Fundir kjördæmisráða
Flokksstarfið er komið á fullan skrið eftir sumarleyfi. Næstu daga og vikur verða fundir í kjördæmisráðum, svæðisfélögum og deildum um allt land og ekki að efa að þar verður undirbúningur kosninganna efstur á dagskrá. Laugardaginn 7. sept. verður fundur kjördæmisráðs Suðurkjördæmis í Sólvöllum, félagsheimili Lionsklúbbsins Keilis, Aragerði 4 í Vogum á Vatnsleysuströnd og hefst hann kl. 13:00. Mánudaginn 9. september verður svo fundur í kjördæmisráði Suðvesturkjördæmis í húsnæði Kvenfélags Kópavogs, Hamraborg 10, og hefst hann kl. 20:30. Steingrímur J. Sigfússon formaður mætir á báða fundina og ræðir stöðuna í stjórnmálunum og starfið framundan.

