Sala á Landsvirkjun samþykkt í borgarstjórn
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samþykkti nú í kvöld að selja hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun. Tillaga þar að lútandi var samþykkt eftir langa umræðu, en borgarfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Frjálslyndra greiddu atkvæði gegn sölunni.
Við afgreiðslu málsins lögðum við fulltrúar Vinstri grænna fram eftirfarandi bókun:
Borgarfulltrúar Vinstri grænna mótmæla harðlega sölu á hlut borgarbúa í Landsvirkjun. Með samþykkt borgarstjórnar í dag er stigið skrefi nær þeim markmiðum stjórnvalda, með Sjálfstæðisflokkinn í fararbroddi, að einkavæða Landsvirkjun. Sameiginlegt eignarhald ríkis og tveggja sveitarfélaga í Landsvirkjun hefur einmitt tryggt að þessi mikilvæga starfsemi væri í höndum samfélagsins. Nú skal hins vegar haldið inn á braut einkavæðingar, í samræmi við stefnu stjórnarflokkanna sem er að mola niður samfélagsþjónustuna og koma henni í síauknu mæli í hendur einkaaðilum. Salan á hlut borgarinnar og Akureyrar í Landsvirkjun er liður í þessari yfirlýstu einkavæðingarstefnu Sjálfstæðisflokksins sem samstarfsflokkar hans í ríkisstjórn, borgarstjórn og bæjarstjórn Akureyrar gangast nú undir. Vinstri græn mótmæla einnig dæmafáum vinnubrögðum meirihlutaflokkanna í borgarstjórn sem héldu öllum efnisatriðum samningagerðarinnar leyndri uns skrifað hafði verið undir samkomulagið. Í júlí sl. hét borgarstjóri því í borgarráði að gera ráðinu grein fyrir framvindu málsins en hefur síðan ekki vikið að því einu orði fyrr en samingur hefur verið undirritaður þar sem búið er að afsala Reykvíkingum dýrmætri sameign án þess að um það hafi verið fjallað af kjörnum fulltrúum og sjónarmið reifuð fyrr en eftir á. Hér gerir meirihlutinn sig sekan um yfirgang og ólýðræðisleg vinnubrögð sem því miður eru ekki einsdæmi á stuttum valdatíma nýrrar borgarstjórnar. Með þessum gjörningi er vegið að hagsmunum Reykvíkinga, bæði í bráð og lengd og ákvörðun um sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun við þessar aðstæður leiðir til þess að raforkureikningar borgarbúa og landsmanna allra mun hækka stórlega í kjölfarið. Fulltrúar Vinstri grænna leggjast hér eftir sem hingað til gegn þeim einkavæðingarleiðangri sem staðið hefur yfir undir stjórn Sjálfstæðisflokks á annan áratug með stuðningi flokka sem setja hagsmuni valds og áhrifa í öndvegi á kostnað almannahagsmuna.
Áður en kom að afgreiðslunni lögðu fulltrúar Vinstri grænna fram tillögu um frestun á afgreiðslu málsins. Sú tillaga var svohljóðandi:
Í umsögn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkur um samning um kaup ríkisins á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun segir m.a.: ?Álitamál er hvort lífeyrissjóðnum sé heimilt að taka við þessum skuldabréfum þar sem þau hafa ekki verið skráð á skipulegan markað eins og megin markmið lífeyrissjóðalaganna kveður á um. Sé það ekki heimilt er gengið út frá því að ríkið muni bæta úr með nauðsynlegri lagabreytingu.? Með vísan til þess að fullkomin óvissa er um hvort Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar sé heimilt að taka við skuldabréfum þeim sem gert er ráð fyrir í samkomulagi um kaup ríkisins á hlut Reykjavíkur og Akureyrar, samþykkir borgarstjórn að fresta frekari umræðu um sölusamninginn þar til niðurstaða hefur fengist í þessu álitamáli.
Þessi tillaga var felld með atkvæðum meirihlutans, enda þótt fyrir liggi að ekki hafi verið gengið tryggilega frá heimildum Lífeyrissjóðsins til að taka við skuldabréfunum. Allir fulltrúar minnihlutans studdu tillöguna hins vegar.

