Við öll eftir Steingrím J. Sigfússon komin út
Við öll ? íslenskt velferðarsamfélag á tímamótum, bók eftir Steingrím J. Sigfússon er komin út hjá Bókaútgáfunni Sölku. Titill bókarinnar vísar til þess að aðalinntak stjórnmálanna eigi að vera hagsmunir heildarinnar, að bæta lífsskilyrði allra.
Í seinni tíð hefur það sjaldan gerst að forystumaður í íslenskum stjórnmálum greini skýrt og skilmerkilega frá í bók þeirri grundvallarhugmyndafræði sem hann aðhyllist. Hér eru spilin lögð á borðið og boðið upp á rökræður um stjórnmál þar sem hlutirnir eru settir í samhengi allt frá staðbundnum rammíslenskum veruleika til hraðfara breytinga á öld hnattvæðingar. Steingrímur hefur gríðarmikla þekkingu á íslenskum og evrópskum stjórnmálum og skoðar þau í gagnrýnu ljósi ásamt því að birta áhugaverða framtíðarsýn. Bókin er jákvætt innlegg og framlag til umræðu um hvert Íslendingar skuli stefna í upphafi 21. aldar. Efni bókarinnar er því engum óviðkomandi, hún er hvalreki fyrir allt áhugafólk um stjórnmál.
Steingrímur færir rök fyrir því að stjórnmál eigi að nálgast með heildstæðum hætti, ekki sé hægt að aðskilja velferðarmál, umhverfismál, efnahags- og atvinnumál, utanríkismál, sjálfstæði og mannréttindi. Hann leggur áherslu á að til þess að takast á við þau fjölþættu viðfangsefni sem blasa við okkur um þessar mundir sé nauðsynlegt að átta sig á samhenginu, tengslum allra þessara þátta. Í bókinni er því komið víða við enda um mikilvægustu og umdeildustu mál samtímans að ræða.
Bókin er 224 blaðsíður, prentuð í Odda með jurtafarfa á vistvænan pappír. Um hönnun kápunnar sáu Baltasar og Mireya Samper en hún vann listaverkið á kápunni. Umbrot og útlishönnun bókarinnar var í höndum Ragnars Helga Ólafssonar.
Útgáfunni verður fagnað í bókaversluninni Iðu, miðvikudaginn 15. nóvember klukkan 18.

