Opið málþing VG um velferðarmál
Vinstrihreyfingin - grænt framboð efnir til fundar í flokksráði og opins málþings dagana 15. og 16. nóvember nk. þar sem skerptar verða áherslur flokksins í kosningabaráttunni sem er í raun þegar hafin. Fundurinn verður í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum og hefst kl. 17:00 föstudaginn 15. nóvember með ræðu formanns, Steingríms J. Sigfússonar. Fundurinn stendur fram að hádegi á laugardag, en eftir hádegi er efnt til málþings undir yfirskriftinni "Velferðarstjórn - velferðarsamfélag". Málþingið verður í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum og hefst kl. 14:00. Hér á eftir fer dagskrá málþingsins:
Velferðarstjórn - velferðarsamfélag
Opið málþing VG Hótel Loftleiðum í þingsal 1
laugardaginn 16. nóvember 2002
Fundarstjórar: Katrín Jakobsdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson
14.00 Setning.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG
14.10 Heilsugæsla í kreppu?
Pétur Pétursson, yfirlæknir Heilsugæslust. á Akureyri
14.35 Velferðin og aldraðir.
Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara
14.55 Er velferðarkerfið fjölskylduvænt?
Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar
15.15 Hin hliðin á myntinni.
Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands
15.25 Hristum af okkur fjötrana.
Sigríður Stefánsdóttir, réttarfélagsfræðingur
15.45 Kaffihlé
16.10 Fyrirspurnir og umræður
17.00 Samantekt ráðstefnunnar.
Ögmundur Jónasson, alþingismaður

