Fréttir

Úrslit í forvali í Norðausturkjördæmi

28.11.2006

Haldið var leiðbeinandi forval meðal félaga Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðaustukjördæmi nú í nóvember.

Forvalið fór fram með þeim hætti að félagar rituðu sex nöfn þeirra sem þeir vildu sjá skipa eitthvert af sex efstu sætum listans. Sautján gáfu kost á sér í forvalinu.

 

Úrslit urðu þessi:

 

Steingrímur J. Sigfússon

Þuríður Backman

Björn Valur Gíslason

Hlynur Hallsson

Ingibjörg Hjartardóttir

Jóhanna Gísladóttir

 

Uppstillinganefnd mun nú hefja vinnu við að gera tillögu að framboðslista með hliðsjón af úrslitum forvalsins.  Kjördæmisþing verður haldið 10. desember þar sem listinn verður endanlega ákveðinn.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica