Greinar

1. maí ávarp Steinunnar Þóru

Steinunn Þóra Árnadóttir skipar 4. sæti í RN

Steinunn ÞóraFélagar

Mér finnst slagorðið Eitt samfélag fyrir alla vera falleg krafa. Hún lætur kannski ekki mikið yfir sér en segir engu að síður svo margt, bæði um það samfélag sem við lifum í núna – og það samfélag sem við viljum stefna að í framtíðinni. Þetta er einnig krafa sem við í vinstrihreyfingunni – grænu framboði getum heilshugar tekið undir og er raunar eitt helsta baráttumál okkar og grundvallarhugsjón.

Um daginn heyrði ég einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, hreykja sér af því að Ísland væri land tækifæranna, þökk sé hans flokki – og líklega hefur hann eitt og annað til síns máls. Það verður þó einnig að skrifast á reikning Sjálfstæðisflokksins, og ríkisstjórnarinnar allrar að Ísland er fjarri því að vera land jafnra tækifæra, þar sem allir taka þátt í samfélaginu á jafnréttisgrunni.

Þvert á móti hefur markvisst verið unnið að því með stjórnvaldsaðgerðum að greiða götu sumra í samfélaginu en setja þröskulda – eiginlega, jafn sem óeiginlega – í veg annarra.

Það er nefnilega sár staðreynd að við erum að mörgu leyti að fjarlægjast kröfuna um eitt samfélag fyrir alla en færast nær samfélagi fyrir fáa útvalda. Ráðamenn þreytast ekki á því að reyna að telja okkur trú um að kaupmáttur hafi aukist allverulega síðustu ár. En kaummáttur hverra?

Ekki öryrkja og aldraðra. Ekki verkafólks á grunntöxtum. Ekki þeirra erlendu verkamanna sem hingað eru fengnir til að vinna við aðstæður sem engan veginn standast lög og reglru. Og ekki hafa kjör þeirra barna sem eiga foreldra úr framangreindum hópum batnað.

Aukin gjaldheimta á sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, þensla á húsnæðismarkaði og ýmis útgjöld tengd grunnmenntun barna eru ekki til þess fallin að efnalitlu fólki verði meira úr laununum sínum. Þvert á móti eru þetta allt þættir sem stuðla enn frekar að misskiptingu.

Tölurnar sýna okkur að misrétti hefur aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum. Það er erfiðara að vera fátækur í dag en það var árið 1995, árið sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hófu ríkisstjórnarsamstarf.

Þessu ætlum við að breyta. Við vinstri græn ætlum að komast í ríkisstjórn og breyta íslensku samfélagi á þann hátt að hér verði raunverulegt land tækifæranna. Land jafnra tækifæra – tækifæra allra.  

Það ætlum við að gera með því að hefja hugsjónir verkalýðsins og sósíalisma til vegs og virðingar. Við hyggjumst skapa samfélag og atvinnulíf sem þrífst í sátt við náttúruna, en gefa hugmyndum sérgæsku og taumlausrar gróðafíknar frí.

Við munum skapa eitt samfélag fyrir alla, þar sem allir hafa mannsæmandi afkomu, allir hafa þak yfir höfuðið, allir eru þátttakendur. - börn, aldraðir, fatlaðir, skúringakarlar og meira að segja bankastjórar og framkvæmdastýrur.

Baráttan er í fullum gangi og framkvæmdirnar hefjast að morgni 13.maí.

Fram til sigurs.




 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica