Ögmundur opnar heimasíðu
Ögmundur Jónasson, þingmaður VG í Reykjavík, opnaði nýlega heimasíðu á slóðinni www.ogmundur.is og í nýlegri grein sem nefnist "Veðjar á aldraða" er farið í saumana á samningnum um rekstur hjúkrunarheimilisins Sóltúns.
Í upphafsorðum greinarinnar, sem sækir heiti sitt í nýlega frétt um Frumafl hf. og fjárfestingarstefnu aðaleiganda þess, segir eftirfarandi:
"Jóhann Óli Guðmundsson er eigandi Frumafls sem aftur er einn aðaleigandi Öldungs hf sem hefur gert samning til langs tíma við ríkið um rekstur dvalarheimils fyrir aldraða við Sóltún í Reykjavík. Í Fréttablaðinu á mánudag kemur fram að Jóhann Óli telur sig kominn í mikla gullnámu með samninginn við ríkið upp á vasann og segir blaðið augljóst að hér eftir muni hann ?veðja á aldraða?. Menn rekur eflaust minni til að fyrir um tveimur árum ætlaði Jóhann Óli að beita áhrifum sínum innan Lyfjaverslunar Íslands í þá veru að hún keypti af honum Frumafl fyrir 860 milljónir króna. Með öðrum orðum, þannig mat Jóhann Óli samninginn við ríkið. Mörgum fannst ógeðfellt í meira lagi að braska með rekstrarsamninginn á þennan hátt. Innan stjórnar Lyfjaverslunar Íslands fannst mörgum þetta líka óheyrilega hátt verð."
Greinina í heild er að finna hér.

