Fréttir

Stöðvum stríðsglæpina í Palestínu - Opinn fundur í dag

22.4.2002

Í dag, mánudaginn 22. apríl, efna ýmis samtök til fundar í Háskólabíói undir yfirskriftinni: "Stöðvum stríðsglæpina í Palestínu". Fundurinn hefst kl. 17:30 og eru allir félagar hvattir til að mæta og sýna þannig í verki stuðning við stríðshrjáð systkini okkar í Palestínu.

Sveinn Rúnar Hauksson læknir og Viðar Þorsteinsson nemi, nýkomnir frá Palestínu, munu lýsa ástandinu þar í máli og myndum, en þeir heimsóttu m.a. flóttamannabúðirnar í Jenin.

Ávörp flytja Jóhanna K. Eyjólfsdóttir formaður Amnesty International á Íslandi og fleiri. Karlakórinn Fóstbræður og Ólafur Kjartan Sigurðarson flytja tónlist. Félagið Ísland-Palestína verður með neyðarsöfnun á staðnum til stuðnings stríðshrjáðum í Palestínu. Allur ágóði rennur til lyfjakaupa og reksturs The Union of Palestinan Medical Relief Commities [www.upmrc.org], óháðra samtaka sem sinna heilsugæslu á herteknu svæðunum.

Að fundinum standa: Félagið Ísland-Palestína, Framsóknarflokkurinn, Öryrkjabandalag Íslands, Frjálslyndi flokkurinn, Bandalag háskólamanna, Samfylkingin, BSRB, Vinstri hreyfingin ? grænt framboð, Alþýðusamband Íslands, Kennarasamband Íslands og Amnesty International.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica