Setning Landsfundar 2007

Myndasyrpa frá setningarhátíð

Á opnunarhátíð Landsþings Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs mættu um 500 félagar. Dagskráin þóttist hafa heppnast mjög vel og var mikil stemmning meðal landsfundargesta. Fólk hafði á orði að það kæmi af honum fyllt krafti til að takast á við vorhreingerningarnar framundan í stjórnarfari landsins. Mikið var af nýju fólki enda hefur félagatal VG aukist dag frá degi.

Hermann ValssonHermann Valsson, formaður VGR býður landsfundargesti velkomna.

Kolbrún Halldórsdóttir

Kolbrún Halldórsdóttir stýrði hátíðinni af röggsemi og hlýju eins og henni er einni lagið.

Sinistra Verda

Tríóið Sinistra verde og söngkonan Jóhanna Vigdís fluttu nokkur valinkunn lög.

Snærós SindradóttirSnærós Sindradóttir var fulltrúi ungu kynslóðarinnar og hreif fólk með ræðu sinni.

Málfríður Sigurðardóttir
Málfríður Sigurðardóttir var fulltrúi eldri kynslóðarinnar og jós af viskubrunni sínum.

Lárus ÁstmarLárus Ástmar Hannesson söng með ótrúlega hljómfagurri röddu við undirleik Tómasar Guðna.

Steingrímur og Ögmundur á landsfundiÖgmundur, Steingrímur og aðrir fundargestir hlusta af mikilli athygli á ræðukonur.

Steingrímur j. SigfússonOg þá var komið að því sem fólk beið í ofvæni eftir, ræðu Steingríms J. Sigfússonar.

Steingrímur J. SigfússonHann hvatti sitt fólk áfram með frábærri ræðu, setti línurnar fyrir "Allt annað líf" og aldrei ...

Steingrímur J.... var langt í hárbeitt skopskynið sem landsfundargestir kunnu vel að meta. Þegar hann lauk ræðu sinni stóðu allir fundargestir upp og ætlaði fagnaðarlátunum seint að linna. Hægt er að finna ræðu Steingríms hér á vefnum.

myndirnar tók Gúndi


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica