Uppstilling í Norðvesturkjördæmi
Fundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi var haldinn í Búðardal í gær. Samþykkt var einróma að viðhafa uppstillingu við val á frambjóðendum á listann við næstu Alþingiskosningar. Kosnir voru 7 fulltrúar í uppstillinganefnd og koma þeir víðsvegar að úr kjördæminu. Er nefndinni falið að skila svo fljótt sem verða má tillögum að framboðslista sem lagður verður fyrir kjördæmisráðsfund sem afgreiðir listann og gengur frá framboðinu.
Jón Bjarnason alþingismaður lýsti því yfir á fundinum að hann væri reiðubúinn að leiða listann í næstu kosningum.

