Ályktað um viðræðurnar um framtíð herstöðvar í Keflavík
Þingflokkur VG fundar minnst einu sinni í viku yfir sumarmánuðina og ræðir það sem efst er á baugi hverju sinni. Þessa dagana vekur sérstaka athygli fjölmiðla og almennings viðræður bandarískra og íslenskra stjórnvalda um framtíð herstöðvarinnar í Keflavík og virðast nú íslenskir haukar ekki vita sitt rjúkandi ráð meðan friðarsinnar fagna því að brottför hersins virðist nú loks í sjónmáli. Almennar umræður markast af hinni miklu leynd sem ríkir yfir öllum samskiptum stjórnvalda og urðu margir hvumsa þegar spurðist að íslensk stjórnvöld hefðu löngu vitað af þeirri fyrirætlun bandarískra stjórnvalda að draga herlið sitt og eftirlitsvélar á brott frá Íslandi. Ráðherrar vilja greinilega ekki að herstöðvamálið sé rætt á opinn og lýðræðislegan hátt.
Þingflokkur VG sendi frá sér eftirfarandi ályktun að loknum þingflokksfundi í dag:
Ályktun frá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs
í tilefni af viðræðum um framtíð herstöðvarinnar í Keflavík
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs ítrekar þá gagnrýni sem áður hefur verið sett fram á málsmeðferð ríkisstjórnarinnar í viðræðum við Bandaríkjamenn um framtíð herstöðvarinnar í Keflavík. Í þessu tilviki eins og fleirum á undanförnum mánuðum hefur lögboðið samráð við utanríkisnefnd Alþingis verið brotið.
Þingflokkurinn hvetur til þess að leynd verði aflétt af efnisatriðum málsins og þar með töldu innihaldi bréfa sem farið hafa á milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda. Nauðsynlegt er að fram geti farið opin og lýðræðisleg umræða sem liður í stefnumótun til framtíðar. Því verður ekki trúað að óreyndu að svo sé komið að erlend herseta um ókomna tíð og óháð aðstæðum sé orðin markmið í sjálfu sér, en svo mætti ætla af framgöngu stjórnarflokkanna og viðbrögðum fleiri aðila.
Vinstrihreyfingin ? grænt framboð telur einsýnt að Íslendingar eigi að ganga til þessara viðræðna með það að markmiði að takast á við þær breytingar sem við augljóslega stöndum frammi fyrir. Ekki síst þarf að ræða hvernig staðið verði að eflingu atvinnulífs á Suðurnesjum og hvernig tryggt verði að viðskilnaður Bandaríkjamanna í umhverfislegu tilliti verði sómasamlegur, en það er kunnara en frá þurfi að segja að hersetunni hefur fylgt mikil mengun svæða víða um land.
Það er úrelt viðhorf að berjast fyrir óbreyttu ástandi. Verkefnið er að horfast í augu við veruleikann og semja um hvernig þessar breytingar fara fram, enda fagnaðarefni í sjálfu sér ef unnt er að draga úr útgjöldum til hermála hér á landi sem annars staðar og að sá tími skuli nú í sjónmáli að erlendur her hverfi með öllu úr landinu.
30. júní 2003
f.h. þingflokks VG
Ögmundur Jónasson
þingflokksformaður

