"Einkavæddur og seldur Búnaðarbanki eða Landsbanki mun ekki bera neinar staðbundnar skyldur og starfar á allt öðrum forsendum en sparisjóðirnir gera samkvæmt skipulagsskrám sínum. Þeir geta t.d. einhliða lokað útibúum sínum þegar þeim sýnist. Sporin hræða. Landsbankinn hikaði ekki við að loka nokkrum útibúum sínum á landsbyggðinni sl. vetri þar sem þeir voru eini aðilinn með bankaþjónustu. Vill þjóðin þessa þróun?", segir Jón Bjarnason m.a. í grein sinni "Sparisjóður Dalasýslu og Búnaðarbankinn" sem birt er í heild sinni í greinahólfi síðunnar.