Ályktun flokksráðs um fjármál sveitarfélaganna
Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kom saman til fundar laugardaginn 1. júní sl. Rætt var um fjármál flokksins, húsnæðismál, starfsmannahald, þjónustu skrifstofunnar í sumar og starfsáætlun næstu mánaða. Meginefni fundarins var þó nýliðin kosningabarátta og staðan eftir kosningarnar. Þá var samþykkt svohljóðandi ályktun um fjármál sveitarfélaganna:
"Ljóst er að við nýkjörnum sveitarstjórnum blasa víða mikil og erfið úrlausnarefni vegna bágrar fjárhagsstöðu sveitarfélaganna. Algengt er að beinn rekstur málaflokka taki til sín 85 ? 90% af tekjum. Gefur augaleið að við slíkar aðstæður er lítið sem ekkert svigrúm til að auka þjónustu við íbúana eða til framkvæmda og uppbyggingar. Víða nægir tekjuafgangur ekki fyrir afborgunum þeirra skulda sem fyrir eru og hafa hrannast upp síðustu árin.
Vinstrihreyfingin ? grænt framboð hefur undanfarin misseri gagnrýnt harðlega hvernig ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur dregið lappirnar og nánast ekkert aðhafst til að leysa úr bráðum fjárhagsvanda sveitarfélaganna. Engin lausn er í því fólgin að sveitarfélögin hrekjist út í að selja verðmætustu eignir sínar ef ekki er tekið á hinum undirliggjandi vanda. Ennþá verra er ef bágstödd sveitarfélög villast út á braut einkavæðingar og einkafjármögnunar en kostnaðurinn við þá leið verður að endingu meiri þegar upp er staðið. Með því er vandanum velt yfir á heimilin og reikningunum ávísað á framtíðina. Vandinn í hnotskurn er sá að tekjur hafa engan veginn haldið í við þau verkefni sem færð hafa verið til sveitarfélaganna auk nýrra verkefna sem bæst hafa við á þeirra sviði.
Fjárhagsvandi sveitarfélaganna er eitt alvarlegasta vandamálið sem við er að glíma í okkar þjóðarbúskap nú um stundir. Sem lið í að treysta byggð í landinu verður að gera stórátak til að bæta afkomu og öll starfsskilyrði sveitarfélaganna. Einnig þarf að styrkja velferðarkerfið og bæta þá þjónustu við íbúana sem sveitarfélögin hafa með höndum. Þá er afar mikilvægt að sveitarfélögunum verði gert kleift að taka með miklu metnaðarfyllri hætti á umhverfismálum og fleiri málaflokkum sem þau fara með og hafa afgerandi þýðingu fyrir framtíðina.
Brýnt er að taka nú þegar á fjárhagsvanda sveitarfélaganna til þess að nýkjörnar sveitarstjórnir í landinu fái fast land undir fætur sem fyrst á kjörtímabilinu. Til skoðunar þarf að koma að sveitarfélögin fái hlutdeild í fleiri almennum tekjustofnum. Reglur um jöfnunarsjóð þarf að endurskoða frá grunni og gera verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sveigjanlegri í samræmi við mismunandi stærð og aðstæður sveitarfélaganna og lögfesta skýrar samskiptareglur og reglur um lausn deilumála sem upp kunna að koma milli stjórnsýslustiganna tveggja svo nokkuð sé nefnt. Vinstrihreyfingin ? grænt framboð mun berjast fyrir því að þegar á næsta þingi verði tekist á við fjárhagsvanda sveitarfélaganna svo að þau geti sinnt sínum fjölmörgu og brýnu verkefnum af metnaði."

