Fréttir

30 gefa kost á sér í forval VG á höfuðborgarsvæðinu

13.11.2006

Framboðsfresti vegna forvals Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu

lauk sl. laugardag. Forvalið er sameiginlegt fyrir félög hreyfingarinnar í báðum Reykjavíkurkjördæmum og Suðvesturkjördæmi. Alls bárust þrjátíu framboð. Þessi buðu sig fram:

 

Andrea Ólafsdóttir, 34 ára, nemi í uppeldis- og menntunarfræði, 2.-4. sæti

Auður Lilja Erlingsdóttir, 27 ára, stjórnmálafræðingur, 2. sæti

Álfheiður Ingadóttir, 55 ára, líffræðingur, 1.-2. sæti

Árni Þór Sigurðsson, 46 ára, borgarfulltrúi, 1.-2. sæti

Benedikt Kristjánsson, 20 ára, nemi, 4. sæti

Elías Halldór Ágústsson, 43 ára, kerfisfræðingur, 3.-4. sæti

Emil Hjörvar Petersen, 22 ára, nemi í bókmenntafr. og íslensku, 3.-4. sæti

Erlendur Jónsson, 23 ára, efnafræðingur, 3.-4. sæti

Friðrik Atlason, 30 ára, deildarstjóri á sambýli, 2.-4. sæti

Gestur Svavarsson, 33 ára, hugbúnaðarráðgjafi, 2.-3. sæti

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 34 ára, sagnfræðingur, 2. sæti

Guðmundur Magnússon, 59 ára, leikari, 1.-2. sæti

Jóhann Björnsson, 40 ára, kennari, 2. sæti

Katrín Jakobsdóttir, 30 ára, varaformaður VG, 1. sæti

Kári Páll Óskarsson, 24 ára, mastersnemi í þýðingafræðum, 3.-4. sæti

Kolbrún Halldórsdóttir, 51 árs, alþingismaður, 1. sæti

Kristín Tómasdóttir, 24 ára, nemi, 2.-4. sæti

Kristján Hreinsson, 49 ára, skáld, 2. sæti

Mireya Samper, 42 ára, myndlistarkona, 3.-4. sæti

Ólafur Arason, 27 ára, nemi, 3.-4. sæti

Paul F. Nikolov, 34 ára, blaðamaður og stuðningsf. á sambýli, 1.-3. sæti

Sigmar Þormar, 49 ára, kennari ráðgjafi, 3.-4. sæti

Steinar Harðarson, 62 ára, umdæmisstjóri, 3.-4. sæti

Steinunn Þóra Árnadóttir, 29 ára, nemi og öryrki, 4. sæti

Svala Jónsdóttir Heiðberg, 35 ára, framhaldsskólakennari, 3.-4. sæti

Sveinbjörn Markús Njálsson, 52 ára, skólastjóri, 1.-4. sæti

Wojciech Szewczyk, 41 árs, verkamaður, gefur ekki upp sæti

Þorleifur Friðriksson, 54 ára, sagnfræðingur, gefur ekki upp sæti

Þórir Steingrímsson, 60 ára, rannsóknarlögreglumaður, 1.-2. sæti

Ögmundur Jónasson, 58 ára, alþingismaður, 1. sæti

 

Forvalið fer fram 2.desember næstkomandi kl. 10 - 22 . Kosið verður í Suðurgötu 3 í Reykjavík, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ.

 

Allir félagar VG í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi hafa kosningarétt samkvæmt félagatali 25. nóvember 2006 en þá verður kjörskrá lokað.

 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram í Suðurgötu 3 í Reykjavík, dagana 28. og 30. nóvember kl. 16 ? 21.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica