Fréttir

Glæsilegur landsfundur UVG

23.9.2002

Landsfundur Ungra Vinstri-Grænna sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík um helgina var vel sóttur og árangursríkur. Eftir fundinn liggja nokkrar ítarlegar ályktanir, kosið var í nefndir sem sérstaklega er komið á fót vegna komandi kosningabaráttu og loks var lagður grunnur að auknu alþjóðlegu samstarfi UVG og ungliða í nágrannalöndum.

Þá var kjörin ný stjórn UVG til eins árs og varð mikil endurnýjun að þessu sinni þar sem átta fulltrúar af níu taka sæti í stjórn í fyrsta skipti. Fundarmenn þökkuðu hópnum sem borið hefur hitann og þungann af vinnunni síðastliðin tvö ár fyrir vel unnin störf.

Nýju stjórnina skipa þau Ásdís G. Sigmundsdóttir, Finnur Dellsén, Gunnar Örn Heimisson, Huginn Freyr Þorsteinsson, Karólína Einarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Þór Steinarsson, Þórður Mar Þorsteinsson og Þórhildur Örvarsdóttir.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica