Félag VG í Ísafjarðarbæ
Fimmtudaginn 24. janúar sl. stofnuðu félagar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Ísafjarðarbæ sérstaka félagsdeild. Stjórn félagsins skipa Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður, og aðrir í stjórn Kjartan Ágústsson Ísafirði, Gígja Sigríður Tómasdóttir Ísafirði, Jón Fanndal Þórðarson Hnífsdal og Anton Torfi Bergsson Felli í Dýrafirði.
Fram kom í almennum umræðum að Vinstri grænir í Ísafjarðarbæ hafa fullan hug á að láta til sín taka í kosningum til sveitarstjórna á vori komanda. Fundurinn fól nýkjörinni stjórn að kanna möguleika á framboði VG í Ísafjarðarbæ í komandi kosningum.
Gestir fundarins voru alþingismennirnir Jón Bjarnason og Árni Steinar Jóhannsson og Gunnar Sigurðsson Bolungarvík, formaður svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Vestfjörðum.

