Fréttir

Ályktanir aðalfundar VG á Héraði, Borgarfirði eystra og Seyðisfirði

13.11.2006

Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á aðalfundi VG á Héraði, Borgarfirði eystra og Seyðisfirði, 11. nóvember 2006

 

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalfundur VG á Héraði, Borgarfirði eystra og Seyðisfirði, haldinn í Golfskálanum á Ekkjufelli 11. nóv.2006, skorar á stjórnvöld að auka fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Austurlands og bæta þannig úr hallarekstri hennar og því ófremdarástandi sem þar ríkir.

Sérstaklega virðist Heilsugæslustöðin á Egilsstöðum hafa orðið hart úti, enda vanbúin til að takast á við álagið sem fylgt hefur þeim mannfjölda sem komið hefur vegna gríðarlegra framkvæmda á hennar svæði.

 

Skógrækt á Íslandi

Aðalfundur VG á Héraði, Borgarfirði eystra og Seyðisfirði, haldinn í Golfskálanum á Ekkjufelli 11. nóv.2006, skorar eindregið á Alþingi að auka fjárframlög til skógræktar á Íslandi í stað þess að minnka þau ár frá ári. Skógrækt ríkisins er svelt að fé og mun þurfa að draga saman starfsemi sína til muna á næstunni, sé ekkert að gert. Framlög til landshlutabundinna skógræktarverkefna hafa rýrnað og dregist saman undanfarin ár. Þetta gerist þrátt fyrir að ljóst sé að í skógrækt felist miklir möguleikar og verðmæti af mörgum toga. Ekki síst er skógrækt andsvar við vaxandi loftmengun. Einnig varar fundurinn alvarlega við öllum hugmyndum um að sameina Skógrækt ríkisins og Landgræðsluna.

 

Umsýsla með öllum málefnum varðandi hreindýr heim í hérað

Aðalfundur VG á Héraði, Borgarfirði eystra og Seyðisfirði, haldinn í Golfskálanum á Ekkjufelli 11. nóv.2006, mótmælir harðlega því fyrirkomulagi sem er á umsýslu hreindýramála. Fundurinn beinir þeim eindregnu tilmælum til umhverfisráðherra að færa alla umsýslu með þessum málum heim í hérað hreindýranna og setja þau beint og milliliðalaust undir ráðuneytið.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica