Ýtt á viðbrögð vegna stöðu Sementsverksmiðjunnar hf
Þingmenn VG hafa látið sig málefni Sementsverksmiðjunnar hf. á Akranesi miklu varða enda ríkir hagsmunir í húfi. Þingmenn VG efndu ítrekað til umræðna um málið á Alþingi sl. vetur, fluttu tillögur um aðgerðir og héldu málinu vakandi. Þeir efndu til geysifjölmenns fundar á Akranesi og Jón Bjarnason hefur fylgt málinu fast eftir. Í gær, 2. júlí, sendi hann ríkisstjórn Íslands bréf til þess að ýta við málinu og er athyglisvert að það virðist þegar hafa borið nokkurn árangur sbr. morgunfréttir Ríkisútvarpsins. Einnig sendi Jón Sturlu Böðvarssyni, 1. þingmanni Norðvesturkjördæmis ósk um fund þingmanna með iðnaðarráðherra til þess að ræða stöðu málsins. Bréfin tvö fara hér á eftir:
Ríkisstjórn Íslands
b.t. Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra
2. júlí 2003
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs óskar hér með eftir upplýsingum um hvað líði aðgerðum til að tryggja stöðu og framtíð Sementsverksmiðjunnar hf á Akranesi.
Vísað er til umræðna á Alþingi sl. vetur um erfiða fjárhagsstöðu verksmiðjunnar sem hefur mátt þola meinta óeðlilega samkeppni frá erlendum sementsrisa án þess að nokkuð fengist að gert.
Alþingi samþykkti á fjárlögum ársins 2003 heimild til að selja ákveðnar eignir verksmiðjunnar og styrkja þannig fjárhagsstöðu hennar. Í mars sl. samþykkti síðan meirihluti Alþingis heimild til sölu verksmiðjunnar. Í sölulýsingu kemur m.a. fram eftirfarandi: "Leitað er að fjárfesti sem hefur áhuga á að viðhalda rekstri fyrirtækisins, efla það og stuðla að virkri samkeppni á íslenskum byggingamarkaði."
Í umræðum á Alþingi um heimild til sölu verksmiðjunnar 3. mars sl. sagði iðnaðarráðherra eftirfarandi: "Markmið mitt er að tryggja áframhaldandi framleiðslu á sementi hér á landi og tryggja þannig sem best samkeppni á þessu sviði og iðnaðarhagsmuni okkar Íslendinga." Iðnaðarráðherra lýsti því yfir að starfsmenn verksmiðjunnar og aðrir sem hér ættu hagsmuna að gæta fengju að fylgjast náið með framgangi mála. Ekkert slíkt samband hefur verið haft við starfsmenn.
Í umræðum á Alþingi kom fram hugmynd um að endurskoða reglur um flutningsjöfnunarsjóð þannig að hvatt yrði til sjóflutninga á sementi innanlands, en jafnframt tryggð fullkomin hagkvæmni í flutningum og jöfnuður í verði.
Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs tóku málefni verksmiðjunnar upp á Alþingi þegar á fyrstu dögum þings haustið 2002 og fluttu sérstök þingmál þar sem lögð var áhersla á að tryggja framleiðslu og framtíðarrekstur verksmiðjunnar og að samið yrði um aukið hlutverk verksmiðjunnar með því að fela henni brennslu orkuríkra úrgangsefna eins og gert er víða erlendis.
Um 90 manns starfa við verksmiðjuna. Framleiðsla hennar á innlendu sementi tryggir samkeppni á sementsmarkaði hér á landi. Hráefni Sementsverksmiðjunnar er alíslenskt, skeljasandur, líparít og basaltsandur. Hinn mikli brennsluhiti við framleiðsluna gerir verksmiðjunni kleift að nýta orkurík úrgangsefni eins og olíu, hjólbarða, plast og annan orkuríkan úrgang, sem nú er bannað að urða og er þegar innheimt skilagjald til eyðingar þessara efna. Brennslu á úrgangsolíum sem verksmiðjan hefur nýtt á undanförnum árum hefur nú verið hætt og olían flutt úr landi til eyðingar.
Hin mikla óvissa sem Sementsverksmiðjan, starfsmenn hennar og neytendur búa við er óviðunandi. Hún veikir stöðu verksmiðjunnar og gerir endurfjármögnun hennar örðugri. Að óbreyttu mun verksmiðjunni blæða út og sementsframleiðsla leggjast af í landinu.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs fer eindregið fram á eftirfarandi:
1. Tafarlausar aðgerðir til að tryggja framtíðarrekstur verksmiðjunnar í samræmi við þau markmið sem lýst var í umræðum um málið á Alþingi fyrr á þessu ári.
2. Upplýsingar um stöðu málsins, hvað ríkisstjórnin er að gera eða hyggst gera á næstu dögum til að tryggja áframhaldandi framleiðslu og rekstur Sementsverksmiðjunnar hf.
3. Að haft verði samráð við starfsmenn verksmiðjunnar eins og gefin voru fyrirheit um.
Virðingarfyllst
f.h. þingflokks Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs
Jón Bjarnason
8. þingmaður Norðvesturkjördæmis
Afrit sent:
Davíð Oddssyni forsætisráðherra
Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra
Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra, 1. þingmanni Norðvesturkjördæmis.
Hr. 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis
Sturla Böðvarsson
Vegna þeirrar óvissu sem Sementsverksmiðjan á Akranesi býr við óska ég eftir því að þú sem 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis beitir þér fyrir sameiginlegum fundi þingmanna kjördæmisins með iðnaðarráðherra til þess að fara yfir stöðu mála varðandi verksmiðjuna.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að sementsverksmiðjan gegnir mikilvægu hlutverki í íslenskum iðnaði og tryggir fjölda manns á Akranesi atvinnu. Innlend framleiðsla og starfsemi verksmiðjunnar tryggir samkeppni gagnvart erlendum innflutningi sements. Hlutverk verksmiðjunnar við brennslu og nýtingu orkuríkra úrgangsefnagetur haft umhverfislega og fjárhagslega mikla þýðingu fyrir þjóðina. Brennslu á úrgangsolíu í verksmiðjunni hefur nú verið hætt.
Á Alþingi sl. vetur var samþykkt heimild til sölu Sementsverksmiðjunnar hf. Verksmiðjan er að fullu í eigu ríkisins, en ætlunin var að tryggja með öðrum hætti rekstur hennar og fjárhagsgrundvöll. Afgar brýnt er að taka nú þegar á málum verksmiðjunnar en fjárhagsstaða hennar er slæm. Hin mikla óvissa sem Sementsverksmiðjan, starfsmenn hennar og neytendur búa við er óviðunandi. Hún veikir stöðu verksmiðjunnar og gerir endurfjármögnun hennar örðugri. Að óbreyttu mun verksmiðjunni blæða út og sementsframleiðsla leggjast af hér á landi.
Þessi staða er algjörlega óviðunandi og mikilvægt að þingmenn kjördæmisins láti málið til sín taka. Fyrsta skref í þeim aðgerðum er að þingmenn eigi fund með iðnaðarráðherra um málefni Sementsverksmiðjunnar hf á Akranesi.
Áréttað er að málið er afar brýnt.
2. júlí 2003
Virðingarfyllst
Jón Bjarnason
8. þingmaður Norðvesturkjördæmis
Afrit sent þingmönnum Norðvesturkjördæmis.

