Fréttir

Guðrún Ágústa flytur erindi um stækkun álversins í Straumsvík

16.11.2006

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri - grænna í Hafnarfirði, mun flytja erindi um hugsanlega stækkun álversins í Straumsvík, á fundi Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði, sunnudaginn 19. nóvember.

Fundurinn verður haldinn kl. 16.00 í Hafnarfjarðarleikhúsinu (við hliðina á Fjörukránni).

Þau sem flytja erindi á fundinum eru:

- Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, VG
- Rósa Guðbjartsdóttir, Sjálfstæðisflokknum
- Pétur Óskarsson, Sól í Straumi
- Hrannar Pétursson, Alcan
- Ómar Ragnarsson, fréttamaður

Eftir að ræðumenn hafa flutt erindi sín verða pallborðsumræður þar sem fólk getur komið með fyrirspurnir úr sal.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica