Beint í leiðarkerfi vefsins.
Umræðan um umhverfismál síðustu ára hér á landi hefur að mestu snúist um virkjanir og álbræðslur. Lítið hefur hinsvegar verið rætt um umhverfis áhrif annars atvinnureksturs þó svo að óneitanlega sé sumstaðar um orkufrekar og mengandi atvinnugreinar að ræða sem einnig geta haft áhrif á náttúru lands og sjávar.
Lesa meira
Misrétti hefur aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum. Á sama tíma og margir hafa auðgast verulega og enn aðrir búa við góð lífskjör er vaxandi hópur settur hjá. Fátækt á ekki að líða í íslensku samfélagi og leggur Vinstrihreyfingin grænt framboð höfuðáherslu á að bæta og jafna kjörin og útrýma fátækt. Í dag kynntu frambjóðendur aðgerðaáætlun Vinstri grænna til að útrýma fátækt á Íslandi.
Lesa meira
Ég vil spyrja: Hvað er að frétta úr verkalýðsbaráttunni? Hvar er hún á baráttudegi verkalýðsins? Hver talar máli verkalýðsins? Við heyrum stöðugt um samningabrot, vinnuþrælkun og aðbúnað sem mönnum er ekki bjóðandi. Frjálslyndi flokkurinn vill tefla launafólk hvert gegn öðru, og þannig endar það ef við látum ekki í okkur heyra. Hrein og klár lögbrot eru látin viðgangast. Höfuðverkefni verkalýðshreyfingarinnar er að skikka atvinnurekendur til að fylgja landslögum. Það ætti að vísu að vera í verkahring lögreglunnar, en auðmagnið kemst upp með allt í heimi hins hreyfanlega vinnuafls. Þess vegna er gamla kjörorðið Öreigar allra landa sameinistalls ekki úrelt. Það hefur aldrei skipt meira máli. Verkafólk á ekki að lifa í ótta hvert við annað. Lög og reglur eru brotnar og fólki bara sagt að halda kjafti. Þess vegna köllum við á samstöðu. Ég vil sjá vinstriöflin vekja athygli á stöðu láglaunafólks. Láglaunafólk á sér allt of fáa talsmenn í dag. Atvinnurekendur komast upp með fáránlega kúgun í skjóli þessarar þagnar. Það er hún sem er fátækrahverfið innra með okkur.
Mér finnst slagorðið Eitt samfélag fyrir alla vera falleg krafa. Hún lætur kannski ekki mikið yfir sér en segir engu að síður svo margt, bæði um það samfélag sem við lifum í núna – og það samfélag sem við viljum stefna að í framtíðinni. Þetta er einnig krafa sem við í vinstrihreyfingunni – grænu framboði getum heilshugar tekið undir og er raunar eitt helsta baráttumál okkar og grundvallarhugsjón.
Um daginn heyrði ég einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, hreykja sér af því að Ísland væri land tækifæranna, þökk sé hans flokki – og líklega hefur hann eitt og annað til síns máls. Það verður þó einnig að skrifast á reikning Sjálfstæðisflokksins, og ríkisstjórnarinnar allrar að Ísland er fjarri því að vera land jafnra tækifæra, þar sem allir taka þátt í samfélaginu á jafnréttisgrunni.
Lesa meira