Fjölsótt smiðja um Innflytjendamál
Laugardaginn 11. nóvember síðastliðinn var haldin græn smiðja undir yfirskriftinni Innflytjendur: Þátttaka-aðlögun-tækifæri. Frummælendur voru þau Paul Nikolov blaðamaður og frambjóðandi í forvali VG og Kristín Njálsdóttir félagsráðgjafi og stjórnarmaður í Ísland Panorama. Smiðjunni stjórnaði Toshiki Toma, prestur innflytjenda og stjórnarmaður í VG í Reykjavík. Miklar umræður spunnust um málefni innflytjenda og hvernig gagnkvæm aðlögun verði með bestu móti. Í lok fundarins var ákveðið að halda vinnunni áfram og mynda hóp um málefnið til að móta frekari stefnu VG í málaflokknum. Hópstjóri er Toshiki Toma en hægt er að skrá sig til starfa hjá vg@vg.is

