Útifundur á Austurvelli
Alþýðusamband Íslands, BSRB, Öryrkjabandalag Íslands og Félagið Ísland-Palestína standa fyrir útifundi á Austurvelli kl. 17:30 í dag, þriðjudaginn 9. apríl undir kjörorðinu"Stöðvum blóðbaðið -- Alþjóðlega vernd strax -- Frið í Palestínu".
Þá er þess að geta að efnt er til þögullar stöðu við Stjórnarráð Íslands í Reykjavík daglega milli kl.11 og 13. Allir sem geta eru hvattir til að mæta. Tilgangurinn er að fá íslensk stjórnvöld til að gera allt sem þau geta til að fyrirbyggja þjóðarmorð í Palestínu, tryggja Palestínumönnum alþjóðavernd, veita aukna mannúðaraðstoð og stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að Ísrael virði samþykktir Sameinuðu þjóðanna.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.aldeilis.net.

