Fréttir

RÍKISSTJÓRNIN LÆTUR UNDAN ÞRÝSTINGI STJÓRNARANDSTÖÐUNNAR ? EN BETUR MÁ EF DUGA SKAL

17.11.2006

Stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi, Frjálslyndi flokkurinn, Samfylking og Vinstrihreyfingin grænt framboð fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lögleiða 25 þúsund króna frítekjumark á mánuði vegna atvinnutekna lífeyrisþega frá 1. janúar 2007. Áður hafði ríkisstjórnin kynnt áform um að slík breyting kæmi til framkvæmda í áföngum á árunum 2009 og 2010. Þetta skref nær þó hvergi nærri nógu langt og er aðeins þriðjungur af því sem stjórnarandstöðuflokkarnir hafa lagt til á Alþingi. Samkvæmt þingsályktunartillögu sem Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin og Vinstrihreyfingin grænt framboð stóðu sameiginlega að í upphafi þings er lagt til að frítekjumark vegna atvinnutekna lífeyrisþega verði 75 þúsund krónur á mánuði eða 900 þúsund krónur á ári og komi strax til framkvæmda. Stjórnarandstöðuflokkarnir krefjast þess að ríkisstjórnin stígi nú þegar stærri skref til þess að bæta kjör lífeyrisþega í samræmi við þessar tillögur.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica