Fréttir
Utankjörfundur hefst á morgun
Utankjörfundur í forvali VG á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn 28. og 30. nóvember og fer fram kl. 16-21 á þrem stöðum; Suðurgötu 3 í Reykjavík, Strandgötu 11, Hafnarfirði og í Hlégarði í Mosfellsbæ. Allir félagar á höfuðborgarsvæðuinu sem skráðu sig í flokkinn fyrir klukkan fimm á laugardaginn síðastliðinn hafa kosningarétt í forvalinu.
Kjörfundurinn sjálfur verður 2. desember kl 10-22 á sömu stöðum.

