri.is eða hringja í síma 8667247 (Finnur). Lagt verður af stað frá Suðurgötu 3 (aðstöðu flokksins í Reykjavík) klukkan 17 föstudaginn 3. október. Boðið er upp á svefnpokapláss í félagsheimili Þórs en fundurinn sjálfur er haldinn í Lóni í Hrísalundi á Akureyri. Fundurinn hefst klukkan 10 á laugardeginum og lýkur klukkan 15 á sunnudeginum. Klukkustund síðar leggur rútan af stað til Reykjavíkur aftur. Landsfundagjaldið er 2.500 krónur en þau sem nýta sér ekki rútuferðina fá afslátt. Nánari dagskrá má sjá hér:

Lesa meira

 
hogni_hoydal

16.9.2008 : Tjodveldid þorði en kratarnir klikkuðu

Systurflokkur Vinstri grænna í Færeyjum, Tjodveldisflokkurinn, vann stórsigur í þingkosningum í janúar, varð stærsti flokkur eyjanna og myndaði stjórn með Jafnaðarflokknum. Nú hefur sá flokkur slitið stjórnarsamstarfinu og það má helst heyra af íslenskum fjölmiðlum að það hafi verið vegna deilna um skrifstofur. Annað er að heyra frá félögum okkar sem telja að Jafnaðarflokkurinn hafi ekki verið tilbúinn til að efna stjórnarsáttmálann en í honum er kveðið á um að draga eigi úr framlögum frá Danmörku. Þetta var aðgerð í átt að sjálfstæði en þýddi að sjálfsögðu að fjárlögin þyrftu að taka mið af lægri tekjum. Í það var Jafnaðarflokkurinn ekki tilbúinn. Fleiri mál hafa verið deiluefni í ríkisstjórninni svo sem sjávarútvegsmál, jarðgangnamál og fleira. Það er til marks um pólitískan gunguhátt að nota skrifstofumál sem tylliástæðu þess að slíta stjórnarsamstarfi, eða eins og segir á heimasíðu systurflokks okkar: Politiski ryggurin hjá løgmanni hoknaði.

Lesa meira
 
vanstergronagruppen_logo

16.9.2008 : Norrænt málþing um orkumál

Þriðjudag og miðvikudag í næstu viku verða haldnir nefndardagar Norðurlandaráðs hér á landi og í tilefni af því koma félagar í systurflokkum Vinstri grænna til landsins á sunnudag til að kynna sér orkumál. Farið verður með hópinn um Svartsengi og Hellisheiði auk þess sem haldið verður opið málþing um loftslagsbreytingar í Norræna húsinu mánudaginn 22. september klukkan tvö. Fyrirlesarar á málþinginu verða María Hildur Maack frá Íslenskri nýorku, Brynhildur Davíðsdóttir frá HÍ, Halldór Ármannsson frá HÍ og Árni Finnsson frá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Málþinginu lýkur klukkan fimm og eru allir velkomnir. Til hagræðis eru félagar beðnir um að skrá sig til leiks á vg@vg.is.

Lesa meira
 

11.9.2008 : Tekjur og eignir borgarfulltrúa Vinstri grænna

Við vefinn hefur nú verið bætt upplýsingum um tekjur og eignir borgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík og Árborg. Fleiri uppfærslur eru væntanlegar fljótlega. Vinstri græn leggja áherslu á gagnsæi tekna og hagsmunatengsla og lengi hefur verið hægt að nálgast upplýsingar um kjörna þingmenn hér. Upplýsingar um Svandísi Svavarsdóttur, Þorleif Gunnlaugsson og Jón Hjartarson má nálgast á upplýsingasíðu um kjörna sveitastjórnarfulltrúa.

Lesa meira
 
samfylking_logo

10.9.2008 : Þörf er á jafnaðarmannahreyfingu innan Samfylkingarinnar

Ung Vinstri græn hafa sent frá sér svohljóðandi tilkynningu:

Í ljósi nýjustu frétta af afstöðu þingmanna Samfylkingarinnar til frumvarps um Sjúkratryggingarstofnun og einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu hvetja Ung vinstri græn til þess að stofnuð verði jafnaðarmannahreyfing innan Samfylkingarinnar sem starfi á sama grundvelli og Kvennahreyfing Samfylkingarinnar og Umhverfishreyfing Samfylkingarinnar, Græna netið.

Augljóst er að líkt og í umhverfis- og kvenfrelsismálum þarf að stofna sérstaka deild fyrir þann minnihlutahóp innan Samfylkingarinnar sem trúir á jöfnuð í samfélaginu og þrífst enn í flokknum.

Ung vinstri græn hafa fullan skilning á því að erfitt getur verið að halda fram sjónarmiðum jafnaðar í flokki þar sem þau eru augljóslega lítils metin. Eins og svo oft skiptir samtakamátturinn mestu máli og sameinaðir geta jafnaðarmenn í Samfylkingunni, ef einhverjir eru, vonandi sveigt flokkinn af núverandi leið sinni. Takist það ekki hvetja Ung vinstri græn til þess að hreyfingin gangi til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, líkt og aðrir þeir sem berjast fyrir félagslegu réttlæti.

Lesa meira
 
torleifur_gunnlaugsson

10.9.2008 : Vinstri græn vilja bregðast snarlega við vanda utangarðsfólks

Þirðjudaginn 9. september samþykkti velferðaráð Reykjavíkurborgar stefnu í málefnum utangarðsfólks. Fulltrúi Vinstri grænna í ráðinu, Þorleifur Gunnlaugsson, hefur gagnrýnt stefnuna og finnst ekki nóg að gert. Á fundinum þar sem stefnan var samþykkt lagði Þorleifur fram eftirfarandi bókun sem lýsir vel þeim aðgerðum sem Vinstri græn vilja grípa til nú þegar:

Lesa meira
 

9.9.2008 : Álit Vinstri grænna um sjúkratryggingafrumvarpið

Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að til umræðu á Alþingi er frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar. Vinstri græn hafa gagnrýnt harðlega skort á upplýsingum, umræðu og rannsóknum á afleiðingum markaðsvæðingar heilbrigðiskerfisins, en frumvarpið er einmitt skref í þá átt. Vinstri græn hafa tekið saman ítarlegt minnihlutaálit með frumvarpinu til að kynna afstöðu sína og leggja sitt fram til að ítarleg umræða megi eiga sér stað.

Lesa meira
 
laknar

9.9.2008 : Markaðsvæðing heilbrigðisþjónustu til umræðu á Alþingi í dag

Vinstri græn vekja athygli á því að umræður um sjúkratryggingafrumvarp heilbrigðisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, verður tekið til 3. og síðustu umræðu á Alþingi í dag kl. 13.30. Í raun má segja að þetta sé „fyrsta“ formlega umræðan um málið því að svo var því hraðað í gegnum þingið í vor að engin umræða átti sér stað.

Þingflokkur VG varar eindregið við þeim einkavæðingaráformum sem frumvarpið ber með sér, en frumvarpinu hefur af viðurkenndum fræðimönnum verið líkt við frumvarp sem Margaret Thatcher leiddi yfir bresku þjóðina fyrir 18 árum síðan. Innviðir bresku heilbrigðisþjónustunnar hafa síðan þá verið molaðir niður og ólíðandi er að Íslendingar ætli að feta í sömu fótspor, með viðkomu í Svíþjóð þar sem svipuð þróun á sér nú stað. Lesa meira

 
UVG_logo

5.9.2008 : Ung Vinstri Græn krefjast afsagnar fjármálaráðherra

Ung vinstri græn krefjast þess að Árni Mathiesen segi af sér sem fjármálaráðherra og mæla með því að manneskja með betri skilning á þörfum þjóðarinnar taki við. Fjármálaráðherra segist ekki hafa svigrúm til að hækka laun ljósmæðra þrátt fyrir loforð ríkisstjórnarinnar um að leiðrétta laun kvennastétta. Á sama tíma  ver ríkisstjórnin 200 milljónum króna á ári í loftrýmiseftirlit. Ung vinstri græn benda einnig á að hér blasir við frábært tækifæri til að fjölga konum í ráðherraliðinu.

Ung vinstri græn skora ennfremur á ríkisstjórnina að efna gefin loforð um að leiðrétt kjör umönnunarstétta og byrja á ljósmæðrum. Bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar hafa síðustu daga viðurkennt í pontu á Alþingi að laun ljósmæðra séu óásættanleg miðað við ábyrgð og menntun. Þjóðin stendur með ljósmæðrum og vill að ríkisstjórnin standi við orð sín. Allt hefur komið fyrir ekki og nú bitna verkföll ljósmæðra á barnshafandi konum, nýbökuðum mæðrum og börnum þeirra á mikilvægustu augnablikum lífs þeirra. Slíkt ástand er ólíðandi í þjóðfélagi sem stærir sig af einu besta heilbrigðiskerfi heims og það er aum ríkisstjórn sem ekki getur staðið í lappirnar, staðið við eigin loforð og tryggt öryggi mæðra og barna.

Lesa meira
 
ljosmodir

5.9.2008 : Þjóðin styður ljósmæður -Austurvelli, 5. september kl. 12.15

Verkfall ljósmæðra er skollið á. Ríkisstjórnin axlar ekki ábyrgð og gerir þar með yfirlýsingar og fyrirheit að engu. Stjórnarsáttmálinn er marklaust plagg. Þarfir barnshafandi kvenna skipta ekki máli og störf ljósmæðra eru lítils virði.

Þó málið varði fyrst og fremst barnshafandi konur og hið nýja líf sem þær bera í skauti sér, þá snúast störf ljósmæðra um framtíð þessa lands í heild sinni. Ekkert er mikilvægara en endurnýjun þjóðarinnar. Til að hún geti orðið með eðlilegum hætti verður að tryggja þjónustu ljósmæðra nú og um aldir alda.

Ljóst er að þjóðin stendur með ljósmæðrum. Kennarar, hjúkrunarfræðingar, læknar og flugfreyjur hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingar, auk fjölda félaga- og hagsmunasamtaka. Fram til þessa hafa konur á barneignaraldri verið í framvarðarsveit stuðningsfólks sem er eðlilegt. Nú er þó svo komið að þjóðin öll verður að láta í sér heyra. Öll höfum við fæðst. Mætum á Austurvöll kl. 12.15 og styðjum kjarabaráttu ljósmæðra.

Samstaðan er studd af eftirfarandi samtökum: Femínistafélagi Íslands, Kvenréttindafélagi Íslands, Flugfreyjufélagi Íslands, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, BHM, Læknafélagi Íslands, Kennarasambandi Íslands, Landssambandi Framsóknarkvenna, Vinstrihreyfingunni grænu framboði og Ljósmæðrafélagi Íslands. Lesa meira

 
allyson_pollock

4.9.2008 : Heilbrigðisþjónustan - á vegferð til einkavæðingar

Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur gefið út bækling með erindi Allyson M. Pollock sem hún hélt hér á landi 29. maí síðastliðinn. Allyson M. Pollock er prófessor við Edinborg­arháskóla og veitir þar forstöðu rannsóknarstofnun á sviði heilbrigðismála (Centre for International Public Health Policy). Pollock er læknir að mennt. Hún stundaði starfsnám sitt í Skotlandi og vann á sjúkrahúsum í Edinborg og Leeds áður en hún flutti til Lundúna árið 1986 þar sem hún gerðist ráðgefandi sérfræðingur í lýðheilsufræðum. Í rannsóknum sínum hefur hún m.a. fengist við fjármögnun heilbrigðisþjónustu, kostun og uppbyggingu heilsugæslu, einkafjármögnun og áhrif hnattvæðingar á heilbrigðisþjónustu. Allyson Pollock hefur oftsinnis verið kölluð til að gefa sérfræðiálit sitt fyrir  heilbrigðisnefnd, samgöngunefnd og fjárlaganefnd neðri deildar breska þingsins og fyrir fjárhagsnefnd skoska þingsins. Hún er höfundur og meðhöfundur fjölda greina um áhrif Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) og hins almenna samnings um þjónustuviðskipti (GATS) á heilbrigðisþjónustu og aðra félagslega þjónustu. Bæklinginn má nálgast rafrænt á heimasíðu BSRB.

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

4.9.2008 : Hver er óvinur ljósmæðra?

Jón Bjarnason skrifar í Fréttablaðið 4. september 2008

Ljósmæður heyja nú hetjulega baráttu fyrir sanngjörnum kjarabótum og að menntun þeirra og ábyrgð sé metin að verðleikum. Ég styð baráttu ljósmæðra eindregið. Það gerir Vinstrihreyfingin – grænt framboð.

 Ljósmæðramenntun er ein sú elsta sérmenntun hér á landi og skipti sköpum í stórbættu heilbrigði þjóðarinnar seint á 19. öldinni.  Skipun ljósmæðra  dreift á héruð landsins átti mikinn þátt í að stórlega dró úr dauða ungbarna og mæðra af barnsförum.   Þær eru ljósberar hverrar fjölskyldu sem og  hjá þjóðinni allri  eins og  hið hlýja starfsheiti „ljósmóðir“ ber með sér . Lesa meira

 
Kolbrún Halldórsdóttir

4.9.2008 : Nálgunarbann og bann við nektardansstöðum

Þingflokkur VG hvetur til þess að sú breiða samstaða sem liggur nú fyrir um breytingar á lögum um nálgunarbann annars vegar, og bann við nektardansstöðum hins vegar, verði nýtt til að samþykkja frumvörp Kolbrúnar Halldórsdóttur þess efnis. Fyrir liggur þverpólitísk áskorun frá Borgarráði um bann við nektardansstöðum og því ekkert því til fyrirstöðu að mynda þverpólitíska sátt um málið innan Alþingis. Þá hafi í yfirlýsingum mismunandi þingmanna allra flokka myndast sátt um þörf breytinga á lögum um nálgunarbann fyrr í sumar og því lag að taka frumvarp Kolbrúnar upp og samþykkja frá Alþingi án frekari tafa.

Lesa meira
 
ljosmodir

3.9.2008 : Heræfingar teknar fram yfir samning við ljósmæður

Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi í dag beindi Katrín Jakobsdóttir fyrirspurn til fjármálaráðherra um hvað liði framtíðarlausn á kjaradeilu ljósmæðra. Fátt var um svör hjá ráðherra annað en að mikilvægt væri að semja. Verkfall ljósmæðra blasir við á morgun ef ekkert verður að gert. Í ræðu sinni dró Katrín fram nokkrar staðreyndir um kjör ljósmæðra:

Lesa meira
 
Katrín jakobsdóttir

3.9.2008 : Ný vinnubrögð á þingi

Katrín Jakobsdóttir gagnrýndi vinnulag Alþingis á fréttamannafundi sem VG hélt í gær og vakti athygli á því hve mörg frumvörp og þingmál – jafnvel mál sem breið samstaða væri um – döguðu uppi í þinginu. Katrín sagði áríðandi að standa vörð um sjálfstæði Alþingis og snúa yrði af þeirri braut að vera stimpilstofnun ríkisstjórnarinnar. Forseti Alþingis hefði látið þann vilja í ljósi á síðasta þingi en greinilega væri talsvert verk óunnið.

Katrín sagði tölulegar staðreyndir tala sínu máli í þessum efnum, og benti á að frá ríkisstjórninni hefðu komið 145 mál á síðasta þingi og hafi 40% þeirra verið kynnt á síðasta framlagningardegi. 120 mál af þessum 145 málum ríkisstjórnarinnar hafi verið samþykkt. Hins vegar voru einungis 10 þingmál þingmanna samþykkt af 152 sem lágu fyrir þinginu. Lesa meira

 
Þuríður Backman

2.9.2008 : Siðareglur: Aðrir fylgi fordæmi VG

„Þingflokkur VG hefur í mörg ár framfylgt eigin siðareglum um að þingmenn gefi og birti opinberlega öll laun, eignir og önnur hugsanleg hagsmunatengsl í samfélaginu. Ég skora á aðra flokka sem írekað tala fyrir gagnsæi í orði kveðnu að fylgja fordæmi VG í verki og opinbera hagsmunatengsl þingflokka sinna með sama hætti.“ Þetta segir Þuríður Backman sem á fréttamannafundi VG í gær kynnti áherslur VG hvað varðar siðareglur þingmanna.

Þingflokkur VG telur það eiga að vera lögbundna skyldu allra þingmanna og ráðherra að upplýsa bæði um fjárhagsleg tengsl og önnur hagsmunatengsl sín, s.s. stjórnarsetu, ábyrgðarhlutverk og önnur tengsl við fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Þá ættu þingmenn og ráðherrar einnig lögum samkvæmt að skrá allar gjafir, fjárframlög, boðsferðir og boð sem kunna að lúta að hugsanlegum hagsmunatengslum. Lesa meira

 
Ögmundur Jónasson

2.9.2008 : Sporin hræða í sjúkratryggingamáli

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs varar eindregið við því að frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um sjúkratrygginga- og innkaupastofnun verði samþykkt á septemberþingi Alþingis sem hefst í dag. Fyrirheit voru gefin um það sl. vor að farið yrði rækilega í saumana á frumvarpinu og líklegum afleiðingum þess til lengri tíma litið, en í þá vinnu hefur ekki verið ráðist af hálfu stjórnarmeirihlutans. Þingflokkur VG lagði til að þing yrði kallað saman strax að lokinni verslunarmannahelgi vegna stöðunnar í efnahagsmálum, sem einnig hefði gefið tilefni til frekari vinnu í öðrum málum. Þeirri beiðni var ekki sinnt.

„Reynsla Breta af sambærilegum kerfisbreytingum á heilbrigðisþjónustunni er í einu orði sagt hörmuleg. Ég trúi því ekki að stjórnarmeirihlutinn ætli að samþykkja þessar breytingar með bundið fyrir augun. Það er með ólíkindum af hvílíkri vanþekkingu þessi mál eru yfirleitt rædd, og hversu lítið er reynt að afla sér frekari þekkingar. Ég staðhæfi að hér sé um stórfelldar breytingar í átt til einkavæðingar að ræða, og að slíkt gangi þvert gegn vilja þorra þjóðarinnar. Það er lágmarkskrafa að um þessi mál fari fram opin og lýðræðisleg umræða sem einkennist af þekkingu en ekki blindri hugmyndafræði frjálshyggjunnar. Sporin hræða.“ segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG.

Lesa meira

 

1.9.2008 : Tryggjum öfluga velferðarþjónustu fyrir alla, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Gott samfélag byggist á traustu og öflugu velferðarkerfi, góðum samgöngum og fjarskiptum, öflugum skólum og heilbrigðisstofnunum, nýsköpun, rannsóknum og menntun. Þessi grunnþjónusta samfélagsins sem fyrst og fremst er verkefni hins opinbera, er forsenda framfara og velmegunar. Nú þegar verr horfir í efnahagsmálum er því brýnna en nokkru sinni að taka þessi mál föstum tökum. Ríki og sveitarfélög verða að forgangsraða í þágu velferðarkerfisins.

Aðgerðir verða að taka mið af stöðu kynjanna í samfélaginu, þar sem ábyrgð á uppeldi og umönnun hvílir fyrst og fremst á herðum kvenna, jafnt inni á heimilum sem þjónustustofnunum. Því er nauðsynlegt að tryggja börnum daggæslu og skólavist, góða umönnun fyrir aldraða, efla þjónustu við fatlaða og svo framvegis. Til að svo megi vera, verður að stórbæta kjör kvennastétta í velferðarþjónustu. Lesa meira

 

1.9.2008 : Þörf á gagnrýninni umræðu um einkavæðingu, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs varar eindregið við markaðsvæðingu velferðarþjónustunnar sem nú er unnið leynt og ljóst að.

Frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratrygginga- og innkaupastofnun í heilbrigðiskerfinu er liður í þessum áformum og verður að skoðast í því ljósi. Fráleitt er að samþykkja grundvallarbreytingar á velferðarkerfi landsmanna án þess að afleiðingarnar fái áður lýðræðislega umræðu. Þess vegna átelur flokksráðsfundurinn ríkisstjórnina fyrir að reyna að þröngva þessum lagabreytingum í gegnum þingið með offorsi. Lesa meira

 

1.9.2008 : Stöndum vörð um Íbúðalánasjóð, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráð Vinstri grænna mótmælir harðlega hótunum ríkisstjórnar um að þrengja að Íbúðalánasjóði og banna honum að veita ríkisábyrgð á almenn íbúðalán.

Slíkt hefði í för með sér lakari lánskjör fyrir húsnæðiskaupendur og er því tilræði við kjör almennings í landinu.

Fyrirhugaðar breytingar ganga þvert á fyrirheit Samfylkingarinnar sem margoft hefur lofað því að hvergi verði þrengt að Íbúðalánasjóði. Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á að staðinn verði vörður um samfélagslegan Íbúðalánasjóð sem þjóni öllum landsmönnum óháð búsetu.

Lesa meira
 

1.9.2008 : Allir landsmenn njóti póstþjónustu á jafnræðisgrunni, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn í Reykholti dagana 29.-30. ágúst 2008 krefst þess að rekin sé póstþjónusta með almannahagsmuni í huga og án þess að íbúum á einstökum landssvæðum sé mismunað. Fundurinn mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði og skorar á samgönguráðherra og ríkisstjórnina alla að hverfa frá markaðs- og einkavæðingu póstsins.

Lesa meira
 

1.9.2008 : Siðvæðing fjármálaumhverfis, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráðsfundur Vinstri grænna vill að nú þegar verði ráðist í lagabreytingar til að treysta lagaumhverfi fjármálastofnana, bæta siðferði í íslensku viðskiptalífi og tryggja réttindi almennings í landinu gagnvart yfirgangi fámenns hóps stóreignamanna. Þá þarf að skerpa á og fara ofan í vinnubrögð og aðgerðaleysi þeirra stofnana sem sinna eiga eftirlitshlutverki á fjármálamarkaði. Hagsmunir almennings eiga ávallt að vera í forgrunni.

Lesa meira
 

1.9.2008 : Samningaviðræður við ESB verði teknar upp að nýju til að koma í veg fyrir óheftan innflutning á hráu kjöti, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ályktar að hafna skuli frumvarpi um óheftan innflutning á hráu kjöti, sem nú liggur fyrir Alþingi, og að samningaviðræður við Evrópusambandið verði teknar upp að nýju.

Lesa meira
 

1.9.2008 : Stuðningur við kjarabaráttu ljósmæðra, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráðsfundur Vinstri grænna haldinn í Reykholti dagana 29. – 30. ágúst 2008 ítrekar kröfu stjórnar flokksins um að ríkisstjórnin gangi strax til samninga við ljósmæður.

Neyðarástand skapast á fæðingadeildum landsins innan fárra daga þar sem fjöldi ljósmæðra hefur sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Það er ótrúlegt að enn þurfa kvennastéttir að beita hörku til að fá störf sín metin til launa. Orð stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að jafna kjör kynjanna eru innantóm þegar stétt sem telur einungis konur mætir fálátum viðbrögðum við kröfum um að fá svipuð laun og karlastéttir með sambærilega menntun. Lesa meira

 

31.8.2008 : Staða og aðgerðir í efnahagsmálum, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráðsfundurinn lýsir yfir stuðningi við ítarlegar tillögur Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs sem lagðar voru fram, bæði í frumvarpi sl. vor og nú síðast tillögur sem samþykktar voru nýlega á þingflokksfundi. Þær endurspegla þá kröfu okkar að þjóðarsátt verður aldrei hægt að byggja á viðvarandi kynjamisrétti, á því að þeir lægst launuðu borgi brúsann eða að náttúrunni verði fórnað. Þjóðarsátt verður að snúast um að snúa af leið misskiptingar, auka launajöfnuð, efla velferðarkerfið, deila skattbyrðinni á réttlátari hátt þannig að hátekjufólk og fjármagnseigendur taki þátt í samneyslunni, efla fjölbreytt atvinnulíf og byggjast á því að við sitjum öll við sama borð.

Lesa meira
 

31.8.2008 : Nauðsyn á lagabreytingu varðandi nektardansstaði, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráð Vinstri grænna, fagnar þverpólitískri ályktun borgarráðs Reykjavíkur, þar sem Alþingi Íslendinga er hvatt til að breyta lögum þannig að sem fyrst fáist skýrar lagaheimildir til að koma í veg fyrir rekstur nektardansstaða.

Lesa meira
 

31.8.2008 : Breytum lögum um nálgunarbann og heimilisofbeldi, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráð Vinstri grænna ítrekar nauðsyn þess að Alþingi veiti lögreglunni heimild til að leggja á heimsóknar- og nálgunarbann og fjarlægja ofbeldismenn af heimilum. Það er tími til kominn að öryggi og hagsmunir fórnarlamba ofbeldis séu teknir fram yfir rétt ofbeldismanna til að halda áfram að áreita og ofsækja. Þannig vinnum við á kynbundnu ofbeldi og tryggjum sjálfsögð mannréttindi fórnarlamba ofbeldis sem eru fólgin í því að fá að dvelja óáreitt og örugg á heimum sínum.

Lesa meira
 

30.8.2008 : Forgangsröðum í þágu barna, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Á tímum efnahagsþrenginga er sérstaklega mikilvægt að létta byrðar barnafjölskyldna. Menntun barna og þátttaka þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi má ekki vera háð efnahag foreldra eða tímabundnum þrengingum í samfélaginu. Flokksráð Vinstri grænna hvetur því sveitarfélögin í landinu til að forgangsraða í þágu barnafjölskyldna.

Lesa meira
 

30.8.2008 : Samvinna á forsendum sveitarfélaganna sjálfra, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráð Vinstri grænna hafnar hugmyndum um lögbindingu lágmarksstærðar sveitarfélaga. Íbúar eiga að hafa svigrúm og sjálfræði til að meta kosti og galla sameiningar við önnur sveitarfélög og ákveða með hvaða hætti samstarfi þeirra á milli skuli háttað. Flokksráðið telur brýnt að úttekt verði framkvæmd á efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum þeirra sameininga sem hafa átt sér stað á undanförnum árum.

Lesa meira
 

30.8.2008 : Frítt í strætó óháð lögheimili, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráð Vinstri grænna beinir því til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu að gæta jafnræðis og veita öllum námsmönnum frítt í strætó óháð lögheimili.

Lesa meira
 

30.8.2008 : Ríkið taki þátt í kostnaði vegna almenningssamgangna, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Almenningssamgöngur eru ekki einkamál sveitarfélaga. Þau varða umhverfi og efnahag allra landsmanna. Ríkið verður að axla ábyrgð og taka þátt í kostnaði vegna þeirra. Lagasetning í þá veru á að vera forgangsmál á komandi vetri.

Lesa meira
 

30.8.2008 : Tryggjum rekstrargrundvöll sveitarfélaga, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Sveitarfélög eru misvel í stakk búin til að veita sjálfsagða og nauðsynlega grunnþjónustu. Á næstu tveimur árum er meðal annars nauðsynlegt að auka framlag ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna um 5 milljarða árlega. Á sama tíma verður gagnger endurskoðun að eiga sér stað á tekjuskiptingu vegna núverandi verkefna og tekjustofnum sveitarfélaga í heild sinni. Sveitarfélögin í landinu þola enga bið.

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

29.8.2008 : Erindi Steingríms á flokksráðsfundi: Efnahagsvandinn - leiðir til lausna

Þau eru stundum snögg veðrabrigðin á Íslandi eins og t.d. göngumenn á Laugaveginum hinum eystri fengu að reyna á dögunum þegar þeir lentu allt í einu í hálfgerðri stórhríð við Hrafntinnusker. En veðrabrigðin geta líka verið snögg í efnahagslífinu og í þjóðmálaumræðunni. Á innan við ári, svona 6-9 mánuðum, hafa orðin „efnahagserfiðleikar“, jafnvel „kreppa“, tekið við af orðinu „ðæri“ og rutt því svo rækilega úr vegi að það heyrist nú aldrei nefnt nema þá í þátíð. Það undarlega eru ekki þessi efnahagslegu veðrabrigði – þau voru löngu fyrirsjáanleg hér á Íslandi. Hitt sætir hins vegar furðu, að helstu ráðamenn þjóðarinnar í bæði núverandi og úr fráfarandi ríkisstjórn, skuli vera því sem næst klæðalausir á berangri þegar bylurinn skellur á.

Lesa meira
 
velkomin_a_flokksradsfund

29.8.2008 : Flokksráðsfundur hefst í dag

Klukkan 17 í dag verður flokksráðsfundur Vinstri grænna settur í Snorrastofu í Reykholti. Á dagskrá eru fjölmörg mál en áherslan verður í upphafi lögð á efnahagsmálin og sveitastjórnarmálin. Tæplega eitt hundrað fulltrúar alls staðar af landinu eru skráðir til leiks, kjörnir fulltrúar í sveitastjórnum og á Alþingi, formenn svæðisfélaga, fulltrúar í flokksráði sem eru kjörnir á landsfundi og fulltrúar ungliða. Fundurinn stendur fram á morgundag. Dagskráin er svohljóðandi:

Lesa meira
 

28.8.2008 : Þverpólitísk samstaða að taka undir með Vinstri grænum

Borgarráð sendi í dag frá sér ályktun þar sem skorað er á Alþingi að breyta lögum þannig að sem fyrst fáist skýrar lagaheimildir til að koma í veg fyrir starfsemi nektardansstaða. Um þetta náðist þverpólitísk samstaða og liggur beinast við að samþykkja frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur sem liggur fyrir Alþingi að felldar verði úr gildi undanþáguheimildir um bann við nektardansi. Frumvarpið má nálgast hér.

Lesa meira
 
torsk

28.8.2008 : Meirihluti Reykjavíkurborgar veitir nektardansstöðum jákvæða umsögn gegn vilja minnilhutans

Í dag var til umfjöllunar í borgarráði umsögn um nektardansstaði í Reykjavík en forsenda rekstrarleyfis er meðal annars jákvæð umsögn borgaryfirvalda. Vinstri græn og Samfylking lögðu til að borgin legðist gegn starfsemi nektardansstaða í sínum umsögnum á forsendum mannréttindastefnu borgarinnar. Því var því miður hafnað. Tillaga Vinstri grænna og Samfylkingarinnar að umsögn var svohljóðandi:

Lesa meira
 
torleifur_gunnlaugsson

27.8.2008 : Útboð á sorphirðu í Reykjavík

Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi ritar:

Jórunn Ósk Frímannsdóttir skrifar grein í 24stundir á fimmtudag en þar talar hún fyrir útboði á sorphirðunni í Reykjavík. Jórunn er greinilega mikil áhugamanneskja um einkavæðingu og réttindi bisnessmanna en hún hefur aftur á móti greinilega ekki staðgóða þekkingu á málefnum sorphirðunnar. Þannig má sjá í grein hennar fullyrðingar eins og þessa "Græna tunnan kom nýverið til sögunnar, en þar var borgin að elta einkaaðila". Þarna er Jórunn að fara með rangt mál vegna þess að græna tunnan sem borgin hefur boðið upp á síðan 2004 er fyrir þá sem flokka sjálfir hluta úrgangsins og fara með á endurvinnslustöðvarnar. Þetta fólk kemst af með lægra sorphirðugjald þar sem tæmingin fer fram sjaldnar. Með "grænu tunnunni" sem einkaaðilar bjóða er boðið upp á aðra þjónusta og hún kom á markað síðar en "græna tunna" borgarinnar.

Lesa meira
 

25.8.2008 : Vinstri græn í Skagafirði álykta um Reykjavíkurflugvöll

Félag vinstri grænna í Skagafirði mótmælir harðlega þeim áformum meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur að flugvöllurinn skuli úr Vatnsmýrinni. Félagið krefst þess að sjónarmið og þarfir landsmanna allra séu hafðar að leiðarljósi þegar framtíðarstaður flugvallarins verður ákveðinn.

Í ályktuninni segir að nýr meirihluti í borginni gangi nú þvert á vilja landsbyggðarinnar með því að gera það að sínu fyrsta verki að sparka flugvellinum úr borginni.

Lesa meira
 
velkomin_a_flokksradsfund

25.8.2008 : Efnahagsmál og sveitarstjórnarmál til umræðu á flokksráðsfundi Vinstri grænna í Reykholti á föstudaginn

Föstudaginn 29. ágúst hefst flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykholti, en slíkir fundir eru haldnir að jafnaði tvisvar á ári. Það stefnir í góða mætingu bæði flokksráðsfulltrúa og almennra félaga en flokksráðið telur ríflega 100 manns. Það skipa kjörnir fulltrúa flokksins í sveitarstjórnum og á Alþingi, varaþingmenn, formenn svæðisfélaga og kjördæmisráða, formenn ungliða auk landsfundakjörinna fulltrúa í flokksráði

Lesa meira
 
menningarnott

23.8.2008 : Blómstrandi menning hjá Vinstri grænum

Laugardaginn 23. ágúst var mikið um að vera hjá Vinstri grænum. Opnuð var félagsmiðstöð á Egilsstöðum þar sem er aðstaða fyrir aðstoðarmann Þuríðar Backman þingkonu, Huginn Frey Þorsteinsson. Miðstöðin er í gömlu slátursölunni í Kaupvangi 5 og mætti fjöldi manns við opnunina og gæddu sér á kaffi og kökum og nutu góðs félagsskapar og pólitískra samræðna. Í Reykjavík lögðu Vinstri græn sitt af mörkum til menningarnætur og buðu upp á vöfflur og kaffi í aðstöðu flokksins að Suðurgötu 3. Menningarnótt var frekar blaut að þessu sinni og þurfti regnhlíf til að skýla skilaboðunum eins og sést á myndinni. Vinstri græn létu það þó ekki á sig fá og stóð félagslífið í blóma.

Lesa meira
 
ljosmodir

23.8.2008 : Stjórn Vinstri grænna krefst þess að ríkisstjórnin gangi til samninga við ljósmæður

Neyðarástand skapast á fæðingadeildum landsins innan fárra vikna þar sem fjöldi ljósmæðra hefur sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Það er ótrúlegt að enn þurfa kvennastéttir að beita hörku til að fá störf sín metin til launa. Orð stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að jafna kjör kynjanna eru innantóm þegar stétt sem telur einungis konur mætir fálátum viðbrögðum við kröfum um að fá svipuð laun og karlastéttir með sambærilega menntun.

Lesa meira
 
skagafjordur_logo

21.8.2008 : Sveitastjórnarfulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði hafna úreltum hugmyndum um orkuflutninga

Sveitastjórnarfulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði telja ekki annað koma til greina en að leggja nýja háspennulínu yfir héraðið í jörð og setja spurningamerki við umfang framkvæmdanna. Páll Dagbjartsson Sjálfstæðisflokki og Bjarni Jónsson Vinstri grænum kynntu afstöðu sína gagnvart áformum Landsnets um lagningu háspennulínu frá Blöndustöð til Akureyrar á byggðaráðsfundi sveitafélagsins Skagafjarðar:

Lesa meira
 
Svandis

21.8.2008 : Ræða Svandísar á fundi borgarstjórnar

Í dag tók enn nýr meirihluti við stjórn Reykjavíkurborgar og heitt var í kolunum á borgarstjórnarfundi. Ræða Svandísar Svavarsdóttur borgarfulltrúa Vinstri grænna við það tækifæri var svo:

Forseti – borgarfulltrúar – enn erum við saman komin hér í sölum borgarstjórnar Reykjavíkur til að skipta um meirihluta í borgarstjórn.

Almenningur vill skynsemi og yfirvegun. Kjósendur vilja stöðugleika og sanngirni. Sama hvaða flokk þeir kjósa. En hvað hafa þeir fengið á þessu kjörtímabili?

Lesa meira
 
kvennamerkid

21.8.2008 : Konur eru vara - karlar eru aðal í nýjum meirihluta

Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur virðist ætla að halda uppteknum hætti Óskars Bergssonar, þar sem konur eru varaskeifur en karlar aðal. Kosning í borgarráð, sem fer með æðstu stjórn borgarinnar milli borgarstjórnarfunda fór þannig að Óskar Bergsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson eru aðalmenn en til vara eru Jórunn Frímannsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Sif Sigfúsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk og Guðlaugur Sverrisson fyrir Framsóknarflokk.

Kosningin er til marks um gamaldags viðhorf í jafnréttismálum og vanmat á mikilvægi þess að rödd beggja kynja heyrist í lýðræðissamfélagi. Meirihluti gamaldags karlamenningar er ekki líklegur til að vinna að framgangi jafnréttis kynjanna hjá borginni, þó brýna nauðsyn beri til.

Lesa meira
 
torleifur_gunnlaugsson

21.8.2008 : Virkjana- og steinsteypumeirihluti tekur við

Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi Vinstri grænna var að kveðja Ólafa F. Magússon í morgun og segir að „þrátt fyrir allt og þá óstjórn sem var í borginni þá hafi Ólafur staðið á bremsunni gagnvart Sjálfstæðisflokknum í málum náttúruverndar, húsafriðunar og einstaka velferðarmálum. Sá meirihluti sem nú tekur við fer óheft gegn hagsmunum borgarbúa í þessum málum. Starf okkar fram að næstu kosningum mun snúast um það að forða borgarbúum eins og hægt er frá virkjana- og steinsteypuhugsun nýs meirihluta. Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum, borgarsjóður stendur frekar illa, Orkuveita Reykjavíkur er stórskuldug og nýr meirihluti hefur boðað niðurskurð og óvinsælar aðgerðir. Okkar áherslur munu sem fyrr vera í velferðar-, mennta- og mannréttindamálum. Við höfum nú þegar lagt fram tillögur um að ekki verði farið í stokkagerð við Geirsgötu sem kosta munu á annan tug milljarða. Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að efla velferðarkerfið og menntakerfið sérstaklega með jafnrétti í huga. Fyrrverandi meirihluti stöðvaði útboð á sorphirðu í Reykjavík en nú er búið að ýta hindrunum markaðsvæðingar úr vegi og ljóst að Framsóknarflokkurinn mun ekki standa í lappirnar hvað það varðar. “

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

19.8.2008 : Jón Bjarnason leggur til ný lög um sparisjóði

Jón Bjarnason ritar á bloggið sitt:

Sparisjóður Strandamanna gekk bærilega á fyrstu 6 mánuðum ársins 2008 miðað við þær aðstæður sem ríkja á fjármálamörkuðum og í hagkerfinu um þessar mundir. Staða Sparisjóðs Strandamanna er því áfram mjög sterk. Svokallað CAD- hlutfall sem oft er miðað við til að meta stöðu fjármálastofnana er 34,7%  hjá Sparisjóði Strandamanna en má lægst vera 8%.  Þetta er haft eftir Guðmundi  B. Magnússyni  sparisjóðsstjóra á strandir.is.

Þessi frétt staðfestir að þar sem sparisjóðirnir hafa starfað samkvæmd grunnhugsjónum sínum  ganga þeir vel þótt tímabundið gefi á . Þeir sparisjóðir sem hinsvegar urðu „græðginni“ að bráð  leggja nú upp laupana  hver á fætur öðrum sem félagsleg stofnun í eigu heimamanna , nú síðast Sparisjóður Mýrasýslu.

Lesa meira
 

15.8.2008 : Yfirlýsing frá hópi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Skagafjarðar

Almennir stofnfjárhafar í Sparisjóði Skagafjarðar fóru margítrekað fram á það við Fjármálaeftirlitið að það hlutaðist til um að farið yrði að lögum í aðdraganda yfirtöku Sparisjóðs Mýrasýslu og tengdra aðila á Sparisjóði Skagafjarðar. Þá var margsinnis óskað eftir því að FME færi ofan í gjörninga manna er að yfirtökunni stóðu í ljósi alvarlegra og rökstuddra athugasemda um meint ólögmæti þeirra. Jafnframt var óskað eftir því við viðskiptaráðherra að hann beitti sér fyrir því að FME rannsakaði málið og svaraði erindum og fyrirspurnum sem til þess hafði verið beint. Fyrstu viðbrögð bárust hinsvegar ekki fyrr en 7 mánuðum eftir yfirtökuna í formi staðfestingar á samruna sparisjóðanna.

Lesa meira
 
graentflurlogo

14.8.2008 : Dagskrá flokksráðsfundar

Flokksráðsfundur Vinstri grænna verður haldinn dagana 29.-30. ágúst næstkomandi í Reykholti. Í flokksráði eiga sæti 30 landsfundakjörnir fulltrúar, allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaþingmenn, formaður UVG, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmaráða auk þess sem formenn svæðisfélaga ungliða eru sérstaklega boðnir. Fundurinn er að öðru leyti opinn öllum félögum í Vinstri grænum. Áherslan að þessu sinni verður lögð á efnahagsmál, sveitastjórnarmál og velferðarmál eins og dagskráin gefur til kynna:

Lesa meira
 

12.8.2008 : Stórátak verði gert í almenningssamgöngum - ríki og sveitarfélög taki höndum saman

Ályktun frá þingflokki VG, 12. ágúst 2008.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur brýnt, og raunar óhjákvæmilegt, að stórefla almenningssamgöngur í þéttbýli. Sveitarfélög hafa um langt árabil sinnt almenningssamgöngum af veikum mætti og án þess að um lögbundið verkefni sveitarfélaga sé að ræða. Þau hafa einnig ítrekað óskað eftir aðkomu ríkisvaldsins að þessum þætti samgangna eins og öðrum.  Þingmenn VG hafa lagt fram þingmál í þeim tilgangi að styrkja almenningssamgöngur en þau hafa ekki enn fengist afgreidd.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á almenningssamgöngur en því miður virðast það einungis vera orð á blaði, án innihalds.  Viðbrögð samgönguráðherra við kröfu sveitarfélaganna um aðkomu ríkisins að almenningssamgöngum valda vonbrigðum og lýsa skilningsleysi hans á vaxandi mikilvægi góðra og öflugra almenningssamgangna í nútíma þjóðfélagi.

Lesa meira
 
Kolbrún Halldórsdóttir

11.8.2008 : Frumvarp Kolbrúnar um austurrísku leiðina nýtur stuðnings

Í síðustu viku dæmdi hæstiréttur framhald nálgunarbanns óþarft í máli þar sem fyrrum sambýlismaður beitti konu sína mjög grófu andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Dómur í málinu sjálfu er ekki fallinn en það þykir svo alvarlegt að gefin var út opinber ákæra og brotamaðurinn sætti gæsluvarðhaldi í tvær vikur. Dómurinn hefur enn á ný vakið umræðu um hvernig samfélagið geti verndað konur gegn ofbeldi og hvaða lagarammi þurfi að vera til staðar. Í þessu samhengi er litið til frumkvæðis Austurríkismanna en árið 2001 fólu þeir lögreglunni það vald að setja nálgunarbann tafarlaust á ofbeldismenn, Lögreglan fékk jafnframt heimild til að fjarlægja menn af heimilinu. Austurríkismenn stóðu vel að lagasetningunni og henni fylgdu ýmis félagsleg úrræði svo sem stuðningur við fórnarlambið og ráðgjöf til handa ofbeldismanni og fórnarlambi.

Lesa meira
 

7.8.2008 : Sparisjóður Mýrasýslu í uppnámi ? stjórnendur axli ábyrgð

Félagsfundur Vinstri grænna í Borgarbyggð sem haldinn var í Englendingavík þann 6. ágúst 2008, lýsir hryggð sinni og furðu yfir því hvernig komið virðist fyrir Sparisjóði Mýrasýslu. Sjóðurinn hefur verið ómetanlegur bakhjarl allri starfsemi í héraðinu og verðmætasta eign sveitarfélagsins. Sparisjóðurinn hefur á undanförnum árum skilað verulegum rekstrarafgangi, og aldrei sem síðustu tvö ár, en virðist nú skyndilega standa á brauðfótum, - hvernig má slíkt gerast?

Lesa meira
 

6.8.2008 : Aldrei aftur Hiroshima! Aldrei aftur Nagasaki!

Munið kertafleytingarnar á Reykjavíkurtjörn miðvikudagskvöldið 6. ágúst kl. 22:30 og á Akureyri fimmtudagskvöldið 7. ágúst kl. 22:30. Lesa meira
 
kvennamerkid

1.8.2008 : Ný umsögn lögreglustjóra veldur vonbrigðum

Borgarstjórnarflokkur Vinstri grænna lýsir yfir vonbrigðum með nýútgefna umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um rekstur á nektardansstaðnum Goldfinger.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur haft mikið að segja í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi allt frá því hann hóf störf, og þar með sýnt rannsóknum og reynslu af þessum málum skilning og tekið á þeim mark. Í fyrri umsögn sinni um Goldfinger lagðist hann gegn leyfisveitingu, en nú virðist sem hann hafi verið þvingaður til að breyta afstöðu sinni til málsins.

Lesa meira
 
thjorsa

24.7.2008 : Verndum Þjórsá! Frestur rennur út 1. ágúst

Um mánaðarmótin rennur út frestur til að gera athugasemd við auglýst aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018 í fyrrum Villingaholtshreppi, en skipulagið gerir ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Það er því mikilvægt fyrir okkur sem viljum vernda Þjórsá að láta hressilega í okkur heyra. Meðfylgjandi er bréf sem unnendur Þjórsár hafa skrifað og tíundar helstu athugasemdir. Að sjálfsögðu má styðjast við bréfið en mikilvægt er að senda það undirritað og í venjulegum pósti og stíla það á Flóahrepp, Þingborg, 801 Selfoss.

Lesa meira
 

24.7.2008 : Samarendra Das fjallar um Helguvík

Samarendra Das er indverskur aktívisti, rithöfundur, og kvikmyndagerðamaður. Hann er afar fróður um áliðnaðinn og getur fjallað um hann frá fjölmörgum sjónarhornum; t.d. tengsl hans við menningarleg þjóðarmorð í þriðja heiminum í tengslum við báxítgröft, tengsl hans við hergagnaiðnaðinn og stríðsrekstur, og almennt um hnattrænar afleiðingar hans.

Þessa dagana stendur Samarendra aðallega í baráttu fyrir réttindum innfæddra í Orissa-héraðinu á Indlandi, þar sem fyrirhugaður báxít-gröftur námufyrirtækisins Vedanta mun leiða af sér menningarlegt þjóðarmorð, ef af honum verður.
Hinn 22. júlí síðast liðinn var hann í Friðarhúsi og fjallaði sérstaklega um tengsl áliðnaðarins við framleiðslu hergagna og stríðs. Í gær, 23. júlí, var hann ásamt Andra Snæ Magnasyni í Reykjavíkurakademíunni, Hringbraut 121 og stýrði umræðum sem brjóta á bak aftur goðsögnina um svokallaða "hreina" og "græna" álframleiðslu hér á landi.

Í kvöld verður Samarendra Das í Reykjanesbæ og talar á Hafnargötu 22, efri hæð, (Suðsuðvestur), klukkan 19.30. Eflaust verður málefni svæðisins í brennidepli, og rætt um hugsanlegar framkvæmdir í Helguvík.

Lesa meira
 
Ný þingflokkur VG

24.7.2008 : Ályktun þingflokks VG um stöðu efnahagsmála

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs kom saman til fundar í dag, mánudaginn 21. júlí, og ræddi horfur í efnahags- og atvinnumálum. Í lok fundar var eftirfarandi ályktun afgreidd og sömuleiðis samþykkt að senda meðfylgjandi bréf:

Þær alvarlegu horfur sem nú eru í efnahags- og atvinnumálum Íslendinga voru fyrirsjáanlegar og við þeim var varað af Vinstrihreyfingunni – grænu framboði allt frá árunum 2004-2005. Hinar ofvöxnu stóriðjufjárfestingar, skattalækkanir á þenslutímum, skuldsett útrás og gáleysisleg framganga nýeinkavæddra banka leiddi ásamt fleiru af sér þenslu, verðbólguþrýsting og geigvænlegan viðskiptahalla sem að lokum hlaut að verða til stórfelldra vandræða í efnahags- og atvinnulífinu. Hagvöxtur reyndist í allt of miklum mæli byggður á erlendri lántöku og aukinni skuldsetningu þjóðarbúsins og var um of neyslu- og eyðsludrifinn. Lesa meira

 
sjs_a_theystareykjum

14.7.2008 : Upp á Þeistareyki og inn í Gjástykki

Á sumrin nýta þingmenn tímann til að heimsækja staði og hitta fólk. Á dögunum var Steingrímur J. Sigfússon á ferð um Norðausturkjördæmi. Þann 10. júlí var Norðurþing heimsótt og endaði ferðin upp á Þeystareykjum og inn í Gjástykki. Ferðin var farin með fulltrúa Vg í sveitastjórn Norðurþings, Aðalsteini Erni Snæþórssyni, en hann gjörþekkir bæði þessi svæði. Veðrið var sérstaklega gott og því reyndist ferðin vera einstakt tækifæri til að skoða þessar náttúruperlur sem mikið hafur verið rættu um þessi svæði að undaförnu.

Lesa meira
 

10.7.2008 : Mótmælin halda áfram

Félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði eru hvattir til að mæta fyrir utan dómsmálaráðuneytið í Skuggasundi í hádeginu í dag og láta í sér heyra vegna hins dæmalausa máls Pauls Ramses. Þá minnum við á undirskriftalista á netinu sem felur í sér áskorun til dómsmálaráðherra og forstjóra útlendingastofnunar að bæta fyrir mannréttindabrotin gegn Paul og fjölskyldu hans. Undirskriftalistann má nálgast hér: http://www.thepetitionsite.com/1/PaulRamses

Lesa meira
 
atli_gislason

8.7.2008 : Mál Ramses verði leyst með hraði

,,Grundvallaratriðið er að þetta mál þolir enga bið, þarna er verið að stía fjölskyldu í sundur," segir Atli Gíslason þingmaður og fulltrúi VG í allsherjarnefnd eftir fund nefndarinnar í dag. ,,Það er ekki gætt að hagsmunum barnsins í málinu en það er andstætt öllum mannréttindasáttmálum sem ég þekki og meira að segja Dyflinnarsamkomulaginu sjálfu," segir Atli. Lesa meira
 

7.7.2008 : Fundur í allsherjarnefnd á morgun kl. 14

Nú hefur verið brugðist við beiðni þingflokks VG frá því í síðustu viku um að allsherjarnefnd kæmi saman til að fjalla um mál Paul Ramses sem vísað var úr landi á dögunum, sem og annarra hælisleitenda. Allsherjarnefnd mun koma saman kl. 14 á morgun og m.a. fá á sinn fund fulltrúa frá dómsmálaráðuneytinu, Útlendingastofnun, Amnesty International, Rauða krossinum og Alþjóðahúsi.

Lesa meira
 

4.7.2008 : Öfugmæli leiðrétt: Bókun frá Norðurþingi

Á fundi byggðarráðs Norðurþings þann 3. júlí síðastliðinn lagði fulltrúi Vinstri grænna, Trausti Aðalsteinsson, fram eftirfarandi bókun:

Vegna umræðna um að Vinstri Græn hafi unnið að því að fá álver til Húsavíkur vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri. Þrátt fyrir að Vinstri Græn hafi átt aðild að Húsavíkurlistanum sem fór með meirihluta í Húsavíkurbæ á síðasta kjörtímabili, þá áttu þeir engan fulltrúa í bæjarstjórn. Þeir aðilar sem voru á Húsavíkurlistanum fyrir Vinstri Græn lýstu aldrei yfir stuðningi við álversuppbyggingu á svæðinu hvað þá að beita sér fyrir því. Hugmyndir um álversuppbyggingu urðu hinsvegar þess valdandi að Vinstri Græn gáfust upp á samstarfinu í Húsavíkurlistanum og buðu fram undir eigin nafni í Norðurþingi við síðustu sveitarstjórnarkostningar. Við sem stöndum að Vinstri Grænum í Norðurþingi í dag teljum álver á Bakka ekki fýsilegan kost fyrir sveitarfélagið og við höfum ekki stutt þá uppbyggingu á nokkurn hátt.
Lesa meira
 

4.7.2008 : Allsherjarnefnd komi saman

Í kjölfarið á fréttum um brottvísun Pauls Ramses úr landi fór þingflokkur VG fram á það í gærmorgun að boðað yrði til fundar í allsherjarnefnd þar sem málið yrði tekið fyrir. Jafnframt var þess óskað að hliðstæð mál sem snúa að réttarstöðu flóttafólks og hælisleitenda yrðu tekin sérstaklega fyrir. Lesa meira
 
Kolbrún Halldórsdóttir

1.7.2008 : Kolbrún Halldórsdóttir á slóðum kjarnorkuslyssins í Tsjernobyl

„Þjóðir heims þurfa að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir annað slys á borð við það sem varð í Tsjernobyl 1986”, segir Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður VG. Kolbrún á sæti í umhverfisnefnd Norðurlandarráðs og er nýkomin úr ferð nefndarinnar til Hvíta Rússlands og Úkraínu. Í ferðinni skoðaði nefndin kjarnorkuverið í Tsjernobyl og kynnti sér afleiðingar slyssins sem varð 26. apríl 1986 þegar kjarnaofn nr. 4 sprakk með þeim afleiðingum að gríðarlegt magn geislavirkja efni losnaði út í andrúmsloftið og dreifðist yfir nyrsta svæði Úkraínu, Hvíta Rússland og norður um, allt til Skandinavíu. Lesa meira
 

30.6.2008 : Svanhildur mótmælir uppsögnum hjá RÚV

Svanhildur Kaaber, fulltrúi VG í stjórn RÚV, mótmælti uppsögnum og harkalegum sparnaðaraðgerðum hjá RÚV sem komu til framkvæmda í dag, en aðgerðirnar eru til komnar þar eð stjórnvöld hafa ekki staðið við þær skuldbindingar sem heitið var. Stöðugildum á Ríkisútvarpinu verður fækkað um 20 vegna þess að tekjur sem gert er ráð fyrir í þjónustusamningi við ríkið hafa ekki skilað sér. Lesa meira
 
alhausweb

27.6.2008 : Bjóða ungum jafnaðarmönnum í VG

Í ljósi nýjustu frétta af því að ráðherrar Samfylkingarinnar hafi tekið virkan þátt í uppbyggingu frekari virkjana- og álversframkvæmda hvetja Ung vinstri græn ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar, Unga jafnaðarmenn, til þess að endurskoða val sitt á flokki. Lesa meira
 

27.6.2008 : Svik og stóriðjuæði halda áfram

Þingflokkur Vinstrihreyfinginnar – græns framboðs skorar á ríkisstjórnina að segja þjóðinni satt og hætta þeim leiða ávana að svíkja kerfisbundið þau loforð sem þjóðinni eru gefin. Þingflokkurinn skorar einnig á ríkisstjórnina að hætta að breiða yfir blekkingarnar með spuna og innantómum yfirlýsingum sem engin innistæða er fyrir.

Lesa meira
 
Töfrafoss sumarið 2006

26.6.2008 : Fjölmennum á náttúruverndartónleika

VG hvetur alla til að fjölmenna á Náttúru - tónleika Bjarkar og Sigur Rósar ásamt Ólöfu Arnalds til stuðnings náttúruvernd á Íslandi. Tónleikarnir verða haldnir laugardaginn 28. júní í brekkunni fyrir ofan þvottalaugarnar í Laugardal í Reykjavík. Byrjað verður að hleypa einn á svæðið klukkan 17. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og gefa þeir aðilar sem að tónleikunum standa alla sína vinnu.

Lesa meira
 
Við Þjórsá

26.6.2008 : Björgum Þjórsá!

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð skorar á Samfylkinguna að beita völdum sínum og áhrifum innan ríkisstjórnarinnar til að bjarga Þjórsá. VG heitir fullum stuðningi við að hjálpa Samfylkingunni að standa í lappirnar og efna kosningaloforðin um stóriðjuhlé, enda ríður á að láta verkin tala í þágu náttúruverndar og skynsemi. VG gagnrýnir framferði Landsvirkjunar harðlega og minnir á að fyrirtækið er alfarið í eigu ríkisins. Fyrirtækið vinnur því í umboði ríkisstjórnarinnar að virkjunum í Þjórsá og ríkisstjórnin hefur í hendi sér að snúa þróun mála við og hverfa af braut frekari stóriðjuáforma og eyðileggingar.

Þingflokkur VG minnir á að ríkið á vatnsréttindin við Þjórsá og Alþingi hefur ekki gefið neina heimild til framsals eða sölu á þessum réttindum til Landsvirkjunar. Það er ósvífið af hálfu Landsvirkjunar, og vanvirðing við Alþingi, að veifa þessum vatnsréttindum sem einkaeign fyrirtækisins og knýja þannig á um samninga og virkjanir. Sömuleiðis er það ósvífið af ríkisstjórninni að sitja hjá á meðan þessu fer fram og halda þannig til streitu ólýðræðislegum vinnubrögðum. Björgvin G. Sigurðsson ráðherra, sem lofaði því þráfaldlega fyrir kosningar að bjarga Þjórsá, tekur nú glaðbeittur skóflustungu að álveri í Helguvík og ríkisstjórnin leyfir Landsvirkjun áfram að haga sér eins og ábyrgðarlaust ríki í ríkinu. VG skorar á Björgvin að standa við fyrri loforð og hvetur um leið Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðhera til að beita sér í málinu af öllu afli og gefast ekki upp fyrr en sigur er unninn.

Lesa meira
 
graentflurlogo

20.6.2008 : Skrifstofa Vinstri grænna verður lokuð fram í ágúst

Skrifstofa Vinstri grænna að Suðurgötu 3 verður lokuð út júlí. Ef erindið er brýnt má skilja eftir skilaboð á símsvara flokksins í síma 552 8872. Við óskum félögum og öllum öðrum gleðilegs sumars! Lesa meira
 
kvennamerkid

19.6.2008 : Í tilefni dagsins

Á borgarráðsfundi nú í morgun var einróma samþykkt að hafna beiðni Strawberries um undanþágu til að reka nektardansstað. Að því tilefni bókaði minnihluti borgarráðs þannig:

Borgarráðsfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokks fagna því að borgarráð skuli leggjast einróma gegn veitingu nektardansleyfis í dag þegar 93 ár eru liðin frá því konur fengu kosningarétt og kjörgengi. Synjunin er til marks um mikinn árangur í jafnréttismálum, enda er baráttan gegn klámvæðingunni eitt helsta verkefni nútímans. Reykjavíkurborg hefur á umliðnum árum verið í fararbroddi í þeirri vinnu og afar brýnt að svo verði áfram.

Að sama tilefni lagði minnihlutinn fram svofellda tillögu sem var einróma vísað til mannréttindaráðs:

Borgarráð samþykkir að láta vinna aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn kynbundnu ofbeldi, sem byggð verður á Mannréttindastefnu borgarinnar. Aðgerðaráætlunin taki á hlutverki borgarinnar sem veitanda þjónustu, sem atvinnurekanda, sem stjórnvalds og sem samstarfsaðila, en vinnan við hana verði með sambærilegum hætti og aðgerðaráætlun gegn mansali sem verið er að vinna á vegum Félagsmálaráðuneytisins. Þannig verði skipaður starfshópur kjörinna fulltrúa og sérfræðinga hjá borginni, en jafnframt verði óskað eftir tilnefningum frá Stígamótum, Samtökum um kvennaathvarf og Neyðarmóttöku vegna nauðgunar.

Mannréttindastjóra verði falið að skipa hópinn sem skili niðurstöðum eigi siðar en 8. mars 2009.

Lesa meira
 
kvennamerkid

19.6.2008 : Til hamingju með daginn

Í dag fagna Íslendingar því að 93 ár eru síðan konur fengu rétt til að kjósa í landskosningum. Vinstri græn óska þjóðinni til hamingju með daginn og minnir á þau verkefni sem enn eru óunnin í jafnréttisbaráttunni. Hægt er að fræðast meira um daginn á vef Kvennasögusafnsins. Lesa meira
 
irski_faninn

13.6.2008 : Írar hafna Lissabon-sáttmálanum

Nú er ljóst að Írar hafa hafnað Lissabon-sáttmálanum svokallaða. Írska þjóðin var eina aðildarþjóð ESB sem kaus um sáttmálann í þjóðaratkvæðagreiðslu og þrátt fyrir að kannanir hafi bent til þess að sáttmálinn yrði samþykktur virðist sem málflutningur þeirra sem efuðust um sáttmálann hafi unnið á og haft betur að lokum. Embættismannakerfið í Brussell ákvað að breyta nafnið á stjórnarskránni í sáttmála og þar með komast framhjá þjóðaratkvæðagreiðslum um málið enda felldu Frakkar og Hollendingar stjórnarskránna í slíkri atkvæðagreiðslu árið 2005. ESB þorði því ekki að halda áfram með málið enda voru þessar þjóðir látnar kjósa fyrst enda var talið öruggt að þær myndu samþykkja stjórnarskránna en báðar þjóðir taldar einna hliðhollastar sambandinu. Írland er eina landið þar sem greitt er atkvæði í almennum kosningum um sáttmálann og því eru úrslitin reiðarslag fyrir Evrópusambandssinna. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar á Írlandi þýðir að sáttmálinn verður ekki tekinn upp því krafist var samþykkis allra aðildarríkja. Í hinum 26 ríkjunum samþykktu þjóðþingin sáttmálann.

Lesa meira
 
na_yfirferd

13.6.2008 : Ferð um Norðausturkjördæmið

Á veturna gefst síður tækifæri fyrir þingmenn að fara um landið og ræða málin við félaga. Þegar þingi lauk fóru þingmenn, varaþingmenn og starfsmenn Norðausturkjördæmis í ferð um kjördæmið og má sjá hópinn gæða sér á kræklingum við það tækifæri. Á myndinni eru Þuríður Backman þingkona, Steingrímur J. Sigfússon þingmaður, Björn Valur Gíslason varaþingmaður, Víðir Björnsson framkvæmdastjóri Norðurskeljar og Bjarkey Gunnarsdóttir varaþingkona.

Lesa meira
 
atli_gislason

13.6.2008 : Fréttatilkynning: Gagna krafist um matvælafrumvarp

Atli Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og nefndarmaður í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, hefur sent Arnbjörgu Sveinsdóttur, formanni nefndarinnar, Einari K. Guðfinnsyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, bréf þar sem að krafist er allra gagna er varða samningaviðræður Íslands við ESB vegna svokallaðs matvælafrumvarps þar sem opnað er fyrir innflutning á hráu kjöti.

Lesa meira
 
torleifur_gunnlaugsson

12.6.2008 : Yfirlýsing frá Þorleifi Gunnlaugssyni borgarfulltrúa - það er ekki markmið Velferðarsviðs Reykjavíkur að styðja við þróun og samkeppni á markaði í félags- og heilbrigðisþjónustu þrátt fyrir yfirlýsing

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur nú lokið skoðun á afgreiðslu Velferðarráðs þar sem ákveðið var að semja við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun um búsetuúrræði fyrir tuttugu einstaklinga sem eiga við fíkniefna- og áfengisvanda að stríða. Innri endurskoðun hóf skoðun sína eftir að undirritaður hafði samband við Innri endurskoðanda og bar undir hann rök sviðsstjóra Velferðarráðs fyrir því, “að samið verði við Heilsuverndarstöðina / Alhjúkrun þrátt fyrir að þeir séu ekki með lægsta tilboð” eins og segir í greinargerð sviðsstjóra Velferðarsviðs um málið.

Innri endurskoðun rannsakar ekki mál nema ástæða þyki til en hún taldi rök Velferðarsviðs ófullnægjandi og fór fram á frekari rökstuðning. Nú, tæpum þremur vikum síðar birtist rökstuðningur Velferðarsviðs á fundi Velferðarráðs í gær. Í stuttu máli er ekki hrakið að tilboð SÁÁ hafi verið lægst en því haldið fram að Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun sé betur í stakk búið til að sinna úrræðinu á faglegan hátt og að “Velferðarsvið styðji við þróun og samkeppni á markaði í félags- og heilbrigðisþjónustu”

Lesa meira
 
fiskveidar

10.6.2008 : Mannréttindanefnd SÞ fái skýrari og ítarlegri svör

Vinstrihreyfingin – grænt framboð lýsir furðu sinni á þeim rýru og efnislitlu svörum sem ríkisstjórn Íslands hefur sent Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna.

Ríkisstjórnin hefur haft 6 mánuði til að taka álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna alvarlega og bregðast við með ítarlegum hætti. Svarbréfið sem nú loks liggur fyrir er að uppistöðu til langdregin endurtekning á þeim vörnum sem íslenska ríkið hélt uppi í málinu þegar það var tekið fyrir á sínum tíma. Í niðurlagi svarbréfsins er svo loks rýr og efnislítil klausa um að hugað verði að lengri tíma áætlun um endurskoðun á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu, eða aðlögun í átt að áliti mannréttindanefndarinnar.

Engar tímasetningar koma fram, ekkert efnisinnihald, engin aðferðafræði, ekkert boðað samráð og engin sérstök markmið. Í engu er tiltekið hvernig yfirvöld hafi nú þegar reynt að bregðast við álitinu á því hálfa ári sem liðið er.

Lesa meira
 
lyf

10.6.2008 : Breytingar á lyfjalögum - hindra verðsamkeppni til neytenda

Á vef Lyfjavers má lesa áhugaverða frétt um afleiðingar breytinga á lyfjalögum sem samþykktar voru á yfirstandandi þingi. Í nýju lögunum eru afslættir af smásölu lyfja bannaðir og getur þetta haft í för með sér hækkun lyfja til þeirra sem á þurfa að halda. Í minnihlutaáliti fulltrúa Vinstri grænna í heilbrigðisnefnd kemur meðal annars fram: „Íslenskur lyfjamarkaður einkennist af fákeppni sem bitnar harkalega á þeim sem síst skyldi, þ.e. sjúklingum sem hafa lítið val um hvaða lyf þeir kaupa eða hvort þeir yfirhöfuð verða að kaupa lyf. Minni hlutinn telur miður að stjórnvöld skuli ekki telja aðra leið færari til að lækka lyfjaverð á þessu stigi en að banna alla afslætti sem sjúklingar fá nú yfir borðið í apótekum. Einkum er þetta bagalegt fyrir örorku- og ellilífeyrisþega og þá hópa sjúklinga sem eru háðir tilteknum lyfjum ævilangt og hafa jafnvel fyrir atbeina hagsmunasamtaka sinna náð fram afsláttum í lyfjabúðum á tilteknum lyfjum. Eins hafa apótekin fram til þessa veitt slíkum sjúklingum einhvers konar magnafslátt. Minni hlutinn telur víst að mörgum muni bregða við þegar lyfjaverð hækkar 1. október nk. við gildistöku laganna og hefði talið rétt að vísa þessu ákvæði frumvarpsins til frekari vinnslu í nefnd þeirri sem nú hefur lyfjakostnað landsmanna til skoðunar og kennd er við Pétur H. Blöndal alþingismann. Minni hlutinn getur ekki stutt þessa breytingu.“ Á síðu Lyfjavers eru gefin dæmi um hækkun lyfjanna og er fólk hvatt til að kynna sér hana.

Lesa meira
 

9.6.2008 : Vinstri græn í Reykjavík bjóða í ferð um svæði Bitruvirkjunar

VG-í Reykjavík efnir til opinnar ferðar á slóðir “Bitruvirkjunar” miðvikudaginn 11. júní. Fararstjóri verður Björn Pálsson, héraðsskjalavörður í Hveragerði. Björn gjörþekkir náttúru þessa svæðis, sögu þess og virkjunaráform á þessum slóðum með þeim umbreytingum sem slíku myndi fylgja. Farið verður á einkabílum og er ætlunin að reyna að sameinast í bíla. Því er æskilegt að menn tilkynni þátttöku fyrirfram til Drífu Snædal í síma 552 8872.

Áformað er að leggja af stað frá Olísstöðinni við Rauðavatn kl. 17:00 og hitta Björn við merkta veginn upp að Ölkelduhálsi, austarlega á Hellisheiði um kl. 17:30. Reiknað er með að ferðin taki um 3 klst. Ef einhverjir sem hug hafa á þátttöku komast ekki kl. 17 er ekkert því til fyrirstöðu að koma inn í hópinn síðar, með því að keyra inn eftir Ölkelduhálsvegi og hitta á hópinn þar. Skynsamlegt er að hafa með sér létt nesti og góða skó.

Baráttunni um það hvað verður um þetta svæði er langt í frá lokið enda margvíslegir hagsmunir í húfi. Það er því mikilvægt að sem flestir kynni sér þetta svæði með eigin augum og fjölmenni í skemmtilega og fróðlega ferð.

Allir velkomnir.

 
Hjörleifur Guttormsson

9.6.2008 : Vatnajökulsþjóðgarður Hjörleifs loksins orðinn að veruleika

Á síðasta þingi sínu lagði Hjörleifur Guttormsson til að stofnaður yrði Vatnajökulsþjóðgarður sem samanstæði af fjórum þjóðgörðum á miðhálendi Íslands og myndu þeir hafa innan sinna marka helstu jökla og aðliggjandi landsvæði. Þessi tillaga var samþykkt og umhverfisráðherra, skipulagsyfirvöldum og hugsanlegum rétthöfum falið að undirbúa stofnunina með það að markmiði að þjóðgarðurinn yrði að veruleika árið 2000. Um helgina varð þjóðgarðurinn loks að veruleika, 10 árum eftir að Hjörleifur flutti tillöguna á Alþingi. Vinstri græna óska Hjörleifi hjartanlega til hamingju með árangurinn, það er ljóst að án hans baráttu fyrir náttúruvernd og þjóðgörðum á hálendinu hefði garðurinn ekki orðið að veruleika.

Lesa meira
 
galtara

4.6.2008 : Sumarferð Vinstri grænna

Sumarið er tíminn og hann ætlum við að nýta til að hittast, grilla, syngja og greiða lokka við Galtará. Veislan er að frumkvæði félaga í Norðvesturkjördæmi og verður haldin 21. júní við Fjallaskála að Galtará á Eyvindastaðheiði, keyrt er að sunnan gegnum Blönduós og fylgt merkingum að Blöndulóni. Skálinn er nálægt Blöndulóni (vegur F734) og er fólksbílafært. Nokkur svefnpokapláss eru í boði í skálanum og kostar nóttin 1.700 kr. Tjalda má að kostnaðarlausu við skálann. Vinstri græn bjóða upp á grill og skemmtun, mætið snemma dags og njótið fallegs umhverfis í góðum félagsskap. Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina fyrir 13. júní á netfanginu vg@vg.is eða í síma 552 8872. Við sameinumst í fólksbíla – látið vita hvaðan þið komið, hvort þið hafið laus pláss í bílunum eða vantar far.

Lesa meira

 

2.6.2008 : Evrópuhópurinn tekinn til starfa

Málefnahópur Vinstri-grænna um Evrópumál er nú tekinn til starfa og heldur annan fund sinn á morgun, þriðjudaginn 3. júní, kl. 20.00 í Suðurgötu 3. Áhugasamir sem vilja taka þátt í hópnum og vera á póstlista hans eru beðnir um að senda Katrínu Jakobsdóttur skeyti á katrinja@althingi.is.

Lesa meira
 
dalabyggd

30.5.2008 : Vinstri græn komin í meirihluta í Dalabyggð

Samkomulag náðist um nýtt meirihlutasamstarf í Dalabyggð í dag milli V-lista Vinstri grænna og H-lista. Unnið verður að málefnasamningi næstu daga og stefnt er að því að auglýsa sveitastjóraembættið laust til umsóknar á allra næstu dögum. Sveitastjórnarfulltrúar Vinstri grænna þau Þorgrímur E. Guðbjartsson og Halla S. Steinólfsdóttir líta björtum augum á meirihlutasamstarfið og telja alla möguleika á góðum málefnasamningi.

Lesa meira
 
Katrín jakobsdóttir

30.5.2008 : Tillaga Katrínar um Guantanamo samþykkt á Alþingi

Nú er Alþingi lokið í bili eftir stíf fundahöld síðustu daga. Áhersla Vinstri grænna var að stöðva nokkur stjórnarfrumvörp og fá frekari umræðu um þau. Þetta tókst með ágætum enda var matvælafrumvarpinu undeilda frestað svo og lögum um sjúkratryggingastofnun svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru bæði stórmál sem þurfa mun meiri umfjöllun. Það eru ekki mörg þingmannamál sem hljóta afgreiðslu hverju sinni en annað þeirra sem var samþykkt var þingsályktunartillaga Katrínar Jakobsdóttur um að Alþingi fordæmi ólöglega og ómannúðlega meðferð á föngum í búðum Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu. Ríkisstjórninni er falið að koma þessari ályktun á framfæri á alþjóðavettvangi. Þetta er sérstaklega viðeigandi þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir situr nú fundi með utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezu Rice og hefur því prýðilegt tækifæri til að koma fordæmingu Alþingis á framfæri.

Lesa meira
 
allyson_pollock

28.5.2008 : Breskur sérfræðingur ræðir markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins

Dr. Allyson Pollock prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi heldur morgun-verðarerindi hjá BSRB fimmtudaginn 29. maí kl. 8.15 - 10. Félagar í Vinstri grænum er sérstaklega hvattir til að hlusta á Dr. Pollock en hún hefur fylgst gaumgæfilega með afleiðingum markaðsvæðingar heilbrigðiskerfisins í Bretlandi og verið ötul við að koma þekkingu sinni á framfæri. Dr. Pollock heldur því fram að við séum að verða vitni að geysilega umfangsmiklum þjóðfélagsbreytingum - miklu meiri en fólk almennt geri sér grein fyrir - sem felast í því að markaðsvæða allt innra stoðkerfi samfélagsins. Þessu geri fólk sér hins vegar ekki almennt grein fyrir enda sé þetta gert smám saman og í alls kyns dulargervi. Sumir sem taka þátt í ákvarðanaferlinu vita ekki hvað þeir eru að gera á meðan aðrir séu með markmiðin skýr. Þegar breska heilbrigðiskerfið var gert að þjóðareign árið 1948 var það gert með einni lagasetningu. Þá vissu allir hvað var að gerast. Svo er ekki nú. Undir aðskiljanlegum heitum, „einkaframkvæmd", „einkarekstur", „samstarf ríkis og einkageira" er verið að ýta heilbrigðiskerfinu út á markaðstorgið.

Lesa meira
 

27.5.2008 : Þingflokkur Vinstri grænna fagnar frestun á innflutningu á hráu kjöti

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fagnar því að frumvarpi til laga þar sem opnað er fyrir innflutning á hráu kjöti hafi verið frestað fram á haust, eins og fram kemur í viðtali við landbúnaðarráðherra í Bændablaðinu í dag. Enginn vafi er á því að samstaða og samtakamáttur Bændasamtakanna, íslenskra matvælafram-leiðenda og neytenda, sérfræðinga í matvælaheilbrigði og fjölmargra sveitarfélaga á landsbyggðinni skipti sköpum um undanhald ráðherra. Frestunin er í samræmi við tillögur Vinstri grænna sem kynntar voru í fundaröð flokksins 13.-14. maí sl., en Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur mjög látið til sín taka í málinu.

Þingflokkur VG treystir því að sjávarútvegs- og landabúnaðarnefnd alþingis nýti sumarið til að skoða ofan í kjölinn afleiðingar frumvarpsins fyrir íslenskt samfélag og leitað verði allra leiða til að halda núverandi fyrirkomulagi. Taka ber að taka mið af rökstuddri gagnrýni frá aðilum í greininni sem telja að frumvarpið grafi undan innlendri framleiðslu og þýði að störfum muni fækka, og ekki síður varnarorðum Margrétar Guðnadóttur veirufræðings og fleiri sérfræðinga sem telja að innflutningur á hráu kjöti skapi hættu á auknum sýkingum og búfjársjúkdómum.

Lesa meira
 
torsk

27.5.2008 : Kosið um vændi og mansal á Alþingi

Fjöldi mála bíður nú afgreiðslu á Alþingi síðustu dagana fyrir þingfrestun. Eitt þeirra mála er breyting á almennum hegningarlögum sem ætlað er að taka á hryðjuverkum, peningaþvætti og mansali. Frumvarpið er nú til umfjöllunar í allsherjarnefnd en fulltrúi Vinstri grænna þar, Atli Gíslason, hefur ýmislegt við frumvarpið að athuga. Í fyrsta lagi þá eru ekki gerðar nauðsynlegar lagabreytingar til að Ísland geti fullgilt alþjóðasáttmála gegn mansali, sem við höfum þó skuldbundið okkur til að gera. Í öðru lagi eru of rúmar lagaheimildir gegn hryðjuverkum lagðar til í frumvarpinu og óljóst hvort að það samræmist alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Í þriðja lagi eru veittar mjög rúmar heimildir til eignaupptöku ef grunur leikur á að viðkomandi eða maki hans sé hryðjuverkamaður. Í fjórða lagi má svo nefna allar þær tillögur sem Vinstri græn hafa til breytinga á hegningarlögunum sem ekki hafa náð í gegn síðustu ár, en nauðsynlegt er að halda þeim til haga við breytingar á lagabálkinum.

Lesa meira
 
belja

27.5.2008 : Hráa kjötið sjálfdautt

Það hefur varla farið fram hjá lesendum þessarar síðu að Vinstri græn hafa haldið uppi mikilli baráttu gegn matvælafrumvarpinu svokallaða sem leyfir innflutning á hráu kjöti. Haldnir voru fjöldi funda, komið á framfæri varnaroðrum sérfræðinga og hagsmunaaðila auk þess sem birtar hafa verið á síðunni ályktanir fjölda sveitastjórna sem hvetja til þess að frumvarpið verði fellt. Ljóst er að miklir hagsmunir eru í húfi fyrir íslenskan landbúnað og heilbrigði matvæla. Í morgun lýsti Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einar K. Guðfinnsson, því yfir á síðum bændablaðsins að frumvarpinu yrði frestað fram á haust. Það er því fullt tilefni til að lýsa yfir áfangasigri í málinu, en baráttan heldur áfram í sumar og haust.

Lesa meira
 
fiskveidar

26.5.2008 : Tillögur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs að svari til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna

Starfshópur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um sjávarútvegsmál hefur í samráði við stjórn og þingflokk unnið tillögur að æskilegu svari til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Tillögurnar eru af hálfu VG einnig hugsaðar sem almennt innlegg til málsins, til málefnalegra skoðanaskipta og upplýstrar umræðu. Þær eru okkar framlag í því skyni að takast megi góð þverpólitísk samvinna um endanlega úrlausn málsins. Tillögur VG að svari eru eftirfarandi:

Lesa meira
 
fiskveidar

26.5.2008 : Breytt fiskveiðistjórn: Svör við áliti mannréttindanefndar SÞ

Eftir 17 daga rennur út frestur íslenskra stjórnvalda til að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, þar sem íslenska fiskveiðistjórnarkerfið er gagnrýnt fyrir að brjóta gegn jafnræðis- og sanngirniskröfum alþjóðasamningsins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.

Enn hafa nær engar upplýsingar fengist um hugsanleg svör íslenskra stjórnvalda við álitinu. Vinstrihreyfingin – grænt framboð tekur álitið mjög alvarlega og vill ráðast strax í úrbætur. Vegna alvarleika málsins er flokkurinn tilbúinn að skoða nýjar leiðir til að breyta fiskveiðistjórnarkerfinu í samræmi við niðurstöðu mannréttindanefndarinnar og ná sátt um sjávarútveginn í landinu.

Með það að markmiði hefur mikið málefnastarf verið unnið innan Vinstri-grænna síðastliðna mánuði. Forysta flokksins mun kynna niðurstöður þeirrar vinnu kl. 13:30 í dag, niðurstöðurnar verða kynntar á vefnum um leið.

Lesa meira
 

22.5.2008 : Pólitískt kjarkleysi meirihlutans á Akureyri

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri lýsir yfir miklum vonbrigðum með að tillaga bæjarfulltrúa Vinstri –grænna um að skora ætti á ríkisstjórn Íslands að fresta svokölluðu matvælafrumvarpi fékkst hvorki afgreidd á bæjarstjórnarfundi né í bæjarráði nú í vikunni. Ákveðið var að fresta málinu til næsta bæjarráðsfundar. Slík frestun lýsir stórkostlegum vandræðagangi meirihlutans í þessu máli og ber vott um pólitískt kjarkleysi.

Tillagan kvað á um að það væri „algjört lágmark að fresta málinu um sinn til að gefa hagsmunaaðilum í greininni og ríkisstjórninni meiri tími til að gera ráðstafanir svo að hægt sé að standa vörð um íslenska matvælaframleiðslu og landbúnað.” Henni fylgdi líka ítarleg greinargerð. Lesa meira

 
Margrét Guðnadóttir

22.5.2008 : Umsögn Margrétar Guðnadóttur prófessors: Frumvarpið beinlínis skaðlegt

Umsögn Margrétar Guðnadóttur, veirufræðings um frumvarp sem leyfir innflutning á hráu kjöti hefur vakið mikla umræðu og haft áhrif á viðhorf til frumvarpsins. Umsögn Margrétar hefur hvergi birst opinberlega en hér má lesa hana í heild sinni:

Til sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis.

Með bréfi dagsettu 14/4 2008, óskaði sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis eftir umsögn undirritaðrar um frumvarp til laga um endurskoðun á undanþágum frá 1. Kafla, 1. Viðauka við EES-samninginn, 524. Mál, EES reglur, breyting ýmissa laga. Skal nú reynt að verða við þeirri ósk. Lesa meira

 
belja

20.5.2008 : Borgarbyggð bætist í hópinn að frumkvæði VG

Finnbogi Rögnvaldsson, sveitastjórnarfulltrúi Vinstri grænna í Borgarbyggð lagði fram svohljóðandi ályktun á sveitarstjórnarfundi sem var samþykkt samhljóða: Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir áhyggjum vegna yfirlýsinga einstakra ráðherra um innflutning landbúnaðarafurða. Ljóst er að hvers konar tilslakanir koma verst niður á atvinnulífi á landsbyggðinni, bæði hjá bændum og í úrvinnslugreinum. Sökum þess hversu íslenskur markaður er lítill og landið einangrað er mikilvægt að allar stærri ákvarðanir á þessu sviði séu teknar á grundvelli langtímastefnumörkunar þar sem tekið er tillit til atvinnulífs, matvælaöryggis, byggðaþróunar og stöðu alþjóðlegra matvælamarkaða. Jafnframt minnir sveitarstjórn á að innflutningur á hráu kjöti skapar hættu á búfjársjúkdómum sem valdið hafa evrópskum landbúnaði miklum búsifjum á undanförnum árum.

Lesa meira
 
belja

20.5.2008 : Þungar áhyggjur um allt land vegna frumvarps um innflutning á hráu kjöti

Sveitarstjórnarmenn allra flokka hafa þungar áhyggjur af atvinnu þeirra sem vinna í matvælaframleiðslu ef fyrirliggjandi frumvarp um innflutning á hráu kjöti verður samþykkt. Störf í matvælaframleiðsla skipta þúsundum á landsbyggðinni bæði í frumframleiðslu og afleiddum störfum. Fjöldi sveitastjórna hafa ályktað gegn frumvarpinu, þeirra á meðal eru Húnaþing Vestra, Norðurþing, Blönduósbæ, Skagafjörður og Vopnafjarðarhreppur. Ályktanir þeirra eru svohljóðandi:

Lesa meira
 
VG-RS-2-Alfheidur_Ingadottir__017.jpg

19.5.2008 : Úrskurður Skipulagsstofnunar vegna Bitruvirkjunar: Boltinn er hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Borgarstjórn

Álfheiður Ingadóttir, þingkona Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir það fagnaðarefni að Skipulagsstofnun hafi gefið út álit þess efnis að bygging Bitruvirkjunar væri ekki viðunandi vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu. „Ég held að flestir íbúar á Suðvesturhorninu séu sammála þessu áliti og ég vona að Orkuveita Reykjavíkur og borgarstjórn Reykjavíkur falli frá fyrirætlunum um Bitruvirkjun. Það verður að hafa í huga að þó Bitruvirkjun verði ekki að veruleika er engu að síður nauðsynlegt að setja reglur sem skylda orkufyrirtækin að hreinsa brennisteinsvetni úr útblæstrinum,“ segir Álfheiður og minnir á þingsályktunartillögu Vinstri grænna í þá veru. „Þessi virkjanaáform hafa hreyft við mörgum enda sýnir fjöldi athugasemda frá almenningi hversu margir hafa gengið fram fyrir skjöldu, þetta er sigur svo margra. Það má alls ekki fórna þessari náttúruparadís fyrir iðnaðarsvæði.“

Lesa meira
 
belja

19.5.2008 : Bæjarstjórn Akureyrar greiðir atkvæði á morgun um tillögu VG að fresta frumvarpi um innflutning á hráu kjöti

Bæjarfulltrúar Vinstri grænna á Akureyri hafa lagt fram svohljóðandi tillögu:

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar skorar á ríkisstjórn Íslands að fresta afgreiðslu frumvarps laga um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I.kafla I. viðauka við EES samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins. Á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu er eitt öflugusta landbúnaða og matvælasvæði landsins. Frumvarp ríkisstjórnarinnar felur í sér róttækar breytingar á rekstrarumhverfi íslensk landbúnaðar og matvælaframleiðslu en með því er opnað fyrir óheftan innflutning á hráu kjöti og ýmsu hrámeti til landsins. Það er því algjört lágmark að fresta málinu um sinn til að gefa hagsmunaaðilum í greininni og ríkisstjórninni meiri tími til að gera ráðstafanir svo að hægt sé að standa vörð um íslenska matvælaframleiðslu og landbúnað.

Kristín Sigfúsdóttir og Baldvin H. Sigurðsson

Lesa meira
 
Margrét Guðnadóttir

14.5.2008 : Afleiðingar frumvarpsins beinlínis hættulegar heilbrigði manna og dýra

Margrét Guðnadóttir veirufræðingur hefur kynnt sér frumvarp til laga þar sem lagt er til að leyfður verði innflutningur á hráu kjöti. Frumvarpið er til umfjöllunar þessa dagana en það hefur mætt harðri andstöðu fólks í landbúnaðinum og þeirra sem sinna sóttvörnum og eftirliti. „Ég er hrædd um að ef frumvarpið verður samþykkt höfum við ekki lengur sóttvarnaráhrif. Við höfum þegar gengið eins langt og hægt er að ganga og nú er lífsnauðsynlegt að við höldum þeim undanþágum sem við höfum fengið. Við verðum að viðurkenna sérstöðu landbúnaðarins rétt eins og sjávarútvegsins. Hér á landi er mjög lítið af sjúkdómum en landbúnaðurinn er viðkvæm atvinnugrein sem þolir lítil áföll.“

Margrét var beðin um álit á frumvarpinu sem hún veitti sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis góðfúslega. Í álitinu segir meðal annars: Lesa meira

 
frummalendur_og_fundarstyra_landbunadur

14.5.2008 : Breytingar á matvælalöggjöfinni harðlega gagnrýndar á fundi Vinstri grænna í gær

Húsfyllir var á fundi Vinstri grænna um matvælaöryggi og framtíð íslensks landbúnaðar í Bændahöllinni í gær. Fjöldi fólks tók þátt í umræðum um fyrirhugaðar breytingar á lögum þar sem leyft verður að flytja inn hrátt kjöt til landsins og var talsverður hiti í fundarmönnum.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, fagnaði að VG efni nú til umræðu um fyrirhugaðar breytingar og gagnrýndi það sem hann kallaði kæruleysislega afstöðu og ummæli ráðherra og stjórnmálamanna sem virtust umgangast þetta umfangsmikla og alvarlega mál af vanþekkingu. Hann lýsti yfir mikilli óánægju með að nánast ekkert samráð hafi verið við Bændasamtökin um efni frumvarpsins og að það sé nú keyrt í gegnum þingið án þess að samtökin fái tækifæri til að skoða frumvarpið ofan í kjölinn. Haraldur sagði það algjört frumskilyrði að fresta málinu fram á haust svo meiri tími gæfist til að bregðast við þeim stórfelldu breytingum sem boðaðar eru á einu bretti. Haraldur sagði ljóst hverjum frumvarpið kæmi til góða þar eð yfirburðastaða smásölukeðja á markaði yrði enn sterkari en fyrr, en um 80% smásölunnar er í höndum tveggja aðila. Haraldur minnti á að samtök bænda um allan heim hvetja nú til ábyrgrar og upplýstrar umræðu um fæðuöryggi þjóða, enda matvælabúskap heimsins ógnað, og það væri átakanlegt að heyra þá léttúð sem þessi mál fengju í opinberri umræðu hérlendis. Lesa meira

 
fundur_med_bandasamtokunum

13.5.2008 : Matvælaframleiðendur sóttir heim

Þingflokkur Vinstri grænna fer um landið í dag og á morgun í heimsóknir til fyrirtækja og hagsmunaaðila í matvælaframleiðslu til að ræða breytingar þær sem fyrirhugaðar eru í innflutningi á matvælum. Ferðin er farin undir yfirskriftinni „Matvælaöryggi og framtíð íslensks landbúnaðar“. Dagurinn hófst með heimsókn til Bændasamtakanna en auk þess verða Keldur sóttar heim, Mjólkursamsalan og Síld og fiskur svo eitthvað sé nefnt. Í kvöld verður haldinn fundur á Hótel Sögu klukkan 20. Frummælendur á þeim fundi verða Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, Hildur Traustadóttir, framkvæmdastjóri Félags kjúklingabænda og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Fundinum stýrir Álfheiður Ingadóttir, þingkona. Á morgun verður farið um landið og fundir haldnir á Blönduósi, á Húsavík og á Hvolsvelli. Nánari dagskrá þeirra er sem hér segir:

Lesa meira
 

9.5.2008 : Matvælaöryggi og framtíð íslensks landbúnaðar

Vinstrihreyfingin – grænt framboð stendur fyrir upplýsingafundum um land allt um matvælaöryggi og framtíð íslensks landbúnaðar dagana 13.-14. maí. Markmið fundanna er að leiða saman forystufólk og sérfræðinga á sviði matvælaframleiðslu, landbúnaðar og verkalýðsmálum til að gefa sem gleggsta mynd af þeim áskorunum sem íslenskur landbúnaður stendur frammi fyrir. Fyrir fundina heimsækja þingmenn Vinstri grænna matvælaframleiðendur á hverju svæði. Sérstaklega verður rætt um nýtt frumvarp ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að leyfa óheftan innflutningu á hráu kjöti.

Fundarröðin er sem hér segir: Lesa meira

 
thjorsa

8.5.2008 : Hefur Landsvirkjun umboð til eignarnáms?

Atli Gíslason, þingmaður vinstri grænna, spurði umhverfisráðherra á Alþingi í dag hvort Landsvirkjun hefði umboð ríkisstjórnarinnar til eignarnáms á landi við fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í Flóahreppi. Tilefnið voru orð Friðriks Sóphussonar, forstjóra Landsvirkjunar, sem hann lét falla í Fréttablaðinu fyrir skömmu að Landsvirkjun hafi umboð til að fara með það mál og gaf í skyn að eignarnámi yrði beitt væri það nauðsynlegt.

Þórunn Sveinbjarnardóttir er ekki samþykk því að Landsvirkjun fái umboð til eignarnáms og segir ekkert sem kalli á að það verði veitt. Ljóst er að baráttan um Þjórsá heldur áfram og upplýsingar liggja ekki á lausu um framvindu mála. Stór hætta er á því að lýðræðið verði fótum troðið við slíkar kringumstæður. Lesa meira

 
Jón Bjarnason

8.5.2008 : Strandsiglingar

Vegna umræðu síðustu daga um strandsiglingar ber að taka fram að Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur ítrekað lagt fram þingsályktunartillögu um að hafnar verði strandsiglingar á ný. Þjóðhagslegt gildi þeirra er ótvírætt með hliðsjón af umhverfis- og byggðaáhrifum, umferðaröryggi og fleiru. Ítarleg gögn fylgja í greinagerð með tillögunni en hana má nálgast hér:

Lesa meira
 
leikskoli

6.5.2008 : Pláss á einkareknum leikskóla dýrara en á öðrum leikskólum

Hlynur Hallsson, fulltrúi Vinstri grænna í skólanefnd Akureyrar lét bóka 5. maí af gefnu tilefni:

Nú stefnir í að leikskólinn Hólmasól verði Akureyrarbæ enn kostnaðarsamari en fyrirséð var. Samningur bæjaryfirvalda við "Hjallastefnuna ehf" er vísitölubundinn meðan aðrir leikskólar á Akureyri fá fasta upphæð árið 2008, þrátt fyrir um 12% verðbólgu. Hvert pláss á Hólmasól er nú þegar dýrara fyrir Akureyrarbæ og foreldra en pláss á öðrum leikskólum og ef fram heldur sem horfir mun Akureyrarbær greiða hlutfallslega mun hærri upphæð fyrir Hólmasól en aðra leikskóla í bænum. Það er því ljóst að einkarekstarstefna Sjálfstæðisflokks hefur enn og afturbeðið skipsbrot og nú bitnar það á foreldrum barna á Akureyri og Akureyrarbæ. Þessa mismunun þarf að leiðrétta.

Lesa meira
 

6.5.2008 : Þjóðþing berjist af alefli gegn kynbundnu ofbeldi

ViolencedomÍ lok apríl hélt þingmannarnefnd Evrópuráðsins ráðstefnu í Vínarborg vegna herferðar sem staðið hefur í rúm tvö ár gegn ofbeldi gagnvart konum, þar með talið heimilisofbeldi. Steingrímur J. Sigfússon er formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins, nefndar um jöfn tækifæri kvenna og stýrði hann ráðstefnunni af miklum myndugleika. Ráðstefnunni lauk með samþykkt yfirlýsingar um að þjóðþing bregðist þegar við kynbundnu ofbeldi gagnvart konum.

Lesa meira
 
vtv

5.5.2008 : Baráttan við hnattræna fátækt

„Friður og hagvöxtur er forsenda þess að unnt sé að vinna bug á hinni hnattrænu fátækt.“ Þetta sagði Erik Solheim, umhverfis- og þróunarmálaráðherra Noregs á ráðstefnu SV, systurflokks Vinstri grænna í Noregi nú um helgina.  Solheim gerði grein fyrir stefnu norsku ríkisstjórnarinnar í málefnum þróunarsamvinnu og í baráttunni gegn hnattrænni fátækt. 

Það er markmið að vinna bug á fátækt með markvissri þróunaraðstoð með áherslu á hraðan hagvöxt og atvinnu fyrir sem flesta.  Engum blöðum er um það að fletta að eigi þróunarlöndin að geta unnið sig út úr sárri fátækt alls almennings verða þau að búa við öryggi og almennan stöðugan hagvöxt og tryggja að afraksturinn verði eftir í viðkomandi landi til uppbyggingar innviða samfélagsins.  Um leið þarf að leggja áherslu á að tengja saman umhverfismálin við efnahags- og atvinnumálin.  Það má ekki gleyma því að Afríka ber nánast enga ábyrgð á þeirri losun gróðurhúsalofttegunda sem er að valda hinum miklum loftslagsbreytingum sem við mætum, en samtímis er Afríka sá heimshluti sem verður fyrir hvað mestum áhrifum af loftslagsbreytingum.  Þess vegna verða þróuð ríki að taka á sig kostnaðinn sem þessu fylgir.

Lesa meira
 
john_mcdonnell

3.5.2008 : John McDonnell um úrslit kosninganna í Bretlandi

Í dag hittu Vinstri græn og fulltrúar fleiri vinstrigrænna flokka á Norðurlöndunum John McDonnell, þingmann breska Verkamannaflokksins og mótframbjóðanda Gordons Brown í formannskosningunum á síðasta ári. McDonnell fer fyrir vinstrisinnuðum hópi þingmanna Verkamannaflokksins og leiðir auk þess starf róttækra verkalýðshreyfinga í Bretlandi.

Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Bretlandi, og mesta ósigur Verkamannaflokksins þar í 40 ár, voru að vonum til umræðu og hafði McDonnell margt athyglisvert um þær að segja. McDonnell benti á að á nokkrum árum hafi flokksmeðlimum í Verkamannaflokknum fækkað úr um 500.000 í 150.000, sem þýðir líka að fáir voru eftir í flokknum til að vinna í kosningabaráttunni.

Lesa meira
 
vtv

3.5.2008 : Kyn og völd: Samþætting er ekki nóg

Eins og Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur systurflokkurinn í Noregi SV, skilgreint sig sem feminískan flokk. Þetta þýðir að kvenfrelsisáherslur skulu hafðar til hliðsjónar í öllu starfi og stefnumótun. Á ráðstefnunni Verden til venstre var fjallað sérstaklega um hvernig þetta gengi og hvaða áherslur kvenfrelsisflokkar þurfa að hafa. Útgangspunkturinn er að kyn er áhrifaríkasta breyta lífsins, hvers kyns fólk er, er það síðasta sem við gleymum. Út frá kyni ræðst staða okkar í samfélaginu og líkt og annars staðar er kynbundið valdamisvægi inngróið í norska samfélagið. Hugtakið jafnrétti er orðið þvælt og of almennt til að það nái yfir þá baráttu að jafna kynjuð valdahlutföll, við getum varla talað um nokkurn hlut sem er óháður kyni.

Lesa meira
 
vtv

3.5.2008 : Árni Þór ber SV kveðju frá Vinstri grænum

Árna Þór Sigurðssyni var boðið að ávarpa ráðstefnu SV í Noregi, Verden til venstre. Hér fylgir ræða Árna:

Kæru félagar og vinir.

Ég vil byrja á því að óska ykkur öllum til hamingju með þessa metnaðarfullu og tímabæru ráðstefnu um grundvallargildi í stjórnmálum samtímans og framtíðarsýn. Sömuleiðis þakka ég fyrir boðið um að ávarpa ráðstefnuna, sem fulltrúi hins íslenska systurflokks SV, Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Það er sérhverri stjórnmálahreyfingu nauðsynlegt að endurnæra hinn pólitíska anda og hina pólitísku baráttu stöðugt nýjum hugmyndum og lausnum.  Launum sem taka mið af þróun samfélagsins og þeim áskorunum og ögrunum sem við stöndum frammi fyrir frá einum tíma til annars.  Með þeim hætti styrkjum við stoðir þeirra pólitísku lífsgilda sem allt okkar stjórnmálastarf byggir á.  Frumkvæði SV með þessari ráðstefnu og þeirri umfangsmiklu undirbúningsvinnu og umræðu sem farið hefur fram í aðdraganda hennar er til marks um lifandi og frjótt stjórnmálastarf.

Lesa meira
 
vtv

3.5.2008 : Heimurinn til vinstri

Systurflokkur Vinstri grænna í Noregi, SV, stendur fyrir metnaðarfullri ráðstefnu um helgina sem ber heitið “Verden til venstre”. Á ráðstefnunni eru fjölda málstofa um þau viðfangsefni sem hæst bera í stjórnmálum í dag og lausnir á þeim út frá félagshyggjusjónarmiðum. Vinstri græn eiga þrjá fulltrúa á ráðstefnunni; Árna Þór Sigurðsson, Drífu Snædal og Finn Dellsén. Formaður SV Kristin Halvorsen opnaði ráðstefnuna með þrumandi ræðu um verkefni vinstriflokka og árangur þeirra síðustu áratugi. SV hefur setið í ríkisstjórn Noregs síðustu tvö ár og heldur betur náð að setja mark sitt á stjórnmálin. Kristin rifjaði upp baráttuna fyrir tuttugu árum síðan þegar SV var brautryðjandi í réttindabaráttu samkynhneigðra en í sumar ganga í gildi lög í Noregi sem gerir hjónaband jafn gilt óháð kynhneigð. Hún fjallaði um réttindabaráttu kvenna og hvernig vinstriflokkarnir tóku kröfur rauðsokkanna á dagskrá, meðal annars baráttuna fyrir leikskólaplássum, en síðustu ár hefur þeim stórfjölgað í Noregi.

Lesa meira
 

2.5.2008 : Fjölmenni í kaffi hjá Vinstri grænum þann 1. maí

Mikill fjöldi fólks kom við í kaffiboðum Vinstri grænna 1. maí. Áætlað er að um fjögur hundruð manns hafi lagt leið sína í Vesturgötu 7, þar sem kaffi og kökur runnu ljúflega niður undir innblásnum erindum, ljóðaupplestri, söng og gítarspili. Í Kragakaffi var stemningin ekki síðri, þar var húsfyllir meðan Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hélt hvatningarræðu og var gerður góður rómur að þeim atriðum sem á eftir fylgdu. Þar var boðið upp á tónlistarflutning og ljóðalestur, sem í bland við góðan félagsskap, gerði kaffið ljúffengara og kræsingarnar óviðjafnanlegar. Baráttudagur verkafólks lukkaðist sem sagt eins og best verður á kosið, fjölmenni og gott veður á opinberum samkomum, og baráttuhugur ríkjandi meðal þeirra sem heimsótti okkur Vinstri-græn.

Lesa meira
 
forsidubox

1.5.2008 : 1. maí

Vinstri græn óska landsmönnum öllum til hamingju með daginn og hvetja til öflugrar baráttu. Þann 1. maí fögnum við áföngum í stéttarbaráttunni en sigrar síðustu alda hafa svo sannarlega verið sætir enda byggir velferðakerfi okkar í dag á þeim. Lífeyrissjóðirnir, almannatryggingakerfið, veikindadagar og önnur réttindi launafólks fengust með ötulli baráttu hinna vinnandi stétta. Þessi réttindi voru ekki skömmtuð úr hnefa heldur árangur samstöðu og harðrar baráttu félagshyggjufólks fyrir velferð og jöfnuði.

Lesa meira
 
NATO_logo

30.4.2008 : Háskóli Íslands og NATO-væðingin

Samtökin Ung vinstri græn hafa sent Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla íslands, opið bréf þar sem gagnrýnt er að á málþingi HÍ um mikilvægi Afganistan fyrir NATO hafi tveir menn, báðir úr innsta ranni NATO, flutt erindi en enginn fulltrúi gagnstæðra sjónarmiða. Bréf Ungra vinstri grænna er svohljóðandi:

Lesa meira
 

30.4.2008 : Kópur kominn út

Blað Vinstri grænna í Kópavogi, Kópur er nýkomið út. Blaðið er helgað 1. maí og er þar fjallað um baráttuna fyrr og nú, fréttir eru sagðar úr félagsstarfinu og bæjarmálunum. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér. Lesa meira
 
forsidubox

30.4.2008 : Kaffi 1. maí

Í tilefni alþjóðlegs baráttudags launafólks 1. maí bjóða Vinstri græn í Reykjavík og í Kópavogi upp á kaffi eftir göngu.

Í Reykjavík verður kaffið að Vesturgötu 7 en í Kópavogi verður hellt á könnuna í húsnæði flokksins að Hamraborg 1-3.

Lesa meira
 
torleifur_gunnlaugsson

28.4.2008 : Yfirlýsing frá Þorleifi Gunnlaugssyni borgarfulltrúa

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um Fríkirkjuveg 11 í vil ég koma á eftirfarandi á framfæri

  1. Ekki er búið að ganga frá sölu á Fríkirkjuvegi 11. Það verður í fyrsta lagi gert á fundi borgarstjórnar 6. maí nk. Þar munu 15 borgarfulltrúar taka afstöðu til kaupsamningsins, þar á meðal borgarstjóri en hann hefur ekki atkvæðisrétt í borgarráði.
  2. Slíkir meinbugir voru á gögnum sem lögð voru fyrir borgaráð í gær að ætla má að borgarráðsfulltrúum hafi verið gert ómögulegt að taka upplýsta ákvörðun og af yfirlýsingum borgarstjóra má ætla að hann hafi verið blekktur
Lesa meira
 
soley_tomasdottir

28.4.2008 : Yfirlýsing frá fyrrverandi formanni mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar

Í kvöldfréttum 26. apríl sagði borgarstjóri að fyrirætlanir Tjarnarkvartettsins um að efla mannréttindaskrifstofu borgarinnar hafi verið tilraun til að þenja út stjórnkerfið. Hann sagði jafnframt að starfsemi skrifstofunnar hafi verið óljós og illa skilgreind. Verkefni skrifstofunnar séu ekki jafn brýn og að tryggja velferð og góða þjónustu við borgarbúa.

Þessi ummæli borgarstjórans eru til skammar, enda byggð á vanþekkingu á málaflokknum, fordómum og virðingarleysi gagnvart minnihlutahópum og borgarbúum öllum.

Lesa meira
 
frikirkjuvegur_11

25.4.2008 : Bókun VG í Borgarráði vegna sölu Fríkirkjuvegar 11

Í borgarráði í morgun var sala á Fríkirkjuvegi 11 samþykkt af meirhlutanum. Fulltrúi VG greiddi atkvæði gegn sölunn með eftirfarandi bókun og fer málið því fyrir borgarsjórnarfund 6. maí næstkomandi. Vert er að minna á undirskriftasöfnun til verndunar Hallargarðinum:

http://www.petitiononline.com/f11rv101/petition.html

Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði telur fráleitt að undirrita samning þar sem Reykjavíkurborg afsalar sér í raun forræði yfir Hallargarðinum öllum og afhendir þar að auki einkaaðilum lóð sem börn og ungmenni hafa nýtt sér til leikja um áratugi. Garðurinn og gerðið á bak við húsið er í eigu almennings og borgaryfirvöld eiga að hafa fullan og óskoraðan rétt til að sinna honum eins og öðrum opnum svæðum borgarinnar án íhlutunar einkaaðila.

Lesa meira
 
jon,_bjorn_og_drifa_080422

23.4.2008 : Ferð Jóns, Björns Vals og Drífu um Snæfellsnes

Jón Bjarnason, Björn Valur Gíslason og Drífa Snædal fóru um Snæfellsnes í gær, heimsóttu fyrirtæki og félagasamtök og héldu opinn fund í lok dags. Morgunkaffið var drukkið með eldri borgurum í Verkalýðshúsinu í Stykkishólmi og landsins gagn og nauðsynjar kryfjaðar. Litið var inn í Grunnskólann og rætt við kennara og nemendur sem höfðu allir ýmislegt til málanna að leggja í pólitíkinni. Þá var komið við hjá Sæferðum, en reglulegar vetrarferðir Breiðafjarðarferjunnar Baldurs eru í hættu þar sem ekki hafa náðst áframhaldandi samningar við Samgönguráðuneytið. Hin stórkostlega skútusmíð í Skipavík var skoðuð, en skútan sem sækir fyrirmynd sína til víkingaskipa verður sjósett í sumar og kynnt á markaði með áframhaldandi smíðar í huga.

Lesa meira
 
Ögmundur Jónasson

23.4.2008 : Ögmundur tekur málstað Tha'er Mahmoud Husni Rmailats að beiðni Amnesty

Á vef Ögmundar Jónassonar, www.ogmundur.is má lesa frásögn af samskiptum hans við Mahmoud Abbas á Bessastöðum í gær. Á vefnum segir meðal annars:

Fyrir heimsóknina fór Íslandsdeild Amnesty International þess á leit við íslensk stjórnvöld , svo og alla þá sem kæmu til með að ræða við Abbas og fylgdarlið hans,  að taka til umræðu mál hins 23 ára gamla Tha'er Mahmoud Husni Rmailats, sem dæmdur hefur verið til dauða í Palestínu og þess óskað að Mahmoud Abbas skrifi ekki undir aftökuskipun hans.  Þá fór Amnesty International fram á afnám dauðadóms og hvetur Palestínumenn, hvort sem er úr Fatah hreyfingunni eða Hamas að virða mannréttindi í hvívetna.  

Ég varð við ákalli Amnesty International og tók upp mál hins dauðdæmda manns við  Mahmoud Abbas í viðræðum við hann á Bessastöðum. Fram hefur komið í fréttum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráherra, hafi gert slíkt hið sama á fundi með Abbas síðar um daginn. Er það vel. Hins vegar er ósköp dapurlegt að fylgjast með því hvernig Íslendingar lötra þá slóð sem Washington vísar þeim í málefnum Palestínu sem öðrum alþjóðamálum. Lesa meira

 
fylgi_210408

21.4.2008 : Stuðningur við Vinstri græn eykst

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins er fylgi Vinstri grænna nú 20,9% og er það umtalsverð hækkun frá síðustu könnun, eða 6-7%. Fylgi Samfylkingarinnar dregst hins vegar talsvert saman og er nú 26,8%. Aðrir flokkar standa nokkurn veginn í stað frá síðustu könnun blaðsins.

Stuðningurinn kemur ekki á óvart enda hafa Vinstri-græn verið sérstaklega áberandi síðustu vikur. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og frumkvæði VG í þeim efnum hefur eflaust haft mikil áhrif, en líka afdráttarlaus afstaða flokksins gegn álversframkvæmdum og nýjum áherslum stjórnvalda í utanríkismálum sem einkennast af vígvæðingu og aukinni þátttöku í NATO. Lesa meira

 
holar_i_hjaltadal

19.4.2008 : Ráðist gegn aðalatvinnuvegi heilla landshluta

Félög Vinstri grænna í Skagafirði og Húnavatnssýslum skora á Alþingi að stöðva frumvarp ríkisstjórnarinnar sem galopnar á innflutning á fersku kjöti og kjötvörum til landsins. Með frumvarpinu er ekki einungis vegið að einstökum atvinnugreinum heldur afkomu heilu landshlutanna ásamt því að sjúkdómavörnum og öryggi neytenda er teflt í tvísýnu.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem jafnframt fór með ráðuneyti landbúnaðarmála gaf vilyrði fyrir óheftum innflutningi á hráu kjöti og kjötvörum. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar hyggst nú fullkomna það verk með lagasetningu. Sem fyrr er um algert sinnuleysi að ræða gagnvart séríslenskum hagsmunum og möguleikum okkar að fá tillit til þeirra tekið í samningum og við lagasetningu.

Enginn landshluti á eins mikið undir landbúnaði og kjötvinnslu eins og Skagafjörður og Húnavatnssýslur. Með frumvarpinu er ráðist gegn afkomu heils landshluta. Því er skorað á ríkisstjórnina að draga frumvarpið til baka og taka þessi málefni til vandaðri meðferðar.

Lesa meira
 

18.4.2008 : Verndum Hallargarðinn

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík mótmælir þeirri ákvörðun borgarstjórnar að selja Fríkirkjuveg 11 til einkaaðila. Að auki stendur til að afhenda yfirráð yfir Hallargarðinum í hendur einkaaðila og breyta honum með ýmsum hætti til þess að þjóna hagsmunum þeirra.

Garðurinn er í eigu borgarbúa og eiga borgaryfirvöld að hafa full yfirráð yfir honum eins og öðrum opnum svæðum í borginni án afskipta einkaaðila. Kjörnum fulltrúum í Reykjavík ber að gæta hagsmuna Reykvíkinga en ekki sérhagsmuna auðmanna eins og raun ber vitni í þessu máli.

Loks lýsir stjórn Vinstri grænna í Reykjavík yfir furðu sinni á því að borgaryfirvöld skuli liggja flöt fyrir auðmönnum með þessum hætti og hundsa réttindi borgarbúa til óskerts aðgengis að Hallargarðinum. Auðmenn eiga ekki rétt á sérmeðferð af hendi borgarinnar!

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík

Lesa meira
 
samfylking_logo

17.4.2008 : Fer andstaðan við skólagjöld sömu leið og Fagra Ísland?

Núverandi ríkisstjórn mun leggja á skólagjöld í opinberum háskólum nema Samfylkingin standi gegn því. Þess vegna er mikilvægt að gera sér grein fyrir stefnu flokksins varðandi skólagjöld en einstaka þingmenn virðast tala þvert gegn samþykktri stefnu – þar með talið formaðurinn.

Í Viðskiptablaðinu 15. október 2004 segir Ingibjörg Sólrún, formaður Samfylkingarinnar: ,,Mér finnst skólagjöld á háskólastigi alveg geta komið til álita. Það skiptir auðvitað verulegu máli hvernig þau eru lögð á, t.d. hvort það yrði á allt háskólastigið eða einvörðungu framhaldsnám. Það er líka verulegur munur á aðstæðum eftir háskólagreinum, en ég sé engin sanngirnisrök fyrir því að fólk borgi verulegar fjárhæðir fyrir fullorðinsfræðslu og fyrir börn á leikskólum en ekkert fyrir aðgang að háskólum.“

Lesa meira
 

16.4.2008 : Samfylkingin:

Björn Valur Gíslason, varaþingmaður Vinstri grænna hóf umræðu á Alþingi áðan um skólagjöld og afstöðu Samfylkingarinnar til þeirra. Tilefni umræðunnar voru ummæli formanns menntamálanefndar, Sigurðar Kára Kristjánssonar að sífellt fleiri Samfylkingarmenn væru sammála Sjálfstæðismönnum um að leyfa beri skólagjöld í opinberum skólum. Reyndar gekk Sigurður Kári svo langt í umræðunum á Alþingi að telja alla flokka vilja leyfa skólagjöld í opinberum skólum nema Vinstri græn og að skólagjöld væru forsenda þess að hægt væri að reka góða skóla. Katrín Júlíusdóttir þingkona Samfylkingarinnar var ósátt við ummæli Sigurðar Kára og greindi frá stefnu flokks síns sem er skýr – skólagjöld skulu ekki leyfð í opinberum skólum. Á máli hennar var að heyra að þessi stefna sé ekki umsemjanleg eins og svo margt annað í stefnu Samfylkingarinnar. Einar Már Sigurðsson varaformaður Samfylkingarinnar skýrði frá þeirri skoðun sinni að „nálgast bæri umræðuna um skólagjöld fordómalaust“. Erfitt er að sjá hvernig nálgast eigi umræðuna fordómalaust án þess að til greina komi að leggja á skólagjöld.

Lesa meira
 

16.4.2008 : Ung Vinstri Græn á Reykjanesi

Stofnfundur Ungra vinstri grænna á Reykjanesi var haldinn 11. apríl síðastliðinn. Þormóður Logi Björnsson var kjörinn formaður stjórnar en með honum í stjórn sitja nú Hallvarður Jóhannes Guðmundsson og Daði Hreinsson Pagan. Einar Gunnarsson og Hlynur Freyr Sigurhansson voru kjörnir varamenn.

Fundurinn var mjög líflegur og samþykkti þessar þrjár ályktanir: Lesa meira

 
torleifur_gunnlaugsson

16.4.2008 : Fríkirkjuvegur 11

Nokkuð hressileg umræða var um Fríkirkjuveg 11 og Hallargarðinn í borgarstjórn í gær en Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna hóf þá umræðu. Borgarstjórinn skipti um skoðun frá því sem áður var að því er varðaði mikilvægi þess að húsið væri í eigu almennings. Jafnframt sýndi meirihlutinn ekkert viðnám gagnvart ítrústu kröfum hæstbjóðanda að því er varðar breytingar á Hallargarðinum. Í umræðunum lögðu Vinstri græn fram svohljóðandi bókun:

Lesa meira
 
songbok_kapar

14.4.2008 : Söngvísur og baráttuljóð

Í tilefni af útgáfu norrænu söngbókarinnar Ska nya röster sjunga (Eiga nýjar raddir að syngja) verður í vikunni kynnt söngvadagskrá með þessari yfirskrift á þremur stöðum á landinu: í Keflavík, á Akureyri og í Reykjavík. Dagskrárnar eru samstarfsverkefni Norræna hússins, Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri og hóps áhugafólks um söngva af þessu tagi.

Norrænir gestir sem hingað koma af þessu tilefni eru þeir Bengt Hall frá Svíþjóð, ritstjóri söngbókarinnar og harmonikkuleikari og Per Warming frá Danmörku, rithöfundur, söngvaskáld og söngvari. Þeir félagar munu flytja úrval norræna söngva úr bókinni og segja stuttlega frá tilurð þeirra.

Heimafólk á hverjum stað mun flytja íslenska söngva og þýðingar sem er að finna í bókinni og gerðar hafa verið við norræna og ’alþjóðlega’ söngva. Áheyrendur verða hvattir til að taka undir í þeim söngvum sem þeir kunna eða ná að læra.

Lesa meira
 
stjornmalaskoli_UVG_140408

14.4.2008 : Skemmtilegur stjórnmálaskóli í Kópavogi

Ung Vinstri-græn stóðu fyrir stjórnmálaskóla fyrir ungt fólk um helgina. Stemmningin var mjög góð og voru líflegar umræður um allt sem tengist vinstri-grænni pólitík. Sérstakir fyrirlesarar „skólans“ voru Ögmundur Jónasson og Katrín Jakobsdóttir og fóru þau yfir sögu og stefnu flokksins. Mikið var rætt um hugmyndafræðilega strauma á fundinum, en þess á milli gæddu „nemendurnir“ sér á pítsum og öðru lostæti.

Ung Vinstri-græn eru nú búin að halda þrjá stjórnmálaskóla á þessu vori, fyrst var farið á Egilsstaði, svo var skólinn haldinn á Akureyri og nú síðast í Kópavogi. Hefur þetta vakið mikla lukku og verður eflaust endurtekið að ári liðnu.

Lesa meira
 
UVG_logo

11.4.2008 : UVG á Akureyri álykta um framhaldsskólafrumvarp

Ung vinstri græn á Akureyri samþykktu eftirfarandi ályktun um frumvarp til laga um framhaldsskóla á fundi UVGA á Kaffi Karólínu þriðjudaginn 8. apríl 2008:

„Ung vinstri græn á Akureyri harma vinnubrögð menntamálaráðherra við gerð framvarps til laga um framhaldsskóla. Það er mat Ungra vinstri-grænna á Akureyri að menntamálaráðuneytinu beri að kynna slíkt frumvarp nemendum framhaldsskóla og hafa samráð við þá um innihald þess. Ung vinstri græn á Akureyri krefjast þess að frumvarpið verði kynnt og útskýrt fyrir framhaldsskólanemum áður en það fær frekari meðhöndlun á Alþingi.

Auk þess telja Ung vinstri græn á Akureyri ýmis atriði frumvarpsins óljós og jafnvel þversagnakennd. Til að mynda segir í athugasemd við 32. grein frumvarpsins að það sé „í reynd tryggð fræðsluskylda fyrir ólögráða nemendur“, en ekkert í frumvarpinu segir að nám til stúdentsprófs þurfi að vera lengra en eitt skólaár.“ Lesa meira

 
Kata og Steingrímur

11.4.2008 : Ríkisstjórnin skilar auðu - meðvitað aðgerðaleysi

Síðasti fundur Vinstri grænna í fundaröð um efnahagsmál fór fram í gærkveldi í Reykjavík. Því miður þurfti að aflýsa fundinum á Ísafirði þar sem ekki var flogið þangað í gær. Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir voru frummælendur í Reykjavík og fóru yfir ástandið sem breyttist nokkuð í gær á vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans. Helstu tíðindin voru þau að ríkisstjórnin fylgir enn stefnu sinni um meðvitað aðgerðaleysi og varpar þannig skellnum á efnahagsástandinu yfir á heimilin í landinu. Stýrivaxtahækkunin í gær leiðir Ísland í hásæti stýrivaxta í heiminum en er máttlaus aðgerð þegar ríkisstjórnin gerir ekkert annað. Við horfum fram á tveggja stafa verðbólgutölu í fyrsta sinn í áraraðir sem afleiðingu af þeirri fölsku mynd sem haldið hefur verið á lofti í áraraðir að allt sé í himnalagi þegar viðskiptahalli mælist 26% árið 2006 og erlendar skuldir vaxa gríðarlega.

Lesa meira
 

10.4.2008 : Lokahnykkurinn í fundaröð Vinstri grænna um efnahagsmál í kvöld

Vel heppnaðri fundaröð Vinstri grænna undir yfirskriftinni „tökumst á við efnahagsvandann – tillögur Vinstri grænna“ lýkur í kvöld með fundum í Reykjavík og á Ísafirði.

Annar fundurinn er á Hótel Ísafirði og hefst klukkan 20:30. Frummælendur eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson.

Hinn fundurinn er að Vesturgötu 7 í Reykjavík og hefst klukkan 20. Frummælendur þar eru Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon.

Að vanda eru allir velkomnir og heitt á könnunni. Lesa meira

 
fundarod_skagafjordur

9.4.2008 : Vel heppnaðir fundir í Skagafirði og Garðabæ

Komið var að Skagafirði og Garðabæ í gærkvöld í fundaröð Vinstri grænna um efnahagsmál. Í Skagafirði var fjölmennur fundur og höfðu Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir framsögður. Var góður rómur gerður af máli þeirra og spunnust upp fjörlegar umræður um stöðu efnahagsmála og tillögur VG um hvernig endurheimta megi stöðugleika, verja stöðu heimilanna í landinu og kjör launafólks. Var það almenn skoðun fundarfólks að ríkisstjórnin væri gagnslítil og verklaus í þeim efnum. Þá þótti mörgum raunalegt að horfa upp á Samfylkinguna svíkja gefin fyrirheit í umhverfismálum og standa fyrir hervæðingu landsins. Einkavæðingu heilbrigðiskerfisins bar talsvert á góma en þar tekur Samfylkingin jafnvel Framsókn fram í fylgispekt við íhaldið. Fundurinn markaðist í heild sinni af góðri og snarpri þjóðmálaumræðu.

Sömu sögu var að segja af Garðabæ, fundamönnum lá margt á hjarta auk efnahagsmálanna og var farið yfir allt milli himins og jarðar. Framsögu fluttu Svandís Svavarsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir. Lokahnykkur fundaraðarinnar um efnahagsmál verða svo fundirnir í Reykjavík og á Ísafirði annað kvöld, 10. apríl. Sjá nánar hér.

Lesa meira
 

8.4.2008 : Rætt um landið og miðin á fundum gærdagsins

Í gær voru haldnir tveir fundir í fundaröð Vinstri grænna um efnahagsmál. Góð mæting var á fundinn sem haldinn var á Kaffihúsinu í Skrúðgarðinum á Akranesi. Þau Ögmundur Jónasson og Katrín Jakobsdóttir fluttu framsögur. Mikið var fjallað um siðferði og skynsemi í efnahagsmálum, útrás undanfarinna ára og afleiðingarnar sem við glímum við í dag. Að sjálfsögðu voru samgöngumál ofarlega á dagskrá og rætt var brýnt hagsmunamál Akurnesinga að afnema gjaldtöku í Hvalfjarðargöngin til að jafna aðstöðu og aðgengi fólks milli staða. Umhverfismál og verndun hafsins voru líka ofarlega í hugum fólks.

Í Vík í Mýrdal fluttu þær Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Svandís Svavarsdóttir framsögur og var fólki þar efst í huga versnandi kjör á landsbyggðinni og erfiða samkeppnisstöðu minni fyrirtækja. Fólk var uggandi yfir áhrifum efnahagsástandsins á atvinnulíf og kjör í dreifðari byggðum. Þá var rætt mikið almennt um misskiptinguna í samfélaginu og hvernig megi auka jöfnuð.

Í kvöld verða fundir í Garðabæ og á Sauðárkróki, sjá skipulag funda hér.

Lesa meira
 

7.4.2008 : Mikil stemning í Grindavík

Firnagóð mæting var á fund Vinstri grænna í Kaffi Grindavík í gærkvöldi. Steingrímur og Guðfríður Lilja héldu framsögu og í kjölfarið spunnust miklar umræður um sjávarútveg, auðlindanýtingu, umhverfisvernd og efnahagsmál. Að sjálfsögðu var fólki hugleikið álverið í Helguvík, hvaða áhrif það hefði á efnahaginn og atvinnu á svæðinu. Þá var reynsla Austfirðinga sérstaklega til umræðu og réttilega bent á að bíða þyrfti og sjá hvaða raunverulegu áhrif álverið hefði haft þar en það virðist ekki hafa haft áhrif á fólksfækkun nema tímabundið. Rætt var um mikilvægi hafrannsókna og umhverfisverndar í víðum skilningi.

Næstu fundir í fundaröðinni „Tökum á efnahagsvandanum – tillögur Vinstri grænna“ eru í kvöld í Halldórskaffi í Vík í Mýrdal klukkan 20 og á Kaffihúsinu í Skrúðgarðinum á Akranesi klukkan 20. Frummælendur í Vík eru Svandís og Guðfríður Lilja en Ögmundur og Katrín mæta á Akranes. Fundirnir eru opnir öllum.

Lesa meira
 
fundur á akureyri 050408

6.4.2008 : Húsfyllir á fundi VG á Akureyri: Aðgerðaleysið bitnar á almenningi

Húsfyllir var á fundi Vinstri-grænna á Hótel KEA á Akureyri í dag. Steingrímur J. Sigfússon kynnti tillögur flokksins sem miða að því að ná tökum á efnahagsástandinu. Tillögur flokksins snúa m.a. að því að styrkja Seðlabankann og hvetja til sparnaðar í samfélaginu til að ná tökum á verðbólgunni.

Svandís Svavarsdóttir fjallaði svo betur um þær tillögur sem snúa að innra jafnvægi í hagkerfinu, jafnvægi milli sveitarfélaga og á milli höfuðborgarinnar annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar. Hún tók undir með Steingrími að það ástand sem nú er uppi í hagkerfinu er að hluta til vegna ójafnvægis milli landshluta.

Fundarmönnum var heitt í hamsi og vöktu margir hverjir athygli á því að efnahagsástandið nú væri afleiðing af stóriðjustefnu síðastliðinna ára. Margir þeirra vöruðu einnig við áformum um álver við Helguvík og á Bakka og sögðu slíkar skyndilausnir ekki til þess fallnar að leysa efnahagsvandann sem við stöndum nú frammi fyrir.

Lesa meira

 
stjorn vg

5.4.2008 : Ályktun stjórnarfundar VG á Akureyri

Stjórn Vinstri grænna hittist á Hótel KEA á Akureyri laugardaginn 5. apríl. Margt var rætt á fundinum en hæst bar tillögur VG í efnahagsmálum og byggðamál. Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktun:

Akureyri: Blómlegt samfélag á landsbyggðinni án stóriðju

Stóriðjustefnan er á fullri siglingu, drifin áfram meðal annars af ráðherrum Samfylkingarinnar. Frávísun umhverfisráðherra á kæru Landverndar undirstrikar kjarkleysi ráðherrans, sem hafði næg rök og lagaheimildir til að láta náttúruna njóta vafans og efna þannig loforð sín við kjósendur. Stjórnmál eiga að snúast um stefnumótun en ekki hagsmunagæslu kerfisins. Þar hafði umhverfisráðherra tækifæri til að standa við stóru orðin, setja náttúruvernd í forgang. Með álveri í Helguvík er ekki aðeins verið að stefna umhverfinu í voða, heldur líka efnahag þjóðarinnar sem nú berst við verðbólgu og himinháa vexti, afleiðingar þenslu af völdum stóriðjuframkvæmda undanfarinna ára.

Lesa meira
 
Ný þingflokkur VG

4.4.2008 : Þingflokkur VG harmar ákvörðun umhverfisráðherra

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs harmar þá ákvörðun umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnadóttur að greiða götu álversframkvæmda í Helguvík. Með því að staðfesta fyrri ákvörðun Skipulagsstofnunar um umhverfismat fyrir álver í Helguvík hunsar ráðherra náttúruvernd í landinu og svíkur öll fyrri loforð um stóriðjuhlé.

Það er æðsta hlutverk umhverfisráðherra að standa vörð um náttúru landsins og framfylgja ábyrgri umhverfisstefnu. Það er óforsvaranlegt að ráðherrann úrskurði gegn umhverfi og náttúruvernd og hafni þeirri eðlilegu kröfu Landverndar að fram fari heildarumhverfismat fyrir álver, virkjanir og flutningslínur. Þá vekur furðu að ráðherra treysti sér ekki einu sinni til að taka efnislega afstöðu til málsins í heild heldur vísi öðrum megin þætti þess frá, þrátt fyrir að málið sé búið að velkjast í ráðuneytinu og embættismannakerfinu í marga mánuði. Lesa meira

 

4.4.2008 : Tökumst á við efnahagsvandann

Á morgun verður fundaröð Vinstri grænna um efnahagsmál hleypt af stokkunum á Akureyri. Yfirskrift fundaraðarinnar er „Tökumst á við efnahagsvandann – tillögur Vinstri grænna“ og er tilgangurinn að kynna og ræða þær tillögur sem Vinstri græn hafa lagt til á þingi til að taka á aðkallandi vanda í efnahagsmálum. Meginmarkmið tillagnanna er að endurheimta efnahagslegan stöðugleika, verja stöðu heimilanna og kaupmátt launa.

Lesa meira
 

2.4.2008 : Utanríkismálanefd sniðgengin

Á fundi utanríkismálanefndar sl. mánudag óskað fulltrúi Vinstri grænna Steingrímur J. Sigfússon eftir því að utanríkisráðherra kæmi til fundar við nefndina áður en hún og forsætisráðherra færu á NATO-fundinn í Búkarest þannig að nefndinni gæfist kostur á að ræða og koma sjónarmiðum á framfæri varðandi þá afstöðu sem þar yrði tekin fyrir Íslands hönd. Á dagskrá fundarins verða mörg stórpólitísk og umdeild mál eins og möguleg NATO aðild Úkraínu og Georgíu, eldflaugavarnakerfi Bandaríkjamanna í Mið- og Austur Evrópu, málefni Afganistan o.fl. Minna má á lögbundna samráðsskyldu ríkisstjórnar við utanríkismálanefnd Alþingis í þessu sambandi.

Ekki gat orðið af slíkum samráðsfundi og þegar til reglubundins fundar utanríkismálanefndar kom í morgun, voru forsætis- og utanríkisráðherra þegar á leið úr landi með flugvél. Nefndarmenn fengu í hendur minnisblað um viðfangsefni fundarins sem trúnaðarmál.

Af þessu tilefni lagði fulltrúi VG fram meðfylgjandi bókun.

Á fundi utanríkismálanefndar voru málefni Tíbet einnig á dagskrá að ósk þingflokks Vinstri grænna og lagði fulltrúi flokksins fram tillögu að ályktun nefndarinnar sem verður þar til frekari umfjöllunar á næsta fundi. Lesa meira

 

1.4.2008 : Fundaröð um efnahagsmál

Ástandið í efnahagsmálum er alvarlegt en ekki óyfirstíganlegt. Það kallar hins vegar á snarræði og öruggar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar – að hún axli ábyrgð á ástandinu eins og það er orðið og beiti þeim tækjum sem hún ræður yfir. Fyrir nokkru var ljóst að stefndi í mikinn vanda sem kæmi fyrst og fremst niður á heimilunum í landinu. Í baráttunni við að verja lífskjör almennings lögðu Vinstri græn fram tillögur á þingi fyrir þremur vikum síðan um víðtækar ráðstafanir í efnahagsmálum. Til að kynna tillögurnar og fá umræður um þær höfum við útbúið myndskeið og hleypum af stokkunum fundaröð um allt land undir yfirskriftinni Tökum á efnahagsvandanum: Tillögur Vinstri grænna.

Lesa meira
 

28.3.2008 : Heiða og Huginn til aðstoðar

Ragnheiður EiríksdóttirHuginnRagnheiður Eiríksdóttir og Huginn Freyr Þorsteinsson hafa verið ráðin til aðstoðar þingmönnunum Atla Gíslasyni og Þuríði Backman. Huginn er aðstoðarmaður Þuríðar með aðsetur á Akureyri en Ragnheiður er aðstoðarkona Atla og verður með aðsetur í Reykjanesbæ.

Lesa meira
 
Finnur_Dellsen

26.3.2008 : Finnur Dellsén ráðinn aðstoðarmaður Steingríms

Finnur Dellsén hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri-grænna.

Finnur er 23 ára og heimspekingur að mennt, útskrifaðist með BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands í fyrra eftir að hafa lokið stúdentsprófi af eðlisfræðibraut Menntaskólans á Akureyri árið 2004. Hann vann áður við fræðslu hjá Orkuveitu Reykjavíkur, og er nú að ljúka störfum sem kennari við Menntaskólann í Reykjavík.

Finnur hefur tekið þátt í pólitísku starfi um árabil, í ungliðahreyfingu Vinstri-grænna ekki síður en í almennu flokksstarfi, og auk þess starfað mikið með Röskvu, samtökum félagshyggjufólks við Háskóla Íslands. Þá hefur hann skrifað fjölmargar greinar í blöð og á vefrit, sér í lagi á vefritið Múrinn. Fyrir síðustu þingkosningar var Finnur einn af þremur kosningastjórum Vinstri-grænna á höfuðborgarsvæðinu og hefur starfað fyrir þingflokk VG frá áramótum.

Í starfi sínu mun Finnur huga sérstaklega að upplýsingamálum, samskiptum við almenning og að styrkja tengslin við ungliðahreyfingu flokksins. Að öðru leyti starfar hann samkvæmt stöðluðum ráðningarsamningi aðstoðarmanna formanna stjórnarandstöðuflokkanna.

Finnur er búsettur í Reykjavík en ólst upp á Akureyri og í Svíþjóð. Lesa meira

 

25.3.2008 : Tillögur VG í efnahagsmálum

Kjörnir fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hafa varað við harðri lendingu í efnahagslífinu allar götur síðan stóriðjustefnan skaut fyrst upp kollinum. Við höfum ítrekað lagt fram tillögur á Alþingi til að stemma stigu við aðsteðjandi ógn í efnahagsmálum en því miður hafa þær tillögur ekki fengið verðskuldaðan hljómgrunn. Þó að sá efnahagsvandi sem við stöndum frammi fyrir nú sé að einhverju leyti alþjóðlegur vandi þá er hann einnig heimatilbúinn og rökrétt afleiðing þess að þenja út efnahagslífið með stóriðjuframkvæmdum jafnframt því að lækka skatta og kynda þar með áfram undir neyslu og viðskiptahalla. Mesta áhyggjuefnið og stærsta verkefni stjórnvalda í dag er að sjá til þess að heimilin í landinu þurfi ekki að taka stóra skelli og að kjararýrnun verði sem minnst.  

Þær aðgerðir í efnahagsmálum sem ríkisstjórnin boðaði í morgun er í áttina að því sem Vinstri græn kynntu í upphafi mánaðarins með yfirlýsingu og í kjölfarið frumvarpi, að gefa út ríkisskuldabréf og styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Við minnum á tillögurnar og frumvarpið.

Lesa meira
 

20.3.2008 : Gleðilega páska!

Vinstri græn óska landsmönnum öllum gleðilegra páska. Lesa meira
 
landspitali

15.3.2008 : Heilbrigðiskerfið í upplausn - stjórnendur hraktir úr starfi - heilbrigðisráðherra neitar umræðu á Alþingi - VG krefst þess að ríkisstjórnin axli ábyrgð

Þingflokkur VG lýsir þungum áhyggjum af ástandinu í heilbrigðiskerfinu og því upplausnarástandi sem þar er að skapast vegna framgöngu heilbrigðisráðherra í skjóli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Mikilvægustu heilbrigðisstofnunum landsmanna er haldið í fjárhagslegri spennitreyju, vinnuálag fer vaxandi á þegar undirmönnuðum deildum, vöktum er breytt í óþökk starfsfólks og nú er hafin handahófskennd einkavæðing einstakra þátta heilbrigðisstarfseminnar eða heilla deilda. Afleiðingar alls þessa birtast nú m.a. í hópuppsögnum sem að óbreyttu munu lama ómissandi kjarnastarfsemi í heilbrigðisþjónustunni. Að lokum gefast stjórnendur upp fullsaddir af skeytingarleysi heilbrigðisráðherra og hrokafullri framkomu. Alvarlegra er þegar þeir eru beinlínis hraktir úr starfi eins og nú hefur gerst með æðstu stjórnendur Landspítalans. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs mun ganga eftir því að upplýst verði um það mál.

Lesa meira
 

14.3.2008 : Tökumst á við efnahagsvandann

Eftir Steingrím J. Sigfússon og Katrínu Jakobsdóttur, greinin birtist í Morgublaðinu 14. mars 2008:

Áhyggjur af stöðu efnahagsmála aukast hratt meðal almennings þessa dagana, af skiljanlegum ástæðum. Þó að eyðsla og umsvif séu enn mikil hefur hægst um á fasteigna- og hlutabréfamarkaði og almennt eru blikur á lofti í efnahagsmálunum. Boðaðar eru hækkanir á nauðsynjavörum og lán landsmanna lækka ekki þó að fólk borgi og borgi. Ekki má gleyma því að nýgerðir kjarasamningar milli aðila á almennum vinnumarkaði eru bundnir því að verðbólga náist þannig niður á næstu mánuðum að kaupmáttur launafólks haldist. Annars eru samningarnir lausir að ári. Nú er undir stjórnvöldum komið að stýra skútunni þannig að áföllin verði sem minnst en um leið verður að ná jafnvægi í íslensku efnhagslífi og tryggja stöðugleika. Það mun að sjálfsögðu takast og við Íslendingar munum vinna okkur í gegnum erfiðleikana nú eins og endranær. Það getur þó tekið á enda misskilningur að til sé einhver einföld, sársaukalaus töfralausn á okkar vanda.

Lesa meira
 
holar_i_hjaltadal

14.3.2008 : VG í Skagafirði: Uppbygging og framtíð Hólaskóla

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði haldinn í Héðinsminni 10. mars 2008, skorar á stjórnvöld að standa vörð um Hólaskóla, Háskólann á Hólum sem sjálfstætt menntasetur í þjóðareigu eins og hann hefur verið um aldir. Skólinn hefur lengi gengt þýðingarmiklu hlutverki og hefur verið stöðugur uppgangur í starfi hans í hartnær þrjá áratugi. Með þeim stuðningi sem honum ber mun skólinn halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum.

Fundurinn mótmælir harðlega hugmyndum um einkavæðingu skólans og að hann verði látinn í hendur einstakra fyrirtækja eins og stjórnendur fyrirtækjasamsteypu Kaupfélags Skagfirðinga sækja á um. Með slíku væri vegið að framtíð Hólaskóla og Hólastaðar. Mikilvægt er að óvissu um rekstur skólans verði eytt hið fyrsta og stjórnvöld einhendi sér í að standa með myndarlegum hætti að áframhaldandi uppbyggingu Hólaskóla, Háskólans á Hólum. Lesa meira

 
skagafjordur

13.3.2008 : Skagfirðingar styðja baráttuna fyrir Þjórsá

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Skagafirði samþykkti tvær ályktanir á aðalfundi sínum. Önnur ályktunin er samþykkt til að lýsa yfir stuðningi við framkomna þingsályktunartillögu um friðlýsingu Austari- og Vestari Jökulsár í Skagafirði, en í hinni ályktuninni er lýst yfir stuðningi við landeigendur við neðri hluta Þjórsár í baráttu þeirra gegn virkjunum á ánni. Ályktanirnar eru svohljóðandi:

Lesa meira
 
brynja_bjorg

12.3.2008 : Heimagreiðslur leysa engan vanda

Ung vinstri græn í Reykjavík harma ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur um að hefja heimgreiðslur til foreldra barna á biðlista eftir leikskólaplássi. Biðin eftir leikskólaplássi stafar af manneklu á leikskólum vegna bágra launa. Borgarvöld leysa engan vanda með heimagreiðslum sem eru svo lágar að þær vega engan veginn upp á móti því vinnutapi sem hlýst.

Lesa meira
 

11.3.2008 : Bær í borg - skiptir hverfalýðræði máli?

Vinstri græn í Reykjavík halda áfram fundaröðinni undir yfirskriftinni VG um alla borg. Í kvöld, 11. mars, er komið að Breiðholtinu en fundurinn er haldinn í Gerðubergi klukkan 20. Heiti fundarins er Bær í borg – skiptir hverfalýðræði máli? Ögmundur Jónasson og Svandís Svavarsdóttir hafa framsögur en allir eru hjartanlega velkomnir.

Lesa meira
 

10.3.2008 : Lopapeysukommar og húsafriðunarfólk

Fundaferðin VG um alla borg heldur áfram og í kvöld er komið að Lopapeysukommum og húsafriðunarfólki að ræða saman á Vesturgötu 4 klukkan 20. Katrín Jakobsdóttir alþingiskona og Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi flytja framsögur. Fundurinn er öllum opinn.

Lesa meira
 
kvennamerkid

8.3.2008 : Við fögnum alþjóðlegum baráttudegi kvenna

Vinstri græn fagna alþjóðlegum baráttudegi kvenna og hvetja konur og menn til að taka þátt í viðburðum dagsins. Þessi merkisdagur hefur verið notaður til að efla andann í kvennabaráttunni og gleðjast yfir árangri um víða veröld. Á vef Kvennasögusafnsins segir um uppruna 8. mars:

Lesa meira
 
Ný þingflokkur VG

7.3.2008 : Tillögur VG í efnahagsmálum til næstu tveggja ára

Tillögur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í efnahagsmálum lúta að styrkingu Seðlabankans, auknum sparnaði, stuðningi við nýsköpun og jöfnunaraðgerðum. Fljótlega verður frumvarpi í þessum anda dreift á Alþingi en helstu tillögurnar eru:

Styrking Seðlabankans, skuldabréfamarkaður og aukinn sparnaður

  1. Að styrkja Seðlabanka Íslands með því að auka gjaldeyrisvaraforðann um allt að 80 milljarða og styrkja eigið fé hans til viðbótar um allt að 40 milljarða með innlendu skuldafjárútboði.
  2. Að ríkisstjórnin geti boðið út á innlendum markaði sérstök sparnaðarskuldabréf til almennrar sölu að hámarki 2 milljónir króna á hvern einstakling til minnst 5 ára í senn og verði vaxtatekjur undanþegnar fjármagnstekjuskatti.
Lesa meira
 
island_palestina

5.3.2008 : Styður ríkisstjórn Íslands ofbeldisstjórn Ohlmerts?

Ræða Ögmundar Jónassonar á mótmælafundi vegna Gaza á hádeginu 5. mars 2008:

Forsætisráðherra Íslands, sagði á Alþingi í vikunni að við yrðum að gera okkur ljóst að Íslendingar væru þess ekki umkomnir að stöðva ófriðinn í Palestínu. Hann sagði að þótt framferði Ísraela á Gaza svæðinu væri óafsakanlegt þá yrðum við að gæta að því að Ísraelar væru að svara eldflaugaárásum á eigið land. Það væri skýringin, þeirra skýring og þar með réttlæting á þessum aðgerðum.

Það má vel vera að við, ein og sér, smáþjóð á norðurhjara, séum þess ekki umkomin að stöðva hernaðarofbeldið í Palestínu. Okkur ber hins vegar að gera það sem í okkar valdi stendur til að stöðva yfirgang og ofbeldi hvar sem við fáum því komið við; okkur ber að leggjast á sveif með öllum þeim sem um víða veröld koma nú saman til að mótmæla ofbeldinu á Gaza. Og hvort sem við erum fá eða mörg þá er verkefnið hið sama; að vekja heimin til vitundar um það sem nú er þar að gerast. 

Lesa meira
 

4.3.2008 : Norræna rauðgræna söngvabókin komin til landsins

Síðustu ár hefur verið unnið að gerð norrænnar söngvabókar og er hún loksins komin út. Bókin heitir: „?ska nya röster sjunga -Nordisk rödgrön sångbok, en í henni er að finna fjölda baráttusöngva ættuðum frá öllum norðurlöndunum. Það er Nordisk Socialistisk Folkeoplysningsforbund sem gefur bókina út en það er samstarfsvettvangur fræðslusambanda og starfshópa á vegum vinstri – grænu flokkanna á Norðurlöndum. Fulltrúi Íslands í þessum hópi er Vinstrihreyfingin – grænt framboð en af okkar hálfu er það Gunnar Guttormsson sem hefur lagt ómælda krafta af mörkum til að gera söngvabókina að veruleika.

Lesa meira
 
island_palestina

4.3.2008 : Stöðvum fjöldamorðin - Rjúfum umsátrið um Gaza

Efnt verður til útifundar á Lækjartorgi í hádeginu á morgun, miðvikudaginn 5. mars klukkan 12:15, til að mótmæla blóðbaðinu á Gazaströnd. Kröfur dagsins eru: Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið um Gaza. Ræðumenn verða Katrín Fjeldsted læknir og Ögmundur Jónasson alþingismaður. Fundarstjóri er Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína.

Lesa meira
 

3.3.2008 : Vegið að grunni félagslegrar aðstoðar

Á bæjarstjórnarfundi þann 19. febrúar s.l. gerði Margrét Kristín Helgadóttir, formaður samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar, grein fyrir starfsáætlun ráðsins fyrir hönd meirihluta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Samkvæmt þeirri áætlun er ráðgert að gera róttækar breytingar á ýmissi félagslegri starfsemi sem starfrækt hefur verið hér á Akureyri. Má í því sambandi nefna Menntsmiðju unga fólksins og Menntasmiðju kvenna.

Lesa meira
 
IMG_0276

27.2.2008 : Fyrirlestrar frá sveitastjórnarráðstefnu

Í tengslum við flokksráðsfundinn síðustu helgi var haldin sveitastjórnarráðstefna þar sem fjallað var um kjaramál. Á ráðstefnuna komu fulltrúar þeirra sem eiga eftir að setjast að samningaborðinu; Eiríkur Jónsson frá Kennarasambandinu og Gunnar Rafn Sigurbjörnsson formaður Launanefndar sveitarfélaga. Við fengum vinsamlegt leyfi til að birta fyrirlestrana þeirra hér:

Fyrirlestur Eiríks

Fyrirlestur Gunnars Lesa meira

 

26.2.2008 : Stjórnmálaskóli Ungra Vinstri Grænna

Á laugardaginn halda Ung Vinstri Græn stjórnmálaskóla fyrir ungt fólk á Akureyri og nágrenni. Sérstakt erindi heldur Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Allir velkomnir.

Tími: 11 – 15, laugardaginn 1. mars. Staður: Fundasalur Hótels KEA

Lesa meira
 

23.2.2008 : Ályktanir frá flokksráðsfundi Vinstri grænna í febrúar 2008

Flokksráðsfundi Vinstri grænna lauk með samþykktum nokkurra ályktana, um heilbriðgismál, kjaramál, sjávarútvegsmál, stóriðjumál, utanríkismál og efnahags- og atvinnumál. Ályktanirnar fylgja hér:

Lesa meira
 
Katrín jakobsdóttir

22.2.2008 : Ræða Katrínar Jakobsdóttur á flokksráðsfundi Vinstri grænna

Vinstrihreyfingin – grænt framboð glímir nú við það verkefni að gera sig gildandi sem leiðandi afl í stjórnarandstöðu eftir kosningar og ríkisstjórnarmyndun síðasta vor þar sem tveir stærstu og voldugustu flokkar landsins sameinuðust í ríkisstjórn með mannmargan meirihluta. Þessi ríkisstjórn hefur fengið ósköp notalega hveitibrauðsdaga – notið mikillar velvildar í leiðurum blaða, vinsælda í könnunum og fengið tóm til að undirbúa sín mál. Samfylkingin talaði fyrstu mánuðina um að hún þyrfti tíma til að setja mark sitt á stjórnarsamstarfið – svo mikinn tíma reyndar að talsmenn hennar afsökuðu síðustu fjárlög með því að flokkurinn þyrfti meiri tíma til að ná áhrifum í stjórnarsamstarfinu.

Lesa meira
 
turid_leirvoll

21.2.2008 : Framkvæmdastýra SF í Danmörku á flokksráðsfundi Vinstri grænna

Turid Leirvoll, framkvæmdastýra Socialistisk Folkeparti í Danmörku mætir á flokksráðsfund Vinstri grænna um helgina og segir frá kosningabaráttu dönsku félaga okkar. Danir gengu að kjörborði 13. nóvember síðastliðinn en þá tvöfaldaði SF fylgi sitt og var ótvíræður sigurvegari kosninganna. Flokkinum tókst einkar vel að ná til ungs fólks og kom áherslum sínum vel til skila í snarpri kosningabaráttu en boðað var til kosninga með þriggja vikna fyrirvara.

Flokksráðsfundur Vinstri grænna er haldinn á Loftleiðum dagana 22. – 23. febrúar og mun Turid halda fyrirlestur sinn og svara fyrirspurnum klukkan 10:30 á laugardeginum. Turid tók við framkvæmdastjórn flokksins árið 2002 en áður var hún framkvæmdastýra Socialistisk Vensterparti í Noregi í átta ár. Það er því óhætt að segja að Turid hafi yfirgripsmikla reynslu í stjórnmálastarfi systurflokkanna á Norðurlöndum. Allir félagar í Vinstri grænum eru hjartanlega velkomnir. Lesa meira

 
atli_gislason

21.2.2008 : Nauðgunarákvæði verndar ekki kynfrelsi

„Í lögum um nauðgun er allt of mikil áhersla á verknaðarlýsinguna, hvernig nauðgun er framin, í stað þess að líta á glæpinn í heild sinni og refsa fyrir hann.“ Segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna sem í um þessar mundir leggur fram frumvarp til breytinga á lögum um nauðgun. Tillaga Atla er einföld;

„Hver sem gerist sekur um nauðgun skal sæta fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 16 árum.“

Lesa meira
 

20.2.2008 : Sveitastjórnarráðstefna

Í tengslum við flokksráðsfundinn um helgina heldur sveitastjórnarhópur Vinstri grænna ráðstefnu þar sem lögð verður sérstök áhersla á kjaramál, ráðstefnan er haldin á sama stað og flokksráðsfundurinn, á Hótel Loftleiðum. Dagskrá flokksrásfundarins má nálgast hér, en dagskrá sveitastjórnarrástefnunnar er sem hér segir:

Lesa meira

 

19.2.2008 : Flokksráðsfundur Vinstri grænna um helgina

Flokksráðsfundur Vinstri grænna verður haldinn um helgina á Hótel Loftleiðum. Fundurinn verður settur kl. 17 á föstudaginn og stendur fram eftir kvöldi. Á laugardeginum heldur fundurinn áfram klukkan níu og stendur til hádegis en eftir hádegi heldur sveitastjórnarráð Vinstri grænna ráðstefnu um kjaramál. Félagar í flokksráði Vinstri grænna eru allir þingmenn, varaþingmenn, sveitastjórnarfulltrúar, formenn svæðisfélaga og kjördæmaráða, formaður UVG auk félaga sem eru sérstaklega kjörnir á landsfundi. Þessir fulltrúar mynda flokksráð en að sjálfsögðu eru allir félagar í Vinstri grænum velkomnir. Dagskrá flokksráðsfundarins er svohljóðandi:

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

18.2.2008 : Laun áfram langt undir framfærslukostnaði - hlutur ríkisstjórnarinnar rýr

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs telur að sú hugmyndafræði sem lögð er til grundvallar nýgerðum kjarasamningum sé góð og nálgunin sé rétt svo langt sem hún nær, þ.e. að reyna að hækka lægstu laun og umsamda kauptaxta sérstaklega og ná þeim upp í áttina að því sem almennt er greitt á vinnumarkaði.

„Þessi niðurstaða samninganna breytir hins vegar ekki hinu, að áfram er verið að semja um í landinu laun sem eru langt undir framfærslukostnaði og þar með eiginlegum fátæktarmörkum. Ég minni á það sem þingflokkur VG hefur ítrekað lagt til, að gerð sé vönduð könnun á framfærslukostnaði og að umsamin laun taki mið af því. Enn á eftir að semja við fjölmennustu hópana sem tilheyra umönnunar- og uppeldisstéttum og ljóst að þar þarf að gera mun betur eigi að takast að stöðva flóttann úr þeim greinum.“ Lesa meira

 
blaa_kannan

16.2.2008 : Vel sóttur stjórnmálafundur á Akureyri

Þingmennirnir Þuríður Backman og Steingrímur J. Sigfússon voru á kröftugum fundi á Bláu könnunni fimmtudaginn 14. febrúar. Steingrímur hafði reyndar verið þar með annan fund nokkrum vikum áður ásamt bæjarfulltrúum Vinstrihreyfingarinnar græns-framboðs á Akureyri þeim Balvini H. Sigurðssyni og Kristínu Sigfúsdóttur. Báðir fundirnir voru vel sóttir og gaman að sjá nýtt og áhugasamt fólk. Að vísu vantaði tilfinnanlega yngra fólkið í hreyfingunni. Um þriðjungur félaga í VG eru jú yngri en 30 ára.

Lesa meira
 
hitthusid

13.2.2008 : Framhaldsskólanemar krefjast aukinna áhrifa

Vinstri græn áttu stefnumót við framhaldsskólanema í Hinu húsinu þriðjudaginn 12. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var sagt frá því að stjórnmálaflokkar hefðu ekki sýnt svona samskiptum áhuga hingað til og fögnuðu félagar í Sambandi íslenskra framhaldsskólanema tækifærinu til að ræða málin við kjörna fulltrúa Vinstri grænna. Nýlega var Félag framhaldsskólanema sameinað Iðnnemasambandi Íslands undir heitinu Samband íslenskra framhaldsskólanema og spannar verksvið hins nýja félags bæði hagsmunabaráttu innan framhaldsskólanna og réttindabaráttu iðnnema á vinnumarkaðnum. Eðli málsins samkvæmt var því farið yfir stórt svið í samræðunum.

Lesa meira
 
Svandis

11.2.2008 : Borgarbúar eiga betra skilið!

Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík sagði eftir blaðamannafund Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í Valhöll borgarbúa eigi betra skilið. „Það er mikið áhyggjuefni þegar borginni er ekki stjórnað vegna glundroðans í Sjálfstæðisflokknum, risminni blaðamannafund höfum við ekki séð: Forystan er ósýnileg, aðrir borgarfulltrúar hafa sniglast út og Vilhjálmur situr einn eftir. Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokkurinn gerir Vilhjálm ekki að borgarstjóra en í flokki glundroðans liggur ekki fyrir hver getur tekið við. Á meðan rekur borgin á reiðanum en við erum reiðubúin að taka við“ segir Svandís.

Lesa meira
 

11.2.2008 : Kjördæmisráð VG í Suðurkjördæmi ályktar

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstri grænna í Suðurkjördæmi sunnudaginn 10. febrúar samþykkti tvær ályktanir. Sú fyrri snýr að úrbótum á mismunandi stöðu fólks eftir kjörum og búsetu. Fundurinn ályktaði einnig að taka beri fiskveiðistjórnunarkerfið til endurskoðunar þar sem það hefur ekki uppfyllt þau markmið sem upphaflega voru sett. Í því sambandi er sérstaklega bent á tillögur Vinstri grænna á Alþingi til breytinga. Ályktanirnar fylgja hér í heild sinni.

Lesa meira
 

11.2.2008 : Ný stjórn kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi

Aðalfundur kjördæmisráðs Suðurkjördæmis var haldinn 10. febrúar 2008 í Tryggvaskála á Selfossi. Alma Lísa Jóhannesdóttir lét þá af störfum sem formaður og í hennar stað var Ólafía Jakobsdóttir kjörinn til formennsku næsta árið. Lögum kjördæmisráðsins var breytt á fundinum og það er nú skipað einum fulltrúa frá hverju svæðisfélagi í kjördæminu.

Lesa meira
 
or_logo

7.2.2008 : Vinstri græn í Reykjavík fagnar REI-skýrslunni

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík haldinn 7. febrúar 2008 fagnar nýútkominni skýrslu stýrihóps borgarráðs um málefni REI og Orkuveitu Reykjavíkur og þakkar formanni hópsins Svandísi Svavarsdóttur fyrir vel unnin störf. Niðurstöður og störf hópsins eru til marks um breytt og bætt vinnubrögð í stjórnmálum þar sem þverpólitískt samvinna er höfð að leiðarljósi til að ná fram niðurstöðu í alvarlegu og afar mikilvægu máli.

Brýnt er að tryggja tillögum hópsins farveg og að lærdómur verði dreginn af ferlinu öllu lýðræðinu og almenningi til góða. Lesa meira

 
forsidubox

6.2.2008 : Til hamingju með daginn góðir félagar !

Já, ótrúlegt en satt við eigum níu ára afmæli í dag. Við miðum við að á þessum degi, laugardaginn 6. febrúar 1999 réttum þremur mánuðum fyrir kosningar, hafi flokkurinn verið stofnaður. Stofnfundurinn stóð alla helgina, 5-7. febrúar, en þennan laugardag voru lög flokksins afgreidd og helstu stefnumál frágengin og flokkurinn því þannig séð lögformlega stofnaður. Og hingað erum við sem sagt komin, einu ári frá tíu ára afmælinu, sem við munum að sjálfsögðu halda upp á með pomp og prakt. Við erum fleiri, í flokknum, í sveitarstjórnum og á Þingi en nokkru sinni fyrr. Við erum betur skipulögð og kraftmeiri og höfum viðameira hlutverki að gegna sem þriðji stærsti flokkur landsins, bæði á sveitarstjórnarstigi og á landsvísu og stærsti flokkur stjórnarandstöðunnar á Alþingi.

En; við erum samt rétt að byrja. Það stendur ekki til að slaka á og aðeins njóta þess sem komið er. Við þurfum öll að vinna áfram, hér eftir sem hingað til, af sama krafti og frumbýlingsanda við að safna nýjum liðsmönnum og byggja okkur upp. Þeir sem skrá sig í flokkinn í dag eiga von á óvæntum glaðningi í tilefni dagsins.

Aftur til hamingju og baráttukveðjur

Steingrímur J. Sigfússon   

Lesa meira
 
hogni_hoydal

4.2.2008 : Þjóðveldisflokkurinn í ríkisstjórn Færeyja

Í tilefni nýrrar ríkisstjórnar í Færeyjum sendi Steingrímur J. Sigfússon formanni Þjóðveldisflokksins, Högna Höydal eftirfarandi skeyti:

Fyrir hönd okkar í systurflokknum Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á Íslandi sendi ég þér og öllu Þjóðveldisfólki innilegar hamingjuóskir í tilefni af nýju stjórninni. Það gleður okkur að sjá að nú fá baráttumál Þjóðveldisflokksins brautargengi og Færeyjar undirbúa skref til enn aukins sjálfstæðis. Aukinn hlutur kvenna í stjórninni og færeyskum stjórnmálum almennt er ykkur til mikils sóma.

Með baráttukveðjum frá Íslandi þar sem þú ert alltaf auðfúsugestur.

Lesa meira
 

1.2.2008 : Bæjarmálaráðsfundir

Í stærstu sveitarfélögunum eru haldnir reglulegir bæjarmálafundir á vegum Vinstri grænna. Fundirnir eru opnir öllum og tilgangurinn er að kjörnir fulltrúar í sveitastjórnum séu í stöðugu sambandi og samstarfi við félaga. Í Kópavogi eru fundirnir haldnir klukkan 20 alla mánudaga í Kragakaffi, Hamraborg 1-3. Hafnfirðingar halda líka bæjarmálaráðsfundi á mánudögum klukkan 19:30 í Strandgötu 21. Á Akureyri eru fundirnir á sama tíma, ávallt á mánudögum klukkan 20 í aðstöðu Vinstri grænna við Gránufélagsgötu (fyrir ofan Joes). Tengslum kjörinna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur við félaga er með öðru sniði, en í Reykjavíkurfélaginu eru haldnir laugardags-fundir þar sem ákveðin mál eru tekin fyrir og auglýst sérstaklega. Félagar í Vinstri grænum eru hvattir til að mæta á bæjarmálaráðsfundi og taka þátt í pólitíkinni í nærumhverfinu.

Lesa meira
 
UVG_290108

29.1.2008 : Ung vinstri græn á ferð um Austurland

Ung vinstri græn stóðu fyrir fyrsta stjórnmálaskóla sínum á Egilsstöðum um helgina. Hátt í tuttugu ungliðar komu til að læra og ræða saman um pólitíkina og hvernig henni verður best komið á framfæri.

Leiðbeinendurnir voru nær allir úr röðum Ungra vinstri grænna. Steinunn Rögnvaldsdóttir fór yfir sögu Vinstri grænna og UVG, Þórunn Ólafsdóttir sagði frá fyrstu reynslu sinni af stjórnmálaþátttöku og hvernig hún varð formaður UVG á Austurlandi, Finnur Dellsén fór yfir stefnu VG og stjórnaði umræðum um hana. Þingmaðurinn Þuríður Backman fræddi svo “nemendur” skólans um starfið á þingi og Kristján Ketill Stefánsson gerði grein fyrir meginatriðum fundarskapa áður en Auður Lilja Erlingsdóttir lauk skólanum með hugleiðingu um hlutverk ungliða í stjórnmálum yfirleitt.

Strax eftir stjórnmálaskólann var svo haldinn aðalfundur UVG á Austurlandi og ný stjórn kjörin. Í henni sitja þau Friðbergur Hreggviðsson, Júlíana Garðarsdóttir, Lára Lárusdóttir og Þórunn Ólafsdóttir. Samkvæmt nýsamþykktum lögum skiptir stjórnin skiptir svo með sér verkum.

Um kvöldið hittust ungliðarnir síðan á veitingahúsinu Kaffi Nielsen og skemmtu sér saman fram eftir kvöldi, sumir enn lengur.

Lesa meira
 
radhus_reykjavikur

26.1.2008 : Vinstri græn í Reykjavík álykta:

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík, haldinn að Vesturgötu 7, 26. janúar 2008, þakkar vasklega framgöngu kjörinna fulltrúa sinna í Reykjavíkurborg í því upplausnarástandi sem ríkt hefur síðustu daga. Það er sérstakt fagnaðarefni að Tjarnarkvartettinn skuli sýna órofa samtöðu gagnvart þeim sundurlausa hópi sem nú hefur tekið við stjórnartaumum í Reykjavíkurborg. Vinstri græn munu hér eftir sem hingað til vinna öllum stundum í anda félagshyggju og velferðar í borginn og axla ábyrgð gagnvart borgarbúum.

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík haldinn laugardaginn 26. janúar 2008 fagnar því að búið er að tryggja varðveislu húsanna við Laugaveg 4 og 6  og að götumynd þess hluta Laugavegar verður varðveitt. Málefni þessarra bygginga var í ákveðnum farvegi, sem án vafa hefði leitt til varðveislu þeirra og þá með hagkvæmari hætti en flaustur nýs meirihluta hefur leitt til. Jafnframt er minnt á nauðsyn þess að endurskoða skipulag Laugavegar upp að Barónsstíg til að tryggja varðveislu friðaðra húsa á þessu svæði, sömuleiðis að ganga með mikilli varfærni um önnur hverfi í gamla miðbænum í Reykjavík svo götumynd að byggðamunstur verði ekki fótum troðið.

 

Lesa meira
 

26.1.2008 : Ný stjórn Vinstri grænna Grundarfirði

Aðalfundur VG Grundarfirði var ahldinn 20. janúar síðastliðinn. Ný stjórn var kjörin en hana skipa Ragnar Elbergsson formaður, Helena María Jónsdóttir gjaldkeri, Þorbjörg Guðmundsdóttir ritari, Emil Sigurðsson og Gunnar Njálsson meðstjórnendur. Endurskoðendur voru kosnir Matthildur Guðmundsdóttir og Smári Björgvinsson.

Lesa meira
 
Mireya Samper

25.1.2008 : Mireya endurkjörin formaður

Á aðalfundi Kópavogsfélagsins í gærkveldi var Mireya Samper endurkjörin formaður. Aðrir í stjórn eru Guðbjörg Sveinsdóttir, Helgi Jóhannesson, Andri Erlingsson og Ásdís Jóhannesdóttir. Varastjórnina skipa Ólafur Þór Gunnarsson og Þóra Elfa Björnsson.

Lesa meira
 

23.1.2008 : Ungliðar hvetja til mótmæla á morgun

Stöðvum ruglið í Reykjavík: Yfirlýsing frá ungliðahreyfingum Tjarnarkvartettsins:

"Ungliðahreyfingar Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknar og ungir stuðningsmenn Margrétar Sverrisdóttur ítreka mikilvægi samstöðu félagshyggjuaflanna í borginni og hvetja þau til þess að sameinast gegn upplausn í borgarstjórn Reykjavíkur út kjörtímabilið. Þessi samstaða er lykilatriði í því að úthýsa ruglinu úr ráðhúsinu.

Komið hefur í ljós að þessi skyndilegu og ástæðulausu umskipti byggja ekki á málefnaágreiningi heldur eru til komin vegna þess að sjálfstæðismenn í borgarstjórn eru tilbúnir að gera allt sem þarf til að ná aftur völdum eftir að hafa hrökklast frá vegna hneykslismála.

Nýr meirihluti verður auk þess óstarfhæfur vegna ósamstöðu meðal Sjálfstæðismanna og manneklu innan klofins F-lista sem eykur enn á óstöðugleikann í stjórnkerfi Reykjavíkur.

Reykvíkingar eiga betra skilið en að borgarstjórn þeirra leysist upp í baktjaldamakk  og valdatafl. Nýr meirihluti var augljóslega myndaður á röngum forsendum og enn er hægt að hætta. Ungliðahreyfingarnar hvetja alla sem mögulega geta til þess að mæta á mótmæli Reykvíkinga   fyrir framan ráðhúsið, klukkan 11.45 á morgun fimmtudag, og koma skoðun sinni á þessu athæfi á framfæri áður en fundur borgarstjórnar hefst."

Auk þess má benda á söfnun undirskrifta á netinu, en þær verða afhentar á morgun klukkan 11.30:

http://www.petitiononline.com/nogbodid/petition.html

Lesa meira
 

22.1.2008 : Yfirlýsing frá Ungum vinstri grænum í Reykjavík:

Ung vinstri græn í Reykjavík lýsa yfir vantrausti á nýjasta meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur.Við teljum það þvert á vilja borgarbúa og raunar gengisfelling lýðræðisins að oddviti lista sem hlaut innan við 10% atkvæða borgarbúa í síðustu borgarstjórnarkosningum, njóti nú aðeins 3% stuðning samkvæmt nýlegri skoðanakönnun og ekki einu sinni stuðnings innan eigin varamanna sé orðinn borgarstjóri. Slíkt bendir augjóslega til þess að fýsn í völd sé tekin fram yfir hagsmuni Reykvíkinga.

Tíð meirihluta- og borgarstjóraskipti undanfarinna mánaða hafa rúið borgarstjórnina í heild sinni öllu trausti og það er miður. Á meðan borgarfulltrúar eru uppteknir í pólitísku plotti og meirihlutaskiptum þá er enginn að stjórna borginni en það er merki um ótrúlegt ábyrgðarleysi. Réttast væri að breyta lögum um sveitastjórnarkosningar og boða til nýrra kosninga svo hún fái endurnýjað umboð frá kjósendum og byggi upp það traust sem hún hefur tapað.

 

Stjórn UVGR

 

Við hvetjum Reykvíkinga til að láta í sér heyra  meðal annars með því að undirrita mótmælaskjal á vefnum: http://www.petitiononline.com/nogbodid/petition.html Lesa meira

 
Steingrímur J. Sigfússon

22.1.2008 : Steingrímur formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins

Steingrímur J. Sigfússon hefur verið kjörinn formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins. Innan þingsins eru starfandi 10 málefnanefndir, þar á meðal jafnréttisnefndin eða Committee on Equal Opportunities for Women and Men, sem var stofnuð árið 1998. Verkefni nefndarinnar er að fjalla um lagalegt og félagslegt kynjamisrétti í aðildarlöndum Evrópu og innan Evrópurráðsins. Sérstök áhersla er lögð á baráttuna gegn mansali og öðru kynbundnu ofbeldi en nefndin er í samstarfi við fjölmörg alþjóðleg samtök sem starfa á þessu sviði, meðal annars United Nations Development Fund for Women (Unifem), United Nations Economic Commission for Europe (Unece), Commission on the Status of Women (CSW), Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination against Women (Cedaw) og OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (Odihr). Í nefndinni eiga 84 fulltrúar sæti og undir hatti hennar starfa þrjár undirnefndir: Nefnd um ofbeldi gegn konum, nefnd um jafnrétti til valda og nefnd um mansal.

Lesa meira
 
hogni_hoydal

19.1.2008 : Vinstri græn óska félögum í Færeyjum til hamingju!

Systurflokkur Vinstri grænna í Færeyjum, Þjóðveldisflokkurinn, er nú aftur orðinn stærsti flokkur eyjanna eftir glæsilegan kosningasigur til Lögþingsins. Þjóðveldisflokkurinn bætti við sig 1,6% og náði 23.3% atkvæða í kosningunum sem skilar flokknum 8 fulltrúum á lögþinginu sem telur alls 33 fulltrúa. Allir stjórnarflokkarnir töpuðu fylgi; Fólkaflokkurinn, Sambandsflokkurinn og Javnaðarflokkurinn, sem hljóta að teljast skýr skilaboð þó stjórnin hafi eftir sem áður sterkan meirihluta. Auk Þjóðveldisflokksins sitja tveir aðrir flokkar í stjórnarandstöðu; Sjálvstýrisflokkurinn og Miðflokkurinn, en þeir bættu báðir við sig fylgi í kosningunum.

Vináttutengsl eru á milli Vinstri grænna og Þjóðveldisflokksins og Högni Hoydal formaður flokksins hefur verið tíður gestur á landsfundum okkar auk þess sem ungliðahreyfingarnar hafa skipst á heimsóknum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð óskar félögum sínum í Færeyjum hjartanlega til hamingju með sigurinn og brýnir þá til dáða í baráttunni fyrir bættum kjörum og sjálfstæði eyjanna. Lesa meira

 
Dýrleif Skjóldal

17.1.2008 : Fréttatilkynning frá Alþingi Íslendinga um útrás Sundfélagsins Óðins

Dýrleif Skjóldal sundþjálfari Sundfélagsins Óðins og sitjandi þingkona í fjarveru Steingríms J. Sigfússonar, hefur nú tekið að sér að kenna þingmönnum og þingstarfsmönnum skriðsund. Kennslan fer fram í hinni gömlu og góðu Sundhöll þeirra Reykvíkinga kl. 7.00 á morgnanna virka daga í þessari viku og þeirri næstu. Markmið námskeiðsins er að þingmenn og konur (sérstaklega úr hópi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs) haldi áfram á því fljúgandi skriði sem þeir hafa verið á og bæti í ef eitthvað er. Eins og von er á af hendi Dillu þá er ekki við öðru að búast en að þátttakendur standi undir þeim væntingum þegar að loknum 1. tíma. Áhugasamir um skriðsundsnámið geta mætt í sundhöllina kl. 7.00 næsta virkan dag og verið með. Þátttökugjaldið er hóflegt. Miðast það við áhuga og gott skap og verð ofan í laug í hvert skipti sem mætt er.

Lesa meira
 
13_jan_017

16.1.2008 : Vinstri græn í forystu Norðurlandasamstarfs næsta árið

Í byrjun vikunnar komu formenn og framkvæmdastýrur Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum saman í Stokkhólmi. Flokkarnir hafa með sér reglulegt samstarf undir hatti Nordic Green Left Alliance og á fundinum var ákveðið að Vinstri græn á Íslandi tæki að sér formennsku í samstarfinu næsta árið. Í því felst að tryggja samráð og upplýsingaflæði milli flokkanna, halda málþing og hýsa fundi fyrir formenn flokkanna og framkvæmdastýrur. Norðurlandasamstarfið er mikilvægt enda glíma flestir flokkar við sömu viðfangsefni óháð löndum. Næsta árið verður fjallað sérstaklega um stöðu launafólks og hvernig flokkarnir geti samnýtt þekkingu sína til að verja áunnin réttindi þrátt fyrir að hart sé sótt að launafólki úr ýmsum áttum. Í apríl munu vinstri græn í samvinnu við systurflokkana halda málþing hér á landi til að fjalla sérstaklega um þessi mál.

Lesa meira
 
fiskveidar

11.1.2008 : Þingmenn VG ítreka kröfu um heildarendurskoðun á stjórn fiskveiða

Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að þær grunnforsendur sem íslenska kvótakerfið byggir á standist ekki. Þetta er enn ein staðfestingin á því að endurskoða þurfi íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið frá grunni.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um að markmið núverandi laga um stjórn fiskveiða hafa ekki náðst og reyndar hafa lögin aldrei verið fjær markmiðum sínum en einmitt í dag. Lesa meira

 
Þuríður Backman

10.1.2008 : Þuríður Backman sextug!

Þann 8. janúar síðastliðinn varð Þuríður Backman sextug. Af því tilefni býður hún til málþings sunnudaginn 13. janúar klukkan 14 á Hótel Héraði. Dagskráin er svohljóðandi:

“Að búa til framtíð”

Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur

“Að þekkja matinn frá moðinu”

Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur MSc.

“Fossaraðirnar í Fljótsdal”

Helgi Hallgrímsson náttúrufræðingur

Lesa meira
 

9.1.2008 : Kaffispjall með Vinstri Grænum

Jón Bjarnason þingmaður og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir framkvæmdastýra heimsækja Ísafjörð og nágranna-byggðir í dag og ætla auk þess að heimsækja vinnustaði að vera með létt kaffispjall á Hótel Ísafirði í kvöld klukkan 20 til 22. Þau fá til sín þrjá gesti sem verða með stutt erindi um ólík efni.

Martha Lilja Marthensdóttir Olsen, þjónustu- og kennslustjóri Háskólaseturs Vestfjarða verður með kynningu á Háskólasetrinu og stöðu og framtíðarhorfum í framhalds- og háskólamenntun á Vestfjörðum, Harpa Grímsdóttir forstöðumaður Snjóflóðaseturs Veðurstofunnar verður með umfjöllun um verkefni og starfsemi Snjóflóða-setursins og Sigríður Gísladóttir, dýralæknanemi flytur hugleiðingu um kosti og möguleika í landbúnaði á svæðinu. Á eftir verður umræðu- og fyrirspurnatími og vonast þau Jón og Guðfríður Lilja eftir að sjá sem flesta. Lesa meira

 

8.1.2008 : Vinstri græn á Akureyri álykta um kjaramál

Fundur Vinstri - grænna, haldinn á Bláu Könnunni mánudaginn 7.janúar sl., skorar á ríkisstjórnina að koma myndarlega til móts við kröfur verkalýðshreyfingarinnar um aðgerðir til að bæta kjör tekjulægri hópa samfélagsins með hækkun skattleysismarka, hækkun barnabóta og auknum stuðningi við fólk vegna stóraukins húsnæðiskostnaðar. Fundurinn minnir á það vandræðaástand sem lág laun og mikið vinnuálag hefur skapað mönnum í uppeldis- og umönnunargreinum og á fleiri sviðum þar sem launakjör eru óviðunandi.

Lesa meira
 
arborg_logo

4.1.2008 : Gjaldfrjáls strætó í Árborg og átak í umhverfismálum

Meirihlutinn í Árborg, sem skipaður er fulltrúum Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokksins hefur undirritað samning við Þingvallaleið um strætóferðir innan Árborgar. Strætó er gjaldfrjáls öllum farþegum og verður þessi tilraun endurmetin eftir eitt ár þegar sérleyfi Þingvallaleiðar rennur út. Markmiðið er að þá taki bærinn við rekstrinum og komi sér upp eigin strætókerfi. Farnar verða 9 ferðir á dag alla virka daga og gefin út leiðabók með tímasetningum og henni dreift á öll heimili. Sett verða upp strætisvagnaskýli á öllum stoppistöðvum.

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

3.1.2008 : Ferð þingmanna um Norðausturkjördæmi

Þingmenn og fleira forystufólk Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi verða á ferð um norðurhluta kjördæmisins dagana 3-12 janúar í þinghléi. Haldnir verða fundir, vinnustaðir og stofnanir í kjördæminu heimsóttar. Nánar auglýst og boðað á hverjum stað.

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

3.1.2008 : Þingmenn VG á ferð um Vesturland

Jón Bjarnason alþingismaður og varaþingmennirnir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir eru á ferð um Vesturland í dag. Þau munu meðal annars halda fund með fulltrúum sveitastjórnar Hvalfjarðar-sveitar klukkan eitt og síðdegis hitta fulltrúa sveitastjórnar Borgarbyggðar. Fleiri ferðir og heimsóknir í kjördæminu eru í bígerð á næstunni. Með þessu vilja þingmenn og varaþingmennVinstri grænna nýta tímann áður en þinghald hefst til að kynna sér það sem helst er á döfinni og skiptast á skoðunum um þau málefni sem heitast brenna á fólki í upphafi nýs árs.

Lesa meira
 
Svandis

31.12.2007 : Til hamingju Svandís!

Svandís Svavarsdóttir var kjörin maður ársins á Rás 2 síðasta dag ársins. Þetta er verðskulduð viðurkenning enda vefst varla fyrir nokkrum þáttur Svandísar í því að tókst að mynda félagshyggjustjórn í Reykjavíkurborg borgarbúum til heilla. Við óskum félaga okkar í Vinstri grænum hjartanlega til hamingju með útnefninguna og hlökkum til frekara samstarfs í baráttunni fyrir jafnrétti, umhverfisvernd og félagslegu réttlæti. Vinstri græn óska sömuleiðis landsmönnum öllum árs og friðar og þakka fyrir samfylgd og stuðning á árinu 2007.

Lesa meira
 
jola-vg-logo

23.12.2007 : GLEÐILEG JÓL!

Vinstri græn óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla, friðar og gleði á nýju ári. Við þökkum stuðninginn á árinu sem er að líða.

Lesa meira
 
evropulogo

20.12.2007 : Evrópudómstóllinn vegur að launafólki

Í vikunni féll dómur Evrópudómstólsins í Vaxholm-málinu svokallaða en dómurinn kveður á um að heimilt sé að greiða laun samkvæmt kjarasamningum sem gilda í heimalandi verkamanna jafnvel þó verkefnið sé unnið í öðru landi. Forsaga málsins er sú að Lettneskt fyrirtæki tók að sér verkefni í bænum Vaxholm í Svíþjóð og greiddi starfsmönnum sínum samkvæmt lettneskum kjarasamningum. Þessu vildu verkalýðsfélög í Svíþjóð ekki una og börðust af krafti fyrir því að greiða bæri samkvæmt sænskum kjarasamningum. Því miður tók Evrópudómstóllinn ekki undir með Alþýðusambandi Svíþjóðar og vegur þar með að verkalýðshreyfingunni og þeim samningum sem í gildi eru á sænskum vinnumarkaði.

Lesa meira
 
gudrun_agusta_gudmundsdottir

20.12.2007 : Vel tekið í tillögur Guðrúnar Ágústu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar

Grunnskóli án gjaldtöku, gjaldfrjáls leikskóli 5 ára barna, aðgengismál, kaup á loftgæðastöð, umhverfisátak, skautahöll, launajafnrétti, upplýsingar til nýrra bæjarbúa, bygging sjálfbærs hverfis, rannsókn á námserfiðleikum stúlkna og kynning á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru allt tillögur bæjarfulltrúa Vinstri grænna sem hlutu góðar undirtektir á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði í gær og voru samþykktar til frekari umfjöllunar og úrvinnslu í ráð, nefndir og til starfsmanna. Tillögurnar í heild sinni fylgja hér:

Lesa meira
 

18.12.2007 : Stjórn VG á Akureyri fagnar aukningu til Háskólans á Akureyri

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri fagnar auknum fjárveitingum upp á 275 milljónir króna til Háskólans á Akureyri næstu þrjú árin. Þar með er óvissu eytt sem einkennt hefur rekstur Háskólans á Akureyri síðastliðinn ár, einkum hvað varðar möguleika skólans á sviði rannsókna og áframhaldandi uppbyggingar, og til að efla háskólanám á framhaldsstigi. Stórnendur, starfsfólk og nemendur Háskólans á Akureyri geta nú betur einbeitt sér að því gríðarmikla uppbyggingastarfi sem unnið er bæði innan og utan veggja skólans. Um málefni Háskólans á Akureyri hefur ríkt víðtæk pólitísk samstaða frá upphafi og er mikilvægt að svo verði áfram.

Lesa meira
 

17.12.2007 : Uppskipting Landsvirkjunar: Fyrsta skref til einkavæðingar?

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs telur alvarlegar spurningar vakna við þær fréttir að nú eigi að kljúfa Landsvirkjun í tvö fyrirtæki, annars vegar Landsvirkjun og hins vegar Landsvirkjun Power ehf. Með þessu sé verið að búa til tvo forstjórastóla í stað eins og færa hluta af umsvifum fyrirtækisins, ákvarðanir og verkefni, fjær eigendum, þ.e.a.s. almenningi. Aðhald og eftirlit kjörinna fulltrúa virðist með þessu verða takmarkað enn frekar en áður jafnvel þótt í hlut eigi einokunarrisi íslensks orkumarkaðar í 100% eigu almennings. Er þó svo illa komið nú þegar að fjármálaráðherra skipar einn stjórn Landsvirkjunar í stað þess að hún sé þingkjörin og komi frá sveitafélögum eins og áður var. Við þessar breytingar mun upplýsingagjöf „ehf.“-hluta fyrirtækisins væntanlega skerðast og viðbúið er að reynt verði að undanþiggja þann hluta starfseminnar ákvæðum upplýsingalaga og stjórnsýslulaga. Einnig hefur þetta áhrif á réttarstöðu starfsmanna. Lesa meira
 

12.12.2007 : Eldri borgarar fá liðveislu í Kópavogi að tillögu Vinstri grænna

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Kópavogs fyrir árið 2008, voru tvær af breytingartillögum VG samþykktar. Fyrri tillagan er um liðveislu fyrir aldraða, með svipuðu sniði og hefur verið í boði fyrir fatlaða. Þessi þjónusta hefur ekki verið áður í boði fyrir eldri borgara, og er mikilvægt framfaraskref sem mun gera eldra fólki auðveldara að búa að sínu. Kópavogur verður með þessu fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að taka upp slíka þjónustu. Seinni tillagan fjallar um fjármagn til vettvangsferða grunnskóla, en með henni er létt af foreldrum kostnaði vegna ferða grunnskólabarna á skólatíma. Samþykkt tillögunnar er mikilvægt skref í þá átt að jafna stöðu grunnskólabarna, og gera  grunnskólann gjaldfrjálsann, en jafnframt halda áfram þessum mikilvæga lið í skólastarfinu.  Samþykkt tillagnanna sýnir  að kröftugur málefnalegur málflutningur VG í bæjarstjórn skilar árangri, bæjarbúum til hagsbóta.

Lesa meira
 

9.12.2007 : Heilsugæslan í uppnámi

Stjórnarliðar felldu tillögur minnihlutans á þingi um aukin fjárframlög til heilsugæslunnar í fjáraukalögum sl. föstudag. Nú á þriðjudag fer fram atkvæðagreiðsla um fjárframlög til heilsugæslunnar á næsta ári. Þá verður spennandi að sjá hvað úr verður.

Jón Bjarnason þingmaður VG og fulltrúi í fjárlaganefnd hefur flutt tillögur um stóraukin framlög til heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og krafist þess að á málefnum hennar sé tekið. Jón bendir á að málið sé alvarlegt ekki bara fyrir heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu heldur víða um land og segir brýnt að ná þverpólitískri sátt um eflingu heilsugæslu landsmanna. Góð heilsugæsla sé einn mikilvægasti þátturinn í almennri heilsuvernd og forvörnum og það sé því gróf afturför í heilbrigðismálum ef heilsugæslan á nú að draga saman þjónustu sína.

Lesa meira
 
thjorsa

7.12.2007 : Neðri Þjórsá: Ríkisendurskoðun staðfestir gagnrýni vinstri grænna

Hinn 9. maí síðastliðinn samþykktu ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar fyrir hönd ríkisins samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár á nokkurs fyrirvara í þágu fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs andmælti þessu á þeirri forsendu að þetta væri gert án heimildar í lögum og fór fram á að Ríkisendurskoðun kannaði hvort þetta stæðist lög.

Í gær birti Ríkisendurskoðun niðurstöður sínar þar sem fram kemur að gagnrýni VG var á rökum reist og að umræðtt samkomulag sé ekki bindandi fyrir ríkið enda skorti nauðsynlegar lagaheimildir.

Lesa meira
 
Ný þingflokkur VG

3.12.2007 : Yfirlýsing þingflokks Vinstri grænna í tilefni nýrra þingskaparlaga

Með framsetningu frumvarps til laga um breytingar á þingsköðum hefur forseti Alþingis því miður verið í forystu fyrir að rjúfa hefð um samstöðu um breytingar á þingsköpum og lagt fram frumvarp án samkomulags við stærsta þingflokk stjórnarandstöðunnar. Þingflokkur VG harmar þessi vinnubrögð í jafn mikilvægu máli þar sem rík skylda hvílir á öllum málsaðilum að leita samstöðu.

Afstaða þingflokks VG helgast af því að gæta réttar og vígstöðu stjórnarandstöðunnar í samskiptum við meirihlutann og þar með Alþingis sem slíks í samskiptum við framkvæmdarvaldið.

Þingflokkur VG hefur bæði á þessu hausti og á umliðnum árum lagt fram ýmsar hugmyndir um hvernig betrumbæta megi starfshætti Alþingis og vanda betur til vinnubragða við lagasetningu. VG hefði viljað sjá víðtækar breytingar á starfsháttum og vinnutilhögun á þingi með það að markmiði að gera lagasetninguna vandaðri og betri og starfsumhverfið allt fjölskylduvænna og markvissara. Umboðsmaður Alþingis hefur m.a. bent á hvernig Alþingi þurfi að vanda betur til verka og VG vill tryggja að það sé gert. Lesa meira

 
rokkad_gegn_stressi_1_des_07_1

3.12.2007 : Vinstri græn rokka í Keflavík

Það var fín stemming á Paddy's í Keflavík þegar Heiða, Elvar, Þormóður o.fl. VG-félagar gegnust þar fyrir 1.des samkomu undir yfirskriftinni: "Berjumst gegn jólastressi með rokki og róli". Meðfylgjandi myndir tók Óskar Pétur þegar fyrsta hljómsveitin, Malmeiropremia spilaði ásamt Vali Gunnarssyni rithöfundi sem las upp úr bók sinni Konungur Norðursins og Malmeiropremia spilar undir og söng einnig lög í stíl Leonard Cohen. Mjög sérstök tónlist og sérstök stemming.

Stefnt er að því að halda stofnfund Ungra vinstri grænna á Suðurnesjum strax í byrjun janúar. Þeir sem vilja taka þátt er bent á að hafa samband við Þormóð Loga logi@akurskoli.is s.822 5465. Lesa meira

 

30.11.2007 : Berjumst gegn jólastressi með rokki og róli

Það verður mikið um að vera á Paddy's á Hafnargötunni í Keflavík næsta laugardagskvöld, 1. desember. Þar verða hljómsveitir og rithöfundar í boði Vinstri Grænna, og yfirskrift tónleikanna er ,,Berjumst gegn jólastressi með rokki og róli". Þær hljómsveitir sem spila eru:

Palli-Stína, sem spilar einhvers konar pönk

Klaus, sem spilar tilraunakennda rokktónlist

Malmeiropremia ásamt Vali Gunnarssyni rithöfundi. Valur les upp úr bók sinni Konungur Norðursins og Malmeiropremia spilar undir, en einnig taka þeir nokkur klassísk lög með höfundum á borð við Leonard Cohen og Nick Cave.

Hellvar, sem spilar rafrokk.

Ætla listamennirnir að stuðla að stemmningu sem leysir upp jólastress, og áhyggjur munu hverfa eins og dögg fyrir sólu með því að hlusta á tal og tóna.

Kvöldið hefst klukkan átta og fyrstu tónarnir hljóma upp úr hálf-níu. Að sjálfsögðu kostar ekkert inn, og allir eru hvattir til að mæta, og þó sérstaklega þeir sem hafa áhuga á starfi Ungra Vinstri-Grænna, en til stendur að stofna sérstaka Suðurnesjadeild.

Lesa meira
 
saedis_osk_hardardottir

29.11.2007 : Frá aðalfundi Árborgarfélagsins

Svæðisfélag Vinstri grænna í Árborg hélt aðalfund sinn í gærkvöldi. Sædís Ósk Harðardóttir var endurkjörin formaður en auk hennar sitja Jón Hjartarson, Margrét Magnúsdóttir, Sigurður Ingi Andrésson og Valgeir Bjarnason í stjórn félagsins. Nokkrar ályktanir voru samþykktar; um eignarhald á Hitaveitu Selfoss, almenningssamgöngur, lækkun á leikskólagjöldum, umhverfissérfræðing og bitruvirkjun. Ályktanirnar í heild sinni fylgja hér:

Lesa meira
 
skagafjordur

28.11.2007 : Árið gert upp á félagsfundi í Skagafirði

Svæðisfélag Vinstri grænna í Skagafirði hélt opinn félagsfund í gærkveldi á Hótel Varmahlíð. Félagar mættu vel og gestur fundarins var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varaþingkona Vinstri grænna. Bjarni Jónsson, fulltrúi okkar í sveitarstjórn Skagafjarðar fór yfir þau mál sem eru þar efst á baugi og þingmaður kjördæmisins, Jón Bjarnason sagði frá þingstörfunum.

Guðfríður Lilja þakkaði Skagfirðingum fyrir baráttuna fyrir Jökulsánum og spunnust nokkrar umræður um náttúruverndarbaráttuna sem meðal annars Vinstri græn heyja nú um allt land. Mikill áhugi er meðal Skagfirðinga á baráttunni við Þjórsá enda þarf að reisa fána náttúruverndar um allt land gegn gegndarlausri ásælni virkjanasinna og mikilvægt að hvert landsvæði einangrist ekki í baráttu sinni.

Fundinum lauk með upplestri Bjargar Baldursdóttur úr nýútgefinni bók sinni, Kistunni hennar Grýlu og kom Vinstri grænum í Skagafirði þar með í jólaskap. Lesa meira

 

27.11.2007 : Aðalfundi Hafnarfjarðarfélagsins frestað

Aðalfundi svæðisfélags Hafnarfjarðar hefur verið frestað til 12. desember næstkomandi. Hann verður haldinn á skrifstofu félagsins, Strandgötu 11 klukkan 20. Lesa meira
 
holar_i_hjaltadal

20.11.2007 : Áform stjórnvalda um að leysa upp stoðkerfi landbúnaðarins gagnrýnd

Vinstri græn í Skagafirði vara við þeim áformum sem koma fram í frumvarpi að breytingum á Stjórnarráði Íslands, að sundra verkefnum í landgræðslu og skógrækt og flytja stofnanir þeirra frá landbúnaðarráðuneytinu. Skógrækt og landgræsla er óaðskiljanlegur hluti landbúnaðar og hefur verið ein af grunnstoðum landbúnaðrráðuneytisins. Nú á að kljúfa þær upp. Landbúnaðarskólarnir hafa heyrt undir atvinnuvegaráðuneytið frá upphafi og hefur reynst þeim vel. Sem hluti af heildarstoðkerfi landbúnaðarins og annars atvinnulífs hinna dreifðu byggða hafa þessir skólar náð að vaxa og dafna og þróað með sér mjög náið samstarf við atvinnulífið. Engin málefnaleg rök hafa verið færð fyrir að flytja skólana frá ráðuneytinu.

 

Vakin er athygli á að Hólar í Hjaltadal er biskupssetur Norðlendinga og  fjölþætt menningar og sögusetur ekki aðeins á héraðs heldur einnig á landsvísu. Staða og framtíð Hóla skiptir Skagfirðinga gríðarmiklu máli. Undir forsjá landbúnaðarráðuneytisins hefur þróast gott samstarf  milli allra aðila sem staðnum tengjast.  Í frumvarpinu er nánast engin grein gerð fyrir framtíðaráformum varðandi Hóla og Hólaskóla en aftur ítarlega fjallað um Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Lögð er þung áhersla á framtíð Hólaskóla  sem sjálfstæðs menntaseturs og engar forsendur  hafa skýrt  nauðsyn þess að flytja hann undir annað ráðuneyti. Lesa meira

 

19.11.2007 : Ályktanir aðalfundar Kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi 2007

Á aðalfundi Kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi á laugardaginn síðasta voru samþykktar nokkrar ályktanir, meðal annars um flutning opinberra starfa út á land, utanríkis- og öryggismál, umhverfismál, samgöngumál og kjaramál. Ályktanirnar fylgja hér:

Lesa meira
 
SPNOR_logo

14.11.2007 : Sparisjóðsmál til umræðu í bæjarstjórn Akureyrar

Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar þann 13. nóvember síðastliðinn var tekin til umræðu fyrirhugaður samruni Sparisjóðs Norðlendinga (SPNOR) við BYR en eins og fram hefur komið í fréttum samþykktu stofnfjáreigendur SPNOR nýverið samrunann. Næsta skref í þessu ferli er að samrunnin hljóti samþykki Fjármálaeftirlitsins. Eins og gefur að skilja felst í sameingunni talsverð áhætta fyrir Akureyri enda verður SPNOR ekki lengur sjálfstæð fjámálastofnun heldur útibú frá BYR. Á það hafa bæjarfulltrúar VG, Baldvin H. Sigurðsson og Kristín Sigfúsdóttir, bent í umræðum um málið en þau lögðu fram eftirfarandi tillögu um bókun frá Akureyrarbæ:

Lesa meira
 
villy

14.11.2007 : Stórsigur SF

Sigurvegarar kosninganna í Danmörku í gær voru án efa systurflokkur Vinstri grænna, SF. Undir forystu Villy Sövndal tvöfaldaði flokkurinn fylgi sitt frá síðustu kosningum. Því miður styrkti hægriblokkin sig líka og er ljóst að ríkisstjórnin situr áfram. Vinstrihreyfingin – grænt framboð óskar Villy og öðrum félögum í SF hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Lesa meira
 
SF_logo

13.11.2007 : Det ku´ være så godt: Steingrímur fylgist með kosningunum í Danmörku

Í morgun flaug Steingrímur J. Sigfússon til Danmerkur til að vera viðstaddur kosningarnar til danska þingsins. Ef marka má skoðanakannanir mun systurflokkur Vinstri grænna í Danmörku, SF, undir forystu Villi Sövndal, tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosningum og standa uppi sem sigurvegarar í kvöld. Flokkurinn hefur lagt áherslu á velferðarmál í kosningabaráttunni undir slagorðinu: Det ku´ være så godt. Í aðdraganda kosninganna hefur SF lagt áherslu á betri aðbúnað aldraðra, meðal annars með launahækkunum til handa starfsfólks sem hugsar um eldri kynslóðina. Þá leggja frambjóðendur SF áherslu á að fækka nemendum í hverjum bekk í grunnskólum og fjölga kennurum. Umhverfissjónarmið eru sömuleiðis áberandi þar sem hvetja á fólk til að nýta almenningssamgöngur, vindmyllum er gert hátt undir höfði sem virkjanakosti og fólk á að fá umbun fyrir umhverfisvænni lífsstíl.

Ung Vinstri græn boða til kosningavöku á Grand rokk í kvöld. Húsið opnar klukkan átta.

Lesa meira
 
ingolfsfjall

13.11.2007 : Ung vinstri græn á Suðurlandi álykta:

Hættum við Bitruvirkjun

Ung Vinstri græn á Suðurlandi, skora á Orkuveitu Reykjavíkur og borgarstjórn Reykjavíkur að hætta við áform um Bitruvirkjun á Ölkelduhálsi.

Þetta svæði er mikil náttúruperla og verðmætt útivistarsvæði. Má um margt líkja því að náttúrufegurð við Landmannalaugar, sem engum heilvita manni dettur í hug að virkja.

Við minnum á að ekki er síst mikilvægt að vernda náttúru í nágrenni þéttbýlis. Það er hluti af lífsgæðum að geta notið ósnortinnar náttúru og gæta þess sem næst okkur er.

Nóg er af jarðvarmaorku sem hægt er að sækja án mikilla náttúrspjalla og nær að snú sér þangað fyrst.

Sjá einnig heimasíðuna: http://www.hengill.nu/

Vörumst vítin við Ingólfsfjall

Ung Vinstri græn á Suðurlandi skora á bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfus, að læra af mistökum sínum við afgreiðslu á efnistöku úr Ingólfsfjalli, en festast ekki í forherðingu, eins og óttast má af orðum bæjarstjóra þeirra, Ólafs Áka Ragnarssonar, á forsíðu Fréttablaðsins 9. nóvember: "Svo hefur sveitarfélagið úrslitavald að lokum og getur tekið aðra ákvörðun en Skipulagsstofnun, eins og við gerðum með námuna í Ingólfsfjalli," segir Ólafur.

Lesa meira
 

12.11.2007 : VG fagnar framhaldsskóla við Eyjafjörð og hvetur til samgöngubóta

Aðalfundur svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Fjallabyggð, haldinn á Ólafsfirði 11. nóvember 2007, fagnar ákvörðun um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð og hvetur um leið samgönguráðherra til að ráðast í nauðsynlegar samgöngubætur, sérstaklega á snjóflóðasvæðum, þannig að öryggi vegfarenda verði tryggt á leiðinni milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar.

Brýnt er að áðurnefndum samgöngubótum verði lokið haustið 2009 þegar nýr framhaldsskóli tekur til starfa.

Á aðalfundinum var kosin ný stjórn svæðisfélagsins. Þormóður Sigurðsson var endurkosinn, formaður, Ríkey Sigurbjörnsdóttir var kjörinn ritari, Bjarkey Gunnarsdóttir sinnir starfi gjaldkera og Sigurður Hlöðversson ásamt Bergþóri Morthens eru meðstjórnandi.

Lesa meira
 
VG-S-1-Atli_Gislason_055

9.11.2007 : Vinstri græn í Vestmannaeyjum álykta

Á líflegum opnum fundi Vinstri grænna í Vestmannaeyjum í gærkvöldi var samþykkt ályktun um brýn samfélagsmál. Ályktunin fer hér á eftir

Tvær þjóðir í landinu

Opinn fundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Vestmannaeyjum haldinn 8. nóv. 2007 ályktar eftirfarandi:

Á undanförnum árum hefur hvers konar misrétti í íslensku samfélagi aukist. Launamunur eykst,  jafnrétti á ýmsum sviðum er orðin tóm, félagslegt öryggi hefur minnkað og þannig mætti áfram telja. Á sama tíma á landbyggðin mjög undir högg að sækja og staða hennar versnar stöðugt. Því er svo komið að sannarlega búa tvær þjóðir í landinu, þeir sem búa við alsnægtir og þeir sem búa við þröngan kost, öryggisleysi og mismunun. Íbúar landsbyggðarinnar sitja ekki við sama borð og íbúar höfuðborgarsvæðisins um menntun, samgöngur, fjarskipti, heilsugæslu, löggæslu og þannig mætti lengi telja. Þessu mótmælir fundurinn og krefst þess að horfið verði frá þeirri stefnu sem skapað hefur og viðhaldið slíku þjóðfélagi. Lesa meira

 
control-arms-banner

6.11.2007 : Óvelkomnir vopnasalar

Vegna frétta undanfarinna daga um fund æðstu yfirmanna vopnaframleiðslufyrirtækisins BAE Systems vill borgarstjórnarflokkur Vinstri grænna koma því á framfæri að hann harmar að Reykjavík sé með þessum hætti gert að vettvangi fundarhalda stjórnenda í þessum ógeðfellda iðnaði. Minnt er á að BAE Systems er stærsti vopnaframleiðandi Evrópu og einn sá stærsti í heimi. Fyrirtækið er þekkt fyrir að selja vopn til ríkja þar sem takmörkuð virðing er borin fyrir lýðræði og mannréttindum og má þar einna helst nefna Sádi-Arabíu og Indónesíu. Fyrirtækið hefur sömuleiðis setið undir ásökunum um stórfelldar mútugreiðslur til stjórnmálamanna og einræðisherra víða um lönd í tengslum við vopnasölusamninga.
Borgaryfirvöld hafa á síðustu misserum viljað kynna Reykjavík sem miðstöð friðar og má í því sambandi nefna Friðarsúlu Yoko Ono sem sett var upp í Viðey á dögunum. Fundir og kaupstefnur vopnaframleiðenda geta ekki samrýmst því markmiði og sömu sögu má raunar segja um ráðstefnur á borð við þá sem hernaðarbandalagið NATO hélt hér nýverið.
Borgarstjórnarflokkur VG minnir sömuleiðis á andstöðu Vinstri grænna við heræfingar í borgarlandinu og "kurteisisheimsóknir" herskipa í hafnir Reykjavíkur.

Lesa meira
 

2.11.2007 : Ógildingu samruna fagnað

Stjórn vinstri-grænna í Reykjavík fagnar þeirri ákvörðun borgarráðs að ógilda samruna REI og Geysir Green Energy og uppsögn þjónustusamnings á milli REI og Orkuveitu Reykjavíkur.

Sá árangur að náðst hafi þverpólitísk samstaða í borgarráði um málið sýnir og undirstrikar þá framsýni og réttlætiskennd sem einkennir forystufólk í borgarstjórnarflokki vinstri-grænna.

Auðlindir landsins skulu vera sameign þjóðarinnar!

Lesa meira
 

30.10.2007 : Húsnæði VG í Kópavogi til leigu

Bendum félögum í VG á að mögulegt er að leigja húsnæði Vinstri grænna í Hamraborg 1-3 í Kópavogi til lengri eða skemmri tíma.

Salurinn er hentugur fyrir fundi, litlar ráðstefnur, ýmiskonar námskeið og mannfagnaði. Þráðlaust internet er á staðnum og prentari. Salurinn hentar vel fyrir kokka sem að koma með allan mat á staðinn. Lítið eldhús með uppþvottavél, kaffivélum og eldhúsáhöldum.

Salurinn rúmar um 60 manns í sæti og er leigður gegn vægu verði.

Félagsmenn VG alls staðar af landinu fá 5000 kr. afslátt af salarleigu.

Hafið samband við Hrafnhildi Gunnlaugsdóttur í síma 861-0552 / 552-7538

Lesa meira
 

26.10.2007 : Kynhneigð kemur ríkinu ekki við

Á fundi sínum 26. október 2007 samþykkti stjórn Ungra Vinstri grænna svohljóðandi ályktun:

Ung vinstri græn telja það ólíðandi að íslensk lög skipti fólki í hópa eftir kynhneigð, enda er kynhneigð einkamál hvers og eins. Því er fáránlegt að tvö hjúskaparlög séu í gildi á Íslandi, önnur fyrir „gagnkynhneigða“ og hin fyrir „samkynheigða“.

Ung vinstri græn lýsa yfir stuðningi sínum við frumvarp um breytingingu á hjúskaparlögum sem Kolbrún Halldórsdóttir og fleiri hafa lagt fram á Alþingi. Samkvæmt frumvarpinu gilda ein hjúskaparlög fyrir okkur öll, óháð því með hverjum við viljum eyða ævinni.

Lesa meira
 
lydheilsa_og_samfelag_malthing_27okt07

25.10.2007 : Lýðheilsa og samfélag

Málþing Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um heilbrigði og heilbrigðisþjónustu, haldið í Ásnum, fundasal Landspítala - Háskólasjúkrahúss, laugardaginn 27. október 9-16, salurinn er fyrir innan mötuneyti Landspítalans við Hringbraut. Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Dagskrá:

Lesa meira
 
Huginn

25.10.2007 : Ný stjórn í VG á Akureyri

Aðalfundur svæðisfélags Akureyrar fór fram í Deiglunni þann 24. október. Fundurinn sendi baráttukveðjur í tilefni kvennafrídagsins. Á fundinum var einnig kjörin ný stjórn en Jón Erlendsson lét af embætti formanns og í hans stað var kjörin Huginn Freyr Þorsteinsson. Aðrir í stjórn voru kosnir:

Lesa meira
 

24.10.2007 : Aðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík skorar á borgarstjórn að afnema kynbundinn launamun

Svohljóðandi ályktun var samþykkt á aðalfundi Vinstri grænna í Reykjavík: Aðalfundur VGR, haldinn 24. október 2007, á þrítugasta og öðrum afmælisdegi kvennafrídagsins hvetur til öflugrar umræðu um stöðu kvenna á vinnumarkaði og skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að afnema kynbundinn launamun í komandi kjarasamningum.

Lesa meira
 
15_heimir_janusarson

24.10.2007 : Ný stjórn Vinstri grænna í Reykjavík

Á aðalfundi Vinstri grænna í Reykjavík 24. október 2007 var kjörin ný stjórn. Heimir Janusarson var kjörinn formaður en aðrir í stjórninni eru Guðlaug Teitsdóttir, Elías Halldór Ágústsson, Elín Sigurðardóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Toshiki Toma og Valgeir Jónasson. Sjöfn Ingólfsdóttir og Gérard Lemarquis voru kjörin varamenn. Skoðunarmenn reikninga eru Bergljót Stefánsdóttir og Svanhildur Kaaber.

Lesa meira
 

24.10.2007 : Lýðheilsa og samfélag - málþing á laugardaginn

Boðað er til málþings um heilbrigði og heilbrigðismál komandi laugardag, 27. október. Metnaðarfull dagskrá verður frá klukkan 9-16 með fjölda fyrirlesara og rými fyrir góðar umræður. Málþingið er haldið í sal inn af matsal Landspítalans við Hringbraut og er öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Lesa meira
 
kvennamerkid

24.10.2007 : Í tilefni dagsins

Vinstrihreyfingin – grænt framboð byggir stefnu sína á umhverfisvernd, félagslegu réttlæti og kvenfrelsi. Síðustu ár hafa þingmenn Vinstri grænna lagt fram ótal tillögur um leiðir til að vinna á kynbundnu misrétti í samfélaginu. Vinstri græn hafa langt til að kaupendur vændis veri látnir sæta ábyrgð, að lögregla fái í hendur úrræði til að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum og banna heimsóknir þeirra þangað tímabundið, að fórnarlömb mansals sem gefa sig fram hér á landi njóti verndar íslenskra yfirvalda, að jafnréttisstofa verði stórefld og fái í hendur tæki til að takast af alvöru á við kynbundinn launamun, að mikilvægi kvennahreyfingarinnar verði viðurkennt með markvissum hætti og fleira mætti telja

Lesa meira
 
Hjördís Garðarsdóttir

23.10.2007 : Aðalfundur VG á Akranesi kýs nýja stjórn og ályktar um fjölbraut

Á aðalfundi VG á Akranesi 22. Október var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs Akranesi og nágrenni, haldinn 22. október 2007, leggur áherslu á að ríkið geri FVA kleift að sinna skyldum sínum gagnvart nemendum á starfsvæði skólans. Nú er staðan sú að skólinn fær ekki fjárframlög með öllum þeim nemendum sem hann sækja samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2008.

Því ber að fagna að nemendum hefur fjölgað við skólann. Mikilvægt er að áfram verið hægt að bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu með því að tryggja nægt fjármagn til skólans. Lesa meira

 

22.10.2007 : Málþing um heilbrigðismál á laugardaginn

Komandi laugardag, 27. október, boðar Vinstrihreyfingin – grænt framboð til málþings um heilbrigðismál. Metnaðarfull dagskrá verður frá klukkan 9-16 með fjölda fyrirlesara og rými fyrir góðar umræður. Málþingið er haldið í sal inn af matsal Landspítalans við Hringbraut og eru félagar hvattir til að mæta og fá áhugafólk um heilbrigðismál með sér.

Lesa meira
 
or_logo

16.10.2007 : Nýjir fulltrúar í stjórn OR

Fyrsta verk nýs meirihluta í Reykjavík verður að setja af stað heildarstefnumörkun í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur. Á fundi borgarráðs á fimmtudaginn nk. verður skipaður þverpólitískur stýrihópur undir forystu Svandísar Svavarsdóttur sem tekst þetta verkefni á hendur. Til verkefnisins verða kallaðir óháðir sérfræðingar til að leggja mat á mismunandi leiðir í núverandi stöðu og draga lærdóm af umræðu og gögnum málsins. Hópurinn mun einnig leggja grunn að ákvörðunum um næstu skref í málefnum Orkuveitunnar, hlut hennar í útrás á orkusviði og stefnu til framtíðar. Í erindisbréfi hópsins er gert ráð fyrir að samráð og samvinna verði haft við aðra eigendur í Orkuveitunni.

Lesa meira
 
borgarstjornarflokkur 2006

16.10.2007 : Nýr meirihluti tekur við

Nýr meirihluti tekur við Reykjavíkurborg í dag, meirihluti Vinstri grænna, Samfylkingar, Framsóknar og F-lista. Þessi nýji meirihluti er myndaður til að starfa í anda félagshyggju og lýðræðislegra vinnubragða og ekki síst til að standa vörð um almannaeigur gagnvart botnalausri peningahyggju. Við óskum Reykjavíkingum til hamingju með nýjan meirihluta og óskum fulltrúum Vinstri grænna og fulltrúum samstarfsflokka okkar velfarnaðar í erfiðum en skemmtilegum verkefnum framundan.

Lesa meira
 
svandis_a_fundi

12.10.2007 : Vinstri græn í Reykjavík fagna nýjum meirihluta

Svohljóðandi ályktun var samþykkt einróma á fundi Vinstri grænna í Reykjavík:

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík, haldinn 12. október 2007 fagnar nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg sem myndaður er til að starfa í anda félagshyggju, öflugrar almannaþjónustu og lýðræðislegra vinnubragða. Fundurinn lýsir sérstakri ánægju með vasklega framgöngu Svandísar Svavarsdóttur, oddvita VG, sem hefur staðið vörð um hagsmuni borgarbúa trú stefnu Vinstri grænna um umhverfisvernd, auðlindastefnu og jafnrétti. Félagsfundurinn lýsir fullum stuðningi við störf borgarstjórnarflokks VG við myndun hins nýja meirihluta og óskar Reykjavíkingum til hamingju með nýja félagshyggjustjórn.

Lesa meira
 

12.10.2007 : Nýjum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur fagnað

Stjórnir Ungra vinstri-grænna og Ungra vinstri-grænna í Reykjavík fagna komandi meirihlutasamstarfi í Reykjavík. Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið við völd nema í eitt og hálft ár var löngu tímabært að koma hinum spilltu peningaöflum frá völdum í borgarstjórn Reykjavíkur.

Ein af forsendum þess að hið nýja samstarf gangi upp er að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi, geri hreint fyrir sínum dyrum í orkumálum Reykjavíkur sem allra fyrst.  Einnig þarf Dagur B. Eggertsson að útskýra hvers vegna hann studdi það að völdum starfsmönnum  Orkuveitu Reykjavíkur yrði boðnir kaupréttarsamningar í  REI. Ung vinstri-græn telja Svandísi Svavarsdóttur hafa með framgöngu sinni að undanförnu sýnt að hún er og verður hinn eini sanni leiðtogi borgarstjórnar Reykjavíkur. Lesa meira

 
Svandis

11.10.2007 : Nýr meirihluti í Reykjavíkurborg

Nýr meirihluti F-listans, Vinstri grænna, Framsóknar og Samfylkingar var myndaður í Reykjavíkurborg í dag. Boðað er til félagsfundar í Reykjavíkurfélagi Vinstri grænna á morgun, föstudag 12. október af þessu tilefni. Fundurinn er haldinn klukkan 18 að Vesturgötu 7.

Lesa meira
 
akranesveita_logo

11.10.2007 : VG í Borgarbyggð skorar á Alþingi að afturkalla heimild til að selja Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar

Fundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Borgarbyggð, haldinn í Borgarnesi 10. október 2007, skorar á Alþingi að fella nú þegar úr gildi heimild í fjárlögum til að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Atburðarás undanfarinna daga hefur leitt í ljós að sala ríkisins á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja voru mistök.

Það er Borgfirðingum afar mikilvægt að ráða þeim náttúruauðlindum sem gera Borgarfjörð jafn fýsilegan búsetukost og raun ber vitni en Deildartunguhver og önnur hitaréttindi HAB í Borgarfirði verði ekki leiksoppar markaðsaflanna líkt og gerst hefur á Suðurnesjum. Lesa meira

 
or_logo

11.10.2007 : VG í Borgarbyggð mótmælir hlutafélagavæðingu OR

Svohljóðandi ályktun var afgreidd á félagsfundi Vinstri grænna í Borgarbyggð 10. október:

Af gefnu tilefni mótmælir Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Borgarbyggð hugmyndum um að breyta Orkuveitu Reykjavíkur í hlutafélag. Enn fremur er tilefni til að minna kjörna fulltrúa og aðra fulltrúa almennings í stjórnum, nefndum og ráðum að þeim ber skylda til að gæta hagsmuna almennings og engra annarra hagsmuna í störfum sínum. Við alla ákvarðanatöku er mikilvægt að allar forsendur liggi fyrir og boðið sé upp á lýðræðislega umræðu áður en ákvörðun er tekin enda byggir lýðræðislegt stjórnarfar á þeirri vissu að betur sjái augu en auga. Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Borgarbyggð þakkar Svandísi Svavarsdóttur borgarfulltrúa skelegga framgöngu við að verja hagsmuni eigenda Orkuveitu Reykjavíkur í atburðarás þar sem allar meginreglur lýðræðis og jafnræðis virðast hafa gleymst.

Lesa meira
 
akranes_baejarmerki

11.10.2007 : Bókun fulltrúa VG í bæjarstjórn Akraness

Fulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórn Akraness lagði fram svohljóðandi bókun á fundi bæjarstjórnar 10. október:

Við horfum í dag fram á það að Hitaveita Suðurnesja verði á næstu dögum einkavædd, það er, að hluti Orkuveitu Reykjavíkur verði seldur inn í REI. Nú er Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, sem á 79,3% í HAB á móti 20,7% hluta ríkisins. Í tillögu að fjárlögum næsta árs er að auki gert ráð fyrir að ríkið selji sinn hlut.

Það sem hóf þetta ferli allt, sem við nú stöndum frammi fyrir, er sala ríkisins á 15% hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja. Það hlýtur því að vera hagur Akurnesinga að ekki verði af hlutafélagavæðingu Orkuveitunnar og komið verði í veg fyrir að Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar fari sömu leið og Hitaveita Suðurnesja. Ég skora á bæjarstjórn og fulltrúa Akraneskaupstaðar í stjórn Orkuveitunnar að leggjast gegn markaðsvæðingu OR og standa þar með vörð um hagsmuni bæjarbúa.

Lesa meira
 

9.10.2007 : Mætum öll á pallana klukkan fjögur

Haldinn verður aukafundur í Borgarstjórn Reykjavíkur miðvikudaginn 10. október klukkan fjögur um málefni Orkuveitunnar og samruna Geysis Green Energy við Reykjavik Energy Invest. Mætum á pallana, sýnum hug okkar og gerum kröfu um heiðarleg og lýðræðisleg vinnubrögð.

Lesa meira
 
UVG_logo

9.10.2007 : Stefnuyfirlýsing Ungra vinstri grænna samþykkt um helgina

Á nýafstöðnum landsfundi Ungra vinstri grænna var samþykkt stefnuyfirlýsing samtakanna. Hún er svohljóðandi:

Völdin til fólksins

Lýðræði grundvallast á að allir hafi jöfn tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanatöku og álit allra hafi jafn mikið vægi. Lýðræði snýst ekki eingöngu um að framkvæma vilja meirihlutans heldur líka að koma í veg fyrir að minnhlutinn sé kúgaður.

Ung vinstri-græn telja það ekki nægjanlegt að virkja lýðræði á fjögurra ára fresti. Við viljum auka aðgengi almennings að stefnumótun og ákvarðanatöku. Til að svo megi vera þurfa vinnubrögð stjórnvalda að vera fagleg og gagnsæ. Ung vinstri-græn vilja að almenningur hafi rétt til að kalla til þjóðaratkvæðagreiðslu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sömuleiðis ákveðið hlutfall þingmanna.  

Tjáningarfrelsið er einn af hornsteinum lýðræðisins og felur í sér að fólk hefur rétt á því að láta í ljós skoðanir sínar, hverjar sem þær eru, á þann hátt sem það kýs.

Lesa meira
 
Auður Lilja Erlendsdóttir

9.10.2007 : Auður Lilja endurkjörin formaður Ungra vinstri grænna

Landsfundur Ungra vinstri-grænna var haldinn í Reykjavík dagana 6.-7. október 2007. Fundurinn tókst í alla staði vel og var mæting ungliða með ágætum. Á landsfundi var Auður Lilja Erlingsdóttir endurkjörin formaður, en Auður Lilja hefur gegnt embættinu í eitt ár og er ennfremur fyrsti varamaður Vinstri grænna í Reykjarvíkurkjördæmi Suður. Nýkjörna stjórn Ungra Vinstri-grænna skipa eftirtalin:

Lesa meira
 
UVG_logo

9.10.2007 : Ályktanir landsfundar Ungra vinstri grænna

Landsfundur Ungra vinstri grænna var haldinn helgina 6.-7. og voru þar samþykktar eftirfarandi ályktanir:

Frjáls Palestína
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október 2007, lýsir stuðningi sínum við sjálfstætt og lýðræðislegt ríki í Palestínu. Ísland á ekki að viðurkenna rétt Ísraelsríkis til hertekinna landsvæða í Palestínu. Þingið fordæmir stöðuga hersetu Ísraelsríkis í Palestínu og árásir þess á nágranna sína.

Lesa meira
 
or_logo

9.10.2007 : Vinstri græn á Akranesi álykta um Orkuveitu Reykjavíkur

Á opnum bæjarmálafundi Vinstri grænna á Akranesi 8. október síðastliðinn var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi mótmælir harðlega þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem viðgengist hafa innan Orkuveitu Reykjavíkur og almenningur hefur orðið vitni að síðustu daga og vikur. Það er greinilegt að Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki liggur svo mikið á að framselja eignir almennings í hendur örfárra auðmanna að það er ekki ráðrúm til að stunda lýðræðisleg vinnubrögð. Allt stefnir þetta í þá átt að markaðsvæða orkugeirann eins og samþykktir Sjálfstæðisflokksins kveða á um, en ferlið virðist ekki þola dagsljós hvað þá heilbrigð skoðanaskipti. Þess í stað virðist græðgi ráða för þar sem einstaklingar maka krókinn í ferlinu. Mýmörgum spurningum er enn ósvarað, en eigendur Orkuveitunnar, sem eru íbúar Reykjavíkur, Akraness og Borgarbyggðar, eiga skýlausa kröfu um upplýsta umræðu og aðgengileg svör. Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi skorar á bæjarstjórn að gæta hagsmuna bæjarbúa og almennings alls og standa vörð um grunnþjónustuna og samfélagslegar eignir gegn óheftri græðgisvæðingu.

Lesa meira
 
Svandis

8.10.2007 : Svandís Svavarsdóttir spyr: Sátt um hvað?

Ljóst er að sáttaniðurstaða Sjálfstæðismanna er sátt um áframhaldandi völd í Ráðhúsinu í Reykjavík. Hún er ekki sátt um vinnubrögð, ekki sátt um heiðarleika, ekki sátt um skilning á lýðræði og ekki sátt um samráð. Hún er sátt um að selja fyrirtækið hið fyrsta án þess að lykilspurningum hafi verið svarað. Jafnframt er hún sátt um að viðhalda völdum Framsóknarflokksins í borginni.

Hvað er Reykjavík Energy Invest? Hvað á þetta fyrirtæki? Enn hefur ekki verið lagður fram listi yfir eignir þess. Á að einkavæða hlut fyrirtækisins í Hitaveitu Suðurnesja? Á að einkavæða sérþekkingu Orkuveitu Reykjavíkur? Á að einkavæða fyrirtækið á grundvelli verðmats Hannesar og Bjarna? Hverjir munu kaupa aðrir en þeir sem þegar hafa eignast umtalsverðan hlut í fyrirtækinu? Var samruni fyrirtækjanna löglegur yfir höfuð? Þessum spurningum hefur ekki verið svarað.

Lesa meira
 

8.10.2007 : Ragnar H. Hall tekur að sér mál Svandísar Svavarsdóttur

Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður hefur tekið að sér mál Svandísar Svavarsdóttur, fulltrúa Vinstri - grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vegna eigendafundar Orkuveitunnar í síðustu viku þar sem tekin var ákvörðun um samruna Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy.

Svandís hefur í fjölmiðlum bent á að fundurinn hafi verið boðaður með innan við sólarhringsfyrirvara en boða ætti til slíkra fundi með minnst viku fyrirvara samkvæmt sameignarsamningi Orkuveitunnar. Hún lagði fram bókun þess efnis á fundinum og áskildi sér rétt til að láta á það reyna fyrir dómstólum.

Lesa meira
 

8.10.2007 : Eldri vinstri-græn halda fræðslu- og skemmtifund 10. október kl. 20.00

Eldri vinstri græn halda fyrsta fræðslu- og skemmtifund haustsins miðvikudaginn 10. október nk. kl. 20:00 í Stangarhyl 4, húsi eldri borgara í Reykjavík. Dagskráin verður í aðalatriðum þessi:

1. Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöfluna – Auður Hildur Hákonardóttir grasnytjungur og myndlistarkona

2. Nostralgísk gamanmál – Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur

3. Norrænir söngvar fyrir flaututríó – Nemendur úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar leika undir stjórn Maríu Cederborg tónlistarkennara

4. „Allt í lagi í Reykjavík“ – Katrín Jakobsdóttir þingkona spjallar um pólitík í gamalli glæpasögu Ólafs Friðrikssonar.

Þetta er þriðja starfsár hópsins. Félagar í VG eru sérstaklega hvattir til að taka með sér vini og kunningja því fundirnir eru opnir öllum óháð aldri og stjórnmálaskoðunum. Í kaffihléi gefst gott tóm til að ræða nýjustu viðburði í pólitíkinni.

Lesa meira
 

5.10.2007 : Opinn fundur VGR um málefni OR

Í ljósi nýliðinna atburða standa Vinstri-græn í Reykjavík fyrir opnum laugardagsfundi um málefni Orkuveitu Reykjavíkur. Fundurinn fer fram á morgun, laugardaginn 6. október kl. 11.00, í húsnæði VG að Suðurgötu 3. Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi og fulltrúi VG í stjórn Orkuveitunnar mun ræða um stöðu mála.

Allir velkomnir.

 
or_logo

5.10.2007 : Ályktun stjórnar VG í Reykjavík um OR

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík tekur heils hugar undir gagnrýni Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa hreyfingarinnar, á samruna orkufyrirtækjanna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy. Samruninn og þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið orka mjög tvímælis og eru Reykjarvíkurborg ekki til sóma. Jafnframt lýsir stjórnin yfir fullum stuðningi við þá afstöðu borgarfulltrúans að láta reyna á lögmæti nýliðins eigendafundar OR fyrir dómstólum.
 
Svandis

5.10.2007 : Svandís mótmælir kröftuglega í OR

Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri - grænna í stjórn Orkuveitunnar, fundaði með lögmönnum í gærkvöldi um lögmæti eigendafundar Orkuveitunnar í fyrradag. Hún ætlar að leita leiða til að fara með málið fyrir dóm og fá niðurstöðu fundarins hnekkt.

Boðað var til eigendafundar í Orkuveitu Reykjavíkur í fyrradag með innan við sólarhrings fyrirvara, en skv. eigendasamningi Orkuveitunnar þarf að boða skriflega til slíkra funda með viku fyrirvara.

Svandís hefur harðlega gagnrýnt þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy.

"Stjórn OR fékk 3 klukkutíma með engum fyrirvara til að fara yfir sameininguna" segir Svandís. "Það er verið að krefjast þess af okkur að henda 2.600 milljónum í áhættufjárfestingar, sem er nákvæmlega sama upphæð og fer í rekstur allra leikskóla borgarinnar á fyrstu 6 mánuðum ársins. Hér er verið að að hleypa hagnaði almennings og almannafé í vasa einstaklinga og málið allt lyktar af spillingu. Við vinstri-græn munum ekki horfa upp á þessar aðfarir aðgerðalaus" segir Svandís. 

Lesa meira
 
graentflurlogo

5.10.2007 : Bæjarmálaráð VG í Kópavogi heldur opinn fund

Bæjarmálaráð VG í Kópavogi stendur fyrir reglulegum opnum fundum í vetur þar sem skipst verður á skoðunum um gang mála og fjallað um brýnustu verkefnin framundan. Fyrsti fundurinn verður haldinn á morgun laugardag 5. október kl. 10 í Kragakaffi, Hamraborg 1-3. Allir velkomnir! Lesa meira
 
uvg

2.10.2007 : Ályktanir frá Ungum vinstri grænum í Reykjavík

Ung vinstri græn í Reykjavík héldu aðalfund sinn laugardaginn 29. september síðastliðinn. Á fundinum voru samþykktar ályktanir um nektardansstaði, hjólreiðar, launamál borgarinnar, miðbæinn og opnunartíma skemmtistaða. Ályktanirnar fylgja hér í heild sinni:

Lesa meira
 
brynja_bjorg

2.10.2007 : Ný stjórn UVGR

Aðalfundur Ungra vinstri grænna í Reykjavík var haldinn á laugardaginn síðasta. Elín Sigurðardóttir lét þá af embætti formanns og í hennar stað var kjörin Brynja Björg Halldórsdóttir. Aðrir í stjórn eru Ástríður Pétursdóttir, Claudia Overesch, Egill Ísleifur Hjaltason, Sigurður Kári Árnason og til vara Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir og Sigrún Vala Þorgrímsdóttir.

Lesa meira
 
Ný þingflokkur VG

1.10.2007 : Áherslur í upphafi þings

Í upphafi þings mun þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs beita sér fyrir umræðu um mikilvægi þess að endurheimta jafnvægi og stöðugleika í efnahagsmálum og þau brýnu úrlausnarefni á sviði hagstjórnar sem við blasa. Ríkisstjórnin neitar að horfast í augu við þá staðreynd að kvótakerfið hefur brugðist og óumflýjanlegt er að taka fiskveiðistjórnunarkerfið til heildarendurskoðunar. Svokallaðar mótvægisaðgerðir stjórnarinnar eru fálmkenndar og koma þeim að litlu sem engu gagni sem fyrir mestu áfalli verða vegna niðurskuðrar á fiskveiðiheimildum. Þingflokkur VG mun sjá til þess að Alþingi taki á þessum málum á fyrstu starfsdögum sínum.

Lesa meira
 
turidur_malar

28.9.2007 : Þuríður málar til styrktar sónartæki

Þann 13. október næstkomandi verður haldið listmunauppboð á Hótel Héraði á Egilsstöðum til styrktar kaupum á Sónartæki fyrir HSA. Það er kvenfélagið Bláklukka sem stendur að uppboðinu en uppboðshaldari er Helgi Seljan fréttamaður. Í tilefni uppboðsins málaði Þuríður Backman mynd sem verður boðin upp ásamt verkum eftir þekkta íslenska listamenn. Sýning á verkunum opnar í kjallara Hótels Héraðs mánudaginn 8. október klukkan 17, en uppboðið sjálft fer fram eins og áður segir 13. október klukkan 13.

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

20.9.2007 : Tillaga og álit minnihluta fjárlaganefndar vegna Grímseyjarferjumálsins

Á fundi fjárlaganefndar í dag var greinargerð Ríkisendurskoðunar um Grímseyjarferju-málið á dagskrá. Fulltrúar Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Frjálslynda flokksins í fjárlaganefnd báru fram eftirfarandi tillögu um að leitað yrði frekari upplýsinga um málið:

Lesa meira

 
arni thor a hjoli

18.9.2007 : Tillaga Árna Þórs um hljólreiðaáætlun samþykkt í borgarstjórn

Tillaga Árna Þórs Sigurðssonar, fráfarandi borgarfulltrúa Vinstri grænna, um hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavíkurborg var samþykkt í borgarstjórn fyrir stundu. Tillagan er svohljóðandi:

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að unnin verði sérstök hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík. Markmið áætlunarinnar verði að gera hjólreiðar að viðurkenndum og fullgildum kosti í samgöngumálum Reykvíkinga. Áætlunin taki annars vegar til stefnumótunar um aukið og bætt aðgengi hjólreiðafólks í borginni og hins vegar verði um að ræða framkvæmdaáætlun til nokkurra ára sem geri grein fyrir einstökum verkefnum og fjármögnun. Yfirstjórn verkefnisins verði í höndum umhverfis- og samgönguráðs og skal að því stefnt að áætlunin verði lögð fyrir borgarstjórn eigi síðar en um mitt ár 2008.

Lesa meira
 
turidur_og_farandsveinarnir

17.9.2007 : Þuríður og farandsveinarnir

Þuríður Backman þingkona var á ferð um kjördæmi sitt í síðustu viku og leit inn til bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs, Eiríks Björns Björgvinssonar. Á skrifstofu hans komu þýskir Zimmermännen til að fá stimpil bæjarstjóra til staðfestingar á því að þeir hefðu verið í vinnu í sveitarfélaginu. Gömul hefð er fyrir því í Þýskaldandi að trésmíðanemar yfirgefi heimabæ sinn og megi ekki nálgast hann í 15 kílómetra radíus í þrjú ár og einn dag. Hver og einn er með ferilbók, fremst í henni eru upplýsingar um iðnnemann, svo er kort af þeim radíus sem viðkomandi má ekki fara inn á. Hugmyndin er að þeir læri handverk og handbrögð annarra þjóða, því ber þeim að fara út um heiminn kauplaust og vinna fyrir mat um öðru uppihaldi. Í lok tímans fá þeir stimpil bæjarstjóra í viðkomandi bæ til að staðfesta að þar hafi þeir lifað og unnið. Þessir nemar hafa meðal annars komið við í Ástralíu og eru á leið til Kanada.

Lesa meira
 

13.9.2007 : Sveitarstjórnarráð Vinstri grænna ályktar í tilefni af umræðum um fjárfestingar einkaaðila í orkugeiranum

Eignarhald og nýting náttúruauðlinda hefur um langt skeið verið þrætuepli í íslensku samfélagi og hefur í raun klofið þjóðina í tvennt. Undanfarna áratugi hafa hatrammar deilur staðið um sjávarauðlindina, nýtingu hennar, framsal veiðiheimilda og eignarhald. Nú bendir ýmislegt til að í uppsiglingu kunni að vera  sambærileg átök um eignarhald og nýtingu orkuauðlindanna og vatnsins. Slík átök  verða ekki síður alvarleg fyrir íslenskt samfélag.  Þessi átök snúast um grundvallarhugsjónir, hvort tryggja eigi samfélagslegt eignarhald og nýtingu á orkuauðlindum eins og annarri grunnþjónustu eða hvort fórna eigi enn einni sameigninni í þágu peningaaflanna.
Lesa meira
 
bjornslundur

12.9.2007 : Fyrsti laugardagsfundur VGR haldinn í Björnslundi

Þá hefjast Laugardagsfundir Vinstri grænna í Reykjavík að nýju 15. september næstkomandi. Sá fyrsti verður á léttu nótunum og ætlar Hermann Valsson, formaður Vinstri grænna í Reykajvík, að bjóða okkur í Björnslund og kynna nýjar hugmyndir í útikennslu í grunskólum. Fundurinn hefst kl. 11:00. Björnslundur er syðst í Norðlingaholti. Ekið er inn í Norðlingaholt frá Breiðholtsbraut síðan farin Elliðabraut og Bugða til suðurs, innan 50 metra er komið að hvítu hliði á hægri hönd og er það inngangurinn í Björnslund.

Heitt kakó og pönnukökur, allir velkomnir!

Lesa meira
 

11.9.2007 : Leikskólavandi verður ekki leystur með einkavæðingu

Í ljósi ummæla formanns leikskólaráðs, bæði í borgarstjórn og í fjölmiðlum, um mögulegar breytingar á rekstrarformi leikskóla borgarinnar hefur fulltrúi Vinstri grænna í leikskólaráði, Helga Björg Ragnarsdóttir, óskað eftir að boðað verði til fundar í ráðinu hið fyrsta. Þau vandamál sem Leikskólar Reykjavíkur standa frammi fyrir verða ekki leyst með breytingum á rekstrarformi, eins og formaður leikskólaráðs virðist trúa, heldur fyrst og fremst með því að bæta kjör þeirra stétta sem þar starfa. Brýnt er að umræða um málið fari fram á vettvangi leikskólaráðs hið fyrsta.

Lesa meira
 
or_logo

6.9.2007 : Rekstrarformsbreytingin í almenna atkvæðagreiðslu

Á fundi borgarráðs var lögð fram tillaga borgarstjóra um starfshóp um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur. Við það tækifæri lagði borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna fram viðaukatillögu Vinstri grænna í borgarráði svohljóðandi:

Starfshópurinn sjái jafnframt til þess að öflug umræða eigi sér stað innan samfélagsins um svo afdrifaríkt mál sem hér er á ferð með íbúafundum og kynningum. Afar mikilvægt er að lýðræðisleg umfjöllun fái tíma og að almenningur fái ráðrúm til að kynna sér rök í málinu.

Starfshópurinn undirbúi einnig að hugsanleg rekstrarformsbreyting verði að lokum borin undir borgarbúa í almennri kosningu til að tryggja að vilji almennings í svo stóru máli komi fram.

Viðaukatillögunni var vísað í starfshópinn.

Lesa meira
 
VG við Þjórsá

4.9.2007 : Myndir úr sumarferð Vinstri grænna 2007

Að loknum góðum flokksráðsfundi á Flúðum var haldið í gönguferð meðfram Þjórsá undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur. Veðurguðirnir voru okkur hliðhollir og óhætt að segja að við mættum höfðinglegum móttökum heimafólks sem slóst í för með okkur og sögðu frá baráttunni fyrir verndun Þjórsár. Göngufólk upplifði sterkt mikilvægi þess að vernda þessa náttúruperlu gegn ásælni raforkufyrirtækja sem fara með offorsi gegn landeigendum og umhverfisverndarsinnum og Vinstrihreyfingin – grænt framboð mun ekki liggja á liði sínu í þeirri baráttu. Að göngu lokinni var slegið upp grillveislu í bústað Bergnýjar Marvinsdóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Hér má sjá myndir úr göngunni og grillinu.

Lesa meira
 

4.9.2007 : Fjölmennum á palla Ráhússins í dag klukkan tvö

Kæri félagi,

Málefni Laugavegar 4 til 6 verður fyrsta mál á dagskrá Borgarstjórnarfundar í dag. Fundurinn hefst klukkan tvö í Ráðhúsi Reykjavíkur og er um að gera að fjölmenna á áhorfendapallana. Enn er hægt að snúa við ákvörðuninni um niðurrif en það krefst mikils þrýstings og að borgarbúar taki þátt í umræðunni. Sjáumst í Ráðhúsinu klukkan tvö í dag.

Svandís Svavarsdóttir

Lesa meira
 

3.9.2007 : Gjástykki þolir enga bið

Á baksíðu Morgunblaðsins í dag er því slegið upp að Helgi Hjörvar, formaður umhverfisnefndar Alþingis, boði til fundar í nefndinni í næstu viku þar sem hann hyggist taka fyrir erindi frá Landvernd og SUNN, Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi. Samtökin hafa óskað eftir opinberri rannsókn á útgáfu rannsóknarleyfis til Landsvirkjunar vegna jarðhita í Gjástykki. Formleg umsókn um leyfið barst 8. maí sl. og var það afgreitt á tveimur dögum og og útgefið 10. maí sl., tveimur dögum fyrir alþingiskosningar.

Í baksíðuviðtali Morgunblaðsins lætur formaður umhverfisnefndar það ósagt að það voru þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem fimmtudaginn 30. ágúst sl. óskuðu eftir sérstökum fundi í bæði umhverfis- og iðnaðarnefnd vegna erindis samtakanna. Engin formleg viðbrögð hafa borist frá formönnum nefndanna fyrr en nú að lesa má í fjölmiðlum að Helgi Hjörvar „geri ráð fyrir“ að málið verði tekið upp á fundi í næstu viku. Enn er beðið svars frá formanni iðnaðarnefndar, Katrínu Júlíusdóttur. Lesa meira

 
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

3.9.2007 : Guðfríður Lilja Grétarsdóttir ráðin framkvæmdarstýra þingflokks Vinstri Grænna

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tekur til starfa sem framkvæmdarstýra þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í september. Guðfríður Lilja er með BA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og mastersgráðu í hugmyndasögu og heimspeki frá Cambridge-háskóla í Bretlandi. Hún hefur starfað sem alþjóðaritari á alþjóðasviði Alþingis frá árinu 2001. Hún starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri þingmannanefndar um norðurskautsmál þar sem hún vann að ýmsum verkefnum er lúta að náttúruvernd á norðurslóðum. Í síðustu kosningum skipaði Guðfríður Lilja annað sætið í Suðvesturkjördæmi og er varaþingkona Vinstri grænna. Hún er fyrsta konan sem gegnt hefur embætti forseta Skáksambands Íslands og Skáksambands Norðurlanda. Guðfríður Lilja býr með Steinunni H. Blöndal, hjúkrunarfræðingi og ljósmóður.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tekur við starfinu af Drífu Snædal sem áfram mun gegna starfi framkvæmdarstýru Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Lesa meira
 
Svandis

3.9.2007 : Fréttatilkynning frá fulltrúa VG í stjórn Orkuveitunnar

Á fundi Orkuveitu Reykjavíkur í morgun var samþykkt tillaga um að beina því til eigenda Orkuveitunnar að hefja undirbúning að hlutafélagavæðingu fyrirtækisins.

Fulltrúi Vinstri grænna lagði fram frávísunartillögu á fundinum svohljóðandi:

Það er mat fulltrúa Vinstri grænna að ekki sé eðlilegt að bera fram tillögu um breytt rekstrarform Orkuveitu Reykjavíkur á vettvangi stjórnarinnar. Það er hlutverk eigenda að leggja fram slíka tillögu sé til þess pólitískur vilji. Því er lagt til að tillögunni verði vísað frá.

Lesa meira
 

2.9.2007 : Ályktanir flokksráðs Vinstri grænna

Á nýafstöðnum flokksráðsfundi Vinstri grænna á Flúðum voru samþykktar fjórar ályktanir um: almannaþjónustu, friðar- og utanríkismál, um Orkuveitur Reykjavíkur og um lýðræði og umhverfi. Auk þess að ganga frá ályktunum voru fjörugar umræður um nýafstaðnar kosningar, áhrif markaðs- og einkavæðingar á samfélagþjónustu auk fjölda annarra mála. Að loknum flokksráðsfundinum var haldið í göngu meðfram Þjórsá undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur. Ályktanirnar fylgja hér: Lesa meira
 

27.8.2007 : Sumarferð Vinstri grænna

Sumarferð Vinstri grænna verður að þessu sinni dagsferð um hluta Þjórsár undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur þann 1. september næstkomandi. Ferðin er skipulögð sem fjölskylduferð en hraðskreiðir fjallagarpar fá einnig eitthvað fyrir sinn snúð. Við leggjum af stað frá Hótel Flúðum klukkan tólf á hádegi. Eftir um 6 klukkustunda þægilega göngu munum við svo grilla saman á vel völdum stað, en gangan verður að einhverju leiti sniðin að fjölda þátttakenda og því er nauðsynlegt að skrá sig og sína til leiks á vg@vg.is eða í síma 552 8872.

Lesa meira
 
thjorsa

22.8.2007 : Þingflokkurinn fer fram á úttekt Ríkisendurskoðunar v. samnings um vatnsréttindi í Þjórsá

Þann 9. maí 2007 gerði íslenska ríkið samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum í neðri hluta Þjórsár. Samkomulagið er gert milli þriggja ráðherra og forstjóra Landsvirkjunar; fjármálaráðherra, fv. iðnaðarráðherra og fv. landbúnaðarráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins og undirritað án fyrirvara. Samkomulagið var undirritað þrem dögum fyrir kosningar, án minnstu vitundar Alþingis, landeigenda, sveitastjórna á svæðinu eða almennings og hefur verið haldið leyndu fram að þessu. Lesa meira
 

15.8.2007 : Greidd viðbótarlaun á leikskólum í Reykjavík að tillögu VG

Samþykkt var samhljóða í leikskólaráði Reykjavíkurborgar í dag tillaga Vinstri grænna um að grípa til aðgerða vegna manneklu á leikskólum borgarinnar. Nýtt verður heimild til greiðslu viðbótarlauna. Helga Björg Ragnarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í leikskólaráði lagði til að gripið verði til aðgerða og brugðist við því ástandi sem skapast hefur í leikskólum Reykjavíkurborgar vegna manneklu. Leita þarf leiða til að fá leikskólakennara til starfa og tryggja þar með faglegt starf leikskólanna. Því er lagt til að nýtt verði heimild til tímabundinna viðbótarlauna. Sú tillaga var sem áður segir samþykkt.

Lesa meira
 

11.8.2007 : Fjárlaganefnd verður að gera grein fyrir fjárskuldbindingum til hermála

Jón Bjarnason fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í fjárlaganefnd Alþingis hefur óskaði eftir fundi í fjárlaganefnd í dag með svohljóðandi  bréfi:

Hér með er óskað eftir fundi í fjárlaganefnd Alþingis. Tilefni fundarins eru fréttir um útgjöld og fjárskuldbindingar ríkissjóðs vegna yfirtöku ríkisins á rekstri Ratsjárstofnunar hér á landi.

Enn fremur er óskað eftir upplýsingum um fjárskuldbindingar til skemmri og lengri tíma vegna þátttöku í hernaðarumsvifum hér á landi á vegum Nató, þar með talið boðuðum heræfingum þess hér á landi.

Óskað er eftir að upplýst verði hvaða fjárheimildir af hálfu alþingis standa að baki þessum útgjöldum.

Minnt er á  ákvæði  laga um fjárreiður ríkisins nr. 98 frá 1997 sem kveða á um að ráðherra sé óheimilt að samþykkja greiðslur eða gera skuldbindandi samninga án fyrirfram samþykkis Alþingis. Aðeins má inna af hendi slíkar greiðslur í sérstökum neyðatilvikum . „Fjármálaráðherra er skylt að gera fjárlaganefnd grein fyrir slíkum ófyrirséðum greiðslum strax og ákvörðun hefur verið tekin um þær og leita heimilda til þeirra með frumvarpi til fjáraukalaga.“

Ekki verður séð að hér sé um að ræða slík neyðartilvik.

Það er grundvallaratriði að íslensk stjórnvöld fari að lögum og þess vegna er óskað eftir fundi í fjárlaganefnd svo fljótt sem verða má  þannig  að nefndin fái nákvæmar upplýsingar um áform ríkisstjórnarinnar um tilgreind aukin útgjöld og fjárskuldbindingar og lögmæti þeirra. Lesa meira

 
Steingrímur J. Sigfússon

9.8.2007 : Yfirlýsing frá Steingrími J. Sigfússyni fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í utanríkismálanefnd Alþingis

Undirritaður gagnrýnir harðlega hvernig bæði fyrrverandi og núverandi ríkisstjórn heldur á málum hvað varðar breytta stöðu utanríkis- og öryggismála í kjölfar brottfarar Bandaríkjahers af Íslandi.

  • -Án nokkurrar undangenginnar umræðu og stefnumótunar á sjálfstæðum íslenskum forsendum.
  • -án nokkurrar greiningar á þörfum Íslands og hagsmununm,
  • -án eiginlegs samráðs við utanríkismálanefnd
  • -án þess að hinn nýi samráðsvettvangur stjórnmálaflokkanna, sem boðaður var þegar hinn 26. september 2006, hafi litið dagsins ljós;

er Íslandi nú þvælt inn í heræfingar, samningar gerðir við önnur ríki og bandalög, mál sett í farveg og stofnað til mikils kostnaðar í nútíð og framtíð án nokkurra fyrirliggjandi fjárheimilda í lögum.

Það sem í vændum virðist vera og koma til með að fela í sér útgjöld er m.a.:

  1. Árlegar heræfingar Bandaríkjamanna og einhverra fleiri á grundvelli samninga Íslands og Bandaríkjanna frá sl. hausti með tilheyrandi gistiríkiskostnaði Íslands.
  2. Áframhaldandi rekstur ratsjárstöðvakerfis í hernaðarskyni og úrvinnsla á merkjum á kostnað Íslands frá og með 15. ágúst nk.
  3. Koma orustuflugvéla frá Natóríkjum 4 sinnum á ári í loftvarnarskyni og til æfinga með tilheyrandi gistiríkiskostnaði Íslands.
  4. Tvíhliða samningar við Norðmenn, Dani og mögulega fleiri og gistiríkiskostnaður sem á Ísland fellur vegna heimsókna og eftir atvikum umsvifa þeirra hér.
  5. Kostnaður innlendra aðila svo sem Landhelgisgæslu og lögreglu vegna þátttöku í æfingum o.fl.

Ennfremur vísar undirritaður til bókunar í utanríkismálanefnd hinn 24. apríl sl.

Alþingi, 9. ágúst 2007

Steingrímur J. Sigfússon

Lesa meira
 
VG-S-1-Atli_Gislason_055

2.8.2007 : Atli Gíslason sextugur

Í tilefni af 60 ára afmæli mínu 12. ágúst nk. tek ég á móti vinum, vandamönnum og öðrum sem vilja samgleðjast mér á þessum tímamótum í veitingaskálanum Þrastarlundi, Grímsnesi, laugardaginn 11. ágúst nk. og hefst afmælisveislan kl. 20.00. Mér þætti afar vænt um að jafnt afmælisgestir og þeir sem ekki eiga heimangengt 11. ágúst og vilja gleðja mig með gjöfum eða öðrum hætti láti Stígamót njóta gjafmildinnar. Kennitala samtakanna er 620190-1449 og bankareikningur 101-26-36549.  Fyrir þá sem ekki þekkja til vek ég athygli á að Þrastarlundur er með fegurstu stöðum á Suðurlandi.  Þar eru merktar gönguslóðir við allra hæfi og mjög stórt tjaldstæði.  Hlakka til að sjá ykkur. 

Kær kveðja,

Atli Gíslason

Lesa meira
 

2.8.2007 : Húrra fyrir lögreglustjóra

Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Kópavogi fagnar ákvörðun Lögreglustjóra að heimila ekki nektarsýningar á Goldfinger. Vinstri græn hafa lengi barist gegn þeirri niðurlægingu sem viðgengst á nektardansstöðum og bent á það kynbundna ofbeldi sem felst í kaupum og sölu á líkama kvenna. Ákvörðun Lögreglustjóra markar tímamót í kvenfrelsisbaráttunni þar sem hið opinbera setur skorður við hlutgervingu líkama kvenna. Vinstri græn binda vonir við að áfram verði haldið á þessari braut í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.

Lesa meira
 

26.7.2007 : Sumarferð - gengið með Þjórsá

Sumarferð Vinstri grænna verður að þessu sinni dagsferð um hluta Þjórsár undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur þann 1. september næstkomandi. Ferðin er skipulögð sem fjölskylduferð en hraðskreiðir fjallagarpar fá einnig eitthvað fyrir sinn snúð. Ætlunin er að hittast á Hótel Flúðum klukkan ellefu um morguninn. Eftir um 6 klukkustunda þægilega göngu munum við svo grilla saman á vel völdum stað, en gangan verður að einhverju leiti sniðin að fjölda þátttakenda og því er nauðsynlegt að skrá sig og sína til leiks fyrir 7. ágúst á vg@vg.is. Gönguferðin og kvöldmaturinn er í boði Vinstri grænna en göngugarpar eru hvattir til að hafa staðgott nesti með sér í ferðina.

Lesa meira
 
Lilja Rafney

23.7.2007 : Vil ekki eyða orku og peningum í olíuhreinsistöð

Eftirfarandi viðtal við Lilju Rafney Magnúsdóttur birtist í héraðsfréttablaðinu BB á Ísafirði. Lilja er þekkt fyrir störf sín að verkalýðsmálum og stjórnmálum en hún hefur verið félagi í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði frá upphafi, var varaþingkona flokksins í tvö kjörtímabil og hefur setið í stjórn hans frá árinu 2001.

Lesa meira
 
tyrkneski_faninn

20.7.2007 : Vinstri græn á Norðurlöndum hvetja Tyrknesk stjórnvöld til að tryggja lýðræðislegar kosningar á sunnudag.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur, ásamt systurflokkum í Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku, sent frá sér hvatningu til Tyrkneskra stjórnvalda að tryggja lýðræðislegar kosningar til tyrkneska þingsins á sunnudaginn. Sérstaklega er lýst yfir áhyggjum af stöðu Kúrda og ítrekuðum afskiptum hersins í aðdraganda undangenginna kosninga. Yfirlýsinguna í heild má nálgast hér.

Lesa meira
 

20.7.2007 : Um stóriðju, náttúruvernd og vistvæna orkustefnu

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir miklum áhyggjum vegna þeirrar stefnu ríkisstjórnarinnar að heimila að áfram sé haldið undirbúningi álverksmiðja í Helguvík, í Straumsvík, á Húsavík og víðar í skjóli útgefinna rannsóknaleyfa til orkuöflunar. Yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar breytir að mati talsmanna orkufyrirtækjanna engu um þessi framkvæmdaáform, þótt annað hafi verið gefið í skyn af iðnaðarráðherra.

Lesa meira
 

16.7.2007 : Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur beiti sér í þágu almennings og leggist gegn einkavæðingu orkugeirans

Yfirlýsing frá Svandísi Svavarsdóttur stjórnarmanni Vinstri grænna í Orkuveitu Reykjavíkur:

Það er afdráttarlaus afstaða Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að grunnþjónusta samfélagsins skuli vera á hendi ríkis og sveitarfélaga. Með nýjum samningi um kaup á hlutum í Hitaveitu Suðurnesja yrði brotið blað í orkumálum Íslendinga. Þetta krefst víðtækrar umræðu í þjóðfélaginu og lýðræðislegrar afgreiðslu á Alþingi og hjá sveitarfélögum.

Áform fyrri ríkisstjórnar um að einkavæða 15,2 % i Hitaveitu Suðurnesja hafa engu viðnámi mætt hjá stjórnvöldum þrátt fyrir breytta samsetningu ríkisstjórnar og nú stefnir í að gengið verði enn lengra og að 32% veitunnar verði í eigu einkaaðila. Ef fram fer sem horfir er lýðræðislegu aðhaldi innan Hitaveitu Suðurnesja stefnt í uppnám og almannahagsmunir fyrir borð bornir.

Með þessari yfirlýsingu er vakin athygli á stórvarasamri stefnu og hættulegu fordæmi og þess krafist að ekki verði hróflað við grunnþáttum samfélagslegrar þjónustu.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ber að beita sér í þágu almennings og þar með leggjast gegn einkavæðingu orkugeirans. Í því ljósi ætti stjórn OR að hafa frumkvæði að umræðu á milli ríkis og sveitarfélaga um hvernig megi tryggja að orkufyrirtæki haldist í almannaeigu en gangi ekki kaupum og sölum á hlutabréfamarkaði eins og nú stefnir í varðandi Hitaveitu Suðurnesja.

Lesa meira
 

2.7.2007 : Engin stefnubreyting með nýrri ríkisstjórn

Fréttir af áformum stóriðjufyrirtækja um stóraukna uppbyggingu áliðnaðar á Íslandi voru tilefni þess að fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs óskuðu eftir fundi í umhverfis- og iðnaðarnefndum Alþingis. Sameiginlegur fundur nefndanna var haldinn í morgun og til hans boðaðir fulltrúar iðnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, Samorku og verkefnisstjórnar rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.

Lesa meira
 

29.6.2007 : Þingflokkur VG krefst þess að ríkið falli frá sölu á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja

HS_logoÝmis sveitarfélög sem átt hafa eignaraðild að Hitaveitu Suðurnesja eða eru á þjónustusvæði hennar eru uggandi vegna sölu fyrirtækisins og aðkomu einkaaðila að rekstrinum. Þegar ríkið bauð hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til kaups skömmu fyrir nýafstaðnar kosningar til Alþingis kom í ljós að fjárfestar mátu fyrirtækið á margfalt hærra verði en opinberir aðilar höfðu gert. Þetta endurspeglar trú fjárfesta á möguleikum til að hafa arð út úr orkugeiranum eftir að hann hefur verið markaðsvæddur. Forsenda mikillar arðsemi er að sjálfsögðu hátt raforkuverð sem kemur til með að bitna á neytendum, hinum almenna raforkukaupanda, heimilum og fyrirtækjum. Lesa meira
 

29.6.2007 : Sól við Urriðafoss og kaffi í Þjórsárdal á sunnudaginn

urridafossBaráttufundur til verndar Þjórsá verður við Urriðafoss næstkomandi sunnudag 1. júlí kl. 15:00. Náttúruunnendur og áhugafólk um verndun fossins er hvatt til að mæta. Þannig geta landsmenn sýnt hug sinn og stutt baráttu Flóamanna sem búa nú við þungan þrýsting stórfyrirtækja og stjórnvalda um að fórna náttúru landsins fyrir gsm-samband og malbik. Fólki er bent á að sameinast í bíla eins og kostur er, nota bílastæði fjær fossinum, koma á reiðhjóli eða ríðandi eða gera annað það sem kemur í veg fyrir bílastæðavandamál. Heimamenn sjá um dagskrána. Lesa meira
 

28.6.2007 : Grímulaus stóriðjustefna nýrrar ríkisstjórnar

alver_i_helguvikÍ tilefni þess að borgarráð samþykkti samning um raforkusölu Orkuveitu Reykjavíkur til hugsanlegs álvers Norðuráls í Helguvík bókaði Svandís Svavarsdóttir svo:

Orkuveita Reykjavíkur starfar samkvæmt hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar sem kallar á heildstæða nálgun hvers verkefnis sem ráðist er í. Með því er átt við fyrir liggi með skýrum hætti hversu stórt álver er fyrirhugað að reisa, á hvaða svæði nákvæmlega er fyrirhugað að sækja orkuna, orkuverðið sé kunnugt almenningi og að fyrir liggi heildstæð áætlun um verkið og áhrif þess á umhverfi, samfélag og efnahag. Í ljósi þessa er fyrirliggjandi tillaga um afgreiðslu orkusölusamnings til hluta álvers í Helguvík óásættanleg.

Lesa meira
 

26.6.2007 : Ályktun frá Sólunum þremur

Sólirnar þrjár í Straumi, á Suðurlandi og á Suðurnesjum sendu frá sér eftirfarandi ályktun í tilefni kynningarfundar í Þjórsárveri þar sem kynntar voru tvær tillögur að aðalskipulagi Flóahrepps.:

Sól á Suðurlandi, Sól í Straumi og Sól á Suðurnesjum fagna samþykkt hreppsnefndar Flóahrepps frá þrettánda júní 2007, um að hafa Urriðafossvirkjun ekki inni á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Samþykktin er mikil hvatning til þeirra sem vilja verja náttúruna við Þjórsá og hindra að orka þaðan verði seld til stóriðju.

Lesa meira
 

23.6.2007 : Stýrihópur VG um sjávarútvegsmál

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur stofnað stýrihóp um sjávarútvegsmál sem mun fylgjast grannt með þróun sjávarútvegsmála á næstunni. Nýleg tíðindi um stöðu þorskstofnsins og fregnir af alvarlegu atvinnuástandi í sjávarbyggðum gefa fulla ástæðu til að taka út ástandið í greininni og endurmeta stöðuna. Sjávarútvegur er einn af undirstöðuatvinnuvegum íslensku þjóðarinnar og miklu skiptir að taka ákvarðanir sem byggjast á skýrum vistfræðilegum, félagslegum og efnahagslegum forsendum og hafa þar hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi. Atli Gíslason, fulltrúi Vinstri–grænna í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis, leiðir hópinn en aðrir fulltrúar eru Álfheiður Ingadóttir, Björn Valur Gíslason, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, Bjarni Jónsson, Ásbjörn Björgvinsson og Hjörleifur Guttormsson. Lesa meira
 

22.6.2007 : Málflutningur Samfylkingarinnar í öngstræti - Bókanastríð í Hafnarfirði

Bæjarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í Hafnarfirði lagði fram fyrirspurn á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í morgun þar sem óskað er eftir greinargerð um samskipti bæjarstjóra, kjörinna fulltrúa Hafnarfjarðar og starfsmanna Hafnarfjarðar við Alcan í Straumsvík. Einnig lagði fulltrúi VG fram bókun vegna ummæla bæjarstjóra í fjölmiðlum undanfarnar vikur þess efnis að niðurstaða íbúakosningarinnar hafi aðeins verið bindandi hvað þessa ákveðnu deiliskipulagstillögu varðar og að fyrirtækið geti komið með nýja deiliskipulagstillögu sem þá verði send til afgreiðslu bæjarbúa. Lesa meira
 

21.6.2007 : VG í Hafnarfirði: Samfylkingin í pólitísku öngstræti

Það er greinilegt að enn á ný á að velta af stað stóriðjuboltanum, í sömu
stefnu, í sömu átt og fyrri ríkisstjórn. Með yfirlýsingum sínum í fjölmiðlum
í gær sýndi bæjarstjórinn í Hafnarfirði hvaða vægi atkvæðagreiðsla meðal
íbúanna hefur í raun í huga meirihlutans í bæjarstjórn. Á bæjarráðsfundi í
dag fékkst þessi afstaða staðfest af bæjarráðsmönnum Samfylkingarinnar. Lesa meira
 

15.6.2007 : Vinstri græn á Norðulöndum skora á ríkisstjórnir að viðurkenna sjálfstæði Vestur - Sahara

Vinstri græn á Norðurlöndum sendu í dag frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem skorað er á ríkisstjórnir Norðurlanda að viðurkenna sjálfstæði Vestur-Sahara (Saharawi Arab Democratic Republic). Meira er 35 ár eru liðin síðan Spánn yfirgaf þessa fyrrum nýlendu sína en allar götur síðan hefur Marokkó hersetið landið og íbúar þess lifað undir oki þeirra. Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað ályktað að Vestur-Sahara skuli fara með sjálfsstjórn, en án árangurs. Nú síðast bókaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að reyna skyldi til þrautar að ná pólitískri niðurstöðu með það að markmiði að Vestur-Sahara fari með stjórn eigin mála. Lesa meira
 

12.6.2007 : Ályktun Þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um stöðu þorskstofnsins, vanda sjávarbyggða og heildarendurskoðun sjávarútvegsstefnunnar

Þingflokkur VG telur skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar um ástand þorskstofnsins fela í sér mjög alvarlegar upplýsingar og álítur annað ábyrgðarlaust en hlíta ráðgjöfinni, fara að tillögum um samdrátt í veiðum og innleiða hina nýju aflareglu. Pólitískum ákvörðunum um veiði úr þorskstofninum langt umfram ráðgjöf eins og viðgengist hefur um árabil verður að linna og beita verður varúðarnálgun um veiðiálag þannig að takast megi að snúa núverandi þróun við og byggja hrygningarstofninn upp stig af stigi.

Lesa meira
 

7.6.2007 : Kosningahappdrættið - útdráttur

Þann 7. júní var dregið í Kosningahappdrættinu - upplýsingar um hvernig nálgast má vinninga er að fá á skrifstofu Vinstri grænna, s: 552 8872, netfang vg@vg.is. Útdrátturinn fór sem hér segir: Lesa meira
 

5.6.2007 : Uppskeruhátíð

Blásið er til uppskeruhátíðar eftir kosningarnar í Kragakaffi (Hamraborg 1-3) í dag milli klukkan 17 og 19. Eftir frækilega baráttu er tilefni til að hittast aftur og fagna góðum árangri og vel unnum störfum. Sérstaklega eru allir þeir fjölmörgu sjálfboðaliðar sem lögðu hönd á plóg í baráttunni á höfuðborgarsvæðinu boðnir velkomnir.

Lesa meira
 

29.5.2007 : Verkskipting þingflokks Vinstri grænna

Ögmundur JónassonÞingflokkur Vinstri grænna skipti með sér verkum fyrir stundu. Formaður þingflokks er Ögmundur Jónasson, varaformaður er Katrín Jakobsdóttir og ritari er Kolbrún Halldórsdóttir.

Lesa meira
 

22.5.2007 : Vinstri græn vilja tafarlausar aðgerðir stjórnvalda

Vinstri græn í Ísafjarðarbæ vilja að gripið verði til tafarlausra aðgerða af hálfu stjórnvalda og Ísafjarðarbæjar til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búsetuflótta frá Flateyri. Þetta kemur fram í ályktun sem félag Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Ísafjarðarbæ hefur sent frá sér. Í ályktuninni segir jafnframt að mikilvægt sé að íbúar sjávarbyggða vítt og breitt um landið fái um það skýr skilaboð frá stjórnvöldum hvernig bregðast eigi við aðstæðum sem nú eru uppi á Flateyri vegna fyrirhugaðra sölu veiðiheimilda og lokunar fiskvinnslufyrirtækisins Kambs. Þessar aðstæður gætu blasað við öðrum sjávarbyggðum hvenær sem er við núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi sem er alfarið á ábyrgð stjórnvalda. Vinstri græn segja kröfu íbúa sjávarbyggðanna hljóta að vera þá að grunnréttur þeirra til auðlinda fiskimiðanna sé tryggður til frambúðar og þar með atvinnu- og búsetuöryggi. Lesa meira
 

22.5.2007 : Áhugahópur um verndun Jökulsánna í Skagafirði hvetur verðandi ríkisstjórn

Áhugahópur um verndun Jökulsánna í Skagafirði hvetur verðandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar til að beita sér fyrir verndun ánna. Það er ljóst að þær hugmyndir sem uppi hafa verið um virkjun þeirra, samræmast ekki yfirlýstri umhverfisstefnu annars stjórnarflokksins, sem m.a. hefur friðun skagfirsku jökulsánna á stefnuskrá sinni. Nú er lag að fylgja þeirri stefnu eftir. Lesa meira
 

20.5.2007 : Alvarleg staða á Flateyri, bréf til Sturlu Böðvarssonar

Hér með er óskað eftir að kallað verði til fundar þingmanna kjördæmisins til að fara yfir þá alvarlegu stöðu sem komin er upp á Flateyri með sölu á veiðiheimildum og lokun Kambs, aðal fyrirtækisins á staðnum og eins stærsta vinnustaðar á Vestfjöðrum. 120 manns í 300 íbúa byggðarlagi missa atvinnuna. Lesa meira
 

14.5.2007 : Stórsigur Vinstri grænna

Nýir þingmenn VG - Atli, Álfheiður, Árni Þór og KatrínNú er ljóst að Vinstri græn eru sigurvegarar alþingiskosninganna, juku fylgi sitt um tæp 6 prósentustig og nærri tvöfölduðu þingflokkinn. Nýr þingflokkur kom saman í dag til fyrsta fundar. Við þökkum allan góðan stuðning og þann skýra vilja kjósenda að Vinstri græn verði breytiafl í samfélaginu í átt til umhverfisvænna samfélagi, aukins jafnréttis og velferðar. Þá ber að þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg í baráttunni og sáu til þess að málefni okkar bárust til kjósenda.
Lesa meira
 

12.5.2007 : Viðburðir og opnanir á kosningamiðstöðvum VG um land allt á kjördag

kosningamidstodUpplýsingar um opnunartíma, akstur og kosningakaffi á kjördag víðsvegar um landið Lesa meira
 

11.5.2007 : Suss! Mamma er að tala um fullorðins mál - hópur menntaskólanema láta í sér heyra.

fossÞað undrar eflaust fáa hve vinsælt yrkisefni náttúran er mörgum mönnum. Þessi stórbrotna smíði reynist flestum bæði augnayndi og órjúfanlegur hluti uppruna þeirra og daglegs lífs. Maðurinn má ekki álíta hana sjálfsagða eign sína. Mistök í umgengni við hana geta reynst honum dýrkeypt og oft er betra að huga að framtíðinni við ákvarðanatökur en að gleyma sér í stundargræðginni. Það sem virðist gott getur snúist upp í andhverfu sína þegar til lengri tíma er litið. Lesa meira
 

11.5.2007 : Fjörið var með Vinstri grænum og Svavari Knúti á Akranesi

SV300049Svavar Knútur spilaði og söng fagra tóna með Vinstri grænum í Skrúðgarðinum Akranesi síðastliðið föstudagskvöld. Mikil stemmning var hjá unga fólkinu á staðnum enda ekki von á öðru þegar Svavar, þessi frábæri tónlistarmaður mætir á svæðið. Ekki var þetta í fyrsta sinn sem Svavar Knútur gleðst með Visntri grænum í Norðvesturkjördæmi, en hann er einnig búinn að skemmta ungu fólki á Sauðárkróki og Blönduósi. Að öðru leyti var það gleði, gaman og gott snakk sem einkenndi kvöldið!

Lesa meira
 

11.5.2007 : 1. maí í Skagafirði

P1000478-lÞann 1. maí buðu Vinstri græn í Skagafirði til baráttusamkomu í tilefni dags verkalýðsins auk þess sem haldið var upp á að 5 ár voru liðin frá stofnun Félags Vinstri grænna í Skagafirði. Fjölmenni mætti í kosningamiðstöðina á Sauðárkróki þar sem samkoman fór fram og var mikið spjallað. Aðalræðumaður dagsins var síðan Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur og þær Brynhildur og Þóra Kristín Þórarinsdætur sáu um að skemmta gestum með söng og upplestri.

Lesa meira

 

10.5.2007 : Allt annað líf á sex tungumálum

Búið er að þýða kosningaáherslur VG á sex tungumál

Polski Русский Espanol THAI English tiếng Việt

Pólsku, Rússnesku, Spænsku, Tælensku, Ensku og Víetnamísku 

Lesa meira

 

10.5.2007 : Fréttatilkynnig frá Vinstrihreyfingunni grænu framboði

Hvers vegna getur utanríkisráðuneytið ekki svarað erindi þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um stuðning ríkisstjórnar Íslands við innrásina í Írak?
Fram hefur komið að í mars 2003, skömmu fyrir innrásina í Írak höfðu þáverandi formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem gegndu embættum forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands veitt samþykki fyrir því að Ísland yrði sett á lista "viljugra" eða "staðfastra " stuðningsríkja innrásarinnar í Írak.

Lesa meira

 

10.5.2007 : Fréttir og myndasyrpa frá baráttuhátíð VG í gærkvöld

ÁhorfendurFrábær mæting var á baráttuhátíð Vinstri grænna í gærkvöldi. Húsfyllir var í kosningamiðstöðinni að Grensásvegi 16a og hugur í fólki. Dagskráin hófst með hinni stórkostlegu hljómsveit Bardukha sem hleypti fjöri í mannskapinn, þá hélt Kolbrún Halldórsdóttir þrumandi ræðu við mikinn fögnuð. Lesa meira
 

10.5.2007 : Myndir úr kosningabaráttunni í Skagafirði

P1000461Mikið líf og fjör hefur verið í Skagafirði í aðdraganda kosninganna. Ófáar skemmtanir og fundir hafa verið hjá Vinstri grænum í Skagafirði og eru þær fréttir að hafa þaðan að baráttuandinn ríkir yfir firðinum. Lesa meira
 

9.5.2007 : Snúum við blaðinu - Á laugardag eru 4 ástæður til að kjósa: skipta um ríkisstjórn:

1vg-bladamannafundur1Vinstrihreyfingin – grænt framboð kynnti í dag á blaðamannafundi hvernig nauðsynlegt er að snúa við blaðinu í íslenskum stjórnmálum næsta laugardag. Hið stóra viðfangsefni er að innleiða nýja og betri sýn í lýðræðis- og samfélagsmálum, tryggja verður græna framtíð og kvenfrelsi. Lesa meira
 

9.5.2007 : Undirbúningur að stækkun álversins í Straumsvík þrátt fyrir vilja Hafnfirðinga

Á forsíðu Morgunblaðsins í gær, 8. maí, er haft eftir Jóni Sigurðssyni iðnaðarráðherra og formanni Framsóknarflokksins af tilefni yfirtökutilboðs Alcoa í Alcan:Hann kveðst ekki telja að samruni muni hafa áhrif á áform Alcoa á Húsavík eða áform Alcan um stækkun í Straumsvík.” Þann 25. apríl síðastliðinn gengu forráðamenn álbræðslu Alcans í Straumsvík á fund iðnaðarráðherra og ræddu við hann stöðuna eftir að Hafnfirðingar felldu stækkun verksmiðjunnar í almennri atkvæðagreiðslu.Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur ítrekað, síðast í Morgunblaðinu í dag, beint þeirri spurningu til formanns Framsóknarflokksins hvort á þessum fundi hans með talsmönnum Alcans hafi verið handsalað samkomulag um stækkun álversins þvert á niðurstöðu íbúakosningarinnar í Hafnarfirði. Engin viðbrögð hafa enn komið fram af hálfu ráðherrans við þessari fyrirspurn.

Lesa meira

 

8.5.2007 : Fréttir frá NV-kjördæmi - Opnun kosningaskrifstofu á Patreksfirði

kosningaskrifstofuopnun001Opnunin tókst með afbrigðum vel, fullt var af fólki og reyndar komu svo margir að við urðum að sækja meira af húsgögnum svo allir hefðu sæti. Jón og Inga héldu stutt ávörp við góðar undirtektir og greinilega var mikill hugur í mönnum og konum að koma Ingibjörgu Ingu á þing. Ungur maður frá Tálknafirði var með stutt en verulega skemmtilegt uppistand. Frábærar kaffiveitingar gerðu góðan dag enn betri og má segja að stanslaus ,,traffík" hafi verið frá opnun allt fram að lokun skrifstofunnar. Lesa meira
 

8.5.2007 : VG fagnar ályktunum Landverndar

VG_GranframtidVinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar ályktunum aðalfundar Landverndar, sem haldinn var á Sólheimum í Grímsnesi 5. maí sl. Sú áhersla sem fram kemur í ályktununum á sjálfbæra þróun er í góðum samhljómi við stefnu Vinstri grænna í umhverfismálum, sem lýst er ítarlega í nýútkomnu riti flokksins Græn framtíð. Landvernd hefur, eins og mörg önnur félagasamtök, gegn t veigamiklu hlutverki í stefnumótun og fræðslu í málefnum er varða landnotkun, auðlindir, náttúru og umhverfi. Lesa meira
 

8.5.2007 : Steingrímur J. Sigfússon í nærmynd á Stöð 2

Steingrímur J. SigfússonÍ gærkvöldi var Steingrímur J. í nærmynd á Stöð 2, í þáttaröð um forustumenn flokkanna - ákaflega fræðandi og skemmtilegur þáttur. Smellið hér til að kíkja á þáttinn. Lesa meira
 

8.5.2007 : Fréttir úr SU-kjördæmi - Tónleikar með Heiðu í Brennu á Hellu.

heidaFrambjóðandinn Heiða og hennar maður Elvar, sungu og léku á gítar fyrir gesti kosningamiðstöðvarinnar laugardagskvöldið 5. maí. Það er góður andi í Brennu, stemmningin var frábær og mæting á tónleikana með eindæmum góð. Lesa meira
 

8.5.2007 : Ísland kallar - Um Þjórsá og Þjórsárver eftir Kristínu Guðmundsdóttur

bolur-frontDaginn sem bruninn varð í Lækjargötu í Reykjavík um daginn sagði Vilhjálmur borgarstjóri í sjónvarpinu að miklu máli skipti að endurskapa hin gömlu hús sem brunnu í götunni. Hin gamla götumynd húsa þarna við Lækjargötu væri mjög dýrmæt, eins og hús Bernhöftstorfunnar. Hér á eftir er kafli úr grein Halldórs Laxness frá árinu 1971, "Brauð Reykjavíkur". Hún birtist í greinasafni Halldórs, Yfirskygðir staðir. Hún er athyglisverð lesning bæði þá og nú. Hana má finna í bókinni Ísland í aldanna rás 1951–1975 eftir Illuga Jökulsson. Halldór auglýsir eftir eiganda húsanna á Bernhöftstorfu og ábyrgð hans gagnvart verðmætum. Lesa meira
 

7.5.2007 : Kynningamyndband Vinstri grænna

forsiduboxEins og í undangengnum kosningum fá flokkarnir hver um sig 15 mínútur til að kynna sig og stefnu sína í Ríkissjónvarpinu. Hér má nálgast hið frábæra kynningarmyndband Vinstri grænna sem leikið var í kvöld.

Lesa meira
 

7.5.2007 : Myndasyrpa frá síðasta sjálfbæra markaði VG fyrir kosningar

Árni Þór og vestið fínaFrábær stemmning var á síðasta sjálfbæra markaði VG sem haldinn var á Suðurgötu um helgina. Á markaðnum gerðu margir góð kaup, fengu sér nýgrillaðar pylsur, hlustuðu á banjóleik Paul Nikolov, hittu frambjóðendur til skrafs og gátu jafnvel keypt fatnað á uppboði sem tilheyrði Kolbrúnu Halldórsdóttur og Árna Þór. En myndir segja meira en mörg orð og látum við myndasyrpu um að lýsa stemmningunni í kosningamiðstöð VG um helgina. Lesa meira
 

7.5.2007 : Nýtt lag eftir Jóhann G. Jóhannsson í þágu náttúruverndar

johanngLandvernd stóð, ásamt Náttúruverndarsamtökum Íslands, Náttúruverndar- samtökum Suðurlands, Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi, Náttúruvaktinni, Garðyrkjufélagi Íslands og Framtíðarlandinu, fyrir vinnslu á lagi og texta Jóhanns G. Jóhannssonar, „Hálendi Íslands“. Útsetningar og upptökustjórn annaðist Pétur Hjaltested. Lesa meira
 

7.5.2007 : Frambjóðendur í Suðurgötu 3

Næstu daga milli 16 og 17 verða frambjóðendur í Suðurgötu 3 til að hitta kjósendur:

Lesa meira
 

5.5.2007 : Góð baráttustemmning við opnunargleði á Blönduósi

opnun_a_blo_040Opnuð var kosningaskrifstofu á Blönduósi 1. maí á baráttudegi verkalýðsins. Úti var sól og sumarylur og mikil og góð stemmning í bænum á þessum hátíðardegi. Ungt og efnilegt tónlistarfólk, Hjörtur Þór Magnússon, Harpa Birgisdóttir og Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir opnuðu hátíðina með fögrum tónum. Frambjóðendurnir Jón Bjarnason, Ingibjörg Inga og Björg Gunnarsdóttir glöddust með viðstöddum og kynntu stefnu Vinstri grænna. Gestir og frambjóðendur gæddu sér síðan á sætabrauði og bleksterku baráttukaffi við undirspil harmonikkuleikaranna góðkunnu Jóns og Þóris.

Lesa meira
 

3.5.2007 : Utankjörfundur í fullum gangi

atkvaediKosning utankjörfundar fer fram hjá sýslumönnum, hjá hreppstjórum erlendis, skipum, sjúkrahúsum, fangelsum, dvalar- og vistheimilum og í heimahúsi. Kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðilinn bókstaf þess lista sem hann vill kjósa. Listabókstafur Vinstri grænna um land allt er V. Á það skal bent, að nauðsynlegt er að hafa með sér skilríki þegar kosið er. Lesa meira
 

3.5.2007 : Frábær stemming í 1. maí kaffi VG í Árborg

arborg1maiÞað var frábær stemming þann 1. maí hjá VG í Árborg. Söngsveit VG mætti og flutti baráttusöngva við mikinn fögnuð viðstaddra. Atli Gíslason hélt barátturæðu dagsins. Það var mikil bjartsýni og baráttuhugur í lofti fyrir komandi kosningar þar sem vonandi málefni verkafólks verða aftur sett á oddinn. Lesa meira
 

3.5.2007 : Verkalýðspönk 1. maí í kosningamiðstöðinni í Keflavík

Gordon RiotsHljómsveitirnar Sky Reports, Eldborgir, Gordon Riots og We made god spiluðu í Kosningamiðstöð V.G. í Keflavík 1. maí. Sannkallað verkalýðsrokk og frábær mæting og stemmning. Meðfylgjandi mynd er af hljómsveitinni Gordon Riots í miklu stuði. Lesa meira
 

3.5.2007 : Glæsilegt kaffi hjá Vinstri grænum á 1. maí

1. maí - VG baráttufundur á NASAÁ baráttudegi verkalýðsins, buðu Vinstri græn í kaffi og meðlæti á Nasa við Austurvöll. Um 600 manns komu og hlýddu á ræður og tónlist. Lesa meira
 

2.5.2007 : Fréttir frá SU-kjördæmi: Frábært ljóðakvöld í Grófinni 7

stjanimeikLjóðakvöldið í Grófinni 7 var frábært! Stjáni Meik fór með Einræðu Starkarðar eftir Einar Ben sem hann kunni utanbókar, vel á annað hundrað ljóðlínur. Flottur kveðskapur og vel flutt. Anna Hrefnudóttir, myndlistarkona, nýflutt í Garðinn, fór með frumort ljóð, ótrúlega flott! Ég var alveg heillaður og sýndist svo vera um fleiri. Kannski var það hápunkturinn þegar Birgitta Jónsdóttir, skáld úr Reykjavík, flutti nokkur af sínum mögnuðu ljóðum, eitt þeira við undirleik. Birgitta Ásbjörnsdóttir las á eftirminnilegan hátt ljóð eftir Bubba Mortens og Björn Traustason ljóð eftir sjálfan sig.

Lesa meira

 

1.5.2007 : Það er verk að vinna. 1. maí, baráttudagur launamanna.

Það blandast engum hugur um veruleg og ómetanleg áhrif stéttarfélaga á síðustu öld á öllum sviðum þjóðlífsins. Nægir hér að nefna almannatryggingar, atvinnuleysisbætur, uppsagnar- og veikindaréttindi, húsnæðismál, réttindi kvenna, menntamál, orlof og þjóðarsáttina. Því miður hafa áhrif verkalýðshreyfingarinnar dvínað umtalsvert síðustu fjögur kjörtímabil sem hafa verið kjörtímabil atvinnurekenda, hátekju- og stóreignamanna. Félagshyggja og samtakamáttur hafa verið á undanhaldi fyrir hömlu- og ábyrgðarlausu frelsi fjármagnsins. Óásættanleg misskipting, fátækt og búsetumismunun blasir hvarvetna við. Lesa meira
 

1.5.2007 : 1. maí - Baráttudagur verkalýðsins með VG um land allt

Upplýsingar um baráttufundi VG um land allt... Lesa meira
 

30.4.2007 : SU-kjördæmi - Allar kosningamiðstöðvar kjördæmisins hafa opnað sínar gáttir

Mynd_2Föstudaginn 27. apríl s.l. var opnuð kosningamiðstöð í Brennu á Hellu, það er Ragnheiður Jónasdóttir sem ræður þar ríkum. (Brenna er innsta hús í götunni þegar komið er að sunnan og ekið er inn fyrstu götu til vinstri). Efstu frambjóðendur kjördæmisins mættu, Atli, Alma, Heiða, Sigþrúður og heimakonan Arndís til að spjalla við kjósendur. Frambjóðendur kynntu hin ýmsu málefni VG og svörðu síðan fyrirspurnum fundarmanna. Málefni sem vörðuðu heimabyggð þeirra og landsmálin. Mikil gleði ríkti og var að sögn Ragnheiðar var almenn ánægja með þennan fund. Þegar hefur verið áætlað að vera með uppákomu þann 5 maí og mun Heiða mæta með gítarinn.
Lesa meira
 

28.4.2007 : Fjallagrös og sauðskinnsskór Vinstri grænna

sprotar_104Vinstri græn stóðu í dag fyrir málþingi og sprotatorgi undir yfirskriftinni Fjallagrös og sauðskinnsskór. Margir möguleikar aðrir en stóriðja eru til atvinnusköpunar, fjöldi fólks býr yfir snjallræðum, hugmyndum og frumkvæði, en skilyrði til að koma hugmyndum í framkvæmd eru ekki alltaf til staðar. Þau skilyrði er nauðsynlegt að efla. Lesa meira
 

28.4.2007 : Fjallagrös og sauðskinnsskór

Vinstri-græn vilja með málþingi og sprotatorgi laugardaginn 28. apríl vekja athygli á nýsköpun og frumkvöðlastarfi í atvinnulífi undir yfirskriftinni Fjallagrös og sauðskinnsskór. Margir möguleikar aðrir en stóriðja eru til atvinnusköpunar, fjöldi fólks býr yfir snjallræðum, hugmyndum og frumkvæði, en skilyrði til að koma hugmyndum í framkvæmd eru ekki alltaf til staðar. Þau skilyrði er nauðsynlegt að efla.

Lesa meira

 

27.4.2007 : Fréttir frá Suðurkjördæmi - Virkjum aldraða á Íslandi:

Frábært myndband sem Ósk Pétursdóttir aðstoðarframleiddi fyrir BBC... Lesa meira
 

26.4.2007 : Bókun Steingríms J. Sigfússonar á 1229. fundi utanríkismálanefndar, 24. apríl 2007, um öryggismál á Norður-Atlantshafi.

Hér má lesa bókun Steingríms J. Sigfússonar á fundi utanríkismálanefndar frá því 24. apríl 2007, í tilefni undirritunar samkomulags við Norðmenn um hernaðarmál. Lesa meira
 

26.4.2007 : Meirihluti bæjarráðs Árborgar mótmælir samþykkt tillögu um orkuframleiðslu

Meirihluti bæjarráðs Árborgar mótmælir samþykkt tillögu um orkuframleiðslu og orkunýtingu á Suðurlandi harðlega þar sem eitt stærsta álitamál samtímans er dregið inn á samstarfsvettvang sveitarfélaga á Suðurlandi. Meirihlutinn tekur heilshugar undir svohljóðandi bókun varaformanns SASS sem er annar fulltrúa Árborgar í stjórn: Lesa meira
 

26.4.2007 : Fréttir frá Suðurkjördæmi - Opnun kosningamiðstöðvar í Hveragerði

kosningamidstodMinnsta en krúttlegasta kosningamiðstöðin VG á Íslandi verður opnuð í Hveragerði 28. apríl n.k. kl. 13.00.
Oddviti listans, Atli Gíslason mætir og klippir á borðann. Einnig verða frambjóðendurnir Heiða og heimakonan Olga á staðnum. Í þessari kosningamiðstöð verður örugglega fullt út úr dyrum í hvert skipti sem hún verður opin.

Lesa meira

 

26.4.2007 : Fréttir frá Suðurkjördæmi - Frétt af framboðsfundi í Árhúsum, Hellu

atliahelluSkemmtilegasti framboðsfundurinn til þessa í baráttunni í Suðurkjördæmi var haldinn á vegum Bændasamtaka Íslands og Búnaðarsambands Suðurlands í Árhúsum á Hellu, 23. apríl s.l. Mér leið eins og í útlöndum, á bökkum Signu, þegar ég kom að Árhúsum. Yndisleg umgjörð í sveit við Rangá. Fullt út úr dyrum eins og sagt er í sveitinni og mikil stemmning. Fyrst hélt heimamaður mjög fróðlega framsögu og síðan tók formaður Bændasamtakanna við og flutti þetta fína erindi og kynnti athyglisverðan bækling þeirra. Lesa meira
 

24.4.2007 : NA-kjördæmi - Góð stemning á Egilsstöðum.

thorunn-form-uvgaustMikil og góð stemning er í kringum Vinstri græn á Egilsstöðum þessa dagana. Fyrir stuttu var opnuð þar kosningamiðstöð á besta stað í bænum sem heimamenn höfðu lagt mikla vinnu í að stand setja. Lesa meira
 

23.4.2007 : NV - Vinstri græn litu við á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar

heilbrisJón Bjarnason þingmaður og Ingibjörg Inga sem skipar 2. sæti framboðslistans í NV kjördæmi brugðu sér í heimsókn á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar í síðustu viku og heilsuðu upp á starfsmenn og sjúklinga. Ekki vantaði upp á áhuga heimamanna á pólitíkinni en ýmis mál voru rædd og krufin til mergjar. Á meðfylgjandi mynd má sjá þau rabba við fólk við æfingar á endurhæfingunni.

Lesa meira

 

23.4.2007 : Fréttir frá SU-kjördæmi - Heimsókn á Sólheima í Grímsnesi

heida-solheimar2Atli Gíslason oddviti listans í Suðurkjördæmi og Ragnheiður Eiríksdóttir sem skipar 3.sæti í sama kjördæmi brugðu sér í heimsókn á Sólheima í Grímsnesi föstudagsmorguninn 20.apríl, á leið sinni um Suðurland. Þar var einstaklega vel tekið á móti þeim. Kynnt var fyrir þeim helsta starfsemi staðarins, eins og til dæmis kertagerð, smíðaverkstæðið, sápugerð, listsköpun og fleira. Lesa meira
 

20.4.2007 : Aðgerðaáætlun Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í atvinnu-, byggða- og samgöngumálum.

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn í Reykjavík 23.–25. febrúar 2007 vísar til aðgerðaætlunar í byggðamálum og ályktana um málefni sjávarútvegs og landbúnaðar, fjármál sveitarfélaga og annað það sem segir í ályktunum fundarins um aðgerðir á sviði atvinnu- og byggðamála en leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði sem brýnustu þættina í aðgerðaáætlun í atvinnumálum komandi mánaða og ára á þessu sviði.

Lesa meira

 

20.4.2007 : SU-kjördæmi - Arfur hersetunnar

Vinstri hreyfingin – grænt framboð á Suðurnesjum, efnir til dagskrár um það sem nú tekur við eftir að Bandaríkjaher hefur að mestu yfirgefið landið. Hvernig við getum nýtt til góðra verka það sem hann skilur eftir og bætt fyrir skaða sem hann hefur unnið. Dagskráin hefst kl. 16 og stendur fram á kvöld, með góðu kvöldmatarhléi.

Lesa meira

 

19.4.2007 : Bráðfallegir bolir komnir í hús

bolirLoksins eru hinir glæsilegu kosningasjóðs bolir komnir úr prentun. Þetta eru gæðabolir sem klæða alla vel. Hvítir, langerma og til fyrir allar tegundir af fólki. Hér er myndin sem er framan á honum... Bolirnir seljast á 3.500 og eru tilvalin gjöf fyrir sig og sína. Hægt er kaupa þá í kosningamiðstöðvum VG á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira
 

19.4.2007 : Fréttir af viðburðum í Norðausturkjördæmi

Í dag er sumarfagnaður VG. Hann fer fram í kosningamiðstöðinni á Egilsstöðum, Kaupvangi 5. Á laugardaginn verður Kúbusveifla og margt fleira spennandi er á döfinni. Lesa meira
 

18.4.2007 : Fréttir af viðburðum á Suðurnesjum

Margt er á döfinni í kosningamiðstöð VG í Reykjanesbæ á næstu dögum. Má þar nefna fjölskylduskemmtun á sumardaginn fyrsta, fjáröflunarsúpu, arf herstetunar og upplestur Steingríms J. úr Við öll. Lesa meira
 
Lukku Láki

16.4.2007 : Fréttir frá Suðurlandi - Oddviti listans bregður á leik í Vestmannaeyjum

Kosningabaráttan er ekki tóm alvara eins og oddviti listans í Suðurkjördæmi fékk að upplifa þegar honum var boðinn á skemmtidagskrá Fyrirmyndabílstjórafélagsins í Vestmannaeyjum. Lesa meira
 

16.4.2007 : Stemmning á flóamarkaði VG á laugardaginn

DSCF0698Yfir 200 manns litu inn á flóamarkaðinn á Suðurgötunni í gær. Það var frábær stemmning og gekk markaðurinn mjög vel, því hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn næsta laugardag. Tekið verður við munum á markaðinn á meðan á honum stendur á laugardaginn á milli kl.13:00 og 18:00.

Lesa meira
 

14.4.2007 : Söngsmiðja VG

VG mun halda úti söngsmiðju í kosningabaráttunni. Söngsmiðjan er vettvangur fyrir ýmsar frjálsar og óhefðbundnar uppákomur í söng og tónlist. Þar gefst fólki m.a. kostur á að rifja upp í góðum félagsskap baráttusöngva, alþýðulög og húsganga frá ýmsum tímum. Lesa meira
 

14.4.2007 : Menntamál eru kosningamál

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs fagnar þeirri kröfu Stúdentaráðs Háskóla Íslands að menntamál verði kosningamál enda er öflug menntastefna grundvöllur fyrir samfélagslegum umbótum.

Lesa meira
 

14.4.2007 : Sjálfbær markaður VG á laugardaginn

Til fjáröflunar fyrir flokksstarfið vegna komandi kosninga verður haldinn markaður annan hvern (jafnvel hvern ef vel gengur) laugardag að Suðurgötu 3 milli kl.13:00 og 18:00. 14. apríl opnar markaðurinn með pomp og prakt.

Lesa meira
 

13.4.2007 : Könnun í Suðurkjördæmi fyrir Stöð 2

Blússandi sigling á fylgi VG hjá okkur í Suðurkjördæmi. Samkvæmt könnun Stöðvar 2 erum við með 17.6% fylgi en í síðustu kosningum var fylgið 4.7%. Þannig að fylgið hefur fjórfaldast. Þegar rýnt er í tölurnar og kosningahegðun er greind eftir kyni, er fylgi á meðal kvenna 22% en karla 14%. Oddviti listans í Suðurkjördæmi Atli Gíslason var beinni útsendingu Stöðvar 2 ásamt oddvitum hinna flokkanna á Hótel Selfossi s.l. miðvikudag 11. apríl. Lesa meira
 

13.4.2007 : Öllum undirbúningi er tengist stórvirkjunum og uppbyggingu stóriðju verði hætt

Eftirfarandi bréf var sent formönnum stjórnarflokkanna og um leið iðnaðarráðherra, þess ráðherra sem fer með eignarhald ríkisins í Landsvirkjun, sem og til forstjóra fyrirtækisins: Lesa meira
 

13.4.2007 : Stefnubreyting meirihluta Framsóknar og Samfylkingar í skipulagsmálum í Skagafirði

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og VG fagna þeirri stefnubreytingu meirihluta Framsóknar og Samfylkingar í skipulagsmálum í Skagafirði sem varð í tilefni af tillöguflutningi sveitarstjónarfulltrúa VG og Sjálfstæðisflokks þess efnis, að flýta samþykkt aðalskipulags fyrir Skagafjörð með því að hverfa frá þeirri ætlan, að setja Villinganesvirkjun inn á tillögu að aðalskipulagi fyrir Skagafjörð og fresta skipulagi á þeim svæðum sem tengjast hugmyndum um Skatastaðavirkjun. Lesa meira
 

12.4.2007 : Páskafundur VG fyrir ungt fólk í Húnavatnssýslum

100_5715Vinstri græn í Norðvesturkjördæmi héldu léttan páskafund fyrir ungt fólk í Húnavatnssýslum

síðastliðinn laugardag. Fundurinn var haldinn á Árbakkanum þar sem boðið var upp á léttar veitingar með kosningarspjalli og tónlist. Ekki vantaði upp á mætinguna en mörg ungmenni mættu á fundinum og var hann hinn skemmtilegasti.

Lesa meira
 

11.4.2007 : GRÆN FRAMTÍÐ - rit VG um sjálfbæra þróun

VG_GranframtidVinstrihreyfingin - grænt framboð hefur gefið út ritið Græn framtíð um sjálfbæra þróun. Sjálfbær þróun snertir samfélagið allt og snýst um siðferðilega afstöðu stjórnvalda og almennings til samfélags og umhverfis. Þegar ákvarðanir eru teknar í samfélagi, sem stefnir í átt til sjálfbærrar þróunar, ber að leggja áherslu á samspil vistfræðilegra, samfélagslegra og efnahagslegra þátta. Græn framtíð hefur að geyma stefnumörkun Vinstri grænna til næstu ára um sjálfbæra samfélagsþróun jafnframt því sem skyggnst er lengra fram á veg.

Lesa meira
 

10.4.2007 : Bætum kjörin - burt með fátækt

Misrétti hefur aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum. Á sama tíma og margir hafa auðgast verulega og enn aðrir búa við góð lífskjör er vaxandi hópur settur hjá. Fátækt á ekki að líða í íslensku samfélagi og leggur Vinstrihreyfingin grænt framboð höfuðáherslu á að bæta og jafna kjörin og útrýma fátækt. Í dag kynntu frambjóðendur aðgerðaáætlun Vinstri grænna til að útrýma fátækt á Íslandi.

Lesa meira
 

10.4.2007 : Ríkissjónvarpið í Árborg í kvöld

Í kvöld kl. 19.30 - 20.30 verður bein útsending ríkissjónvarpsins úr Fjölbrautaskólanum á Selfossi um Landbúnaðarmál og Utanríkismál. Lesa meira
 

10.4.2007 : Vinstri græn á ferð um Norðausturland

Súpufundur í dag klukkan 12 í Vinaminni, Borgarfirði og á Hótel Framtíðin í Djúpavogi Lesa meira
 

10.4.2007 : Kragakaffi opnar í Hamraborg

Fréttamannafundur og opnun kosningamiðstöðvar í Suðvesturkjördæmi klukkan 16:00 í dag Lesa meira
 

10.4.2007 : VG VILL AÐ ALLIR STJÓRNMÁLAFLOKKAR OPNI BÓKHALD SITT

Í tilefni af fréttaumfjöllun um stuðning fyrirtækja við stjórnmálalflokka ítrekar Vinstrihreyfingin grænt framboð þá afstöðu sína að bókhald stjórnmálalflokka eigi að vera öllum opið. VG hefur ávallt lagt á það ríka áherslu að fjármál flokksins séu gegnsæ og aðgengileg þeim sem þau vilja skoða. Lesa meira
 

7.4.2007 : Hróplegt misrétti til náms: Tekjulitlu fólki á landsbyggðinni illkleift að sækja framhaldsnám

  • Kostar rúma milljón að senda ungling í framhaldsskóla fjarri heimabyggð
  • Útilokað að barnmargar fjölskyldur í dreifbýli geti kostað framhaldsmenntun barnanna án óeðlilegra fórna
  • Tekjulítið fólk býr við skerta möguleika til menntunar
  • Framhaldsskólar í dreifbýli búa við skert námsframboð
  • Stuðlar að fólksflótta frá landsbyggðinni
  • VG boðar úrbætur
Lesa meira
 

4.4.2007 : Videokvöld UVG!

Miðvikudaginn 4. apríl, verður vídeokvöld í boði Ungra Vinstri-grænna. Sýnd verður hin umdeilda heimildamynd The Great Global Warming Swindle eftir breska kvikmyndagerðarmanninn Martin Durkin. Myndinni hefur verið hampað talsvert af hægrimönnum síðan hún var frumsýnd enda er því haldið fram í henni að hlýnun jarðar sé í rauninni tóm þvæla, uppspuni móðursjúkra umhverfisverndarsinna. Lesa meira
 

2.4.2007 : Opnunargleði VG í Borgarnesi síðastliðið föstudagskvöld

opnun borgarnes7Fyrsta kosningaskrifstofa VG í Norðvesturkjördæmi var opnuð í Englendingavík í Borgarnesi föstudaginn 30. mars síðastliðinn. Gleði og baráttuhugur ríkti á meðal gesta en rúmlega 30 manns voru mættir til að vera við fyrstu opnunargleði VG í kjördæminu. Lesa meira
 

1.4.2007 : Mikilvægur áfangi í náttúruverndarbaráttunni

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fagnar úrslitum íbúakosningar í Hafnarfirði þar sem stækkun álvers Alcans var hafnað og Hafnfirðingar völdu græna framtíð. Úrslitin eru mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir náttúru- og umhverfisvernd og gegn stóriðjustefnu stjórnvalda. Lesa meira
 

30.3.2007 : Aðalfundur í Svæðisfélagi VG í Hveragerði

Framhaldsaðalfundur VG í Hveragerði var haldinn í gær 29.3 2007 á Hótel Örk, þar var kosin ný stjórn. Lesa meira
 

30.3.2007 : Kosningamiðstöðin á Grensásvegi opin um helgina

Kosningamiðstöðin Grensásvegi 16a opin um helgina frá 15-18. Komið í spjall og kaffisopa.
X-V Allt annað líf!
Lesa meira
 

29.3.2007 : Kosningamiðstöð opnuð í Borgarnesi

Fyrsta kosningamiðstöð VG í Norðvesturkjördæmi verður opnuð í Borgarnesi föstudaginn 30. mars. Kosningamiðstöðin er staðsett í Englendingavík og hefst opnunarhátíðin kl. 20:00. Lesa meira
 

29.3.2007 : Miðja vegu milli malbiksins og regnbogans - VG opnar nýja kosningamiðstöð í gamla ASÍ húsinu Grensásvegi!

Við opnum nýja kosningaskrifstofu á fimmtudagskvöldið nk. með pompi og pragt.
Fundarröðin Vinstri græn um allt land heldur áfram og nú spjalla þau Auður Lilja, Álfheiður og Paul Nikolov við kjósendur.
Lesa meira
 

29.3.2007 : Framhaldsaðalfund svæðisfélags VG í Hveragerði

Framhaldsaðalfund svæðisfélags VG í Hveragerði, verður á Hótel Örk í Setrinu 29. mars, kl. 20.00.

Eftir venjuleg aðalfundarstörf verða umræður og mun Atli Gíslason sem leiðir lista VG í Suðurkjördæmi, spjalla við fundarmenn.

Lesa meira

 

28.3.2007 : Vinstri græn á ferð um landið - Mosfellsbær í kvöld

Gestur Svavarsson, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir og Álfheiður Ingadóttir spjalla við kjósendur á Draumakaffi, Háholti 14 í Mosfellsbæ í kvöld klukan 20 - allir velkomnir. Lesa meira
 

28.3.2007 : Sameiginlegi framboðsfundurinn í Suðurkjördæmi

Fyrsti sameiginlegi framboðsfundurinn í Suðurkjördæmi verður haldinn á Flúðum kl. 20.00 28. mars n.k. Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta og styðja sinn mann í fyrsta sæti. Lesa meira
 

27.3.2007 : Stjórnmálaflokkarnir gera samkomulag um takmörkun á auglýsingakostnaði

Stjórnmálaflokkarnir sem eiga fulltrúa á Alþingi, Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafa gert samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað í aðdraganda alþingiskosninganna 12. maí næstkomandi. Samkomulagið er afrakstur viðræðna formanna, framkvæmdastjóra og –stýru flokkanna sem staðið hafa undanfarnar vikur.

Lesa meira
 

27.3.2007 : Vinstri - græn á ferð um Norðausturkjördæmi

VG-NA-1-Steingrimur_J_Sigfusson_056Á næstu dögum og vikum munu frambjóðendur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð í Norðausturkjördæmi vera á ferð um kjördæmið. Áætlað er að hefja yfirreið um kjördæmið á Siglufirði þann 28. mars með því að Steingrímur J. Sigfússon, Björn Valur Gíslason og Ríkey Sigurbjörnsdóttir bjóða til súpufundar á Allanum kl. 12. Lesa meira
 

26.3.2007 : Happdrætti VG

Hið sívinsæla kosningahappdrætti Vinstri grænna er nú til sölu á kosningaskrifstofum og hjá frambjóðendum. Meðal vinninga er kvöldstund við taflborðið með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, golfkylfur mundaðar með Atla Gíslasyni, myndverk eftir Mireyu Samper, sjóstangaveiði með Birni Vali, á vettvangi glæps með Katrínu Jakobsdóttur ofl. ofl. Miðinn kostar 1.000 krónur.
 

23.3.2007 : Steingrímur, Guðfríður Lilja og Árni Þór á ferð um Norðurlönd

Um helgina verða Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson, frambjóðendur, á ferð um Suður Svíþjóð og Danmörk. Fyrsti áfangastaður er Malmö í Svíþjóð Lesa meira
 

23.3.2007 : Sveitarstjórnarráð Vg stofnað

Á Landsfundi Vinstri grænna í síðasta mánuði var ákveðið að stofna formlega sveitarstjórnarráð flokksins. Fyrsti fundur ráðsins var haldinn í gær, 22. mars. Þar var kjörin stjórn sveitarstjórnarráðsins og skipa hana:

Lesa meira

 

20.3.2007 : Dýr fyrningarfrestur

Vinstrihreyfingin – grænt framboð lýsir ánægju með að loks skuli lokið við endurbætur á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna og að frumvarp það sem legið hefur fyrir Alþingi síðan vorið 2006 skuli loks orðið að lögum. Þar með vannst áfangasigur í áralangri baráttu flokksins fyrir bættu lagaumhverfi varðandi þessi alvarlegu brot. Lesa meira
 

19.3.2007 : Norðanverðir vestfirðir efldir að tillögu Lilju Rafneyjar

Það er ekki daglegt brauð að tillögur stjórnarandstöðunnar hljóta brautargengi á Alþingi, hvað þá þegar um tillögur varaþingmanna er að ræða. Það er því sérstakt ánægjuefni að tillaga Lilju Rafneyjar Magnúsdóttir, varaþingmanns Vinstri grænna var samþykkt á lokadegi þingsins á laugardaginn. Lesa meira
 

19.3.2007 : Þingmenn og frambjóðendur VG á ferð um sunnanverða Vestfirði

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna, Jón Bjarnason alþingismaður og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir íþróttafræðingur Tálknafirði verða á ferð um sunnanverða Vestfirði dagana 19.-22. mars nk. Lesa meira
 

19.3.2007 : Hinir staðföstu stríðsandstæðingar

Í kvöld, mánudagskvöldið 19. mars munu "hinir staðföstu stríðsandstæðingar" efna til baráttusamkomu í Austurbæ (gamla Austubæjarbíói) í Reykjavík, þar sem hernáminu verður mótmælt og þess krafist að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð vegna hins svívirðilega stuðnings við ólöglegt árásarstríð. Lesa meira
 

15.3.2007 : Fyrsti fundur nýstofnaðs sveitarstjórnarráðs

Sveitarstjórnarfulltrúar eru boðaðir á fund í Sveitarstjórnarráði VG fimmtudaginn 22 mars. (þ.e. kvöldið fyrir þing Sambands Íslenskra Sveitarfélaga) Lesa meira
 

13.3.2007 : Er Alcan íslenskt fyrirmyndarfyrirtæki?

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í dag var lagt fram bréf frá forstjóra Alcan Primary Metal group til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, þar sem lýst var þeirri skoðun að Alcan sæi sig sem íslenskt fyrirmyndarfyrirtæki. Í tilefni af bréfi Alcan lagði bæjarfulltrúi VG fram eftirfarandi bókun: Lesa meira
 

12.3.2007 : VG opnar kosningamiðstöð á Suðurnesjum

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Suðurkjördæmi opnaði kosningamiðstöð í Grófinni 7 í Keflavík á laugardaginn. Þar fluttu ávörp frambjóðendurnir Atli Gíslason og Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða) og þingmennirnir Kolbrún Halldórsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon. Einnig voru tónlistaratriði. Lesa meira
 

8.3.2007 : Tímamótafrumvarp í jafnréttismálum

Nýtt frumvarp til jafnréttislaga er framsækið og ber þess skýr merki að unnið er úr þeim ábendingum, frumvörpum og tillögum sem komið hafa fram á undanförnum árum til að jafna stöðu kynjanna á Íslandi. Í frumvarpinu er lagt til að farið verði í sértækar aðgerðir á sviði jafnréttismála og er þar stigið stórt skref fram á við og viðurkennt að lagalegt jafnrétti kynjanna sé ekki nóg til að jafna stöðuna. Launaleynd á vinnumarkaðnum er aflétt með lögunum en Vinstri græn hafa lengi bent á að í skjóli launaleyndar þrífist misréttið í launum. Sérstakt fagnaðarefni er að tekið er undir tillögur Vinstri grænna um að Jafnréttisstofa fái víðtækar heimildir til upplýsingaöflunar og sektargreiðslan gagnvart fyrirtækjum til að útrýma launamuni kynjanna. Lesa meira
 

7.3.2007 : Ákvörðun menntamálaráðherra um viðbyggingu við verknámshús FNV fagnað

Ályktun svæðisfélaga Vinstri grænna í Skagafirði og Húnaþingi vegna ákvörðunar um viðbyggingu við verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Lesa meira
 

7.3.2007 : Kosningamiðstöð opnuð í Keflavík

Vinstri hreyfingin grænt framboð á Suðurnesjum opnar kosningamiðstöð í Grófinni 7 í Keflavík laugardaginn 10. mars kl. 15. Kaffiveitingar, uppákomur og spjall við frambjóðendur. Lesa meira
 

5.3.2007 : Samstaða um að breyta stjórnarskrá

Fréttatilkynning frá þingflokkum stjórnarandstöðunnar: Lesa meira
 

1.3.2007 : Kannað verði hvort rifta eigi samning borgarinnar og Kópavogs

Á fundi borgarráðs í morgun voru málefni Heiðmerkur til umræðu að beiðni fulltrúa Vinstri grænna.

Á fundinum lagði undirritaður fram svohljóðandi tillögu:

Lesa meira
 

25.2.2007 : Vel heppnuðum landsfundi lokið

Fimmta reglulega landsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lauk upp úr klukkan fjögur í dag og var mál þeirra sem hann sóttu að mikill einhugur og baráttuandi ríkti alla helgina. Lesa meira
 

23.2.2007 : Landsfundur 2007: Setning og ræða formanns

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hófst með glæsibrag á Grand Hótel í dag. Um 500 félagar sóttu fundinn. Setningarathöfnin var þrungin jákvæðum fyrirheitum um hvert skal stefna í vor og ræða Steingríms J. Sigfússonar, formans VG setti skarpar línur og tóninn fyrir kosningabaráttuna sem framundan er.

Hér er ræðan í heild sinni:

Lesa meira
 

22.2.2007 : Klámið stöðvað!

Radisson SAS hótelið í Reykjavík hefur ákveðið að synja ráðstefnu netklámframleiðenda um gistingu. Bændasamtökin sendu frá sér fréttatilkynningu þessa efnis nú upp úr hádeginu! Í yfirlýsingu frá samtökunum segir: Lesa meira
 

22.2.2007 : Félagsfundur VG í Hveragerði

Á félagsfundi VG í Hveragerði, sem haldinn var 21. febrúar 2007, var kosin ný stjórn fyrir félagið til bráðabirgða. Formaður var kosin Guðrún Olga Clausen, meðstjórnendur Úlfur Björnsson og Guðmundur Arason og í varastjórn Hildur Svava Karlsdóttir. Lesa meira
 

21.2.2007 : Borgarstjórn harmar ráðstefnu klámframleiðenda

Að frumkvæði borgarstjórnarflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var eftirfarandi ályktun samþykkt í borgarstjórn í gær: Lesa meira
 

19.2.2007 : Ályktun Ungra vinstri-grænna í tilefni af fyrirhugaðri klámráðstefnu í Reykjavík

Vegna frétta þess efnis að þing framleiðenda klámefnis fyrir netmiðla verði haldið á Íslandi 7-11. mars næstkomandi vill stjórn Ungra vinstri-grænna koma á framfæri andúð sinni á klámiðnaðinum. Von okkar er sú að almenningur á Íslandi gefi um það skýr skilaboð með öllum tiltækum ráðum að klám skuli ekki liðið enda er klám ólöglegt á Íslandi Lesa meira
 

18.2.2007 : Framboðslistinn í Norðvesturkjördæmi samþykktur

Sunnudagskvöldið 18. febrúar var framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi samþykktur og hljóðar hann svo: Lesa meira
 

16.2.2007 : Bókun bæjarfulltrúa VG í Hafnarfirði vegna matsáætlunar Landsnets

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna í Hafnarfirði lagði fram meðfylgjandi bókun á fundi bæjarstjórnar síðastliðinn þriðjudag vegna matsáætlunar Landsnets fyrir háspennulínur frá Hellisheiði að Straumsvík.

Lesa meira
 

16.2.2007 : Áskorun til ríkisstjórnarinnar vegna klámráðstefnu

Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður hefur sent ríkisstjórninni eftirfarandi áskorun í tilefni af fyrirhugaðri kaupstefnu klámframleiðenda hér á landi:

Lesa meira
 

15.2.2007 : Ung vinstri græn á Austurlandi

Laugardaginn 10. febrúar síðastliðinn var stofnuð stjórn Ungra vinstri-grænna á Austurlandi. Í stjórn voru kjörin:

Lesa meira
 

14.2.2007 : Framboðslistar á höfuðborgarsvæðinu samþykktir

Framboðslistar Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir komandi alþingiskosningar voru samþykktir á félagsfundi 14. febrúar. Listarnir líta svona út:

Lesa meira
 

12.2.2007 : Listar höfuðborgarsvæðisins kynntir

Sameiginlegur félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum og í Suðverstukjördæmi verður haldinn miðvikudaginn 14. febrúar klukkan 20 í sal Menntaskólans í Kópavogi. Lesa meira
 

17.11.2006 : Ályktun þingflokks í tilefni áforma Norsk Hydro

 

8.11.2006 : Stjórn svæðisfélagsins á Seltjarnarnesi endurkjörin

 

9.10.2006 : Ályktanir aðalfundar kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi

 

29.9.2006 : Sameiginlegt forval VG á höfuðborgarsvæðinu

 

8.7.2006 : Þingmenn VG senda ísraelska þinginu mótmælabréf

 

29.5.2006 : Góður árangur Vinstri grænna í sveitarstjórnarkosningunum

 

24.5.2006 : Menningar- og baráttusamkoma VG Kópavogi í Salnum

 

19.5.2006 : Stelpurokk!

 

13.4.2006 : Gleðilega páska!

 

4.4.2006 : Kosningamiðstöð Vinstri - grænna í Suðurgötu 3 Reykjavík verður opnuð formlega laugardaginn 1. apríl.

 

23.3.2006 : Fagna brottför hersins

 

21.3.2006 : Ályktun VGR

 

20.1.2006 : Dagskrá borgarmálaráðstefnu VGR

 

5.1.2006 : Framboðslisti VG í Reykjavík

 

24.11.2005 : Stofnfundur UVG á Akureyri

Stofnfundur UVG á Akureyri og nágrenni var haldinn 23. nóvember. Gestur fundarins var Þuríður Backman þingmaður Norðausturkjördæmisins. Á fundinum var kjörin stjórn félagsins en hún er þannig skipuð: Lesa meira
 

21.10.2005 : Drög að menntastefnu lögð fram á landsfundi 2005

 

21.10.2005 : Drög að stjórnmálaályktun landsfundar

 

5.10.2005 : Aðalfundur VG í Reykjavík 4. október 2005

 

30.9.2005 : Fréttatilkynning frá þingflokki VG

 

8.9.2005 : Símasalan

 

6.6.2005 : Ríkisstjórnin í glerbúrinu

 

12.5.2005 : Hló þá allur þingheimur dátt

 

10.5.2005 : Eldhúsdagur á Alþingi

 

1.4.2005 : Afgreiðslu utanríkismálanefndar harðlega mótmælt

 

11.3.2005 : Brotamenn kenna kerfinu um

 

22.11.2004 : Ályktanir flokksráðsfundar

 

5.10.2004 : Vel heppnaður aðalfundur UVG á Akureyri

 

9.9.2004 : Ályktun VG í Hafnarfirði

 

12.8.2004 : Þingvellir utan alfaraleiða?

 

12.7.2004 : Mannréttindabrotum í Kína mótmælt

 

15.5.2004 : Um fjölmiðlafrumvarpið á Morgunvaktinni

 

19.4.2004 : Umræða og greinar um utanríkismál

 

12.1.2004 : VG vill ekki að umfjöllun um sparisjóðina frestist

 

14.11.2003 : Ræða Stellans á landsfundi VG

Stellan Hermansson, framkvæmdastjóri Nordic-Green Left hópsins á Evrópuþinginu, var sérstakur gestur á landsfundi Vinstri grænna. Stellan er frá Svíþjóð og hefur lengi tekið þátt í stjórnmálum á vinstri væng sænskra stjórnmála og hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Vänsterpartiet í Svíþjóð. Frá árinu 1999 hefur hann síðan verið einn af forsvarsmönnum vinstri-grænna afla á Evrópuþinginu og er nú framkvæmdastjóri Nordic-Green Left (NGL) sem eru öflug samtök vinstri- og umhverfisverndarsinnaðra þingmanna á Evrópuþinginu. Hann flutti erindi á landsfundi Vinstri grænna laugardaginn 8. nóvember og fer það hér á eftir í íslenskri þýðingu. Lesa meira
 

13.11.2003 : Ályktað um náttúruvernd og umhverfismál

Málefni umhverfis- og náttúruverndar eru vinstri grænum mikið hjartans mál og var að mörgu að huga í sérstökum hópi um umhverfismál sem starfaði á landsfundinum undir yfirskriftinni "Hver á sér fegra föðurland og hversu lengi?" Auk þess sem fram kemur um þennan málaflokk í aðalályktun fundarins lagði starfshópurinn fram eigin ályktun sem hér fer á eftir. Málefnahópurinn sem starfaði í aðdraganda landsfundar lagði fram drög að sérályktun um verndun Langasjávar sem samþykkt var lítið breytt. Lesa meira
 

10.11.2003 : Réttlæti án landamæra - stjórnmálaályktun

Mikið starf var unnið í öllum málefnahópum á landsfundi VG og ályktað um fjölmörg mál. Sérstakur hópur var að störfum fyrir fundinn og gerði hann hvort tveggja að móta rammann um starfið í málefnahópunum og leggja drög að aðalályktun í anda yfirskriftar landsfundarins og nokkrum ályktunum um sérstök málefni. Þessi drög fengu góðar viðtökur og viðbætur á landsfundinum sem auk þess samþykkti fjölda annarra sem verða smám saman birtar hér á síðunni. Hér á eftir fer aðalályktunin og hinar verða mjög bráðlega einnig birtar hér á síðunni. Lesa meira
 

3.11.2003 : Ályktun aðalfundar VG á Vestfjörðum

 

14.10.2003 : Fundir á fundi ofan

 

17.9.2003 : Glæsilegur kosningasigur norskra félaga

 

9.9.2003 : Ályktun um landbúnaðarmál

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur að undanförnu haft vanda landbúnaðarins til sérstakrar skoðunar. Þingflokkurinn hefur fengið til sín fulltrúa frá bændasamtökunum og þingmenn hafa heimsótt bændur og afurðastöðvar og kynnt sér stöðu mála með ýmsum hætti. Þingflokkurinn hefur á fundi sínum í dag samþykkt svohljóðandi ályktun: Lesa meira
 

8.4.2003 : www.xu.is

 

6.1.2003 : Enn einn

 

13.9.2002 : Áskorun vegna Áslandsskóla

 

22.3.2002 : Fundur UVG

 

29.11.2001 : Fundur VG um Evrópumál

EuropeÁ fullveldisdaginn laugardaginn 1. desember heldur Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík fund í húsakynnum flokksins á 3. hæð í Hafnarstræti 20 við Lækjartorg. Þar mun Ragnar Arnalds fyrrverandi alþingismaður hafa framsögu um Evrópusambandið og þróun þess. Lesa meira
 

29.11.2001 : Stofnfundir í Borgarnesi

Vinstrihreyfingin - grænt framboð á Vesturlandi efnir til fundar á Hótel Borgarnesi laugardaginn 1. desember kl. 14.00. Á fundinum verða stofnaðar tvær félagsdeildir á svæðinu, Borgarfjarðardeild og Borgarbyggðadeild. Lesa meira
 

27.11.2001 : Þingmannaheimsókn í Hafnarfjörð

Þingmenn VG verða á ferðinni um Hafnarfjörð miðvikudaginn 28. nóvember. Þeir munu heimsækja vinnustaði og eiga fund með bæjarstjóra og bæjarráðsmönnum. Lesa meira
 

27.11.2001 : Fundur VG um endurreisn skipasmíðaiðnaðar

Miðvikudagskvöldið 28. nóvember heldur Vinstrihreyfingin - grænt framboð almennan fund um atvinnumál með sérstaka áherslu á sjávarútvegsmál og endurreisn skipasmíðaiðnaðar á Íslandi. Lesa meira
 

23.11.2001 : Fundur í Kópavogi

Sævar Tjörvason fjallar um þátttökulýðræði. Steingrímur J. Sigfússon ávarpar fundinn og svarar fyrirspurnum. Kynntur verður undirbúningur að bæjarstjórnarkosningum. Almennar umræður Lesa meira
 

12.10.2001 : Dagur sorgar

 

11.10.2001 : 1.maí

 

6.10.2001 : Er Framsókn með bundið fyrir augun?

Þau skilaboð sem kjósendur sendu ráðamönnum með miklum stuðningi við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð virðast ekki hafa náð til allra. Iðnaðarráðherra spásserar nú sem aldrei fyrr með stóriðjuhöldum um Lesa meira
 

6.10.2001 : Hver verður handtekinn næst

Lögreglan í Reykjavík - og þá alveg sérstaklega Geir Jón Þórisson - hefur ekki slegið slöku við í handtökum að undanförnu. Geir Jón og félagar héldu upp á þjóðhátíðardaginn með því að handtaka þrjá menn sem að þeirra mati féllu ekki inn í heildarmynd hátíðahaldanna á Austurvelli. Lesa meira
 

6.10.2001 : Vopnasalan blómstrar

Samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðlegu friðarrannsóknastofnunarinnar í Stokkhólmi (SIPRI) er ekkert lát á viðskiptum með hefðbundinn vígbúnað. Árið 1998 námu þessi viðskipti tæpum 22 milljörðum dollara sem er svipuð upphæð og árin 1994-1996 en talsvert minni en árið 1997 sem var hreint metár á þessu sviði. Tíu tærstu útflytjendur eru þeir sömu og á liðnum árum þótt röð þeirra innbyrðis hafi breyst lítillega. Lesa meira
 

6.10.2001 : Frjáls eða skilyrt frjálshyggja

Mikil umræða fer nú fram um hvort ástæða sé til sérstakrar lagasetningar um eignarhald á bönkum og hafa mörg merkileg ummæli fallið í því sambandi. Deilurnar ganga þvert á flokkslínur og ríkisstjórnin er ekki samstíga í málinu. Lesa meira
 

6.10.2001 : 500 þúsund börn í valinn

Samkvæmt nýrri úttekt sem gerð var á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur barnadauði í Írak meira en tvöfaldast á síðustu tíu árum. Flest börn láta lífið vegna skorts á lyfjum og sjúkragögnum. Lesa meira
 

6.10.2001 : Vel heppnuð hálendisferð

Töfrafoss sumarið 2006Um 70 manns tóku þátt í hálendisferð á vegum Vinstri-hreyfingarinnar - græns framboðs um helgina. Hópurinn skoðaði m.a. ýmis svæði norðan Vatnajökuls sem færu undir vatn ef villtustu stórvirkjanaáform næðu fram að ganga. Lesa meira
 

6.10.2001 : Hvað er á seyði í Kambódíu?

Kólumbía er ekki eitt þeirra landa sem alla jafna fer mest fyrir í íslenskum fjölmiðlum. Þó náði frétt af framgöngu dauðasveita hægrimanna þar í landi inn á síður Morgunblaðsins í dag og er það undirrituðum gleðiefni. Slíkar fréttir eru nefnilega meinhollt meðlæti í öllu írafárinu yfir því hvernig einstakir ráðherrar vilji afhenda ákveðnum aðilum tiltekinn banka - strax eða seinna, með eða án milliliða. Lesa meira
 

6.10.2001 : Helms í ham

Nú stefnir allt í mikla rimmu á bandaríska þinginu um hvort undirrita skuli samning um bann við kjarnorkutilraunum. New York Times greinir frá því í dag að repúblikanar, með Jesse Helms í broddi fylkingar, muni leggja sig í framkróka við að hindra framgang málsins í þinginu. Lesa meira
 

6.10.2001 : Markaðshyggja er ekki umhverfisvernd

Það er líklega orðið nokkuð langt síðan Vefþjóðviljinn grét úr sér bæði augun yfir mikilli umræðu um umhverfisvernd á Íslandi. Einkum virðast orðin "sjálfbær þróun" og "náttúruperla" hafa orðið til kreista fram tárin á þessu vefriti frjálshyggjumanna. Og í gær lak enn úr tóftunum. Vefþjóðviljinn gengur út frá því í skrifum sínum að markaðurinn einn geti skorið úr um gildi alls, m.ö.o. að allt sé nákvæmlega þess virði sem það selst á. Lesa meira
 

6.10.2001 : Gæsavinurinn Finnur

gooseFinnur Ingólfsson sýnir enn á sér nýja hlið í samtali við blaðamann Dags 3. september. Þar segir Finnur um Eyjabakkasvæðið að heiðagæsin komi þangað í leit að kyrrð, ró og vatni. Jafnframt lætur Finnur að því liggja að umferð ferðafólks muni hrekja gæsina burt að lokum en ef það verður virkjað hefur gæsin meiri möguleika á að færa sig út á vatnið?. Lesa meira
 

6.10.2001 : Þingmenn leggja land undir fót.

Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verða á ferð um Vestfjarðakjördæmi dagana 7.-9. september. Lesa meira
 

6.10.2001 : Byggðarjafnvægi er hagur allra.

skipmirByggðaröskun undanfarinna ára hefur komið illa niður á Vestfjörðum. Kvóti hefur verið seldur eða tapast frá mörgum byggðarlögum og hundruð starfa tapast úr fiskvinnslu og tengdum greinum með tilheyrandi félagslegum afleiðingum. Lesa meira
 

6.10.2001 : Kannanir vísa í rétta átt.

Þær skoðanakannanir sem birst hafa að undanförnu gefa ánægjulegar vísbendingar um að Vinstrihreyfingin - grænt framboð geti styrkt stöðu sína nokkuð í framtíðinni. Þrátt fyrir að fylgistölur hafi verið nokkuð breytilegar eru þær allar yfir kjörfylginu frá í vor sem var 9,1%. Lesa meira
 

6.10.2001 : Fundaröð á Selfossi

Kjördæmisfélag VG á Suðurlandi hefur ákveðið að standa fyrir röð stjórnmálafunda í kjördæminu í vetur. Fyrirkomulagið verður þannig að einu sinni í mánuði frá september og fram í maí er efnt til opins fundar um tiltekinn málaflokk. Lesa meira
 

6.10.2001 : Frumvarp um dreifða eignaraðild.

Ekki þarf að rifja upp þá miklu umræðu sem varð í sumar um dreifða eignaraðild að fjármálastofnunum. Á endanum ákvað ríkisstjórnin í afskaplega góðri sátt við sjálfa sig að selja völdum aðilum afganginn af FBA. Sá ráðherra sem hafði hvað mest talað fyrir dreifðri eignaraðild lét duga að segja að slík dreifing væri vilji ríkisstjórnarinnar. Lesa meira
 

6.10.2001 : Ótrúlegir sleggjudómar

Skipan sjávarútvegsráðherra í nefnd um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða var rædd utan dagskrár á Alþingi í dag. Málshefjandi var Guðjón A. Kristjánsson en sem kunnugt er fengu Frjálslyndir ekki fulltrúa í nefndinni. Af mörgum kostulegum ræðum stjórnarliða stóð málflutningur Kristins H. Gunnarssonar upp úr. Lesa meira
 

6.10.2001 : Hernaði Rússa í Téténíu mótmælt.

Þingflokkur VG mótmælir hernaði Rússa í Téténíu þó hann sé rekinn í nafni baráttu gegn hryðjuverkum. Þingflokkurinn lýsir þungum áhyggjum af þeim mikla flóttamannavanda sem upp er kominn vegna átakanna og einnig af stjórnmálaástandinu í öllum norðurhluta Kákasus-svæðisins. Lesa meira
 

6.10.2001 : Fjölmargar athugasemdir við frummats

Hjörleifur GuttormssonHjörleifur Guttormsson, fyrrverandi alþingismaður, gerir fjölmargar athugasemdir við frummatsskýrslu vegna fyrirhugaðs 480.000 tonna álvers á Reyðarfirði. Í pistli á heimasíðu hans, Grænum vettvangi, Lesa meira
 

6.10.2001 : Bleyðiverk í Téténíu.

stephan_stephansson_thuÍ ljóðinu Transvaal, sem Stephan G. Stephansson orti þegar framferði Breta í Búastríðinu svokallaða gekk endanlega fram af skáldinu, sendi hann breska heimsveldinu svo-hljóðandi kveðju: Lesa meira
 

23.4.0007 : NV - Vinstri græn litu við á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar

Jón Bjarnason þingmaður og Ingibjörg Inga sem skipar 2. sæti framboðslistans í NV kjördæmi brugðu sér í heimsókn á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar. Ekki vantaði upp á áhuga heimamanna á pólitíkinni, en ýmis mál voru rædd og krufin til mergjar. Á meðfylgjandi mynd má sjá þau rabba við fólk við æfingar á endurhæfingunni.
Lesa meira
 

23.4.0007 : NV - Frambjóðendur í heimsókn á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar

Jón Bjarnason og Ingibjörg Inga litu við á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar í síðustu viku og heilsuðu upp á starfsfólk og sjúklinga. Ýmis mál voru rædd og rakin fram og aftur en ekki vantaði á áhuga heimamanna á póitíkinni. Á myndinni má sjá þau rabba við fólk við æfingar á endurhæfingunni. Lesa meira
 

: Kosningaskrifstofa í Árborg

Kosningaskrifstofa í Árborg verður opnuð miðvikudaginn 4. apríl kl. 20. í Selinu við Engjaveg á Selfossi. Atli, Alma og Heiða munu mæta. Allir velkomnir !!! Lesa meira
 

: Nýárskveðja

 

: Listinn á Suðurlandi samþykktur

 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica